Tíminn - 28.08.1925, Síða 4
154
TÍMINN
Prá 15. nóvember til 1. apríl 1926 verður kensla veitt hér í
Reykjavík í að prjóna á prjónavél. Kenslukona frú Valgerður Gísla-
dóttir frá Mosfelli.
Kenslugjald t'yrir þá sem eiga eða ætla sér að kaupa Claes-vél
kr. 50.00. Fyrir kenslu á aðrar vélar kr. 100.00. Kenslutími 110
tímar, sem má taka eftir samkomulagi á lengri eða skennnri tírna.
Vinnu og verkefni á nemandinn sjálfur.
Einnig verður námskeið haldið í Vestmannaeyjum, er byrjar 1.
október í haust. Kenslutími 110 tímar. Kenslugjald sama og í Reykja-
vík.
Allar nánari upplýsingar þessu viðvíkjandi gefur undirritaður, og
tekur.á móti umsóknum. Einnig má senda umsóknir um Vestmanna-
eyja-námskeiðið til Guðríðar Jónsdóttur, Heiði, Vestmannaeyjum.
Sem stendur eru fyrirliggjandi hinar viðurkendu Claes-prjónavél-
ar, sem af margra ára reynslu hafa getið sér alment lof hér á landi.
Hefi einnig altaf fyrirliggjandi góðar birgðir af ýmsum varahlut-
um og nálum í þær, og aðrar prjónavélar.
UawMmJ&moMn
Org'el-liarmonínm
hin bestu og vönduðustu sem til landsins flytjast eru frá B. M. Ilaugen
í Noregi. Umboðsmaður á Islandi er Sæmundur Einarsson Þórsgötu
2 Reykjavík, sem gefur allar upplýsingar.
Námsskeid
fyrir eftirlitsmenn nautgripa- og eftirlits- og fóðurbirgðarfélaga verður
haldið í Reykjavík dagana 26. október til 25. nóvember. Námsskeið
þetta verður í sambandi við námsskeið trúnaðarmanna Búnaðarfélags
íslands. Þeir eftirlitsmenn sem sendir eru af félögum, sem starfa eða
ætla að fara að starfa, fá 100 krónu dvalarstyrk í Réykjavík, .og
nokkurn hluta af ferðakostnaði.
Úmsóknir sendist til Búnaðarfélag's Islands.
Byssur til slátrunar
hefi eg af ýmsum gerðum frá þektri verksmiðju í Danmörku eftir til-
vísun Dýraverndunarfélagsins danska sent eftir pöntun og móti póst-
kröfu á einstök heimili, til kaupmanna og pöntunarfélaga.
Hjálpumst öll með að gamla aðferðin (hálsskurðurinn) liverfi
algerlega úr landinu. Allar pantanir afgreiddar fljótt.
Samúel Ólafsson, söðlasmiður Laugaveg 53 B.
góðar og ódýrar, — fást hjá
Sambandi isL samv.félag'a.
urríki varð að gefast upp voru úr-
slitin ráðin. En ekki fyr en hinn
29. sept. sneri herstjómin sér til
ríkisstjómarinnar með þá til-
kynningu að eina ráðið til að kom-
ast hjá fullkominni uppgjöf væri
að fá vopnahlé þegar í stað. Sú
tilkynning kom ríkisstjórninni al-
veg á óvart, og þar sem svo var
komið var ríkisstjóminni að sjálf-
sögðu ókleift að fá vopnahlé með
viðunandi skilmálum. Með þess-
um ummælum allra nefndarmanna
er vitanlega feldur þungur dómur
um æðstu herforingjana, Luden-
dorff og Hindenburg. þeir hafa
dulið stjórnmálamennina því,
hvernig komið var, uns ofseint
var að ná viðunandi friði. En
einkum verður þungur dómur
feldur um keisarann, því að hann
átti að„hafa yfirsýn yfir hvort-
tveggja: hermálin og stjórnmál-
in. Dettur engum í hug að vísu
að herforingjum og keisara hafi
gengið annað til en að gæta hags-
muna þýskalands. En hitt er nú
kunnugt orðið að samvinna her-
stjórnar og stjórnmálamannanna
var engin. f ríkisstjórninni átti
enginn sá maður sæti er gæti tek-
ið fram fyrir hendur herforingj-
anna og heimtað frið meðan von
var um að fá hann sæmilegan.
Einn átti að gera það og hafði
aðstöðuna til að beita sér með
nægilegum myndugleika. það var
keisarinn og hann gerði það ekki.
