Tíminn - 26.05.1923, Page 4
58
T í M I N N
gj^- Reiðtýgi, hnakkar (frá 40 kr.), söðlar, aktýgi (og alt tilh.),
hnakk- og söðulvirki (járnuð og ójárnuð), beislisstengur (járn, stál og
nýsilfur), taumalásar, hringjur allskonar, til söðla- og aktýgjasmíðis.
Allskonar ólar svo sem: ístaðsólar, töskuólar, svipuólar, burðarólar,
fótólar, beislistaumar, höfuðleður, hesthúsmúlar, gjarðir, reiðar, axla-
bönd (úr leðri), glímubelti o. fl. Þverbakstöskur, handtöskur, hnakk-
töskur, skólatöskur, verkfæratöskur. Seðlaveski fleiri teg. mjög ódýr,
merkjageymar. Leður fl. teg. svo sem: gult söðlaleður, svart aktýgja-
leður, sólaleður (danskir kjarnar), vatnsleður (danskt), sauðskinn fleiri
teg., svínaskinn, fordekkleður, þunt leður (með svínleðursgerð), litskinn
(Saffian), leðurlíking (bíladúkur) mjög góð tegund, bókbandsskinn fl.
teg. Plyds: grænt, rautt, brúnt, mislitt, miklu úr að velja og mjög
ódýrt, bindigarn 2 teg. (sóffafjaðrir og möbluborði væntanlegt mjög
bráðlega), stopp (Blaar) og „Krölhaar“, Iíessian fl. teg., dýnustrigi,
tjaldastrigi, óbleyjað ljereft, íborinn dúkur mjög sterkur, einnig dúka-
áburður (Bonevax), vélreimar (drifreimar), vélreimaleður (maskínuteygt).
Ennfremur: Keyri, mikið úrval og ódýr, silfurbúnar svipur fleiri teg.
rósettur á beisli. Naglamaskinur o. fl.
Aðgerðir fljótt og vel af hendi leystar.
Sérlega vandaðir erfiðisvagnar ásamt aktýgjum seljast mjög
ódýrt.
NB. Vagnarnir eru til sýnis hjá hr. kaupmanni Ámunda Árnasyni.
Pantanir afgreiddar fljótt og nákvæmlega um land alt.
Slmi 646. Söðlasiiðabúðiii Sieipnir. Simnefoi: „Sleipnir“
ZLTý"ja.r bækur.
Brandt: Ljósmóðurfræði. Þýtt hefir D. Sch. Thorsteinsson læknir.
406 bls. með 76 myndum. Verð ib. 10.00.
Sigurður Sigurðsson læknir: Hjálp 00 hjúkrun í slysum og
sjúkdómum. 150 bls. með 54 myndum. ib. 3.50.
Vald. V. Snævarr: Heigist þitt nafn. Söngvar andlegs efnis, 54
bls. Verð ób. 1.50, ib. 3.50 og 5.00.
Jón J. Aðils: íslenskt þjóðerni. 2. útgáfa. 272 bls. Verð ib. 10.00.
Collodi: Gosi. Æfintýri gerfipilts. Hallgr. Jónsson íslenskaði. 214
bls. með yfir 80 myndum. Verð ib. 4.00.
Ljósberinn 2. árg., kristilegt barnablað. 440 bls. Verð ib. 6.00.
Hafræna. Sjávarljóð og siglinga. Úrval bestu ljóða á íslenska tungu.
Safnað hefir Gruðm. Pinnbogason. 312 bls. Verð ib. 10.00.
Söngbók fyrir sunnudagaskóla. Verð ib. 1.25.
Myndabækur fyrir börn, á ýmsu verði, frá 0.25—1.20.
Bækurnar fást hjá bóksölum.
Bólsza.^rersl. Sig-f. ZE-yxxA-u.n.ciseoxxar
Austurstræti 18. — Reykjavík.
LUCANA.
Að gefnu tilefni hefir verksmiðjan, er býr til Lucana vindlinga,
Teofani & Co., beðið Landsverslunina að auglýsa eftirfarandi vottorð:
Enska efnarannsóknarstofan
Skýrsla um rannsóknir á sýnisliorni af
L u c a n a 6 6 vincllingum
framleiddum af
H.f. Teofani & Co.,
London.
Breska efnarannsóknarstofan vottar hér með, að ofangreindir vind-
lingar, ásamt sýnishornum, keyptum í smásölu, hafa verið rannsakaðir
rneð algerlega fullnægjandi árangri. Vindlingarnir eru búnir til úr
hreinum tóbakslaufum, og reyndust algerlega lausir við skaðleg eða
annarleg efni af nokkru tagi.
F. C. Carr,
skrifstofustjóri.
Orðsendíng
tíl kaupmanna og kaupfélaga.
Vér leyfum oss hérmeð að vekja athygli yðar á því, að vér höf-
um fyrirliggjandi töluverðar birgðir af islenskum niðursuðuvörum
frá niðursuðuverksmiðju vorri, svo sem:
Kjöt beinlaust í 1 kgr. dósum. Kæfu í 1 kgr. dósum,
----Í v, - - - Í V* -
og Piskbollur í 1 kgr. dósum.
Vörugæðin standast allan samanburð. Glerið svo vel að spyrja um
verð hjá oss áður en þér festið kaup á erlendri niðursuðu. Vörurnar
sendar út um land gegn eftirkröfu.
Styðjið innlenda framleiðslu.
Virðingarfyllst.
Sláturfélag Suðurlands.
nautgripafélögunum, þar sem þau
eru, hreppsbúnaðarfélögunum —
ef þau verða ekki lögð í eyði — og
svo frá viðkomandi hreppum og
sýslum.
Fallega væri það gert, ef erfið-
lega gengur að útvega fé til sýn-
inganna, að einstakir efnamenn
hlypu þá undir bagga og legðu
eitthvað af mörkum fram, svo að
sýningar þyrftu eigi að stranda
vegna fjárskorts. þetta gera efna-
menn iðulega erlendis, ekki síst í
Englandi. Og hér á landi hefir
þetta átt sér stað, og þótti vel af
sér vikið. — það bjargaði þeirri
sýningu í það sinn.
Treysti eg svo öllum góðum
mönnum að styðja og styrkja
þessi mál — nautgripafélögin og
sýningamar — til gagns og geng-
is, öldum og óbomum.
17. maí 1923.
Sigurður Sigurðsson
ráðunautur.
----0----
Alþingi.
Mentaskóli Norðurlands var bor-
inn fram af þorsteini Jónssyni. Nú
em 5 bekkir á Akureyri. Eftir frv.
hefðu þeir orðið 6, og neðribekk-
irnir þyngdir. Tilgangur frv. er að
skapa mótvægi gegn ofurvaldi
Rvíkur í uppeldismálum, minka
lærða skólann þar að sama skapi
og hinn stækkaði. Gera gáfuðum
og efnilegum mönnum kleift að
ganga skólaveginn, þótt fæddir séu
utan Rvíkur. Sveinn í Firði studdi
frv. í orði, en á móti gengu Vog-
Bjarni, Vigurklerkur og Jón þor-
láksson. Allur Framsóknarflokkur-
inn og fáeinir aðrir studdu þetta
mál, en það féll þó við aðra um-
ræðu með nálega jöfnum atkvæð-
um. Er þetta sennilega eitt hið
merkasta þjóðmál hér á landi,
einkum fyrir sveitamenninguna.
Hafa bændur í Noregi komið á fót
nokkmm slíkum skólum, sem
þykja fyrirtaks góðir til að halda
jafnvægi móti hinum eiginlegu
bæjarskólum. Litlu síðar kom frv.
Bjarna frá Vogi, um að gera
Mentaskólann aftur að óskiftum
latínuskóla, og slíta sambandinu
við Akureyri. þorsteinn Jónsson
var þar aítur til vamar. Kom hann
með einkunnarorð fyrir pólitík
Bjarna: „Island fyrir Reykjavík
og Reykjavík fyrir mig“. Er þessi
setning nú orðin landsfræg. Kær-
leiksheimilið studdi Bjarna og
mest þeir, sem í barndóm vom
gengnir, eins og Vigurklerkur. En
það féll samt, og mun sú leið von-
lítil. f frv. var engin ljósglæta
nema eitt, að nemendur skyldu
ekki læra dönsku í skólanum, held-
ur hafa numið hana áður. þetta er
gott ákvæði.
þriðju sennuna áttu þeir þor-
steinn og Bjarni út af Hallgrími
Kristinssyni, er Bjaroi fann
ástæðu til upp úr þurru að hall-
mæla þeim aðgerðum hins látna
forstjóra, að kaupa fyrir félögin
lóð, byggja hús fyrir aðalskrif-
stofu þeirra og láta efna þar til
skóla og bókasafns um samvinnu-
mál. Varð Bjarni heitur í öllum
þessum málum, og óð uppi með
illindi og klaufalegt orðbragð. En
þorsteinn tók í öll skiftin svo á
móti, að Bjarni varð að rifa segl-
in og sló undan. f umræðunum um
Sambandið sannaði þorsteinn að
Bjarni hafði (að líkindum óvilj-
andi þó) líkt árásinni á forstjóra
Sambandsins við nöðrubit.
Eiríkur Einarsson og þorl. Guð-
mundsson báru fram frv. um að
létta viðhaldi Flóabrautarinnar af
Árnesingum. Er það gamalt mál,
en hefir jafnan verið fast staðið
á móti. Nú gekk það fram, með
viðauka frá Pétri þórðarsyni um
að létta af Mýramönnum viðhaldi
akbrautar frá Borgarnesi að Há-
legum. Með þessari breytingu var
ákveðið aþ taka allar akbrautirn-
ar næsta ár af héruðunum. Koma
þar í fremstu röð Holtavegurinn
og vegurinn yfir Fagradal eystra.
Er þetta góð réttarbót. Sýslufé-
lögin hafa nóg með sýsluvegina,
og akbrautunum hefir víða verið
miður viðhaldið en skyldi, sökum
vanmáttar sýslufélaganna.
Að tilhlutun G. G. og J. J. var
veittur sérstakur styrkur til bíl-
ferða um suðurláglendið, 3000 kr.
Var þrásinnis tekið fram í umræð-
unum, að styrkurinn væri til
mannflutninga, einkum vor og
haust, þegar sveitamenn eiga er-
indi í kaupstað, og kaupafólk er
að koma og fara. þótti æskilegt að
í þessum áætlunarbílum yrðu sæt-
in hlutfallslega jafnódýr, eins og
nú er milli Rvíkur og Hafnarfjarð-
ar, þ. e. 10—11 kr. austur að
Garðsauka. 1 fyrrá og enn sem
komið er kostar farið þá leið 25
kr. — Af einhverjum misskilningi
hefir vegamálastjóri lagt til að
styrkurinn yrði veittur til vöru-
flutningabíla. það er þvert ofan í
tilgang þingsins, og myndi, ef
fram næði að ganga, skaða bænd-
ur á suðurláglendinu um tugi þús-
urida, því að mannflutningarnir
eru þeim dýrastir. Og að flytja
þungavöru á bílum austur yfir
heiði stríðir, eins og B. Kr. myndi
segja, bæði móti „kærleiks“- og
„náttúrulögmálinu“.
Jarðræktarlögin munu vera
merkasta og þýðingarmesta ný-
mæli þingsins. þau eru samin af
Sig. Sigurðssyni forseta Búnaðar-
félagsins, þeim hinum merka
manni, sem B. Kr. sagði um í þing-
ræðu í vetur, að væri „bolsevíki“
og ætti að vera frambjóðandi fyr-
ir J. J.(!) um næstu kosningar.
Hvað sem hæft kann að vera í
þessu með framboð Sigurðar, og
það mun því miður vera lítið, þá
er hitt víst, að jarðræktarlögin
eru stærsta sporið, sem íslenska
löggjöfin hefir stigið til að styðja
landbúnaðinn. En eins og fram
kemur í sjálfum lögunum, þarf
fasteignabankinn að koma sem
allra fyrst, til að styðja ræktun-
ina og nýbýlamyndunina. Stendur
þar aðeins á kreppu þeirri hér
innanlands, sem stafar af töpum
og uppgjöfum íslandsbanka, en
sem aftur er afleiðing af ógæti-
legri fjármálastjóm samkepnis-
manna. Ræktunarlögin gengu ná-
lega mótstöðulaust gegnum þing-
ið. „Kærleiksheimilið“ treysti sér
ekki, fyrir kosningarnar, að vinna
þeim grand. En af smáviðskiftum
þeirra bak við tjöldin, sem ekki
báru vott um mikla umhyggju fyr-
ir búnaðinum, verður ef til vill
síðar sagt. Hjörtur skrifaði í land-
búnaðarnefnd efri deildar undir
með fyrirvara, móti Guðm. í Ási
og Sig. í Ystafelli. En meður því
að maðurinn er mállaus í deild-
inni, gat hann ekki beitt sér í um-
ræðunum.
---o---
Á vlð og dreif.
„Utaníerðir ráðherra".
Forsœtisráðherra svaraði síðasta
daginn sem þingið sat, fyrirspurn J.
J. um kostnað við utanferðir ráð-
herra. Reyndist langdýrust ferð sem J.
M. hafði farið til Lundúna og Kaup-
mannahafnar vorið 1920. Kostaði 9
þús. kr. þar af hafði Jón eytt c. 3000
kr. á 12 dögum í Lundúnum. Helst
var sambærileg ferð Kl. J. í sumar og
haust til Norðurlanda og London.
Kostaði 3700 kr. Sig. Eggerz átti tvær
eða þrjár ferðir á 5000 kr., eða liðlega
það. þegar Jón sá þennan samanbc^rð,
varð hann bæði hryggur og reiður.
Átaldi S. E. fyrir að svara fyrirspurn
um svona gömul efni. Reyndi J. M.
þá að verja sparsemi sína (því að
liann er æðsti maður Sparnaðar-
bandalagsins), en cr fyrirspyrjandi
rakti sundur einstaka liði reiknings-
ins, þótti kárna gamanið. Hafði kost-
að 17 pund að koma Jóni frá Leith til
London, en það er ferfalt fargjald við
það, sem aðrir dauðlegir eyða fyrir
sæti á fyrsta farrými. 1200 kr. hafði
kostað að komast yfir Newcastle og
Bergen til Hafnar. J. J. hafði farið ná-
kvæmlega sömu leið, sama surparið,
og var þvi allvel kunnugur kostnaðin-
um. Loks hafði Jón eytt ca. 4000 kr. á
eitthvað mánuði i Khöfn. þegar hér
var komið varð Jón öskureiður, og
stilti ekki i hóf orðum. Slepti liann al-
veg reikningnum, en fór út í fjárauka-
lögin frá 1920—21 og greinar Tímans
um þau. Kom þar margt til greina:
Krossarnir, legátarnir, tildursveisl-
urnar, Vifilsstaðahúsið (175 þús. kr.
yfir eina fjölskyldu), Stjórnarráðs-
kvisturinn gamli o. in. fl. Taldi J. M.
að M. G. hefði verið besti fjármálaráð-
herra sem hugsanlegur væri 1920—21.
Og enginn annar gæti lyft landinu úr
þeirri fjárhagslegu niðurlægingu, sem
það væri komið í. þá var hlegið, og
þótti Jón fyndinn. J. J. tók til með-
ferðar hvert einstakt af hinum um-
ræddu axarsköftum, og dró fram hið
sanna. Jón yfirgaf þá enn fjárauka-
Lambskinn
Og
Tófuskinn
kaupir háu verði
Jónas H. Jónsson
Báruhúsinu.
lögin og 9000 kr. reikninginn og tók að
víta J. J. fyrir að liafa spurt um hluta-
eign dómenda og alþingismanna i ís-
landsbanka. Taldi þetta árás á helgi
réttarins, og eins hitt, að J. J. hafði
viljað fækka starfsmönnum i réttin-
um úr 6 niður í 3. þá var J. M. mint-
ur á, að vinir lians Jón þorl. og Otte-
sen liefðu i fyrra lánað úr Tímanum
þessa sparnaðarhugmynd um fækkun
í hæstarétti. Sefaðist Jón við það og
var slitið umræðum. En það mun
margra manna mál, að umræðurnar
sem spunnust út af íerðalögum ráð-
herra, séu líklegar til að verða lesn-
ar í þingtíðindunum.
Landsspitalinn.
Húsameistari landsins hefir i sam-
ráði við nokkra lækna gei’t teikning-
ar af landsspitala við Rvík. Staður
liefir verið ákveðinn i Skólavörðuholt-
inu, sunnan við Kennaraskólann.
Teikningar þessar voru um þingtím-
ann festar upp í Hlaðbúð, þar sem
fjárveitinganefnd neðri deildar hefir
fundi. þær eru fallegar og vel gerðar.
En heldur þóttu læknarnir hafa ver-
ið kröfufrekir um útbúnað fyrir
kenslu við háskólann og með húsrúm
lianda sérfræðislækningum. Bygging-
in öll mundi kosta um 3 miljónir, og
árlegur rekstrarkostnaður fram undir
% miljón. Hlyti mikill tekjuhalli að
verða á rekstrinum og þó dýrt fyrir
sjúklinga.Að hita slikt húsbákn mundi
hafa kostað um 70 þús. kr. með því
verði, sem var á kolum i vetur. í þessu
stórhýsi áttu þó ekki að geta legið
nema um 150—180 sjúklingar. Og mik-
ili meiri hluti þeirra í einskonar bað-
stofum, 6 og 12 manna herbergjum.
Satt að segja virðast sjúklingarnir
lielst eiga að vera þarna vegna lækn-
anna og læknanemanna. Við umræður
um málið í Ed. var þvi haldið fast
fram af hálfu Framsóknar, að nauð-
syn bæri til að byggja spitala og það
sem fyrst, en að hið mesta glapræði
væri að ætla að fylgja teikningu
þeirri, sem fyrir lá. Húsið sjálft og
rcksturskostnaður bæri landið ofur-
liða. Hversvegna eyða tugum þús-
unda til að hita upp slíka byggingu
með kolaoldi, þegar náttúra landsins
gæfi ár eftir ár og öld eftir öld meir
en nóg af sjóðandi vatni til að hita
upp stórbyggingu aðeins 2 km. frá
Rvík (við Laugarnar). Ef fara ætti í
málið með ofsa og yfirlæti , eins og
glögglega sæist merki um í tillögum
læknanna, myndum við verða spítala-
lausir um iangan tíma enn. Hér yrði
að byrja á byrjuninni. Reisa liús fyr-
ir svo sem y2 miljón inn við Laugar,
hita það með hveravatni, miða fyrstu
liygginguna eingöngu við þörf sjúkl-
inganna. Bæta svo við síðar eftir þvi
sem efni leyfðu. Úr fjarlægðinni má
hæta með því, að bifreiðar gangi, eins
og sporvagnar, á vissum tímum milli
Lækjartorgs og spítalans. Ef hnigið er
að þessu ráði, ætti að mega byrja á
I.andsspítalanum undir eins og búið er
með viðbótina við geðveikrahælið á
Kleppi, þ. e. eftir eitt ár.
----o-----
Kappreiöar fóru fram á annan
í hvítasunnu á skeiðvellinum við
Elliðaár. Hófst þar sú nýlunda,
sem mjög er tíðkuð ytra, að opin-
ber veðmál áttu sér stað um úr-
slitin. Verður sennilega ekki stað-
ið á móti því fjárhættuspili hér,
fremur en annarsstaðar, en hvergi
verður það talið til þjóðþrifa. En
annað verður nauðsynlega að
fylgjast að um slík veðmál: að
trygt eftirlit sé með að engin
brögð verði í tafli, og í annan stað
er sjálfsagt að skattleggja slíka
starfsemi.
Ritstjóri: Tryggri pórhallaaon.
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðja Aeta h/f.