Tíminn - 19.12.1925, Síða 3

Tíminn - 19.12.1925, Síða 3
TIMINN 217 Ekki þriggja mánaða heldur um þrjátíu ára reynsla bænda út um alt land, sannar að Alfa laval skilvindurnar reynast best. Alfa Laval skilvindan hefir hlotið yfir 1200 — tólf hundruð — fyrstu verðlaun á sýningum víðs- vegar um heim, enda voru taldar að vera í notkun um síðustu áramót hátt á fjórdu miljón, og eru það miklu fleiri en frá nokk- urri annari skilvinduverksmiðju. Einkasölu á íslandi hefir lli J ! 1 r _ trt ’ sP’ Samband ísL samv.félaga. Gaddavirinn „Samband“ er sterkur og tiltölulega langódýrastur, Kaupfélögin annast um pantanir. fyrirlestraferð Jóns frá Ystafelli hér um um sýsluna hafi skaðað kaupfélögin og samvinnumenn. Skiljanlegt er að bréfritarinn voni þetta, en það er dálítið annað. Húnvetnskir samvinnumenn þakka Jóni frá Ystafelli fyrir komuna iiingað. Óþökk kaupmannaflokks- ins var vitanleg fyrirfram og hana getur Jón Sigurðsson tekið sér til tekna, því hún þýðir vitan- lega það eitt, að Jón hafi rekið erindi sitt vel. Fjórði Húnvetningur. ---o--- Frá útlöndum. Rjómabúafélögin dönsku hafa stofnað tryggingarfjelög vegna tjóns af gin- og klaufaveikinni. Landbúnaðarráðherrann hefir veitt kaupfjelögunum einkarjett til þess að versla með sóttvarna- meðöl vegna veikinnar. Eins og líklegt er, eru kaupmenn æfir út af því. — í Bandaríkjunum hafa 74 menn meir en eina miljón dollara í tekjur á ári. Einir þrír hafa meir en 5 milj. dollara í árs- tekjur, flestir, 49, milli 1 og 2 miljónir. — Færeyskir dansarar hafa sýnt þá þjóðlegu list sína í Nor- egi undanfarið. Hvarvetna var þeim tekið með kostum og kynj~’ um. Foringi þeirra var Páll Pat- ursson, sonur foringja sjálfstæðis- mannanna færeysku. Hann stund- aði nám hjer í bænum, um hríð, á unga aldri. — í Noregi hefir gengishækk- unin leitt af sér stórkostlegt at- vinnuleysi, eins og alstaðar ann- arsstaðar. Um miðjan f. m. er talið að um 30000 menn hafi ver- ið þar atvinnulausir. — Eins og til stóð, var Locarno- samningurinn undirritaður í Lon- don 1. þ. m. Spöruðu Englendingar ekkert um að gjöra þá athöfn sem viðhafnarmesta og hátíðlegasta, Fulltrúar landanna og gestir komu saman í hinum mikla hátíðasal utanríkisráðuneytisins. Um 200 blaðamenn voru viðstaddir, hvað- anæfa úr heiminum, og 50 ljós- myndasmiðir tóku lifandi myndir af athöfninni. Með samningnum hafa Frakkland, Belgía og þýska- land skuldbundið sig til að kasta burt allri hugsun um hefndar- styrjöld. Hefir þýskaland, aí frjálsum vilja, lofað að reyna ekki að vinna aftur af Frökkum lönd þau, er þeir urðu að láta af hendi. komna skálds. Eftir iieimkomuna komst jafnvœgi á skoðanir hans um landið. Bókmentahrifningin hafðl vaxið, ef nokkuð var. Og náttúra hins bera og niðumídda lands hafði líka hrifið hann. Fáum árum síðar fór hann aðra ferð hingað og frá Reykjavík austur að Hlíðarenda. það- an norður fjöll til Mývatnssveitar og Ásbyrgis, og síðan vestur um sveitir. í þessari för leitaði hann ekki sögu- staðanna heldur landsins sjálfs. Eftir á sagði hann um ferð þessa að hún