Tíminn - 29.07.1922, Page 2
102
T I M I N N
Nýja
strandferðaskipið.
Á þriðjudaginn var undirskrif-
aði Klemens Jónsson atvinnumála-
ráðherra samning við forstjóra
„Flydedokken" í Kaupmannahöfn
um smíði á strandferðaskipi sem
á að verða tilbúið snemma í apríl
næsta ár. Skipið verður hið hrað-
skreiðasta og vandaðasta mann-
flutningsskip, sem nokkurntíma
hefir verið notað til strandferða
hér við land. Kaupverðið er 695
þús. danskar krónur. Af því geta
200 þús. staðið afborgunarlaust í
5 ár, og greiðst síðan með jöfn-
um afborgunum á næstu 5 árum.
Nielsen forstjóri Eimskipafél.
hafði útvegað mörg tilboð og
teikningar, en Flydedokken reynd-
ist best. Hefir hún bygt alla
„Fossana1,, sem Eimskipafélagið
hefir látið smíða. í fyrstu var ætl-
ast til og talað um að skipin yrðu
tvö, af sömu stærð og líkri gerð.
En stjórnin afréð þó að láta samn-
inga um síðara skipið bíða næsta
þings. Mun þá gert ráð fyrir
næsta sumar að nota Borg líka til
vöruflutninga með ströndum fram
á mesta annatímanum.
Nýja skipið eyðir 8 smálestum
kola, þegar Sterling eyddi 15. f>að
fer l01/2 mílu á sama tíma og
Sterling fór 9, Kong Tryggvi og
Kong Ingi 9, Austri og Vestri 8,
og Hólar 7/2 mílu. Nýja skipið
verður 174 fet á lengd og 80 á
breidd. Hólar, Austri og Vestri
voru 150 fet á lengd hver. Nýja
skipið hefir á fyrsta farrými (með
borðsal, reykingasal og 3 sjúkra-
rúmum) farkost fyrir 60 menn. Á
öðru farrými fyrir 100 menn. Auk
þess allmikið lestarrúm. í véla-
rúminu er svo fyrir séð, að bæta
má við kælivélum. Sérstakt lestar-
rúm verður fyrir farþegjaflutn-
ing. Rafmagnsvél þrýstir hreinu
lofti niður í hvert herbergi, þar
sem farþegjar búa. Á fyrsta far-
rými eru herbergin 2 og 4 manna.
Á öðru farrými öll 4 manna, nema
2 er rúma 6 hvort. Kerlaug er á
fyrsta farrými, en steypibað á
öðru. Er það í fyrsta skifti á skip-
um hér við land, sem bað er til
afnota fyrir fólk á öðru farrými.
Skipið ætti að geta farið hring-
ferð um landið, að vor og sumar-
lagi og komið á flestar hinar
stærri hafnir, á 8 dögum. það get-
ur auðveldlega komið inn á hafnir
eins og Hornafjörð og Búðardal.
Skipið og vélarnar alt mjög sterk-
bygt. Skrúfan 0. m. fl. sérstaklega
útbúið til að þola ís og árekstur.
Fyrsta tilboð skipasmiðsins var
705 þús. Síðan voru gerðar breyt-
ingar á vélum og útbúnaði, sem
kostuðu um 50 þús. Samt tókst
stjórninni að þrýsta verðinu nið-
ur í 695 þús. Að lokum tókst hr.
Nielsen, eftir að búið var að
ákveða samninginn, að fá Flyde-
dokken til að lengja slcipið um 4
• fet, án þess að hækka verðið.
J. J.
---o----
Til miimis.
Kaupsýslumanni, sem á 2000 kr. í
Mbl., hafa verið gefin upp 700 þús. kr.
í liérlendum hanka. Aðrir menn
horga þessa stóru skuld með of fiá-
um vöxtum. Ekkert af sambandsfé-
lögunum iiafa heðið um nokkra eft-
irgjöf.
Menn vita að mörgum öðrum út-
gerðarmönnum og kaupmönnum hafa
verið gefnar upp stórupphæðir í ís-
landsbanka. En Mbl.liðið reynir að
halda öllu sliku vandlega leyndu.
Enska lánið hvarf í skutdahít út-
gerðarmanna og kaupmanna. Öll þjóð-
in er i samábyrgð fyrir því iáni, með
veðsettar tolltekjur. Útgefendur Mbl.
hafa víst ekki óbeit á að láta þjóð-
ina ganga í samábyrgð fyrir þá.
