Tíminn - 20.08.1921, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.08.1921, Blaðsíða 4
102 T í M I N N Námsskeið fyrir eftirlitsmenn Námsskeið verður haldið frá 30. okt. til 11. desember næstk. hér í Reykjavík, i'yrir þá, er ætla sér að verða eftirlitsmenn fyrir.eftirlits- og fóðurbirgðafélögin. Nemendur fá 100—200 kr. ferða- og dvalarstyrk. Umsóknir send- ist til s- IB-ÚLna.ða.rféleLg-s Islands. Allur heimurinn stendur á öndinni út af írlandsmálunum. Bestar upplýsingar um þau fáið þér í bókinni írland, söguleg lýsing eftir dr. G. Cli. Hill. Verð aðeins kr. 3,25. Pæst hjá öllum bóksölum á landinu eða beint frá r r Bókaverslim Arsæls Arnasoiiar, Beykjavík. Födui*- og vigtarskýrslnr fyrir sauðfé og iiross, eru nýútkomnar, kosta 2 kr. í bandi. Ennfremur Fóður- og miólkurskýrslur fyrir nautpening, kosta 2 kr. í bandi. Bækur þessar eru nauðsynlegar hverjum bónda. Pást hjá Búx&adarfélagl Islands. Fréttir, „það mál ætla eg ekki að.ræða okk- ar í milli, barnið gott. þér eruð æstar og vitið- elcki hvað þér segið. Eg vil aðeins segja það, að þótt Davíð Leóne hafi verið vinur föður yðar, þá hefir hann komið fram við yður eins og versti óvinur!" „Kemur ekki málinu við! það kem- ur mér einni við. Ef mér þóknast að fyrirgefa honum þá kemur það eng- um öðrum við. Og eg h e f i fyrirgef- ið lionum. Hverjum kemur það við? „Kæra Róma! Eg gæti vel sagt, að það komi mér líka við, og að sú móðg- un sem yður var veitt, hafi og verið mér veitt. En eg ætla ekki að tala um sjálfan mig. En það að þér skuluð svo gjörsamlega snúa við blaðinu — þér sem tókuð það að yður fyrir tæpum mánuði síðan að — að svíkjast að þessum Rossí, þér berjist nú eins og ljón til þess að frelsa hann — það er vægast talað mjög einkennilegt og það er ómögulegt að skýra það, nema því aðeins að eg geri ráð fýrir að — að þér ....“ „Að eg elski hann — já það er sann- leikurinn", kallaði Róma með skýrri raustu, þótt hlóðið stigi henni til höf- uðs og þótt hún skylfi öll. Fullkomin þögn ríkti eftir þessa játningu. Bæði lutu höfði og það var eins og myndin hvíta væri að virða þau fyrir sér. það fór eins og hrollur um baróninn og með hásri og lágri röddu sagði hann: „Mér fellur þetta sárt! Mér fellur það mjög sárt! hvi að sé svo komið, þá neyðist eg til pess að breyta á þá leið að svo líti út sem eg sé með öllu tilfinningalaus. Takist það ekki að fá heimild til að leggja hendur á Davíð Rossí meðan þingið situr, þá verður það -að gerast þegar i stað á eftir. þá verður að sanna það fyrir dómstólun- um hver liann er. Yður mun verða stefnt, og þar eð þér neitið að bera vitni einslega, munuð þér verða neyddar til að tala fyrir réttinum." „þið getið ekki neytt mig“, sagði Róma áköf, eins og'henni hefði dott- ið eitthvað i hug. „Hversvegna ekki?“ „það þurfið þér ekki að vita. ])að er leyndarmál mitt. En eg segi yður að ekkert vald mun neyða mig til þess.“ Hann leit á hana, eins og hann vildi lesa hugsanir hennar. „Við sjáum til!“ sagði hann. Nú heyrðist rödd frænkunnar úr næsta herbergi. Með aumlogri röddu kallaði hún á baróninn. ----O---- lEftix'xnasli- Hinn 29. janúar s. 1. andaðist að heimili sínu Gunnar bóndi Sveins- son frá Mælifellsá í Skagafirði. Hann var sonur hinna góðkunnu merkishjóna, Sveins Gunnarsson- ar fyrverandi bónda á Mælifellsá og Margrétar Árnadóttur konu hans, sem nú naút traústs og at- hvarfs hjá þessum efnilega syni sínum. Gunnar sál. var fæddur 30. mars 1890 og var því aðeins 30 ára þeg- ar hann lést. Altof margir einstakl- ingar yfirgefa fljótt heimahagann og eyða æskunni, þessum dýrmæta lífstíma, í léttúð og hugsunarleysi, hverfa síðan að lokum p hringiðu lífsins, þar sem þeirra verður ekki getið að neinu. Aftur á móti eru aðrir, sem halda trygð við heima- hagann, byrja strax á því í æsk- unni að leggja grundvöll þann, er þeir ætla sér að byggja lífsstarf sitt á. þessir menn vinna oftast hávaðalítið og í kyrþey.þeir reyn- ast jafnan þjóðnýtir menn, fái þeir að njóta lífsins, og máttar- stólpar þeirrar sveitar, er þeir byggj a. það er á störfum þessara manna sem stóru og smáu þjóðirn- ar byggja sínar hærri framtíðar- vonir. Gunnar sál. var einn af þessum mönnum. Hann byrjaði snemma á því að stunda heimili sitt, enda vann hann þau störfin, sem hvíla á herðum þeirra einstaklinga, sem veita heimili forstöðu með dug»- aði, alúð og skyldurækni. Frá um- komu- og efnaleysi var hann með ráðdeild sinni og hagsýni búinrt að ávinna sér traust og afla þess efnalegs sjálfstæðis, að hann mátti teljast einn með hinum nýtustu borgurum sinnar sveitar, sem naut virðingar og hylli allra þeirra, sem einhver kynni höfðu af honum. Hann fylkti sér undir merki vor landbúnaðarmanna og hefði borið það merki fram til sig- urs sínum háu og göfugu hugsjón- um, hefði honum enst aldur til. Við vinir hans minnumst lengi göfuga og góðlynda drengskapar- mannsins, sem ætíð var boðinn og búinn til þess að gera okkur greiða, við minnumst hinna mörgu á- nægjustunda sem við nutum á heimili hans, þar sem gestrisninn- ar hlýja þel andaði svo hlýlega á móti öllum þeim, sem heimsóttu hann, og gerði dvölina hjá honum þar svo hugnæma. Blessuð sé minnings hans. Einn af vinum hins látna. ----o---- Útaf fyrirspurn frá einhverj- um er nefnir sig „Skólastjóri af Norðurlandi“ vildi eg biðja yður, herra ritstjóri, um rúm í heiðruðu blaði yðar fyrir eftirfarandi at- hugasemdir. Fyrirspurnin hljóðar svo: „Passíusálmarnir síðasta (45.) útgáfa í einföldu bandi, aðeins með gyltum sniðum og gyltu nafni á framhlið, eru seldir á 10 — tíu — krónur. Voru að sögn upphaflega verðsettir á 12 kr. Hvernig má það vera, að eigi sé hægt að selja sálmana vægara verði en þetta? Geta ekki kirkju- og kristindómsvinir í höfuðstaðn- um stuðlað að því að íslensk al- þjóð eigi kost á sálmunum fyrir sanngjarnt verð? Hið sama má eiginlega einnig segja um síðustu útgáfu sálmabók- arinnar.“ Vegna þess að hér er beint far- ið með rangt mál, verður því ekki látið ósvarað. Iívað verðið snertir þá eru út- gáfurnar tvær af sálmunum, önn- ur í shirtingsbandi, snotur, með gyltu nafni framan á og kostar 5 krónur. Hin er í skinnbandi (en ekki eiföldu bandi) gylt í sniðum og með gyltu nafni framan á, og kostar 10 krónur. Frásögn „skólastjórans“ virðist því vera ekki sem samviskusam-* legust hvað þetta snertir. Passíusálmarnir voru seldir fyr- ir stríðið á 1 -kr. og voru þá sálm- arnir „settir“ í þaula, en nú eru þeir allir „settir“ í hendingum og betur til útgáfunnar vandað en áð- ur. Verkalaun og annar kostnaður við prentiðn hefir, eins og allir vita, fimmfaldast og pappírinn hækkað fimm til sjöfalt í verði. Sálmarnir eru prentaðir árið 1920 og kosta 5 krónur. það ætti ekki að þurfa neitt gáfnaljós til að sjá að hér er ekki um neina ósanngirni að ræða. Hin útgáfan, 10 króna, er þann- ig tilkomin, að margir borgarar og kirkj u- og kristindómsvinir óskuðu þess fyrir stríðið, meðan ekki var til nema ein útgáfa, að hægt yrði að fá sálmana í skrautlegra bandi til tækifærisgjafa handa börnum og fullorðnum. þessum óskum var reynt að fullnægja með því að gefa út hina einkarsnotru 10 króna út- gáfu. En eigi var gert ráð fyrir að hún eða útgáfa hennar yrði notuð á þann hátt sem „skólastjórinn“ lætur sér sæma. Hið sama má að mestu segja um vasaútgáfu sálmabókarinnar. ísa- foldarprentsmiðja, sem hefir gefið báðar þessar bækur * út síðasta mannsaldurinn að minsta kosti, gaf fyrir löngu út ódýrari og ó- vandaðri útgáfur af báðum þess- um bókum, en reynslan hefir sýnt að almenningur vill þær miklu síð- ur og að þær seldust næstum ekki nema þegar hinar betri voru ekki fyrir hendi (voru uppseldar). Reykjavík 26. júlí 1921. Herbert M. Sigmundsson f ramkvæmdast jóri. Tíðin. Óþurkar og hægviðri hér um slóðir undanfarið. Prestafélagsritið, þriðja ár, er nýkomið á markaðinn, stærra en áður. Fjölbreytt að efni. pjóðvinafélagið. Talið er að 50 ár séu liðin frá stofnun félagsins hinn 19. þ. m. Hefir dr. Páll Egg- ert Ólason, forseti félagsins, þeirr- ar minningar gefið út minningar- rit um félagið, stórt rit og vand- að að frágangi. Rekur hann þar sögu félagsins í stuttu yfirliti, segir frá stofnun félagsins og til- drögum, tilgangi þess og fram- kvæmdum. Hefir þjóðvinafélagið verið stórmerkur liður í frelsis- baráttunni. Hinn nýi forseti hefir þegar sýnt hinn mesta dugnað í þeirri stöðu. I þinglokin síðustu var hann kosinn forseti, og nú er minningarritið komið út, alma- nakið um það bil að koma út og nær því vel í haustkauptíðina um alt land, eins og vera ber. Félagið hefir þröngan fjárhag. Ættu menn nú á fimtugsafmælinu að fjöl- menna í félagið. Bókaútgáfa þess er svo þörf og merkileg að hún má ekki niður leggjast. Og félagið er í góðum höndum hjá Páli E. Ólasyni. Söguíélagið. Bækur félagsins þetta ár eru nýkomnar út. Dýrtíð- in dregur eðlilega heldur úr útgáf- unni og er það illa farið. „Blanda“ hlýtur skjótlega að ná alþýðuhylli. Allskonar skemtilegur fróðleikur þar á boðstólum. Má t. d. nefna sagnir um síra Eggert í Stafholti, son Bjarna landlæknis, eftir Finn Jónsson á Kjörseyri, ljómandi skemtilegar frásögur úr Reykja- víkurlífinu á öldinni sém leið, eft- ir Klemens Jónsson, sagnir um síra þórð Jónsson í Reykjadal, eftir Brynjólf frá Minnanúpi, minnis- greinar ýmsar eftir Árna Magnús- son um klaustrin o. fl. Kveðskap- inn aftur á móti kann sá síður og ekki að meta, sem þetta ritar. — Sögufélaginu hafa alls bæst 49 fé- lagar síðan síðasta skýrsla var gefin út. það er oflítil viðbót. Allir fróðleiksfúsir íslendingar eiga að telja sér það skylt að ganga í Sögufélagið. Vaxtalækkunin. íslandsbanki hef- ir ekki enn lækkað vextina. Lán- þegar íslandsbanka verða enn að borga 1 °/o hærri vexti en lánþegar Landsbankans. Hvernig í ósköpun- um getur staðið á því, að slíkt get- ur átt sér stað áfram? Frá sjón- armiði almennings lítur þó svo út sem íslandsbanki hljóti að eiga að mun hægra með að lækka vextina en Landsbankinn, þar eð íslands- banki hefir þau sérréttindi frá landinu að gefa út margar miljón- ir króna í seðlum, sem hann fær að hafa með sérstaklega góðum kjörum. — Er þessi framkoma blátt áfram lifandi mynd af hinu forna spakmæli, að: sjaldan laun- ar kálfur ofeldi? Ætlar landsstjórn in lengi að horfa á það aðgerða- laus að sá bankinn sem fær þessi miklu hlunnindi að gefa út marg- ar miljónir króna í seðlum, út á gjaldþol landsins, taki að mun hærri vexti af lánum, en landsins eigin banki sem ekki hefir þessi sérréttindi nema í margfalt smærra mæli? Gamansögur. Ársæll bóksali Árnason gefur út í einu bindi hin- ar frægu sögur Benedikts Grön- dals: Iieljarslóðarorustu og þórð- ar sögu Geirmundarsonar. Hafa báðar lengi verið ófáanlegar. Frá- gangur bókarinnar er ágætur. Og innihaldið er hafið yfir lof. það skemta sér margir við þann lest- ur á vetri komandi. Sú spánska. 1. Maður nýkominn frá Spáni segir þaðan þær fréttir að mikil óánægja ríki í landinu yfir hinum nýju tollalögum stjórnarinnar og yfir tollinum á íslenska saltfiskn- um sérstaklega. Koma þessi mót- mæli fram í blöðum og undirskrift- ir og áskoranir munu vera á leið- inni á móti tollinum. — það er vit- anlega ekki að vilja almennings á Spáni sem stjórnin þar gerir frumhlaup þetta. það eru and- banningar sem beita henni fyrir sig, og þykir þeim garðurinn lægstur hjá íslendingum. 2. þó að Spánverjar hefðu bein- línis keypt sér blað hér á landi til þess að vinna að hagsmunum vín- bruggaranna á Spáni og á móti hagsmunum og frelsi íslands, hefðu þeir ekki getað fengið sér þægilegi-a blað en Morgunblaðið er þeim nú. Ifið keypta blað hefði ekki getað komið fram öðruvísi í málinu en Morgunblaðið hefir gert. 3. Ekkert bólar á því að lands- stjórnin ætli sér að gera nokkurn skapaðan hlut til þess að verjast kúguninni spönsku. Vika líður eftir viku, dýrmætur tími til þess að vinna fósturjörðinni gagn, og eng- inn íslendingur er sendur til að tala máli Islands á Spáni. Hún ætl- ar að lifa eftir þeirri reglu stjórn- in, alveg fram á grafarbakkann, aíð gera ekki neitt. það reynist af Egíl! Þorlákss. kennari, Húsavík, tekur . á móti borgun fyrir „Dýraverndarann“ hjá mönnum þar á staðnum og ná- lægum héruðum. Jóh. Ögm. Oddsson Laygaveg 63. þessu að það mun vera „gat“ í stjórnarskrána íslensku. það hefir enginn gert ráð fyrir þessum ó- sköpum, að stjórn sæti lengi og gerði ekki neitt. Vantar einhver sérstök ákvæði um slíkt framfei’ði. Á læknamáli héti það sennilega „meðfætt fjörleysi“. Úr bréfi frá svo harðsnúnum fylgis- manni landsstjórnarinnar, sem eftirfarandi orð bera vitni um: „þið eruð að finna að því að for- sætisráðherrann stofnaði þetta nýja embætti í utanríkismálunum. þið sjáið eftir þessum nálega 12 þús. kr. sem pilturinn fær í laun. þið segið að embættið sé alveg ó- þarft. Eg lít dálítið öðru vísi á málið. Væri það of mikið þótt varið væri nokkrum tugum þúsunda króna á ári beinlínis í því skyni að tryggja það að ísland fái áfram að njóta hinnar röggsamlegu, sparsömu, heilbrigðu og blessunar- ríku stjórnar Jóns Magnússonar? Væri það ofmikið þótt synir og aorir vandamenn stuðningsmanna Jóns Magnússonar fengju vellaun- aðar stöður, jafnvel að stofnuð væru sérstök „óþörf“ embætti handa þeim? því er það ekki ó- metanlegt gagn sem menn þessir vinna fósturjörðinni með því að styðja Jón Magnússon? Mér er sagt að stjórnin ætli að leggja það til við næsta þing, og stjórnarflokkurinn í þinginu sam- þykkir það vafalaust, að gera úr þessu embætti sjálfstætt skrif- stofustjóraembætti utanríkismál- anna. þá verður að reisa sérstakt hús yfir slcrifstofuna á Arnarhóli. Mikla og veglega höll, að sjálf- sögðu, því að þar á að halda ríkis- veislurnar fyrir erlenda sendi- herra og erlenda hluthafa íslands- banka. þá verður að bæta við mörgum starfsmönnum í utanrík- ismáladeildinni, bæði æðri og lægri. Eg spyr enn: Væri þetta ekki kjörin stofnun, auk annara sem fyrir eru, til þess að geta veitt þær stöður allar, son- um eða aðstandendum stuðnings- manna Jóns Magnússonar? Væri það ekki mikil trygging fyrir því að landið fái áfram að njóta hinnar röggsamlegu, spar- sömu, heilbrigðu og blessunarríku stjórnar Jóns Magnússonar að eignast slíka „Einherja“, einvala- lið ungra manna sem eiga upphefð sína og há laun úr landssjóðnum Jóni Magnússyni að þakka, og verða því æ boðnir og búhir til að slá um hann skjaldborg og verja stjórn hans? Viltu að þessu athuguðu kalla þetta „óþarft“ embætti, og fneð þessu óviturlega séð fyrir „hinu sanna gagni fósturjarðarinnar“ ? Spyr sá sem ekki veit.“ — þessum mörgu og alvarlegu spurningum, þessa harðsnúna fylgismanns stjórnarinnar, skýtur Tíminn opinberlega fyrir dómstól þjóðarinnar. Leiðrétting. Meinleg prentvilla slæddist inn í grein Jóns Jónatans- sonar um Frás-vélina í næstsíð- asta blaði. Stendur þar að vals- inn snúist 1200 snúninga á mín- útu, en átti að vera 120. En sam- kvæmt síðari rannsókn mun hrað- inn vera alt að 150 snúningar. Helgi Valtýsson hefir að nýju tekist á hendur ritstjórn Skinfaxa. Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson Laufási. Sími 91. Prentsmiðjan Acta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.