Tíminn - 19.06.1920, Síða 1

Tíminn - 19.06.1920, Síða 1
TIMINN um sextiu blöð á ári kostar tíu krónur ár- gangurinn. AFGREWSLA blaðsins er hjá Guð- geiri Jónssyni, Hverjis- götu 34. Simi 286. IT. ár. Stjórnar.'kifti i Jforegl? Hingað hefir borist símfregn um að stjórn Noregs hafi beðist lausn- ar, vegna ósamkomulags við þingið um fjárveitingar til vegagerða. Þetta virðist óneitantega lítilfjör- legt mál til þess að steypa elsta ráðuneyti Norðurlanda. Er því vel hugsanlegt, að forsætisráðherrann norski, Gunnar Knudsen, hafi sagt af sér embætti einmitt til þess, að beygja andstæðingana undir sinn vilja. í þeirri von, að án hans, væri ekki hægt að mynda ráðu- neyti í Noregi. Gunnar Knudsen hefir um langt skeið verið hinn voldugasti maður í norskri pólitík. Hann er gamall að aldri (fæddur 1848), er upp- haflega verkfræðingur, en tók snemma við verslun föður síns, sem var auðugur skipaútgerðar- maður. Hann hefir rekið þessa atvinnu af miklum dugnaði og auk þess fengist við mörg önnur iðnaðarfyrirtæki, sem jafnan hafa blómgast vel í höndum hans. Knudsen hafði snemma áhuga á stjórnmálum og kom ungur á þing. Þótt hann væri kaupmaður og verksmiðjustjóri, þá varð hann brátt sannfærður um, að landbún- aður ætti og yrði að vera aðal- atvinnuvegur Noregs. Hefir hann oft beitt sér fyrir verndartollum fyrir landbúnaðinn. Knudsen var fjármálaráðherra i ráðuneyti Blehrs 1901—1902 og aftur í hinu fræga ráðuneyti Mic- helsens 1905, en lagði niður em- bætti, er það var ákveðið, að gera Noreg að konungsríki, því hann var ákveðinn lýðveldismaður. En þó Iínudsen viki úr embætti, þá hélt hann samt áhrifum sínum, sem voldugasti maður Vinstri- flokksins. Árin 1908—1910 var hann svo forsætisráðherra, og kom mörgum góðum og frjálslegum lög- um í framkvæmd. En 1910 klofnaði Vinstrimanna- flolckurinn og gekk nokkur hluti hans í bandalag við Hægrimenn, og urðu því stjórnarskifti óhjá- kvæmileg. Var þá mesta los á norskum stjórnmálum þangað til í ársbyrjun 1913 er Knudsen mynd- aði aftur ráðuneyti og hefir það setið alt til þessa. Eins og nærri má geta eru mis- jafnir dómar um stjórn Knudsens á ófriðar-árunum. En allir munu þó vera um eitt sáttir, að hann sé hinn mesti dugnaðarmaður. Vissulega hefir hann átt við mikla erfiðleika að stríða. Noregur átti við ólíkt meiri erfiðleika að stríða en til dæmis Danmörk, á þeim tíma sem kafbátahernaðurinn geysaði, því Norðmenn verða að sækja flestar lifsnauðsynjar sinar til ann- ara landa. Stjórn Knudsens hefir verið gætin og hægfara Vinstrimannastjórn. Hann kann allra manna best að bræöa saman ólíka flokka og er hinn mesti samningamaður. 1 landsmáls-baráttunni, sem er eitt af helstu deiluefnum ílokkanna, hefir hann verið hlyntur máls- mönnum, án þess þó að ganga út í öfgar. Hann hefir jafnan verið þjóð- rækinn sjálfstæðismaður, en æs- ingamaður er hann sist af öllu. Það er þvl ekki óliklegt, þó Gunnar Knudsen víki nú frá völd- um, að hann sé engan veginn úr sögunni i norskum stjórnmálum. Rafmagnsmálið. Herra Eiríkur Hjartarson raf- fræðingur víkur að því á öðrum stað hér í blaðinu hversu marg- háttað gagn mætti verða af notkun rafmagnsins. Þann lærdóm þyrfti að endurtaka svo oft og svo kröft- uglega að kröfurnar um fram- kvæmdir f því máli yrðu svo há- værar og þungar að enginn fengi rönd við reist. í næstsíðasta tölublaði Tímans var sagt frá því hvað blasti við um þá aflgjafana sem við notum nú í stað rafmagnsins: kol og olíu. Eyðslan og eftirspurnin eftir því hvorttveggja er orðin langtum meiri en má, því að