Tíminn - 02.08.1924, Side 4
122
T 1 M I N N
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hjálp við fráfall og jarðarför mannsins míns, Magnúsar Þorkelssonar frá"Vaðnesi. Vilborg Eggertsdóttir. !
Unglingaskóli Asgríms Magnússonar
Bergstaðastræti 3, Reykjavík
Skólinn byrjar fyrsta og hættir síðasta vetrardag. Tvær deildir.
Námsgreinar: íslenska, reikningur, danska, enska, líkams- og heilsu-
fræði og handavinna fyrir stúlkur. Inntökuskilyrði, að nem. sé'heill
heilsu og hafi lokið fullnaðarprófi samkv. fræðslulögum. Kenslugjald
kr. 85.00 fyrir veturinn. Umsóknir sendist undirrituðum,®sem' hinnig
gefur allar nánari upplýsingar.
Isleifur Jónsson.
Hin heimsfrægu
Barratt’s baðlyt
eru best og ódyrust.
Biðjið um:
„Columbus Brand“.
Besta niðursoðna mjólkin danska.-S. í. S. annast pantanir.
Til kaupfélaga!
H.f. Smjörlíkisgerðin i Reykjavik er stofnuð í
þeim tilgangi, að koma hér á smjörlíkisframleiðslu, sem geti fyllilega
jafnast á við samskonar iðn erlendis, bæði hvað gæði og rerð snertir.
Eilið íslenskan iðnað.
Biðjið nm ,Smára‘-smjörlíkið.
hefir þessum gæðagripum fjölgað
hin síðari ár. — Hinu verður ekki
neitað, að kýrnar eru víða afar-
misjafnar. Sumar kýr borga tæp-
ast fóður og annan tilkostnað. pær
skepnur eru ómagar á lúum
bænda.
Stofnun nautgriparæktarfélaga
með reglulegu skýrsluhaldi, og
sýningar með föstu skipulagi,
mundu glæða áhugann á þessu
máli og opna augu manna fyrir
gagnsemi kúnna og þýðingu naut-
peningsræktarinnar.
En nautgripasýningarnar mega
ekki vera mjög strjálar, fremur
en á öðrum fénaði, til þess að þær
geri gagn. það verður að vera lif-
andi samband milli sýninganna, ef
eg mætti svo að orði kveða, eða
óslitinn þráður frá einni sýningu
til annarar, á sama stað. það verð-
ur með öðrum orðum að haldast
samband milli sýningagripanna,
svo að hægt sé að fylgjast með ein-
staklingunum og ættliðunum
hverjum fram af öðrum.
Sýningamar hafa og þá niiklu
þýðingu, að með þeim fæst sæmi-
legur samanburður á gripunum í
hinum ýmsu sveitum og héruðum
landsins. Sá samanburður er afar
nauðsynlegur og hefir praktiska
þýðingu, bæði fyrir eigendur grip-
anna og þann, er fer með þessi
mál af hálfu Búnaðarfélags ís-
lands eða hins opinbera. Og eg
hygg, að þessi samanburður fáist
naumast á annan hagkvæmari eða
ódýrari hátt.
Nú er nautgripasýningamálinu
þannig komið, samkvæmt ákvörð-
un Búnaðarfélags íslands, að
ákveðið er að halda þessar sýning-
ar árlega, þannig, að þær séu sitt
árið í hverjum landsfjórðungi.
Með þeim hætti verða þær fjórða
hvert ár á hverjum stað eða í
hverjum fjórðungi. Er þetta við-
unanleg niðurstaða móts við það
sem áður var.
Sýningarnar hófust í vor á Suð-
urlandi. Næsta ár er ráðgert, að
þær verði í Borgarfirði, Snæfells-
nesi, Dalasýslu, og eftir því sem
við verður komið á Vestfjarða-
kjálkanum. priðja árið verða þær
á Norðurlandi, og síðan fjórða árið
á Austurlandi.
Iiver sýning tekur vanalega yfir
einn hrepp, enda hagkvæmast
að sýningarsvæðin séu eigi stór,
einkum þegar nautgripir eiga í
hlut. Framh.
Sig. Sigurðsson ráðunautur.
----o-----
Þjóðhátíðin 1874.
Frh. af 1. síðu.
þegar hinn fyrsti konungur vor
heimsótti landið. Sýnir það hér sem
oftar, að íslenskir prestar hafa
verið landi og lýð til sóma, víðar
en í prédikunarstólnum.
