Tíminn - 22.08.1925, Page 4
150
TIMI&N
þarna á skólanum. Lýðháskólarn-
ir starfa allir þannig- hér í Dan-
mörku, að stúlkur sækja þá að
sumrinu um þrig-gja mán. tíma.
— Skolastjóri flutti mjög glögg-
an fyrirlestur um kvöldið og tal-
aði einkum um baráttuna fyrir
þjóðernismálinu, sem hvergi í
Danm. er eins og hjá þeim, sem
búa rétt á sjálfum landamærun-
um. Taldi hann ástæðu til að
vera viðbúinn vondu frá hlið
þeirra Prússanna. — Benediktsen
flutti þama einnig langa og
snjalla ræðu.
Alstaðar þar sem samkomur
voru, urðum við ísk að syngja
nokkur lög; tókst það vonum
framar. Fjöldi fólks úr nágrenn-
inu var þarna samankomið. Flest
gistum við í skólanum um nótt-
ina en sum í umhverfinu. Næsta
dag árla var lagt af stað vestur
með Flensborgarfirðinum í tveim
opnum bílum. Afarstór bækiskóg-
ur er á leiðinni og gengum við
gegnum hann. Liggur hann alveg
að landamæralínunni. Með mjög
skömmu millibili voru þama vopn-
aðir varðmenn og höfðu flestir
þeirra stóra og grimmúðga hunda
í bandi, er virtust hafa mikla
löngun til að losna og fást við
okkur. — það er einkum smygl-
un og þjófnaður sem þessir menn
eiga að afstýra. — Á leiðinni
gegnum skóginn sagði skólastjóri
mér margar sögur af ástandinu
þama á stríðsárunum og eftir
sameininguna. „Meðan ekki var
komin nægileg lögreglugæsla, var
á nóttunni stolið hér öllu steini
léttara“, sagði hann. „Ef naut-
gripir voru tjóðraðir úti, mátti
við því búast að finna bara húð-
ina og innýflin um morguninn.
Jafnvel flagglínunum af stöngun-
um var stolið“. Hann taldi þetta
mjög náttúrlegt, því hungrið hefði
sorfið að, margar þúsundir hefðu
dáið úr hor héma á þessum slóð-
um og í Flensborg, sem nú blasti
við okkur við fjarðarbotninn. Nú
gengum við upp fr^ firðinum rétt
með línunni og sáum verðina hinu
megin. Yfir landamærin fórum við
á einum stað, tókum jurtir til
minningar og þar voru teknar
myndir á þýskri grand. Nú var
haldið vestur með landamærun-
um með eimlestinni. — Breytist
landslagið mjög. Skógivaxnar
hæðir og ásar skemta nú ekki
auganu lengur; hér verður landið
marflatt og skógfátækt, aðeins
garðar við bæi og þorp, tré með-
fram vegum og ökrum. í Tönder
tók Islandsvinurinn lektor Sivers
móti okkur og sýndi okkur borg-
ina. þar eru margar merkiiegar
byggingar í fornum og nýjum
stýl, stór kennaraskóli og þýskur
mentaskóli er danska ríkið kostar.
I Mögeltönder beið hópur
manna með bíla og hestavagna;
var alt fyrirfram niðurkvarðað
um verastaðina, nöfn okkar nefnd
— sum í mjög skemtilegum út-
gáfum! — og svo var ekki annað
en ktíga upp í vagninn og svo að
þjóta af stað. Við Guðm. hlutum
gistingu hjá frísneskum stór-
eignamanni er heitir Komelíus
Petersen. Hefir hann feiknamikið
bú vestur frá þorpinu. Hann á um
300 tunnur lands en leigir mikið
af því öðram. Húsakynni eru þar
svo stór og ríkmannleg að þvílíkt
hefi eg hvergi séð í sveit.
þarna komu jafnframt okkur 3
gestir: Bóndi frá Suður-Slesvík,
ritstjóri frá Flensborg og Dr. Jan
Kaczmarck frá Berlín. Hann er
pólskur og er aðaltalsmaður Pól-
verja í þýskalandi. Hann er rit-
stjóri tímarits, sem er málgagn
þjóðflokkanna í þýskalandi, er
berjast fyrir því að viðhalda máli
sínu og þjóðerni. Tímaritið heitir
Kultunville. það er talið að vera
mjög merkilegt tímarit og vil eg
nota tækifærið að benda þýsku-
lesandi mönnum og bókasöfnum á
það; geri eg það samkv. ósk dokt-
orsins. — Bústaður hans er í
Chai’lottenburg 4 Schliiterstr. 57.
