Tíminn - 19.02.1921, Qupperneq 4
22
T 1 M I N N
UvanÉigsMni
Skouerslun Hafnarstræti 15
' Selur landsins bestu gúmmí-
stígvél, fyrir fullorðna og börn
— ásamt allskonar leðurskó-
fatnaði, fyrir lægst verð.
Greið og ábyggileg viðskifti.
unum hefir stórum vaxið fiskur
um hrygg á Spáni á stríðsárunum
og síðan. Verkföll og óeyrðir eru
tíð og tilræði með sprengjum.
Loks bætist nú við mesti glundroði
á pólitísku flokkunum, þannig að
vart er unt að koma á stjórn í
landinu.
— Verslunarfloti heimsins er nú
talinn að bera 12 miljónum smá-
lesta meira, en árið 1914. Er fróð-
legt að bera saman hversu mikinn
hundraðshluta alls verslunarflota
heimsins nokkrar helstu verslun-
arþjóðir- heimsins áttu nokkrum
árum fyrir stríðsbyrjun, í stríðs-
byrjun og nú. Lítur sú skrá út sem
hér segir: 1909 1914 1920
% % %
England 47,9 43,8 35,1
þýskaland 10,7 11,9 0,8
Bandaríkin 4,5 4,8 24,1
Noregur 3,7 4,5 3,8
Frakkland 4,2 4,5 5,7
ítalía 2,8 3,3 4,3
Holland 2,6 3,4 3,4
Japan 3,1 4,0 5,8
0
Á víð og dreif.
Heildsalarnir og samvinnan.
Morgunblaðið birtir nú svo að
segja daglega hinar viturlegu
skoðanir heildsalanna um sam-
vinnufélögin og landsverslunina.
Bera þeir mjög fyrir brjósti hag
almennings og rennur til rifja
skammsýni og fáviska þeirra
manna, sem ekki vilja að almenn-
ingur leggi höfuð sitt í skaut
heildsalanna og biðji þá að gerast
fjárhaldsmenn þjóðarinnar. Sann-
leikurinn á ekki meir upp á pall-
borðið hjá þessum föðurlandsvin-
um en svo, að þeir yrðu nokkuð oft
berir að atvinnurógi, ef farið væri
út í þá sálma. Verða hugsanir
þeirra væntanlega brotnar til
mergjar víðar en á einum stað.
Gefst þá almenningi á að lítast um
umhyggjuna fyrir velferð lands-
ins.
þjóðfrelsisflokkurinn og langsum.
Gísli Sveinsson hafði síðastliðið
sumar skrifað rúmlega 20 þing-
mönnum, og bauð þeim í flokk með
manna, því takmark þeirra er að
allir njóti kostnaðarverðsins.
Afi því sem sagti hefir verið,
verður ljóst, að kaupfélögin eru
stofnuð og rekin eingöngu með
hag félagsmanna fyrir augum.
Reynslan hefir líka sýnt, að efna-
hagur þeirra héraða hefir batnað,
þar sem kaupfélögin hafa notið
sín best. Að sarna skapi hefir og
gjaldþol félagsmanna vaxið að ó-
gleymdri þeirri menningu, sem
ávalt fylgir þroskuðum félagsanda
og bættum efnahag.
V.
pegar litið er til þeirrar sann-
girni, sem á að ríkja og ráða 1
skattamálum, get eg ekki annað
séð, en að það sé beinlínis rangt
að skatta þær lífsnauðsynjar, sem
sameiginlega er aflað með aðstoð
samvinnufélags og eingöngu eru
ætlaðar til neyslu innan vébanda
hins sama félags. Sama er að segja
um framleiðsluna, sem kaupfélög-
in selja fyrir eigin meðlimi.
Nái slíkt fram að ganga, verða
kaupfélagsmenn, auk þess sem
þeir greiða hinn lögskipaða per-
sónuskatt, eftir „efnum og ástæð-
um“, svo og alla óbeina skatta (þ.
e. tolla af inn- og útfluttum vör-
um), að greiða sérstaklega tvö-
faldan neyslu og framleiðslu-
skatt, sem engir rnenn í landinu
aðiir þurfa að greiða.
1 raun og veru verður því skatt-
urinn þrefaldur. þegar þess er
gætt, að fyrst eru allar lífsnauð-
synjar þessara manna og fram-
leiðsla skattaðar með sérstökum
sér. Átti þannig að endurfæða
langsumflokkinn, með nafnspjaldi
yfir dyrunum. Löng stefnuskrá
var lögð innan í, þar sem hin
bungvæga reynsla langsara var
sett í „kerfi“. Bamunginn átti að
íeita „þjóðfrelsisflokkur". Gísli
lefir sjálfsagt vonast eftir að svo
margir gleyptu agnið, að hann
gæti tekið við stjórntaumunum og
átið þjóðfrelsið flæða yfir landið.
En helst er svo að sjá, sem þing-
menn hafi hundsað þetta álitlega
Doð. Langsum er enn sami almenn-
ingurinn, þar sem allir skipbrots-
menn stjórnmálanna hafna, þar
sem sem ekkert bindur menn sam-
an nema sameiginleg valdavon-
irigði og afbrýði við menn og mál-
efni, sem betur vegnar. Éin við-
DÓtin, sem langsum fær, er Jón
þorláksson, sem tvímennir nú með
sínum gamla vini B. Kr. Jakob
Möller verður önnur hönd beggja.
Æðsti prestur á kærleiksheimilinu
er Sigurður í Vigur, sem sameinar
alla þessa villuráfandi sauði með
bandi kærleikans.
*
------o-----
Fréttír.
Tíðin. Óvenjuleg ætlar tíðin að
verða á þessum vetri. Auð jörð er
nú um alt land og klakalaus víða
hér um slóðir, um Ámes og Rang-
árvallasýslur og vafalaust víðar.
Grænt enn víða í túnum, þar eð
haustgróður hefir ekki dáið.
Nefndarálit tveggja milliþinga-
nefnda komu á markaðinn í þing-
byrjun. Annað frá skólanefndinni
og fjallar eingöngu um Menta-
skólann, stutt nefndarálit og fylg-
ir frumvarp um „lærðan skóla“ og
reglugjörð. Hitt frá berklaveikis-
nefndinni, rækilegt álit með mörg-
um lögum. Verður hvorttveggja
nánar getið síðar.
Páll E. Ólason doktor og pró-
fessor hefir nýlega skrifað ritgerð
í „Nordisk Tidskrift för Bok och
Biblioteksvasen** 1 um prentsmiðj u
Jóns biskups Arasonar og bókaút-
gáfu. Er það efni að mestu áður
kunnugt Islendingum af bók Páls
um Jón. Páll er nú um það leyti
að byrja fyrirlestra við háskólann
og ætlar að lesa fyrir íslénska
réttarfarssögu á tímabilinu frá
1264—1550.
„Genúalegátinn“. Út af grein
um það efni í síðasta blaði Tím-
ans gerir danski sendiherrann þá
athugasemd, að það sé ekki rétt
sem þar er sagt, að „Danir munu
ekki hafa viljað unna íslandi að
skatti á Samband ísl. samvinnufé-
laga. Síðan eru þær hinar sömu
vörur skattaðar aftur í öllum
kaupfélögum landsins. í þriðja
sinn er þetta sama verðmæti
skattað með persónuskatti á hvern
félagsmann.
Er nú hægt að hugsa sér öllu
meira óréttlæti og misþyrmingu á
því jafnrétti, sem er þýðingarmest
í öllum skattamálum, og á að gæta
þess, að sanngjarn og sjálfsagður
réttur einstaklingsins í þeim sömu
málum sé hvergi fyrir borð bor-
inn?
Kaupfélögin eru stofnuð ti
þess að koma í veg fyrir að „milli-
liðirnir taki spón úr hverjum
aski“, eins og Guðbrandur Magn-
ússson orðaði það í skrifum sínum
um verslunarmálin.
En þegar takmarkinu virðist vera
náð, ætlast andstæðingar kaupfé-
laganna til þess að ríkið taki í
taumana og framkvæmi það, sem
„milliliðirnir“ fengu ekki að gjört.
Með öðrum orðum: Ríkið á að
ræna spæni úr aski hvers einasta
samvinnumanns.
VI.
þá skal eg minnast á enn eitt
óréttlæti, sem slíkur samvinnu-
skattur hefir í för með sér.
Flest kaupfélög landsins ná yfir
fleiri sveitir eða hreppa, sem í
réttum hlutföllum, eftir viðskifta-
magni, eiga sama hluta í kaup-
mannsgróðanum, sem félögin
spara. Samvinnuskatturinn, sem
lagður verður á félögin, er tekinn
af þessari sameign allra hrepp-
íafa sinn sendimann" (í Genúa).
hví sé þvert á móti þannig varið,
að þá er sendiherrasæti Dana losn-
aði þar í borginni, þá hafi danska
stjómin spurt íslensku stjórnina
ívort hún æskti þess ekki að Is-
lendingur skipaði sætið.
