Tíminn - 07.06.1924, Blaðsíða 4

Tíminn - 07.06.1924, Blaðsíða 4
92 T 1 M I N N hóflausu, eftirlitslausu og >ó ónógu utanfararstyrki stúdenta. Vill láta styrkja þá eina, sem likur eru til aö þjóöin þurfi með, og láta námsstyrk- inn breytast í vaxtalaust lán til slíkra manna. Með því að samrœma tillögur Jóns og Siguröar og bœta lítið eitt viö, um takmörkun á nemendafjölda i mentaskólanum, er lagður grundvöll- ur að sannarlegri og nauðsynlegri end- urbót á þessu sviöL „Sök bitur sekan“. Eigendur Mbl. hafa stórreiðst út af fyrirspum J. J. um aðstöðu stjómar- innar til hins erlenda fjármálavalds, sem rœður stjómarblaðinu. þeim hefir sviðið, að á þetta skyldi vera minst. í öðm lagi að lýsing þorst. Gíslasonar a innræti og mentunarástand eigend- anna skuli vera þama varanlega bók- fest i skjalaparti þingtiðindanna. Með- an islenskar bækur em til, sést hvem- ig erlent peningavald var vorið 1924 búið að stinga stjómarflokknum ís- lenska undir fótaskör sína. Jafnframt sést þar að þessir útlendingar hafa heimtað að ritstjóri Mbl. kastaði „skít" á andstæðinga sína, einkanlega sam- vinnumennina. Valtýr og súkkulaði- drengurinn koma hvað eftir annað að þessu með skítkastið. þeir vita að eng- ir em þar sekir nema þeir. Að fyrir- rennari þeirra fór frá Mbl. af því hann vildi ekki vinna þetta verk, og að þeir fengu sin núverandi embætti með því að lofa að gera það, sem hann ekki vildi taka að sér. En þó að eigendum og ritstjórum Mbl. sámi að standa þannig afhjúpaðir frammi íyrir al- menningi, þá geta þeir engum um kent nema sjálíum sér. En sá er eld- urinn heitastur sem brennur í meðvit- und sekrar sálar. Friðsöm stjómmáL Margir andstæðingar Framsóknar halda þvi fram, að í umræðum al- mennra mála megi aldrei víkja að per- sónu. Málin ein og röksemdimar eigi að tala. Vilja þessir menn að Fram- sóknarflokkurinn og blöð hans standi þcgjandi undir árásum þeim, er sam- kepnismenn telja rétt að beina að starfsemi flokksins. Nú hefir nýlega komið fyrir atvik sem sýnir, hve auð- velt er að láta rökin ein tala. Halldór Stefánsson alþm. Norðmýlinga er ákaflega varfærinn maður í orði og verki. Ef nokkmm manni ætti að vera unt hér á landi að taka þátt í deilum um félagsmál, án þess að nokkuð kæmi til greina nema köld rök og staðreyndir, þá væri það Halldór. Hann hélt ágæta ræðu um gengismál- ið, fulla af þungvægum röksemdum. Hún var birt i Tímanum. Um leið læt- ur stjóm Mbl. vikapilta sína velta sér yfir Halldór með illyrðum og skitkasti, eins og tíðkað er á þeim bæ. Halldóri er brigslað um heimsku, mentunar- leysi og lélegan tilgang. Sést á þessu hvaða lag húsbændur skitkastsins hafa. Um leið og samvinnumenn taka á meinsemdum þjóðfélagsins, þá koma fram úr skúmaskotunum menn, sem fá borgun fyrir að ráöast með persónulegheitum á alla þá menn, sem starfa fyrir hagsmuni almenn- ings, en taka þá um leið óhjá- kvæmilega að sér hagsmuni þeirra, sem vilja hafa almenning að íéþúfu. íhaldið sem ðrap stjórnarskrána. Nú þora íhaldsmenn ekki lengur að neita þvi, að þeir drápu stjórnar- skrána, en vilja kenna Guðm. Ólafs- syni um breytingartillöguna sem sam- þykt var í efri deild um að fækka þingmönnum um 6. En fyrst er það, að Framsóknarmenn í efri deild buðu íhaldinu þrásinnis að flýta stjórnar- skránni i gegn, eí engu væri breytt nema fækkað þingum. En ihaldið hélt mörgum breytingum til streytu og von- aðist eftir að geta gert stjórnarskrána svo illa til reika, að Framsóknarmenn eyddu henni. Að lokum við 3. umræðu kemur Guðm. Ólafsson með tillögu um að fækka þingmönnum um sex, eftir almennri kröfu frá kjósendum á fundi í Húnaþingi, bæði Framsóknar- og íhaldsmönnum. þórarinn á Hjalta- bakka taldi sig heima fyrir fylgjandi Guðm. i þessu. þegar till. kom fram, hefði verið hreinlegast fyrir íhaldið að drepa hana, ef hún var slæm og láta stjómarskrána halda áfram. íhaldið hafði öruggan meiri hluta í deildinni. í stað þess reiknar Jón Magnússon út, hve marga hann þurfi að „lána'* úr sínum flokki til að samþykt verði till. um fækkun þingmanna. Jón velur þrjá til að samþykkja breytinguna með Frtunsóknarmönnum: Halldór Steinsson, Björn Kristjánsson og Hjört gamla. Síðan þegar þrír ihaldsmenn eru búnir að samþykkja spamaðar- tillögu Framsóknar, þá drepur ihalds- flokkurinn stjórnarskrána af því að fækkun þingmanna, sem þeir hafa sjálfir komið í gegn, sé hættuleg! Og síðan kenna blöð íhaldsins Framsókn um að frumvarpið fellur. Allir flokks- menn Framsóknar stóðu með frv. við allar umræður, og gerðu sitt ítrasta til að halda málinu á réttum kili. En Jón, Ingibjörg og Hjörtur þorðu ekki að leggja niður þá landkjömu, vissu að fr. kjördæmi stæðu þeim opin. Og flokkurinn i heild sinni þorði ekki að fa kosningar. Stjórnin taldi víst að hún félli, ef kosið yrði. þessvegna drap íhaldið stjórnarskrána, en langar til að kenna nábúanum sínar syndir. Gagnfræðaskólinn og vikapiltur Ber- lémes. Valtýr Stefánsson hefir ekki einung- is hlaupið úr samvinnuflokknum og úr samstarfi við bændur landsins, sem hann þóttist vilja vinna með. Hann þorir jafnvel ekki annað en yfirgefa hugsjónir föður síns. Kærasti draum- ur Stefáns heitins skólameistara var að gagnfræðingar á Akureyri, efnis- menn að norðan og austan, gætu hald- ið þar áfram námi. Stefán beitti sér mikið fyrir þessu í ræðu og riti, en vann ekki á fyrir Reykjavíkurvald- inu. Nú í vetur sendu kennarar gagn- fræðaskólans beiðni til þingsins um að þeir mættu hjálpa efnilegum piltum úr skólanum við framhaldsnám til stúdentsprófs, ef það bakaði ekki landinu aukin útgjöld. Með þessu móti ei ætlast til, að dálítill hópur, t. d. tólf efnismenn á ári, fái framhaldskenslu á Akureyri í 2—3 ár, og taki síðan stúdentspróf í Reykjavík. þá hætta norðanmenn að fara í mentaskólann og ætti að vera hægt að spara landinu þar eina þrjá bekki, án þess að auka eyðslu á Akureyri. Og námsmönnun- um nyrðra er dvölin svo ódýr, að þeir vinna þar fyrir vetrarkostnaði, með sumarvinnu sinni. En í Reykjavík munu flestir aðkomumenn þurfa að bæta 800—1000 krónum við sumar- kaupið. Framsóknarflokkurinn beitti sér fyrir að þingið veitti þetta leyfi, og það tókst, en íhaldsmenn gerðu alt til að spilla fyrir málinu. Og þing- maður Akureyrar var svo reiður, er lokið var atkvæðagreiðslu um málið, að hann hafði í hótunum við mann, nærstaddan íhaldinu, sem fylgdi breytingunni. Næsta vetur byrjar væntanlega 4. bekkjar kensla fyrir úr- valsmenn á Akureyri. Næsta ár kem- ur 5. bekkur og síðan hinn sjötti, alt landinu að kostnaðarlausu frá því sem er. Framsókn hefir hrundið i fram- kvæmd áhugamáli Stefáns skólameist- ara. En sonurinn þorir ekki að minn- ast á þetta. Tíminn hefir spurt hann, en Valtýr þagað. En til að vinna fyrir kaupinu hjá „eigendunum", þá eys hann sérstaklega' úr „skíthripum" þess sköllótta yfir þá menn 1 Fram- sókn, sem talið er að einna mest hafl beitt sér i þessu máli. Valtýr hefir þannig brugðist flokki sínum, stétt þeirri, er hann þóttist vinna með, og það sem aumast er, áhugamáli og hugsjónadraum föður síns. Og alt, þetta er gert fyrir 100—150 kr. launahakkun á mánuði! Náið er neí augum. M. Guðm. hefir viljað telja pésa sinn óháðan þeim „sköllótta" og útlenda valdinu. En áhugamálin hafa verið hin • sömu og hjá Mbl., að reka erindi stór- spekúlanta innlendra og útlendra, en spilla fyrir samstarfi bænda. M. Guðm. kom Valtý í stjóm Búnaðarfélagsins eftir að Valtýr var ráðinn hjá Berlé- me. Og nú síðast byrjar pésinn að verja Valtý og alt hans starf, en þyk- ist þó óháður erlenda peningavaldinu. íhaldið er hjá erlenda peningavaldinu, bæði með Mbl. og pésana. J>ar þarf enginn að þykjast öðrum fínni, þvi alt er af sömu rótinni sprottið. ... O----- íþróttamót við Þjórsárbrú. Héraðssambandið „Skarphéðinn“ heldur íþróttamót sitt við Þjórs- árbrú laugardag 28. júní n. k. Kept verður í ísl. glímu (fullorðnir og drengir), hlaupum (fullorðnir og drengir) og stökkum. — Ræður, söng- ur og ef til vill hornablástur verða til skemtunar. — Helmingur ágóð- ans af mótinu gengur til héraðsskóla Sunnlendinga. — Er þess því vænst, að Árnesingar og Rangæingar fjölmenni sem mest til mótsins. Héraðsstjóruin. Alfa' Laval skil vindnr reynast best. Pantanir annast kaupfé- 1 • ••• '' lög út um land, og Samband ísL samviélaga. Biðjið um: „Columlms Brand“. Besta niðursoðna mjólkin danska.-S. _í. [S. jmnast pantanir. Afgfreidsla nokkurra þingmála. I. Framsókn bar fram tillögu um að skipa sparnaðarnefnd í þinginu í vetur til að leggja á ráð um sam- færslu embætta. íhaldsflokkurinn eyddi þessu. Framsókn ætlaðist til að upp úr sparnaðarnefnd þingsins kæmi milliþanganefnd ólaunuð, skipuð af þingflokkunum, og að landið fengi þar nýtt heildarskipulag í em- bættakerfi landsins. fhaldsmeiri- blutinn í Ed. eyddi líka þessu máli. Framsókn í Nd. bar fram frv. um búnaðarlánadeild, bráðabirgða- hjálp fyrir bændur þar til fast- eignabankinn tekur til starfa. Jón þorl. og Jón Kjartansson töluðu móti frv. En það gekk í gegn. Framsóknarmenn í Ed. báru fram tillögu um að breytt yrði skipulagi Söfnunarsjóðsins þann- ig, að lán úr honum yrðu eingöngu veitt til ræktunar, þ. e. til sveit- anna. Sjóðurinn lánar út um 10 þús. kr. á ári, með betri kjörum en bankar. íhaldsmenn 7 og sjálfstæð- ismenn 2 drápu þessa tillögu, móti atkvæðum allra Framsóknarmanna G. Ól. sagði þá, að aíilr þingmenn þættust bera umhyggju fyrir ræktuninni, en í verkinu væri bænd um vísað á ófædda banka eða þá, sem ekkert hefðu til. Framsókn í Ed. beittist fyrir að rannsakað yrði, hvort ekki mætti flytja grískudócentinn að menta- skólanum og leggja embætti hans niður, og að sameina kenslu í hag- nýtri sálarfræði og forstöðu Landsbókasafnsins. þar með væri sparað annað embætti. Ihaldið og Sjálfstæðið drápu þessar tillögur strax. Sr. Eggert dugði þar B jarna frá Vogi, en á aðra leið talaði hann við kjósendur. Frh. “0-> Síra Jóhann þorkelsson dóm- kirkjuprestur hefir nú sagt af sér prestsskap eftir 47 ára piests- þjónustustarf. Páll Jónsson í Einarsnesi kennari við Bændaskólann á Hvanneyri hefir sagt af sér því embætti sak- ir heilsubrests. Skollaleikur. Eitt helsta umræðuefni stjórn- arblaðanna, danskra og íslenskra, undanfarið, hefir verið kosning Bjarna Jónssonar frá Vogi í bankaráð íslandsbanka. Fram- sóknarflokkurinn á að hafa drýgt dauðasynd með því. Er þetta ein- hver mesti skollaleikur sem leikinn hefir verið í íslenskum stjórnmál- um. því að eftirfarandi atriði tala sínu máli. 1. Framsóknarflokkurinn gat alls ekki hindrað kosningu Bjarna. íhald og Sjálfstæði kusu hann og hafa samtals ákveðinn meiri hluta. Dauðasyndin hvílir því á þar. 2. Fyrir og um kosningarnar var Bjarni talinn í Borgaraflokknum, sem þá hét, en nú heitir fhalds- flokkur. Öll blöð íhaldsins töldu hann sinn mann, eins og rétt var. Framsóknarflokkurinn barðist af alefli gegn kosningu hans í Dölum og fékk hinn hættulegasta keppi- naut á móti honum. En fhaldið, blöð þess og einstaklingar, studdu Bjarna af elefli. það er á ábyrgð fhaldsins að Bjarni Jónsson á sæti á alþingi. 3. Loks er það fullkunnugt, að sjálf stjórn fhaldsins, núverandi landsstjórn, er studd af Bjarna Jónssyni. Hún flaut upp í stjórn- arsætin beinlínis á atkvæði Bjama. ílialdið vantaði 1—2 atkvæði til þess að geta myndað stjóm. það var Bjaini sem lagði sitt atkvæði til. Bjami ber höfuðábyrgðina á íhaldsstjórninni eins og íhaldið ber ábyrgð á þingsetu Bjarna. í ljósi þessarar staðreyndær er skilj- anlegt hversvegna sendiherrafmm- varpið var svæft, frumvarpið svæft um afnám grískudósentsins og fækkun þinga drepin. fhaldið gerði þetta alt meðfram til þess að borga Bjarna hinn mikilsverða stuðning sem hann veitti um mynd un ráðuneytis íhaldsins. — þetta er sannleikurinn um Bjarna og íhaldið. Og fyrirsjáan- legt er það, að við næstu kosning- ar verður það aftur svo, að Fram- sókn berst við Bjarna í Dölum en íhaldið styður hann. Jarðarför þórhalls læknis fór fram á Flateyri 29. apríl að við- stöddu miklu fjölmenni. þórhallur var á leið til Flateyrarhéraðs, sem honum hafði verið veitt, en komst H.f. Jón Sigmundsson & Co. og alt til upphluts sérl. ódýrt. Skúfhólkar úr gulli og silfri. bent meö póstkröíu út é&xaaxtxh um iand, el óskaö er. Jón Sigmundsson gullsmiður. iSími 383. — Laugaveg 8. Innilegí þakklæti vottum við öllum ]>eim, sem sýndu okkur hluttekniugu og veittu okkur aðstoð við íráíall og jarðaríör iósturdóttur okkar, Vilborg- ar Guðmuudsdóttur, og biðjum góðan guð að lauua j>eim, j>egar j eim liggur mest á. Lokinhömrum 10. maí 1924. Margrét Jónsdóttir. Oddur Guðmundsson. ekki lengra en til Isafjai-ðar, þar iagðist hann banaleguna. Menn höfðu beðið þess með óþreyju, að hinn góði læknir kæmi. En þegar hann kom, var hann liðið lík. Jarð- arförin fór íram með mikiiii við- höfn. Ræður héldu sr. Páll Step- hensen og Snorri Sigfússon kenn- ari og mæltist ágætlega. Hrepps- nefnd og hreppstjórar í læknishér- aöinu báru kistuna til grafar. Voru héraðsbúar sárhryggir yfir því að þurfa að taka á móti lækni sínum og kveðja hann samstundis með þessum hætti, en létu í Ijósi þæt miklu vonir, er þeir höfðu gert sér um hann, með því að annast útför- ina svo virðulega sem kostur var á. Höggur sá er hlíía skyldi. „íslendingur“, Morgunblaðsút- gáfan á Akureyri, bregst afarreið- ur við ummælunum um að hann sé á valdi útlendinga. Gefur út yfir- lýsing- um, að Aage Berléme hafi engin ráð yfir blaðinu og aldrei hafi nokkur útlendingur setið í út- gáfunefnd blaðsins. þvínæst segir svo: „íslendingui’ er íslensk eign gefin út af íslendingum og ber ís- lensk hagsmunamál einvörðungu fyrir brjósti. Hann hefir aldrei dansklundaður verið og mun aldrei verða það. Hann mun aldrei gera nafni sínu skömm“. — Með orðum þessum segir íslendingur berlega að ef Berléme hefði átt í blaðinu og ef útlendingar hefðu setið í út- gáfunefnd, þá væri skömm gerð nafninu. Hvorttveggja er sannað um Morgunblaðið. Gunnlaugur Einarsson háls-, nef- og eyrnalæknir kemur til bæj- arins um miðjan þennan mánuð. Hann hefir dvalið erlendis í vetur, lengst af í Vínarborg, og kynt sér allar nýjungar í sinni grein. Haxm byrjar að taka móti sjúklingum þegar er hann kemur. Mannalát. Látinn er 5. þ. m. Pét- ur bóndi Jónsson á Draghálsi í Svínadal í Borgarfjarðarsýslu, merkur maður, háaldraður. — 3. þ. m. andaðist hér í bænum Lúðvík kaupmaður Hafliðason rúmlega fimtugur að aldri. Aðalfundur Sögufélagsins var haldinn í gær. Hannes þorsteins- son skjalavörður var kosinn for- maður þess. Einn merkasti bóndi á Norður- landi ritaði eftirfarandi vísu á blaðastranga um leið og hann end- ursendi: Iiirði feður heimskan V ..., hundslegasta þý á jörð. Lélegri en lambaspörð, lýgnari en gamla Mörð. Jón Guðmundsson (Bjömsson- ar), frá Suðureyri í Tálknafirði, hefir fengið löggildingu stjómar- ráðsins á ættarnafninu Einis. Ritetjóri: Tryggvi þórhallsaon. Prentsmiöjan Acta h/f.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.