Tíminn - 13.03.1925, Page 2
48
T ! H I If N
lestarrúmi, sem frá gengi í klæðningar og tróð, er talið
að muni nema um 200.000 krónum, svo í raun og veru er
ekki hægt að telja meira framlagt vegna kæliflutning-
anna en umræddar 200 þús. krónur. Aftur á móti mun
óvarlegt að gera ráð fyrir að svona dýrt skip gæti borið
sig fyrstu árin og þykir okkur því varlegra að áætla að
allverulegur hluti af verði skipsins sje lagður fram af
ríkissjóði og ekki gert ráð fyrir arði af því fje, nje fram-
lögum einstaklinga, nema reynslan sýni að skipið borgi sig
betur en við ætlum.
Fer hjer á eftir frumvarp til laga um kaup á kæli-
skipi:
Frumvarp
til laga um kaup á kæliskipi.
1. gi’ein. Með forgöngu ríkisstjórnarinnar skal undir-
búningur þegar hafinn til þess að fullkomið kæliskip verði
keypt til landsins.
2. grein. Ríkisstjórnin skal skipa 5 manna nefnd sjer
til aðstoðar um að annast framkvæmd málsins. Nefndar-
menn skulu skipaðir samkvæmt tilnefning Búnaðarfjelags
íslands, Fiskifjelags Islands, Sambands íslenskra Sam-
vinnufjelaga, Yerslunarráðsins og Eimskipafjelags Islands
og skal fulltrúi hinnar síðastnefndu stofnunar vera for-
maður nefndarinnar.
3. grein. Nefndin skal gangast fyrir hlutafjársöfnun
um land alt til kæliskipskaupanna.
4. gi-ein. Úr ríkissjóði skal leggja fram, ef til kemur,
alt að þriðjung kostnaðar við kaup á skipinu, í hlutafje, þó
eigi yfir 600 — sex hundruð —þúsund krónur.
5. grein. Nefndin skal leita samninga við Eimskipa-
fjelag Islands um að það leggi fram ákveðinn hluta hluta-
fjárins sem þarf til skipakaupanna, sem verða mætti for-
gangshlutafje, og um að það taki að sjer rekstur og stjóm
kæliskipsins að öllu leyti.
6. grein. Nú þykir fullsjeð að nægilegt hlutafje aflist
til skipakaupanna og hefir nefndin þá vald til, í samráði
við ríkisstjórnina, að semja um smíði, eða um kaup á kæli-
skipi, ráðstafa rekstri þess og gera nauðsynlega skipun á
um hversu háttað verði eignarumráðum yfir skipinu.
7. grein. Lög þessi öðlast gildi.....................
þó hjer sje gert ráð fyrir að smíðað sje nýtt og full-
komið kæliskip, sem helst ætti að vera talsvert hrað-
skreiðara en þau skip, er nú ganga hjer við land, þá telj-
um við rjett, að leitað sje kaupa á gömlu skipi, ef það
skyldi reynast hagfeldara. Til leiðbeiningar látum Við
fylgja lista yfir öll kæliskip, sem nú eru í förum í eigu
manna í breska ríkinu.
Við höfum áður minst lauslega á álit kjötútflytjenda
um kaup á kæliskipi. Má heita að allir, sem skrifað hafa
nefndinni, sjeu einhuga um að leggja til að keypt sje skip
með kæliútbúnaði. Fylgja brjefin hjer með.
Við sjáum ekki ástæðu til að koma með frekari skýr-
ingar við áðurnefnd frumvörp um lán til frystihúsa og
kaup á kæliskipi, en þegar hefir verið gert í þessu áliti okk-
ar. —
En að lokum viljum við segja: pó við leggjum hina
mestu áherslu á, að komið sje upp íshúsum í helstu kjöt-
útflutningshjeröðum landsins svo fljótt sem því verður við
komið, álítum við að ekki megi draga útvegun kæliskips
þangað til íshúsin eru reist, heldur verði að gera ráðstaf-
anir til að leigja eða eignast slíkt skip strax.
Tilraunir þær, sem gerðar hafa verið, hafa þegai'
sýnt það, sem þær áttu að sýna og geta sýnt, og er til-
gangslaust að halda þeim áfram í sama horfi og áður.
Nú er að því komið að geta aukið útflutninginn bæði af
kældu kjöti og frosnu frá íshúsum, sem þegar ei-u til og
þeim sem reist kunna að verða, en þessi útflutningsauki
getur því að eins hafist, sje kæliskip útvegað, því kælirúm-
ið í Gullfoss tekur ekki nema 1500—2000 skrokka á hausti.
Væntum við að hinu háa Alþingi skiljist hversu mik-
ið er í húfi fyrir bændastjett íslands um framkvæmd
þessa máls.
Reykjavík 26. febrúar 1925.
Jón Árnason. Tryggvi pórhallsson.
Umræðurnar voru snarpar og
með köflum persónulegar. Mest
kvað að því milli forsætisráðherra
annarsvegar en Magnúsar Torfa-
sonar og Jak. Möllers hinsvegar.
Jak. M. kvaðst vera hlyntur auk-
inni lögreglu, en frumv. væri flutt
svo klaufalega að engin tiltök
væru að vísa því til 2. umr. For-
sætisráðherra gat þess að ábyrgð-
armikið opinbert starf og staða
ætti að leggja band á þingmann
er því gegndi í framkomu hans í
málum gagnvart stjórninni. Jak.
M. mótmælti slíkum böndum.
Kvaðst hann hafa það eftir mik-
ils metnum manni úr fhaldsflokkn
um: „að frv. um varalögreglu
væri eins og vitlaus maður hefði
samið það“. Taldi hann ógerlegt
að fá þeirri stjórn lögreglu í hend-
ur, sem léti útlendum mönnum
óátalið haldast uppi greinileg brot
á lögum í landinu.
Magnús Torfason tók í sama
streng og Jak. M. Mótmælti hann
forsrh. af miklum móð, og taldi
að í stjórnartíð hans, hefði dóms-
málastjómina „sett niður“, þess-
vegna væri undarlegt að hann
flytti slíkt frv. nú, því áður hefði
hann daufheyrst við kröfum um
aukna laga- og tollgæslu, sem eðli-
lega stafaði af því að í íhalds-
flokknum væru ýmsir af helstu
lögbrjótum landsins. Benti hann
á aðrar leiðir til að styrkja lög-
regluna í Rvík, t. d. að brunaliðið
mætti kalla henni til aðstoðar ef
sérstakar óspektir kæmu fyrir.
Forsrh. svaraði aftur með mikl
um þunga í garð ræðumanns, og
áttust þeir við harða hríð. Tóku
í streng með honum samflokks-
menn hans, Sigurj. Jónsson, Jón
Kj. og fjárm.rh. J. p. og gerðú
allir athugas. við ræður andmæl-
enda, en töluðu fátt um frv. eða
nauðsyn þess.
Fjárm.rh. vildi víta Tr. p. fyr-
ir að halda því fram að stjórnin
fengi vald til ótakmarkaðrar fjár-
eyðslu handa varalögreglunni þó
að frv. yrði að lögum — og í því
- sambandi brá hann honum um
skilningsskort á stjómarskránni
og þingsköpunum. Ennfremur
ásakaði hann forseta fyrir slæ-
lega stjórn á umræðunum, og virt
ist ætla honum að draga úr ræð-
um andmælenda frv. — Yfirleitt
virtust ráðherrarnir þola þær
mjög illa, eins og aðalblað þeirra
ber glöggan vott um.
Jak. M. og Tr. p. svöruðu ákúr-
u.m fjárm.rh. og sýndu fram á
að hann hefði verið heldur fljótur
í ályktunum og farið með rangt
mál. Stjómin færi fram á ótak-
markaða heimild til fjárgreiðslu,
sem ekki væri gert ráð fyrir í
fjárlögum. Hinn síðamefndi minti
hann einnig á að enginn þingm.
hefði á síðari þingum sýnt eins
mikinn skilningsskort á þingsköp-
um og fjárm.rh. sjálfúr, og vitn-
aði hann til Alþingistíðinda frá
1921 og 1924, þar sem hann í bæði
skiftin hefði rofið þingsköp. Fjár-
málarh. tók þessu með þögn og
hógværð. — Úr Framsóknarfl.
töluðu einungis þrír: Ásg. Ásg.,
Sv. Ól. og Tr. p. Aðalræður þeirra
birtast hér í blaðinu, og má af
þeim sjá að þau ummæli fylgis-
manna fi*v., að þessar ræður hafi
mjög lítið fjallað um málið, sem
fyrir lá, eru bæði aumingjaleg
og staðlaus. I ræðum Framsókn-
aimanna komu fram ýmsar bend-
ingar um að styrkja og efla nú-
verandi atvinnulögreglu á alt öðr-
um grundvelli en frv. um vara-
lögreglu byggist á. Einnig var
bent. á leiðir til friðsamra úrslita
í kaupdeilumálum vinnukaupenda
og vinnuseljenda, vísað til þing-
mannafrv. um sáttasemjara og
gerðardóma í þeim deilum. Sv.
ÓI. mótmælti þeirri ályktun for-
sætisrh. J. M. að þeir sem væru
á móti varalögreglufrv. ættu að
bera ábyrgð á óeyrðum og mót-
þróa, sem lögreglunni yrði sýnd-
ur eftirleiðís, slíkt væri á valdi
löggæslumanna einna og mætti fá
þeim aðstoð til þess samkvæmt
núgildandi lögum. Ennfremur
benti hann á, að broslegt væri að
heyra ráðherrann éigna íhalds-
flokknum allar röggsamar fram-
kvæmdir á þjóðmálasviðinu. Fram
kvæmdir stjórnarinnar á innflutn
ingshöftunum, Krossanesmálinu
o. fl. o. fl., bæru henni óþægileg
vitni í því efni.
Bjarni frá Vogi mælti með vara
lögreglufrv. til nefndar, en vildi
svo fá það í alt annari mynd frá
nefndinni aftur. Annars ætlaðist
hann til að varalögr. yrði eins-
konar landvarnarher gegn útlend-
ingum, og sagði að hún ætti ein-
mitt að vemda verkalvðinn gegn
þeim! Verkamenn væru fjær því
en nokkur annar flokkur að sýna
ofstopa; hér væri engin stétta-
skifting o. s. frv. — Svona slóu
fylgismenn frv. sinn á hvem
streng um tilgang þess og verk-
efni. Sýnir það best hversu rök-
færsla þeirra var öll í lausu lofti,
og að „óheilindin og fláttskapur-
inn“ (sbr. ,,Vörður“) í skýringum
á málinu var allur þeirra megin.
þegar þeir gerðust illvígir í vörn-
inni fyrir frv. kom það í ljós að
flestir fylgdu þeir því hálfir, og
að aðalatriði þess væru þeir búnir
að gefa upp. Slagorð þeirra út af
því að andmælendur frv. skyldu
efna til svo öflugra mótmæla við
1. umr., hljóta því að skoðast sem
marklaust hjal eða kvartanir.
Framsóknarmenn sýndu fram á
að þetta mál væri alveg nýtt og
eigi borið fram að vilja nokkurs
kjördæmis, nema ef vera skyldi
sérstaks flokks í Reykjavík. þess-
vegna var sjálfsagt að krefja
sagna um ástæður og tilgang máls
ins, fyrst og fremst stjórnina og
síðan þingmenn Rvíkur. Tveir af
þeim lýstu sig andstæða eins og
áður er getið, en Magnús Jónsson,
sem að. líkum ber að skoða sem
fulltrúa fylgismanna frv., lét ekk-
ert til sín heyra. — Til viðbótar
því sem sagt er um undirbúning
frv. skal þess getið að flutnings-
maður (forsrh.) vai’ðist mjög
fregna og skýringa við fyrstu
framsögu þess, en þær komu í
síðari ræðunum, þegar mótmælin
voru búin að knýja á. því meir
sem leið á umræðurnar, því fleiri
komu þær í ljós veiku hliðar máls-
ins.
Af því að íhaldsmönnum gramd
ist svo mikið gagnrýning á frumv.
við 1. umræðu, gefur það grun um
að þeir hafi ætlast til að með-
ferð þess yrði einskonar myrkra-
verk í þinginu, sem fyrsta fram-
söguræða J. M. var hæfilegur inn-
gangur að.
Mál sem þjóðinni er nýtt og þeg
ar hefir fengið öflug mótmæli
víða af landinu, verður að sann-
prófast og þola þá eldraun og
skýringar sem kostur er á áður
en það hverfur til nefndar. Um-
ræðumar leiddu í ljós að það átti
að vísa frumv. frá þinginu og það
var mjög líklegt fram á síðustu
stundu að nægilegt atkvæðamagn
væri til þess í deildinni. Málið
átti ekki á þessum grundvelli að
þvælast fyrir nefndum eða fleiri
umræðum í þinginu.
Efri deild
þar hefir fátt gerst sögulegt
annað en skærur um nokkur
stjórnarfrumv. Frumvarp stjórn-
arinnar um að skifta skemtana-
skattinum og láta helminginn af
honum renna til Landsspítalans
var felt við 2. umr. í deildinni
með 9 : 4 atkv. Hafði menta-
málanefnd snúist öll gegn frumv.
og beitti sér mjög við umræðurn-
ar en forstrh. J. M. var einn síns
liðs og átti í vök að verjast.
Fleiri mál drógust inn í umræð-
umar og var eigi laust við met-
ing á milli J. M. og Sig. E. um
gildi þeirra sparnaðarfrumvarpa
er þeir áður höfðu flutt hvor um
sig og fylgi við þau, og einnig- um
framkvæmd á utanríkismálum. J.
J. taldi landsspítalasjóðinn -lítið
muna um svo litlar tekjur sem
hér væri um að ræða, svo að
það flýtti ekkert fyrir byggingu
spítala, aftur á móti mundi þetta
frumvarp geta hindrað þjóðleik-
húsbygginguna um mörg ár.
Beindi hann spurningu um það til
stjórnarinnar hvort mikið væri
fram komið af tillögum frá sparn-
aðamefndinni og hvort stjórnin
Jéti eigi merkari tillögur og frum-
vörp frá nefndinni liggja óhreyfð
í salti. Forsrh. lét lítið yfir því
að mál hefðu komið frá nefndinni
en lýsti því yfir að Landsspítala-
byggingin væri eitt hið fyrsta er
stjórnin hugsaði sér að fram-
kvæma. I. H. B*. tók það fram að
enda þótt hún vildi gera alt sitt
besta fyrir Landsspítalann, sem
væri aðalmál kvenþjóðariimar, þá
gæti hún ekki samþ. að það væri
gert á kostnað þjóðleikhússins.
Sjávarútvegsnefnd klofnaði um
frumvarpið um fiskifulltrúann á
Spáni og Italíu. Meiri hluti, Jóh.
J. og B. Kr. vildi láta samþykkja
það, en minni hl. I. P. bar fram
svohljóðandi rökstudda dagskrá:
,.Með því að deildin lítur svo á,
að í fisksölumálinu beri að leggja
aðaláhersluna á aukinn mark’að
fyrir íslenskan saltfisk utan Spán-
aj, og þar sem því marki virðist
engu síður verða náð með svip-
aðri starfsemi og verið hefir und-
anfarin ár, þá telur deildin stofn-
im embættis þess, er frv. fer fram
á, ekki nauðsynlega að svo stöddu
og tekur fyrir næsta mál á dag-
skrá.“ Flutningsmaður lét þess
getið að bankarnir og landsstjóm-
in hefði verið fús á að kosta starf
semi erindreka í Miðjarðarhafs-
lóndunum, þá tíma árs sem mest
væri um vert, mætti halda þv1'
áfram í sama formi og jafnframt
leita fyrir sér um markað víðar
og verða Spánverjum óháðari með
fisksöluna. Taldi hann að stofnun
embættisins með búsetu á Spáni,
mundi ekki flýta fyrir því enda
mundi þjóðin mótfallin stofnun
þessa nýja embættis. Dagskráin
var feld með atkv. íhaldsmanna
gegn Framsókn. En írumvarpið
samþ. Við 3. umræðu flutti J. J.
þá breytingartill. að íulltrúinn
mætti ekki vera í þjónustu ann-
:.rs ríkis, enda skyldi hann vera
fullkomlega óháður fjárhagslega,
ríkinu og ríkisstofnunum. Urðu
töluverðar hnippingar um hana
milli flutnm. og atvinnumálarh. er
taldi að till. væri stefnt gegn viss-
um manni, Gunnari Egilsyni, en
það væri alls óráðið hver hlyti
embættið. Flutnm. taldi sjálfsagt
ð setja þetta skilyrði fyrir veit-
ingunni, reynsla sú sem þjóðin
hefði af verslunarræðismönnum
sínum gæfi tilefni til þess. Fram-
sóknarmenn töldu íhaldsflokkinn
leggja aðaláhersluna á embættis-
stofnunina en minna á hxtt að
vinna að bættum og auknum
markaði fyrir sjávarafurðir.
Brtt. var feld með atkv. Ihalds-
inanna gegn Framsókn, en frumv.
samþ. og sent til Nd. Framsókn
greiddi atkv. á móti.
Snarpar deilur urðu um stofn-
un dócentsembættis í íslensku við
háskólann, handa Alexander Jó-
hannessyni. Forsrh. mælti með
frv. fyrir hönd stjórnarinnar. Sig.
E. tók því feginsamlega og taldi
að nú væri að gerast straumbreyt-
íng í þinginu í þá átt sem minsti
fiokkurinn, sjálfstæðisfl., hefði
stefnt, mál hans væru að sigra.
það mundi sannast að bráðum
yrði stoínað aftur sendiherraem-
bættið í KhÖfn o. s. frv. Danir
væru farnir að líta niður á okkur
fyrir afnám þess. Lögin um fækk-
un dómara í hæstarétti vonaði
hann að yrðu feld úr gildi áður
en það tækist að koma þeim í
framkvæmd. J. J. mælti mjög fast
á móti frv. Framsóknarflokkinn
bað hann undanþegin þeirri álykt-
un S. E. að þingið væri að snúast
inn á þessi stefnumál Sjálfstæðis-
flokksins. Rakti hann sögu þessa
embættis í fáum dráttum. Alex-
ander Jóhannesson hefði lesið
þýsku sem aðalnámsgrein og byrj-
að að kenna hana við háskólann
sem privatkennari, en fengið kaup
úr ríkissjóði með hjálp Bjama frá
Vogi; síðan hefði hann farið að
kenna gotnesku og íslenska mál-
fræði af því að það veitti honum
meiri líkur til þess að hann gæti
ílengst við háskólann.
Á síðasta þingi þegar spamað-
araldan reis hæst, og beindist
einkum að heimspekisdeild há-
skólans fyrir tilverknað formanns
Ihaldsflokksins, J. þ., er vildi að
miklu leyti leggja deildina niður,
gerði fjárvn. Nd. að tillögu sinni
að fella kenslukaup Alexanders úr
fjárlögunum. Framsm. þór. J.
hafði farið mjög niðrandi orðum
um starf hans í nefndarálitinu.
Ihaldsflokkurinn fylgdi þesari ráð
stöfun næstum einróma og samþ.
var í báðum deildum að fella þessi
laun A. J. úr fjárlögunum, og A.
J. hafði sjálfur látið það í
ljósi við fjárveitingan. í Ed. að
hann vildi ekki halda áfram. Nú
væri það ætlun J. M. að láta þetta
þing ónýta sainþykt þingsins í
fyrra og snúa ofan af öllum stjórn
arflokknum, þar á meðal hinum
ráðhermnum, og gera spamaðar-
hjal þeirra að ómerkum „vaðli“.
þetta þótti ræðumanni mikil
frekja af J. M. og ótrúlegt að
þingmenn létu kjöldraga sig svo.
Ennfremur gat hann þess til,
að þingm. Dalam. B. J. mundi
hafa stutt mjög fast að því við
J. M. að þetta embætti væri stofn-
að, því það sýndist vera áhugamál
hans að stofna eitt embætti við
háskólann á hyerju ári, enda stæði
svo á að stjórnin ætti honum mik-
ið að þakka, þar sem hann væri
þrautavaraatkvæði hennar.
Framsóknarmenn 5 greiddu at-
kvæði á móti frv. til nefndar, allir
hmir deildarmenn með því, þrátt
fyrir gerðir sínar á síðasta þingi.
Nú er eftir að sjá forlög þess í
neðri deild.
----o----
þrjú blöð koma út af Tímanum
í þessari viku.
Ritstjóri: Tryggvi þórliallsson.
Prentsmiðjan Acta.