Tíminn - 18.07.1925, Page 4
130
TIMINN
íllið inílendan ilnl.
Sendið ull yðar til vinnu í Klæðaverksm.
Álafoss. Ábyggileg'afgreiðsla. Kaupum ull
hæsta verði. Seljum duka haldgóða og
áferðarfagra lágu verði. Látið því „Ála-
fossu sitja fyrir viðskiftum. — Snúið yður til umboðsmanna'vorra eða
simnefni: Áiafoss Afffreiðsla Alafoss
Simi 404 _T , Ö . _ T* . .
Simstöð verksm.: Varmá Hatnarstrseti 17? Rcykjavik
Álafosshlaupid
verður háð sunnudaginn 9. ágúst, og
Hafnarfjarðarhlaupið
sunnudaginn 23. ágúst.
Sama vegalengd verður hlaupin í báðum hlaupunum, eins og áður.
Þátttakendur gefi sig fram við Sigurð Jóhannsson í Austurstr. 12,
fyrir 5. ágúst í Álafosslrlaupið og 15. ágúst í Háfnarfjarðarhlaupið.
Glímufólagið Ármann.
Allir
sem ætla að byggja, ættu að kynna sér hinn heimskunna, ágæta
„vinkilstein11 og byggingai-fyrirkomulag úr þeim steini.
Hús bygð úr vinkilsteini hafa hvað eftir annað lilotið 1. verðlaun
í byggingarsamkeppni, vegna þess, að þau hafa reynst hlýrri og raka-
minni en önnur steinhús, en jafnframt ódýrari, vegna þess, að hægt
er að steypa steina á staðnum, og að timbur og sementsnotk-
unin verður minni en venja er til.
Þorleifur ESjjóIfsson
húsameistari
Sími 1620. Austurstræti 17. Reykjavfk Pósthólf 1014.
settir á Akureyri, tveir í Reykja-
vík, einn á Sauðárkróki og einn
í Saurbæ í Eyjafirði.
Samþykt var að halda næsta
Stórstúkuþing í Reykjavík.
þegar litið er til baka yfir liðið
stórstúkuár verður ekki annað
sagt en starfið hafi gengið mjög
sæmilega ’ undir stjórn þeirra
Norðlendinganna. Stofnaðar hafa
verið 6 nýjar unglingastúkur og
8 nýjar undirstúkur oð 2 endur-
vaktar.
Skuldir Stórstúkunnar mink-
uðu um ca. helming þrátt fyrir
kostnaðarsama bókaútgáfu (lög-
bók og siðbók).
Einnig tókst á árinu að knýja
fram birtingu Spánarsamningsins.
----o----
Frá itlöndum.
Póllandli er stærst og langfjöl-
mennast hinna nýju ríkja sem
mynduð voru með Versalafriðn-
um. En það er jafnframt það rík-
ið, sem hræddast er við framtíð-
ina og er ekki að undra. Stór-
veldin, Rússland og þýskaland,
liggja að sínu megin hvoi't, og
bæði neita að viðurkenna núver-
andi landamæri; kalla bæði til
mikilla landflæma af Póllandi nú-
verandi. Munu Pólverjar ekki efa
að hvorir um sig, Rússar og þjóð-
verjar, láti ekki lenda við orðin
tóm, sjái þau nokkurt færi að
fá óskum sínum framgengt. Er
því ekki að undra þótt Pólverjar
reyni að efla her sinn sem best
og knýta sem fastast vináttu og
hermenskusambandið við Frakk-
land, því að þaðan er hjálparinnar
vænst, þó að helst til sé langt í
milli. Gaf hei-málaráðhei'ra Pól-
lands nýlega út skýrslu um það
að innan tveggja ára hefði her-
aflinn aukist um nálega helming,
enda hefði Pólland þá á að skipa
fjórum miljónum vopnfærra og
æfðra manna.
— Fult samkomulag er komið
á milli Grikkja og Tyrkja út af
brottvísum patríarksins úr Mikla-
garði. Hafa Grikkir tekið aftur
kæru sína til alþjóðabandalags-
ins.
— Tvö ný herskip og tvo neð-
ansjávarbáta til hernaðar er Ást-
ralíustjóm að láta smíða í Eng-
landi. Kosta 31/2 miljón sterlings-
punda.
— Ungur Bandaríkjamaður,
Lincoln Ellswort, stýrði annari
flugvjel Amundsens í heims-
skautsfluginu. Faðir hans hafði
gefið 100 þús. dollara til farar-
innar. Stuttu áður en þeir félagar
komu aftur, úr helju heimtir, til
Svalbarða dó gamli maðurinn af
harmi, vonlaus um björgun son-
arins.
— 1 tólf vikur stóð hin mikla
vinnuteppa í Danmörku og varð
æ yfirgripsmeiri því lengur sem
leið. Er áætlað að tap verkamann-
anna, mest vinnulausra, hafi num-
um 100 miljónir króna.
— Snemma í síðastliðnum mán-
uði gekk svo mikil hitabylgja yf-
ir Bandaríkin að meir en fimm
hundruð manna biðu af bana og
fjöldi veiktist. I New York var
mörgúm búðum og skólum lokað
vegna hitanna. Stórviðri komu í
kjölfarið og ollu miklu tjóni.
—- Aðalfundur saflibands dönsku
kaupfélaganna var haldinn í f.
m. Umsetningin árið sem leið var
c. 170 milj. kr., nálega 25 milj.
kr. hærri en í fyrra. Umsetning
verksmiðjanna, sem kaupfélögin
eiga var rúmlega 46 milj. kr., 6
milj. kr. hærri en í fyrra. Eru
1804 kaupfélög í sambandinu.
Hreinn ársarður var yfir 11 milj.
kr. En nokkurn halla bíða fé-
lögin vegna samvinnubankans.
-----0-----
Látinn er á Sandi undir Jökli
Valdimar Ármannsson verslunar-
stjóri bróðurson Bjarnar frá Við-
firði málfræðings.
Síldveiði er byrjuð á Siglufirði.
Er talið gott útlit um veiðina.
Hafa Norðmenn meiri útbúnað
til sildveiða en nokkru sinni áður.
Ræktunarsjóðurinn. Pétri Magn-
ússyni hæstaréttai-málaflutnings-
manni frá Gilsbakka hefir verið
veitt forstjórastaða Ræktunar
sjóðsins. Samkvæmt lögunum á
sjóðurinn að taka til starfa eigi
síðar en 1. okt. næstkomandi.
Á síðasta þingi fékkst loks
samkomulag um það í Ihalds
flokknum að láta taka sameigin-
lega mynd af hópnum. Ekki er
Jón Kjartansson þar með. Vilja
sumir leggja flokksstjórninni það
út til hróss. Verður hver að því
Alfa-
Laval
skilvindur
reynast best
Fantanir annast kaupfé-
iög‘ út um land, og
Samband ísl. samviélaéa.
HELOTTE
ta,
fcr*
<!
<Þ
c2.
C
B
cr
ffl
Aðalumboðsmenn:
Á. ÓLAFSSON & SCHRAM
Símn.: Avo. Sími: 1498
H.f. Jón Sigmundssou & Co.
Trúlofunar-
hringarnir
þjóðkunnu, úrval af
steinhringum, skúf-
hólkum og
svuntuspennum,
margt fleira. Serú
með póstkröfuútumland,ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiðui
Sími 383. — Laugaveg 8.
Sjé- og bruna-
vátryggíngar.
Símar:
Harmoníum frá B. M. Haugen á Lauvstad í Noregi
eru viðurkend fyrir gæði; hljómfegurð og vandaðan frágang. — llljóð-
færin eru mjög ódýr eftir gæðnm. Svara öllum fyrirspurnum og sendi
verðlista þeirn er þess óska.
Sérstaklega vil eg benda prestum og kennurum á h.ai'moníum
með ferföldu hljóði (verð ca. 1000 kr.), sem er sérstaklega srníðað
fyrir minni kirkjur og skóla. — Umboðsmaður á íslandi Sæmundur
Einarsson, Þórsgötu 2, sími 732, heima kl. 1—3 og 8—9 síðdegis.
Sjótrygging .... 542
Brunatryg'ging' . . . 254
Framkvæmdarstjóri . 309
Vátryggið
hjá
getur að leiða eftir því sem lík-
legt þykir, hvað valdi.
Eigi skortir enn stór orð Vai-
týs í garð Jónasar Jónssonar, enda
hefir nú Jónas lengi verið fjar-
staddur og verður enn um hríð.
Er hann eigi meðalheimskur, Val-
týr, er hann hygst að forðast
almennan hlátur og spott, við
slíkt framferði, því að hitt vita
allir hvað úr garpinum verður
þegar Jónas er heima. Vill Tíminn
í fullri vinsemd benda Valtý á
að lesa frásögn Snorra Eddu um
þá Hrungni og Mökkurkálfa. Yf-
irlæti þeirra meðan þór var fjar-
staddur er allfrægt orðið. En
hvernig fór fyrir Mökkurkálfa,
Vaítýr góður, þegar hann sá þór?
Lögjafnaðaniefndin heldur fund
í Kaupmannahöfn innan skamms.
Bjarni Jónsson frá Vogi getur
ekki sótt fundinn, því að hann
hefir legið veikur og liggur enn,
síðan hann kom úr leiðarþinga-
ferð um Dali fyrir hálfum mán-
uði. Menn munu fylgja starfi
nefndarinnaf með óvenju miklu
athygli í þetta sinn, því að hún
á að fylgja fram kröfu Alþingis
um endurheimt skjala og forn-
gripa frá Dönum.
Haraldur Sigurðsson píanóleik-
ari frá Kallaðarnesi og frú hans
eru nýkomin til bæjarins, aufúsu-
gestir öllúm söngelskum mönnum.
Hafa þegar haldið tvo hljómleika
við hinn sama hróður og áður.
Er Haraldur engum manni ís-
lenskum öðrum líkur um píanó-
leik.
„Moggi“ hefir nýlega prentað
kafla úr Tímariti Samvinnufélag-
anna. Vegna þess að allmarigir
lesendur „Mogga“, einkum hér í
Reykjavík, sjá ekki Tímaritið, þá
er „Mogga“ hérmeð vottað þakk-
læti fyrir greiðann, og óskað að
hann geri hið sama sem oftast.
Lúðrasveit Reykjavíkur undir
• stjórn Páls ísólfssonar, ætlar í
sumar, fyrst í ágúst, að takast
ferð á hendur til ísafjarðar,
Siglufjarðar og Akureyrar. þá
leiðina fer öll sveitin, 20 menn.
Síðan fara 10 úr sveitinni með
Páli, landveg úr Eyjafirði vestur
yfir Skagafjörð; um Sauðárkrók,
Blönduós og Hvammstanga til
Borgamess. Verða haldnir hljóm-
leikar allsstaðar þar sem því verð-
ur við komið. Má telja víst að
þeim félögum verði alstaðar vel
fagnað, því að svo ágæt lúðrasveit
hefir aldrei fyr verið til á landi
hér.
Moggi og Danadekrið. Valtýr
hefir gefist upp í deilunni, enda
var málstaðurinn ekki góður, en
eins og oft vill verða er menn vita
hvorki upp né niður, skrifar hann
illyrta skammagrein til þess að
svala þyrstri sál sinni. Ekki skal
eg banna honum það, en hins vil
eg biðja hann, að vera ekki að
tilfæra rangt enskar setningar
eftir IJjaltalín sáluga því þó Val-
týr kunni lítið í ensku, ætti hon-
um þó að vera vorkunnarlaust að
muna þessa setningu rétt, því
svo oft var Hjaltalín í bræði sinni
búinn að tauta hana yfir honum.
þessi grein Valtýs er þannig að
máli og rithætti (sbr. „framsetn-
ingur“, ,,Höfuðpaursins“), að ekki
er orðum um hana eyðandi. það
væri létt verk að svara í sama tón
og segja að ritstjórar Morgun-
blaðsins kynnu hvorki að hugsa
né skrifa, en þess þarf ekki með,
því þaó er lesendum blaðsins fyr-
ir löngu fulkunnugt. H. H.
Halldóra Bjamadóttir er nýfar-
in til Færeyja með ýmsa heimil-
íslensku
íéiagi.
Hestur, bleikur með gagnfjöðr-
uð bæði eyru, tapaðist 4. júlí frá
þjórsártúni. Vinsamlega beðið að
tilkynna í síma að Kiðjabergi,
þegar hesturinn hittist, eða koma
honum að Ölvesá.
Vaðnesi 6. júlí 1925.
Ingi Gunnlaugsson.
Grár hestur heldur lítill, dökk-
ur á fax og tagl, mark: stýft og
fjöður fr. hægra, hefir tapast.
Finnandi geri viðvart Guðna Guð-
mundssyni G1 j úfurholti Ölfusi eða
Sigurði Jónssyni Hverfisg. 82
Reykjavík. — Sími 1243.
Samvinnuskólinn.
Kensla sjö mánuði frá 1. okt. til
aprílloka. Skólagjald 100 kr.
Heimavist fyrir pilta 15 húsnæði,
ljós og hiti 25 kr. á mann um vet-
urinn. Aðgangur að mötuneyti
kennara- og samvinnuskólans fyr-
ir alla nemendur.
isiðnaðannuni íslenska og ætlar að
halda sýningu á þeim þar. Mfeð
henni fór Jón bóndi Sigurðsson
frá Hofgörðum með spunavél.
Jafnframt verður sýning á fær-
eyskum heimilisiðnaði. Mun Hall-
dóra jafnframt ferðast uœ milli
ungmennafélaganna færeysku.
Ritstjóri: Ti-yggvi þórhallsson.
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta.