Tíminn - 06.11.1920, Síða 2

Tíminn - 06.11.1920, Síða 2
172 TlMINN 8 1 1 ■ Tilkynni Yerðlagsnefndin hefir náð sarakomulagi ura hámark álagningar á algengan skófatnað við neðan- greindar skóverzlanir hér í bænum: Lárus G. Lúðvíksson, Stefán Gunnarsson, B. Stefánsson & Bjarnar, Hvannbergsbræður. Verðlisti, sem nefndi'n heíir athugað og fall- ist á, er festur upp í sölubúðunum. Verðlagsnefndin. August Krogh prófessor við Kaup- mannahafnarháskóla, fyrir rann- sóknir og uppgötvanir um starf- semi háræðanna. Sömu verðlaun fyrir árið 1920 hefir hlotið Jules Bordet forstöðumaður Pasteurstofn- unaririnar í Bryssel. — Rússneska stjórnin hefir veitt auðfélagi i Bandaríkjunutn einka- rétt til að reka kola og steinolíu- námur í Asiu'öndum Rússa og einnig til fiskiveiða. Einkaleyfið er veiít til 60 ára. — Enska stjórnin hefir lýst þvi yfir að hún falli frá þeim rétti sem hún hafði samkvæmt friðarskil- málunum, að gera upptækar eignir þýskra manna á Englandi, ef Þýskaland fullnægði ekki friðar- skihnálunum. Eru frönsku blöðin hamslaus yíir þessari yfirlýsingu en þýsk blöð láta vel yfir. — Bandaríkjamenn hafa það við orð, að gera þau skip upptæk sem flytja vín innanborðs, er þau koma til landsins. — Um miðjan síðasta mánuð var afhjúpað í London mikil mynda- stytta, sem er gjöf lil Englands, frá flóttamönnunum belgísku, sem fengu athvarf á Englandi á stríðs- árunum. — Franska stjórnin gerir marg- víslegar ráðstafanir um að berjast við dýrtíðina. Meðal annars er takmörkuð mjög ’tala milliliðanna í verslun og grimt eftirlit haft með álagningu. — Frjálslyndi flokkurinn enski hefir tekið það á stefnuskrá sína að járnbrautirnar og kolanámurnar verði ríkiseign. — Fjármálaráðherrann franski gat þess nýlega í ræðu að i þeim liéröðum Frakklands sem orðið hefði fyrir eyðingu styrjaldarinnar væri nú búið að reisa við um 77°/o af verksmiðjunum, að fullu eða miklu leyti, og 66°/o af landi væri komið í rækt. Eftirmæli. Hinn 26. júní síðastl. andaðist ekkjan Málfríður Pétursdóttir að heimili sinu Fagurey á Breiðafirði. Hún var fædd í Arney í Dagverð- arnessókn 1. maí 1841. Voru for- eldrar hennar Pétur Pétursson hreppstjóri og Sigríður Guðmunds- dóttir frá Hrappsey, sæmdarhjón. Árið 1870 gekk hún að eiga Skúla ’Skúlason i Fagurey, alkunnan dugnaðarmann og merkisbónda. Bjó hún með honum rausnarbúi þar í eynni fu.ll 30 ár, eða lil árs- ins 1901, er hann lcst, nýheirnkorn- inn úr sjóvolki miklu utan afSandi, þar sem hann hafði verið formaður á vetrum fjölda ára, og jafnan þótt hinn slyngasti stjórnari. Pótti jafnan mikið koma- til heimilis þeirra hjóna, enda voru þau samtaka um alla heimilisstjórn og sambúð þeirra hin ástrikasta. Mun Ieitun á að kona hafi verið ástríkari manni sínum en Málfríður heitin var, eða heimilisræknari eða velviljaðfi hjúum sínum, sem oft voru mörg. Konan var yfirleitt mannkosla kona. góðgjöm, hver sem í hlut átti, og gestrisin, enda reyndi oft á það, því að margan sjóhrakinn bar þar að garði. Pau hjónin eignuðust 8 börn, 3 þeirra létust ung, einn sonur, Sigurður, andaðist rúmlega tvítugur mesti efnismaður, en íjögur lifa Jón Guðmundson bóndi og skip- stjóri i Fagurey, giftur Ingibjörgu Bergsveinsdóttir úr Vestureyjum. Skúli skipstjóri í Stykkishólmi, giftur Guðrúnu Jónsdóttur hrepp- stjóra. Margrét Oddfríður, ekkja Sigurðar Kristjánssonar úrsmiðs í Stj'kkishólmi, og Guðrún Marla, kona Júlíusar Sigurðsonar bónda í Hrappsey. Fimm fóslurbörn ólu þau hjónin upp lengri eða skemri tíma. Var Málfríður heitin þeim trygg og nærgætin fósturmóðir. Hitt þarf ekki að taka fram, hve heitt hún unni eigin börnum sínum og lét sér altaf ant um hag þeirra. Hjartað var viðkvæmt og ástríkt, skyldu- ræknin á heimilinu og góðgirnin við alla mikil. Nú er hún látin í hárri elli, 79 ára gömul, 19 ár ekkja, en minn- ingin lifir, björt og þakklát, ekki aðeins hjá börnunum og nánustu ástvinum, heldur og þeim öllum, er kyntust henui nokkuð nánar. S. Hámarksverð. Verðlagsnefndin hefir ákveðið hámarksverð fyrir Reykjavík á þess- um vörum: Rúgmjöl. (Tilk. 6. okt. 1920.) í heildsölu — til kaupmanna og kaupfélaga — frá vörugeymslu- húsi kr. 60.00 pr. 100 kg. ásamt umbúðum. í smásölu, þegar seldur er minni þungi en heill sekkur, 66 aurar pr. kg. Fiskur. (Tilk. 9. okt. 1920.) A. Ýsa: Óslægð ........ 50 aur. kg. Slægð ekki afhöfðuð 56 — — Slægð og afhöfðuð . 62 — — B. Porskur og smáfiskur: Óslægður............ 46 — — Slægður, ekki afhöfð- aður................ 52 — — Slægðurogafhöfðaður 56 — — C. Heilagfski: Smálúða............. 80 — — Lúða yfir 15 kg., í heilu lagi.........1.10 — — Lúða yfir 15 kg., í smásölu............1.30 — — Steinolía. í heildsölu til kaupmanna og félaga: Sólarljós. . . kr. 92.00 pr. 100 kg. Óðinn . . . . kr. 90.00 pr. 100 kg. auk umbúða, heimkeyrt eða frítt um borð í Reykjavík. (Tilk. 11. okt. 1920.) í smásölu: Solarljós...........86 aurar lítrinn Óðinn...............85 aurar lítrinn (Tilk. 15. okt. 1920.) Sykur. í heildsölu til kaupmanna og fé- laga frá vörugeymsluhúsi: Stejdtur sykur.......kr. 3.30 kg. Högginn sykur .... — 3,50 — I sraásölu, þegar seldur er minni þungi en sekkur eöa kassi: Steyltur sykur.......kr. 3.70 kg. Högginn sykur .... — 3.90 — (Tilk. 20. okt. 1920). orgin öilífa eftir 1 Kardínáiinn gat ekki að því gert að hann lét hrífast með — en hann lét ekki bera á geðs- hræringu sinni. »Mig tekur það mjög sárt«, sagði hann, »og það mun hryggja hinn heilaga föður, að maður, svo innilega trúhneigður, skuli hljóta að teljast meðal fjandmanna hans — meðal hinna hættulegastu fjand- manna kirkju hans«. »Berið hinum heilaga föður lotn- ingarfulla kveðju mína«, svaraði Rossí í lágum og blíðum málrómi. »Segið honum, ef yður sýnist svo, að auðmjúkur og ókunnur sonur líti upp til hans með innilegustu ástúð og aðdáim. Segið honum, að þótt hann sé svo hátt hafinn, þá hugsi föðurlaus maður til hans eins og föður og mundi vilja ganga margar milur um að snerta hönd hans. En Guð hefir gefið mér frjálsræði viljans og þvl mun eg ekki afsala, jafnvel ekki í hendur hinum heilagasta og rétllátasta manni heimsins«. »Far í friði, sonur«, sagði kar- dínálinn. »Eg mun oft hugsa til yðar. Trú yðar á manneðlið er fögur — en það er óvæltur, sem þér eruð að vekja upp, og Guð veit það einn, hvernig hann mun snúast gegn yður. Gætið yðar! Gætið yðar!