Tíminn - 24.07.1920, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.07.1920, Blaðsíða 4
116 TlMINN VII. »Kæri fjárhaldsmaður! Nei, nei — og aftur nei! Eg er ekkert forvitin að heyra hvað Minghellí hefst að í London og trúi ekki einu einasta orði. Eg er nú viss um að hr. Rossí þekkir mig ekki. Hann sagði mér rétt áðan aö dóttir föður míns hefði druknað i Themsá og hann hefði sjálfur séð gröf hennar. Hvaða þrjótur mun vera valdur að því? Yðar R. V.«. ltóma ritaði þetla bréf þegar i slað og bað Brúnó að láta það i póstkassann. »Einmitt eins og eg hélt« taut- aði Brúnó, er hann las utaná- skriftina. Húnvandaði klæðaburðinn næsta morgun, en Rossi kom ekki og hún sagði að það væri bara betra, þvi að hún hefði þá tíma til að átla sig. Hún vann að myndinni allan daginn. í*að var henni ný gleði að mynda eftir minni og minnasl svip- brigðanna, hún mundi svo mörg, en leirinn gat ekki sýnt nema ein. Hún bjóst aftur við honum dag- inn eftir, en hann kom ekki. Það gerði þá ekkert til, hún hafði þá tíma til að rifja alt það upp sem hann hafði sagt henni. Pað voru svo margar sögur um foreldra hennar og hana sjálfa. Hversu oft var hún komin á ílugstig með að koma öllu upp! — Þekti haun hana? Já hann hlaut að þekkja hana — hann hefði annars aldrei gefið sig henni á vald. Traust hans á henni var dásamlegt; það hitaði hinni um hjartarætur! Og þó! Var það vísl að hann vissi það? Hann hélt að Róma Rossellí væri dáin! En hvi trúði hann henni þá fyrir leyndarmáli sínu? Hún vissi það, hún hélt sig vita það! Það var af því, að þegar frá því er þau hittust fyrst þá . . . En um það þorði hún ekki að hugsa. Það var alt of dásamlegt — alt of yndislegt. . . . Davíð Rossí kom heldur ekki næsta dag og hún fór að fyllast kvíða. Var honum sama um hana? Voru allir draumar hennar hégóm- inn einn? Henni var það mjög um geð, en hún varð að tala um það við Brúnó. Brúnó leit varla upp frá vinn- unni, er hann svaraði: »Þingið fer að hefjast. Foringj- arnir hafa nóg að starfa«. »Bið hann koma á morgun. Seg að eg biðji hann að silja fyrir að eins einu siuni enn«. Eg skal segja honum þaö«, nafni okkar allra, óska þess, að ísland og íslenska þjóðin megi blessasl og blómgast á komandi árum og öldum, að íslenska þjóðin sern nú er fullvalda í orði megi líka verða það í verki, og hverl árið og hver öldin, sem yfir hana líður geri hana að heilbrigðari þjóð, starfsamari, göfugri og þrosk- aðri þjóð. Eg sagði það einu sinni á þess- um ræðupalli, að eg hefði aldrei verið eins stoltur af því að vera íslendingur siðan eg kom hér vest- ur, eins og þegar eg las það í tímariti, að einn af merkari mönn- um Bandaríkjanna, hefði sagt það, þegar Magnús lögmaður Brynjólfs- son féll frá, að það væri ekki að eins héraðsbrestur, heldur þjóðar- sorg, að missa hann svona í blóma lifsins, af því, að heimurinn hefði orðið belri /ijrir það. að Magnús Brynjól/sson lifði i honum. — Eg vildi óska islensku þjóðinni þess, að hún gæti áunnið sér þann orðstýr, sem þessi göfugi sonur hennar ávann sér, að það yrði alþjóðarmál allra bestu manna, að heimurinn hefði orðið betri fyrir það, að islenska þjóðin lifði í honum. Sr. Kjarlan sagði okkur í erjndi sinu mörg dæmi þess hvað út- lendingum þætti vænt um fsland, sérstaklega hvað þeir dáist að hók- svaraði Brúnó og stundi, án þess að lita upp, En Rossí kom ekki næsta dag og Brúnó gat enga skýringu gefið. — Hún reyndi að finna Rossí alt til afsökunar. Hann var hlaðinn störfum og þetta voru ekki annað en smámunir. »Hann hefir hugann á öðru en mér«, sagði hún við sjálfa sig. En sorg hennar varð ör- vænting er þrír dagar liðu enn, án þess hann kæmi. Hún þóttist viss um að hann reyndi að forðast hana. »Hann kemur aldrei oftar«, hugsaði hún og alt varð dimt og kalt umhverfis hana. Hún svaf illa og gekk út í tungl- skininu um nóttina, til þess að þreyta sig. Veður var hlýtt og lygnt. Hún stóð í skugga trjánna og heyrði fótatak. Það var Davíð Rossí! Hann gekk fram hjá henni, alveg hjá henni, en varð hennar ekki var. Hún ællaði að kalla, en nafnið komst ekki fram af vörum henni. Hún fylgdi honum með augunum og gekk á eftir honum. Pað var satt. Hann nam staðar og leit upp i gluggana hennar. það var ljós í einum og hann horfði fast þangað. Hann gekk hægt áfram, en nam staðar við og við og leit upp. Hún reyndi aftur að kalla á hann. En það var eins og rödd hennar dæi á tungunni. Svo hvarf hann og kirkjuklukkan sló tólf högg. Þegar hún kom upp á svefnher- bergið og leit í spegilinn, sá hún að kinnarnar voru dreyrrauðar og augun Ijómuðu. Hana langaði ekkert til að hátta. Hjartslátturinn var henni söngur og tungl og stjörnur sungu með. »Væri hún viss — öldungis viss«, hugsaði hún, og næsla morgun talaði hún við Brúnó. Hún var ekkert hrædd viðjiann lengur og • þó beygði hann úfinn hausinn eins og naut sem ræður að girðingu. »Ef þér viljið fá að heyra allan sannleikann, Donna Rómá«, sagði hann, »þá er hr. Rossi einn þeirra manna sem álíta, að sá maður sem færist það í fang að vinna fyrir mannkynið, megi ekki drag- ast með fjölskyldu«. »Einmitt það! En eg skil ekki . . . ekki getur hann komist hjá þvl að eiga foreldra?« »Hann getur komisl hjá því að eignast konu«, svaraði Brúnó, »og hr. Rossí álítur að menn sem fásl við opinber mál eigi að vera eins og prestar, sem hvorki þekkja ást né heimili . . . til þess að geta fórnað hinum öllu«. »Það er þá þess vegnaa . . . mentum íslands. Eg ætla að segja ykkur eina smásögu um það hvað útlendingum getur þótt vænt um ísland, þó þeir hafi að eins komið þar sem gestir. Sagan er af dönsk- um skipstjór* á fyrri hluta ný- liðinnar aldar. Hann hafði siglt upp til íslands um mörg ár og fest ást á landi og lýð. Þegar hann lagði frá Iandi í síðasta sinn, var síðasta ósk hans þelta: »Guð blessi gamla ísland!« Hann fórst nóttina eftir með allri skipshöfninni undir Svörtuloftum. Öll eigum við eftir einhverntíma, að brjóta bátinn okkar, sem fleytir okkur gegnum hérvistar-öldurnar, og eg vildi óska íslandi þess, að það gæti áunnið sér svo mikla ást, og svo mikla virðing allra barna sinna, að orð hvers íslendings, þegar hann stefnir lífsíleyginu sínu frá landi í síðasta sinn, yrðu þau sömu og þessa göfuga skipstjóra; »Guð blessi ís- land« og alt sem islenskt er! Þelta ætla eg að láta verða síð- uslu orðin mín til ykkar í kvöld. Einar Jónssou myndhöggvari, frá Galtafclli er nýlega kominn til bæjarins. Hefir hann lokið við styttu sína vestra af Þorfinni Karls- efni og dvaldist síðan um hrið í Kaupmannahöfn til þess að sjá um heimflutning listaverka sinna. »Það er þess vegna, að hann forðast freistinguna«. »Þér álítið að það sé þess vegna . . . ?