hefði aukið ást sína á landinu. Hann fann þá til undursamlegrar lotningar fyrir fegurð landsins, líkt og full- nægðri heimþrá manns er eftir langa burtveru sór aftur ættjörð sína. þessi tilfinning breyttist ekki meðan Morr- is lifði og gekk i arf til dóttur hans, sem enn er á lííi. Næsti maður er kemur til sögunnar heitir C. K. Austin. Hann er Banda- ríkjamaður, nú hniginn á efri ald- ur og býr í smábæ við Miðjarðar- hafið, skamt sunnan við Genua. Austin fór barnungur til þýskalands og. nam þar noltkuð af skólalærdómi, fór þaðan tii Frakklands, tók þar læknispróf og bjó síðan í Paris flest sín þroskaár. Á sumrin ferðaðist hann um flest hin suðlægu lönd álfunnar og nam tungur þeirra þjóða. Síðan tók hann að venja komur sínar til Nor- egs, nam tungu Norðmanna og las England og Ítalía skuldbundið sig til að hjálpa þeim aðila sem ráðist verður á, hvoru megin Rínar, sem hann býr. Pólland, Tjekkó-Slafa- land og þýskaland hafa orðið ásátt um að leggja í alþjóðar- gerðardóm öll deilumál um landa- mærin. — þegar allir fulltrúar, hlutaðeigandi landa, voru sestir, reis upp lögfræðilegur ráðunautur ensku stjórnarinnar, Hurst, og lýsti yfir, að umboðsskjöl fulltrú- anna, til að undirrita samninginn, hefðu verið rannsökuð og væru öll í lagi. þvínæst skoraði Cham- berlain, utanríkisráðherra Eng- lands, á fulltrúana, að hefja að undiiTÍta. Bar lögfræðingurinn nú samninginn frá einum til annars, og var undirskriftum lokið á tíu mínútum. Briand, utanríkisráð- herra Frakklands, tók því næst fyrstur til máls og er mælsku hans og hrifningu við brugðið. Hann gat þess meðal annars í ræðu sinni að hann hefði fengið bréf frá franskri konu, sem ritaði á þessa leið: Loks get eg horft á bömin mín kvíðalaust og alið þau upp í fullri vissu um að þau verði ekki nýrri styrjöld að bráð. Briand lauk máli sínu með þessum orðum: Andspænis mér sitja full- trúar þýskalands. það merkir ekki það að eg sé hættur að vera Frakki, enda halda þeir áfram að vera góðir þjóðverjar. En gagnvart þessum samningum er- um við allir fyrst og fremst Norðurálfumenn. ógurlegur mann- fjöldi fagnaði fulltrúunum er þeir fóru heim og mest bar á fagnaðar- látunum kring um fulltrúa þjóð- verja. — Rannsóknamefnd sú, er Al- þjóðabandalagið skipaði útaf árás Grikkja á Búlgara, hefir gefið skýrslu. Kröfðust Grikkir að fá 214 milj. kr. í skaðabætur, en þeirri kröfu er algerlega hafnað og Grikkjum þvert á móti ætlað að borga Búlgurum D/3 kr. í skaðabætur. Sökin er algerlega lögð á Grikkja herðar; ríkir þar í landi samskonar íhaldshervalds- kúgun og á Ítalíu. Búist er við að alþjóðasambandsráðið fallist á tillögur nefndarinnar. Bæði lönd- in hafa bundið sig fyrirfram að fallast á úrskurðinn. — Amerískur vísindamaður, R. A. Millikan, sá er í fyrra hlaut Nobelsverðlaunin í eðlisfræði, tel- ur sig hafa fundið nýja geisla, miklu sterkari en þá sem áður þekkjast. Við tilraunir hefir tek- ist að láta geisla þessa fara í gegn um tveggja metra þykka málm- búta. Er ætlað að þessi uppgötv- un geti haft mikla verklega þýð- alt hið helsta sem ritað er á málum frændþjóða okkar í austurátt. Brátt drógst hugur hans að íslandi. Byrj aði hann að nema málið og naut ti) þess nokkurs stuðnings frá dr. Guðm. Finnbogasyni, sem þá átti heima í París. pótti honum nú íslenskan merkilegust allra hinna mörgu tungu- mála er hann kunni og lagði hina mestu stund á íslensk íræöi. Sumar eitt, laust fyrir 1911 fór dr. Austin með konu sinni hringferð kringum landið með skipi. Kom víða við en komst óvíða langt inn í landið. Skipakosturinn var þá hinn versti, svo að ferðin var þeim hjónum erfið. En þau lögðu glöð á sig erfiðleikana, og ætluðu síðar að ferðast um óbygð- irnar, en þá skall stríðið á 0g breytti flestum slíkum ráðagerðum. Eftir komu sína til íslands hélt dr. Austin áfram íslenskunámi sínu með enn meira kappi en áður. Hann las alt hið helsta sem nú er ritað á málinu og allar hinar eldri bók- mentir. Með svo mikilli elju stundaði hann lestur íslcnskra fræða, að sum- arið 1911 varð eg var við að hann safnaði orðum úr bókum er hann las meðan hann sat í strætisvögnum þeim er ganga eftir brautum neðan- jarðar i Paris. Hann hafði miklar mætur á sumum hliðum á sagnagerð Jóns Trausta, og þó enn meir á sög- um þorgils gjallanda, vegna þe3S ing-u. En tilraunirnar eru sagðar mjög hættulegar. — I október síðastl. fór vísinda- leiðangur fornfræðinga í rann- sóknarferð suður á Saharaeyði- mörku, frá Frakklandi. Snemma í þessum mánuði fundu þeir merk- ar fornaldarleifar nálægt miðri eyðimörkinni. Er það gröf drotn- ingar frá því 1000 árum fyrir Krists burð. Mikið af allskonar dýrgripum fanst í gröfinni. — Rússastjórn hefir leigt ensku auðfélagi hinar ríku gullnámur við ána Lena í Síberíu. Gullfram- leiðslan á að vera a. m. k. c. 60 þús. kíló af gulli árlega og mis- munandi af öðrum málmum. Verð- ur Rússaveldi þá aftur þriðja stærsta gullframleiðsluland í heimi. 7% af gullinu og 4—6% af öðrum málmum á ríkið að fá. — Fyrstu vikuna I þ. m. bætt- ust í hóp atvinnulausra manna í Ðanmörku 10250 menn. Segja opinberar skýrslur þá tölu at- vinnulausra 61389, en vitanlega ná skýrslumar ekki til nærri allra. Ætli þeir fagni henni ekki vel á jólunum, gengishækkuninni, sem atvinnuleysinu veldur, þessir óhamingjusömu menn? að i ritum þeirra fann hann glöggar lýsingar á íslenskri náttúru og lifs- venjum. Sjálfur líktist hann þeim söguhetjum fornaldarinnar, sem mesta aðdáun vekja, löngum fálátur, en með djúpar og sterkar tilfinning ar og einhuga i allri breytni. Hann sagði eitt sinn i bréfi, að islensku fjöllin væru eins og myndastyttur nakinna kappa. Nálega allir, sem dá náttúru landsins unna skógleysinu, af því að þá kemur betur í ijós hið sanna útlit landsins. priðji gesturinn, sem hér verður vikið að var André Courmont, ræðis- maður Frakka. Courmont kom hing- að rúmlega tvítugur, og hafði þá lok- ið glæsilegum prófum í málfræði við háskólana í Cambridge og Paris. Hon- um stóð opinn vegur til vísindalegrar frægðar í þeim löndum báðum. Mál- fræðin knúði hann norður á bóginn til íslands. Hann var hér fyrst nokk- ur missiri og