Tíminn - 04.11.1922, Page 2
150
T I M I N N
Notið að eins íslenskar vörur.
Kaupið að eins íslenskar vörur.
Haflð þér séð nýju dúkana frá Klæðasmiðjunni Álafoss?
Þeir eru bæði til notkunar í fatnað, dyratjöld, útsaumsdúka
o. m. fl. til prýðis á íslensku heimili.
WF" íslenskir dúkar klæða íslendinga best.
Klsðasmiðjan AlafosS) p. t. Reykjavik.
Samband ísL
samvínnufélaga
útvegar beínt frá verksmíðjunni
hið viðurkenda, ágæta
Mc. Dougall’s
B AÐLYF.
Bændur
munið að Kaupfélagid Ingólfur á Stokkseyri útvegar-
sláttuvíima Deering'
og varastykki í hana.
Trésmíðayertsmiðja
Hafliða Hjartarsonar
Lauiasveg 2. Beykjavík. Sími 44.
Smíðar hurðir og glugga af öllum stærðum, húsgögn o. fl.
Afgreiðir pantanir út um alt land. Biðjið um verðskrá.
Til sölu:
Jörðin Stóravatnsleysa í Vatnsleysustrandarhreppi í Gullbringu-
sýslu; fæst til kaups og ábúðar nú þegar, með öllum áhöldum, búpen-
ing og heyjum.
Jörðinni fylgir íbúðarhús og fénaðarhús.
Jörðin er með stærstu jörðum í Gullbringusýslu, bæði að landvíð-
áttu, túnstærð og matjurtagörðum.
Jörðin er álitin með einhverjum bestu útigangsjörðum á Suður-
landi. —
Jörðin liggur við þjóðveginn og akvegur heim á hlað. Ennfremur
er höfnin með betri höfnum fyrir mótorbátalegu í Faxaflóa.
Allar frekari upplýsingar gefur ábúandi og eigandi jarðaiinnar
Bjarni Stefánsson,
Stóruvatnsleysu.
mundi og áhrifa minna gæta síð-
ur. Eg get að minsta kosti ekki
hugsað mér, að þessir „ókunn-
ugu“, sem ritstjóri Bjarma ber
svo miklu umhyggju fyrir, geti
verið aðrir en þeir, sem þekkja
mig ekki. Með öðrum orðum: Hann
kemur með þessar rógkendu lýs-
ingar, til þess að telja ókunnug-
um trú um, að eg sé svona. Hann
veit, að honum tjáir ekki. að segja
hinum þetta, er þekkja mig. Kem-
ur hér enn þá fram þetta sama
hjá hr. Ástvaldi: „Tilgangurinn
helgar meðalið“. pað þarf ekki að
vanda lýsingarnar, þegar tilgang-
urinn er að ná í kaupendur að
Bjarma, svo að hann þurfi ekki
að flosna upp. Svo er líka að
skilja sem hann sé að afsaka sig
frammi fyrir kaupendum Bjarma,
að hann (jafn þrúðhelgur maður
líklega) skuli vera að eiga orða-
stað við mig, slíkan syndasel og
eg er.
þar næst segir hann, að eg
„þykist ekki geta trúað öðru en
að eg geti spilt fyrir Bjanna“
með greinum mínum. Hér er sem
oftar, að hr. Ástvaldur tilfærir
orð eftir mér og setningar, sem
eg hefi aldrei sagt. það ber , þó
nokkuð mikið á því hjá hr. Ást-
valdi, er Sallust gamli telur
mönnum til svívirðingar. Er það
socordia in vero, þ. e. hirðuleysi
um það að segja satt. Bæri ein-
hver það upp á hr. Ástvald, að
hann væri stórlyginn, myndi eg
snúast við því eitthvað svipað eins
og karlinn, er varði Gvend son
sinn fyrir slíkum áburði. Hann
sagði: „Stórlyginn er hann Gvend-
ur greyið ekki; hitt er satt, að
hann er smáskreytinn endrum og
eins“. Eg þurfti að leiðrétta um-
mæli hr. Á. G. í vetur og þá sagði
eg þetta um Bjarma: „Mér er
sama um það (þ. e. blaðið
Bjarma). peim sem þykir Bjarmi
góður, er það sannarlega ekki of-
gott. Engum skynsömum manni
dettur í hug að kosta fé til þess
að tína saman gorkúlur og flytja
þær burt af túninu. pað þarf ekki
annað en bíða, þar til þær verða
að kerlingareldi og fjúka út í veð-
ur og vind. Eins fer um Bjarma.
