Tíminn - 21.03.1925, Qupperneq 4
56
T 1 M I If H
Samgöngubætur til þykkvabæjai'
í Ásahreppi.
Alþingi hefir nýlega borist
málaleitun, undirrituð af öllum
bændum í þykkvabænum í Rang-
árvallasýslu, um að lögð verði
símalína 1 þéttbýlið til þeirra.
Mundi línan verða lögð frá Ægis-
síðu á vestari bakka Ytri Rang-
ár, á að giska 16 kílómetra leið
í þykkvabæinn, því að nú hefir
verið hlaðið í Djúpós. Bjóðast
bændur til að flytja alt efnið,
staura og vír, frá Vestmannaeyj-
um og á vettvang. Ætti að mega
vænta þess, að ríkið hlypi frem-
ur undir bagga með þeim sem
mikið vilja á sig leggja. — Verð-
ur ekki um það deilt að á þessum
stað eru nú hinir mestu mögu-
leikar til að auka búin í stórum
stýl. Með fyrirhleðslunni í Djúp-
ós hefir graslendið vaxið gríðar-
lega þarna, hundruð dagslátta af
síbreiðu engi hefir komið upp úr,
því að nú flæðir þverá ekki leng-
ur yfir. Alt landið er véltækt og
svo hart að verða að ekki getur
betra engi. þarna hlýtur því að
verða eitt hið mesta framtíðar-
pláss. þarna ætti að koma upp
eitt hið mesta rjómabú á land-
inu, en hinsvegar eru Vestmanna-
eyjar úti fyrir, sem kaupa mjög
mikið af heyi. — En sveitin er
afskekt, lendingin ill og hvorki
sími né vegur, enda var þarna alt
undir vatni þangað til hlaðið var
fyrir í hitt eð fyrra. Síminn er
því hin nauðsynlegasta fram-
kvæmd fyrir þetta hérað og á
sama stað hlýtur vegur að
koma von bráðar, sem einnig
kæmi að fullum notum fyrir út-
part Vestur-Landeyja, en þar lá
land einnig undir vatni áður, ens
hefir nú hin sömu skilyrði til
stóraukinnar framleiðslu. Verður
vegurinn auðlagður síðan vatnið
fór. Gætu þá bílar farið um alla
þessa ómælilegu engjabreiðu. —
Er þess að vænta að þingmenn
taki vel undir svo sjálfsagða
málaleitun. p. J.
----o-----
Knútur Kristinsson héraðslækn
ir hefir sagt lausu Nauteyrarhér-
aði.
Hreindýr þrjú sáust á Mosfells-
heiði nýlega.
Aflabrögð. Úr öllum veiðistöðv-
um hér syðra berast fregnir um
nógan fisk og ágætan afla þá er
gefur á sjó.
„Dýralíf“ heitir nýtt blað sem
Ólafur Friðriksson bæj arfulltrúi
er að byrja að gefa út: 9 blöð á
ári í líkri stærð og Dýraverndar-
inn og kostar 2 kr. árg. Fer vel
af stað með margháttaðan fróð-
leik um líf dýranna, bæði hér á
landi og um heim allan.
„Havðjaxl" gefur Oddur Sigur-
geirsson „hinn sterki af Skagan-
um“ út af nýju, eftir nokkra
hvíld.
----o----
Yfir landamærin.
Björn Líndal stendur enn alveg
orðlaus og ráðþrota með lygasöguna
um að J—3 Framsóknarmenn liafi
staðið móti hagsmunum bænda við
atkvæðagreiðslu um kjöttollinn.
Fimm Framsóknarþingmenn ráku
ósannindin ofan í iiann með vottorði
í Degi. Var þá eins og stungið væri
steini upp í Björn. Enginn flokks-
manna hans vill 1 já honum liðsyrði.
Ekki hallast á um giftu .Tóns Kj.
og Valtýs. Meirihluti þeirra sem kusu
i fyrra í Skaftafellssýslu, hafa afsagt
Jón. Mbl.þingmenn útnefndu Valtý í
stjórn Búnaðarfélagsins í fyrra. Sjálf-
ur finnur hann strokumanns aðstöð-
una. Ilann þorði varla að láta sjá
sig á Búnaðarþinginu. það komst
upp að hann hafði ekki einu sinni
reynt að kynna sér skjölin, sem fyrir
þinginu lágu. Að lokum ætlaði hann
að sigla háan vind og halda ræðu
-- til að tortryggja einn af helstu
mönnum félagsins. En allir tóku
ræðunni með ískaldri fyrirlitningu.
Sá Valtýr þá sitt óvænna og flýði út í
myrkrið. Helst er því spáð að Valtýr
verði að segja af sér. Hallast þá
ekki á með hjú Berlémes og Fengers.
Guðm. á Sandi sagði eitt sinn í
ræðubyrjun í Rvik, að áheyrendur
myndu varla koma til að hlusta á
ræðuna heldur til að sjá á honum
„höfuðleðrið" = sama og andlitið.
Guðm. sýnir nú í braskarablöðunum
syðra og nyrðra höfuðleðrið með af-
brýðissemi og skömmum um Einar
Kvaran. Guðm. er stórreiður þeim
þingmönnum sem þótti of lítið handa
F.. K. að vera á einum þrettánda af
launum E. Claessens. Guðm. er fok-
reiður bæði yfir að E. K. þykir ólikt
meira skáld en hann og fær eftir-
tölulaust miklu hrerri skáldalaun.
Við erum aflaklœrnar, útgerðar-
menn, sagði Ólafur Thors við þjórs-
árhrú 1922, frú okkur eiga að koma
peningarnir i ræktun landsins. pá,
var Ólafur að biðja bændur að kjósa
Kaupið
íslenskar vörur!
Hreini Blautsápa
Hrein£ Stangasápa
Hreini Handsápur
Hreini K e rt i
Hreinl Skósverta
Hreins. Gólfáburður
Styðjið íslenskan
iðnað!
H.f. Jón Sigmundsson & Co.
arzxxxcxzzxp
og alt til
upphluts
sérl. ódýrt.
Skúfhélkar
úr gulli og silfri.
Sent með póstkröfu út
um land, ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiSur.
Sími 383. — Laugaveg 8.
KELOTTE
Alfa-
Laval
skil vind'ur
reynast best
Pantanir annast kaupfé-
lög út um land, og
Samband ísL samviélaga.
Grjalddagi Tímans
er í Rvík 15. mars og 1. okt., en aimarst. 15. júní.
Þeir 1500 af kaupendum Tímans, sem fyrstir greiða andvirði
yfirstandandi árgangs, fá í kaupbæti EndurminningHr Tryggva Gunn-
arssonar.
óí)
tí
A
tu
n
Aðalumboðsmenn:
Á. ÓLAFSSON & SCHRAM
Simn.: Avo. Sími: 1493
Laus staða.
Framkvæmdarstjórastaðan við
Kaupfélag Eskifjarðar er laus til
umsóknar frá deginum í dag að
telja. Umsóknir stílist til stjórnar
félagsins, og skulu þær vera
komnar til hennar eigi síðar en
15. apríl n. k.
Umsækjendur skulu tilgreina
launakjör þau, er þeir vilja hafa,
og láta fylgja einhver skilríki fyr-
ir verslunarþekkingu sinni.
þess skal getið að félagið getur
látið framkvæmdarstjóranum í té
íbúð í húsum félagsins, ef óskað
er.
Staðan veitist fré 1. júní n. k.
að telja.
Eskifirði 9. janúar 1925.
F. h. stjórnar
Kaupfélags Eskifjarðar.
J. M. á þing. Nú hefir einn Fram-
sóknarmaður í Ed. borið fram frv.,
um að láta stórgróðánn hera nokk-
urn skatt sem nota skal til að byggja
upp sveitabæi og auka ræktunina.
Jón porl. bað að drepa frv. strax.
Honum fylgdu að því Jón Magnús-
son, Hjörtur, Jóhannes, Sira Eggert.
pannig er áhugi Marðarmanna fyrir
viðreisn sveitanna.
Ekkert er Mbl.mönnum á þingi
jafn viðkvæmt og ef minst er á að-
stöðu þeirra til Berlémes og þjóna
hans. Er auðséð að þeir skammast
sín fyrir þann leynifélagsskap.
X.
Jón Valdimarsson.
BÆKUR BÓKAFÉLAGSINS
fást hjá nálega öllum kaupfélög-
um og nokkrum bóksölum. ódýr-
ustu, auðveldustu og skemtileg-
ustu náms- og fræðibækur fyrir
börn og unglinga.
án sérstaks endurgjalds. þeir eru
og skyldir að annast útborganir
á lánum fyrir sjóðinn, ef hann á
peninga liggjandi hjá þeim til
þess. Lán úr Rsj. mega greiðast
eftir vild í peningum eða vaxta-
bréfum eftir ákvæðisveYði þeirra,
én skyldur er sjóðurinn að ann-
ast sölu bréfanna við hæsta gang-
verði ef lánþegi óskar, og borga
þarf lánþegi kostnaðinn af því.
— í stj.frv. er ákveðið að ef
vaxtabréf eru seld með afföllum,
þá má nafnverð lána vera því
hærra sem afföllum nemur.
I báðum frumvörpunum eru
ákvæði um að fé ómyndugra,
Viðlagasjóðs, Kirkjujarðasjóðs og
Bjargráðasjóðs, megi verja til að
kaupa vaxtabréf Rsj. við nafn-
virði.
11. I 29. gr. Bfn.frv. eru enn-
fremur tvö mikilsverð atriði svo-
hljóðandi: „Erlend lífsábyrgðar-
og brunabótafélög, er reka starf-
semi hér á landi, skulu skyld, ef
þess er óskað, að kaupa vaxta-
bréf ‘ Ræktunarsjóðs með nafn-
verði fyrir að minsta kosti 10%
af innborguðum iðgjöldum árs
hvers.
Sömuleiðis er Landsbanka Is-
lands skylt að kaupa með nafn-
verði, ef stjórn Rsj. æskir og
sjóðurinn hefir þess þörf, vaxta-
bréf fyrir alt að 100 þús. kr. ár-
iega, þar til þeirri. upphæð er náð,
er lög um stofnun búnaðarlána-
aeildar frá 4. júní 1924 mæla fyr-
ir, að Landsbankinn skuli leggja
búnaðarlánadeildinni til“. Einnig
er í Bfn.frv. ákvæði um að þegar
Ríkisveðbankinn verður stofnaður
samkvæmt lögum 27. júní 1921,
megi sameina Rsj. honum, með
áskyldum réttindum. Ekkert af
þessu er nefnt á nafn í stj.frv.,
og alls eigi gert þar ráð fyrir
starfsemi Ríkisveðb. Aftur á móti
er þar ætlast til, að Rsj. taki við
lánum Búnaðardeildai'innar, sem
nýstofnuð er við Landsb., og einn-
ig að veita megi lán út á jarða-
bætur unnar á árinu 1924 og
síðar.
12. Um .stjórn Ræktunarsjóðs-
ins eru ólíkar ákvarðanir í frum-
vörpunum. Bfn.frv. ákveður að
honum skuli stjórnað af þrem
mönnum, skipuðum af ríkisstjórn
inni eftir tillögum Búnaðarþings.
Hún .skiftir svo með sér störfum
og ræður starfsmenn sjóðsins.
Laun fonn. skulu vera 800 kr. og
meðstjórnenda 500 kr. hvors.
Við launin bætist dýrtíðaruppbót
eftir sömu reglum og starfsmenn
ríkisins hafa. — Eftir stj.frv. á
ráðh. að skipa þriggja manna
stjórn, einn framkvæmdastj. og
tvo gæslustjóra, og hafi annar
gæslustj. sérþekkingu á landbún-
aði. Skal framkvæmdastj. hafa
4000 kr. á ári, er fari hækkandi
upp í 5000 kr., eftir 9 ár. Gæslu-
stjórar fái 600 kr. á ári; auk þess
fá allir dýrtíðaruppbót eftir venju.
En fyrst um sinn er ætlast til að
Landsbankinn hafi á hendi alla
afgreiðslu og bókfærslu Rsj. fyrir
umsamda þóknun, þangað til
stjórn sjóðsins, með samþykki
í'áðh., gerir aðra ráðstöfun.
Eru þá upptalin höfuðatriðin í
þessum frumvörpum og ágrein-
ingur þeirra á milli. það getur
engum dulist, hvorki utanþings
né innan, að mismunurinn er ákaf
lega mikill og það í þýðingar-
mestu atriðunum. Stj.frv. er í
raun og’ veru ófullkomnara, en
núverandi lög um Búnaðarlána-
deild við Landsbankann, en Bfn.
frv. er aftur á móti miklu fyllra
og víðtækara en þau.
Aðalmismunurinn skal að lok-
um samandreginn þannig:
1. þessar tillögur um aukningu
á starfsfé Rsj. eru í Bfn.frv. en
ekki hinu: a) tekjur af þjóðjörð-
um, b) tillag úr ríkissjóði (endur-
greiðsla á gjöldum Rsj. til hans),
c) skylda Landsbankans til að
kaupa vaxtabréf sjóðsins samkv.
ákvörðun í lögum Búnaðarlána-
deildar, d) tillaga um að skylda
erlend lífsábyrgðar- og bruna-
bótafélög til vaxtabréfakaupa. —
Á þessum atriðum veltur mjög
gildi Rsj. og starfsmöguleikar;
því að útgáfa hans á vaxtabréf-
um miðast alveg við stofnféð, og
má aldrei nema meiru en 6-faldri
upphæð þess. — I stj.frv. er
sjóðnum því í byrjun ákveðin sú
skóþröng sem hann getur ekki
losnað úr.
2. Af þessum mismun á stærð
sjóðanna leiðir einnig að í Bfn.-
frv. er Ræktunarsjóði ætlað miklu
stærra verksvið, heldur en ákveð-
ið er í stj.frv.
3. Um stjórn Ræktunarsjóðs er
Bf. ísl. og Búnaðarþinginu gefið
miklu meira vald í Bfn.frv., þar
scm því er ákveðinn tillöguréttur
um skipun stjórnarinnar. En í
stj.frv. er það eingöngu á valdi
ráðherra að skipa stjórn sjóðsins.
En það er eitt af því sem mestu
varðar, að stjórn sjóðsins sé vel
valin, og að hún sé innblásin af
þekkingu og áhuga um þarfir
bændastéttarinnar og velferð land
búnaðarins. Virðist það best
trygt með tillögurétti Búnaðar-
þings. Enda lagði það mikla
áherslu á þessi atriði í síðustu
ályktun sinni til Alþingis.
Hér hefir verið gerð svo ræki-
leg grein fyrir þessu máli til þess
að almenningur geti dæmt um
hvað hver aðili leggur til, og
hversu hin fögru orð fjárm.rh. J.
þ. í garð bænda og landbúnaðar-
ins reynast haldlaus í fram-
kvæmdinni, þegar tillögur hans
eru bornar saman við tillögur
bændafulltrúanna. það er ljóst að
á þessu fi’v. hans er sama hand-
bragðið, eins og framkvæmd hans
á lögum Búnaðarlánadeildarinnar.
Landbúnaðai'nefndir Alþingis
fjalla nú um þetta mál; sérstak-
lega veltur það á landbúnaðar-
nefnd Nd. hvernig það verður bú-
ið í hendur þingsins. þessir eiga
sæti í nefndinni: Pétur þórðar-
son, Árni Jónsson, Halldór Stef-
ánsson, Hákon Kristófersson og
Magnús Torfason. — þeir eru all-
ir fulltrúar fyi'ir lándbúnaðarkjör-
dæmi, og ætti því að mega vænta
hins besta af tillögum þeirra og
starfi. Enda mun þeim það ljóst
vera að þetta er eitt af merk-
ustu málum þingsins. U.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson.
Prentsmiðjan Acta.