« »Það er þess vegna sem hann forðast konur . . .« »Ef til vill er honum ekkert um þær?« »Ekkert um þær! Jú! Hr. Rossí, er einn þeirra manna, sem elskar konurnar, og af hann ræki upp á eyðiey, vildi hann heldur hafa hjá sér eina konu, en hundrað þúsund menn«. Blessaður, gamli heimskinginn. Undir eins gekk hann i gildruna sem hún lagði og sagði henni alt sem hún vildi vita. Það brá fyrir gletninni í augum henni og hún sagði með kæruleysi í rómnum. »Má vera að hann hafi ekki enn fundið þessa »einu konu?« »Má vera — má vera ekki«, sagði Brúnó og hamarinn féll svo þungt á meitilinn að hvít brotin þyrluðust um hann. »Þér munduð að vísu hafa kom- ist að þvi, Brúnó?« »Má vera — má vera ekki«, sagði Brúnó og hristi höfuðið, »en í ástarstríðinu hefir sá sigur sem flýr!« »Segir hann það, Brúnó?« »Já. — Iíonan mín reyndi einu sinni að drepa á þetta. »Hjarta sem bæri með sorg og gleði«, talaði hún um«. »Og hvað sagði hr, Itossí?« »Konuást er hið dýrmætasta sem jörðin á«, sagði hann, »en ef eg fyndi að eg elskaði konu of heitt, myndi eg þegar flýja«. »Var það áreiðanlegt að hr. Rossí sagði þetta?« »Já, sannarlega sagði hann það«. »Þér eigið þá við að nú . . . ?« »Eg á við að væri eg kona, þá myndi eg ekki hugsa um hann, en láta hann sigla sinn sjó«. »Það er fallega gert af yður, Brúnó, að vera svo hreinskilinn«. »Má vera að það sé ekki rétt gert, en mér fanst eg eiga að gera það, og nú er það búið?« Það var auðséð á svip hans að honum fanst hann hafa unnið mikinn sigur og Rómu langaði helst til að hlaupa upp um hálsinn á honum og kyssa heimska og úfna andlitið. Hún sat við skrifborðið langt fram eftir nóttinni. Lampinn kast- aði skugga hennar á gluggatjaldið. Hún leit á gluggann við og við og brosti við þá hugsun, hve mynd hennar myndi greinilega sjást að utan. Hún roðnaði vegna þessarar heimskulegu hugsunar og hélt á- fram að skrifa, en bréfið var líka heimskulegt og þá er það var búið, var þar hvorki yfir né undirskrift, svo það gat engan vegin komiit til skila, enda lét liún það í póst- kassa óútgenginna ástarbréfa — undir koddann sinn. Þegar liún var að festa blundinn heyrði hún skrjáfa í pappírnum og hún hugs- aði: Þegar eg vakna í nótt heyri eg aftur þetta hljóð og þá . . . Bellíní furstafrú kom daginn eftir og með henni Don Gamilló. Furstafrúiu sagði, að það ættu að verða refaveiðar daginn eftir í Kampaníu, hvort hún mætti sækja Donnu Rómu og ef til vill hr. Rossí. Róma vissi það ekki. Don Camilló hafði heyrt að^hr. Rossí væri kominn í ósátl við flokk sinn og vwri nú að fást við að sýna hvað »trúarjátningin og stjórnarskráin« ætti ekki að þýða. En hann hefði samt sem áður gott af því að koma á hestbak . . . Þau fóru svo að heilsa gömlu konunni. Róma var tilbúin að fara úl á fáum mínútum. Dyravörðurinn fékk henni bréf um leið og hún gekk út. Það var frá baróninum. Hún nam ekki staðar til þess að opna það, en kallaði á vagn og bað að aka sér til Piazza Navona. Fursíafrúin og Don Camilló komu út frá gömlu konunni. Róma var farin og hundurinn hennar krafsaði í dyrnar. »Hvert mun hún hafa farið svona fljótt. Og hundinn langar til að elta?