— Jafnaðarm.flokkurinn franski
hefir ályktað að hætta að styðja
stjórnina, sem hann hefir gert að
undanförnu. Lýsir flokkurinn
fullkominni andstöðu sinni gegn
framkvæmdum stjórnarinnar í
nýlendunum og ákvað að greiða
atkvæði móti fjárveitingum til
hernaðarins í Marokkó og á Sýr-
landi. Var einn jafnaðarmaður
nýlega skipaður landsstjóri yfir
nýlendu austur í Asíu. Hefir hann
verið rekinn úr flokknum.
— Fyrra missiri þessa árs
greiddu þjóðverjar um 800 milj-
ónir gullmarka í hemaðarskaða-
bætur.
— Stríðið í Marokkó hefir þeg-
ar kostað Fkakka 200 miljónir
franka.
— Mikil óveður gengu yfir
norðurhluta álfunnar snemma í
þessum mánuði. Urðu miklar
skemdir á öki'unum í Danmörku
og Norður-þýskalandi, en allra
verst varð óveðrið í Hollandi. í
mörgum borgum og þorpum ui’ðu
stórskemdir á húsum, svo að sum
staðar var alt að helmingur íbú-
anna húsnæðislaus. Er tjónið
metið á sjö mifjónir gyllina.
— Talið er fullvíst að Rússa-
stjórn standi ekki einungis á bak
við óeyrðimar gegn útlendingum
í Kína, heldur og óánægjuna
gegn Englendingum í Egyptalandi
og uppreistimar gegn Frökkum
í Sýrlandi og Marokkó.
— Franskur flugmaður, Arra-i
chart, hefir leyst af hendi flug,
sem mjög er talað um, er talið
eitt hið fi’ækilegasta og bera vott
um hve fullkomnar flugvélarnar
ei’u orðnar. Mánudagsmorgun 10.
þ. m. flaug hann af stað frá Par-
ís og lenti um kvöldið í Mikla-
gai’ði. þriðjudagsmoi’gun flaug
hann af stað frá Miklagarði, kom
við í Bukarest og lenti um eftir-
miðdaginn kl. 6 í Moskva. Mið-
vikudagsmoi'gun klukkan hálf-
fjögur flaug hann af stað frá
Moskva, kom við í Warsjá klukk-
an hálftíu, í Kaupmannahöfn kl.
tvö og lenti í París um kvöldið
í’úmlega klukkan 9.
— Miklar kaupdeilur hafa haf-
ist í Noi'egi vegna hækkunar
krónunnar.
— Sýrland var á valdi Tyrkja
til enda heimsstyrjaldarinnar. þá
var það gert sjálfstætt að nafni
en sett undir vemd Frakka, og
er í rauninni frönsk nýlenda. Hef-
ir Frökkum gengið mun erfiðar
að friða þar, en Englendingum í
Gyðingalandi. Hófst uppþot
snemma í þessum mánuði, einkum
meðal Drúsa, kynflokks sem býr
í fjalllendi, sem ilt er um að fara.
Sendi landstjórinn hersveit til
að bæla uppþotið niður, en henni
farnaðist þannig, að flestir vom
drepnir, nokkrir handteknir, en
fáir einir komust heilir á húfi
til baka. Síðan hefir uppreisnin
magnast til muna. Kemur Frökk-
um þetta sérstaklega illa nú því að
þeir hafa nýlega orðið að senda
mikinn liðsauka heiman til að
bæla niður uppreisnina í Marokkó
og heimafyi’ir er mikil óánægja
út af nýlendustjórninni.
— Mustafa Kemal, einvaldur
Tyi'klands, hefir nýlega skilið við
konu sína og er um meira að ræða
en venjulegt hjónaskilnaðai'mál.
Latif Hanum heitir konan, tyrk-
nesk að ætt, en alin upp að nokkru
á Englandi. þá er hún giftist Mu-
stafa Kemal tókst hún á hendur
forystu um að afla konum á Tyrk-
landi hins sama réttar sem þær
njóta í Norðurálfulöndum, en það
er alkunnugt að hjá Múhameðs-
trúarmönnum yfirleitt hefir kven-
fólkið ekki átt að hrósa miklum
réttindum. Latif Hanum samdi
sig algerlega að siðum enskra
kvenna, lét ekki loka sig inni,
heldur umgekst karla jafnt sem
konur, blandaði sér allmjög í
stjói’nmálin og ki’afði rneiri rétt-
ar og sjálfstæðis fyrir tyrknesk-
ar konur. Var búist við að henni
yrði mikið ágengt, er hún var
gift einvaldanum. Nú er sú saga
úti.
