Tíminn - 27.03.1925, Side 1

Tíminn - 27.03.1925, Side 1
 ©jalbfsti oo, afgreiöslur'ciöm: Cimans er Sigurgeir JfriÖrifsfon, Sambanósþúsinu,- ReyfjaDÍf. ,2£fc$tetbsía Címans er í Sambanbstjúsinu 0pin öaglega 9—\2 f. Ij. Sími IX. ár. Reykjavífe 27. mars 1925 16. blað Alþingi. Fallin stjórnarfrumvörp: í Ed. var felt frv. um breytingar á lög- um um skemtanaskatt og þjóð- leikhús eins og áður er getið, og frv. um sóknargjöld. I Nd. frv. um breyting á lögum um skipun bamakennara og laun þeirra; og frv. um sjúkratryggingar var af- greitt með rökst. dagskrá og vís- að til sýslunefnda og bæjarstj. Fallin þingm.frv.: í Nd. frv. um að banna næturvinnu við að ferma og afferma skip og báta í Kvík og Hafnarf., frv. um ríkis- einkasölu á saltfiski (frá J. Bald.), frv. um að lengja friðun- artíma rjúpna; frv. um að herða a hegningu skipstjóra á togurum íyrir landhelgisbrot, var það felt með 14:18 atkv. við naínakall. Já sögðu: Á. J., Á. Á., H. Kr., liig. B., J. Bald., J. Sig., Jör. B., Kl. J., P. 0., P. p., Sv. Öl., Tr. þ., þorl. J. Nei sögðu: B. Sv., Ág. F., B. St, Bj. J, B. L, H. St, Jak. M, J. A. J, J. Kj, J. P., M. G, M. J, M. T, S. J. — þór. J. var fjarv. Sjö frv. um breytingar á vega- lögunum, um að gera ýmsa inn- anhéraðsvegi að þjóðvegum, hafði samgm.n, samkv. áliti vegamála- stjóra, lagt til að yrðu feld. Var I. frv, um Hafnarveg í Horna- firði, felt og frv. B. J. frá Vogi, um Laxárdalsveg í Dalas, eftir mikið stapp, því að Bj. ætlaðist til að Holtavörðuheiðarvegurinn til Norðurl. yrði feldur úr tölu þjóðv. og þjóðvegurinn færður vestur í Dali. Hin frv, 5 að tölu, tóku flm. aftur, eftir nokkurt hnútu- kast til samgm.n. — Afgr. sem lög frá Alþingi: Frv. um nauðasamninga; frv. um iún- lenda skiftimynt; frv. um breyt- ingu á póstiögum; frv. um heim- ild til að veita lán úr Bjargr.sjóði. Afgreiðsla Ed. á frv. stj. um gengistollinn var dálítið einkenni- leg, einkum af því að 2 íhaldsm. í fjárhagsn. léku tveim skjöldum i máhnu, þeir B. Kr. og Jóhann úr Eyjum. Fyrst gáfu þeir út nefndarálit á þskj. 160, um að „nefndin hefði athugað frv. all- ítarlega, og orðið að samkomulagi í nefndinni að leggja til að frv. yrði samþ. óbreytt“, eins og það kom frá Nd„ að framlengja toll- inn til ársloka 1926. En svo kom fjárm.rh. J. p. með brtt. við 2. umr, þess efnis, að framlengja tollinn til ársl. 1927. þessir þing- menn gengu þá strax frá nefnd- aráliti sínu, að brtt, af því að fjmrh. hefði sagt, að ríkissjóður þarfnaðist tekna, létu sig engu varða hvernig þær væru fengnar — og var frv. svo breytt sent aftur til Nd. Framsóknarmenn greiddu atkv. á móti því. — Tals- verðar hnippingar urðu um málið milli J. J. og fjárm.rh. Taldi J. J. að frv. ætti engan rétt á sér sem tekjuaukafrv. eftir að krónan væri komin upp fyrir það mark sem lögin um gengistollinn hefðu miðast við í fyrra; enda sæi hann ekki að stjórnin hefði þær nauð- synjaframkvæmdir með höndum, sem gætu réttlætt svo mörg og ósvífin tollalög. Alt stæði kyrt, cg J. p. heyrðist nú ekki nefna sitt gamla áhugamál — járn- brautina. Fjárm.rh. játaði að það væri nöturleg fyrir sig sú kald- hæðni örlaganna, að geta nú ekki þegar hann hefði völdin, hugsað um járnbrautina, en hvað sem því hði þá mætti hvergi slaka á um tollainnheimtu úr vösum almenn- ings til ríkissjóðs. En tekjuskatt- inn finst honum að ríkissjóður inegi missa, að nokkru leyti. J. J. flutti þessa þál.till.: Efri deild Alþingis áyktar að fela mentamálanefnd að í’annsaka, hve langt er komið hinni