Tíminn - 03.04.1920, Qupperneq 4
52
TÍMINN
þeir hann um borgina fagnandi,
við stóra fylgd«.
»En hann á þetta skilið — og
miklu meira!«
Ókunni maðurinn leit á konuna
og spurði:
»Eruð þér kona hans?«
»Nei! Eg er gift einum vina
hans«.
»En þér eigið hér heima?«
»Já, við eigum heima uppi á
kvistinum og önnumst heimilið
fyrir hr. Rossí«.
»Og þér dáist mjög að honum«.
»Það gera allir, sem þeklcja hann,
því að hann er gæskan sjálf.
Hann hugsar æ um aðra. Hann
hefir enga galla —1 hann er full-
kominn .... Hann er . . . .
Hún hætti, því að það var eitt-
hvað í augnatilliti mannsins, sem
kom henni illa.
»Hvað heitir maður yðar?«
»Hann heitir Brúnó Roccó og
er vinur Rossís. Þeir urðu svo ná-
kunnugir af því, að þeir kyntust
1 fangelsk.
»í fangelsi?«
»Já, það er að segja í hermanna-
fangelsi. Hr. Rossí neitaði að ganga
í herinn og var því hneptur í varð-
hald. Hann var spentur á pínu-
bekkinn og í tvo daga leið hann
eins og Kristur, án þess að stuna
heyrðist af vörum hans. En her-
maðurinn, sem átti að pina hann,
— það var Brúnó og hann hefir
sagt mér það sjálfur — fór til yfir-
mannsins og sagði: »Herra! Eg
get ekki rekið þetta starf«. »Þú
mundir vilja fá aunað að starfa?«
»Rér ráðið því«, svaraði Brúnó.
»Eg mun ekki veita mótþróa og
Guð er mér vilni, að mér muni
veilast það hægar!«
»Var hann þá spentur á pínu-
bekkinn?«
»Já. Hann og hr. Rossí lágu
hvor við annars hlið. En kvölin
varð ekki löng, því að það barst
út fregn um það og það var gerð-
ur svo mikill hávaði út af því,
að þeir voru báðir látnir lausir«.
»Hver hafði komið því upp?«
»Það hafði eg gert. Eg var þá
þvottastúlka, en við mistum öll
stöðuna við fangelsið, pabbi,
rnamma og eg, þótt þau væru bú-
in að vera þar eins lengi og mig
rekur minni til. En svo giftist eg
Brúnó og við tókum að okkur að
stjórna heimilinu fyrir hr. Rossí
og hann fékk húseigandann hérna
til að gera föður minn að dyra-
verði«.
»Þetta mun vera borðstofan?«
spurði ókunni maðuriun.
»Já, því er nú ver!«
»Hvers vegna segið þér það?«
»Af því að borðið stendur þarna
og anddj^rið er beint á móli og
engin gluggaljöld fyrir glugganum
og hann hefir engan frið. Menn
nota sér það, að þeir vita, að hann
gefur sinn síðasta matarbita, hafi
hann ekki annaö! Eg verð stund-
um að setja ofan í við hann —
eg get ekki annað. Og faðir minn
.— þarna niðri, segist aldrei munu
sleppa úr hreinsunareldinum, vegna
allra þeirra lygasaga, sem hann
smíði til þess, að gefa hr. Rossí
malfrið«.
»Svefnherbergið mun vera þarna
inni?«
»Nei, það er dagstofan hans og
þar talar hann við þingmennina,
samverkamennina við blaðið og
kjósendurna. Þér getið komið inn
ef þér viljið«.
Á veggjunum héngu mytidir af
Massíni, Garíbaldi, Kossuth, Lin-
coln, Washington og Cromwell.
Húsgögnin voru fátækleg, en mikið
af hinum og þessum gripum.
»Petta eru alt saman gjafir«,
sagði konan og benti. »Hann fær
gjafir hvaðanæfa. Hljóðfærið kom
frá Englandi, bækurnar frá Þýska-
landi, myndastyttan frá Frakk-
landi — en þessi gripur er merki-
legastur«.
»Fónógraf!«
»Já! Það kom plata frá Elbu
fyrir viku síðan«.
