Tíminn - 23.06.1923, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.06.1923, Blaðsíða 1
(2>|cí íbf’erx o«j afjrciðslui’nóuc Cimans cr 5i9ur9eir 5ri&ri?sfon, Sctmbanðsfyúsinu, Keytjací!. !2\f<3tei£>sía íimans cr i Sambanðsfyúsinu. ©pin ðaalega 9—\2 f. I) Stmi 496- Reykjayík 23. júní 1923 ffiea/ý ELEPHANT CIGARETTES Sjúffengar og haldar að reyhja Smásöluverð 50 <aur, ph, ‘Tést alstaðar. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ 4 4 4 HÖMAS BEAR & SGNS, LTD., L O N D O N . ^ <*> <£> -*iS> <«&*- Bestu ljáilorý-ixi i tieimi fást i Z§3iixg*]a.oltsstr, 1S, IRey!k:3a.-vilgz. Orðsending til kaupmanna og kaupfélaga. Vér leyfum oss hérmeð að vekja athygli yðar á því, að vér höf- um fyrirliggjandi töluverðar birgðir af islenskum niðursuðuvörum frá niðursuðuverksmiðju vorri, svo sem: Kjöt beinlaust í 1 kgr. dósum. Kœfu í 1 kgr. dósum, -------Í V* - - - Í V* - - og Fiskbollur í 1 kgr. dósum. Vörugæðin standast allan samanburð. Gerið svo vel að spyrja um verð hjá oss áður en þér festið kaup á erlendri niðursuðu. Vörurnar sendar út um land gegn eftirkröfu. Styðjið innlenda framleiðslu. Virðingarfyllst. Sláturfélag Suðurlands. IFloklcu.r. VII. ár. Kosningatríðin byrjuð. i. Mikilh þykjast þeir við þurfa andstæðingar Framsóknarflokks- ins. þeim nægir ekki lengur mál- gagnafjöldinn sem þeir áttu. Nú unga þeir út nýjum kosningapés- um einum á fætur öðrum. þeir halda að kosningamaturinn þeirra renni ljúflegar niður sé hann bor- inn fram nægilega smámulinn. Morgunblaðið, Vísir og Alþýðu- blaðið halda áfram sömu árásunum á stefnu Framsóknarflokksins og Tímann, hvert frá sínum bæjar- dyrum. Við hafa bæst þrjú kosn- ingaörverpin. Eitt frá Bjarna frá Vogi, Andvaka hans afturgengin, annað frá B. Kr. og heitir Stefna, og þriðji snepillinn frá Magnúsi Guðmundssyni. Og öllum skeytum er stefnt á Tímann. Er það sannreynt, að þessar pólitisku dægurflugur sem kvikna rétt fyrir kosningar, hafa engin áhrif. það kemur fyrir ekki þótt þeim sé dreift inn á hvert einasta heimili. Menn eru tortrygnir gagn- vart þessum óboðnu gestum. En þessar hamfarir andstæðinga Framsóknarflokksins og Tímans sýna tvent. 1 fyrra lagi það, að þeir eru slegnir miklum ótta. þeir óttast það, þeir telja það jafnvel víst sumir hverjir, að Framsóknar- flokurinn vinni mikinn sigur við kosningarnar og nái öruggum meirihluta. þessvegna grípa þeir til allra ráða: vekja upp gamla pólitiska blaðadrauga og magna nýja. Má frá vissu sjónarmiði virða mennina fyrir það, hvað þeir leggja mikið á sig, og hefði betra verið að þeir hefðu valið sér betri málstaðinn. í síðara lagi sýna þessar aðfar- ir andstæðinga Framsóknarflokks- ins og Tímans það svart á hvítu, að þó að andstaðan við Tímann sameini þá, þá eru þeir um alt ann- að margklofnir. Blaðamergðin þeirra segir best eftir sundrung- inni, sem ríkir á bæjunum þeim. Tímanum þykir vænt um að fá alla þessa andstæðinga „á háls- inn“ núna fyrir kosningarnar. það ber vott um þann sannleika, sem öll þjóði þarf að skilja: að kosn- ingarnar snúast um það, hvort stefna Framsóknarflokksins eigi að ná meirihluta við næstu kosn- ingar. Tíminn er andstæðingum sínum þakklátur fyrir, að þeir með ham- förum sínum hjálpa til að gera kjósendunum þennan sannleika augljósan. II. Sá er þetta skrifar er nýkominn heim úr þriggja vikna ferðalagi um sveitir landsins. Hann átti tal við fjölda merkra bænda um stjórnmálaástandið í landinu. Alstaðar kváðu við sömu radd- irnar hjá öllum gætnum og hugs- andi mönnum: Megn óánægj a með stjórnarfarið. En allra mest er óánægjan yfir fjármálastjóm und- anfarandi þinga og stjórnar, og nú síðast yfir því, að drepin var til- raun Framsóknarflokksins að byrja þann leik að tryggja hags- muni íslenska ríkisins í Islands- banka. Allir sáu hver er meginástæðan til þessa vandræðaástands. það er glundroðinn í þinginu. það er það, að enginn flokkur er þar nógu sterkur til að mynda meirihluta- stjórn og taka á sig fulla ábyrgð á stjórnarfarinu. Og allir sáu að eini flokkurinn sem getur náð því marki er Fram- sóknarflokkurinn. Hinir eru svo margklofnir, svo hugsjónalausir og alvörulitlir um ástandið, að h^ofki er von um að þeir nái auknu þing- fylgi, né að þeir bættu úr, þó að þeim ykist þingfylgi það er öllum vitanlegt að kraft- urinn til viðreisnar þjóðinni úr fjárhagsvandræðunum getur ekki komið annarsstaðar frá en frá sparsömustu og best mentu stétt landsins, bændastéttinni. Fram- sóknarflokkurinn, sem á allar ræt- ur sínar í þeirri stétt, er eini flokk- urinn sem vilja og mátt hefir til þess að reisa úr rústunum. Til þess að geta unnið þetta verk þarf Framsóknarflokkurinn að fá meirihluta. þeim meirihluta ætlar hann sér að ná við kosningarnar í haust. þeim meirihluta mun hann ná í haust vegna góðs málstaðar og heilbrigðrar stefnu, vegna þess að heill þjóðarinnar krefst þess, vegna þess að kjósendur landsins" eru orðnir nægilega upplýstir til að skilja það og loks vegna þess að hamfarir hinna margtvístruðu andstæðinga hjálpa til að opna augu kjósendanna. Kvenfólkið og bannlögin. Að tilhlutun Kvennréttindafé- lagsins var háður almennur kvennafundur hér í bænum nýlega. Stóð hann yfir í marga daga og fór ágætlega fram. Fjöldi kvenna utan af landi sótti fundinn og láta mjög vel yfii’ förinni. Fóru þar fram umræður um ýms af helstu áhugamálum kvenna og voru sam- þyktar tillögur. Fundarkonur voru á öðru hundraði, hvaðanæfa að af landinu. Fyrir beiðni kvenna utan af landi var bannmálið tekið til um- ræðu og ályktunar. Fóru fram rækilegar umræður um málið og að lokum bornar upp til samþyktar eftirfarandi tillögur: Fundurinn lítur svo á, að að- flutningsbannlög á áfengi efli sið- ferði landsmanna, bæti f járhaginn og séu til hinna mestu heilla fyrir þjóðina. Fundurinn telur því sjálfsagt að allar konur landsins vinni að slíku mannúðarmáli svo að við fáum bannlög sem fyrst aftur. Jafnframt lýsir funduriim því yfir, að hann telur sjálfsagt og rétt að hver þjóð fái að ráða sjálf siðferðis og heilbrigðismálum sín- um án nokkurrar íhlutunar frá öðrum þjóðum. Fundurinn skorar á allar konur landsins að vinna að því .af alefli að enginn verði kosinn á þing nema hreinn bannmaður. Tillögur þessai’ voru allar sam- þyktar í einu hljóði. Hafi þær heilar mælt! það munar um minna en það að íslenskar konur skipi sér einhuga undir merki þessa göfuga máls. Vissulega munu konur um alt land taka vel þessari kveðju og áskorun kvennafundarins. Einhuga er sú áskorun. En því málefni er vís sigur sem á konur 1. Sumir fáfróðir menn halda að það sé gott fyrir kjósendut og þingmenn að vera ekki í neinum flokki. Slíkir menn eru til. það eni alt af skoðanaleysingjar. Alt af óþroskaðir og nærri alt af mjög ósjálfstæðir menn. 2. Við kosningar og á þingum þarf meiri hluta til að vinna, ná kjöri, koma fram máli, eða hindra framgang skaðlegra mála. Dreifð- ii einstaklingar koma engu fram. þeir skapa enga sögu, af því þeir eru máttlausir. 3. Vel starfhæfur flokkur er eins og hópur íþróttamanna. Allir taka á eftir föstum reglum. Einstakl- ingarnir mynda allir saman stærri og sterkari veni flokkinn. Enginn knattspyrnuflokkur leikur vel, óskiftar að baki sér. því að vissu- lega fylgjum við og máli þessu margir karlmennimir. Víst má það teljast að á næsta kjörtímabili kemur tækifærið til að fylla skarðið í vör Skíða og rétta aftur þjóðarmetnað Islands um þetta mikilvæga mannúðar og sið- ferðismál. Og undir öllum kring- umstæðum er það nauðsynlegt að bannmehn skipi meirihluta á næsta þingi til þess að bæta eitthvað úr þeim hönnungum, sem nú ganga yfir um framkvæmd bindindis- löggjafarinnar, bæði af hálfu þings og löggjafarvalds. -----o---- nema þar sem samspil er gott. Engum bát er vel róið, nema þar sem allir eru samtaka. 4. Stjórnmálaflokkar geta því aðeins komið miklu til leiðar, að þeir séu samstæðir, að einstakling- arnir hlíti föstum leikreglum eins og góðir ræðarar eða knattspyrnu- menn. 5. Englendingar eru flestum þjóðum framar í samspili í íþrótt- um. þeir kimna líka betur öðnim þjóðum að vinna skipulega í fé- lagsmálum. íslendingar eru enn viðvaningar um skipulag og sam- heldni á báðum þessum sviðum. þess vegna eni bæði íþróttir og félagsframkvæmdir á lágu stigi. ** Ávarp. Islendingar! Um leið og „Sirius“, sem flutti mig frá íslandi, er nú að leggja á stað aftur til „Farsælda Fróns“, finn eg hjá mér sterka hvöt til þess að segja öllum mínum mörgu vin- um þar mínar alúðarfylstu þakkir fyrir alla góðvild, sem mér var auð- sýnd, á meðan eg í þe’tta sinn dvaldi á Islandi. Og Reglusystkini mín, sem héldu mér bæði fagnað- ar- og skilnaðarsamsæti, og gáfu mér til minningar hið stórfelda málverk „Frá Húsafelli“, og auk 20. blað þess dýrlegan menjagrip handa konunni minni, — já, til þeirra segi eg, eins heitt og eg get, þakkir bæði fyrir mína eigin hönd og fyr- ir hönd konunnar minnar. Kristianiu 1. júní 1923. David östlund. ----o---- „Nýja“ floklcsmyndunin. Hún barst út um landið fregn- in, að verið væri að mynda nýjan stjórnmálaflokk í Reykjavík.Morg- unblaðið og Lögrétta fluttu fregn- ina. Menn urðu forvitnir. Svo kom nánari fregn, sem sömu blöðin fluttu: Jón Magnús- son og Magnús Guðmundsson, báð- ir fyrverandi ráðheri’ar, voru stjórnendur þessa „nýja“ flokks. þá hættu menn að vera forvitn- ir. það var önnur tilfinning sem þá gerði vart við sig, a. m. k. í huga nálega allra bænda. Ætla þeir í raun og vei*u, þessir herrar, J. M. og M. G., að gerast svo djarfir að kalla aftur eftir völdum og ráðherradómi á Is- landi? spurðu menn. Sporin hræða. þessa „nýju“ flokksstjóra þekkjum við af verk- um þeirra öllum og fjármálastjórn. Forði því forsjónin að þeim verði aftur trúað fyrir mannaforráðum á íslandi. þannig snérist hún í hendi þessi nýja kosningabrella Morgunblaðs- mannanna. þeir sigla með pólit- isk lík í lestinni. þeir eiga ekki annað sem þeir geta tjaldað með, en þessi gömlu nöfn: J. M. og M. G. En þeir eru orðnir of vel þekt- ir meðal þjóðarinnar að miklu betra hefði verið veifa engu tré. þessi „nýja“ flokksmyndun, ut- an um þessa föllnu menn, hefir því þveröfugar afleiðingar við það sem til var ætlast. Afleiðingamar verða eingöngu þær, að menn fylkja sér miklu fastar en áður um Framsóknar- flokkinn og þá menn sem bjóða sig fram til þings af hans hálfu. Óttinn við það að fá þá aftur að stjórnarsætunum, J. M. og M. G., er runninn í merg og bein öllum þoma kjósenda. þar sem Morgunblaðið var svo grunnhyggið að auglýsa þá þann- ig fyrir alþjóð, að þeir væru átrún- aðargoð „nýja“ flokksins, hefir það hjálpað fjölmörgum kjósend- um til að átta sig á því, að eina ráðið til að tryggja sig gegn þess- um „nýju“ mönnum, J. M. og M. G., er að fylgja sér sem fastast undir merki Framsóknarflokksins. það er napurlegt, að eiga þá fortíð fyrir pólitiska foringja, að mótstöðumönnunum skuliekkivera gerður meiri greiði en sá að nefna þessa menn í sambandi við ,,nýja“ flokksmyndun. En það gamla gildir ávalt: að hver er sinnar gæfu smiður og að sjaldan lýgur almannarómur. -0- Taugaveikin í Vestmannaeyjum. Yfir 30 menn liggja í taugaveiki í Vestmannaeyjum, og hafa alt til þessi nýir sjúklingar bæst við. •----o---

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.