íslensku orða bók, sem Jóhannes L. L. Jóhann- ess. hefir nú. unnið að um nokkur ár, og hve mikið liggur eftir þór- berg þórðarson að safna orðum úr alþýðumáli. Jafnframt er nefnd inni falið að gera tillög-ur um, hversu haga skuli orðasöfnun þess ari framvegis. — Itakti flm. gang orðabókarstarfsins, frá því að Jón Ól. hefði byrjað á því' og dr. Björn Bjarnars. tekið við af hon- um, síðan hefðu þeir feðgar Jóh. •L. L. Jóh. og Jakob Smári verið settir að starfinu. Útkoman virt- ist vera þessi: Safn J. Ó. gefið út sérstakt, án nokkurs sam- bands við þá væntanl. orðabók; dr. B. B. hefði dáið frá verkinu nýbyrjuðu; Jak. Smári gerst kenn ari við mentaskólann þegar hann átti kost hærri launa þar; Jóh. Jóh. væri nú einn við starfið, án þess Ijóst væri að hverju það stefndí. Vildi hann láta rannsaka það og fá skýrslu um. Mætti kveðja sérfróða menn til aðstoð- ar mentam.n. Ed, ef nefndar- menn treystust eigi sjálfir til að dæma um þetta mál. Skýrsla nefndarinnar skyldi lögð fyrir þingið, er síðar tæki ákvörðun um starfið framv. og útgáfu orða- bókarinnar. Mætti svo fela háskól anum að gera tillögur til þeirra ákvarðana og leggja þær fyrir næsta þing til úrslita þessu máli. Flm. vítti það, að fé væri sóað til þessa skipulagslaust, starfið hefði verið aðeins bitlingur til einstaks manns, og því virtist enn haldið áfram í sama fonni, án þess að nokkur samstæð heild væri í verk um þessara manna. Benti hann á að minna hefði mátt kosta til þessa, ef hlutaðeigandi J. L. L. J. hefði setið kyr vestur í Dölum, enda væri eins auðvelt upp í sveit að orðtaka Fornbréfasafnið o. s. frv, þá hefði síður þurft að sækja um sífeldar launabætur til hans á hverju þingi. Einnig þótti flm. æskilegt að þingið fengi skýrslu um orðasöfnun þórb. þórðarsonar, þar sem stjórnin hefði í fjárl.frv. sínu svift hann styrknum. Fors.rh. andmælti till. og taldi að þingið hefði ráðið J. L. L. J. til starfsins; en að það væri til- gangur till. að svifta hann því; vildi hann eigi annað heyra en að alt væri látið óhreyft; hlutaðeig- andi væri mjög vel fallinn til orðasöfnunar og það hefði aldrei verið ákveðið að hann ætti að gefa út þessa orðabók. Og lét sem það varðaði engu hvert stefnt væri, þó að hver maðurinn á fæt- ur öðrum væri launaður /ið þetta yfirskynsstarf. * S. E. tók að miklu í sama streng, starf mannsins væri ekk- ert athugavert. Hann fann að því að stjórnin hefði felt niður styrk- inn til þórb. þ. — lofaði mjög síðustu bók hans „Bréf til Láru“, og taldi hana bera vott um snild höf. í máli og hugsun. Enda þótt að blöð og ritdómarar virtust hafa þögul samtök um að þora ekki að skrifa um hana. Vildi hann vísa till. til stjórnarinnar og léti hún háskólann athuga hana ef henni sýndist. Var það samþ. með 9:5 (atkv. Framsóknar) og þingsá- lyktunin þar með fallin. Nokkrar deilur urðu um dag- skrá allsh.n. í sjúkratryggingar- málinu, og hafði Bernh. St. fram- sögu fyrir nefndina. Taldi hann málið mikilsvert og vafasamt að önnur mál lægju fyrir þessu þingi sem hefðu meiri áhrif á líðan hvers einstaklings meðal þjóðar- innar. Nefndin aflaði sér bestu upplýsinga, frá landlækni og berklavarnafélagi fslands; vísaði hann til álitsskjals félagsins, er landlæknir taldi sig samdóma, og kvað allshn. hafa í flestum at- riðum fallist á skoðanir þær, sem kæmu fram í álitsskjalinu. Stj. frv. er 1 eðli sínu hreint og beint skattafrv, það hljóðar ekki bein- línis um tryggingu heldur styrkt- arsjóði er stofnaðir séu með nef- skatti. Trygging er það ef ákveð- in gjöld eru greidd gegn ákveðn- um bótum er fást þegar sjúk- dóma ber að höndum. Engin bein trygging felst í frv. Sjúklingar hafa ekki eftir frv. kröfu til styrks úr sjóðnum, heldur er það undir atvikum komið og úrskurði tilkvaddra manna, hvort þeir skuli styrktir eða ekki. Frv. hefir eng- an sparnað í för með sér fyrir þjóðarheildina, en flytur gjöldin aðeins til. Um þessa galla á frv. var öll nefndin sammála. Frv. ætlast til að 14. gr. berklavarna- laganna sé feld úr gildi — berkla- varnakostnaðurinn á að flytjast af ríkissjóði og sýslusjóðum yfir á sjúkrasjóðina, þessvegna eiga berklaveikir að ganga fyrir öðr- u.m sjúklingum um styrk úr sjóð- unum, en þá verður lítill afgang- ur til annars, berklavarnakostn- aðurinn mun þurka allar tekjur sjúkrasjóðanna. Aðaltilgangur frv. er að létta berklavarnakostnaðinum af ríkis- sjóði en taka hann aftur með há- um nefskatti af einstaklingum þjóðarinnar til sjúkrasj, án þess að veita þeim tilsvarandi réttindi eða tryggingu í staðinn. Nefndin fær ekki séð að berklavarna- kostnaðurinn komi réttlátlega nið- ur á þenna hátt. — það er sparn- ?ður íyrir ríkissjóð en aukin gjöld fyrir þjóðina. Vitanl. má auka skatta til ríkissj. til að standast berklakostnaðinn, en eigi er þar með sagt að þeir megi koma nið- ur á þenna hátt. Stjórn berklavarnafél. telur frv. langlátt, af því að berklaveikin heyrir undir sóttvarnir, styrkur úr sjúkrasjóðum gangi því alveg eins til að verja þá heilbrigðu fyr- ir veikinni — eins og að bjarga sjúkl. Hætt við að þegar almenn- ingur greiðir sérstakl. skatt vegna berklaveikinnar, verði menn ófús- ir til frjálsra framlaga svo sem til heilsuhælis á Norðurlandi 0. s. frv. Einnig hefir verið bent á, að verði frv. að Iögum, kunni það að hindra starfsemi sjúkrasam- laga. þó að nefndin fallist í flest- um atriðum á þau rök, sem færð eru gegn frv, þá telur hún al- mennar sjúkratryggingar nauð- synlegar, ef það eru í raun og sannleika tryggingar. því að þetta frv. nær ekki þeim tilgangi. Ákveðinn réttur verður að fylgja ákveðnum iðgjöldum, eins og yfir- leitt tíðkast þar sem um slík mál er að ræða. En það fyrirkomulag er enn of ókunnugt þjóðinni; sjúkrasamlögin fá og tryggingar lítið þektar; væri því varasamt að lögbjóða slíkt í einum svip; málinu þarf að vinnast fylgi. —*• þó þetta frv. kæmi fram á síð- asta þingi vakti það fremur litla athygli út um land. — þó að nefndin vilji ekki ráða deildinni til að samþ. frv, síst eins og það nú liggur fyrir, þá vill hún ekki beinlínis drepa það, heldur hefja með því umræður meðal almenn- ings um tryggingamálið í heild sinni. Við það ætti áhugi og þekk- ing á tryggingamálum að aukast, og upp úr því skapast með tíman- um almennar. sj úkratryggingar. Ræðumaður benti einnig á að réttast mundi í byrjun að láta sjúkratryggingamar ná til ann- ara sjúkdóma en berklaveiki, af því að berklasjúklingum er nú ráðstafað á4 annan hátt. Til frek- ari sönnunar um ranglæti nef- skattsins til sjúkrasjóðanna, benti hann á að samkvæmt berklalög- unum væru sjúklingar ekki sjálf- ráðir um í hvaða kostnað þeir legðu er þeim væri skipað á hæli, og ef þeir eiga efni verða þeir að standa straum af kostnaðinum sjálfir, ef frv. þetta verður að lög- um, þó að þeir hafi ekki óskað hælisvistar. ,,Á fátækum mönnum er skatt- urinn þung byrði. Eg skal taka dæmi: Bláfátækur nágranni minn á 10 börn, og sér fyrir þeim án sveitarstyrks. Samkv. frv. ætti þessi maður að greiða 18 kr. í sjúkrasjóðinn, 5 kr. fyrir sig, 3 