Tíminn - 23.05.1925, Síða 2
96
TÍMINN
Samfeld iiitriiitinflrlfiiii enililaiit iinoiil.
Smásöluverd
má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbakstegundum, en hér segir:
ZE^e-yzkitóToetlsi:
Moss Rose frá Br. American Co. Kr. 8.05 pr. 1
Ocean Mixt. — sama — 9.50 — 1
Richmond V4 — sama — 12.10 — 1
00 d — sama — 12.65 — 1
Glasgow V4 — sama — 14.95 — 1
do. V8 — sama — 15.55 — 1
Waverley x/4 — sama — 14.95 — 1
Garrick x/4 — sama — 22.45 — 1
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0.
Iiaudsverslim íslands.
Frægt af endemum.
Alþingis nýafstaðna verður
lengi minst.
það er fyrsta Alþingi sem
íhaldsstjórn situr endilangt.
það er fyrsta Alþingi sem
íhaldsstjórn lagði frumvörp fyrir.
það er fyrsta Alþingi sem að
langmestu leyti var barist um
Ihaldsstefnu.
þessvegna verður þess lengi
minst, sem hins fyrsta greinilega
minnisvarðar yfir Ihaldið.
þess verður og lengi minst af
því að sennilega hefir landsstjórn
á Islandi aldrei fyr fengið jafn-
harða mótstöðu.
þess verður og lengi minst, og
lengst af því, að á þessu þingi
voru unnin verri skemdarverk í
stjórnmálum en nokkru sinni hafa
áður verið unnin á Alþingi Is-
lendinga — og auk þess af lands-
stjórnar hálfu sjálfrar gerðar hin
ar hörðustu tilraunir til að vinna
enn fleiri skemdarverk.
Frægt af endemum verður Al-
þingi það er háð var 1925.
Oflof og last.
I umræðunum um vantrausts-
yfirlýsinguna í þinglokin gat þess
ritstjóri þessa blaðs, að alt þingið
hefði verið samfeld vantraustsyf-
irlýsing á hendur landsstjórninni
af hálfu Framsóknai'manna.
Stjórnarmálgögnin henda þessi
ummæli á lofti og mótmæla þeim.
þau segja að J. J. og Tr. þ.
einir hafi verið í svo eindreginni
andstöðu við landsstjórnina. Aðr-
ir Framsóknarmenn hafi verið alt
cvíbentari í andstöðunni.
þetta er algjörlega óverðskuld-
að oflof um J. J. og Tr. þ., að
þeir einir Framsóknarmanna hafi
veitt svo eindregið viðnám skemd-
arverkum stjórnar og stjórnar-
flokks.
það eru algjörlega rangar að-
dróttanir sem stjórnarmálgögnin
með þessu gera öðrum Framsókn-
armönnum að þeir hafi linlega
barist gegn óhæfuverkum lands-
stjórnarinnar.
því að sannleikurinn er sá að
Framsóknarmenn stóðu saman al-
veg undantekningarlaust sem einn
maður gegn íhaldsstefnunni, í
öllum þeim mörgu og illu mynd-
um sem hún birtist í á Alþingi.
Svo samhuga stóðu þeir að aldrei
fyr í þingsögunni hefir stór þing-
flokkur staðið saman jafneinhuga
og óklofinn um velferðarmál al-
þjóðar. Allir sameiginlega eiga
SifianJMriiiilíiía.
1 síðastl. febrúarmán. birtist
eftir mig grein í Tímanum sem
hét Samvinnan og S. S., þar sem
eg benti á nokkra veika punkta
í pésa þeim er Sig. Sigurðsson
frá Kálfafelli hafði nýlega sent
út um landið. — Sigurður hefir
reiðst grein minni mjög og samið
svar :sem hann kallar, þar sem
hann veitist að Jóni ívarssyni á
Hornafirði af heipt mikilli. Er eg
hissa á hve S. S. hefir verið lengi
reiður út af grein minni, hann
virðist vera í fimm vikur að
semja „svarið“ og er honum þá
enn ekki runnin reiðin. „Svarið“
ber ágætan vott um sálarástand
mannsins og er góður spegill þess
sem inni fyrir býr, og honum er
hugleiknast. Mér þótti einkenni-
legt að hann skyldi rjúka upp við
Jón ívarsson út af grein minni,
og fór að leita að ástæðunum, og
þær segir Sigurður isjálfur að séu
þær, að sér þyki „harla ótrúlegt
að nokkur annar hafi skrifað
grein þessa“. —
Á þessu ílustrái byggir hann
svo langan lestur af dylgjum, út-
úrsnúningum, aðdróttunum, get-
þingmenn Framsóknarflokksins
þann heiður að hafa veitt Ihalds-
stjórninni samfelda vantrausts-
yfirlýsingu alt þingið, með því
að standa sem einn maður gegn
þeim skemmilegu fnimvörpum
sem hún bar fram og flokkur
hennar.
Samtaka um sigrana.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn um að vinna sigrana
sem unnust — um að hindra
fullan framgang skemdarmála
íhaldsins.
Nefskattana til prests og kirkju
vildi Ihaldið hækka um helming.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn á móti og unnu sig-
ur, því frv. var drepið.
Hinum gífurlega berklakostn-
aði vildi Ihaldið breyta í nefskatt.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn á móti og unnu sig-
ur, því frv. var vísað frá.
Heimild vildi Ihaldið veita til
að gefa eítir tekjuskatt — vitan-
Lega til að verðiauna trúa þjóna
>ína.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn á móti og unnu sig-
ur, því Ihaldið gugnaði við mót-
stöðuna.
Tekjuskattslögunum vildi íhald-
ið breyta þannig að á þessu ári
hefði skatturinn lækkað um 613
— sex hundruð og þrettán —
þúsund krónur á stórgróðaíélög-
unum og mjög óvíst að nema lítið
kæmi af því aítur í ríkissjóðinn.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn á móti og unnu sigur
og allra svínbeygðastir eru íhalds
menn í því máli. Jón þorláksson
fékk ekki einn einasta flokks-
mann sinn í efri deild til að
fylgja þessum ósköpum, svo vendi
lega brast flóttinn í liðið.
Pólitíska varalögreglu vildi
íhaldið stofna. Takmarkalaust
vald bað íhaldsstjórnin um til
þess að mega vopna með „tækj-
um“ svo marga menn sem henni
sýndist, og nota til þess svo mik-
ið fé úr ríkissjóði sem henni sýnd-
ist. Takmarkalaust vald bað hún
um til þess að hefta persónulegt
frelsi manna, og lýsti því yfir
um leið, að með ofbeldi ætti að
setja niður deilur milli verka-
manna og vinnuveitenda.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn á móti og unnu enn
sigur. Svo hörð var mótstaðan
að stjórnin þorði ekki að láta
málið koma til endanlegrar at-
kvæðagreiðslu, heldur lét frum-
sökum, rógi og sleggjudómum, að
maður stendur alveg forviða af að
sjá hvílíkum firnum af þessu
hann haugar saman.
þú strangi og stórorði dómari
S. S.! Forsendurnar fyrir dómi
þínum er ekkert annað en hvað
þér þykir trúlegt eða ótrúlegt
Sleggjan er lögð á alt og úr verð-
ur bara sleggjudómur.
S. S. hneikslast mikið á því að
eg skuli hafa sagt að hann hafi
verið notaður til framboðs, ekki
sé eg mikla vansæmd í því fyrir
hann, miklu fremur hið gagn-
stæða, því það bendir þó til þess,
að einhverjum fleirum en honum
sjálfum hafi þótt hann notandi
til þess, þó út úr neyð kunni nú
að hafa verið. Mér finst að hon-
um ætti að þykja lofið gott, því
heldur sem það sýnist heldur
sjaldgæft, að menn hafi sókst
eftir að nota hann til gagnlegra
starfa hingað til, og frekar ætti
S. að þykja virðing að því, að
Borgaraflokkurinn puntaði svona
•upp á hann, eftir hryggbrotið hjá
Tímamönnum. Að grein mín sé
pólitískt innlegg fyrir þ. J. eru
bara ofsjónir Sigurðar isem eng-
inn annar finnur.
Ekki finst mér gustuk að tala
meira um samvinnufræðslu Dana
varpið verða óútrætt — hreppa
örlög nátttröllanna sem urðu að
steini er sól rann.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn enn gegn því að gera
Reykjavíkur kvennaskólann að
ríkisskóla, með stórauknum kostn-
aði fyrir ríkið, og unnu sigur,
því frv. var felt.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn loks gegn því að
Vestmannaeyjar yrðu seldar fyrir
minna en hálft fasteignamat —
eins og atvinnumálaráðherra bauð
flokksbróður sínum — og unnu
sigur, því frv. var felt.
Svo marga sigra og merkilega
við S. S., hann hefir orðið þar
svo greinilega tvísaga, að enginn
þörf er að benda skýrar á það,
það skilur hver maður, sem er að
eins lítið eitt stórfeldari andlega
en hann. þetta er vitanlega leið-
inlegt fyrir höf. en hann getur
huggað sig við að hafa staðið eft-
ir bestu getu í ístaðinu fyrir
Breta, og má vænta þess, að þeir
verði nú upp með sér af að eiga
ítök í þessum frábærlega fróða,
lítilláta, skarpgáfaða, sanngjarna
og' andlega stórfelda manni!!!
Langan kafla skrifar S. S. um
prentvillur sem hann kveður vera I
í pésa sínum, það er vel farið að !
hann finnur það. Hann ætti nú
að auglýsa að pésinn sé bara ein
villa það er styttra mál en taka
hverja fyrir sig.
Prentvillan í grein minni ur
fyrir ei er svo augljós að sérhver
sem les greinina — og lesandi er
— finnur hið rétta. Sigurður seg-
ir um prentvillurnar að við séum
jafnir, það sé ein prentvilla hjá
hvorum. þetta gæti verið að vissu
leyti rétt, þannig, að pési hans sé
ein villa, en að einn stafur sé
rangur í grein minni. Um „rúsín-
una í grautnum“ sem hann kallar,
þarf eg fáu við að bæta. Hann gef
ur í skyn, að sig hafi „klýjað"
Kaupið
íslenskar vörur!
Hrein®. Blautsápa
Hrein£ Stangasápa
Hreini Handsápur
Hrein£ K e rt i
Hreini Skósverta
Hreins. Gólfáburður
Styðjið íslenskan
iðnað!
unnu Framsóknarmenn af því að
þeir stóðu saman sem einn maður.
Svo mörg skemmileg Ihaldsmál
gátu þeir drepið með samheldni
og öflugri andstöðu.
Samtaka um vöntina.
Jafnsamtaka voru Framsókn-
armenn um að hindra Pyrrhusar-
sigra þá er íhaldið vann.
Tóbakseinkasöluna drap íhaldið
og kastaði úr ríkissjóði miljónar-
fjórðungi króna árlega vissra
tekna.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn gegn þessu skemdar-
verki en fengu ekki rönd við reist.
svo við „rúsínunni" að hann hafi
hlaupist í brott frá framkvæmda-
stjórastarfi í Kaupfélagi Reykvík-
inga. — „þau eru súr“ sagði ref-
urinn um vínberin, þegar hann
gat ekki náð í þau.
Einu sinni var S. S. starfsmað-
ur í Sambandinu, hann hefir senni
lega „klýjað“ svo við starfinu þar
að hann hefir mátt til að fara
frá því, ekki mun slíkum atgerv-
ismanni!! hafa verið vísað á dyr.
Kaupfélagið sem S. S. „klýjaði“
mest við er enn istarfandi, og lík-
lega við ekki lakari heilsu, en
meðan hann var framkv.stjóri.
þótt S. S. hafi á landsins kostn-
að sótt einhverja fræðslu til Bret-
lands hefir hún enn að litlu gagni
komið, bæði við að koma fótum
undir kaupfélagsskapinn í Reyk-
javík og við að tryggja hann svo,
að fyrirsj áanlegt sé að í framtíð-
inni sé honum þar borgið, og þrátt
fyrir alla „fræðslu" á hann enn
eftir, að sýna hvernig reka skuli
samvinnufélög „svo þau verði öll-
um þeim til hagsbóta sem í þeim
eru og kunna að verða“.
það er hörmulegt að hann skuli
fá „klýju“ þegar honum auðnast
að fá margþráð tækifæri eða ná
takmarki, þar sem hann og aðrir
gætu notið hinna miklu hæfileika
Steinolíuverslun ríkisins drap
íhaldið einnig, opnaði faðminn fyr
ir hinum alræmda steinolíuhring
ameríska og ofurseldi mótorbáta-
útgerðina einokunarkúgxm útlend-
inganna.
Sem einn maður stóðu Fram-
sóknarmenn gegn óhæfunni, en
fengu ekki rönd við reist.
Með atkvæðum sjálfra ráðherr-
anna, og sakbornings sjálfs (M.
G.) var neitað um óhlutdræga
rannsókn hins mesta hneikslis-
máls sem kunnugt hefir orðið á
þessari öld á Islandi — Krossa-
nessmálsins.
Sem einn maður báru Fram-
sóknarmenn fram kröfuna um
óhlutdræga rannsókn á málinu.
Ósannasta aðdróttunin.
þegar alls þess er minst, sem
nú hefir verið rakið, er ljóst, svo
að ekki verður um deilt, að ósann-
asta aðdróttunin, sem nokkru
sinni hefir verið borin á nokkum
stjórnmáiaflokk, er þessi nýjasta
aðdróttun stjórnarmálgagnaima:
að ekki nema tveir í Framsóknar-
flokknum hafi veitt Ihaldsstjórn-
inni og Ihaldsstefnuxmi harða og
eindregna andstöðu í þinginu.
Framsóknaiflokksmennimir á
Alþingi eiga allir þann heiður
óskiftan að hafa veitt Ihalds-
stjórninni samfelda vantraustsyf-
irlýsingu endilangt þingið.
Með þeirri góðu samvisku
hverfa þeir heim til sín, að hafa
með fullkomnu samstarfi hindrað
framgang margra illra mála og
reynt, eins og unt var, að hindra
framgang hinna skemdaimálanna
sem illu heilli náðu fram að
ganga.
Aldrei hefir íslenskur stjóm-
málaflokkur borið hreinni skjöld
en Framsóknarflokkurinn eftir
hina hörðu viðureign á Alþingi
1925.
----o----
Opið bréf
tu
hins röggsama aðalpóstmeistara.
Herra S. Briem aðalpóstmeist-
ari!
Eg sá ekki fyr en í fyrradag
kveðju þá er þér sendið mér f
Póstblaðinu er út kom í febrúar
síðastliðnum. En um leið og eg
svara þeirri kveðju ætla eg að
leyfa öðrum að sjá hana. Hún er
svohljóðandi:
Ritstjóri og ábyrgðarmaður Tímans
hefir laumað auglýsingu prentaðri
á þýskalandi um Persil inn í blað
hans, sem ekkert munu eiga skylt
við þröngsýni, dramb né aular
skap!!!
Höf. er öðruhvoru að nefna sig
í sömu andránni og Jónas Jóns-
son og Tr. þórh. — Hann .skoðar
það víst hæversku og lítillæti, en
kunnugir sjá litlar ástæður fyrir
hann að jafna sér við þá né telja
sig eiga sæti á sama bekk. —
„Mér finst þetta frekja og aula-
legt í tilbót“, því að hann er þó
aldrei nema ofboðlítið peð á skák-
borði Ihaldsins.
Höf. á bágt út af samábyrgð-
inni. Hann man of vel framkomu
sína 1919—20 við stofnun Kaup-
félags Austur-Skaftfellinga, þegar
hann laumaði samábyrgðinni á
sína gömlu sveitunga. Hann hef-
ir þar föðurlegar tilfinningar og
vill sem minst um slíkt tala, allir
vita að hann er faðir samábyrgð-
arinnar í Austur-Skaftafells-
sýslu. það væri hart að gengið
ef S. S. yrði nú að segja það svart,
sem hann fyrir 5 árum sagði að
væri hvítt, og leiðinlegt væri fyr-
ir hann að kannast ekki við börn-
in sín svo sem samábyrgðina,
eða þyrfti að bera þau út. í
heiðni var það talið bæði illmann-
legt og lítilmannlegt verk. S. S.
spyr hvort mig vanti fræðslu um
Kjöttunnur,
L. Jacobsen,
Köbenhavn Símn.: Cooperage. V a 1 b y
alt til beykisiðnar, smjörkvartel o. s. frv. frá stærstu beykissmiðjum
í Danmörku. Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra
kaupmanna.