« »Er það hundurinn sá sem van- ur er að venja komur sinar heim til hr. Rossís?« »Já, það er hann«, og fursta- frúin opnaði dyrnar og hundurinn fór út í loftköstum. »Komi hann heim aftur í kvöld með Donnu Rómu, þá er hægt að giska á hvert hún muni hafa farið«. — Róma las bréfið í vagninum. »Kæra barn! Hefi verið fjarverandi og þvi ekki fyr svarað yðar elskulega bréfi. Þér skuluð endilega gleyma þessari gömlu sögu. R. R. er dáin og grafin — og svipur hennar skal aldrei verða á vegi yðar. En hafi Rossellí læknir ekki þekt Davíð Rossí, hvernig stendur þá á því að D. R. veit svo margt um Rossellí. Eg hefi enn ekki frélt neitt frá London, en eg er viss um að vera á réttri leið. Sorglegt er það að sólina skuli vanta f hús mitt — sólnanna sól — hina yndislegu Donnu Rómu! í guðs friði. Bonellí«. Vagninn var kominn inn á Piazza Navona, og Róma reif bréfið í smátt og kastaði þvf út um glugg- ann. Préttir. ,.Budbringer“, Dansk-íslenska félagið gefur út blað með þessu nafni. Heíir ritstj. Tímans rekist á eilt þeirra blaða, og eru í því meðal annars fregnir um íslenskan landbúnað. Er þess þar getið, að í vor hafi íslenskir bændur þurft að skera af búpeningi sínum vegua fóðurskorts og er þessi fregn svo orðuð, að ekki veröur annað af ráðið, en að þetta eigi við alment um íslenska bændur, Er það á allra vitorði hve þetta er fjarri sanni, að þrátt fyrir óininnilega harðan vetur, eru það örfáar und- antekningar, að 'bændur hafi orðið að skera, eða felt. Það er mjög leitt, að blað Dansk-islenska fé- lagsins skuli verða til þess að henda á lofti svo ranga fregn og skaðlega fyrir hina íslensku bænda- stétt, sem vitanlega mun sproltin af ókunnugleik einum, en slíkur »Budbringer« verður ekki til þess, að auka samúð milli landanna, eins og tilgangur félagsins er. — Þessi radga fregn er vitanlega tekin eftir slúðursögum dagblaðanna í Reykjavík og væri betur, að ekki væri oftar farið í það geitarhúsið til þess að flytja fregnir um ís- lenska bændur. Flogið er nú á hverjum degi er gefur og er aðsókn inikil að fá aö fljúga og kostar þó 80 krónur í fimm mínútur. Kauphækkun. Vinuuveitenda- og verkamannafélögin hafa komið sér saman um nýja kauphækkun upp í kr. 1,48 á klukkuitnd. Laust embætti. Sýslumanus- embættið á Húsavík er auglýst laust. Síldariuatsreglngerð nýja, ræki- lega mjög, hefir atvinnumálaráð- herra gefið úl nýlega í samráði við síldarmatsmenn. Botnía fór til Kaupmannahafnar á mánudaginn var. Farþegar held- ur fáir. Skýrsla um slörf landsímans árið 1919 er nýlega komin út. — H*fa tekjur alls af rekstri símans orðið nálega 850 þús. kr., hiun raunverulegi tekjuafgangur nálega 233 þús. kr. »og er þessi npphæð hér um bil 9,6°/o af því fé, sem rlkissjóður hefir varið til síma- lagninga til ársloka 1919, og um 8,1% af þeirri upphæð, sem varið hefir verið til simalagninga til sama tíma, að meðtöldum fram- lögum hreppafélaga og annara«. i Stöðvar voru um áramót alls 152, Sanmiugar eru nú að fullu gerð- ir milli Borgfirðinga og Sláturfé- lags Suðurlands, út af skilnaðinum. Dvöldust þeir hér i bænum fyrri hlula vikunnar af Borgfirðinga hálfu, Jón bóndi Hannesson í Deildartungu, Davíð bóndi Þor- steinsson frá Arnbjargarlæk og Pétur alþm. Þórðarson í Hjörsey, og sömdu við stjórn Sláturfélags- ins. Fóru þeir samningar ágætlega fram af beggja hálfu, með fullu samkomulagi svo að allir hlutað- eigendur munu vel við una. Eru þeir í stjórn hins nýja borgfirska slátursfélags: Jón, Davíð og Páll Jónsson í Einarsnesi, en viðskifti þess út á við mun Kaupfélag Borg- firðinga hafa á hendi og sennileg- ast er talið og eðlilegast að slátur- félagið sameinist Kaupfélaginu. Jarðarför prófessors Jóns J. Aðils fór fram með meiri viðhöfn og prýði en hér hefir tíðkast. Sáu félagsbræður hans, frímúrarar um útförina. Gengu þeir í skrúðgöngu á undan líkfylgdinni alla leið. í húsi guðspekisfélagsins töluðu: frú Aðalbjörg Stefánsdóttir formaður guðspekisfélagsins og Steinþór Guð- mundsson skólasljóri á Akureyri. Síra Ól. Ólafsson talaði í kirkjunni og kastaði rekum. Blómsltrúð var mikið og gröfin var tekin svo stór og breið að frímúrarar gátu gengið ofan í hana með kistuna. Var gröf- in blómum skrýdd svo að ekki sá i mold. Söngur var ágætur, léku þeír á fiðlu og orgel bræðurnir Þórarinn og Eggert Guðmundssynir í Guðspekishúsinu. í kirkjunni lék Bernburg á fiðlu með orgelinu og Pétur Á. Jónsson söng einsöng. Maður druknar. Það slys vildi til síðastliðinn sunnudag, að mað- ur nokkur, Benedikt Gislason frá Skriðuklaustri, er var á heimleið af íþróttamóti Borgfirðinga á Ferju- koti, druknaði í engjaslokk, skamt frá Hvítárósi. Hann var kaupa- maður á Hesti. Lögjafnaðarnefndin danska er sögð væntanleg hingað með »ís- landi« næst. Eru þeir í henni Borgbjerg ritstjóri, Arup prófessor og Iíragh rektor. Kom hinn síðast- nefndi í nefndina í stað J. C. Christensens, þá er hann varð ráðherra. Fossavirkjuu á Vesturlandi. Kristján Torfason útgerðarmaður á Flateyri við Önundarfjörð, lælur í sumar og lét í fyrrasumar út- lenda verkfræðinga starfa þar vestra að fossamælingum í Arnarfirði og rannsókn járnnámuí Önundarfirði. Mun hann vera í sambandi við félag, sDansk-Islandsk Anlægsselskap«, sem talið er að ráða yfir miklu fjármagni, Talið er að mikið járn sé í Eyrarfjalli við Flateyri, og víðar þar í íjöllum. Hefir járulag úr Eyrarfjalli verið rannsakað og reyndust i því 60—70% af járni og töluvert er þar af járnleir, sem gert er ráð fyrir að í sé Um 30°/o af járni. Var það norskur verk- fræðingur, sem rannsakaði járn- námuna í fyrra og sendi utan sýnis- horn. Bæði sumurin hafa tveir norskir verkfræðingar verið við fossamælingar í Borgarfirði, sem gengur inn úr Arnarfirði. Hefir annar þeirra, aðal-maðurinn, staðið fyrir slórri fossavirkjun í Noregi. Hafa þeir gert mælingar um að beisla þar tvær ár, Dynjandafoss og Mjólkárfossa, með einni aflstöð við Dynjanda. Er talið, að þeir muni ætla að leiða aflið til Flat« eyrar og nota með fram til að vinna járnnámuna. Enn fremur er talið, að þeir muni hafa i ráði að vinna salt úr sjó við rafurmagn og jafnvel surtarbrandsnámu í Súg- andafirði. — Er talið, að til þess að koma þessu í framkvæmd muni þurfa um 1000 verkamenn í þrjú ár. — Nánari fréttir hefir Tíminn ekki fengið af þessum fyrirætlunum. Ritstjóri: Trygrgvi Þóriialiaaea Laufási. Sími 91, Freutsmiðjaa Guteuberg. ~

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.