»Frá Elbu? Ef til vill frá pólí-
tiskum fanga?«
»Hr. Rossí kallaðiþað: wSíðustu
Stiy&jið innlenðan iðnaðl
Hvað er það sem vér þörfnumst mest? Það er að þvo okkur og baða meira en við gerum, til
þess að hinni líkamlegu og andlegu heilbrigði
„liríð íari fram“
og til þess þurfum vér sápn. Hingað til hafa verið fluttar til landsins nokkur hundruð smálestlr af
sápu á ári — sumar miður góðar — því menn kaupa óséð. En nú þarf ekki að flytja neitt af blauta-
sápu eða stangasápu til landsins, þvl hún fæst hér.
Verksmiðjan „SER0S“ í Reykjavík
býr til og selur kaupmönnum og kaupíölögum þá heztu sápu sera hægt er að fá, og kostar hún í
smásölu kr. 2,30 pr. kíló, og fæst nú þegar hjá þessum verzlunum hér í bænum.
Bækur og- ritföng’
kaupa meim í
Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar
ján A. Ólafsson og var úr Reykja-
vík, en ættaður vestan af Rauða-
sandi í Barðastrandarsýslu.
Látinn er hér í bænum í síð-
ustu viku Þorsteinn Guðmundsson
yfirfiskimatsmaður, hinn mesti
sæmdar- og atorkumaður.
Helgafellsprestakall — Stykkis-
hólmur — er auglýst til umsóknar.
■Verzluniin „Yísir44
Laugaveg i.
Jóh. Ögm. Oddsson
Laugaveg 63.
Verzl. Gr. Olsen
Aðalstræti 6.
Sigurður Skúlason
Pósthússtræti 9.
Verzlunin „Vaönes“
Laugaveg.
Elías Lyngdal
Njalsgötu 23.
Guðjón Jónsson
Hverfisgötu 50.
II. Gunnlögss. &. Co.
Vasturgötu 20.
dléalúhöfuna fíafir
Jón Hjartars. & Oo
Hafnarstræti 4.
Gunnar Pórðarson
Laugaveg 64.
'V'erzl. „Breiöablik“
Lækjargötu 10.
\
Sigurjón &étursson
Hafnarstræti 18.
Símar 137 og 837.
orð deyjandi manns!« »Við verð-
um að spara fé til þess, að geta
keypt fónógraf og heyrt hvað stend-
ur á plötunnk, sagði hann. En
daginn eftir var komið með fónó-
grafinn inn i stofuna«.
»Heyrði hann þá orðsendinguna
frá Elbu?«
»Eg veit það ekki — eg hefi
ekki spurt að þvi. Hann lætur vél-
ina oft ganga til þess að skemta
drengnum. En eg hefi aldrei séð
hann taka plötuna. — Hér er svefn-
herbergið. Gerið svo vel að koma
inn«.
Það var lítið herbergi, bjart og
vingjarnlegt. Skrifborð stóð út við
gluggann, og á því voru stórir
haugar af blöðum.
»Þetta mun líka vera g jöf«,
sagði ókunni maðurinn og tók
rýting af borðinu og reyndi eggina
á nöglinni.
»Já, hann notar hann sem pappírs-
hnif. Honum var líka einu sinni
send sexhleypt skammbyssa, en
hann notar hana ekkert, svo hún
liggur víst einhversstaðar í blaða-
búnkanum«.
»Hver er þetta?« Ókunni mað-
urinn skoðaði gamla, daufa mynd
j fílabeinsramma, sem hékk við
hliðina á rúminu. Það var mynd
af göinlum manni, með hált enni
og föðurlegan svip.
»Það mun vera einhver af hin-
um ensku vinum hr. Rossís«.
»Myndin er a. m. k. tekin í
Englandi, þó að svipurinn á and-
litinu sé rómverskur...........En
þetta mun vera enskt« . . . . ! og
ókunni maðurinn tók ramma af
veggnum. Það var ekki mynd undir
glerinu, heldur skrifuð orð, líkt
og ritningarstaðir, sem guðhrætt
fólk var vant að hafa á áberandi
stað, í gamla daga.
»Hann elskar England og þreyt-
ist aldrei að tala um mikilleik
þess«.
Nú heyrðust ótal fagnaðaróp og
mikill mannfjöldi kom nær. Dreng-
urinn æpti af ánægju og ókunni
maðurinn heyrði það, að konan
fór út.
Hann stóð kyr, hélt á tréramm-
anum i hendinni og las orðin sem
skráð voru á ensku, undir glerinu:
»Frá hverju er eg kallaður?«
»Frá ást á auðæfum, heiðri,
heimili og konum!«
»Til bvers er eg kallaður?«
»Til þess að tilbiðja Drottin
og þjóna mönnunum, í fátækt,
hreinleika og hlýðni!«
»Hvers vegna er eg kallaður?«
»Vegna þess að hinum Almátka
hefir þóknast, að láta mig vera
heimilislausan, landflótta vegfar-
anda, án föður og móður, systur
og bróður, frænda eða vinar«.
»í ugg og ótta rita eg nafn mitt
óverðugur, í þeirri von, að rödd
hjarta míns leiði mig ekki afvega«.
D. L. London.
Eiðaskólinn.
[Askorun sú, sem hér fer á eftir, var
send síöasta Alþingi. Voru uiidirrituö
nöfn um 100 kjósenda].
Við undirritaðir Alþingiskjósend-
ur á Fljólsdalshéraði leyfum oss
hér með að skora á hina háltvirtu
Alþingismenn Múlasýslna að flytja
á næsta Alþingi frumvarp um að
alþýðuskólinn á Eiðum verði flutt-
ur að Hallormsstað.
z Ástæðan til þess, að vér förum
fram á að frumvarp í þessa átt
verði flutl og samþykt á Alþingi
nú, er sú, að ákveðið hefir verið,
að byggja skólahús fyrir skólann
á yfirstandandi ári eða næstu ár-
um; því ef hið hás Alþingi féllist
á flutning skólans, þá væri sjálf-
sagt að byggja hið nýja skólahús
á Hallormsstað en eltki á Eiðum.
En ástæðurnar til þess að flytja
skólann að Hallormssað eru eink-
um þessar:
1. Hallormsstaður er, að vorri ætl-
un, hentugri staður fyrir slíkan
alþýðuskóla til sveitar en Eið-
ar, — sem síðar verður bent á
nánar.
2. Hallormsstaður lætur í té meira
af þeim jarðarafurðum sem slíkur
sveitarskóli þarf, svo sem:
a. Eldsneyti nægt úr skóginum.
b. Mjólk, sem telja má lífsnauð-
synlega fyrir slíkan skóla,
því Hallormsstaður leyfir mik-
ið meiri nautgriparækt en
Eiðar, en sauðfjárræktar telj-
um vér ekki þörf vegna skól-
ans.
c. Jarðepli, sem má rækta miklu
meiri á Hallormsstað en á
Eiðum.
3. Það gæti verið til eflingar skóg-
ræktinni á Hallormsstað og skóg-
rækt alment:
a. Með þvi að eldsneytisþörf
skólans — til viðbótar við
aðra þörf skógarnytja — knýði
til þess að meira yrði unnið
að því að grysja skóginn en
nú er gjört, — sem brýn
þörf er á.
b. Með því að nemendur ættu
kost á að kynnast skógrækt
og vinna að henni (á vorin),
og gæti það orðið til þess að
eíla áhuga manna fyrir skóg-
rækt alment. Enda æskilegt
að hafa námsskeið í skóg-
rækt í sambandi við skólann.
4. Ef skólinn væri á Hallormsstað,
mætti nota skólahúsið á sumr-
um lil að taka á móti ferða-
mönnum innlendum og útlend-
um, en til þess eru nú hvorki
næg né viðunandi húsakynni á
Hallormsstað, og þyrfti, ef til
vill, að tryggja þau í því skyni
hvort sem er, og væru þau hús
þá ónotuð á vetrum.
5. Nú, þegar farin eru að tíðkast
ýms sameiginleg mót fyrir Norð-
urlönd.svo sem stúdenla-.lækna-,
guðfræðinga-, lögfræðinga-, o. fl.,
og þar sem ísland er nú komið
í tölu hinna sjálfstæðu ríkja, er
enginn efi á, að það tekur þátt
í slíkum mótum, og yrðu þau
að sjálfsögðu haldin hér á landi
við og við. — Væri vandfund-
inn fegurri og skemtilegri stað-
ur til þess en Hallormsstaður,
og vandfundin auðveldari og ó-
dýrari leið til undirbúnings þvi,
en að reisa Eiðaskóla þar.
6. Hallormsstaður er, að vorri
hyggju, einhver allra fegursti
staður á öllu landinu fyrir al-
þýðuskóla til sveitar. — Gæti
slíkt haft allmikla þýðingu, bæði
fyrir aðsókn að skólanum og
þroska nemenda.
Vér teljum vafalaust að ríkis-
sjóður geti fengið fult verð fyrir
eignir sínar á Eiðum, á einn eða
annan hátt, sem henta þætti.
Virðingarfylst.
í janúarmánuði 1920.
(Undirskriftirnar).
Fréttir.
Tíðin. Hláka alla Jvikuna og
blíðviðri, úrkoma nokkur.
Messur hófusl aftur hér f bæn-
um á Pálmasunnudag.
Veikindin eru mjög að minka í
bænum. Síðustu sjúklingarnir á
förum úr barnaskólanum.
Skólai’nir. Flestir skólanna hafa
nú aftur tekið til starfa.
Samkomubannið innan Reykja-
víkur hefir verið afnumið. Þó gilda
nokkrar takmarkanir enn um
kvikmynda-leikhúsin.
Slys. Siðastliðinn mánudag tók
mann út af »Jóni Forseta« og
náðist ekki aftur, Hét hann Krist-;
Borgarstjórinn. Mikið er rætt um
borgarstjórakosninguna í Reykja-
vik. Er talið víst að Knud Zimsen
sæki á ný.
Pýskt skip sem var á leið hing-
að með saltfarm, lenti í hinum
mestu hrakningum, skemdist skipið
og skipstjóra tók út. Voru skip-
verjar mjög aðfram komnir af
vosbúð og hungri, þá er einn ís-
lensku botnvörpunganna bjargaði
skipinu hingað á höfn.
Garðyrkjufólagið hefir nýlega
sent út »Ársrit« sitt fyrir yfirstand-
andi ár. Eru þar í ágætar hugvekj-
ur. Hin fyrri um kartöflur eftir
Hannes Thorsteinsson bankastjóra,
en hin síðari um vermireiti eftir
Einar Helgason, auk smælkis. Eru
félagsmenn Garðyrkjufélagsins nú
alls 116, 53 æfifélagar og 63 árs-
félagar. Er árstillag 2 kr., en æfi-
tillag 20 kr. Er þess að vænta að
miklu fleiri verði til þess að styðja
félagið með því að ganga í það.
Félagsmenn fá Ársritið ókeypis
meðan upplagið endist.
Síra Kjartan Helgason. Vestur-
íslendingar hafa tekið síra Kjartani
tveim höndum, sem líklegt var.
Hefir liann nú ferðast víða um
bygðir íslendinga. Hefir honum
verið sýndur margfaldur sómi. Á
fyrsla ársþingi þjóðræknisfélagsins
var hann kosinn lífstíðar heiðurs-
félagi félagsins.
Magnús Gíslason Goodmann frá
Winnipeg getur sér þar mikinn
orðstír fyrir íþróttir, einkanlega
skautahlaup. Rar hann nýlega
frægan sigur úr býtum í allsherjar-
skautakapphlaupi fyrir Manítoba-
fylki og vann þá í þriðja sinn
verðlaunabikar, sem þá er orðinn
eign hans. Er Magnús að eins tví-
tugnr að aldri og er nú í New-
York og tekur þar þátt í skauta-
kapphlaupum.
Umsóknarfrestur um Eyjafjarð-
arsýslu er liðinn og eru þessir
umsækjendur: Steingrímur Jónsson
sýslumaður á Húsavík, Sigurður
Eggerz fyrv. ráðherra, Ari Arnalds,
Júlíus Havsteen, Sigurður Sigurðs-
son frá Vigur, Jón Sigtryggsson
og Marínó Hafstein.
Nýtt fólag hafa lögfræðingar og
hagfræðingar í bænum stofnað með
sér. Mun það meðal annars hafa í
hyggju að gefa út tímarit.
Ágætur afli er nú sagður úr öll-
um vertíðarstöðvunum, enda góð-
ar gæftir upp á síðkastið.
íslenskan og enskan. Fer það
að líkindum að þjóðernis baráttan
verður erfiðari löndum vestra.
Fyrsti lúterki söfnuðurinn í Winni-
peg hefir orðið að hníga að því
ráði, að láta kristindómskensluna
í sunnudagaskólanum fara fram
bæði á ensku og íslensku, eftir
þvi sem kosið verður af hlutað-
eigendum. Hafi mörg barnanna
kenslunnar lítil not, fari hún fram
á íslensku. »f*au séu orðin svo
ensk«.
Ritstjóri:
Trygffvi ÞórhallBBon
Laufási. Sími 91.
Prentsmiófan Guicnherg.
/