Tíminn - 14.07.1923, Blaðsíða 4
86
T I M I N N
Frh. af 1. síðu.
frá í vetur, svo að hún komi fyrir
almennings sjónir. Geta menn nú
dæmt um frjálslyndi ritstjórans,
að neita að taka slíka grein; því að
„jólablaðs“-afsökunin er að engu
hafandi; eg hafði auðvitað enga
hugmynd um, að næsta blað ætti
að vera með sérstökum helgiblæ,
og mér stóð á sama, þó að hann
birti greinina ekki fyr en í fyrsta
vanalegu Bj amia-blaði.
Annars er það eftirtektarvert
að „S>jarmi“ atyrti mig hér um ár-
ið fyrir að vera fjarverandi (þ. e.
norður á Akureyri), þegar verið
væri að halda synodus. En komi eg
þar og segi nokkuð, þá virðist rit-
stjóranum blóðilla við, að eg skuli
vera þar, og atyrðir mig líka fyr-
ir það. pað er vist ekki laust við.
að eg sé honum þymir í auga,
hvar sem eg er, úr því að ekki hef-
ir enn tekist að bola mig burt úr
kirkjunni.
II.
Til lesenda Bjarma.
Leiðrétting.
Eg hefi gert mér það að reglu,
að svara ekki árásum „Bjarma“ á
mig né þau mál, sem eg berst fyr-
ir. Eg hefi einu sinni tekið fram
á prenti, hvers vegna eg geri það
ekki (sjá „Kirkjan og ódauðleika-
sannanirnar“ II. útgáfa, bls. 121).
Mér er líka sagt, að ritstjórinn noti
sér þetta, og minnist því oftar á
mig og æfinlega í líkum tilgangi.
Eg kaupi ekki blaðið, og sjaldnast
verður honum að senda mér það,
þó að hann hafi tekið mig þar til
bænar. En stundum kemur einhver
vina minna og sýnir mér það.
1 skýrslu hans um fyrirlestra
mína í vor (1922) tók eg eftir eitt-
hvað sjö röngum atriðum: mis-
hermum eða ósannindum. þá var
svo að skilja á sjálfu blaðinu, að
ekki mundi nú sem allra-sannast
frá skýrt, því að þá var ritstjór-
inn að bjóða sjálfum mér að leið-
rétta mishermin, sem kynnu að
hafa smeygt sér inn í grein hans.
Mér finst það standa þeim næst
að leiðrétta ranghermin, sem með
þau fer. Nú eru fyrirlestrarnir
komnir á prent, svo að nú sýnir
hann mér vonandi þann dreng-
skap, að laga það, sem hann sagði
rangt frá í vor.
En þó að eg hirði eigi að jafnaði
um, hvað „Bjarmi“ segir, þá geta
rangfærslurnar verið svo alvarleg-
ar eða jafnvel illgirnislegar, að
þeim verður að mótmæla. Ein slík
er í síðasta tbl. „Bjarma“. þar er
fullyrt, að eg hafi lýst yfir því á
safnaðarfundinum 7. f. m., að eg
„skammaðist mín fyrir að vera
lúterskur“.
það er einhver hinn herfilegasti
útúrsnúningur, sem eg hefi séð á
prenti. Mér finst það þurfa meira
en litla óvild til að geta farið svo
með orð andstæðinga sinna.
Auðvitað er lesendum blaðsins
heimilt að trúa í blindni, hverjum
þeim ranghermum og rangfærsl-
um, sem blaðið flytur, en þeir gera
það upp á sína eigin ábyrgð. Eg
finn mér ekki skylt að eltast við
að leiðrétta slíkt. Mér er kunnugt
um, að það, sem blaðið segir um
sálarrannsóknirnar og spíritism-
ann,er alt á þá bókina lært.pað tek-
ur allar sínar fregnir um það mál
úr erlendum blöðum,sem eru fjand
samleg hreyfingunni, einkum eftir
danska blaðinu „Politiken", sem
lengi hefir sýnt því máli megna
óvild og þó enn lengur fjandskap-
ast við kirkjuna, ekki síst
við sjálfa heimatrúboðsstefnuna
dönsku, sem ritstjóri „Bjarma“ er
fulltrúi fyrir. þeim, sem vilja trúa
ósannindunum um spíritismann, er
það vissulega heimilt. Og eg vil
einnig lofa þeim að lifa eftir sann-
færingu sinni, sem hafa trú á
gagnsemi ósannindanna, þó að ekki
sé nema í bili. Eg er sannfærður
um, að það er falstrú, og að frið-
þæging Krists nemur ekki burt
ábyrgðina fyrir slíkt athæfi. Fyr
eða síðar kemur það þeim í koll,
er svo breytir.
En af því að eg hygg, að lesend
Orðsending
tíl kaupmanna og kaupfélaga.
Vér leyfum oss hérmeð að vekja athygli yðar á því, að vér höf-
um fyrirliggjandi töluverðar birgðir af islenskum niðursuðuvörum
frá niðursuðuverksmiðju vorri, svo sem:
Kjöt beinlaust í 1 kgr. dósum. Kæfu í 1 kgr. dósum,
--------Í V, - - - í v, - -
og Fiskbollur í 1 kgr. dósum.
Vörugæðin standast allan samanburð. Gerið svo vel að spyrja um
verð hjá oss áður en þér festið kaup á erlendri niðursuðu. Vörurnar
sendar út um land gegn eftirkröfu.
Styðjið innlenda framleiðslu.
Virðingarfyllst.
Sláturfélag Suðuriands.
Ungling’askólinn
á Nömiugötu 5B starfar n. k. vetur. Námsgr.: Enska, danska, íslenska,
reikningur, landafræði, heilsufræði og bókfærsla. Kenslustundir 18 á
viku. Kenslugjald kr. 16 um mánuðinn. Aðeins kenna þektir og góðir
kennarar. Pétur Jakobsson.
Smásöluverð á tóbaki
má ekki vera hærra en hér segir:
"V incllar:
Rencurrel.................50 stk. kassi á kr. 26,00
Fiona.................... 50 — — - —- 25,50
Punch................... 50 — —---------- 25,30
La Valentina............. 50 — — - — 23,50
Vasco de Gama............ 50 — — - — 23,00
Yrurac Rat................50 — — - — 21,00
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0.
X.ia.n.cisversl'ULxa..
HAVHEMOLLEH
Kaupmannahöfn
mælir með sínu alviðurkenda rúgmjöli og hveiti.
Meiri vörugæði ófáanleg.
S. I. S. slciftir eixxg'ön.g’UL -við olsilsnJLr.
Seljum og mörgum öðrum íslenskum verslunum.
Kjöttunnur,
alt til beykisiðnar, smjörkvartél o. s. frv. frá stærstu beykissmiðju í
Danmörku.
L. Jacobsen,
Köbenhavn Valby.
Höfum i mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra kaup-
manna.
Fréttir,
ur „Bjarma" vilji gjaman vita hið
sanna um, hvað eg- sagði á fund-
inum, þá fer hér á eftir skýrsla
mín um það, staðfest af nokkrum
mætum mönnum:
1 ræðu minni á safnaðarfundin-
um 7. okt. fórust mér orð á þessa
leið:
„það, sem eg hefi aðallega á
móti kverkenslunni, er það, að
kverin halda fram trúarlærdóma-
kerfi hins lúterska rétttrúnaðar og
n
skyggja með því á kenning Krists.
Besti kostur nýju guðfræðinnar er
sá, að hún vill setja kenning Krists
ofar öllu öðru. Mig hefir oft furð-
að á því, að menn skuli svara, þeg-
ar þeir eru spurðir, hverrar trúar
þeir séu, að þeir séu lúterskir, en
ekki kristnir. þegar eg hefi ver-
ið að hugsa um þetta, liggur við,
að eg blygðist mín fyrir, að menn
skuli heldur vilja kenna sig við
Lúter en Krist. Eg vil umfram alt
vera kristinn“.
Vér undirritaðir, sem vorum á
fundinum, vottum, að hér er rétt
frá sagt. Hins minnumst vér aldrei
að hafa heyrt síra Harald Níelsson
segja, að hann skammaðist sín fyr-
ir að vera lúterskur.
Magnús Helgason,
skólastjóri.
Sigurður Gunnarsson,
præp. hon.
Steingrímur Ai’ason,
kennari.
Jakob Kristinsson.
Ásgeir Ásgeirsson,
cand. theol.
Jón þórarinsson,
fræðslumálastjóri.
Guðjón Guðjónsson,
kennari.
Síra Bjami Jónsson talaði næst-
ur á eftir mér, og hóf ræðu sína á
því, að í þessu atriði væri hann
mér sammála: hann teldi sig f/rst
og fremst vera kristinn, fremur en
lúterskan. Auðvitað datt hvorug-
um okkar í hug að neita því, að
við fylgdum hinni lútersku kirkju
fremur en nokkurri annari kirkiu-
deild. Eg hefi í einum fyrirlestra
minna, sem prentaðir eru, tekið ná-
kvæmlega fram afstöðu mína til
lútersku kirkjunnar (sjá „Kirkjan
og ódauðleikasannanirnar“ II. út-
gáfa, bls. 167).
Hér með fylgir vottorð um þetta
frá síra Bjarna Jónssyni:
Á safnaðarfundi 7. okt. þ. á.
sagði eg nteðal annars: „Að því
leyti er eg sammála því, sem Har-
aldur prófessor Níelsson sagði áð-
an, að eg tel mig fyrst og fremst
kristinn, og legg ávalt aða 1-
áherslunaáþá játningu“.
Reykjavík 10. nóv. 1922
Bjarni Jónsson.
Eg vona, að lesendur „Bjarma“
rengi eigi frásögn mína um það,
er eg sagði á fundinum, þar sem
hún er svo vel vottfest. Gerðabók
fundarins kemur og alveg heim við
frásögn mína, það sem hún nær.
En þá eru líka ummæli „Bjarma“
ósönn.
Annars skal eg taka það fram,
að eg mun hér eftir sem hingað
til halda því fram, sem eg veit
sannast og réttast, hvað sem menn
um mig segja eða dæma. Eg trúi
orðum Krists, að fyrir sérhvert
orð, er mennimir mæla, skulu þeir
á dómsdegi reikning lúka. Sá
dómsdagur rennur upp, er vér
flytjumst af þessum heimi. Og þá
mun reynast svikul Jesúítareglan,
sem ýmsir þröngsýnir þrætumenn
hafa fylgt og fylgja enn: að til-
gangurinn helgi meðalið.
Reykjavík 17. nóv. 1922.
Haraldur Níelsson.
----o-----
Slys. Vinnumaður frá Kirkjubæ
á Rangárvöllum druknaði nýlega í
Hólsá.
Ríkharður Jónsson myndhöggv-
ari er nýlega alfluttur aftur til
bæjarins.
Kjöttollurinn. Eitt af aðalblöð-
um Norðmanna, sem gefið er út í
Kristjaníu, „Tidens Tegn“, flytur
alveg sömu fregn um undirtektir
Norðmanna í kjöttollsmálinu, sem
Tíminn birti í síðasta blaði, eftir
norska bændablaðinu. — Eftir-
tektavert er það, að Morgunblaðið
og kosningapésar þess, hefir tekið
það ráð nú að þegja alveg um
kjöttollsmálið. Er það ástand
stundum kallað „að verða mát“.
En skárra er það'hjá öðru ven’a,
að þegja. Óvíst er samt að þetta
sé örugt batamerki.
Alþýðublaðið gerist digurt út af
prentvillu í síðasta blaði Tímans,
en þar stóð „skordýr" fyrir „skrið-
dýr“. En þá tekst ekki betur til hjá
Alþbl. en svo, að prentvilla er hjá
því sjálfu, í sjálfri greininni sem
skopast að prentvillu Tímans.
Stendur í Alþbl. að fræðsla Tímans
í dýrafræði sé mjög nauðsynleg
„framsæknum bænum“. Einkenni-
legar eru þær þessar bænir Alþbl.
því veitir sennilega ekki af þeim
fyrir kosningarnar.
Gamlar koparstungur. Bóka-
verslun Isafoldar hefir látið prenta
gamlar koparstungumyndir frá Is-
landi. Myndimar eru 12, flestai
gamalkunnugar. Frágangurinn er
alveg óvenjulega góður og mun
marga langa til að eignast bókina.
Kardínálinn. Hinn margumræddi
kardínáli, van Rossum, kom hing-
að um síðustu helgi og dvaldist í
bænum í þrjá daga. Hann útnefndi
Meulenberg, höfuðklerk katólskra
manna hér, til æðri tignar en áð-
ur, þess tilefnis að katólska kirkj-
an hér á landi hefir nú orðið sjálf-
stæð kirkjudeild óháð katólsku
kirkjunni í Danmörku. Aldrei fyr
hefir svo háttsettur maður innan
katólsku kirkjunnar komið hingað
til lands. Stendur þessi för hans
hingað og til Norðurlanda í sam-
bandi við það að katólslfa kirkjan
leggur mikla áherslu á að auka
fylgi sitt og vinnur töluvert á bæði
Sigurður Magnússon
læknir frá Patroksfirði tskur að sór
allskonar
tannlækningar og tannsmiði.
Til viðtals á Uppsölum 10V»—1S
og 4—6. Sími 1097.
á Norðurlöndum og þýskalandi. —
I Knútskirkjunni í Óðinsvéum á
Fjóni eru geymd bein Knúts lá-
varðar, en hann er haldinn dýrð-
lingur af katólskum mönnum.Hafa
bein hans verið höfð þar til sýn-
is hverjum sem sjá vildi undan-
farið. En svo bar við, er van Ross-
um kom þangað, alveg nýlega, að
honum var bannað af kirkjuvöld-
unum, að fá að sjá beinin. Eins og
vænta mátti hefir þetta vakið mik-
ið hneiksli í Danmörku.
Frá Færeyjum. I blaði sjálf-
stæðisflokksins í Færeyjum, sem
heitir Tingakrossur, birtist nýlega
mynd af venjulegri póstávísun.
Peningaupphæðin var, eins og
venja er, rituð með bókstöfum á
póstávísunina. En það var gert á
færeysku. þetta hefir hneikslað
svo mjög einhvem danskan póst-
mann þar í eyjunum, að hann hef-
ir strykað undir með feitu og rit-
að fyrir neðan: „Skal skrives paa
Dansk“, þ. e. „á að rita á dönsku“.
— Eins og vonlegt er eru sjálf-
stæðismennirnir í Færeyjum æfa-
reiðir yfir þessari kúgun. Ritar Jó-
hannes kóngsbóndi Patursson í
Kirkjubæ, flokksforingi sjálfstæð-
ismanna, harðorða mótmælagrein
gegn þessu.
Tímarit þ j óðræknisf élags ís-
lendinga í Vesturheimi, 4. ár, er
nýlega komið hingað. Efnið er
fjölbreytt og frágangur hinn
prýðilegasti, eins og áður. En of-
mikið er af bundna málinu. það á
ekki að pí'enta kvæði, nema þau
séu sérstaklega góð.
„Álafosshlaupið“ var þreytt síð-
astliðinn sunnudag. Sigurvegarinn
varð í þetta sinn Magnús Eiríks-
son frá Reynivöllum í Kjós. Næst-
ir honum urðu fyrverandi sigur-
vegararnir í hlaupinu: Guðjón
Júlíusson og þorkell Sigurðsson.
Magnús rann skeiðið á 65 mín. 40
sek., Guðjón á 65 mín. og 48 sek.
og þorkell á 66 mín. og 52 sek.
Vegalengdin er um það bil 18
kílómetrar.
Mikil síld er sögð á miðum
nyrðra og jafnvel inn á Fv^firði.
Grein út af kaupdeilu sjómanna
og útgerðarmanna verður að bíða
næsta blaðs.
Sextugsafmæli átti nýlega frú
Theódóra Thóroddsen. Færðu vinir
hennar henni 3000 kr. að gjöf.
Jón Árnason, framkvæmdastjóri
S. I. S., og síra Jakob Lárusson í
Holti undir Eyjafjöllum, komu í
gær landleiðina norðan af Akureyri
af aðalfundi Sambandsins. Aðrir
fundarmenn af Suðurlandi koma
með Esjunni um næstu helgi.
Ingólfur Bjarnason alþingis-
maður frá Fjósatungu lýsti því yf-,
ir á pólitiskum fundi á Breiðumýri
um síðustu helgi, að hanr. ~jefi aft-
ur kost á sér til þingmensku í Suð-
ur-þingeyj arsýslu.
Bifreiðarslys varð í Kömbum í
gær. Er sagt að eitthvað hafi bil-
að í stýri bifreiðarinnar, og gat
bifreiðarstjórinn þá ekki varist
slysinu. Bifreiðin var full af fólki
og meiddust sumir, en ekki mjög
hættulega.
Gengið. Sterlingpundið hefir enn
hækkað úr kr. 29,50 í 30 kr. ís-
lenskar.
Ritstjóri: Tryggvi þórhaUaBoa.
Laufási. Sími 91.
Prentemiðja Acta h/f.