Tíminn - 05.04.1924, Qupperneq 1
©jaíbfeti
og afgteiðsIur"aÖur Cimans er
Sigurgeir ^ri&rtfsfon,
Sambanöstjúsinu, HeYffaoíf.
^fjgreibsía
íímans er í Sambanösljústnu.
0pin öaglega 9—\2 f. b-
Sími ^96.
VIII. ár.
Heykjavík 5. aprfl 1924
14. bl&ö
Haftainálið.
Um ekkert eru dugandi menn í
sveitunum nú eins sammála og
það, að hindra beri um nokkur ár
innflutning allrar erlendrar vöru,
sem án verður komist. Tilgangur-
inn að rétta við fjárhag einstakl-
inganna, en þar með fjárhag þjóð-
arinnar og gengið.
Með frumvarpi Halldórs Stef-
ánssonar og Péturs þórðarsonar
fylgdu á veg einlægar óskir sam-
vinnumanna um alt land. En í þing-
inu varð brátt vart þungrar mót-
stöðu frá kaupmannaflokknum.
Málið lá vikum saman hjá fjár-
hagsnefnd Nd. Jón þorl. var form.
áður en hann varð ráðherra, og
hafði mörgu öðru að sinna. En í
hjáverkum sínum bjó hann til með
stuðningi samherja sinna líklega
bæði utan þings og innan, frv. um
20% verðtoll á flestallar innflutt-
ar vörur nema matvöru, bygging-
arefni og hinar helstu efnisvörur
til atvinnureksturs.
Fi*v. þessu fylgdi allur íhalds-
flokkurinn og að því er séð verður
allur sjálfstæðisflokkurinn. Fram-
sóknarmenn voru yfirleitt mót-
fallnir frv., en höfðu vitanlega
ekki bolmagn til að hindra fram-
gang þess. það eina, sem þeir
hefðu getað gert, var að neita um
afbrigði frá þingsköpunum og
tefja málið nokkra daga. En þá
hefðu kaupmenn en ekki landið
fengið mörg hundruð þúsund
króna tekjur af tollskyldum vör-
um, sem voru á leið til landsins.
Við umræðurnar um þetta mál
urðu samt sviftingar allmiklar
milli íhaldsmanna og Framsóknar
í báðum deildum. Skýrðist þá af-
staða flokkanna. Jón þorl. og M.
Guðm. töldu sig vilja hefta inn-
flutning, en ekki meira en tekjur
ríkissjóðs leyfðu. Samkvæmt því
gengur íhaldsflokkurinn inn á að
flytja inn 4—5 miljóna virði af
vöru, sem hægt er að komast af
án, til að fá eina miljón í ríkissjóð.
Framsóknarmenn sögðu aftur á
móti: Fyrst bönnum við alt sem
unt er, til að minka straum verð-
mætis úr landi. Síðan hjálpum við
stjórninni til að ná nauðsynlegum
tekjum. þá verður efnahagur ein-
staklinganna betri og af meiru að
taka. En þetta vildu M. G. og J.
þorl. ekki tala um. þeir vildu ber-
sýnilega ekki svifta kaupmanna-
stéttina atvinnu við verslun með
óþarfa voru, og jafnframt ná pen-
ingum í kassann, við óhófsverslun
einstaklinganna.
Framsóknarmenn þrautspurðu
stjórnina um aðstöðu hennar til
haftanna. Svör voru loðin, en helst
það, að þeir vildu engin lög um
þetta efni, heldur ætlaði M. G. að
koma með reglugerð um það, sem
henta þætti. Jón Magnússon leiddi
að mestu hjá sér þessar umræður,
með því að víkjast undan að skýra
aðstöðu sína.
Tollurinn er nú kominn á. Kaup-
menn eru sem óðast að hækka vör-
ur sínar og innbyrða óhemjugróða
á vörubirgðum sínum. Dýrtíðin
vex og bágindi almennings. Frum-
varp Halldórs og Péturs verður
vafalaust drepið. Kaupmenn fá
verðhækkun á byrgðum, fá tæki-
færi til að versla með óþarfa vör-
ur áfram og græða á þeim. þrátt
fyrir það að sá innflutningur fell-
ir krónuna og eykur bágindi al-
mennings. Að lokum koma svo ein-
hver þau höft, sem verslunarstétt-
in getur látið sér líka, höft sem
henta sérhagsmunum stéttarinn-
ar. Engan þarf að furða þó að
þessi stétt leggi ríflega fram pen-
inga til að gefa út blöð og koma á
þing mönnum, sem eru hlýðnir
húsbændum sínum. J. J.
——0------
Stóra máiið.
Skamt er að minnast stóru orð-
anna kosningablaðanna kaup-
manna og frambjóðenda fhaldsins
við kosningarnar.
Um eitt mál voru raddirnar allra
háværastar. Eitt mál var öllum
öðrum fremur kosningamálið af
þessara aðilja hálfu.
því var barið inn í þjóðina í
blöðum og á fundum, hversu geysi-
leg hætta henni stæði af einkasöl-
um ríkisins: tóbakseinkasölunni og
steinolíueinkasölunni sérstaklega.
Framsóknaimenn voru kallaðir
Bolchewickar og öðrum líkum nöfn
um, af því að þeir vildu halda þess-
um stofnunum við líði — fyrst um
sinn a. m. k. — til þess að afla rík-
inu tekna og til þess að verja land-
ið okurklóm erlends gróðahrings.
Frambjóðendur kaupmannaflokks
ins væru hinir einu réttlátu í land-
inu: „Frjálsir menn í frjálsu
landi“! var viðkvæðið 0. s. frv.
þetta vai' stóra málið, helsta
kosningamál kaupmannamálgagn-
anna og íhaldsframbjóðendanna.
Og þegar íhaldsstjórnin var
mynduð á dögunum, þá var gleði í
kaupmannaherbúðunum um alt
land. Fyrsta sigursporið átti að
vera afnáin tóbakseinkasölunnar.
Frumvarp um afnám hennar var
borið frarn í neðri deild og í’ætt í
þessari viku. Og það ui'ðu skjót
og röskleg afdrif málsins þegar á
fyrsta fundi.
Einn af ráðherrum fhaldsins,
M. G., mælti harðlega á móti af-
námi tóbakseinkasölunnar, og
verður honum ekki hverflyndi um
nasir núið í þessu efni, því að hann
ei' faðir tóbakseinkasölunnar.
Annar ráðherra íhaldsins, J.
þorl., átrúnaðargoð kaupmanna í
Reykjavík og efstur á kosninga-
lista þeirra, var mjög loðinn í mál-
inu, andvígur því a. m. k., eins og
það var borið fram.
þriðji höfuðpaur i íhaldsins,
Björn Líndal, átrúnaðargoð kaup-
manna á Akureyri, var á móti af-
námi einkasölunnar eins og sakir
stæðu nú.
Og niðurstaðan var sú, að þótt
hvorugur hinna síðarnefndu
greiddi atkvæði gegn málinu í
þetta sinn, þá var það steindrepið
þegar við þessa fyrstu umræðu.
Hefðu þeir nokkurn pólitiskan
metnað íhaldsmenn, þá hefðu þeir
látið stjórn sína þegar leggja nið-
ur völd við slík tíðindi, er aðal-
kosningamáli þeirra voru gerð slík
skil þegar við fyrstu umræðu.
En þessi úrslit, og þessi fram-
koma íhaldsforkólfanna er næsta
lærdómsrík. Fyrir kjósendur lands-
ins er þetta næsta eftirtektavert.
þegar á Alþing kemur, reynist
það svo, að alt skrafið um þetta
stóra mál, þetta mikla kosninga-
mál, um það, hvort hér ættu að
vera frjálsir menn í frjálsu landi,
það hefir ekkert verið annað en
blekking.
í þeir eru þá sömu Bolchewick-
arnir íhaldsmennirnir eins og
Framsóknarmennirnir.
það er óhætt að segja þeim það
íhaldsmönnum, að þessi leikur er
hættulegur leikui'.
‘ það er hættulegur leikur að leika
slíkan skrípaleik frammi fyrir al-
þjóð, að gera slíkt mál að hinu
stærsta kosningamáli og svíkja
það svo gjörsamlega þegar þeir
hafa tekið við stjórn og eiga að
fara að beita völdunum.
það er hættulegur leikur að telja
þjóðinni fyrst trú um, að eitthvert
mál sé hið alvarlegasta mál, sem
afkoma hennar sé að miklu leyti
undir komin hvernig ráðið er til
lykta, og svíkjast svo frá öllu sam-
an þegar á hólminn er komið.
Flokkur sem staðinn er að slík-
um blekkmgum við þjóðina, flokk-
ur sem staðinn er að því að hafa
beitt svo stórkostlega flárri bai-
dagaaðferð — slíkui' flokkur hlýt-
ur að missa alt traust þjóðarinn-
ar.
----o----
Kaupmannafloickur
di'epur sína eig’in stjórnar-
skrárbreyting'u.
Lesendur Tímans hafa fengið
greinilegar fréttir af gangi þess
máls í þinginu, þar til leið að enda-
lokum. En þau urðu sorgleg. Mbl.-
flokkurinn vildi ekki breyta stjórn-
arskránni og koma á þinghaldi
annaðhvort ár. Allir tilburðir í
breytingaáttina hafa verið láta-
læti. Alt sýnist benda á, að Mbl.-
flokkurinn hafi haft samtök um að
drepa stjórnarskrána, til að forð-
ast nýjar kosningar nú í vor.
Valdagirnin hefir leitt stjórnar-
flokkinn á glapstigu.
Fyrstu frv. í Ed. voru breyting-
ar á stjórnarskránni. Að annari
breytingunni stóðu allir Framsókn-
armenn í deildinni. þeirra tillaga
var: þing annaðhvort ár. Tveir
ráðherrar. Flokkurinn hafði síðast-
liðið ár lagt áherslu á að ráðherr-
ar væru ekki nema tveir. Sú venja
var viðurkend.
Jón Magnússon bar fram annað
frumvarp: þing annaðhvort ár.
Einn ráðherra og landritari. Kjör-
tímabil 6 og 12 ár. Ætlaði að lengja
umboð sitt og annara landkjör-
inna um nokkur ár, án þess þjóð-
in væri að spurð.
Framsóknarmenn bentu á, að
breytingin um að minka áhrif
kjósenda á þingið og þingsins á
stjórnina væri afturför og hættu-
leg fyrir stjórnarfar landsins. Mót-
staða væri mikil gegn þessum
breytingum, bæði utan þings og
innan. Enginn sparnaður væri fyr-
ir landið nema af þingafækkun-
inni. Málið hefði fallið í Nd. í fyrra
á þessum óheppilegu viðbótum.
Hvað eftir annað reyndu Fram-
sóknarmenn að fá J. M. til að falla
frá „fleygum" þessum og halda
málinu á réttum kili. Leggja
áhersluna á þingafækkun eina. En
J. M. og flokksbræður hans neit-
uðu bæði við 1. og 2. umræðu og í
nefndinni.
Við 3. umræðu bera tveir Fram-
sóknarmenn, Guðm. ólafsson og
Einar Árnason fram br.till. Að
fækka þingmönnum um 6, og' láta
það vera þá landkjörnu. Sýndu
þeir fram á, að úr því ætti að fara
að gera miklar efnisbreytingar á
stjórnarskránni, óbeðið af kjós-
endum og til einskis sparnaðar, þá
væri rétt að bæta við till. sem veru-
lega munaði um í sparnaðaráttina.
Töldu þeir óhæfilegt að kjósa full-
trúa til 12 ára. Og úr því J. M. vildi
víggirða sig og suma nánustu
stuðningsmenn sína í þingsætun-
um á svo óviðeigandi hátt, þá væri
bes t að spara allan hópinn. Ef
kjörtímabilið ætti að vera 6 ár, þá
væri þó betur við unandi, ef ekki
væru enn aðrir fastir í sessi í 12
ár.
Einn af forkólfum íhaldsmanna,
Halldór Steinsson, var mjög fylgj-
andi þessari breytingu. Hefðu þeir
G. Ó. og E. Á. varla komið með
tillöguna, nema af því að þar var
von liðsauka. Síðar reyndist að B.
Kr. var líka með tillögunni, svo og
Hjörtur gamli.
J. M. og félögum hans brá mjög
við þessa tillögu. þótti ilt, ef í stað
þess að tryggja völd sín í þinginu
yrðu þeir að missa þingsætin að
ári, og eiga víst að ná hvergi end-
urkosningu. þeim hafði aldrei
dottið í hug að láta stjórnarskrána
ná fram að ganga. þeir höfðu von-
ast eftir því, að ráðherra-
fækkunin og langa kjörtímabilið
yrði frv. að fótakefli hjá Fram-
sóknarmönnum. Síðan væri hægt
að kasta á þá skuldinni fyrir eyðsl-
una við þing annaðhvort ár.
Framsóknarmenn sögðust treysta
því, að Nd. lagaði verstu ágallana
á frumvarpinu. þessvegna fylgdu
þeir því við allar umræður. Og
þeir hefðu enga breytingartillögu
flutt, ef Mbl.menn hefðu viljað
falla frá „fleygum“ sínum. En úr
því þeir vildu ekki samkomulag,
þá var Framsókn óbundin að
koma fram með þær breytingar,
sem við gátu átt.
Jón Magnússon lagðist mjög á
móti því að missa umboð sitt. Við
3. umræðu var einhver flótta-órói
yfir honum og liði hans öllu. Sama
kom fram við atkvæðagreiðsluna.
Auðséð var, að beygur var í öllum
hópnum við að gera það, sem Mbl.-
menn töldu nú að gera þyrfti.
Nú var aðeins samkomulag um
eitt: Að Mbl.menn skyldu láta 5 af
sínum mönnum hjálpa Sjálfstæð-
ismönnunum S. E. og Hirti til að
drepa stjórnarskrána. Til þess
voru valdir B. Kr., I. H. B., Jóh.
Jóh., Jóh. Jós. og Staðarklerkur
Eggert. En með Framsókn var af
sannfæringu H. St., sem var alvara
með stjómarskr.br. eins og hún nú
var orðin, og J. M., sem var með að
yfirvarpi, því að ef hann hefði
verið með málinu af áhuga, myndi
ekki hin trúu atkvæði hans hafa
yfirgefið hann fremur en endra-
nær.
Eftir á hefir málaliðsdáti kaup-
manna haldið fram, að afnám
landkjörsins hafi orðið banabein-
ið. En því fylgdu þá B. Kr. og H.
St. þeirri breytingu? Sjálfur J. M.
er með stjórnarskránni út úr
deildinni, þó að þeir landkjömu
væra fallnir úr. Ef íhaldsflokkur-
inn hefði álitið þá breytingu hættu
lega, þá gátu þeir felt hana strax
í Ed. og án efa komið á breytingu
í Nd., ef þeir hefðu lagt stund á
að fella niður allar breytingar
nema þinghald annaðhvert ár.
Dráp stjórnarskrárinnar nú ofan
á þráa M. G. og J. M. við „fleyga“
sína bæði í fyrra og vetur sýnir, að
Mbl.menn vilja ekki þingafækkun.