Nýju togararnir eru eign fjöimargra
kaupmanná og embættismanna í
Rvík. þessi stoltu félög komu til þings
ins í fyrra og háðu um samábyrgð
allra iandsmanna. það varð.
í altan vetur hafa gengið hviksög-
ur um Sambandið frá verslunarstöð-
unum, um að það væi'i að biðja þing-
ið um 5 miljóna ábyrgð landsins.
Annars færi það á höfuðið. Engum
samvinnumanni hefir svo mikið sem
dottið í hug slík hjálparbeiðni.
Sambandið liafði enga þörf fyrir
slíka ábyrgð. það hafði fult traust er-
lendra og innlendra banka, sem það
skiftir við. Ekki er kunnugt um neitt
annað íslenskt firma, sem naut svo
mikils trausts. A. + B.
Konungsvaldið, SkagafjaröarvaldiS,
Akranesvaldið.
Stuðningsmenn P. Ottesens á Akra-
nesi hafa sent Mhl. mótmælaskjal út
af því að konungur lét sakir falla nið-
ur gegn Ólafi Friðrikssyni, fyrir mót-
stöðu gegn lögreglunni. Sýniát liér
vera skritin deila „í uppsiglingu",
eins og Isafold sáluga liefði koinist að
orði.
Kjósendur Ottesens og líklega hann
sjálfur „kritiseia“ konungsvaldið, þar
sem það fer þó áreiðanlega ekki út
fyrir sín lögskorðuðu takmörk. þetta
mun vera hrot á stjórnarskránni. I
öðru lagi er þetta árás styðjandans
Ottesens (eða manna hans) á leiðtoga
kaupmannaflokksins, Magnús Guð-
mundsson. það var á almanna vitorði
i vetur, þegar deilurnar stóðu sern
hæst út af drengsmálinu, að M. Guðm.
stóð i daglegum samningum við
verkamannaflokkinn. Fyrst bauð
hann sættir og uppgjöf saka fyrri or-
ustudaginn, ef drengurinn færi. Og
þogar endanlega var stilt til friðar
og komist hjá blóðugum hardaga, þeg-
ar drengurinn náðist, fqr það elcki
dult í bænum, að M. Guðúi. hefði
komist að samningum við verkamenn
um að þeir sýndu ekki „stjórnar-
hernum" mótþróa, en hinsvegar
skyldu sakir falla niður. þegar M.
Guðm. lét af stjórn, var undangeng-
ið makk hans um sættir og niðurfall
saka a. m. k. siðferðislega hindandi
fyrir nýju stjórnina. Ritstjórar kaup-
mannablaðanna, Visis og Mbl. litu
víst þannig á, og mæltu báðir með við
Sig. Eggerz, að hann legði til við
konunginn, að saltir féllu niður. Öll
stjóriiin var sammála um, að cins
og alt væri í pottinn húið af hálfu
fyrverandi stjórnar, yrði að taka þess-
ar óskir til greina. Nú verður fróð-
legt að sjá framhaldið, hvort Akra-
nesvaldið heldur áfram að „pro-
testera" hæði gegn Skagafjarðarvald-
inu, og aðgerðum H. H. konungsins.
X.
Kjöttollurinn. Bóndi sem átti
tal nýlega við ritstjóra Tímans,
lét þá von í ljós að Morgunblað-
ið og Lögrétta myndu taka sann-
gjarnlega undir hinar réttlátu
kröfur sem Tíminn bar fram af
hálfu bændastéttarinnar í kjöt-
tollsmálinu, Vitanlega hefir sú von
brugðist gersamlega. Morgunblað-
ið kallar ummæli Tímans um það
mál „vanhugsaða fjarstæðu, mas
og fjas“. — þessi 700 þús. kr.
skattur kemur vel á vonda, að
áliti Morgunblaðsins. — Blaðið
bendir á lifandi útflutninginn, eins
og við íslendingar þurfum ekki
annað en hreyfa litla fingur til að
fá breytt löggjöf Englendinga. —
Samanburður blaðsins um mark-
að fyrir saltkjötið og saltfiskinn
er alveg villandi. Saltfiskurinn er
fyrsta flokks matvara, sem afar-
mikil eftirspurn er eftir í öllum
löndum nálega. Saltkjötið er því
miður ekki fyrsta flokks matvara
og þrátt fyrir margendurteknar
tilraunir, er ekki til markaður fyr-
ir það, svo teljandi sé, nema í
Noregi. — þessvegna lendir allur
tollaukinn á íslensku bændunum.