kr. fyrir konuna og 1 kr. fyrir hvert barn. þetta er talsvert til- finnanlegt, má til samanburðar geta þess að þó útsvör séu í þess- um hreppi nokkuð há, þá hefir þessi maður aðeins 5 kr. aukaút- svar. Eg veit að vísu að hreppsn. er heimilt að greiða gjaldið fyrir svona mann. En, sem betur fer, er því þannig varið, að sumum mönnum er óljúft að láta hrepp- inn borga fyrir sig, þó að ekki sé það talinn sveitarstyrkur. Atvmrh. (M. G.) taldi þetta ekki fremur skattafrv. en lög um sjúkrasamlög. En munurinn á þessu tvennu er mikill. Hér er lögð kvöð á einstaklinga, sem nú hvílir á ríkissj. En í sjúkrasam- lögum eru menn að tryggja sig gegn veikindum, sem ríkissjóður skiftir sér ekki af. þessu frv. fylgja engin aukin réttindi eða hagsmunir, fremur hið gagn- stæða. það er ekki rétt hjá hv. • Atv.rh. að nefndin gefi ekki til kynna hvað hún vill, að sýslun. fjalli um 1 þessu máli. Nefndin segir í áliti sínu að hún sé fylgj- andi almennum sjúkratrygging- um, en telji frv. ekki ná þeim til- gangi. Hún vill að framtíðar- skipulagið verði það, að menn séu trygðir gegn kostnaði, sem leiðir af hverskonar veikindum. Eg skal taka fram að um sjúkra- tryggingarmálið í heild væri æski legt að fá álit sýslunefnda og bæjarstjórna en ekki ejngöngu um þetta frumvarp“. ----0---- Bíkasðfaig a Hlureyri og Davíð Steíánsson skáld. Fjöldi af erindum og fjárbeiðnum hefir borist Alþingi eins og venja er til, og er síst að undra þó að fjár- \citinganefndir þingsins eigi erfitt með að vinsa úr öllu því flóði. það er þó sérstaklega eitt erindi sem eg vil minnast á nokkrum orðum, eink- um af því, að fjárv.n. Nd. hefir eigi séð fært að taka þaö til greina. Eg .1 við bréf frá bókasafnsnefndinni á Akureyri, þar sem óskað er eftir að Alþingi veiti 3000 kr. styrk til safns- ins, svo að unt verði að ráða fastan bókavörð við það. Ef að styi-kur þessi fæst ætlar bókasafnsnefndin að ráða Davíð skáld Stefánsson frá Fagra- skógi til starfsins. pessu bókasafni er nauðsyn á breyttum kjörum og meiri aðhlynningu en verið hefir um skeið, en brýnust mun þörfin á nýj- um andlegum kröftum til að annast um bókavai handa safninu og eigi siður til hins, að gera þann auð scm þar er fólginn í bókunum aðgengi- legan og lifrænan fyrir almenning. Vegur bókasafnsins stóð í mestum blóma þegar Páll Briem amtmaður hafði yfirumsjón þess, og’ næstu árin þar á eftir þegar Akureyrarbær tók við því til eignar og umráða af Norð- uramtinu 1906. þá var því fengið gott húsrúm í samkomuhúsi bæjarins, og dágóður lestrarsalur útbúinn i sam- bandi viö þaö. Eg minnist þess glögg- lega af því eg var þar tiður gestur í nokkra vetur, áður en lestrarsalur- inn var aftur minkaður eða lokað að mestu. Síra Jónas Jónasson frá Krafnagili var þá við safnið á tíma- bili. Eg minnist þess hvernig hann seyddi okkur unglingana að lestrar- salnum og bókunum. þó að hann væri hvorki margmáll eða fljótur í snúningum, þá var honum lagið að gera okkur ljóst með fáum orðum, hvaða fengur væri í hverri bók fyrir sig. Honum var efni og andi bókanna kunnugri en raðtalan (númer) á bind unum. Eg efast um að þeir sem eigi venjast slíkum bókavörðum geri sér ljóst hvers virði þeir eru fyrir bóka- söfn og lese.ndur. Mér er það nokkuð ljóst fyrir margra ára kynningu af bókaverði sem er líklega einstakur í sinni röð; það er Benidilct Jónsson frá Auðnum. Eg veit ekki betur en aö hann hafi lesið allar bækur i bóka safni þingeyinga á Húsavik, og er

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.