þegar andlegi jarðvegurinn breyt-
ist, þá getur hann ekki þrifist og
hverfur út í veður og vind eins og
kerlingaeldur“. Sama álit hefi eg
enn. En ritstjórinn huggar sig
við, að kaupendur Bjarma „séu
svo skapi famir“, að greinar mín-
ar veiði þeim ný hvöt til að reyna
að fjölga kaupendum. En því í
ósköpunum fræðir hann þá ekki
um það, að greinar mínar „spúi
sjálfkrafa“ nýjum og nýjum kaup-
endum í fang honum. þeir voru
komnir 19, að mig minnir, þegar
hann skrifaði seinast. Ilann ætti
ekki að vera að nudda þetta í
kaupendur Bjarma, meðan eg er
að því er hann sjálfur segir, að út-
vega honum fleiri og fleiri kaup-
endur. pegir bamið meðan það
étur skötufótinn, segir máltækið.
En ritstjóri Bjarma þegir ekki,
þótt hann hafi fengið 19. Satt
að segja finst mér að hann gæti
sparað sér að gullhamra styrkt-
armenn sína, með því að reyna
að telja þeim trú um, hvemig
þeir muni vera skapi famir. —
En skáldið (St. G. St.) segir:
Eg hefði ekki klerkinn frá kaup-
manni þekt,
ef kjóllinn ei leiðbeindi mér,
af bragðvísri hagfræði blendingur
var
og bókfræði hugsun hans hver.
það er sagt, að þegar dregið
er breitt krítarstryk fyrir fram-
an hæns, þá fari ekkert þeirra
yfir strykið. pað er þeim sönn-
un þess, að þau geti ekki komist
lengra. þau eru nú þannig skapi
farin. það er sem hr. Ástvaldur
þekki þessa aðferð. Hann dreg-
ur breitt krítarstrik órökstuddra
orða í Bjarma, og ætlast auðsjá-
anlega til að kaupendumir fari
ekki yfir það.
pórður Sveinsson.
----o----
Áfengisverslun rikisins.
öll stjórnmálablöðin hér í bæn-
um, hafa orðið samtaka um að
víta hið hneikslanlega mikla
mannahald í áfengisverslun ríkis-
ins. Með vissu voni starfsmenn-
imir 19 og sumir á mjög háum
launum. Er það kunnugt, að jafn-
framt því sem Jón Magnússon
veitti Mogensen forstjórastöðuna
lét hann fylgja sterk meðmæli
með að sumir þessara starfs-
manna fengju þar atvinnu.
pessar hörðu aðfinslur hafa nú
borið þann árangur að stjórnin
hefir látið segja fimm starfs-
mönnum upp með mánaðarfyrir-
vara. Léttir það að vísu töluvert
á, en samt sem áður er starfs-
mannafjöldinn enn alt of mikill.
Áfengisverslunin er í tvennu
lagi hér í bænum. Annarsvegar
er aðalstofnunin undir Mogensen.
Af henni var létt þeim fimm
mönnum sem talað er um áður.
Hinsvegar var stofnuð búð, með
sérstökum háttlaunuðum for-
stjóra. í þeirri deildinni er enn
sama mannahald og áður.
þessi tvískifting er með öllu
óþörf. Sérstakur forstjóri fyrir
þessari búðarholu hlýtur að vera
alóþarfur. það getur ekki verið
að Mogensen sé það ofætlun að
hafa yfirumsjón með stofnuninni
allri. Og þarna þarf líka að fækka
mönnum. Eins og stendur munu
þeir vera sex. Helmingurinn hlýt-
ur að vera nægilegur.
----o---
Vífilsstaðamálið.