— þrjá síðustu mánuði hafa
meir en 50 þúsund Rússar flust
til Síbei'íu, til þess að nema þar
nýtt land. Fer stórlega í vöxt
fólksflutningur þangað austur.
— Enn harðnar viðureignin í
Kína. Hafa Kínverjar bannað
skipum Noi’ðurálfumanna að
koma á sumar hafnir mestu versl-
unarborganna í Kína og veldur
það stórkostlegu tjóni að sjálf-
sögðu. Og enn heldur áfram
vei’kfall Kínverja í verksmiðjum
þeim sem Norðurálfumenn eiga.
Er verið að undirbúa saimeigin-
legan fund þeixra þjóða sem hags-
muna eiga að gæta í Kína.
— Hatrið á Gyðingum hefir
lengi verið mikið í Mið-Evrópu
og kom nýlega greinilega í ljós
í Vínarborg. Höfðu forsprakkar
Gyðinga allsher j armót þar, en
urðu fyrir hinní mestu ásókn
borgai’manna. Eru til öflug félög
bæði í þýskalandi og Austurríki,
sem beinlínis vinna að því með
öllum meðulum, að gera Gyðing-
um alt til bölvunar.
— Enska stjórnin ætlar að
skipa, eða hefir þegar skipað
nefnd manna til að rannsaka
hvemig eigi að ráða fram úr
kolamálunum. Lausn sú er gripið
var til, að ríkið greiddi tekju-
hallann af rekstrinum níu mán-
uðina næstu, er vitanlega aðeins
til bráðabirgða. í nefnd þessari
eiga hvorki að eiga sæti fulltrúar
námueigenda eða námuverka-
manna.
— þá er ákveðið var, að enska
í’íkið styi’kti kolanámurekstui’inn
eins og alkunnugt er, varð einn
ráðherrann, verslunaxráðherrann,
að beiðast lausnar. Er hann stór-
ríkur maður og á meðal annars
margar kolanámur. þótti ekki
annað hlýða en að hann legði
þegar niður ráðhen’adóm, er ríkið
fór að hafa svo bein viðskifti af
námueigendum. Ætli kröfurnar
séu svona háar á íslandi?
Pardusdýr, grimt, ótamið og
nýfengið, slapp úr dýragarðinum
í París nýlega og hafðist við um
hríð í skógum í nánd við borgina.
Sló miklum flemtri á fólk, sem
líklegt var. Var gerður út hóp-
ur veiðimanna til höfuðs dýrinu
og tókst að skjóta það, áður en
það yrði nokkrum að bana.
-----o----
óvenjumikið er af berjum í
sumar, um alt suðurland a. m. k.
Ekki hefði gömlu mönnunum þótt
það vita á gott um veturinn.
Norrænt kennaraþing,
hið tólfta í röðinni, var haldið
í Helsingfors í byrjun þessa mán-
aðar. Slík þing ex’u haldin fimta
hvert ár og sótt af þúsundum
kennara af öllum Norðui’löndum.
þingið sóttu að þessu sinni þess-
ir Islendingar: Ásgeir Ásgeirs-
son, Björn Guðmundsson, Ingi-
björg H. Bjamason, Ki’istbjörg
Jónatansdóttii’, Sigurður Nordal
og Viktoría Guðmundsdóttir. Er
þetta í fyrsta sinni sem Islending-
ar hafa tekið opinberan þátt í
þingstöi’fum. Var þeim og fagnað
með virktum, og bauð Setálá,
fræðslumálaráðherra Finnlands,
þá velkomna, á íslensku, í fundar-
býrjun, með þessum orðum: „Eg
heilsa yður, Islendingar, konur
og menn frá sögulandinu, landi
di’auma vorra, landi, sem geymdi
handa niðjum sínum hinar þýð-
ingarmiklu leyfar gamallar nor-
rænnar trúar og noi’i-ænnar menn-
ingar. Verið velkomnir, þér Is-
lendingar, til þessa lands, sem
einnig er norrænt land, og sem
einnig geymdi trá feðranna og
sögu þeirra. Verið velkomnir“.
það þótti tíðindum sæta að heyra
Finnlending mæla á íslenska
tungu. Á mótinu hélt Sigurður
próf. Nordal fyrirlestur um ís-
lenska menning og Ásgeir kenn-
ari Ásgeirsson um íslensk skóla-
mál. Voru fyrirlestrarnir haldnir
tvisvar sinnum, í annað skiftið
með túlk, sem þýddi jafnóðum á
finsku. Um 70 erindi voru flutt
á þinginu og verður ítai’lega frá
því sagt í „Mentamálum“.
Ólafsfirðingar auglýsa laust til
umsóknar hið nýja læknishérað
sitt. Veitti Alþingi þeim 2600 kr.
styúk til læknishalds, en það sem
á vantar leggja þeir fram sjálfir.
Erlingur Pálsson, yfirlögreglu-
þjónn synti síðastliðinn sunnudag
frá Viðey og inn á ReykjavíkUr-
höfn. Vegalengdin mun vera um
5(4 kílómeter. Benedikt Guðjóns-
son synti frá Viðey til lands,
nokkuð styttri leið fyrir 10 ár-
um. Erlingur synti leiðina á 2
klst. 40 mín. og 22 sek.
Klemens Jónsson í’áðherra kom
heim úr utanför mánudag síðast-
liðinn. Sat fund noiræns sam-
bands embættismanna er háður
var í Kaupmannahöfn.
Látinn. Jón Jónatansson, al-
þingismaður fyrverandi, lést hér
í bænum þriðjudag síðastliðinn.
Hann var ekki nema rúmlega
fimtugur, prýðilega vel gefinn
maður og áhugasamur um al-
menn mál. Verður nánar minst
síðar.
100 hestar af töðu brunnu á
Svalbarði á Svalbai’ðsströnd um
síðustu lxelgi.
Úr helju heimtir! Miklir menn
og mannúðarfullir eru Reykvík-
ingar. Mikil hraustmenni búa þar,
ekki síst hinn útlendi verslunar-
lýður, sem af einlægri umhyggju
fyrir afkomu íslendinga tyllir sér
hér niður eins og kría á stein.
Saga sem gerðist hér í bænum
nú í vikunni ber um þetta ljósast
vitni: þrír menn: Kaupmaður
útlendur að ætt og tveir
útlendir umboðssalar ljetu bíl
flytja sig upp á Hellisheiði í
fyrradag. þeir ætluðu að fara á
veiðar, hetjurnar. Bíllin átti að
sækja þá um kvöldið. En þegar
H.f. Jón Sigmundsson & Co.
Áhersla lögð á
ábyggileg viðskifti.
Millur, svuntuspennur
og belti
ávalt fyrirliggjandi.
Sent með póstkröfu
um alt land.
Jón Sigmundsson gullsmiður.
Sími 383. — Laugaveg 8.
MELOTTE
Aðalumboðsmenn:
Á. ÓLAFSSON & SCHRAM
Símn.: Avo. Simi: 1498
Sjó- og bruna
vátryggingar.
Símar:
Sjótrygging’ .... 542
Bi'unati’ygging . . 254
Framkvæmdai’stjóri . 309
Vátryggið
hjá
íslensku
félagi.
Baldvin Einarsson aktýgja-
smiður, Hverfisgötu 56 a.
hann kom á vettvang voru þeir
hvergi sjáanlegir og komu ekkl
þótt beðið væri lengi. Skelfing og
ótti greip vinina er fregnin um
þetta barst til bæjarins. Hvílíkur
háski að hetjui’nar skyldu vera
einar og yfirgefnar uppi á Hellis-
heiði, sumarnóttina. Herör var
skorin upp um bæinn. Tugum
manna var hóað saman til þess
að fara í dauðaleitina. Margir
bílar voi’U teknir á leigu, er fluttu
leitarmenn upp á heiðar. þar var
þeim skipulega í’aðað, með 100
meti-a millibili. Ekki sólarhring
hafði hetjanna verið saknað um
hásumarið, er leitin var hafin.
Svona er að vera' viðbragðsfljót-
ur. Einn leitai’maðurinn fór 1 bíl
upp á Mosfellsheiði og hitti þar
hetjurnar gangandi á veginum.
þeir höfðu vei’ið rúma tuttugu
tíma að ganga milli Mosfellsheið-
ar Hellisheiðai’vegar. Urðu fagn-
aðarfundir og sem best hlúið að
hetjunum í bílnum. þegai’ heim
kom voru sendir enn bílar til að
sækja leitarmennina, með 100
metra millibilinu. Og svo var hald-
in stórveisla öllum þátttakendum.
— Verður þessa hetjuskapar lengi
minst.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson.
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta.