Tíminn - 23.06.1923, Qupperneq 4
74
T I M I N N
Kjöttunnur,
alt til beykisiðnar, smjörkvartél o. s. frv. frá stærstu beykissmiðju í
Danmörku.
L. Jacobsen,
Köbenhavn Valby.
Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra kaup-
manna.
Reiðtýgi, hnakkar (frá 40 kr.), söðlar, aktýgi (og alt tilh.),
hnakk- og söðulvirki (járnuð og ójárnuð), beislisstengur (járn, stál og
nýsilfur), taumalásar, hringjur allskonar, til söðla- og aktýgjasmíðis.
Allskonar ólar svo sem: ístaðsólar, töskuólar, svipuólar, búrðarólar,
fótólar, beislistaumar, höfuðleður, hesthúsmúlar, gjarðir, reiðar, axla-
bönd (úr leðri), glímubelti o. íi. Þverbakstöskur, handtöskur, hnakk-
töskur, skólatöskur, verkfæratöskur. Seðlaveski fleiri teg. mjög ódýr,
merkjageymar. Leður fl. teg. svo sem: gult söðlaleður, svart aktýgja-
leður, sólaleður (danskir kjarnar), vatnsleður (danskt), sauðskinn fleiri
teg., svínaskinn, fordekkleður, þunt leður (með svínleðursgerð), litskinn
(Saffian), leðurlíking (bíladúkur) mjög góð tegund, bókbandsskinn fl.
teg. Plyds: grænt, rautt, brúnt, mislitt, miklu úr að velja og mjög
ódýrt, bindigarn 2 teg. (sóffafjaðrir og möbluborði væntanlegt mjög
bráðlega), stopp (Blaar) og „Krölhaaru, Hessian fl. teg., dýnustrigi,
tjaldastrigi, óbleyjað ljereft, íborinn dúkur mjög sterkur, einnig dúka-
áburður (Bonevax), vélreimar (drifreimar), vélreimaleður (maskínuteygt).
Ennfremur: Keyri, mikið úrval og ódýr, silfurbúnar svipur fleiri teg.
rósettur á beisli. Naglamaskinur o. fl.
Aðgerðir fljótt og vel af hendi leystar.
Sérlega vandaðir erfiðisvagnar ásamt aktýgjum seljast mjög
ódýrt.
NB. Yagnarnir eru til sýnis hjá hr. kaupmanni Ámunda Árnasyni.
Pantanir afgreiddar fljótt og nákvæmlega um land alt.
Sími 646. Söðlasmíðabúðin Sleipnir. Símnefni: „Sleipnir“
Til kaupfélaga!
M.f. Smjörlíltisgerðin í Reykjavík er stofnuð í
þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega
jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og verð snertir.
Eflið íslenskan iðnað.
Biðjið um íslenska smjörlíkið.
benda á, að þeir menn eru venjulega
síst kristnir, sem bera öðrum á brýn
kristindómshatur. það er sértrúar-
klikuskapur, sem sæmir ekki þeim,
sem vill heita kristinn.
11. „Tíminn er óþjóðlegt blað“, er
næsta ákæran. Sennilega er sú ákæra
þó ekki fram komin fyrir samanburð
við málið á Mbl. eða auglýsingum
kaupmanna þar, heldur af því, að Tím-
inn hefir stundum hnýtt í Bjarna frá
Vogi nokkrum orðum. En Bangsi gá-
ir ekki að því, að það hefir oftast ver-
ið ai þjóðlegum ástæðum. þjóðin er
meira en Bjarni. Mun Bjarni sjálfur
fús á að kenna Bangsa það.
12. Klykkir Bangsi svo út lesturinn
með nokkrum óvöldum orðum um
tvöfalda skattinn og vandlætingar
Timans, og skorar á borgara og bænd-
ur til liðs við sig. Liðsbónin verður
þó til lítils, því þó að Bangsi beri sig
að dingla dindlinum, þó stuttur sé,
framan í kaupfélagsmenn, þá skín þó
í vígtennurnar, enda hefir hann í
þessari grein sinni glefsað svo í mörg
helstu áhuga- og velferðarmál sam-
vinnumanna, að þeir munu ekki í vafa
um, hvorum endanum á að trúa.