það hefir rifjast upp fyrir
mér við það umtal, sem orðið hef-
ir um Vífilsstaðahælið nú í sum-
ar og haust, ýmislegt frá veru
minni þar á skrifstofunni 1916—
1918. Fyrsta morguninn sem eg
var þar (og jafnan síðan) vakn-
aði eg við dynki og skelli, svo
undir tók í húsinu; kl. var rúm-
lega 7. Eg spurði stúlku, sem inn
kom með kaffi, hvað á gengi; hún
sagði að „læknirinn væri á stofu-
gangi“, og fór svo út. Eg fór að
drekka kaffið, moðvolgt skólp í
sprúngnum bolla, sem glerhúðin
var mjög dottin af, smurt hveiti-
brauð var með, en ekki þorði eg
að borða það, hélt það vera leyf-
ar, svo þurt og skorpið var það.
Seinna var mér sagt, að það væri
skorið niður kvöldinu áður, og því
svona þurt, en óskaðlegt. — —
Eftir nokki'a stund hættu dynk-
irnir, eg klæddi mig þá, og fór
ofan í borðstofuna, kl. var þá 8.
Allir gluggar voru galopnir, en
austanstormur úti, svo að hvast
var í stofunni. þarna voru sam-
ankomnir æðimargir sjúklingar —
syfjaðir og kuldalegir, sátu þeir
við borð og snæddu haframjöls-
graut, eða létust snæða. Eg sett-
ist við borð, sem mér var vísað
til, og ætlaði líka að borða graut-
inn, en ekki gat eg komið hon-
um niður, svo illa soðinn var
hann, og súr mjólkin út á. Eg fór
þá út úr stofunni, dragsúgur frá
opnum gluggum á ganginum og
borðstofunni skelti hurðinni á eft-
ir mér með miklu háreisti; eg
mætti Rögnvaldi Ólafssyni bygg-
ingameistara' á ganginum, og lét
í ljós við hann, að mér þætti hér
ganga mikið á. Hann sagði bros-
artdi, „að það væri af því að eg
gengi um eins og læknirinn"; nú
skyldi hann kenna mér að ganga
um eins og fólk. Svo opnaði hann
hurðina og lokaði henni aftur al-
veg hljóðlaust. Eg spurði Rögn-
vald Ólafsson þá, hvernig því
gæti verið varið, að læknirinn
gengi um hælið á morgnana eins
og þrumuveður með dunum og
dynkjum, fyrst það væri svona
auðvelt að ganga um svo minna
bæri á. það kvaðst hann ekki
vita, og slitum við svo talinu. Eg
fór inn á skrifstofuna, og rétt á
eftir kom læknirinn þar inn, 1
óhreinum, hvítum frakka, með
ógreitt hárið. Hann fór að sýna
mér hvað eg ætti að gera, og tók
bækurnar fram með vinstri hendi;
mér varð þá mjög starsýnt á
hvað hendurnar á honum voru
stórar og ljótar. Löngu nokkuð
seinna kom eg inn á móttökustofu
læknisins. Yfirhjúkrunarkonan
var þar ein og var að hreinsa og
raða mestu ósköpum af verkfær-
um og áhöldum, sem hælið á. Eg
lét í ljós við hana, að mig furð-
aði mjög á því, að Sigurði lækni
Magnússyni væri falið að fara
með öll þessi verkfæri, örfhent-
um með stórar og klunnalegar
hendur. Hún kvað það minstu
varða þó að yfirlæknirinn væri
óhandlaginn, hann hreyfði aldrei
verkfæri nema til að sýna lækn-
um og stórmennum, sem kæmu
að heimsækja hann; nú væri von
á Steingr. Matthíassyni lækni í
heimsókn, og því væri hún hér
að fægja og raða,- svo hvíldi alt
sig þar til læknirinn aftur ætti
von á gestum. það skyldi þá helst
vera tanntangirnar, því hánn
fengi sérstaka borgun fyrir að
draga út tönnur. Eg sagðist hafa
orðið vör við, að sjúklingum væri
óljúft að láta læknirinn taka úr
sér tenriur, og kvað hún það vera
að vonum. Frh.
Sigurborg Jónsdóttir.
„Lagst á náinn“. Morgunblað-
inu hefir orðið illa við greinina
í síðasta blaði Tímans með þessu
nafni. það bregður Tímanum um
hræsni. En hverjir eru þá mála-
vextir? — Tíminn dró enga dul
á það að ágreiningur var orðinn
við Pétur heitinn Jónsson um
ýms opinber mál. Tíminn leit svo
á að Pétur heitinn léti forn vin-
áttubönd við suma Morgunblaðs-
mennina vega of mikið og sner-
ist þá gegn honum jafnhliða
Morgunblaðsstefnunni, er hann
léði henni fylgi sitt. En í sam-
vinnumálunum varð aldrei neinn
ágreiningur milli Péturs heitins
og Tímans. Með ánægju endur-
kusu Tímamenn hann fyrir for-
mann Sambandsins, og hefðu
áfram gert. Og aldrei datt Tíma-
mönnum það í hug að bregða
Pétri Jónssyni um óhreinar hvat-
ir, undirferli eða óhreinlyndi. J>að
var æ tekið fram, bæði einslega
og opinberlega, í deilumálunum.
— Morgunblaðinu þótti vænt um
Laugaveg 20 B.
Sími 830.
Við sendum gegn eftirkröfu:
Ljósakrónur og allskonar hengi-
lainpa, borðlampa, straujárn, suðu-
plötur ýmsar stærðir o. fl.
Ennfremur allskonar efni til inn-
lagninga, svo sem: Pípur, vír,
slökkvara tengla og fleira.
Adeins fyrsta flokks vörur.
Grreið viðskifti.
þennan ágreining, reyndi að ala
á honum og hagnýta sér hann,
og þóttist vera mikill vinur for-
manns samvinnumanna. Og nú
kemur það í ljós hver heilindi
bjuggu undir. Nú sendir Morgun-
blaðsliðið B. Kr. kaupmann af
stað með laumupésann og þar er
Pétri heitnum brugðið um óhrein-
ar hvatir, jafnvel um föðurlands-
svik. J>ví að nú er annað gleymt
um Pétur Jónsson en það, að
hann var einn mesti frumherji
samvinnustefnunnar. Sem einn
maður munu samvinnumennimir
slá hring um minning hans og
mótmæla þessum svívirðilegu að-
dróttunum. Morgunblaðið og B.
Kr. hafa „lagst á náinn“, til þess
að svívirða minningu einhvers
grandvarasta stjórnmálamanns Is-
lendinga, fyrir þá sök eina að
hann var samvinnumaður.
„Samvinnufélögin“. Sérstakt
hefti af Tímariti samvinnufélag-
anna er nýkomið út, sjö arka bók,
og eru rækileg svör samvinnu-
manna gegn laumupésa Björns
Kristjánssonar, með því sameigin-
lega heiti, sem að ofan getur.
Páll bóndi Jónsson frá Einarsnesi
ritar aðalgreinina, svo rökvíslega
og merkilega að stórum ber af.
Hin aðalgreinin er eftir Jónas
J>orbergsson ritstjóra á Akureyri
og hefir hún áður birst í Degi.
En síðast í ritinu eru yfirlýsing-
ar frá endurskoðendum Sam-
bandsins og tveim merkum lög-
fræðingum, Ólafi Lárussyni pró-
fessor og Bimi P. Kalman hæsta-
léttarmálaflutningsmanni, sem
gera að engu saknæmustu að-
dróttanir Bjöms í laumupésan-
um. Með póstunum er nú rit þetta
sent öllum kaupendum Tímans til
sveita ókeypis. Verður þess og
nánar getið hér í blaðinu.
Eyjólfur J. Eyfells sýnir mál-
verk sín í húsi K. F. U. M. Hef-
ir hann unnið mikið í sumar og
er hinn sami hugþekki blær yfir
myndum hans eins og áður.
Vegna anna í prentsmiðjunni
kemur ekki nema hálft blað út af
Tímanum í þetta sinn. Verða
ýmsar greinar að bíða þessa
vegna.
Öllu réttu veitum vörn;
vit má þjóð ei rengja.
Aldrei muntu breiski Björn,
bændamálgagn sprengja.
Einaa* Jochumsson.
----o----
Orðabálkur.
bekkjaður, 1., með samanbarða
skýjabakka, hvem yfir öðrum,
yfir sjóndeildarhringnum: hann
er bekkjaður í norðri. Snæf.
beita (beitti, beitt): beita á
borði, beita lóð á borðstokki eða
skutþóftu um leið og henni er
rent í sjó. Snæf.
hleinagleiður, 1., sem er kátur
og mikið veður á. Hvalfjörður,
Kjós, Rvík, Ámess.
Ritstjóri:
Tryggvi J>órhallsson
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta.