Tíminn - 31.01.1925, Síða 4

Tíminn - 31.01.1925, Síða 4
20 T í M 1 M K Vagnhjól frá Moelven Bmg fást lijá Sambandi isl. samvinnufélaga. Mandavinnunámsskeið verður haldið í Kennaraskólanum í vor frá 14. maí til 28. júní (6 vikur). — Námskeiðið er sérstaklega ætlað kennurum, og þar einkum kent það, sem er við barna hæfi: saumaskapur, prjón og hekl, bursta- og körfugerð, bastvinna, útsögun og mottugerð, skógerð o. fl. Kenslutími 6 stundir á degi hverjum. Kenslugjald 60 krónur. Efnisgjald 50 kr. Kenslu- og einisgjald greiðist fyrirfram. Utanáskrift: „Hlín“, Reykjavík. Halldóra Bjarnadóttir Togaravitið. Mbl. ber sig illa út af leiðrétt- ingunni, sem það fékk ú't af afla „Skallagríms". Hefir sennilega fengið ákúrur fyrir. Ritstjórarnir hafa því auðsjáanlega þotið í ein- hvern útgerðarmanna sinna til að leita ráða um það hvernig þeir gætu smeygt sér-úr klípunni. En þó hafa þeir ekki haft togaravit til að fara rétt með upplýsingarn- ar. það hefði máske verið réttara vegna Mbl. að geta þess, að hér var reiknað með þurrum fiski þeg- ar hin 2200 tonn Morgunblaðsins voru virt. Aldrei virti Tíminn hinn raunverulega afla „Skallagríms“ á 2i/2—3 milj. kr., heldur er sá afli sem Mbl. talaði um virtur svo hátt. Má Mbl. frómt um tala, þar sem það sjálft virti 2200 tonn á 3/4 milj. kr. það hætti víst flest- um hluthöfum Mbl. lítið, að fá ekki nema ca. 375 kr. fyrir tonnið af þurrum fiski, og jafnvel þó blandaður væri. En það má satt vera að Mbl. hafi átt við blautan fisk en ekki þurran, ef það þá þekkir mun á blautum fiski og þurrum. En það er full ástæða til að efast um það. því nú opinbera hinir vísu ritstjórar það, að þeir þekkja ekki mun á lifur og lýsi. Mbl. telur lýsisföt „Skallagríms" hafa verið 2700, en það voru raunar lifrarfötin sem náðu þeirri tölu. Mbl. hefir þó flutt svo oft fregnir um lifrarfata-f j ölda togar- anna, að þetta hefði átt að geta því, að hér sé rétt ályktað. Sam- timis og hundrað króna seðillinn er sendur til þess að hæða tilgang j arðræktarlaganna, lög þingsins um landbúnaðarlánadeildina að engu höfð, 0g íhaldsbréfið samið og sent, er sjávarútveginum eigi aðeins leyft heldur hjálpað til að kaupa marga botnvörpunga og vélskip, og hús reist í tugatali í sjávarþorpum, og verslunarstétt- inni leyft að flytja inn silki í stór- um stíl í gegnum hin frægu inn- flutningshöft, hvað þá annan óverulegri óþarfa. Enda er stór- útgerðin og kaupmannastéttin ekki í vafa um hvert lófi Ihalds- ins veit. íhaldsbréfið hefst með því að vitna í umburðarbréf frá báðum bönkunum, sem þeir hafi sent við- skiftavinum sínum, og varað við að ráðast í ný fyrirtæki eða aukn- ing eldri fyrirtækja, en bendir hinsvegar á nauðsyn þess að láta það ganga fyrir öðru að koma framleiðslufyrirtækjunum á ör- uggan fjárhagslegan grundvöll. Og gjaldeyrisnefndin tekur undir þetta og kveðst samþykk ,stefnu‘ þeirri sem komi fram í umburðar- bréfi bankanna. þetta út af fyrir sig er nú gott og blessað, ef lifað væri sam- kvæmt því. En myndir úr lífinu bera vott um annað. Sömu mán- uðina og sjávarsíðan kaupir sér skipin og reisir sér húsin og klæð- ist silkinu, sem af fjárhags-for- sjóninni íslensku er talið svo ómissandi til þess að koma fram- leiðslufyrirtækjunum á öruggan verið rétt. En togaravitið er ekki neitt tólfkóngavit. þessi síðari villa verður litlu skárri en sú fyrri, því venjulega er talið að 3 lifrarföt geri 2 lýsisföt. Hér eyk- ur því Mbl. aflann enn um helm- ing. það hefnir sín að þekkja ekki muninn á lifur og lýsi. En vera kann að Mbl. vilji enn afsaka sig með því að „lýsisfat“ hafi verið prentvilla fyrir „lýsistunna“. Nú er það sem sé orðin föst regla að Mbl. kallar það prentvillur, sem aðrir nefna fjólur. það mun ekki vera fjarri, að lýsistunna fáist úr lifrarfatinu. Ef þessi kostur er tekinn játar Mbl. á sig, að það þekki ekki muninn á tunnu og fati. Og er það e. t. v. eitthvað skárra en að þekkja ekki sundur lifur og lýsi, einkanlega þar sem hug- myndir Mbl. um mæli og vog hafa ekki verið vel „klárar“ síðan í ' Krossanesi í sumar. Ekki skamm- | ast Tíminn sín fyrir að hafa talið lifrarfatið svara til 3 skippunda af þurrum fiski. Hið sama gerir „Ægir“, sem er töluvert betur að sér um allan útveg en Mbl. En það má ekki taka hart á því hjá Mbl. þó það viti þetta ekki þegar það kann ekki mun á blautum fiski og þurrum, lifur og lýsi, tunnum og fötum og jafnvel tunnum og tonn- um. það munar litlu hvort skrifað er u eða o hjá þeim sem kalla fjólurnar prentvillur og vanþekk- ingu sína mishenni. En Tíminn gat ekki stilt sig um að vekja at- grundvöll, er komið með nokkur hundruð króna veltrygt skulda- bréf til Islandsbanka frá frumbýl- ing, sem þarf að greiða andvirði allra húsanna á ábýlisjörðinni sinni, og svarið er skýrt og greini- legt: „Slíkt lán höfum við ekki veitt í mörg ár“. Og lánið hefir ekki enn fengist í öðrum lánsstofnunum. Er landbúnaður ekki talinn með framleiðslufyrirtækjum? Eða er það aðferðin að koma honum á öruggan fjárhagslegan grundvöll að neyða til vanskila, ellegar að öðrum kosti til þess, að taka framan af öllum bústofnin- um á byrjunarárinu. Og synjunin sem um var getið er ekkert einsdæmi. Frjósöm og vel setin sveit er staðráðin í því að koma sér upp samgirðingu, sem öllum þeim, sem aðstæðurnar vita, kemur sam an um að sé hið mesta hagsmuna- mál fyrir hlutaðeigendur. En þá kemur íhaldsbréfið í þessa sveit, eins og allar aðrar sveitir. Ihalds- þingmaður á heima í sveitinni og verður ráðafátt. Hyggur að bréfið geti ómögulega verið stílað upp á sína sveit. Enda virðist það ærið hjákátlegt. En upp á hvaða sveit- ir er það þá stílað? Reyni maður að lesa einhvern skiljanlegan tilgang annan en aumustu Ihalds-hlutdrægni, milli línanna, á þessu merkilega bréfi, kemur manni helst til hugar að einhverjar gengisbreytingar séu í vændum. íslensk króna muni hækka von úr viti. En þá kom Besta og ódýrasta efni í þök. Tíu ára ábyrgð á þökunum. Þurfa ekkert viðhald þann tíma. Létt -------- Þétt --------- Hlýtt Betra en bárujárn og málmar. Endist eins vel og skífuþök. Fæst alstaðar á Islandi. Jens Vílladsens Fabriker, Köbenhavn K. Biðjið um verðskrá vora og sýnishorn. tiiii þessu eina ínnlenda félagá þegar þér sjóvátrygg’ið. Sími 542. Pósthéll 417 og 574. Símnefní: Insurance. hygli á togaraviti Mogga. þegar ! togaravitið er á þessu stigi er ekki að furða þó fjóluræktin blessist. Út af hinu snögga afturhvarfi( ?) j Jóns þorlákssonar í Búnaðarlána- j deildarmálinu, rétt fyrir þingsetn- j ingu, datt einum góðum manni í i hug að minna syndara þennan á orð í kveri síra Helga. það er 160. greinin, og hljóðar hún svo: „pótt afturhvarf á dauðastund- unni sé eigi ómögulegt, er það sjaldgæft og torvelt, og enginn á það víst, að síðustu æfistundir bréfið helst til seint í sveitimai’. Sláturstíð lokið og önnur förgun á fénaði en niðurskurður ekki fram kvæmanlegur. Og ætli aflaföngin til lands og sjávar næstu ár séu ekki jafnmikil ráðgáta nú eins og í fyrra? En eigi að afsaka eftirlætið í peningasökum við sjávarsíðufólk- ið með því, að þess framkvæmd- um um framleiðslu sé það að þakka hvað íslensk króna hefir hækkað í verði á þessu ári, þá mætti minna á hitt, að á sínum tíma var það nær eingöngu aðgerð um þessa sama fólks að kenna, hvað krónan féll í verði. Og þótt uppgrip sjávarafla hafi nú hækk- að verðgildi krónunnar, þá var það landbúnaðurinn sem megnaði að segja hingað og ekki lengra, þegar alt var að síga á ógæfuhlið um fjárhagsástand þessarar þjóð- ar. Og þá stundina bar það við að frumbýling í sveit var eigi vísað á dyr úr öllum lánsstofnunum, þótt hann þyrfti á smáláni að halda. Eru þá áraskiftin ef til vill sprottin af matarást lánsstofnan- anna á atvinnuvegunum ? Sé svo, þá er maður ekki úr- kula vonar um það, að „máttur vaxtanna“ megni að launa fleirum vel, en þeim háu herrum sem nú fara með forsjón peningamál- anna. Hugsast gæti að hann kynni að opna augun á þeirri fjölmennu stétt sem nú er höfð að olnboga- barni. Guðbrandur Magnússon. hans verði þannig, að hann geti á þeirn búið sig undir dauðann. J>að er því háskaleg fásinna og of- dirfska að fresta afturhvarfi sínu fram að andlátinu“. Aftakaveður af útsuðri gerði hér um slóðir aðfaranótt og fram eftir miðjum degi 21. þ. m. Muna menn vart verra veður. Urðu af miklar skemdir í bænum. Skúrar fuku um víða og járn af þökum. Var mesta mildi að ekki hlutust meiðsli af á mönnum, er jám- plöturnar fuku um bæinn. Á höfn- inni urðu engar verulegar skemd- ir, en símalínur slitnuðu afarmik- ið svo Reykjavík varð úr öllu landssímasambandi og auk þess slitnuðu rafleiðsluþræðir svo víða varð ljóslaust. Veður þetta mun hafa verið jafnmikið um alt Vest- urland, en minna er austar dró. Að því er frést hefir má vona að hvergi hafi orðið manntjón á sjó af veðrinu. Höfðu gengið illviðri áður, svo að sem engir voru á sjó. En þegar er frétt um margskonar skemdir. Um 70 símastaurar brotn uðu í grend við Reykjavík. Úr austursýslum er frétt um húsafok og heyja ekki óvíða. Af Vestfjörð- um hefir orðið nokkuð tjón af að báta hefir rekið á land. En í Grindavík varð stórtjón af veðr- inu og sjávarflóð. Flæddi sjór miklu hærra en nokkur mundi, eða hafði heyrt um getið. Er búist við að tún nokkurra jarða séu alveg eyðilögð af flóðinu. Ibúðarhús eyðilagðist alveg og annað mjög, 12 saltskúra braut sjórinn og eyði- lagði víða mikið af mat í kjöllur- um. Búist er við að mikið af fé hafi druknað og margir bátar brotnuðu. Ný blöð tvö eru farin að koma út. Annað heitir Vor og er Stefán B. Jónsson ritstjóri. Hitt heitir Klukkan og eru ritstjórar Guð- brandur Jónsson og Tryggvi Magn ússon málari frá Hólmavík. Vegna bilunar í prentsmiðjunni er þetta blað síðar á ferðinni en venja er til. þjófnaður. Unglingar hér í bæn um, 12—16 ára eru sannir orðnir að sök um að hafa haft með sér félagsskap um marga smáþjófn- aði. Prentsm. Acta Mjóstræti 6 Símnefni: Acta — Talsími 948 Um leið og vér minnum yður á prentsmiðju vora, sem viðurkend er af öllum viðskiftamönnum fyrir vinnuvöndun og sanngjarnt verð, leyfum vér oss að tilkynna yður að vér höfum keypt bókbands- vinnustofu Ársæls Árnasonar og sameinað hana þeirri vinnustofu er vér áður höfðum, svo nú höf- um vér stærstu og fullkomnustu vinnnstofuna í þessari iðn hér. Ef þér þurfið að láta binda bælcur, þá spyrjist fyrir um verð hjá oss eða sendið oss bækurnar, sem verða þá bundnar vel, en þó ódýrt og síðan sendar yður gegn póst- kröfu. Prentsm. Acta Jörðin Skúfslækur í Villingaholtshr. í Árnessýslu fæst til kaups og ábúðar í næstu fardögum. Hún er talin í flokki bestu jarða í sýslunni og er vel hýst. Nánari upplýsingar allar veitir Sigurður trésmiður Guðmunds- son, Hverfisgötu 89 Reykjavík, eða Stefán Sigurðsson Haga. Laus staða. Framkvæmdarstjórastaðan við Kaupfélag Eskifjarðar er laus til umsóknar frá deginum í dag að telja. Umsóknir stílist til stjórnar íélagsins, og skulu þær vera komnar til hennar eigi síðar en 15. apríl n. k. Umsækj endur skulu tilgreina launakjör þau, er þeir vilja hafa, og láta fylgja einhver skilríki fyr- ir verslunarþekkingu sinni. þess skal getið að félagið getur látið framkvæmdarstjóranum í té íbúð í húsum félagsins, ef óskað er. Staðan veitist frá 1. júní n. k. að telja. Eskifirði 9. janúar 1925. F. h. stjórnar Kaupfélags Eskifjarðar. Jón Valdimarsson. íCensiubskur eftir Jónas Jónsson: íslandssaga II. og dýrafræði I. (spendýrin). Ársæll Árnason gaf út. Fást hjá öllum bóksölum. Is- landssaga I. (3. útgáfa með mynd um), dýrafræði II. (fuglarnir) og nýju skólaljóðin (með myndum af helstu skáldunum á 19. öldinni). Bókafélagið gaf út. Fást hjá ná- lega öllum kaupfélögum og nokkr- um bóksölum. Ilaraldur Sigurðsson píanóleik- ari eykur enn mjög við hróður sinn í Kaupmannahöfn. Telja blöðin hann einhvern hinn snjallasta pí- anóleikara sem þar getur að heyra. Vélbátur frá ísafirði strandaði laugardag síðastliðinn á Hólatöng um við Bolungarvík. Menn björg- uðust allir. Silfurbrúðkaup áttu hjónin frú Aðalbjörg Jakobsdóttir og Gísli læknir Pétursson á Eyrarbakka 9. des. s. 1. Við það tækifæri færðu nokkrir vinir þeirra af Eyrar- bakka og úr sveitunum í kring þeim hornskáp útskorinn, lista- verk mikið, er gert hafði Ríkarð- ur Jónsson listamaður. Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson. Prentsmiðjan Acta.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.