Tíminn - 03.11.1923, Blaðsíða 4
148
T 1 M I N N
& Nikkelpeninga
erlenda
kaupi eg hæðsta verði. Símið til mín og semjið um söhrverðið, og eg
mun ávalt bjóða yður best.
Sendið svo peninga í pósti, og biðjið póstmann,1 samkv. lögum, að
telja þá, því þá er fyrirbygð mistalning.
Guðmundur Guðnason,
gullsmiður, Vallarstræti 4.
Sími 153.
Reykjavík.
Sparisjóður Árnessýslu.
Samkvæmt ályktun fundarins 6. þ. mán. eru innstæðueigendur
hér með boðaðir á fund, sem haldinn verður á Eyrarbakka, laugar-
daginn 24. nóv. n. k., kl. 12 á hádegi. Þar verður tekin endanleg
ákvörðun um framtíð sparisjóðsins.
í Árnes- og Rangárvallasýslum gefa hlutaðeigandi hreppstjórar
skýringu á tilhögun fundarins.
Eyrarbakka, 24. október 1923.
Sparisjóðsstjórnin.
Pyrsta hefti af ÆFINTÝRUM eftir Sigurjón Jónsson með
teikningum eftir Jóhannes S. Kjarval listmálara, er nýkomið til bók-
sala í afarvandaðri útgáfu. Styrkið ungan rithöfund og eignist einkenni-
lega bók.
Bókaverslun Arínbjarnar Sveinbjarnarsonar.
þingeyjarsýsla er ein af þeim
fáu héruðum, sem ekki hefir feng-
ið neina sérstaka mentastofnun.
Er það því undarlegra, þar sem í
því héraði munu vera fleiri mjög
lestrarfúsir menn, bæði karlar og
konur, en í nokkrum öðrum jafn-
f jölmennum hluta landsins. En fyr-
ir nokkrum árum var hafist handa
með samskot til héraðsskóia í
þingeyjarsýslu. Var því máli vel
tekið. Gáfu margir bændur rífleg-
ar upphæðir. Auk þess lofuðu sum
hreppsfélög í sýslunni nokkru
framlagi í stofnkostnað. Einn ung-
ur bóndi, Sigurgeir Friðriksson,
núverandi ráðsmaður Tímans, gaf
til skólabyggingar arf sinn, eitt-
hvað um 1000 krónur, áður en i ann
flutti úr sýslunni. Að lokum heim-
ilaði síðasta Alþingi 35000 krónur
í stofnkostnað skólans á næstu
fjárlögum.
Undanfarin ár hefir skóli þessi
starfað, undir erfiðum kringum-
stæðum að vísu, í fundahúsi Reyk-
dæla að Breiðumýri. En það hefir
aðeins verið bráðabirgðastöð.
Fundahúsið er of lítið fyrir skól-
ann, og ekki bygt til þeirra hluta.
1 köldum vetri myndi vist þar geta
verið óholl fyrir unglinga. þörf
sveitarinnar til samkomuhúss og
þörf skólans fara ekki saman. þar
að auki getur skólinn á Breiðumýri
enga grasnyt haft, sem þó er óhjá-
kvæmilegt. Kennarar við héraðs-
skólana verða af mörgum ástæðum
að geta haft dálítil bú á þeirri
jörð, sem skólinn starfar, eða mjög
nærri. Meðal annara hluta munar
það miklu viðvíkjandi rekstrar-
kostnaði skólanna.
Við skólann á Breiðumýri hefir
starfað um nokkur undanfarin ár
mjög álitlegur kennari, Amór Sig-
urjónsson frá Litlu-Laugum. Fyrir
mörgum árum vaknaði hjá honum
löngun til að vinna að stofnun því-
líks skóla í héraðinu. Hann hefir
búið sig ágætlega undir starf við
slíkan skóla með námi bæði utan-
lands og innan. Hann hefir hin síð-
ustu ár unnið fyrir skólamálið á
margan hátt, en mest þó með því
að leggja sjálfur hönd á plóginn
og reka sjálfur góðan skóla á
Breiðumýri, þótt flest ytri skil-
yrði hafi verið óhentug. Vegna
áhuga Amórs Sigurjónssonar og
þess trausts, er menn hafa fengið
á honum, hefir málinu verið þok-
að áfram í sitt núverandi horf.