Y.
-----0----
Frá útlöndum.
Foch marskálkur hinn frægi yf-
irhershöfðingi Bandamannahersins
í styrjaldarlokin, hefir dvalið í
Póllandi undanfarið. Var honum
tekið þar með kostum og kynjum
og sæmdur pólskum marskálks-
titli. Erindið er það að rannsaka
pólska herinn. Enda er það kunn-
ugt heimi öllum, að fullkomið
bandalag er milli Frakka og Pól-
verja bæði til sóknar og vamar og
ætlast Frakkar til að Pólverjar
ægi þjóðverjum að austan og
hindri að Rússar geti komið þeim
til hjálpar.
— í síðastliðnum mánuði flutti
fjármálaráðherrann þýski merki-
lega ræðu í þinginu og skýrði frá
fjárhagsástæðum ríkisins. Lausa-
skuldir ríkisins höfðu aukist úr
1481 miljarði marka 1 6601 miljarð.
Aðalástæðan til þessarar gífur-
legu skuldaaukningar er hertaka
Ruhrhéraðsins. Hefði hún kostað
þýskaland nálega 7 biljónir marka.
pýska ríkið ver daglega ógurleg-
um fjárhæðum til styrktar mönn-
um í hinum hernumdu héröðum.
Auk þess hefir ríkið tapað geysi-
rniklu á rekstri járnbrautanna
vegna Ruhrtökunnar.
--- Áflog og ryskingar urðu á
þýska þinginu nýlega. Lenti sócíal-
istum saman við kommúnista.
Á.kvað þingið að banna einum
kommúnistanum þingsetu í 2 vik-
ur vegna framferðis hans. Daginn
eftir leitaðist hann við að þrengja
sér inn í þingsalinn, þrátt fyrir
bannið, og hafði til þess styrk
ýmissa flokksbræðra sinna. En þá
var kominn svo öflugur lögreglu-
líðsvörður um þingsalinn að til-
ræðið mistókst.
— Asquith heldur því fram að
England hafi eytt 150 miljónum
sterlingpunda í nýlendupólitík í
Mesópótamíu.
—- Á stríðsárunum höfðu Norð-
menn eitt þýsku herskipanna í
haldi í þrándheimi, og höfðu af
mikinn kostnað. Samdist svo milli
þýsku og norsku stjórnanna, að
þjóðverjar greiddu fyrir 800 þús.
kr. Eiga þjóðverjar að greiða 200
þús. kr. nú um misseraskiftin en
hafa tilkynt að þeir geti ekkert
greitt vegna fjárhagsörðugleika.
— Eigendur og framkvæmda-
stjórar hinna miklu Knippsverk-
smiðja þýsku voru dregnir fyrir
herrétt innrásarhersins franska,
ákærðir um samsæri gegn frönsku
stjórninni og tilraun til .að raska
friði í landinu. Aðaleigandinn var
dæmdur í 15 ára fangelsisvist og
100 miljóna marka sekt og fram-
kvæmdastjóramir flestir í 10—20
ára fangelsi og 50—100 miljóna
marka sektir. Mælist dómur þessi
afarilla fyrir á þýskalandi. Forseti
þýskalands sendi t. d. samúðar-
skeyti til hinna dómfeldu manna
og telur dóminn „eitt ljótasta
dæmið sem sagan geymi um kúg-
un og svívirðilegt ofbeldi“.
— Miehelsen, sá er var forsæt-
isráðherra Norðmanna þá er þeir
slitu sambandinu við Svía, hefir
haldið ræðu um bankamálaástand-
ið í Noregi. Fellir þunga dóma um
lánveitingar bankanna á stríðsár-
unum. Telur að einn bankinn hafi
tapað 420 milj. kr. Krefst þess að
álit rannsóknarnefndarinnar sé
birt og að opinber réttarrannsókn
fari fram eins og í Danmörku.
Hann hugsar ekki eins og Sigurð-
ui' H. Kvaran.
— Norðmenn herða altaf á kröf-
um sínum til Grænlands og jafn-
vel til Færeyja líka. Hafa borist
hingað bækur og flugrit um mál-
ið sém eru afarþungorðar í garð
Dana og flytja þær fregnir, að
Danir misbeiti valdi sínu mjög í
Grænlandi. Stórir fundir eru haldn-
ir í Noregi um málið og margir
helstu stjórnmálamannanna halda
ræður um það. Er það bert orðið
að úr þessu verður stórmál.
— Svíakonungur var á ferð ný-
lega í einni hinna þýsku borga sem
Frakkar hafa hernumið. flann ók
í bifreið með einum liðsforingja
sinna, en var þá stöðvaður. Voru
þeir félagar fluttir á aðalstöðvar
hersins, yfirheyrðir og hafðir í
gæslu um hríð. þykja þetta mikil
tíðindi í Svíþjóð.
— Fjárhagur Svíþjóðar er
betri en flestra eða allra ríkja
Norðurálfunnar. Er skýrsla ný-
komin út sem sýnir að ríkisskuld-
ir Svíþjóðar við útlönd eru nú 400
milj. kr. en voru fyrir stríðið 1200
milj. kr. Mun þetta vera alveg eins-
dæmi. Til samanburðar má geta
þess, að ríkisskuldir Danmerkur
við útlönd uxu árið 1922 úr 825
milj. kr. í 1100 milj. kr.
— Aðalblað jafnaðarmanna á
þýskalandi telur sig hafa fullar
sannanir fyrir því að í Hamborg
og nálægum landshlutum hafi
þjóðernissinnar mikinn her reiðu-
búinn, ógrynni skotfæra og mikið
fé, til þess að hefja byltingu.
—- þrír norskir flugTiienn hröp-
uðu nýlega og fórust allir.
— Etna, hið fornfræga eldfjall
á Sikiley, er farið að gjósa. Er gos-
ið svo mikið orðið, að það hefii
gert geysimikið tjón og tugir þús-
unda manna eru á flótta.
— Rétt fyrir stríðið höfðu þjóð-
verjar lokið við að leggja hina
miklu járnbraut til Bagdad, þann-
ig að óslitin jámbrautarleið var
milli Berlínar og Bagdad. Nú háfa
enskir og svissneskir auðmenn
keypt meginpartinn af syðrihluta
brautarinnar og eru Rotschildam-
ir aðalmennirnir í þeim félags-
skap. En Frakkar eru tortrygnir
út af kaupunum og ætla að þýskt
fé sé á bak við.
— Frakkar auka altaf herafla
sinn í Ruhrhéraðinu. Nýlega bættu
þeir við 20 þúsund hermönnum og
leggja jafnframt mesta kapp á að
auka námuframleiðsluna.
— Ókyrt er enn í Meksíkó eins
og oft áður. Hefir það komið fyr-
ir nokkrum sinnum undanfarið að
varpað hefir verið sprengikúlum á
hús Bandaríkjaborgara og tvíveg-
is hefir verið vaiqiað sprengikúlum
á hús ræðismanns Bandaríkjanna.
það hefir ekki tekist að finna til-
ræðismennina.
— Horfur eru taldar á því að
friðsamleg viðskifti hefjist aftur
milli Japana og Rússa. Japanar
hafa t. d. leyft erendreka Rússa
að setjast að í Tokíó.
— Eldur kom upp í einu stærsta
leikhúsinu í New York nýlega.
Stóð svo á, að verið var að halda
sýningu fyrir skólabörn. Afskap-
leg hræðsla greip bömin. Sum
tróðust undir og eldurinn barst
svo fljótt um húsið, að ekki varð
ráðið við neitt. Er talið að 42
börn hafi týnt lífi og 15 konur og
16 menn.
— Á friðarfundinum var þýska
borgin Danzig gerð að hálfsjálf-
stæðu ríki, þó þannig, að pólska
stjórnin fer með utanríkismálin og
ýms fleiri mál eru sameiginleg.
Ástæðan var sú, að engin pólsk
borg liggur vel við Eystrasalts-
versluninni, en vitanlega þurfti
pólska ríkið að eiga aðgang að sjó.
En sambúðin milli borgarinnar og
Póllands er ekki góð. þjóðverjar
ráða lögum og lofum í borginni og
Pólverjar kvarta undan því að
þjóðverjar sýni Pólverjum alls-
konar ójöfnuð, t. d. meini þeim
húsnæði í borginni o. fl. Pólsku
blöðin sum stinga upp á því að
Pólland reisi nýja borg, alpólska
við Eystrasalt, því að sambúðin
geti aldrei orðið góð við þjóðverj-
ana í Danzig.
— Lloyd George gat þess í ræðu
nýlega að engin ensk stjórn hefði
gert jafnmörg axarsköft á jafn-
stuttum tíma og núverandi stjórn.
Afskiftaleysi Englands af töku
Ruhrhéraðsins telur hann skömm
fyrir landið, segir að ekki sé ann-
að sýnna en England sé orðið háð
Frakklandi. Frjálslyndu flokkarn-
h’ ensku ættu að sameinast og ná
meirihluta. þeir einir væru færir
um að stjóma landinu.
Orðabálkur.
sagandi (-a, vantar flt.), kk.,
dálítill öldusúgur: það er dálítill
sagandi í vörinni. þorlákshöfn.
vekja upp steina, taka upp grjót.
Bolvík.
fráhrundinn, 1., sem gætir sín,
lætur ekki lokka sig. Bolvík.
fara á göngu, fara fótgangandi:
hann fór á göngu inn á ísafjörð.
Bolvík.
örsiga eða örsega, ób. 1., vera
steinuppgefinn: eg er alveg örsiga.
Mýrar (vestra).
Listasafn Einars Jónssonar verð
ui opnað fyrir almenning á morg-
un, en ýmsum gestum hefir verið
boðið að sjá það þessa dagana.
Hefir Einar unnið að því undan-
farin ár að koma skipulagi á safn-
ið og gera við skemdirnar sem urðu
við heimflutning listaverkanna.
Verður þessarar stórfenglegu og
dýrmætustu eignar sem þjóðin ís-
lenska hefir eignast í margar ald-
ir, getið nánar í næsta blaði.
Embættispróf við háskólann.
Lagaprófi hafa þessir lokið: Theó-
dór Líndal, sonur Björns Líndals
á Svalbarði I. eink. 137i/3 st.,
Bergur Jónsson yfirdómara Jens-
sonar I. eink. 133 st., Jón Stein-
grímsson bæjarfógeta Jónssonar
I. eink. 1262/3 st., Sigurður Jónas-
son II. eink. betri 105x/3 st., Bryn-
jólfur Árnason II. eink. betri
1032/3 st., og Guðbrandur ísberg
II. einlc. betri 82i/3 st. — Lækna-
prófi hafa lokið Jónas Sveinsson
prests Guðmundssonar í Árnesi
II. eink. betri 152V3 st., Páll Sig-
urðsson II. eink. betri 152 st. og
Guðmundur Guðmundsson II. eink.
821/3 st. — Enginn lýkur prófi í
guðfræði í þetta sinn.
Rannsóknarför. Pálmi Hannes-
son náttúrufræðingur hefir fengið
styrk úr Sáttmálasjóðinum danska
til að rannsaka gróður og dýralíf
á hálendi íslands og eldstöðvamar
í Ódáðahrauni frá síðasta vetri.
Mun hann í sumar ferðast um há-
lendið ásamt nokkrum dönskum fé-
lögum sínum, og er óskandi að
þeim félögum verði veitt sú hjálp
er þeir þarfnast, þar sem þeir
koma í bygðir.
Nýtt sönglag sendir Sigvaldi
Kaldalóns enn á markaðinn: Sjó-
mannasöngur, en vísurnar eru eft-
ir Jón S. Bergmann. Lagið er fjör-
ugt og hressandi.
J> AKKARÁV ARP.
- Innilegt þakklæti votta eg öllum
þeim, sem á einn eða annan hátt
veittu mér hjálp, eða auðsýndu
mér hluttekningu við fráfall eigin-
manns míns, Sigurðar Erlendsson-
ar, á síðastliðnum vetri. Vil eg þar
sérstaklega nefna bróður minn,
Sigurð þórðarson bónda á IJrriðaá,
sem hefir hjálpað mér með ráði og
dáð, og verið mín önnur hönd í hin-
um erfiðu kringumstæðum mínum.
Einnig Guðjón Sigurðsson,Straum-
firði, og Sigurjón Erlendsson Álft-
árósi, sem báðir hafa hjálpað mér
mikillega. Fjölda margir, bæði
sveitungar mínir og aðrir, hafa á
margan hátt reynt að létta mér
missinn,með mikilsverðri og marg-
háttaðri hjálp og hluttekningu. þó
eg ekki setji nöfn þeirra hér, minn-
ist eg þeirra með þakklæti.
Öllum þessum mönnum, bséði
nefndum og ónefridum, óska eg
allra blessunaráhrifa þeirrar yl-
ríku birtu, sem vitund þeirra
geymir, sem gert hafa óeigingjörn
kærleiksverk. Guðs blessunar bið
eg þeim öllum.
Lambastöðum 3. júní 1923.
Kristín þórðardóttir.
GirðingaYírnet
á 40 aura materinn
fást í Búnaðarfélagi Islands.
H.f. Eimskipafélag íslands.
E.s. ?Esjaé
2 hraðferðir kringum ísland fer
skipið í ágúst í sumar, sbr. 8. og
9. ferð áætlunarinnar, og stendur
hver ferð yfir 1 viku. Fyrri ferðin
frá Reykjavík 8. ágúst, til Reykja-
víkur 15. ágúst. Seinni ferðin frá
Reykjavík 18. ágúst, til Reykja-
víkur 25. ágúst. Fargjald áfram-
haldandi kringum land í þessum
hringferðum kostar:
á 1. farrými . . kr. 110.00
á 2. farrými . . — 75.00 •
Ekki skyldufæði, en farþegar
geta fengið allar eða einstakar
máltíðir eftir vild.
Komið verður við á 8 höfnum.
Með því að fara með.fyrri ferð-
inni, og verða eftir á einhverri af
viðkomuhöfnunum, geta farþegar
staðið við í 10 daga og komið svo
heim aftur með seinni ferðinni,
en þá kostar fargjaldið eins og
venjulega:
á 1. farrými . . kr. 126.00
á 2. farrými . . — 85.00
Landsbankinn hefir bannað úti-
bússtjórum sínum að sitja á al-
þingi. Tveir fráfarandi þingmanna
verða fyrir banni þessu: Eiríkur
Einarsson á Selfossi og Jón A.
Jónsson á tsafirði.
Haraldur Sigurðsson píanóleik-
ari og frú hans eru rétt ókomin
hingað til bæjarins. Ætla að halda
hljómleika í næstu viku.
Jón Helgason hefir lokið meist-
araprófi í norrænu við Hafnarhá-
skóla.
Íslandsglímuna vann Sigurður
Greipsson á Iþróttavellinum í gær.
Hann bar og sigur úr býtum í
fyrra.
Kaupgjaldsdeila mikil er hafin
hér í bænum milli útgerðarmanna
og sjómanna.
Stórstúkuþing stendur yfir hér
í bænum þessa dagana. Um 60
fulltrúar eiga þar sæti.
Páll Eggert Ólason hefir verið
kosinn háskólarektor næsta kenslu-
ár.
Ritstjóri: Tryggvi þórhalIaBoo.
Preatsmiðja Acta h/t.