Tíminn - 23.07.1921, Síða 1

Tíminn - 23.07.1921, Síða 1
V. ár. Reykjavík, 23. júlí 1921 30. blað 1921-1922 IxxixtöIknJLslizilyz-ði: Nemendur, sem hafa í hygg'ju að vera í Samvinnuskólanum veturinn 1921—'22 verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði við inntökupróf: 1. Skrifa læsilega rithönd. Geta gert nokkurn veginn skipulega ritgerð um fengið efni. Hafa numið málfræði Halldórs Briern; síðustu útgáfuna. 2. Hafa lesið Kenslubók í Islandssögu, eftir Jón J. Aðils, en í mannkyns- Sögu kenslubók eftir Pál Melsteð eða eftir Þorleif H. Bjarnason. 3. Hafa numið Landafræði Karls Finnbogasonar. 4. Hafa lesið, undir handleiðslu kennara, bæði heftin af Kenslubók í dönsku, eftir Jón Ófeigsson, og Enskunámsbók Geirs Zoéga. Hafa gert skriflegu æfingarnar í þessum kenslubókum. 5. Vera leiknir í að reikna brot og tugabrot. 6- Hver nemandi verður að hafa fjárhaldsmann, búsettan í Reykjavík eða þar í grend, sem stjórn skólans tekur gildan. Aths. Það er mjög óráðlegt, að hugsa til að sækja skólann, nema fyrir þá, sem eru vissir um að uppfylla þessi skilyrði. Reykjavík er nú orðin of dýr staður til að stunda þar það, sem nema má hvar sem er annarsstáðar á landinu. Inntöku í skólann fá konur jafnt sem karlar. Þeir, sem ekki kæra sig um að taka verslunarpróf, fá kenslu í bókmentasögu og félagsfræði, í stað þess sem þeir fella niður í námsgreinum sem lúta að verslun. — Reykjavík 20. nóv. 1920. Jónas Jónsson. Lántakan. Magrætt mál er hún orðin milj- ónalántakan handa íslandi, sem nú rnun standa fyrir dyrum. Virð- ist niðurstaðan endanlega orðin sú hjá landsstjórninni að taka lán- ið hjá Dönum og ómögulega ann- arsstaðar, enda þótt danska krón- an sé altaf að falla á heimsmarkað- inum og það verði þar aí leiðandi óhagstæðara með hverjum degi sem líður að taka danskt lán. önnur hlið er þó enn alvarlegri á þessu máli og hefir verið að henni vikið áður hér í blaðinu. Dönsku blöðin kröfðust þess að lánið yrði fyrst og fremst notað til þess að borga skuldir við Dan- mörku. Hafa danskir kaupmenn notað sér þao að íslenskir kaup- sýslumenn hafa átt erfitt um að útvega útlendan gjaideyri, og flutt hingað til lands alskonar og að miklu leyti óþarfan varning. JJeli1 eiga nú andvirðið hjá íslend- ingum, sumpart í bönkum, sum- part hjá einstökum mönnum. það er meðal annars krafa stórdönsku blaðanna að þessar skuldir verði f-yrst og fremst borgaðar. það vita fáir fyrir víst, hvernig landsstjórnin hefir tekið undir þessar kröfur. Iíún reynir það yf- irleitt landsstjórnin að láta sem mesta leynd livíla yfir athöfnum sínum. En orðrómurinn segir að stjórnin muni samþykkja þessar kröfur að miklu leyti. pá færi. nú skörin alvarlega að færast upp í bekkinn, það er ekkert vit í því að taka miljónalán með slíkum ókjörum. Slík miljónalántaka er tvíeggj- að sverð. Sé láninu varið til þess að rétta við atvinnuvegi líjndsins, til þess að afla landinu hagkvæm- ari viðskifta, til arðberandi fram- kvæmda fyrir landið, þá er lántak- an sjálfsögð. Með það fyrir augum hefir Tíminn talið hagfelda lán- töku sjálfsag'ða, undir núverandi kring'umstæðum. Yrði lánsfénu aftur á móti að miklu leyti varið til þess að borga skuldir við þessa dönsku kaup- menn, yrði það fyrst og fremst til þess að auka á eyðsluna í landinu og í annan stað til þess að gefa dönsku kaupmönnunum enn betri aðstöðu en áður í samkepninni við íslendinga. það er alveg sjálfsagt að taka alls ekki lánið ef slík nauðungar- kjör eiga að fylgja. Svarið við þessum „spekúlatíónum" dönsku kaupmannanna ætti að vera það að opinbert gengi kæmi á íslenska krónu og dönsku kaupmennirnir mistu það af gróða sínum sem næmi gengismuninum. það má yfirleitt alls ekki stofna til miljónalántöku í því skyni að halda áfram gangandi þeim ó- heilla lifnaði og „spekúlatíónum“ sem enn lifa. það sem óheilbrigt er í verslun og viðskiftum það á nú að fara á höfuðið. það er ekkert vit í því að taka miljonalán út á iánstraust íslensku þjóðarinnar til þess að halda lífinu í bili í fáein- um kaupsýslumönnum. EP ekki fæst hentug lántaka sem orðið getur til almennings- heilla, þá verður að taka afleiðing- unum áf því, láta skeika að sköp- uðu. Jlað er ef til vill ekki það óholl- asta að láta alvarlega erfiðleika dynja yfir og neyða menn til að venja sig' aftur af því að lifa um efni fram. það hafa bæði fjölmarg- ir einstakiingar gert á undanförn- um árum. Og það hefir íslenska ríkið gert sjálft og því miður í allra óhóflegasta mæli á því ári sem nú er aðHíða. ----o--- Fáeín orð tíl Alþýðublaðsíns. í Alþýðublaðinu frá 1. júlí s. 1., 147. tbl., er grein um „Verkamenn á Iiúsavík“. Sökum þess að grein þessi er nokkuð lituð í einstökum atriðum, hlýt eg að gera við hana dálitla athugasemd. Kunnugum mönnum á Húsavík mun virðast það ósanngjarnlega mælt að vverkamenn hafi átt í ströngu að stríða við Kaupfélag þingeyinga“, að „framkoma Kaup- fél. verði tæpast talin því til sóma“, og niðurlagsorð greinarinn- ar, að „þá sé skörin farin að færast upp í bekkinn — ef samvinnufélög- in gangi á undan í því að þröngva kosti verkalýðsins“. Eg vænti að gildi þessara lituðu orða rýrni allmikið við nánari skýi'ingar, því það er ekki rétt , með farið í greininni, að verka- menn hafi yfirleitt ekki verið at- vinnulausir — þegar kaupfélagið gerði kost á umræddri vinnu. Sannleikurinn er þessi: Kaupfé- lagið hafði ákveðið að láta gera nokkuð við steinbryggju þá, sem félag’ið notar við uppskipun vara, og var ekki búist við að hefja það verk fyr en einhverntíma í maí eða júní, sakir þess að verkið mátti ekki vinna á öðrum tíma en þeim, að líklegt þætti að ekki staf- aði hætta af næturfrostum né stór- brimum. En af því að tíðarfar norður þar féll nú þannig síðastl. vor, að líkur voru fyrir því, að all- snemma mætti byrja á verkinu úti við, en hinsvegar litlar atvinnu- horfur fyrir verkamenn, þá fann framkvæmdarstjóri félagsins upp á því, að undirbúa uppfyllingu í fjörunni í sambandi við áður- nefnda bryggju, og átti að vera áhættulítið að byrja á því verki nokkru fyr en á bryggjuaðgerðinni sjálfri. Ætlaði hann að ráðast í þetta verk upp á væntanlegt sam- þykki K. þ. þóttist hann með þessu vinna það tvent: annars- vegar að gefa verkamönnum kost á vinnu á þeim tíma, sem annars væri lítið eða ekkert að gera, og hinsvegar að láta vinna fyrir lágt kaup verk fyrir félagið, sem gæti komið að góðum notum í framtíð- inni. þegar verkamenn vissu um undirbúning verksins gáfu ýmsir sig þegar fram til vinnunnar, en létu þó strax í ljósi að þeim þætti kaupið (75 aurar um klt.) nokkuð lág't. En þegar þeir höfðu áttað sig á hvernig þetta umrædda verk var tilkomið, virtust þeir mundu sætta sig við að byrja vinnuna, með því líka að engin tilraun var gerð af hálfu framkvæmdarstjóra til þess að binda menn til lengri tíma, og verkamönnum var það ljóst að hvenær sem önnur vinna bauðst, sem borguð væri hærra verði, gátu þeir gert annað tveggja: far- ið frá verkinu eða fengið kaupið hækkað um það sem hin önnur vinna var hærra borguð. Á þess- um grundvelli gerði framkvæmd- arstjóri ráð fyrir að vinnan mundi byrja á föstudag fyrstan í sumri. En þá kom það í ljós, að til voru verkamenn í Húsavík, sem litu eitt- hvað líkt á og Alþýðublaðið, því kvöldið áður var haldinn fundur sá sem Alþýðublaðið ræðir um, og kaupsamþykt gerð, sem fram- kvæmdarstjóri gat ekki gfengið að. Væntanlega sjá nú allir sann- gjarnir menn, sem hafa kynt sér sögu málsins, að hér var ekki um neina kúgunartilraun að ræða og síst af öllu af hálfu kaupfélagsins, því framkvæmdarstjóri félagsins hafði búið málið undir án meðráða félagsstjórnarinnar. Sökin hefði því verið hans en ekki félagsins. Enda veit allur þorri verkamanna í Húsavík, að K. þ. og framkvæmd- arstjóri þess muni þeim alt eins hollráð og vinveitt eins og Alþbl. og þeir menn, sem fyrir umræddu fundarhaldi gengust. Sést það meðal annars af því, að verkamenn í Ilúsavík hafa ekki sjálfir fund- ið ástæðu til að gera umræddan kaupgjaldsárekstur að blaðamáli, þó að Alþýðublaðið liti svo á, að það þyrfti nú að bera hönd fyrir höfuð þeirra. Blaðið hefir áreiðan- lega unnið hér óþarfara verk en það ætlaðist til. það hefir varpað fram dálitlum ásökunum í garð K. þ. fyrir hönd verkamanna í Húsa- vík, sem verkamenn þar hafa ekki fundið ástæðu til að gera sjálfir, enda hefir samvinna þessara aðila þar (verkamahna og K. þ.) ætíð verið svo góð, að ekki hefir á milli -boi’ið, og vænti eg að svo verði framvegis. þar að auki kemur sú rödd úr hörðustu átt, frá Alþýðu- blaðinu, sem egnir til stríðs verka- menn og samvinnumenn, því hóf- legir verkamenn, eins og Húsvík- ingar yfirleltt eru, eiga samleið með samvinnumönnum í þingeyj- arsýslu. það er einnig óheppilegt, að Alþbl. skyldi verða til þess að kasta kaldyrðum til sveitamanna fyrir afskifti þeirra af máli sem blaðið vissi alt of lítið um. Góðu blaði, sem berst fyrir mannbæt- andi málefnum, væri miklu sæmra að bera friðarorð milli manna þeirra, sem sveitir landsins byggja og þeirra sem í sjávarþorpum búa. Ef blaðið vill tala frekar um þetta mál, leyfi eg mér að mælast til þess, að það þá beini ásökunum sínum, ef um þær er að ræða, til undirritaðs, sem er framkvæmdar- stjóri K. þ„ en ekki til samvinnu- félagsins Kaupfélags þingeyinga. Eg hefi orðið fjölorðari um þetta mál heldur en máske hefði verið ástæða til, en eg lít svo á að rétt væri að segja sögu málsins sanna og afdráttarlaust af því að umrædd grein í Alþbl. væri fram komin af misskilningi en ekki af neinum lakari hvötum sprottin, enda var greinin kurteislega skrif- uð. pt. um borð í e.s. Sterling 8/7. ’21. Sigurður S. Bjarklind. ----0--- Bændablað. ])að er altaf hálfóviðkunnanlegt þegar menn l'ara opinberlega að skrifa lof eða last af frændrækni. Frændrækni á að vera óviðkom- andi hinu opinbera pólitiska lífi. f þessari viku hefir Morgunblaðið birt tvær aðkastagreinar í garð Tímans, sem báðar eru af þessum hvötum skrifaðar. það tekur því ekki að svara slíkum greinum nema í örstuttu máji. Jósef bóndi Bjömsson á Svarf- hóli tekur upp þykkjuna fyrir bróður sinn, sýslumá’nninn í Borg- arnesi. Tíminn hafði fundið að því að landssjóður lánaði sýslumann- inum 60 þús. kr. til þess að reisa „prívat“-hús, enda hafði Borgar- fjarðarsýtda neitað um ábyrgð. Dómur hinna kunnugustu var fólginn í þeirri neitun. En aðal- atriði hjá höfundi er ekki þetta, hann reynir ekki að verja það. Ilann fer að fjölyrða um íbúðar- húsið á Hvanneyri. Hann álítur að það sé sýr blettur fyrir ritstj. Tímans, því að þar á hann frænd- fólk. En hr. J. B. skjátlast hrapar- lega ef hann heldur að það sé Tímanum eða skólastj óranum á Hvanneyri að kenna að íbúðarhús- ið þar hefir orðið dýrt. Hefðu þeir aðilar fengið að ráða hefði húsið orðið tvisvar, eða öllu fremur þris- var sinnum ódýrara, jafngott hús. það er hinni seinheppilegu íslensku landsstjórn að kenna hve húsið varð dýrt; henni tókst að draga smíðið von úr viti, þangað til ein- mitt var að þeim tíma komið þeg- ar allra dýrast var að reisa hús. Og hr. J. B. mun vera það vel kunnugt að skólastjórinn fékk harla lítil afskifti að hafa af smíð- inu. En Tíminn mun aldrei skamm- ast sín fyrir að hafa þegar í stað eftir brunann á Hvanneyri borið fram kröfu um það að húsið yrði endurreist, til þess að aðalmenta- stofnun íslenskra bænda fengi að njóta sín ekki síður en áður, stofn- un sem hafði fengið alþjóðar orð á sig. — Loks vill Tíminn gefa hr. J. B. ’það heillaráð að bera sem minst saman kririgumstæðurnar við brunann á Hvanneyri og hjá bróður hans í Borgarnesi. En að fyrra bragði mun Tíminn ekki ræða það frekar. — * Hina greinina ritaði Skúli Thór- arensen á Móeiðarhvoli. Hann er tengdasonur síra Eggerts á Breiðabólsstað og féllu þeir báðir við síðustu kosningar í Rangár- vallasýslu, og Skúli a. m. k. við mjög lítinn orðstýr. Hafði Skúli áður mjög eindregið leitað fylgis hjá „Tímans-mönnum“ í sýslunni og fengið hryggbrot. Hann er nú að bysa við að afborga eitthvað af skuldinni, bæði fyrir tengdaföð- ur sinn 0g sjálfan sig. Greinin var langloka mikil. Morgunblaðið kubb- aði hana sundur í mörg blöð og var því mjög örðugt að fylgja þræðinum. Aðaltilgangui’ greinar- innar virðist hafa verið sá að mót- mæla því að Tíminn væri blað bænda. Rök þeirrar staðhæfingar voru sumpart ósannindi og útúr- snúningur, sumpart sú dæmalausa fáviska að tekur út yfir allan þjófabálk. Tíminn er t. d. ekki bændablað, segir Sk. Th„ af því að hann hefir stutt að því að styrk- urinn til Búnaðarfélags Islands var aukinn og félagið þessvegna getað unnið mjög mikið starf í þarfir landbúnaðarins. Minnir slík fásinna á annan hugsanaskarpleik, sem einu sinni kom fram í Morg- ublaðinu og var sá, að ritstj. Tím- ans gæti ekki verið ritstjóri bænda- blaðs af því að hann væri sjálfur bóndi og seldi mjólk — væri m j ólkurkaupmaður. Sk. Th. þarf ekki að koma fram með mótmæli gegn því að Tíminn sé blað þeirra bænda sem hugsa líkt og þeir Skúli og Jósef. Tím- inn mótmælir því sjálfur að vera blað þeirrar tegundar bænda sem ekki vilja efla aðalmentastofnun bænda, IJvanneyrarskólann og Búnaðarfélag íslands. Og það legg- ur Tíminn hiklaust undir dóm hinnar íslensku bændastéttar, hvor aðilinn muni vinna landbún- aðinum meira gagn: þeir sem hugsa líkt og Skúli og Jósef — eða hinir sem trúa, að bættar menta- stofnanir fyrir bændur, Bænda- skólarnir, og aukið líf í Búnaðar- félagi íslands verði búnaðinum drjúgt til framfara og hagsbóta. -----0---- Minjagripir. Norsku fimleika- mennimir sem hingað komu á dög- unum gáfu íslenskum íþrótta- mönnum stóran og vandaðan silf- urbikar sem á að vera verðlauna- gripur fyrir-fimleika. fþróttasam- band íslands gaf Norðmönnum aft- ur á móti silfurbúið drykkjarhorn mikið og vandað.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.