birgðirnar sem til eru, eru svo að kalla á þrotum. Hátt verð er óumflýjanleg afleiðing þessa ástands, takmörkun likleg og fullur skortur í bili a. m. k. mjög vel hugsanlegur. Þetta er ógurlegur og óþolandi skattur á kola- og olíulausu löndin, þau verða hinum, sem eiga, beinlínis háð. Mætti rétt minna á það í þessu sambandi að Skotland hefir alveg nýlega sett fullkomið útflutnings- bann á kol, fyrst um sinn, og ó- vissan vofir enn yfir um England, nema um þau kol sem fást fyrir hestana. Þetta er annar lærdómurinn sem ei verður of oft brýndur fyrir öll- um hugsandi mönnum á íslandi og á sömuleiðis að leiða af sér ómótstæðilega kröfu um að hefjast handa í rafmagnsmálinu, að nota afllindirnar sem við eigum sjálfir, í stað þess að vera undir útlendu oki í þessu efni. Heilar sveitir eru nú farnar að hefjust handa í þessu efni og stofna til félagsskapar. Borgfirðingar hugsa til að beisla Andaldlsárfoss og er aðstaða þar með afbrigðum góð. Skagfirðingar létu í fyrrasumar at- huga aðstöðuna hjá sér mjög víða. Miklu fleiri dæmi mætti nefna um vaxandi áhuga almennings. Pað er eitt af höfuðverkefnum landsstjórnarinnar að styrkja af al- efli alla þá viðleitni sem miðar i þessa átt, vera boðin og búin til að láta hverskonar aðstoð í té, um að taka eignarnámi selda fossa, um að greiða fyrir um að fá lánsfé, um að útvega þá verklega aðstoð sem nauðsynleg er. Undanfarin ár hafa áþreifanlega sannað það, hvað það er dýrt að fresta þeim framkvæmdum, er hvort sem er á að framkvæma. Sá lærdómur á við enn. Þau héruð sem á annað borð hafa ágæta að- stöðu um að koma á rafleiðslu, bíða mikið tjón við hvert ár sem liður án þess það sé gert. Löggjafarhliðin á málinu er enn óafgreidd og það mun vera ótal margt sem vinna mætti til undir- búnings af landsstjórninni. Það er um mál að ræða sem verður einna allra efst á dagskrá á næstu árum. Þess betur sem það verður undir- búið, því betri forsjá og því meiri dugnaður sem sýndur verður af landsstjórnarinnar hálfu og þings, því meiri atfylgi mun aímenningur veita málinu og því fyr losnar þjóðin undan þessu útlenda oki og fær að njóta hinna margvíslegu þæginda og hagræða sem fylgja. ----- Reykjavík, 19. júní 1920. ^hnginn jyrir rajmagnsmáiinn. Svo virðist sem nokkur áhugi sé að vakna hjá almenningi um land alt fyrir rafmagnsmálinu, eða nýting vatnsafls til rafmagnsfram- leiðslu, sanna það meðal annars fjöldi fyrirspurna, sem komið hefir úr flestum sveitum landsins, lil mín og annara. Langflestar eru þessar fyrir- spurnir viðvíkjandi stöðvum fyrir einstök heimili og er ekkert við því að segja, víða getur hagað svo til, að slíkt sé það sjálfsagða, eða það sé ódýrara þeim, sem hlut á að máli, en að fleiri slægju sér saman um stærri stöð, sem all- víða muö geta komið til greina, og væri að sjálfsögðu það æski- legasta. Svo má vera, að þessu ráði að nokkru leyti dugnaður og geta einstakra manna, sem ekki hafa skap til að biða eftir áhuga- Ieysi og litlum mætti alls fjöldans. Hér þarf að ýta við öllum svo þeir vakni. Margir bæir eða heilar sveitir eða héruð eiga að koma sér saman um rafmagnsstöð, eftir því sem ástæður eru með afl og aðra staðhætti. Allir, sem málinu vilja vel ættu að skýra fyrir sér og öðrum, hvaða not hver landsbúi getur haft af rafmagni, sem unnið er úr arð- lausum ám og lækjum þessa lands. Ljós og hiti eru þau lífsskilyrði, sem öllu eru nauðsynleg til vaxtar og viðhalds. Hvorttveggja er hér af mjög skornum skamti. Úr því gæti rafmagnið bætt að miklum mun. Mannsaflið er orðið afar- dýrt og lítt fáanlegt mörgum, raf- magnið getur viða komið í staðinn. Ætla eg að færa til þess nokkur dæmi. Þegar minst er á rafmagns- notkun er lýsingin það fyrsta sem flestum lcemur í hug. Hver er þá munurinn á rafljósum og steinolíu- ljósipn? Það er fyrst og fremst betri og meiri ljós, sem leiðir af sér, betri og greiðari vinnu, sparn- að við að hreinsa upp lampa og fleira sem af olíunotkun leiðir. Eldhætta ólikt minni, þegar hætt er að flökta með eldspítur og log- andi ljós um öll bæjarhús. Hægt að kveikja og slökkva á svip- stundu og áhaldalaust. Spöruð steinolía eða annað útlent ljósmeti, rafmagn, sem hér um ræðir, er heimafengin vara, þó áhöldin séu útlend. Þá er eldsneytið; það væri fróð- legt að vita hvað mörg kýrfóður af töðu gætu vaxið upp af sauða- taðinu og öðrum áburði, sem nú er brent? Hvað mörg dagsverk fara í það á meðal heimili, að gera öllum eldivið til góða, taka upp mó, þurka hann, ásamt öðru eldsneyti, heimflutningur o. fl. ? Gæti ekki mörg húsfreyjan spar- að sér meðal vinnukonu með þvi að losna við eldiviðinn eins og hann nú gerist, losna við að »sækja taðið út í kofa og kveikja undir grautnum gióð«. Losna við öskuna og öll þau kynstur af óhreinind- um, sem af þessu leiðir. Svari konurnar þessu? Rafmagnið til sömu notkunar framleiðir engan reyk, enga ösku eða óhreinindi af nokkru tægi, og fyrirhöfnin er að eins að snúa litlum snerli eða þrýsta á hnapp. Líkt er farið með upphitun alla, hún mundi verða að sama skapi auðveldari og hún þyrfti að auk- ast úr því sem er. Húsakynnin entust betur, væru vistlegri og heilnæmari, ef þau væru betur hituð. Þá er ótalið húsrúmið, sem allur þessi nútímans eldiviður þarf, það má alveg spara, og setja eldi- viðarkofana á forngripasafnið. Rafmagnið getur gert fleira en lýst og hitað. Sé margt í fjósinu borgar sig vel að láta það moka flórinn og mjólka kýrnar, snúa skilvindunni og skaka strokkinn; við slíkt hefir reynst, að lipur unglingur afkastaði eins miklu með góðum útbúnaði og 2—3 karlmenn með gamla laginu. Þá má Iáta það snúa saumavél, prjóna- vél, spunavél eða rokkum, þvotta- vél með tilheyrandi (lika eru til þvottavélar fyrir leirtau, en slíkt er tæpast notað nema á hótel- um). í smiðjunni getur það snúið rennibekknum, borvélinni, hverfi- steininum, blásið í aflið og fleira og fleira. Utanbæjar er rafmagn notað til margskonar vinnu, t. d. við að mola áburð, dæla vatn, hala hey upp í hlöður, saga trjávið og við ýmsa byggingarvinnu. Þó má bú- ast við, að það verði mest notað hér fjuir bila, sem hafðir væru til allskonar dráttar, svo sem að plægja og herfa, slá, flytja áburð, hey og auðvitað lil allskonar að- drátta og fólksflutninga, þar sem vegir væru svo góðir og þörf krefði. Það, sem hér hefir verið talið, er að eins nokkuð af samskonar verkum og hliðstæðum, sem stað- reyndir, sumar margra ára, hafa sannað, að borgaði sig að vinna með rafmagni. En svo er að sjálf- sögðu margt, sem sá er þelta ritar ekki veit utn eða man eftir, og átt gseti við hér. Auk þess skapa breyttir staðhættir breytta notkun og nýja notkun. Ekki virðist til dæmis ósennilegt, að hægt væri með hagnaði, að þurka hey með rafmagni á svipaðan hátt og þurk- aður er íiskur. Óþurkarnir eru oft dýrir og á meðan bændur verða að be^'gja sig að öllu leyti undir veðráttuna, svo kaldlynd og kvik- lynd sem hún er, þá er ekki við góðu að búast. Ymsum kann að virðast, sem þetta sé alt saman gott og bless- að, ef það væri framkvæmanlegt, en þar séu þau ljón á veginum, sem enginn megni í móti að ganga, og munu þeir helst telja fjárskort. En slíkt eru grýlur óljósra hugs- ana. Eins og stendur er vitanlega ekki til nægilegt fé né aðrar nauð- synjar til að byggja svo stórar rafmagnsstöðvar, með afltaugum og öð?u tilheyrandi, sem nægði fyrir afl-notkun allra landsbúa. En það er til nóg fé til byrjunar, sem af bændum ætti að vera sú: að þeir kæmu upp vandaðri raf- magnsstöð, helst í sambandi við eitthvert skólahúsið, ef þess væri kostur, sem svo kendi, sýndi og sannaði, hvernig réttast væri að haga sér og halda áfram í þessu efni. Þó slík byrjun kostaði 50— 100 þúsund með öllu tilheyrandi, þá sýnist þurfa meir en lítið af ódugnaði og volæði, til að halda þvi fram, að slikt væri bændum ofurefli, ef þeir vildu. Þeir ættu vel að muna það, sem sagt var fyiir löngu og reynslan hefir sann- að, að sá sem ekki veit í hvaða 24, blað. höfn hann ætlar að halda, honum er enginn vindur hagstæður. E. 11. 17. júní. Tvöföld hátíð að þessu sinni 17. júní. Fyrst og fremst hið venju- lega hátíðarefni þessa þjóðminn- ingardags, minning forsetans, leið- togans og fyrirmyndarmannsins: um heilbrigðar skoðanir, þjóð- rækni, stefnufestu, forystueðli og þar af leiðandi farsæld og gengi í baráttu, en eigi síður fyrirmyndar- mannsins um heilbrigða stjórn- málamensku, óeigingjarna starf- semi og fölskvalausa ættjarðarást. Gengust íþróttamennirnir fyrir hátíðahaldinu og verður siðar gjör sagt frá íþróttamótinu, þá er því er lokið, sem er á morgun. Geta verður þó eins atburðar sem spyrjast mun viða og víðast mjög illa fyrir. Var Bjarna Jóns- syni frá Vogi falið það að halda tölu við legstað forsetans. Notaði hann sér þá aðstöðu til þess að fara ókvœðisorðum um samvinnu- félögin íslensku. Taldi þau hliðstæð okurhring*m og væru þjóðinni háskagripur. Herra Bjarni Jónsson frá Vogi mælti þessi orð við gröf Jóns Sigurðssonar. íslenskir sam- vinnumenn munu aldrei gleyma þvi að hann hefir framið slikt, þótt þeir muni ekki margi um tala svo hljóð- bœrt verði. Hitt hátíðaefnið var það að í dagsbyrjun 17. júní tóku Danir að fullu við Suður-Jótlandi. Hefir Tíminn áður flutt sam- bandsþjóðinni hamingjuóskir sín- ar, þá er herinn danski tók við umsjá Iandsins fyrst í þessum mánuði og eru þær árnaðaróskir nú endurteknar. Guðsþjónusta var haldin í dóm- kirkjunni upp úr hádeginu þessa tilefnis og uin kvöldið héldu Danir virðulegt samsæti í Iðnaðarmanna- húsinu og buðu allmörgum ís- lenskum gestum. Fór það mjög prýðilega fram. Sendiherrann danski stjórnaði samsætinu og mælti orð fyrir minni konungs. L. Kaaber bankastj. talaði fyrir minni Suður-Jótlands, Sveinn Björnsson fyrir minni Danmerkur og E. Niel- sen framkvæmdastjóri Eimskipa- félagsins hin hlýjustu og ástúðleg- ustu orð fyrir minni íslands. Síð- astur lalaði de Bang sjóliðskafteinn fyrir eining Norðurlanda. Stefiín Stefánsson skólameistari á Akureyri og frú Kristin Jóns- dóttir málari tengdadóttir hans komu með Gullfossi. Á skólameist- arinn nú aftur góðri heilsu að fagna. Frú Kristín ætlar að mála á norðurlandi i sumar, en i vetur gerir hún ráð fyrir að ferðast til Róms til meiri frama í listinni. Tröllasögur. Vaxa oft fréttir í meðförum og er skemtilegt að lesa það sem dönsku blöðin gera úr fréttaskeytum héðau, enda skeytin vísast stundum nokkuð freklega orðuð. Út af símskeytum um jarðskjálftakippina hérna um daginn, flytja þau langar greinar. Tala um að sennilega hafi ekki orðið manntjón, þar eð þess sé ekki getið í skeytinu; glöggar frétt- ir séu ekki komnar um annað tjónl

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.