Síðar um daginn hélt konungur
á stað til Reykjavíkur, en allur
mannfjöldinn gekk upp í Almanna-
gjá og skipaði sér í raðir beggja
megin vegarins. Allir þögðu meðan
konungur og föruneyti hans reið
framhjá, en er konungur og sveit
hans var að hverfa upp ár gjánni,
kváðu við köll og óp, kallaði þá all-
ur þinghiemur í einu hljóði og bað
konung vel fara, og árnaði honum
allra heilla, en gjáin dunaði og
hamrabeltin endurkváðu heilla-
kveðjurnar með jötnalegum
rómi".1)
Hér með var þjóðhátíðinni eig-
inlega lokið. Menn skemtu sér á
þingvöllum um daginn, en flestir
atkvæðamenn héldu burt næsta
morgun. Konungur lét í haf þann
11. ágúst. Höfðu áður verið veislu-
höld mikið í bænum, en engin stór-
tíðindi gerst. Konungur var kvadd-
ur með mikilli viðhöfn, hafði Is-
lendingum geðjast ágætlega að
honum, enda var framkoma hans
hin prúðasta og hann hinn her-
mannlegasti í öllu látbragði.
þúsund ára hátíðin er einn hinn
Valdimar Briem i „Fréttum frá
íslandi" 1874, bls. 19.
merkasti viðburður í sögu Islands
á síðari tímum, og hin eina virki-
lega þjóðhátíð, sem haldin hefir
verið á landi hér. þá voru tímamót
í Islandssögu. Einveldið vék sæti
fyrir þingstjórninni. þjóðin sá
frelsisdrauma sína rætast og hún
var bjartsýn og stórhuga og vænti
hins besta af framtíðinni. Að vísu
voru skoðanir manna ærið sund-
urleitar, eins og vant er að vera,
þar sem íslendingar safnast sam-
an, en yfir hátíðahöldunum hvíldi
óvanaieg hrifning og hátíðlegur
blær. Koma konungs og hinna er-
íendu gesta varpaði ljóma yfir há-
tíðirnar, og menn fundu og skildu,
að stór tíðindi voru að gerast, og
að með stjórnarskránni væri brot-
ið blað í sögu íslands. Kynslóðin,
sem undir forustu Jóns Sigurðsson-
ar hafði barist 1 30 ár fyrir frelsi
föðurlandsins, er líka þess verð, að
hennar sé minst. það voru sterkir
menn með heitar tilfinningar,
menn sem treystu guði og eískuðu
landið. Hin þrautseiga barátta
þeirra fyrir stjórnarfarslegu
frelsi og andlegum og efnalegum
framförum Islands, er grundvöll-
urinn undir sjálfstæði voru og
menningu nútímans. þegar vér í
dag höldum hátíð og minnumst
50 ára afmælis stjórnskrárinnar,
eigum vér fyrst og fremst að minn-
ast leiðtoga vorra í baráttunni,
sem leiddi til sigursins 1874. þeir
börðust harðri baráttu og útlitið
var lengi tvísýnt. Á köldum tímum
héldu þeir eldinum lifandi í sál
þjóðarinnar. þá dreymdi um full-
komið sjálfstæði íslands, en þeir
fengu aðeins að skygnast inn í
fyrirheitna landið, en ekki að stíga
þangað fæti sínum. Nú hafa
draumar þeirra ræst. Vér, sem nú
‘lifum, höfum skorið upp ávöxtinn
af starfi þeirra.
Blessuð sé þeirra minning.
Hallgrímur Hallgrímsson.
----------o----
Heimsstyrjöldin og eftirköst
hennar. Engra tíðinda mun nú-
tímakynslóð minnast j afnlengi
sem styrjaldarinnar miklu, þeirra
sem við hafa borið á hennar æfi.
Hjá öllum mentaþjóðum hafa ver-
ið rituð um hana stór rit og merki-
leg. Er vel farið að nú er komið út
á ísiensku máli slíkt rit, mikið og
vandað að öllum frágangi. Höfund-
urinn er þorsteinn Gíslason rit-
stjóri, sá ritstjórinn, sem lang-
mesta rækt hefir lagt við að segja
útlendar fréttir, að öllum hinum
ólöstuðum, enda lang lengst við
það fengist, bæði í blöðum og
tímaritum. Frásögnin er samtíma-
frásögn, rituð í Lögréttu jafnóðum
cg viðburðir gerðust. Ágætav
rnyndir, 200 alls, fylgja bókinni og
veiöur hún vafalaust mjög vinsæi.
Læknaþing verður háð á Akur-
eyri í byrjun þessa mánaðar. Verð-
ur gestur þess Fr. Svendsen yfir-
læknir danskur, sem er kominn
sem fulltrúi alþjóðasambands
Rauða krossins. Verður um það
rætt, hvort hér skuli stofnuð deild
þessa fræga líknarfélags.
Yfirgangur útlendinga. Enskur
togari var nýlega á veiðum í land-
helgi fyrir Vestfjörðum. Landhelg-
isgæslubáturinn Enok kom á vett-
vang og réðu 3 menn af honum til
uppgöngu á togarann. Kröfðust
þeir að skipinu yrði þegar stýrt til
hafnar. En skipverjar neituðu og
stýrðu til hafs með mennina.
Nokkru síðar komu þeir til Hest-
eyrar og vildu skjóta Islendingun-
um þar á land. Neitaði stýrimaður-
inn, Eiríkur Kristófersson að fara
á land óbundinn. Hélt skipið þá út
með þá aftur.
Síra Bjarni Jónsson hefir verið
skipaður dómkirkjuprestur. Um-
sóknarfrestur um annað prestsem-
bættið er til 30. sept.
Kæliskipið. Kæliskipsnefndin
hefir nú verið skipuð. Emil Niel-
sen framkvæmdastjóri Eimskipa-
félags Islands er formaður nefnd-
arinnar, Jón Ámason framkvæmda
stjóri af hálfu Sambandsins, Carl
Proppé kaupmaður af hálfu Versl-
unarráðsins, Halldór þorsteinsson
skipstjóri af hálfu Fiskifélagsins
og Tryggvi þórhallsson ritstjóri af
hálfu Búnaðarfélagsins. Nefndin
hefir haldið fyrsta fund sinn og
skift með sér verkum.
„Heilög kirkja“, sextug drápa
um katólsku kirkjuna á íslandi eft-
ir Stefán frá Hvítadal er nýkomin
út og verður síðar getið.
Garðar Gíslason skrifar mjög
langa grein í danska Mogga ?
fyrri viku.Stóð í Tímanum ekki alls
fyrir löngu eftirfarandi setning:
„Hver sem segir mér til synda
kaupmannanna, fær af mér mikia
syndalausn sjálfur“. Grein Garð-
rrs er einn samfeldur harmagrát -
ur yfir þessum orðum. Han:.
skammar Tímann fyrir þessi orð.
Hann virðist hafa gleymt því.
Garðar góður, að það var sjálfui
Jón Sigurðsson forseti, sómi Is-
lands, sverð og skjöldur, sem sagði
þessi hörðu orð. Ef Garðari þyki >'
liart undir að búa, þá er hreinlegra
fyrir hann að ráðast á Jón Sigurðs-
son.
Látinn er á heilsuhæli í Dan-
mörku Guðmundur Thorsteinsson
listmálari, ungur maður og ágæt-
lega gefinn listamaður.
Enn segir Garðar: „er slettirek-
um Tímans algerlega óviðkomandi
hvaða verð eg borga fyrir þær vör-
ur, sem eg kaupi“. — Ójá, Garðav
góður. það væri að vísu þægilegt
fyrir yður, mjög svo, að fá í næði
að kaupa t. d. hross af bændum
langar leiðir fyrir neðan sannvirði
Vitanlega hafið þér ekkert á móti
því að stinga mismuninum í yðai
stóra vasa. En það er nú svona að
Tímanum er kærara að bændurn-
ir fái sitt, fult sannvirði fyrir
hrossin. Tíminn hefir gerst svu
djarfur og ætlar sér eftirleiðis að
vera svo djarfur að halda fram
málstað bænda í þessu efni, benda
þeim á ef reynt er að ná af þeim
hrossunum fyrir alt of lágt verð og
flytja þeim yfirleitt sannar fregn-
ir um hrossaverslunina. það verð
ur þá að hafa það þótt eitthvað
drjúpi dálítið minna í stóra vas-
ann.
Viðbjóður. Ekki þykir það mann-
inn prýða að vera tíðum með klám-
sögur á vörunum í kunningjahóp.
En þó er það ekkert móti hinu að
birta slíkar sögur á prenti og nota
til svívirðinga um pólitiska and-
stæðinga. Slíkt lygiklám prentar
Morgunblaðið á þriðjudaginn var
til þess að svívirða pólitiskan and-
stæðing. önnur eins andstygð hef-
ir aldrei sést á prenti á íslandi fyr,
og vart í verstu saurblöðum stór-
þjóðanna, sem ætluð eru hinum
lægsta skríl. þetta leyfir blað
landsstjómarinnar og kaupmanna-
stéttarinnar sér að gera. En það
er almannarómur að þeir ritstjór-
ar, sem leyfa sér slíka bardagaað-
ferð, ættu ekki einungis að vera
landrækir, heldur og að vera varg-
ar í véum hvítra manna.
Greinin um 50 ára minning þjóð-
hátíðarinnar 1874 er prentuð úr
„Vísi“ eftir tilmælum höfundarins.
Ljóð eftir Sigurð Sigurðsson lyf-
sala í Vestmannaeyjum eru ný-
komin út í annari útgáfu og verð-
ur síðar getið.
Blaðið „Skutull“ á Isafirði hefir
birt afar snarplega ntaðar grein-
ar um misnotkun lækna, einkum
Halldórs læknis Stefánssonar, á
heimildinni að gefa út áfengislyf-
seðla. Ennfremur er fullyrt að Vil-
mundur héraðslæknir Jónsson hafi
kært í stjórnarráðið yfir þessu
framferði. Stórhneikslanlegt er að
slíkt athæfi skuli liðið. Lands-
stjórninni er það til háborinnar
skammar, ef hún kemur ekki í veg
fyrir slíkan ósóma og sviftir þá
menn heimild til að gefa út áfeng •
islyfseðla sem misnota hana hrap-
arlega.
1 gustukaskyni? Mundi það líka
Þrjár kenslubæki'r.
Bókafélagið gefur út fyrir haust-
ið:
Jónas Jónsson: fslandssagn, 3
útgáfa, með myndum af skipum,
vopnum, húsum, mönnum og stöú
um, sem viðkemur fornaldarsög-
unni.
Jónas Jónsson: Dýrafræði 2.
hefti. Lýsing af flestum íslenskum
fuglum og lifnaðarháttum þeirra,
og þeim erlendum fuglum, sem
þektir eru til muna í íslenskum
bókum. Með mörgum myndum.
Nýju skólaljóðin. Úrval af þeim
íslenskum ljóðum, frumsömdum og
þýddum, sem unglingar hafa ver-
ið og eru mest hrifnir af. Me5
myndum af helstu skáldunum.
H.f. Jón Sigmundsson & Co.
2sÆ i 11 UL 3?
og alt til upphluts sér-
lega ódýrt. Skúfhólkar
úr gulli og silfri. Sent
með póstkröfu út um
land, ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 383. — Laugaveg 8.
Samvinnuskólinn.
Kensla sjö mánuði frá 1. okt. til
aprílloka. Skólagjald 100 kr.
Heimavist fyrir 15 pilta, húsnæði,
ljós og hiti 25 kr. á mann um vet-
urinn. Aðgangur að mötuneyti
kennara- og samvinnuskólans fyrir
alla nemendur.
LJÓD.
Eftir
Sigurð Sigurðsson frá Arnarholti
2. útgáfa, aukin.
Bóksalar snúi sér til Jóns Sighváts-
sonar bóksala í Vestmannaeyjum.
vera gert í gustukaskyni að Morg-
unblaðið birtir óþvegnustu klám-
sögur um andstæðinga sína? Spyr
sá, sem ekki veit.
Úr stjórnarblöðunum.
Alþingi veitti mjög aukið fé til
landhelgisgæslu, samdi áætlun um
hvemig framkvæmd yrði, ákvað að
setja fallbyssu á þór o. s. frv. —
„Á stjómin þakkir skyldar fyrir
áhugann um landhelgisgæsluna"
segja stjórnarblöðin.
Alþingi og sérstaklega Fram-
sóknarflokkurinn, gekk frá fjár-
lögunum svo gætilegum, að óhugs-
andi er annað en að mjög mikill
tekjuafgangur verði. — „Á stjórn-
in þakkir skyldar fyrir áhugann
um gætileg fjárlög", segja stjóm-
arblöðin.
Alþingi skipaði landsstjórninni
að gefa út reglugerð um að banna
útlendingum að leita sér hér at-
vinnu meðan atvinnuskortur er.
Stjórnin svíkst um alt. Útlending-
arnir streyma inn í landið og taka
atvinnuna frá innlendum mönnum.
— „Á stjórnin þakkir skyldar fyr-
ir áhugann um að gæta hagsmuna
íslenskra verkamanna", segja
stjórnarblöðin.
Afskaplega mikið og ágætt velti-
ár við sjávarsíðuna kemur yfir
landið. Peningarnir streyma í rík-
issjóðinn, tollar og skattar marg-
faldast. — „Á stjórnin þakkir
skyldar fyrir áhugann um að afla
landinu tekna“, segja stjórnar-
blöðin.
- Norskir ferðamenn allmargir
komu hingað með Merkúr um síð-
ustu helgi og ferðuðust um í fáa
daga.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson.
Prentsmiðjan Acta.