Tíminn - 30.08.1924, Qupperneq 3

Tíminn - 30.08.1924, Qupperneq 3
T 1 M I N N 137 P.W.Jacobsen&Sön Timburverslun. Símnefni. Granfuru. Stofnað 1824. Carl Lundsgade Köbenhavn. Afgreiðum frá Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar pantanir og heila skipsfanna frá Svídjóð. — Sis og umboðssalar annast pantanir. -... — Eik og efni í þilfar til skipa. ----------------- — Biðjið um: .Golnmbus Braud“. 33 Besta niðursoðna mjólkin danska. S. í. S. annast pantanir. Notað um allan heim. Árið 1904 vai' i fyrsta sinn þaklagt í Dan- mörku úr — Icopal. — Besta og ódýrasta efni í þök. Tíu ára ábyrgð á þökunum. Þurfa ekkert viðhald þann tíma. Létt -------- I»étt -------- Hlýtt Betra en bárujárn og málmar. Endist eins vel og skífuþök. I’æst alstaðar á íslandi. jens Villadsens Fabriker, Köbenhavn K. Telf. 9706—9726 Biðjið um verðskrá vora og sýnishorn. laganna er að útvega félagsmönn- um nauðsynjar þeirra og selja framleiðslu þeirra. þetta stafar að vísu nokkuð af því, að skuldir safn- ist þegar illa árar, — en skuld- laust geta íslenskir framleiðendur ekki verslað, fyr en þeir eiga hand- bært fé í byrjun hvers árs fyrir ársþörfunum. þessi hætta fer þá minkandi eftir því, sem sjóðir fé- laganna aukast, því eins og menn vita, eru stofnsjóðseignir félags- manna trygging fyrir viðskiftum þeirra. Veltufjársöfnunin fékk fyrst fast og lögbundið skipulag með samvinnulögunum, og er það því fjarri sanni, áð þau hafi aukið áhættuna. Eldra skipulagið hafði þami megingalla, að aðaláherslan var lögð á beina hagnaðinn, en minna gert til þess að tryggja félagsskap- inn og gera hann fjárhagslega sjálfstæðan. þess vegna er Morg- unblaðsliðinu svo meinilla við þá breytingu, sem orðið hefir á skipu- lagi kaupfélaganna síðustu árin. þessvegna beinir það nú stórskota- liðinu að Sambandinu og sam- vinnublöðunum. En þeir, sem þekkja íslenska al- þýðu, bíða óhræddir úr3litanna. --—O----- lúyuÉin Eins og menn vita, var hið gamla keisara- og konungsríki Austurríki og Ungverjaland limað sundur með íriðarsamningunum 1919. í þessu ríki voru um 30 milj- ón?r íbúa og úr því voru mynduð aðalega 3 ríki: Tjekkóslóvakia, Ungverjaland og Austurríki, og auk þess féllu smærri hlutar þess til hins nýmyndaða konungsríkis Jugoslavia og til Ítalíu. Austurríki hið nýja var minst (íbúar um 6 miljónir) og var gert að lýðveldi, en keisarinn rekinn i útlegð. Framtíðarhorfur hins nýja lýð- veidis voru ekki glæsilegar, eink- um þegar þess er gætt, að það sat uppi með höfuðborg hins gamla stórveldis, 2ja miljónabæ, sem hafði að miklu leyti lifað á því, að vera höíuðborg hins fjölmenna hernaðarríkis, og þar að auki sat ríkið uppi með stjórnar- og em- bættismannabáknið, sem nú var engin þörf fyrir og nauðsynlegt var að losna við sem fyrst. En það var hægara sagt en gert og ástand ríkisins og einkum borgarinnar varð hörmulegt, og mikið var þá skrifað og rætt um hina „deyjandi borg“. Margar þjóðir fundu það, að þær stóðu í þakklætisskuld við hina fomu lista- og menningar- borg og hlupu undir bagga á marg- an hátt, eins og kunnugt er, og jafnvel Islendingar tóku líka þátt í þeirri hjálpartilraun. Trúa Vínar- búar því sjálfir, að þeir eigi sínum vísinda- og listamönnum, ekki síst tónsnillingunum frægu, t. d. Beet- hovon og Mozart o. fl., það að þakka, hve almenn hjálp og hlut- tekning þeim var sýnd á þessum neyðartímum. z En þessi hjálp reyndist auðvit- að bráðabirgðahjálp og ekki full- nægjandi; fjárhagur bæjarins og ríkisins fór síversnandi, myntin (krónan) féll í verði hér um bil 14 þús.-falt (1 gullkróna = 14 þús. kr.), dýrtíðin óx að sama skapi og ekki var sjáanlegt annað en að þjóðin yrði hungurmorða, og ótaldir voru þeir, sem hungrið og harðréttið eða afleiðingar þess hefir orðið að aldurtila, og mætti segja þá sögu lengri, en á ekki hér heima. Komið var á hæsta stig hörm- unganna 1922, stjórnin réð ekki við neitt og traust þjóðarinnar hafði hún ekki. pá var það að prest urinn og háskólakennarinn frá Graz, Dr. Seipel, tók að sér að verða kanslari; gerði hann það eft- ir áeggjan og beiðni flokksbræðra sinna, kristilegra jafnaðarmanna, og hafa þeir farið með völdin síð- an í ríkinu. Tókst Dr. Seipel þá ferð á hendur um flest lönd Norð- urálfu í fjárbón, og fyrir tilstilli þjóðbandalagsins var Austurríki veitt alþjóðalán, nokkrar miljónir gullkróna, og nægði það til þess, að koma jafnvægi á fjárlögin og stöðva verðfall krónunnar; lífs- nauðsynjar urðu nokkurnveginn í föstu verði og laun starfsmanna ríkisins voru ákveðin í hlutfalli við hið fasta gengi krónunnar, en þó mjög lág, og miklu lægri en fyrir stríðið; en þó varð hagur manna miklu þolanlegri og þjóðin varð alshugarfegin þessari breytingu til batnaðar. En jafnframt þessari lánveitingu voru Austurríki sett ýms skilyrði og mörg þeirra var ekki auðvelt að uppfylla í reynd- inni. pjóðbandalagið gerði ríkinu fjárhagsáætlun fyrir næstu ár, fyrstu árin með ákveðnum tekju- halla, er skyldi greiðast af láninu, en síðan skyldu fjárlögin verða tekjuhallalaus, og mun það vera frá 1925. Til þess að ná því marki var ríkinu gert að skyldu að end- urskoða rekstur járnbrautanna og fækka þar starfsmönnum, svo að þær bæru sig, og fengu þeir til þess enskan sérfræðing í þeirri grein. Allskonar nýja skatta skyldi inn- leiða og þekkjast margir þeirra ekki annarsstaðar. En erfiðast hef- ir reynst að uppfylla það skilyrði, að fækka embættismönnum og starfsmönnum ríkisins um vissa tölu á ári, og mun nokkuð vanta á það, að þeirri áætlun hafi verið haldið til fulls, þótt allmikilli harðneskju hafi verið beitt í því’ efni, sem aftur hefir valdið and- róðri og óánægju gegn stjórninni; hefir aðferðin verið sú, að greiða þeim, sem fara úr þjónustu þess opinbera, vissa upphæð í eitt skifti fyrir öll, og þótt hver einstakur hafi fengið litla upphæð, frá 100— 1000 kr. (ísl), þá hefir þetta orðið talsverð byrði fyrir ríkissjóðinn í bili. Yfir höfuð er þó óhætt að segja, að með þrautseigju og festu hefir stjórninni tekist að uppfylla öll skilyrði þjóðbandalagsins, enda þótt hún hafi átt og eigi altaf megnri mótspyrnu að mæta frá mótstöðuflokki sínum, jafnaðar- mönnunum. Vilji menn því gera sér grein fyrir framtíðarhorfum endrureisn- arinnar og ríkisins þar með, er óhjákvæmilegt að lýsa í stuttu máli því pólitiska ástandi þar í landi. Aðalflokkarnir eru tveir, sem sje kristilegir jafnaðaimenn (þ. e. aðallega embættismenn, iðn- aðarhöldar, bændur og kaupmenn), og fara þeir með stjórn ríkisins; hinsvegar eru jafnaðarmenn (þ. e. verkamenn, starfsmenn bæjanna, járnbrautar- og sporvagnamenn o. s. frv.); kommúnistar eru fáir og áhrifalitlir, og sama má segja um þjóðernis- og þýsksinna (Oeutsch- notionale), sem vilja sameina Aust urríki þýskalandi og mynda vold- ugt keisararíki aítur. Kristilegir jafnaðarmenn eru, með Dr. Seipel í broddi fylkingai', frumkvöðlar endurreisnarinnar í þeirri mynd, sem lýst hefir verið, og standa að framkvæmd hennar með byrgðum bökum. En jafnaðarmenn eru og hafa altaf verið mjög óánægðir, þykir endurreisnarbrautin torsótt og eríið og of dým verði og of mörgum skilmálum keypt; og hag- ur þjóðarinnar er yfir höfuð svo erfiður, að þeim veitist létt verk að ala á þessu og telja mönnum trú um, að þessu marki hefð' inátt ná á auðveldari hátt. Hæsi gengu and- úðaröldurnar gegn stjórninni í kosningunum síðasthðið haust, og hélt hún þó velli, en óhætt er að álíta, að eftirspil þeirra æsinga hafi verið tilræðið við kanslarann 1. júní s. 1., þó að jafnaðarmenn hafi engan beinan þátt átt í því og fordæmdu óhappaverkið ekki síður en hinir. Eins og áður er sagt hafa kristilegir jafnaðarmenn í sínum flokki stjórnmálaskörunginn Dr. Seipel, en jafnaðarmenn hafa í sín- um ílokki líka viðurkendan fjár- málaskörung, er Breitner heitir og er fjármálastjóri Vínarborgar, en þar ráða jafnaðarmenn lögum og lofum og hafa gert síðan í stríðs- lok. Einkum eru þeir umsvifamikl- ir í bæjarstjórninni, Breitner og læknirinn og líffæraprófessorinn Tandler, sem er stjómandi heil- brigðis- og uppeldismála í bænum; hús eru reist handa húsnæðislausu fólki fyrir marga miljarða árlega, bærinn tekur að sér fjölda spítala og líknarstofnana, sem áður hafa verið rekin með frjálsum samskot- um, en komist í þröng á þessum erfiðu tímum, og gömlum kirkju- görðum er breytt í skuggsæla skemtigarða fyrir fólkið o. s. frv. þetta kostar auðvitað mikið fé, en Breitner er snillingur að finna nýja skattstofna og heimtar skatt- ana inn með harðri hendi; koma þeir auðvitað þyngst niður á at- vinnurekendum hinum stærri, t. d. iðjuhöldum, stórkaupmönnum og gestgjöfum. Veldur þetta fjand- skap miklum milli flokkanna, eink- um í höfuðborginni, því að stjóm- in þarf líka að skattleggja þá, sem eitthvað geta af mörkum látið; þar við bætist einnig, að bærinn (bæj- arstjórnin) hefir þannig nóg fé yfir að ráða og borgar starfs- mönnum sínum hærra kaup en stjómin getur eða má borga vegna endurreisnarsamninganna, og eyk- ur það óánægju og mótþróa hjá ekki til greina í fyrstu á því sviði, þar sem kapphlaup þjóðanna var einkum þreytt. En þegar ræða skal alment um mentun íslendinga eins og hún er nú og eins og hún gæti verið, verður að taka tillit til þessara tveggja þátta, annarsvegar til baráttu- hæfileikanna, þeirra sem gera íslendingum fært að taka þátt í samkepni nútimans, án þess að vera fyrirfram vigðir ósigri, og á hinn bóginn til hinna mannbæt- andi og manngöfgandi eiginleixa, sem eru salt jarðarinnar og einir geta gert efnalegar framfarir nokkurs virði. — Nokkrar breytingar hafa orðið á þeim rúmum fjórðungi aldar, sem liðinn er siðan Einar Benediktsson orti kvæði sitt um strandsiglinguna. En í öllum aðalatrið- um er þó sú mynd, sem þar er brugðið upp, táknandi fyrir menningarlif þjóðarinnar, styrk hennar og veikleika. II. Skólar íslendinga. Eins og áður er sýnt, hefir skortur á verklegri þekk- ingu verið höfuðeinkennið á menningu íslendinga, og um leið undirrót hins fjárhagslega vanmáttar þjóðarinnar. Menning landsins, það sem hún hefir verið og er, á sér tvennar rætur. Annarsvegar er alþýðumentunin, heimafræðslan, sjálfmentunin, alt það uppeldi, sem hið sérkennilega sveitalif á íslandi hefir skapað. Sá þroski á skólunum mjög lítið að þakka, og verður síðar itarlega vikið að þeirri hlið málsins. í öðru lagi er skólamentunin. Hún hefir nær eingöngu verið eftir erlendum fyrirmynd- um, eða öllu heldur mótuð af þeirri þjóð, sem íslendingar hafa haft mest saman við að sælda á liðnum öldum, en það eru Danir. Að vissu leyti hefir það sjálfsagt verið lán fyrir ís- land að fá að fylgja i kjölsog einhverrar mentaþjóðar. Að því leyti er sjálfsagt skylt að þakka fræðsluna. En á hinn bóginn hefir margt verið ömurlegt og óheppilegt fyrir ís- lendinga i þessari uppeldisaðstöðu. Fyrsti og auðsæasti gallinn er sá, að íslendingar hafa orðið að fá öll erlend áhrif gegnum Danmörku, og með þeim blæ, sem danskt þjóðareðli setti á heismenninguna. Eitt dæmi skýrir þetta líka á öðrum sviðum. íslendingar hafa þingstjórn, að því er talið hefir verið eftir enskri fyrirmynd. En svo er þó ekki. Alt þingskipulag íslendinga er fengið gegnunr Danmörku og danska reynslu, og er í ýmsum mjög veru- legum atriðum frábrugðið hinni upprunalegu fyrirmynd. þannig hefir Danmörk fyrir íslendinga í nálega öllum and- legum málum orðið sama og allur hinn mentaði heimur. Eitt dæmi í málvenjunni sannar þessa yfirdrotnun danskra áhrifa. Til skamms tima, og líklega víða enn, hefir verið siður að kalla allan erlendan verksmiðjuvarning, sem fluttur er inn, d a n s k a n. Fyrir íslendinga var alt það útlenda danskt, af því að Danmörk var sá blettur aí hinum stóra heimi, sem íslendingar komust í nokkur veruleg kynni við. Garður eða fribústaður íslenskra stúdenta i Khöfn var sú taug, sem batt skólalíf íslendinga við umheiminn í undangengnar þrjár aldir. Vegna Garðvistar gátu fátækir, efnilegir islenskir námspiltar komist út fyrir pollinn, og dvalið árum saman í stórum menningarbæ við margskon- ar listalindir. þetta var ljósið i myndinni. Skuggahliðin, sem Danir gátu í sjálfu sér ekki gert að, var sú, að þessi sambúð íslendinga og Dana var undarlegt sambland af sérréttindum, gustuk og kúgun, sem hafði alla tíð óheppi- leg áhrif á námsdvöl íslendinga i Danmörku. það þarf ekki annað en minna á þjóðsöng íslands: Eldgamla ísafold. Höfuðgalli hans er sú ósanngirni, sem þar kemur fram i garð Dana. Skáldið bar, er hann orti kvæðið, óvingjarn legan hug til Danmerkur. þessvegna getur hann ekki lof- að ættland sitt án þess að lasta Danmörku um leið. Nú er Bjarni Thorarensen vafalaust einn hinn fremsti maður þeirra íslendinga, sem numið hafa í Khöfn. Og úr því að sambúðin við Dani gat gert hann svo litblindan og rang- sýnan um auðskilið mál, eins og þjóðsöngurinn ber vott um, má nærri geta, hversu farið hefir um þá, sem höfðu minni dómgreind. Enda mun það mála sannast, að síðan þjóðernistilfinning íslendinga vaknaði, hafa langflestir ís- lenskir námsmenn í Khöfn, og einkum þeir, sem mikið var í spunnið, borið kala i brjósti til Dana og Danmerkur, með- an þeir stunduðu þar nám. Hér er ekki staður til að rekja orsakir þessa kala. Hann var án efa sprottinn af þjóðmetn- aði íslendinga, sem var lítið fullnægt með hinn hálf eftir- töldu og hálföfunduðu aðstöðu íslendinga á Garði. Ómögulegt er að hugsa sér meiri mismun á aðstöðu upprennandi námsmanna, heldur en fyrir unga íslend- inga, tilvonandi leiðtoga þjóðar sinnar á ýmsum sviðum, þar sem þeir stunda nám í Khöfn, og unga Englendinga, líka framtíðarleiðtoga sinnar þjóðar, sem nema í Oxford cða Cambridge. íslendingarnir koma til erlendrar þjóðar, sem fram að þessu hefir talið sig yfirþjóð. Sífelt koma fram í daglegri umgengni, svo að segja fyllir andrúms- loftið, hleypidómar um „Biland“, „Atlantshafseyjar", Eski- móa á Grænlandi og Islandi o. s. frv. Landarnir halda saman, finst ástæða til að þjappast saman gegn mótstöð- unni. pcir komast litið í kynni við hið eiginlega líf i stór- borginni, hafa ekki ástæður til þess efnalega eða öðru- vísi, og óska jafnvel ekki eftir því. þeir fá aðgang að kenslubókum, heimavist á Garði og lágmarksstyrk til að draga fram lifið i 4 ár. Heimilisleysið, einangrunin og vissan um að „þar sem enginn þekkir mann, þar er gott að vera“, beina unglingunum leið að knæpunum, götu- slarkinu, kaffihúsunum. þess vegna hafa slysfarirnar orð- ið svo ótrúlega miklar á Hafnar leiðinni. Af hverri kyn- slóð ungra íslendinga i Höfn liefir stórbærinn tekið sinn toll, og hann ekki smáan. Hringiðan hefir sogað þá sem minst höfðu mótstöðuaflið, niður í undirdjúpin. þeir sterk- ari hafa komist lifandi yfir hina veiku ísspöng. En hve margir þeirra gætu ekki sagt með Grím Thomsen: „Kalinn á hjarta þaðan slapp eg“. -----0-----

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.