« Kardínálinn fjdgdi gesti sínum til djrra og álútur hvarf hann aftur eftir hinum köldu göngum. Úti á götunni var mannfjöldinn á ferð og flugi og sólin skein bjart og hlýtt. IX. Samverkamaður Rossís beið eftir honum þá er hann kom heim. Hann fiutti slæmar fréttir. Lög- reglan hafði gert blaðið upptækt vegna greinarinnar urn ræðu konungs. Eigendur blaðsins voru óánægðir og vildu fá að tala við ritstjórann þegar í stað. »Segið þeim að eg verði á slcrif- stofunni kl. 4 eins og vant er«, svaraði Rossí og svo settist hann til þess að skrifa bréf, Pað var til Rómu. Og jafnskjótt var eins og stofan væri þrungin af návist hennar og alt annað varð að engu. Honum fanst hann vera að tala við hana, hún stóð við hlið hans, hann heyrði svör hennar. »Væri það hægt að gjöra mér þá bjrrði þytigri, að hafa fórnað mínum heitustu vonum vegna skyldunnar, þá hefði mér orðið um megn að bera síðasta bréf yðar. Örðugleíki sá er þér mint- ust á er ekki þungvægastur. Pað sem mér er örðugast að sætta mig við er það, hversu mismunur- inn er himinhár á því sem maðurinn lætur í té og fær. Sú óumræðilega óeigingirni konunnar, kasti hún sér inn í tilveru mann- sins, hlýtur að gera honuin svo ljósa eigingirni sina, veiti hann svo óumræðilegri fórn viðtöku. Sparnaður í mat Ef við aðeins gætum gert hverja máltíð, sem vér borðum, 5 aurum ódýrari en hún nú er, en líkama vorum væri hún jafnholl og nær- ingargild og áður, þá spöruðum við yfir 50 kr. á ári á mann eða 5,000,000 kr- á ári, og gætum við gert máltíðina 25 aurum ódýrari myndi ísienska þjóðin spara yfir 25 miljónir kr. á ári. Getum við þetta? Vér verðum altaf að fá góðan, hollan og nægilega mikinn mat, svo líkami vor hafi þol og heilsu til að erfiða og berjast fram úr örðugleikunum. En skilyrði fyrir því, að hægt sé að spara mat, er þekking á þörfum líkamans og næringargildi og verðmæti fæðu- tegundanna og meðferð þeirra, Ef við vitum hve mildð næringar- gildi hver fæðutegund hefir og hvað þær kosta, getum við altaf valið úr þeim þær, sem ódýrastar eru eftir næringarhlutföllum, og ef við kunnum að fara með þær, blanda þær, svo þær verði hollar og ljúffengar, þá er björninn uuninn. Vér íslendingar stöndum sérstak- lega vel að vígi að afla okkur allrar þeirrar þekkingar í þessu efni er við þurfum, því matreiðslu- bók sú, er þau Jóninna Sigurðar- dóttir og Steingr. héraðslæknir Matthíasson sömdu, er eimmitt miðuð við það að gefa allar upp- lýsingar í þessa átt. Ekkert heimili má því vera án þeirrar bókar, en það á ekki að loka hana niður í kistu eða inn í skáp og laka hana aðeins fram á stórhátíðum, til að búa þá til eitt- bragðgæli eftir henni, heldur þarf að taka hana til ráða daglega. Húsmóðirin á stöðugt að ráðfæra sig við hana hvað nægilegt en þó ódýrast sé að skamta og hvernig eigi að fara með það, svo það sé holt og gott. Til sönnunar því, að þetta sé að á rökum bygt, má taka það fram að einum matreiðslumanni á fiski- skipi norðanlands er viðbrugðið fyrir, hve gott fæði (kost) hann veiti, þykir betra hjá honum en nokkrutn öðrum, en þegar fæðis- reikningurinn er uppgerður, kemur það merkilega aitaf í Ijós, að fæðið verður ódýrast á því skipi. Pegar hann var spurður hvernig á þessu gæti staðið, sagði hann: »Nú eg fer bara daglega eftir Matreiðslu- bókinni hennar Jóninnu«. Bókin fæst hjá bóksölum um land alt. P. IF* réttir. Bæknr. Á forlag Arinbjarnar Sveinbjarnarsonar er knýomin út önnur og þriðja útgáfa af 1 og 2. hefti Stafrofskvers frú Laufeyjar Vilhjálmsdóttur og er frágangur allur hinn prýðilegasti, eins og áður. Ennfremur sendir Arinbjörn á markaðinn Reikningsbók eflir dr. Ólaf Dan Daníelsson, er hún að nokkru leyti endurprentun á reikningsbók Ólafs frá 1914, en stórum aukin. Fyrst og fremst þriðjungi stærri, þar eð liöf. hefir bætt framan við kafla um höfuð- aðferðir í reikningi með brotnar tölur. Hinir kaflarnir eru og all- mikið breyttir. Fyrsta sinni var gengið á fros- inni jörð hér í bænum í fyrradags morgun. Eyjólfnr Jónsson málari hefir haft málverkasýningu opna í húsi K. F. U. M. Embætti. Gísli ísleifsson hefir verið skipaður skrifstofustjóri fjár- máladeildar — Halldór Kristinsson hefir fengið veitingu fyrir læknis- embættinu í Bolungarvík. Morgnnblaðið ininkar á sama hátt og Tíminn, kemur út einfalt 2—3 í viku. Brnni. Síðastliðinn sunnudag hús brann, rétt upp við Skóla- vörðu. Var ekki full gert, eu eigandi var þó íluttur í það. Töluvert barnn af húsbúnaði og húsið var óvátrygt. Er giskað á að tjónið sé um 10 þús. kr. Pjófuaður er enn uppvís orðinn Pakkarávarp. Öllum þeim mörgu nágrönnum og vinum ,er sýndu okkur í svo ótal mörgu, hjálp og góðvild, í veik- indum og við fráfall eiginmanns og föður okkar Einars Einarssoar í Brandshúsum, bæði með gjöfum og annari hjálpsemi, vottum við hérmeð okkar innilegt hjartans þakklæti. Nöfnin yrði of langt að telja hér, enda óþarft, því að þessi kærleiksverk hafa verið unninn fyrir augliti almáttugs guðs og biðjum við hann að endurgjalda þau á hentugasta tíma. Brandshúsum 19. sept. 1620. Ekkja og börn hins látna. I, með tjaldi og hælum í, týndist á veginum frá Kolviðarhól að Tryggvaskála 11. okt. s. 1. Finnandi er vinsaml. beðin að láta undir- ritaðan vita, gegn ómakslaunum. Unnarholti 30. okt. 1920. G uðjón «5 ónsson. Dökkgrár hestur, 5 vetra, með sneiðrifað fr. h., tví- slýft a. v., tapaðist frá Stóra-Hofi á Rangárvöllnrn um 20. júní þ. á. Dökkrauð hryssa 6 eða 7 vetra, sem var á fóðri í Akurey í Land- eyjum síðastl. vetur, tapaðist það- an snemma í maí þ. á. Man ekki mark á henni, en stærðin við 50 þuml.; liðleg til reiðar á öllum gangi. — Bæði þessi hröss voru keypt á uppboði að Árbæ í Mos- fellssveit í fyrra haust, (1919) og því ókunnugt um hvaðan þau eru upprunnin. Þá sem kynnu að verða vara við hross þessi, bið eg að gera mér aðvart um það. Stóra-Hoíi 1. nóvember 1920. Guðmundur borbjarnarson. IPolsi með blásteini, fundinn. Vitjist á lögregluskrifstofuna. hér í bænum. Var það piltur á tvítugsaldri sem uppvís varð að því að hafa stolið á annað þúsund krónum frá föður sinum. Smá- jófnþaður er tíður f bænum. Skarlatsótt gengur víða um bæinnn, en er mjög væg. Jörnnðnr Brynjólfsson bóndi í á Múla hefir verið staddur í bæn- um undanfarið við endurskoðun landsreikninganna. Jarðamatsnefndin er aftur tekin til starfa. Sigurður Jónsson fyrver- andi ráðherra kom með Sterling upp úr miðri viku og Ágúst Helga- son frá Birtingaholti er fjrrir nokkru kominn til bæjarins. Skemtun var haldinn hér bæn- um um síðustu helgi, fyrir forgöngu nokkurra vina Jóhanns skálds Sigurjónssonar og fer ágóðinn til ekkju Jóhanns. Skip8tjón. Enskur botuvörpung- ur kom hingað» til hafnarí vikunni og flutti skipshöfn af öðrum ensk- um botnvörpung sem farist hafði 50 sjómílur undan Reykjanesi. Skipsverjar voru 16, höfðu hrakist í bátnum i þrjá sólarhringa og voru illa haldnir. Peir voru fluttir á sjúkrahús. AV! Hafið þér gerst kaupandi að Eimreiðinni? Ritstjóri: Tryggrvi Þörhallsgon Laufási. Simi 91. Prentsmiöjan Gutenborg.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.