Húsbruni og manntjón. Að
morgni dags hinn 14. þ. m. kvikn-
aði eldur í húsinu á Spítalastíg 9
og magnaðist með svo skjótri
svipan, að húsið brann til grunns
á rúmum klukkutíma. Fjöldi fólks
ajó í húsinu, þar eð það var mjög
stórt og tvílyft með háu risi. Eig-
andi hússins, Karl Lárusson kaup-
maður, bjó á 1. hæð, en Jens B.
Waage bankaritari á 2. hæð. Margt
af fólkinu var ekki komið á fæt-
ur, og þar eð eldurinn margnaðist
svo skjótt, varð það með mestu
hörmungum að fólkið bjargaðist.
Urðu sumir að kasta sér ofan af
efri hæðunum og hlutu af mjög
mikil meiðsli, og einn unglingur,
Eggert Waage, næstelsti sonur
Jens B. Waage, mesti efnispiltur,
brann inn. Nálega engu var bjarg-
að úr húsinu af húsbúnaði. Eitt af
næstu húsum skemdist töluvert af
eldi, en tókst þó að slökkva hann.
Hefir þetta sorglega slys vakið
samúð manna um allan bæinn,
einkanlega með þeim Waagehjón-
unum, sem eiga um sárast að
binda.
Annálsritari almanaksins, Bene-
dikt G. Benediktsson prentari, bið-
ur þess getið, út af athugagrein í
Tímanum 5. þ. m. um dánardag
Auðuns Vigfússonar hreppstjóra,
að hann hafi skilið prentvilluna
svo, að Auðunn hafi dáið 25. maí
19 19, og því talið hann í dánar-
tölunni fyrir það ár. Ætti þetta þá
alt að geta lagast í næsta alma-
naki. En greinin sjálf bar það með
sér, að um prentvillu var að ræða,
þar eð bæði var getið fæðingarárs
og aldurs Auðuns.
Próf. Embættisprófi í guðfræði
hafa þeir lokið við háskólann:
Hálfdán J. Helgason I. eink. 135
st., Sigurjón Árnason I. eink.
IO22/3 st., og Eyjólfur Melan II.
eink. 64 st. — Embættisprófi í
læknisfræði hafa lokið: Katrín
Thoroddsen I. eink. 1832 3/3 st., Jón
Benediktsson I. eink. 183 st. og
Jón Árnason II. eink. 134V3 st.
Látinn er hér í bænum Pétur M.
Bjarnason skipstjóri á botnvörp-
ungnum Ingólfi.
Líftryggingarfélagið „Andvaka“.
„Tíminn“ hefir áður minst á líf-
tryggingarfélag þetta, sem Helgi
Valtýsson veitir forstöðu hér á
landi. — Á þessu missiri, sem lið-
ið er síðan „Andvaka“ tók hér til
anna, sem á félagssvæðinu eru, en
verður í framkvæmdinni eign dval-
arsveitar félagsins, án alls tillits
til þess, hvort nokkur félagsmað-
ur er þar búsettur.
þetta atriði er ekki þýðingar-
minst í þessu sambandi, enda oft
verið svikalaust notað, fyrir þá
aðstöðu, sem ósanngjöm skatta-
löggjöf hefir skapað andstæðing-
um kaupfélaganna til þess að
„klemma“ þau í skjóli laganna.
VII.
Að síðustu er vert að athuga
framkomu skattalöggj af arinnar,
ganvart hinum ýmsu samvinnu-
fyrirtækjum, til þess að sýna
„glundroðann og ringulreiðina“,
sem ríkir og ræður í íslenskum
skattamálum.
Munurinn á pöntunarfélögum og
kaupfélögum, sem hafa opna sölu-
deild, er enginn anriar en sá, að hin
fyrnefndu starfa fyrir luktum dyr-
um, og þurfa því ekki að innleysa
borgarabréf. Pöntunarfélögin ,eru
samt sem áður sjálfstæðar persón-
ur að lögum, engu síður en kaup-
félögin. Tilgangur beggja og allar
framkvæmdir miða á sama markið
— aðeins hagnaðurinn af verslun
utanfélagsmanna skilur á milli.