Fjárstyrkur sá, er síðasta þing
veitti, myndi hafa verið torfengn-
ari, ef ýmsir einstakir þingmenn,
sem ókunnugir voru ástæðum í
þingeyj arsýslu, hefðu ekki látið
trúna á forgöngu Arnórs Sigur-
jónssonar verða að mikilvægri rök-
semd.
það má gera sér vonir um, eins
og málinu er nú komið, að þingey-
ingar fái nú á næsta ári mjög eft-
irsóknarverða uppeldisstofnun.Nóg
er til af efnilegum lærisveinum.
Sýslubúar hafa með samskotunum
og á annan hátt sýnt trú sína í
verkinu. Að lokum er líka fenginn
forgöngumaður, sem hefir sýnt í
verkinu, að honum má vel treysta.
Einstaka eldri menn eru hræddir
um, að hver skóli ali upp að öðr-
um þræði leti og vesalmensku.
Skólagengna fólkið verði laust við
heimilin, nenni síður að vinna o. s.
frv. Út frá þessum röksemdum
vilja þessir menn enga skóla, ekk-
ert gera fyrir unglingana, nema
halda þeim við orfið og eldstóna.
Vafalaust er þetta einhver hinn
háskalegasti misskilningur. það er
hægt að beygja en ekki brjóta eðli
mannsins. Víða á landinu, þar sem
alþýðumentun er lítil, og heimilin
andlega dauð, streymir unga fólk-
ið burtu á veturna, einkum til
Reykjavíkur og annara meiri hátt-
ar verstöðva. Mjög margt af þessu
fólki kemur aldrei aftur heim í
sveit sína. Fólkinu fækkar þar. Á
mörgum bæjum er ekkert fólk
nema hjónin, ung böm og nákom-
in gamalmenni. Fleirbýli myndast
ekki á jörðunum. Engin nýbýli eru
reist. Sveitin verður fátækari að
starfskröftum með hverju ári.
Alt öðra vísi er þessu farið í
þingeyjarsýslu og nokkrum öðram
héruðum, þar sem alþýðumentun
er í bestu lagi. Fólkið vill ekki fara
alfarið úr sveitinni. Á fjölda mörg-
um bæjum er margbýli, t. d. í Mý-
vatnssVeit lifa margar fjölskyldur
á afurðum sömu jarðarinnar. I
þingeyjarsýslu hafa nokkur ný-
býli verið reist hin síðustu ár, og
gefist vel. Myndu þó fleiri hafa
numið land, ef lánskjör hefðu ver-
ið heppileg og sniðin eftir þörfum
slíkra manna. þingeyjarsýsla er
þessvegna ekki eingöngu hérað,
þar sem er óvenjulega mikið af
bókfróðum og bókhneigðum mönn-
um. þar er líka í fólkinu trygð við
sveitina og trú á gildi sveitalífsins.
þar er hugsanlegt að sveitafólkinu
geti f jölgað me|S skynsamlegum að-
gerðum, og sveitamenningin náð
heilbrigðum þroska.
þingeyingar hafa sýnt það í verk
inu, að það er hægt að sameina and
lega menningu og trygð við sveit-
ina. Réttara væri ef til vill að
segja: Útstreymi unga fólksins úr
Smásöluverð á tóbaki
má ekki yera hærra en liér segir:
Smávindlar
Adonia ......... 10 stk. pakki kr. 1.50
Favorite........ 10 stk. pakki kr. 1.50
"V" imcLlar:
Tradition....... 100 stk. kassi kr. 25.30
E1 Garrardo..... 100 stk. kassi kr. 35.10
Liberty........ 100 stk. kassi kr. 36.80
King (Schmidts). 100 stk. kassi kr. 36.80
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn-
ingBkostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2%.
I_ia m.d.s'verslTJLXu-
Þjóðjarðírnar
Brekkugerði og Brekkugerðishús í
Fljótsdalshreppi eru lausar til
ábúðar í fardögum 1924. Umsækj-
endur snúi sér til
Sveíns Olafssonar,
Firði.
Tapast heflr dökkjarpur hestur,
síðast í septemb. Mark fjöður á
hægra eyra og klipt G. á vinstri
síðu. Hesturinn er stór og fax-
prúður. Þeir, sem verða hans var-
ir, eru vinsamlega beðnir að gera
aðvart
Guðna Guðmundssyni, Grett. 20 A
Sími 408. Reykjavík.
Líftryggingarfél. ANDVAKA h.f.
Kristianiu — Noregi
Allar venjulegar líftryggingar, barnatryggingar
og lífrentur.
ísla.xi.c3.sc5Leilc3-izx
Löggilt af Stjórnarráði Islands í desember 1919.
Ábyrgðarskjölin á íslensku! —Varnarþing í Reykjavík!
Iðgjöldin lögð inn i Landsbankann og íslenska sparisjóði.
Viðskifti öll ábyggileg, hagfeld ög refjalaus!
Dýrmætasta eignin er starfsþrek þitt og lífið sjálft. Trygðu það!
Gefðu barni þínu líftryggingu! Ef til vill verður það einasti arfurinn!
Líftrygging er fræðsluatriðí, en ekki hrossakaup! Leitaðu þér fræðslu!
Líftrygging er sparisjóðuri En sparisjóður er engin líftrygging!
Hygginn maður tryggir líf sitt! Heimskur lætur það vera!
Konur þurfa líftrygging eigi síður en karlar!
Með því tryggja þær sjálfstæði sitt!
10.000 króna líftrygging til sextugsaldurs kostar 25 ára gamlan mann
um 67 aura á dag!
5000 króna líftrygging kostar þrítugan mann tæpa 30 aura á dag.
Forstjóri: Helgi Valtýsson,
Pósthólf 533 — Reykjavík — Heima: Grundarstíg 15 — Sími 1250
A.Y. Þeir sem panta tryggingar skriflega sendi forstjóra umsókn og
láti getið aldurs sins.
Hin heimsfrægu
Barratt's baðlyf
eru best og ódfrust.
héraðinu er minna en úr flestum
öðrum sýslum, af því að andlega
lífið er fjörugra, af því að heimil-
in í sveitunum hafa orðið þroskuð-
um konum og körlum engu síður
eftirsóknarverð en nábýli við kvik-
myndahús og 'dansstaði kauptún-
anna.
Allir sem eitthvað þekkja til
hinna miklu afburða Dana í rækt-
un landsins, vita, að sú framför er
að langmestu leyti bygð á tvennu:
Heppilegum, ódýram sveitaskólum
fyrir unga fólkið, og þroskaðri sam
vinnu um vöruvöndun og afurða-
sölu meðal fullorðna fólksins. í
engu landi í Evrópu er sveitalífið
jafnblómlegt og í Danmörku. En sú
blómgun á sérstaklega rót sína að
rekja til heppilegra uppeldisstofn-
ana fyrir sveitafólkið. Hin efnalega
framför er bygð á andlegri fram-
för, ekki á heimsku eða vanþekk-
ingu.
Áhugi þingeyinga á héraðsskóla-
málinu er sprottinn af þeirri trú,
að einmitt slík skólastofnun verði
liður, og hann stór, í sjálfbjargar-
viðleitni sveitanna. þeir vilja koma
upp skóla, þar sem unglingarnir
geta fengið bóklega og verklega
þekkingu, þar sem þeir geta búið
sig undir lífsbaráttuna, eins og hún
er á hverjum stað. Héráðsskólarn-
ir eru sprotnir upp af þörf fólks-
ins. þeir geta lagað sig eftir kring-
umstæðunum. það er lítill vafi á,
að þeir verða meir og meir verk-
legir skólar. þingeyingar hafa mik-
inn hug á að hafa fljótlega sér-
staka deild fyrir húsmæður við
sinn skóla. Jafnhliða því gæti kom-
ið verkleg kensla fyrir karlmenn-
ina. Bændur framtíðarinnar þurfa
að búa sig undir nýlendumannslíf-
ið, að vera í einu bóndi, læknir,
prestur og ýmisíegt fleira, eins og
Klettafjallaskáldið lýsir sjálfum
sér.
Sumum finst, að af því erfitt sé
í ári nú, þá megi ekki hugsa um
slíka skólastofnun. Ekki litu Finn-
lendingar þannig á. þegar Rússa-
stjórn kúgaði Finna sem grimmi-
legast, sögðu þeirra bestu menn:
Okkar eina viðreisn liggur í al-
þýðumentuninni. Með því einu að
þroska hvern einstakling líkamlega
og andlega, getum við haldið við
þjóðinni. Einmitt á mestu hörm-
ungartímanum komu Finnar fót-
um undir eitt hið fullkomnasta
uppeldiskerfi, sem til er. þess
vegna lifði þjóðin og var sterk,
þrátt fyrir ytri hörmungar. Efna-
legar framfarir Finnlands eru
ávöxtur af framsýni þessara braut-
ryðjenda. Sama mun raunin verða
hér.
Menn vita nú nokkum veginn
hvernig á að stofna heppilega hér-
aðsskóla. þeir verða að vera reist-
ir með samtökum manna og sam-
vinnu í héraðinu. Landið verður að
leggja fram nokkurn hluta stofn-
fjárins. Kennararnir, sem við skól-
ann starfa, verða að reka dálítil bú
sjálfir, nægilega stór til að vinna
að með heimilisfólki sínu á sumr-
in, en ekki of stór til að gleypa ekki
allan áhugann. Búskapur rekinn
fyrir reikning skólans og hans
vegna myndi vera fjarstæða. I
skólanum væru karlar og konur
einn eða tvo vetur. Kenslan væri
bæði bókleg og verkleg, og leitast
við að undirbúa hina ungu kynslóð
karla og konur fyrir sveitalífið,
eins og skilyrðin skapa það hér á
landi. Mikla áherslu þarf að leggja
Tapast hefir dökkjarpur hestur,
aljárnaður, mark: tvær fjaðrir aft-
an hægra og tvístýft aftan vinstra.
Sá sem kynni að verða var við
hest þennan, er beðinn að gera að-
vart Júlíusi Eiríkssyni, Miðkoti á
Miðnesi.
á að vinna móti yfirlæti og tildri
og hégómaprjáli, með því að láta
skólann vera áframhald af þrosk-
uðu, óbrotnu heimilislífi. þessir
hafa líka orWB' ávextirnir af starfi
elsta og helsta héraðsskólans hér
á landi. Sr. Sigtryggur Guðlaugs-
son og Björn Guðmundsson á Núpi
hafa mótað í besta skilningi marga
tugi af ungmennunum á Vestfjörð-
um.
Einstakir menn segja: Við get-
um ekki bygt þetta eina hús. Við
erum þess ekki megnugir. En
þetta eina hús kostar ekki meira
en einn dálaglegur vélbátur, sem
ekki ber sig. þjóðin hefir haft efni
á að kaupa marga slíka báta. Samt
á að telja mönnum trú um, að for-
eldrar í heilli sýslu geti ekki með
góðvild og samvinnu komið upp
dálitlu húsi vegna bama sinna.
Húsi sem á að geta staðið áratug-
um og öldum saman og mótað eft-
ir þörfum og kröfum hverrar ald-
ar fjölmargar komandi kynslóðir.
í Suður-þingeyjarsýslu er fyrsta
heimkynni samvinnustefnunnar
hér á landi. I því héraði stendur
samvinnustarfsemin á elstum og
víðtækustum grundvelli. Nú í sum-
ar afréðu bændumir í þingeyjar-
sýslu að koma upp samvinnufyrir-
tæki til að létta undir með ullariðn-
aði heimilanna, hinu fyrsta í sinni
röð. Og nú í vetur liggur fyrir
þessum sömu mönnum að undir-
búa þetta nýja samvinnufyrirtæki,
sem hér er um að ræða: Héraðs-
skólann. þar leggja mörg af heim-
ilum sýslunnar á sig litla kvöð til
þess að skapa með sameiginlegu
átaki heimili fyrir unglingana í hér
aðinu, þá sem vilja þroskast heima,
undir góðum en ódýrum skilyrð-
um, til að geta betur neytt kraft-
anna við að rækta og byggja
landið. J. J.
■•uw wQni' i ne> 'ww
Strandarkirkja varð af stórfé í
þessari viku. Ýmsir af helstu vin-
um Morgunblaðsins höfðu heitið
að gefa henni mikið fé ef þeir féllu
við kosningarnar, annarhvor eða
báðir, atvinnumálaráðherra og rit-
stjóri Tímans. Verst ef það dregur
þann dilk á eftir sér að menn hætta
að heita á Strandarkirkju þegai’
mikið liggur við.
^ 'jl ’ "•
Einar Jónsson myndhöggvari er
staddur í Kaupmannahöfn um
þessar mundir. Er verið að ljúka
við að eirsteypa standmynd hans
af Ingólfi Arnarsyni. Verður mynd
in send áleiðis hingað innan fárra
daga. Er og langt komið að ganga
frá reitnum á Arnarhóli, þar sem
myndin á að standa.
þrír menn hafa horfið hér í bæn-
um á stuttum tíma. Er rannsókn
hafin út af einu hvarfinu.
Ritstjóri: Tryggvi þórhaii'ísnai.
PmteaifijB Acfa h/L
I