V. Berlín. — Verð tímaritsins
mun vera um 20 kr., 4 hefti á
ári. — Hér áttum við aftur þess
kost að koma á landamæralínuna.
Á all-langri leið liggur hún eftir
miðjum vegi, svo hægt er að
ganga með annan fótinn í Danm.
en hinn í þýskal. Eru ýms skifti
þarna einkennileg, svo sem þar
sem húsið lendir í þýskal. en garð-
urinn í Danmörku.
Hér vestur við hafið er hol-
lenskt landslag, marflatt merski,
með skurðum, flóðstýflum og
flóðgáttum, og vindmylnum er
dæla vatni. Yfir alt má veita sjón-
um þegar það þykir henta. Mest
alt er landið beitiland, aðgreint
með girðingum og era þar stórar
hjarðir yfir að líta, nautgripa,
fjár og hesta, enda er héðan selt
mjög miikið af gripum.
Um kvöldið var mjög fjölment
samsæti, sem mér þótti í alla
staði mjög ánægjulegt, frjálslegt
og heimilislegt. Heimilisfólkið
hafði með sér kökurnar, rjómann
og sykurinn handa sér og gest-
um sínum; aðeins drykkurinn
fenginn hjá greiðasalanum. —
þama vora fluttar fjölda margar
ræður. Mælst var til þess að und-
irritaður segði álit sitt um það,
hvernig ísl. þjóðinni mundi tak-
ast að bera sjálfstæðisbyrðarnar,
og hvernig hug íslendingar hefðu
til dönsku þjóðarinnar. Var eg
lítt viðbúinn að svara þessu;
i’eyndi að hrækja hraustlega og
kvað þessa 7 ára reynslu benda
á að alt myndi ganga vel og hvað
síðara atriðið snerti, taldi eg hug-
arþelið hafa stórbatnað síðan 1918
að Danir sýndu ágætan samvinnu-
þýðleik í sambandsmálinu og góð-
an skilning á kröfum okkar. —
Eftir að við höfðum sungið
nokkur lög samkv. beiðni samsæt-
isins og eg þakkað fyrir okkar
hönd móttökuna við landamærin
var samkomunni slitið. — þama
kyntist eg ungum og áhugasöm-
um landa frá Akureyri, Jónasi
Kristjánssyni. Hann er að læra
smjör- og ostagerð og býst við
að hann verði um þriggja ára
tíma ytra. Að því námi loknu
hygst hann að beita sér fyrir
smjör- og ostagerð í Eyjafirði
með samvinnusniði. — í flestu
eru Eyfirðingar fyrirmynd.
Húsbóndinn ók okkur heim í
bíl sínum. Nú vora hinir gestirn-
ir farnir og sat nú karlinn á
spjalli við okkur til kl. 2 um nótt-
ina. —
Hann fór sínar leiðir í pólitík,
en sammerkt á hann við alla þar
suður við landamærin í því að
hata Prússa af öllu hjarta. Eg
spurði hann hvaða þýðingu það
mundi hafa í þýskalandi að Hind-
enburg hefði komist að sem for-
seti. „Stríð“, sagði hann. Eg kvað
þjóðverja vopnlausa og lamaða.
„þeir eiga nóg hergögn, sem þeir
hafa leynt“, sagði hann. „þið á
íslandi eignið ykkur eðlilega Edd-
urnar og goðafræðina? — En
þegar eg var í skóla var mér kent
að þetta væru fomþýskar bók-
mentir“. Hann taldi ekki ólíklegt
að Prússar næðu yfirráðum á Is-
landi. Eg spurði um réttindi.
„Réttindi hafa ekkert að segja
gagnvart Prússum. Nú er fundið
gull á íslandi; þar verður notað
þýskt fé og það er nóg!“ — það
síðasta ’sem hann sagði við mig
á járnbrautarstöðipni var þetta:
Gætið ykkar fyrir Prússanum!
Eftir að við höfðum skoðað
Rípar daginn eftir og hina fögru
og frægu Rípa-dómkirkju, vora
haldnar skilnaðar-, kveðju- og
þakklætisræður yfir borðum í
gistihúsinu; þar skildu þau hr.
Benediktsen og frú hans við okk-
ur, eftir dásamlega fararstjóm
og leiðsögu og svo smáþyntist
hópurinn og hver hélt til sinnar
iðju.
Eg má til að nefna smáatriði
eitt, sem eg varð var við í blöð-
unum á eftir. — Maðurinn sem
veitti okkur móttöku og sýndi
okkur Rípar, hafði fengið danska
flaggið dregið á hún á háturnin-
P.W.Jacobsen&Son
Timburverslun.
Símnefni: Granfuru. Carl Lundsgade
Stofnað 1824. Köbenhavn
Afgreiðum frá Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar pantanir og
heila skipsfarma frá Svíþjóð. — Sís og umboðssalar annast pantanir.
Eik og efni í þilfar til skipa.
Undir verdi.
Til sölu hefi eg nú hér á staðnum, ýmsa góða hluti nýa og notaða
en i góðu nothæfu ástandi, er flestir seljast, af ýmsum ástæðum, langt
undir söluverði og sumir langt undir hálfvirði: — 1. Lofthitunar-
vélar, (hitunarmagn 12—20 þús. ten. fet), til íbúðar- og samkomu-
húsa, skóla, kirkna, fiskþurkunar o. fl. — 2. Vindmylnur, til vatns-
dælunar, mölunar, rafframleiðslu og allskonar smá iðnaðar. — 3. Möl-
unarmylnur og kvarnir, af ýsum stærðum og gerðum, fyrir hand-
og vélaafl, er mæla fiskúrgang, hverskonar bein og korn allskonar. —
4. Steinsteypumálning, svört, örugglega vatnsheld, óstökk, varanleg
og ódýr, í 1—4—20 pt. ílátum. — 5. Glashylki til smástrokka, og ýmis-
konar heimiiisáhöld og vélar og hluti í fullu gildi á lágu verði.
Skifti gegn öðru verðmæti, geta (í stærri kaupum) komið til mála.
Hlutir þessir eru yfirleitt af bestu tegundum, og verðið á flestu þó
undir öllu, því að alt á þetta að seljast mjög bráðlega. Þeir er þurfa
að eignast eitthvað af svona hlutum, ættu því að flýta sér að ná í
þetta tækifæri, því að það er takmarkað.
Stefán B. Jónsson
Reykjavík, (Pósthólf 315. — Sími 521).
T. W. Buch
(liitasmiðja Buchs)
Tietgensgade 64. Köbenhavn B.
Litir til heimalitunar :
Demantssorti, hrafnssvart, kastorsorti, Parísarsorti og allir
litir, fallegir og sterkir.
Til heimanotkunar:
Gerduft „fermenta“, eggjaduft, ávaxtadropar, soya, matar-
litir, „Sun“-skósvertan, „ökonom“-skósvertan, sjálfvinnandi
þvottaefnið „Persil“, „Henkou-blæsódinn, „Dixinw-sápuduftið,
„Ata“-skúriduftið, kryddvörur, Blámi, Skilvinduolía o. fl.
Brúnspónn.
Litarvörur:
Anilinlitir, Catechu, blásteinn, brúnspónslitir.
Gljálakk:
„Unicumu á gólf og húsgögn: Þornar fljótt. Agæt tegund.
Fæst alstaðar á íslandt.
um við dómkirkjuna, og einhverj-
um öðrum stað, sem eg man nú
ekki að nefna, en þar er ekki
flaggað fremur en á tumum nema
þegar mikið er um að vera.
Blað eitt finnur því ástæðu til
að spyrja hversvegna sé flaggað
á þessum stöðum. Að fengnu
svari lætur blaðið í ljósi undrun
sína yfir því að þarna sé flaggað
fyrir 30 ungum íslendingum sem
dvelji 3 stundir í borginni, en
fyrir skömmu hafi komið fjöldi
ferðam. frá Englandi og 500 land-
búnaðarmenn danskir, en þá hafi
hvergi sést flagg!
. Dansk Isl. Samfund á þakkir
fyrir að hafa gefið bkkur kost á
för þessari, með svo góðum kjör-
um, sem raun varð á (30—45 kr.
pr. mann). Eg hefði ekki getað
kosið mér betri ferð hér í Danm.
Fegurstu staðir; tilbreytingamest
landslag. Sögustaðir mestir (land-
•ið nýlega endurheimt) og 1 fólk-
inu vellur heitast hjartablóð.
Askov í júlí ’25.
B. Guðmundsson.
----o----
Að „stýfa“ krónuna. Einstaka
menn hafa misskilið þetta orð.
Ætla að tilgangurinn sé að lækka
íslensku krónuna í verði. Full-
kominn misskilningur er það vit-
anlega. Tilgangurinn er að láta
krónuna halda því verði til fram-
búðar sem hún hefir nú og fyrir-
P byggja með því bæði hækkun og
lækkun hennar.
Sögur nýjar eru að koma á
bókamarkaðinn eftir Helga Hjör-
var kennara. Sögurnar eru fimm,
tíu arka bók. Verða áreiðanlega
vinsælar, því að höf. er bæði gáf-
aður, hugkvæmur og ágætlega
ritfær.
Sundskálinn í örfirisey var
vígður næst síðastl. sunnudag að
viðstöddu miklu fjölmenni. Er nú
öllum opinn. En sá hængur er á
að grútarbræðsla er í eynni á
næstu grösum og verður ekki
vinsæl af sundmönnunum.
Einir tveir íþróttamenn keptu
í Álafosshlaupinu sunnudag síð-
astliðinn. Vann Magnús Guð-
bjömsson hlaupið í annað sinn.
Rann skeiðið á 1 klukkutíma 11
mínútum og 42 sekúntum og var
aðeins fljótari , en í fyrra. Ekki
var veður að baga og er þessi
litla þátttaka íþróttamönnum til
lítils sóma.
„Fimmtíu ára minning Bólu-
Hjálmars". Ljóðasyrpu, eigi all-
litla, með því nafni gefur út, og
hefir orta, A. Johnson í Hafnar-
firði. Höfundur mun vera ís-
H.f. Jón Sigmundsson & Co.
Millur
og alt til upphluts
sérlega ódýrt.
Skúfholkar
úr gulli og silfri.
Sent með póstkröfu
út um land ef óskað er.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 383. — Laugaveg 8.
Mótorar til sölu.
Af sjerstökum ástæðum höfum
við eftirtalda mótora til sölu með
sérlega lágu verði:
1 Atlas-Diesel mótor, 25 hest-
afla með ástrengdum dynamó.
Getiír verið notaður með eða án
dynamósins. Hefir verið notaður.
1 Fuller & Johns.on olíumótor,
12 hestafla, með tveim þungum
drifhjólum. Góður til rafmagns-
framleiðslu o. fl. Er ekki nýr.
1 bensín mótor 1 Vfc hestsafls,
hefir verið notaður.
1 rafljósastöð, olíumótor 3%
hestafls, rafgeymir 90 a.t., loft-
kældur mótor. Vélar þessar eru
nýjar. Margra ára reynsla á
ljósastöðvum þessum.
H.F. HITI & LJÓS
Reykjavík.
Sími 830. Símnefni: Hiti.
„Veðráttan“, mánaðaryfirlit ár-
ið 1924, fæst á Veðurstofunni,
verð 1 króna. Á sama stað er
hægt að gerast áskrifandi að
„Veðráttunni" árið 1925, gjald
kr. 1.50. Janúaryfirlitið er komið
út.
pEIM, sem kynnu að ætla sjer
að flytja til bæjarins næsta haust,
vil jeg benda á, að jeg hefi jafnan
til sölu eða get útvegað til kaups,
smærri og stærri hús með lausum
íbúðum. Gerið svo vel að láta
mig vita hvað yður hentar og
hvernig þér getið greitt, mun eg
þá benda yður á þær eignir, sem
sýnast best svara til óska yðar
og kaupgetu.
Reykjavík, Aðalstræti 11,
þ. 9. júlí 1925.
Helgi Sveinsson.
Sunnanfari. Sex síðustu árgang-
ar af Sunnanfara — kostuðu upp-
haflega 15 kr. — eru nú seldir á
8 kr. í Bókabúðinni á Laugavegi
46. Aðeins fá eintök óseld.
B. S. B.
hefir ávalt fyrsta flokks vöru- og
fólksflutningsbifreiðar til leigu
fyrir lægsta verð. Hringið í síma
nr. 16.
Pr. Bifreiðastöð Borgarness
Magnús Jónasson.
Helgi Guðmundsson.
lenskur. Eru skemtilegir sprettir
í kvæðinu og orðalagið einkum
skemtilegt oft og tíðum. En mik-
il vandræði eru það að ganga und-
ir öðru eins nafni — og þurfa
ekki.
-----o-----
Úr sveitinni, að gefnu tilefni:
Katólska manntr...... Kiljan
með klyfjar af lastmælgi þrammar.
Til þess ei vantar þig viljann
að verða sem mest þér til skammar,
En gættu þess samt, er þú sáir
svívirðu’ og fólskunnar orðum,
slík endalok ekki þú fáir ,
eins og Jón Gerreksson forðum.
Sneglu-Halli.
Ritstjóri: Tryggvi þórhalLsson.
Prentsmiðjan Acta.