— Loks minnist blaðið á enska
lánið og er þess gott að minnast
í þessu sambandi. Morgunblaðið
lagði blessun sína yfir enska lán-
ið, af því að því var öllu varið til
þess að bjarga spekúlöntunum
sem eiga Morgunblaðið. Morgun-
blaðið lagði blessun sína yfir
Spánarsamningana af því að eig-
endur þess vildu fá vín og vildu
alt í sölurnar leggja, jafnvel
s j álf sákvörðunarrétt landsins.
Vildu ekki einu sinni gera úrslita-
tilraun til að komast undan kúg-
uninni. En þegar kjöttollur skell-
ur á á eftir, eins og margir höfðu
gert ráð fyrir, þá á blaðið ekkert
annað en kuldahlátur og fyrir-
litning gagnvart hinum sjálf-
sögðu kröfum bændanna. — Um
þetta mál verður mikið rætt síð-
ar hér í blaðinu.
Hai-aidur Níelsson prófessor er
nýkominn úr sex vikna ferðalagi
kring um landið. Flutti hann alls
18 sinnum fyrirlestra og prédikaði
9 sinnum: á ísafirði,Siglufirði,Ak-
ureyri, Svalbarði, Iirísey, Grund,
Einarsstöðum, Skútustöðum,Grenj
aðarstað, Húsavík, Seyðisfirði og
Norðfirði. Eins og vænta mátti
fékk hann alstaðar hinar ágætustu
viðtökur og mesta fjölda áheyr-
Hestamannafélagið „Fákur“
í Reykjavík efnir til kappreiða 20.
ágúst n. k. þátttakendur eru beðn-
ir að láta skrásetja hesta sína og
reiðsveina (knapa) í síðasta lagi
15. ágúst. Eftir þnn tíma verður
engum þátttakendum sint. Há
verðlaun. Dan. Daníelsson tekur á
móti áskriftum.
Stjórnin.
Tapast hefir frá Laugardalshól-
um grár hestur, dekkri á tagl og
fáx, vetraraírakaður, meiri part-
ur af faxi fellur á hægri hlið, ný-
járnaður með flatskeifum pottuð-
um á tánum. I báðum framíotar-
hófum eru sprungur innanfótai’,
hefir góðan vilja, vakur og tölt-
gengur. Ættaður frá Vallholti í
Skagafirði. Mark að mig minnir
heilrifað vinstra(?).
Sá sem hitta kynni hest þenn-
an, er vinsamlega beðinn að gera
viðvart til Sigtryggs, ráðsmanns
Dýraverndunarfélagsins í Tungu
við Reykjavík, eða
Sigurðar Ingvarssonar,
Laugardalshólum, Laugardal, Ár-
nessýslu.
enda. Ilvar sem komið var var
fólkið þyrst að heyra um þau efni
sem hann flutti fyrirlestra um:
um niðurstöðu sálarrannsóknanna,
en engu síður að heyra hann pré-
dika.Hvergi fundust honum eyrun
opnari en í þingeyjarsýslu, eink-
um fyrir prédikununum. „Dagui'“
segir meðal annars svo frá: „þess-
ir fyrirlestrar hafa vakið geysilega
aðsókn og athygli í bænum, því
málið er stórmerkasta málið sem
nú er uppi og flutningur prófess-
orsins snjall, sannfærandi en þó
hæversklegur og að því er virð-
ist öfgalaus“.
Sigurður Sigurðsson forseti
Búnaðarfélagsins er nýkominn
aftur til bæjarins úr ferð um
Norðurland. Gengur ágætlega
vinnan með Frásvélina nyrðra.
Ritstjóri:
Tryggvi þórhallssoii
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta.
Komandí ár.
Hvítu kolin (frh.).
Orka falivatnanna hér á landi cr svo geysilega mik-
il, að um óralanga framtíð sýnist fullvíst, að íslenska
þjóðin gcti ekki notað nema örlitið hrot af henni. Til
skýringar má geta þess, að til að lýsa og hita alla Reykja-
vík, elda mat handa 20 þúsund mönnum, og knýja áfrain
verkvélar, sem slíkur bær þarf að nota, mundi ekki þurfa
nema þriðjung af magni Sogsfossanna, sem þó eru ekki
sérlega tilkomumiklir. Með öllu/afli Sogsfossanna myndi
mega bæta úr Ijós- og liitaþörf ailra, sem búa á Suður-
láglendinu, Suðurnesjum, i Borgarfirði og Mýrum, þ. e.
meira en helmingi allra íslendinga.
Fossar landsins eru misfriðir. Sumir, t. d. Gullfoss,
Dettifoss, Goðafoss og Skógafoss, eru ómetanlegir dýrgrip-
ir sakir fegurðar. Að virkja þá væri sama og eyðileggja
listaverk fyrir ófæddum kynslóðum. Ef til vill gœti þörf
manna knúð þjóðina til slíkrar fórnar. En eins og á
stendur er það meir- en óþarfi. þó að hlíft sé fallegustu
fossunum, er til fjöldi annara fallvatna, sem engin veru-
leg eftirsjón er að, t. d. Urriðafoss, Sogsfossarnir, Lagar-
foss eystra og fjölmargir aðrir.
Vegna komandi kynslóða þarf að endui'heimta foss-
ana úr höndum framandi manna. Siðan þarf að flokka
fallvötnin í tvent. Suma, sem.á að vernda um ókomnai'
aldir eins og fallega mynd eða dýrmætt handrit. Aðra
sem á að virkja eftir því sem efnahagur og manndómur
þjóðarinnar leyfir.
það er ómögulegt að gera sér hugmynd um öll þau
margháttuðu not, sem verða kunna að rafmagni í fram-
tíðinni. En það er auðvelt að nefna nokkur dæmi um
það, til hvers íslendingar myndu vilja nota raforkuna,
ef efnin væru nóg. það er til ljósa, suðu og til að liita
heimilin. F.ins og nú háttar, er þetta erfitt. Rafstöð fyrir
einn bæ er nokkuð dýr, ofurefli flestra bænda, nú sem
stendur. Stór stöð og leiðsla um lieilar sveitir er líka
ofvaxið fiestum héruðum, eins og kostnaði við leiðslur
er varið. Bæirnir eru strjálir og leiðslur enn sem komið
er mjög dýrar. En allri notltun rafmagns fer fram með
hröðum fetum. Hver uppfyndingin bætist við aðra. Eftir íá-
ein ái' verður ef til vill margfalt ódýrara en nú að koma
upp einstökum smástöðvum, eða að leiðslurnar falla í verði.
Hvorttveggja getur bjargað íslensku sveitunum, útrýmt
•
húskuldanum, eldsneytisleysinu, og bætt úr heilsu- og
vinnueyðslu við eldamenskuna. Kauptúnin standa betur að
vígi, þar sem vatnsafl er nærri. þar er eiginlcga sjálfsögð
skylda að nota rafmagn til allra ljósa og hitunar. Reykja-
vík ætti að ganga í fararbroddi og virkj nokkuð af Sogs-
fossunum, til ljósa, hita og iðnaðar. Ef til vill liggur þýð-
ing fossanna fyrir iðnað á Islandi ekki fyrst og fremst i
áburðarframleiðslu. Sú lilið sýnist altaf dálítið vafasöm,
þó að þörfin sé nóg. En hér ætti að geta myndast iðnað-
ur við að ummynda íslenskar hrávörur. Karlmanns-
hanskar úr íslensku sauðskinni, gerðir í Bandaríkjun-
um, kostuðu fyrir 2 árum hingað komnir 40—50 kr. Um
niismun á verði ullarinnar, og innfluttra fataefna, vita
allir. Vel gæti hugsast, að í skjóli ódýrrar raforku mynd-
uðust skilyrði fyrir ýmiskonar iðnaði, sem nú er ókleyft
að stunda. Rafmagnið cða hvítu kolin eru þriðja auðs-
uppspretta laudsins. I bili er sú uppspretta seld og leigð
vitlendingum, sem láta hana liggja ónotaða. Verkefni
komandi ára er að flytja þessa eign heim. Friða suma
fossana, þá sem fegurstir eru, en nota hina til að létta
daglega stritið, hita og lýsa heimilin.
Sjötti kafli.
Samvinnan.
1.
Upphaf samvinnunnar.
„það má gera alt með samvinnu", sagði bóndi einn í
Skaftafollssýslu i fyrra. þetta er orð að sönnu. það má
svo að orði kveða, að samvinnuúni hafi tekist að leysa
flest viðfangsefni félagslífsins einhversstaðar. Hér á iandi
er varla nema hyrjunin hafin enn sem komið er.
Fyrsti brautryðjandi samvinnunnar er Robert Owen.
Ilann var fulltiða maður um aldamótin 1800. Hann var
alinn upp í fátækt, en hafði safnað auði á ungum aldri,
og þótti einn liinn snjallasti forgönguniaður í baðmullai'-
iðnaði Englendinga. Owen var afbragðsmaður að viti og
mannkostum.-Eymd og harmar annara manna sncrtu
nann, eins og ætti hann sjálfur í hlut. Hann tók við
verksmiðju, þar sem 500 fátæk börn (niðursetningai')
unnu þunga vinn'u frá morgni til kvölds. þeim vai' ekk-
ert kent, enda tæplega unt, þar sem þau komu dauðþreytt
li'á vinnunni og steinsváfu því nær allan sinn stutta hvíld-
artíma. Barnaþrælkun af þessu tægi var þá algeng .i Eng-
landi. Allur þorri þeirra unglinga, sem þannig var alið upp,
urðu úrkynjaðir, andlega og líkamlega. Karlmennirnir
drykkjumenn, konurnar fóru á götuna. Owen komst
snemma á þá skoðun, að uppeidið, umhverfið og aðbúð
öll skapaði manninn: Glæpamenn og hetjur ættu miklu
meir en menn alment, grunaði, umhverfinu að kenna og
þakka. Holt og gott umhverfi þróaði manndóm og dreng-
skap. Sjúkt og spilt umhverfi leiddi til lasta og hvers-
konar hnignunar. Æfistarf Owens varð þessvegna óslitin
glíma við að bæta umhverfið, þar sem hann náði til.
I-Iann gaf hinum ánáuðugu börnum frelsi, stofnaði handa
þeim góðan skóla. Bygði holl og góð hús fyrir vcrka-
menn sína. Bóka- og myndasöfn fyrir þá til að nota í
hvíldarstundum sínum. Stytti vinnutímann. Notaði börn
aldrei til vinnu. Að lokum setti hann á fót búð, sem seldi
verkamönnunum ailar vörur með kostnaðarverði. Reynsl-
an varð hin sama og hér á íslandi, þegar pöntunarfélög-
in byrjuðu. Vöruverðið lælckaði um 25%.
Owen rak verksmiðjuna með þcssum liætti i fjórðung
aldar. Hann græddi auð fjár, og varði því fé öllu til
mannúðarvei'ka og fræðslu. Verksmiðjan fékk það orð á
sig, að hvergi væru dúkar betur gerðir. Verkafólkið ger-
breyttist. Drykkjuskapur hvarf, þegar fólkið fékk fagurt
og fjölbreytt umhverfi. Litla þorpið New Lanark, skamt
frá Glasgow, varð einskonar jarðnesk paradis. Fjöldi
manna innlendra og útlendra streymdu til Owens, að
sjá þann litla undraheim, sem liann liafði skapað. Rússa-
keisari var einn af þeim gestum. Honum fanst svo mik-
ið um, að hann vildi fá Owen til Rússlands, með fjölda
breskra verkamanna. Úr þvi varð þó ekki.
pcgar Owcn var orðinn miðaldra maður, livarf liann
frá New Lanark til að gcta unnið meir fyrir hugsjónir
sínar. Honum var ekki nóg að til væri eitt myndarþorp
eins og New Lanark. Hann vildi mynda mörg sjálfstæð
samvinnúfyrirtæki, þar sem unnið væri og framleitt í
bróðerni og félagsskap. Ilann gerði ráð fyrir að margir
inenn liefðu svipaðan hugsjónamátt og hann;' löngun til
að láta heiminum fara fram. En í því var yfirsjón hans
fólgin. Hann eyddi fé sínu, orku og æfi í að koma upp
fyrirmyndar-nýlendum, með frjálsum samtökum. Hann
leitaði aldrei til ríkisvaldsins. Tilraunir lians, eftir að
liann slepti New Lonark, mistókust allar. Hann var of-
sóttur og rógborinn, cins og skaðræðismaður. þó undar-
legt sé, voru prestarnir einna fremstir í flokki þeirra,
sem reyndu að eyðileggja iífsstarf hans.
Owen dó í hárri elli, þreyttur af baráttUnni, en von-
góður um sigur sinna hugsjóna. pað hefir og rætst. Hann
liefir orðið brautryðjandi umhóta á fjölmörgum sviðum,
m. a. höfundur smábarnaskóla, þar sem viðfangsefnið eru
leikir, söngur og vinna, en ekki bóknám. En þýðingar-
mesti arfurinn, sem Owen hefir skilið eftir, er hugsjón
hinnar frjálsu samvinnu.
-----o-----