nam svo vel íslensku, að það er mál þess^ manns hér við háskólann, er best kann um slíka hluti að dæma, að enginn útlending- ur hafi fyr eða síðar numið íslensku jafnvel óg hann. Courmont hneigðist lítið að bæja- menningunni islensku. Hugur hans var allur við málið, bókmentirnar, hestana og fegurð auðnanna. Hann hafði miklar mætur á sveitafólki, — Víðast.hvar í Norðurálfunni annarsstaðar en á íslandi, hefir veturinn verið afarharður. Er áð- ur getið um hörkurnar á Norður- löndumi um síðustu mánaðamót urðu jarðbönn svo mikil á Suður- þýskalandi að úlfar gengu í stór- hópum meðfram Rín og um sama leyti snjóaði mikið suður við Mið- jarðarhaf. Hefir ekki snjóað þar svo mikið í síðustu 15 árin. — Einn stærsti bankinn í Kaupmannahöfn er Privatbanken, og hefir verið aðalviðskiftabanki íslandsbanka. Undanfarið hefir orðið töluverð ókyrð um bankann, enda um viðkvæmt mál að ræða, þar sem svo margir bankar í Dan- mörku hafa lent í vandræðum undanfarið. Magnaðist ókyrðin við það, að það fréttist að banka- eftirlitsmaðurinn væri að rann- saka bankann. I allstórum stíl tóku menn sparifé sitt út úr bank- anum og hlutabréf hans féllu mjög í verði á kauphöllinni. 7. þ. m. sendi bankinn út opinbera til- kynningu um rannsókn banka- eftirlitsmanns. Krefst hann þess að bankinn afskrifi á þessu ári, fyrir tapi, 14. miljónir króna og auk þess á bankinn að taka frá, sem var mótað af hinni fomu menn- ingu og náttúru landsins. Hann hafði lesið alt, sem ritað var á íslensku og vert var að vera lesið. Alt sem var ramislenskt var honum hugfelt t. d. ljóð Bólu-Hjálmars. Stundum dreymdi hann visur, sem voru i anda Hjálm- ars. Hugurinn hélt áfram að glíma við grettistök skáldsins, þótt maður- inn svæfi. Ekkert skáld hefir meira að eðlilegum íslenskum séreinkennum en Hjálmar. Ekkert af stórskáldum oltkar á seinni tímum hefir átt minna að þakka útlendri menningu en hann llvað sem líður ættartölu Hjálmars er hann skilgetinn mögur íslenskra lífskjara og heimamenningar. Courmont var sonur efnamanns í hinni glæsilegustu af heimsborgunum. Honum stóð opið að sitja sólarmegin við háborð þess líls, sem samtíðar- menn hans i öllum löndum þrá einna mest. En hann varð því afhuga. í stað þess drakk hann 1 sig þá íeg- urð, sem hefir staðið til boða gáfuð- um íslendingum siðustu aldirnar. Fegurð auðnanna, hið tæra loft, hið langdræga skygni, hin miklu litbrigði. fegurð málsins og bókmentirnar. Hann kunni að meta góða hesta og einfaldleika Bedúínalífsins í strjálbýli sveitanna. Fyrir fáum árum kom hingað til lands einn hinn gáfaðisti og andrik asti sögufræðingur og bókmentamað- af varasjóði, 11 miljónir króna, fyrir væntanlegu tapi. Hinsvegar lítur bankaeftirlitsmaðurinn-svo á, að bankinn standi vel, er á alt er litið og geti afskrifað þetta tap af ágóða þessa árs. En það kem- ur skýrt fram að gengishækkunin er höfuðástæðan til þessa mikla taps. Bankinn hefir ekki tapað á „spekulatíónum“, hann hefir yfir- leitt alls ekki „skepúlerað“. það eru skuldunautar bankans, sem hafa tapað á gengishækkuninni, standa ekki undir því tapi, svo að það lendir á bankanum. Aðal- spumingin um framtíð bankans er sú, hvort hann muni standast töpin, sem munu bætast við, ef gengishækkunin heldur áfram. Hefir þetta vakið mikla athygli í Danmörku. Hér á Islandi er það ekki síðru alvarlegt íhugarefni. — Locarnosamningurinn á að fyrirbyggja ófrið út af landa- mærum í Mið-Evrópu. Hann gild- ir um öll landamæri þýskalands, nema milli þýskalands og Dan- merkur, en frá Dana hálfu hefir verið gerð tilraun til að fá einnig samning um þau. Nú er mjög talað um að fá samskonar samn- ing fyrir Austur-Evrópu og koma þá einkum til greina landamæri Rússlands og hinna mörgu nýju ríkja sem að því liggja. Einkum hafa heyrst raddir um þetta frá Finnlandi. Er búist við að sá róð- ur verði erfiður. — Snemma í þessum mánuði varð upp víst að kona og þrír Englendingar hafa njósnað um skipulag lofthemaðarins franska. Voru öll tekin höndum og hafa játað á sig njósnirnar. Eins og vonlegt er hefir orðið um þetta mesta umtal á Frakklandi og er einkum bent á hve þetta sje í mikilli mótsögn við þann friðar- hug, sem fram kom við undir- skrift Locarno-samningsins. — Hinir svæsnustu íhaldsmenn á þýskalandi fara ekki dult með, að þeim hafi mjög brugðist von- ir um Hindenburg, eftir að þeir höfðu ráðið forsetakosningu hans. Er bert að gamli maðurinn ætlar alls ekki að vera verkfæri einstaks stjórnmálaflokks. Hann var með Locamo-samningnum, þvert á móti vilja Ihaldsmanna og þá er stjórnin varð að segja af sjer lagði hann til að hin nýja stjórn yrði mynduð á sem breiðustum grundvelli og jafnvel Jafnaðar- menn ættu sæti í henni og styddu, til þess að hún yrði nógu sterk til að koma því í framkvæmd sem þarf til að rétta fjárhag rík- isins. Gamla orðtak keisarans var: ur við háskólann í Osló, Fr. Paasche. Hann ferðaðist víða um land, kynt- ist landinu og fólkinu. Bókmentimai þekti hann áður. Af að tala við Paasche stutta stund í sumar sem leið, kom mér til hugar svarið við spurningunni: Hverskonar erlendir gestir eru það sem eiga verulegt erindi til íslands? Paasche segir að það séu tvö lönd í Evrópu, er menn eiga ekki að ferðast til, af þvi að þeir vilji þá alt af leita þangað aftur. þessi lönd eru ísland og ítalia. þegar vomæturnar eru orðnar langar og bjartar fer þessi Austmaður að þrá að sigla „út til íslands". Og honum er fullkomlega ljóst hvað dregur hug hans hingað. Ilann leitar ekki að mildum veðrum og mjúkum dýnum. Paasche finnur samræmi milli islensku fjallanna, fornsagnanna og góðrar myndhöggv- aralistar. íslensku fjöllin eru nakin og ber. Skógurinn breiðir ekki yfir grænan voðfeldan hjúp. Og loftið er tærara og gegnsærra en í nokkru öðru landi álfunnar, að frá töldum úrvals- dögunum á Ítalíu. þess vegna sjást fjöllin svo greinilega, hver lína kem- ur fram glögg og skör eins og í högg mynd. Og svo koma sögurnar, þar sem persónurnar eru mótaðar svo ljóst og áþreifanlega að þær standa fyrir hugskotssjónum lesarans ein3 og Kristur Thorvaldsens eða Davíð

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.