Og þeir sem vita, að þennan von-
lausa málstað eiga að verja tveir
málaliðsmenn, sem Hagalín á að
hafa sagt um, að annar væri ekki
skrifandi og hinn ekki læs, þá get-
ur jafnvel mótstöðumönnunum
runnið til rifja eymd þess flokks,
sem hefir sjálfur drepið sitt eina
svonefnda áhugamál, og verður
svo að hlíta vörn þeirra manna,
sem áðurnefndur hagyrðingur lýs-
ir svo ömurlega. En þeim af borg-
urum landsins, sem trúað hafa fag-
urgala íhaldsflokksins um sparn-
að við þinghaldið, er nú sýnt,
hversu vel er farið með umboðið
fyrir þeirra hönd. **
----0-7—
íhaldsflokkurinn drepur stjómar-
skrána.
Nú er sannað að kaupmannaflokk-
urinn vill ekki fækka þingum. Foringi
flokksins flýtir sér með að bera fram
frv. i þá átt að breyta stjórnai ikránni.
það var fyrsta þingmannaíiv. í Ed.
En J. M. laumar inn í með fækkun
þinga tveim „fleygum", sem vita
mátti fyrirfram að sett gátu málið i
hættu, og enginn hafði um beðið.
Fyrst að fækka ráðherrum, en auka
að sama skapi skrifstofuvaldið í Rvík.
I öðru lagi að lengja kjörtímabilið um
þriðjung, og minka þannig áhrif og
aðhald kjósenda. Langósvifnast var þó,
er J. M. ætlaði heimildarlaust að
lengja um mörg ár þingumboð sitt og
tveggja af sínum vissustu atkvæðum.
J. M. vissi vel, að allar þessar breyt-
ingar voru mjög óvinsælar, að þeim
fylgdi enginn sparnaður, að sumar
þeirra höfðu orðið málinu að falli í
Nd. í fyrra. Framsóknarmenn miðuðu
sitt frv. fyrst og síðast viö þing ann-
aðlivort ár. Hvað eftir annað buðu þeir
J. M. og fylgismönnum hans að gera
alt til að koma fram þeirri breytingu,
ef J. M. félli frá „fleygum" sínum.
þetta var boðið við 1. umræðu, í nefnd-
inni, við 2. og 3. umræðu. En Jón sat
við sinn keip. En við 3. umræðu kem-
ur svo það óvænta, að J. M. lætur sína
dyggustu fylgismenn drepa frumvarp-
ið, en greiddi svo sem fyrir siðasakir
atkvæði með frv. út úr deildinni, með
öllum Framsóknarmönnum, sem ekki
vildu stöðva málið, þó að þeir væru
sáróánægðir með „fleyga" Jóns. Von-
uðu að þeir yrðu lagaðir i Nd. Hvar
sem væri erlendis myndi ráðuneyti
segja af sér tafarlaust, ef aðalfrv.
stjórnarinnar er felt, og það sérstak-
lega, þegar það eru eigin stuðnings-
menn stjórnarinnar, sem sýna van-
traustið svo áþreifanlega. **
----o-----
Bæjarstjóri var kosinn í Vest-
mannaeyjum Kristinn ólafsson
bæj arfóg-etafulltrúi í Reykjavík.
Bankastjórar eru skipaðir í Is-
landsbanka frá 1. þessa mánaðar
Sigurður Eggerz og Jens B.Waage.
Tvö lík og hluta úr skipi hefir
rekið í Grindavík. Líklega af fær-
eysku skipi.
——0-------
— Fréttir frá Rússlandi herma,
að ráðstjórnarfulltrúarnir í
Moskva leggi kapp á að fá Trotsky
til þess að taka sæti í stjórninni,
þareð nafn hans sé vinsælast allra
og þektast meðal alþýðu síðan Len-
in leið. Svíþjóð og fleiri smáríki
hafa opinbrelega viðurkent ráð-
stjórnina í Rússlandi.
— Búist er við, að þingkosning-
ar fari fram í Danmörku um miðj-
an næsta mánuð. Viðskiftamálin
og fjármálin eru aðaldeiluefni
flokkanna. Fyrir viku síðan voru
57,345 menn taldir atvinnulausir í
landinu.