Nú eru pöntunarfélögin algjör-
lega skattfrjáls, og mætti því ætla
að kaupfélögunum væri sýnd
samskonar „miskunnsemi“, og því
aðeins lagður skattur á hagnaðinn
af verslun utanfélagsmanna, því
hann einn getur skift máli, þar
sem full viðurkenning á skatt-
frelsi hreinna neyslufélaga, er
starfa, hefir félagið náð allmikilli
útbreiðslu, og hefir það nú um-
boðsmenn í mörgum sveitum, sér-
staklega hér sunnanlands. Eru það
flest ungir menn og áhugasamir,
og hafa sumir þeirra þegar sýnt
góðan árangur af starfi sínu. Með
póstum berast félaginu einnig
tryggingarumsóknir úr öðrum
landsfj órðungum.
Til þess að greiða fyrir þess-
háttar umsóknum, biður forstjóri
„Andvöku“ að láta þess getið, að
þeir er panti tryggingar ski’iflega,
verði að geta aldurs síns og hve
mikla tryggingarupphæð þeir hafi
í hyggju að kaupa. Mun hann þá
með næstu ferð senda þeim nauð-
synleg skjöl og skilríki og leiðbein-
ingar um ýmsar tegundir líftrygg-
inga og iðgjöld þeirra. En þareð
póstgöngur vorar eru seinfærar
mjög og útlandaferðir strjálar,
ættu þeir sem um tryggingar
hugsa, að snúa sér til forstjóra
„Andvöku“ sem allra fyrst.
Bátstjón. Vélbátur fórst 9. þ. m.
og var frá Flekkuvik á Vatnsleysu-
strönd. Fimm menn voru á bátn-
um. Formaðurinn hét Einar Ein-
arsson og var frá Flekkuvík.
Ski'ifstofustjóri alþingis er nú
Jón Sigurðsson cand. phil. frá
Kallaðamesi í veikinum Einars
þorkelssonar.
þrír þingmenn voru ókomnir í
þingbyrjun: Jón Sigurðsson frá
Reynistað, er var kominn á leið
suður en sneri aftur er honum
barst andlátsfregn föður síns, þór-
arinn Jónsson vegna veikinda á
heimili hans og Gísli Sveinsson
vegna veikinda. Jón er væntanleg-
ur á morgun með Skildi úr Borg-
arnesi og þórarinn sennilega líka.
Gísli Sveinsson er sagður væntan-
legur um mánaðamót.
Fastar nefndir á alþingi skipa
þessir menn:
Fjárhagsnefnd: Ed. B.
Kr., G. Ól„ Guðjón, S. Egg. og
Sigurjón, — Nd.: Hákon, Sv. ól.,
þoi’l. Guðm., M. Kr„ J. Möller, J.
A. J. og þórarinn.
Fjárveitingane fnd: Ed.
Jóh. Jóh., H. Sn„ Einar Árnason,
H. St. og Sig. Kvaran. — Nd. Bj.
Jónss., þorl. Jónsson, G. Sig„ St.
St„ M. Pét„ Ól. Pr. og Magnús
Jónsson.
Landbúnaðarnefnd: Ed.
Sig. Jónsson, G. Ól. og Hj. Sn. —
Nd. Hákon, Jón. Sig„ B. Halls.,
Sig. Stef. og þórarinn.
Sjávarútvegsnefnd: Ed.
B. Kr„ Einar Árna. og Karl. Ein.
— Nd. P. Ott„ M. Kr„ þorl. Guðm.,
Jón Bald. og Einar þorg.
Samgöngumájaneftnd:
Ed. Guðjón, Hj. Sn„ H. St„ Guðm.
fenginn með skattfrelsi pöntunar-
félaganna.
Hinn augljósi misréttur, sem í
þessu er fólginn, sýnir skýrt og
ótvírætt það ranglæti, sem kaup-
félögin eru beitt í skattamálum.
Ennþá augljósari er þó óréttur-
inn, sem Sambandið verður fyrir.
Sambandið er eingöngu sameig-
inlegt pöntunarfélag allra kaupfé-
laga, sem að því standa. það starf-
ar fyrir luktum dyrum og án þess
að hafa leyst borgarabréf. Um
gróða af utanfélagsviðskiftum er
ekki að ræða, og því ekki hægt að
heimfæra viðskifti Sambandsins
undir verslun frekar en pöntunar-
félaganna. Sambandið er því
hrein neyslufélag, sem ætti að
vera skattfrjálst eins 0g pöntun-
arfélögin, ef um nokkra sanngimi
væri að ræða í þessu mefnum.
En hinsvegar er viðurkenningin
á skattfrelsi pöntunarfélaganna
mjög mikils virði.
1. Hún sannar að verslun utanfé-
lagsmanna eru hin einu viðskifti
samvinnufélaganna, sem hægt er
að skattleggja.
2. Hún viðurkennir það rang-
læti, sem Sambandið er beitt í
skattamálum, og
3. Hún fordæmir framleiðslu- og
neysluskattinn, sem eingöngu er
lagður á samvinnumenn landsins.
En um leið sýnir hún þó ofur-
litla viðleikii skattalöggjafarinnar
í þá átt, að gæta þeirrar sann-
girni, sem á að tryggja fullkom-
ið jafnrétti í skattamálum.
p. P. Stephensen.
------0-------
Reykjavik.
Pósthólf 122 Sími 228
selur kornvörur, kaffi, sykur o. m. fl.
-----alt með lægsta verði. — —
Fljót afgreiösla!
Áreiðanleg viðskifti.
Tíl ábúðar,
og kaups ef um semur, fæst í
næstu fardögum jörðin Framnes í
Ásahreppi i Rangárvallasýslu. Nær-
tækar engjar. Góð beit. — Semjið
við Guðjón Jónsson, Ási, Rang-
árvöllum.
Jörðin Björnskot
í Eyjafjallahreppi fæst til kaups
og ábúðar í næstu fardögum.
Semja ber við eiganda jarðarinn-
ar
Eyjólf Eiríksson,
Hafnarstræti 16. Rvík.
Guðf. og Sig. Kvaran. — Nd. P.
þórðar., þorst. M. J„ G. Sig„ Jón
Sig„ G. Sv„ J. A. J. og J. þorl.
Mentamálanefnd: Ed.
Sig. Jónsson, Guðm. Guðf. og Karl
Ein. — Nd. B. Jónss., þorst. M.
Jónss., Eir. Ein„ M. Jónss. og Jón
þorl.
Allsherjarnefnd: Ed.
Jóh. Jóh„ Sig. Egg. og Sigurjón.
— Nd. P. Ott„ Stef. Stef., B.
Hallss., Sig. Stef. og E. þorg.
Forsetar alþingis eru hinir sömu
og í fyrra: Jóhannes bæjarfógeti
í sameinuðu þingi og Sveinn Öl-
afsson varaforseti, Benedikt
Sveinsson í neðri deild og Guðm.
Bjeinson : efri deild.
Látinn er 4. þ. m. á heimili sínu
á Reynistað, Sigurður bóndi Jóns-
son, faðir Jóns alþingismanns.
Verður hans nánar minst hér í
blaðinu.
Deila varð töluverð á fyrsta
þingfundinum um kosninguna í
Eeykjavík,og er það á allra vitorði
að kosningin er að mörgu leyti ó-
lögleg. Urslitin voru samt svo
skýr, að ekkert vit var í að ónýta
kosninguna eftir þeirri reglu, sem
þingið hefir fylgt í þessu efni.
Sigurður Sigurðsson forseti
Búnaðarfélags íslands er nýkom-
inn úr ferðalagi urn Norðurland.
Björn Sigfússon umboðsmaður
á Koi-nsá og Einar J. Reynis ráðu-
nautur Ræktunarfélags Norður-
lands eru staddir í bænum.
Guðmundur Friðjónsson skáld
frá Sandi dvelst nú um hríð í bæn-
um og gefst bæjarbúum væntan-
lega tækifæri til að hlýða á hann.
Umræðufundur um nefndarálit
mentamálanefndarinnar umMenta
skólann var háður í gærkvöldi í
Stúdentafélaginu. Urðu umræður
svo langar, að þeim varð að
fresta, en yfirleitt snerust þær all-
mjög gegn nefndinni.
íbúðarhúsið nýja á Hvanneyri
er nú fullbúið og skólastjóri í það
fluttur. Er húsið hið prýðilegasta,
og mjög vel hlýtt og vandað.
Samverjinn er enn einu sinni
tekinn til starfa, og er nú til húsa
þar sem áður var kaffihúsið
Skjaldbreið.
Böðvar J. Bjarkan lögmaður frá
Akureyri er kominn til bæjarins.
Hefir hann sent stjórn og þingi
álit sitt og tillögur um stofnun
fasteignabanka og mun það mál
verða borið fram á þinginu.
Konungskoman mun nú ráðin í
sumar. Fer konungur fyrst til
Grænlands og kemur svo hingað.
Drotning hans verður með í för-
jnni.
Ritstjóri:
Tryggvi þórhallsson
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta.