Tíminn - 09.01.1926, Side 1

Tíminn - 09.01.1926, Side 1
®)aíbírti af^ret&slur"aÖur Citnans n 5 i (j u r j í i t ^ r i 6 r t f s f c n, Santban&síjústnu, Keyfianií. S^fcpretbsía % t i m a b s er t 5amban6sf?íisi»ui &pin öagleaa 9 —12 f. f) 5imt í96. X. ér. KeykjaTÍk 9. janúar 192(> 2 íiIh.1 Öllum þeim mörgu sem sýndu samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför Páls Jónssonar frá Einarsnesi, vottum við okkar innilegasta þakklæti. Aðstandendur. Framsóknarftuidur verður haldinn í Sanrvinnuskólanum kl. 8V2 fimtudaginn 15. janúar. Málshefjandi Jónas Jónsson frá Hriflu. Umræðueftii: Nauðsynlegar breytingar á fyrirkomulagi barnaskólanna. Allir kennarar í bænura og nágrenni eru velkomnir. Sömuleiðis fræðslumálaráðherra Jón Magnússon. Stiórnm. I. Sigurðar pórðarson fyrverandi sýslumaður í Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu hefir gefið út ádeilu- rit mikið sem hann nefnir: Nýi sáttmáli. Hefir það vakið geysi- mikla athygli og umtal hér í bæn- um og verða kaflar úr „því birt- ir hér í blaðinu. Tíðkaðist sá siður mjög fyrr- um, að skáldin ortu ádeilukvæði á samtíð sína og’ er Aldarháttur Hallgiáms Péturssonar einna frægastur. Er Nýi sáttmáli sams- konar ádeila á samtíðina. Höf. er einn af elstu og merk- ustu lögfræðingum landsins, mað- ur sem ávalt hefir notið mikils trausts og virðingar. pessvegna mun mikið tillit verða tekið til þessarar ádeilu hans. Hefir rit hans og marga og merka kosti, en um leið nokkra galla, og eink- um ávantanir, sem skiljanlegt er að málavöxtum athuguðum. En þakklæti alþjóðar á Sigurður þórðarson skilið fyrir að hafa gjörst rödd hrópandans á gamals- aldri, því að vitanlega hefði hon- um verið um alt þægilegra að „þegja þunnu hljóði“. Mun enginn efa, að heilög vand- læting og réttlætistilfinning valda því fyrst og fremst að ritið er samið. II. Höf. segir það hiklaust að hann er íhaldsmaður. En hann er of heiðarlegur til að geta þagað yfir hinum mörgu og alvarlegu ávirð- ingum flokksbræðra sinna. Hann ræðst á suma áhrifamestu for- ingja íhaldsflokksins með heift og vægðarlausri hörku og sömu meðferð, engu vægari, fá sumir helstu menn Sjálfstæðisflokksins. Er það eftirtektarvert að þyngst- ar ákúrur fá einmitt þeir for- ingjar þessara flokka, sem á sín- um tíma stóðu fastast í gegn þeirri kröfu Framsóknarflokksins að fá hreint borð í íslandsbanka- málinu. Iíreinskilni höf. gagnvart þess- um flokksbræðrum sínum er fylstu viðurkenningar verð. En hins vegar hlífist hann mjög við að deila á tvo hina syndugustu í hópnum: Magnús Guðmundsson og Jón þorláksson. Eins og síðar verður að vikið lágu þó fáir betur við höggi, einmitt í nánu sam- bandi við margt sem gert er að umtalsefni í ritinu. I fáum smáatriðum hallar hann máli á Framsóknarflokkinn, mið- ur réttilega. En í raun og veru er það ekki undarlegt. Höf. er að eðli til og af innileg-ri sannfær- ingu íhalds- og kyrstöðumaður. Með engum rétti verður þess krafist, að hann skilji athafnir og áhugamál framsækins umbóta- flokks, sem á mörgum sviðum vill brjóta nýjar leiðir. IJitt er miklu eftirtektarverð- ara, að þá er svo eindreginn og orðhvass íhaldsmaður tekur sér penna í hönd til að deila á sam- tíðina, og helstu menn úr sínum eigin flokki sérstaklega, að þá skuli hann ekki deila harðara á hina framsæknu menn, sem eru honum óskyldastir í stjórnmála- skoðunum. það ber þess vottinn að réttlætistilfinning hans er á háu stigi. III. þar sem höf. er einn af elstu og reyndustu lögreglustjórum og dómurum landsins, verður tekið hvað mest tillit til ádeilu hans um meðferð þeirra mála. Er -það og svo að hlutfallslega mestur hluti ritsins fjallar um þessi efni. Mun allur þorri lesenda hans fall- ast á, að þar hafi hann komið að máli sem er eitt hið alvar- legasta í íslensku þjóðlífi nú. Eru það flokksbræður höf., Jón Magn- ússon sem lengst hefir verið dómsmálaráðherra undanfarið, og Jóhannes Jóhannesson bæjarfó- geti, sem fá þar mjög þungan og ítarlega rökstuddan dóm. Höf. rekur sérstaklega ítarlega meðferð málsins út af hvarfi Guðjóns bónda Finnssonar frá Gufunesi. Mun það vera svo um rnarga fleiri en þann, sem þetta skrifar, að þeir hafa ekki haft fulla hugmynd um rekstur þess máls fyr. En höf. hefir haft öll skjöl málsins í höndum og vitnar allajafna í þau. Hann telur meðferð málsins með öllu óverjandi og hver einasti leik- maður sem les frásögnina, mun taka undir þau ummæli hans. Hefir Tíminn oftsinnis áfelt þann slappleika og lognmollu sem ríkt hefir um meðferð sakamála, og- magnast hefir hin síðari árin. En enginn hefir svo fastlega gripið á þessu kýli sem Sigurður þórðarson gerir nú — og hefir reynslu og þekkingu fram yfir flesta aði’a. Er það öllum vitanlegt, að ef „miskunn sem heitir skálkaskjól“, verður ríkjandi hjá þeim, sem þjóðfélagið hefir falið að halda á sverði réttlætisins, þá er hin allra hættulegasta spilling yfir- vofandi. Svo sem höf. rekur með'ferð þessa áðurumgetna máls er óhugs- andi annað en að það mál verði tekið aftur upp til frekari rann- sóknar. pegar fram hefir komið opinberlega svo rækileg gagnrýn- ing- á rekstri málsins, frá svo merkum manni sem Sigurður þórðarson er, bæri það vott um enn hættulegri svefn og andvara- leysi, um að halda uppi lögum og rétti í landi, ef ekki væri frekar að hafst. Ýms önnur mál nefnir höf. og gagnrýnir meðferð þeirra að því er virðist með fylsta rétti. En í því sambandi verður að minnast þess að hann lætur hjá líða að minnast á stærsta hneikslismálið, af þessu tagi, sem komið hefir fyrir á síðari tímum, sem er Krossanessmálið. Er að vísu ekki hægt að krefjast þess að alt sé tekið með í slíku riti sem þessu. En ekkei*t mál hefir upp á síð- kastið valdið svo almennri og rétt- látri gremju sem Krossanessmálið. Engu að síður á Sigurður þórð- arson mestar þal<kirnar skilið fyr- ir það hve drengilega hann hefir gengið fram fyrir skjöldu um að víta valdhafana í þessu efni. Mun hans lengi minst fyrir það. IV. Annar aðalkafli ritsins fjallar um fjármálastjórnina á undan- förnum árum. Veitist höfundur harðlega að flokkunum og flokks- foringjunum fyrir óverjandi meðferð á alþjóðarfé, í mörgum einstökum málum, sem nefnd eru. Óhlífinn er höf. og ekki myrkur í máli er hann nefnir mörg dæmi um aðfarir ýmissa einstakra þingmanna, um að ná sér í fé úr ríkissjóði og flokkanna að sam- þykkja og koma sliku í fram- kvæmd. Ekki var síður full þörf á að alvarlega væri tekið á Jieim mál- um, en áður hefir ekkert íslenskt blað tekið eins ákveðið í sama streng og Tíminn. Enn eru það í þessu sambandi aðalforingjar íhalds- og Sjálf- stæðismanna sem verða fyrir þyngstum ákærunum. Á. höf. þakkir skyldar fyrir að mæla flokksbræður sína ekki undan höggum, einnig í þessu efni. En þó gengur hann hér feti of skamt. Hver lá í þessu efni betur við höggi en Magnús Guð- mundsson, sá íslenskur fjármála- ráðherra, sem þyngsta byrði ber á baki: fjáraukalög-in miklu. Og aldrei hefir spillingin í fjármálastjórn íslands komist á eins hátt stig, eins og nú síð- ustu tvö árin, eftir að Ihaids- stjórnin tók við völdum. Hvenær hefir íslensk lands- stjórn fyrri látið helstu stuðnings- menn sína hafa sig til að fara í betliför um eftirgjöf á tekju- skatti hinna tekjuliæstu, eftir ei- muna aflaár? Hvenær hefir íslensk lands- stjórn fyrri unnið önnur eins verk til þess að kaupa á sig frið og fylgi stuðningsmanna sinna, eins og núverandi landsstjórn? Kastað burt 250 þús. kr. vissum árstekjum af tóbakseinkasölu fyr- ir kaupmennina; þá er kvenna- skólamál Rvíkur, Vestmannaeyja- salan og loks hinar annáluðu sendifarir sama Ihaldsþingmanns- ins út fyrir pollinn, engum til gagns, en landinu til stórkostlegr- ar minkunar. þessara atburða átti vitanlega að geta í þessu sambandi. En alt verður ekki heimtað af ákveðnum íhaldsmanni, þótt sérlega heiðar- legur sé og opinskár. IJm þriðja höfuðatriði ritsins verður hér ekki rætt, enda mun höf. standa tiltölulega einn uppi um þá skoðun, að fullveldi Islands sé því hættulegt. Er höf. einveld- issinni og virðist treysta betur á forsjá Dana en sjálfstjórnargetu íslendinga. -----o---- Látnar eru nýlega: Elísabet Bjering, ekkja Hinriks Bjerings verslunarþjóns í Borgamesi, og Kristín Sveinsdóttir, systurdóttir Bjarnar Jónssonar ráðherra, kona Tómasar Möllers, póstafgreiðslu- manns í Sty-kkishólmi. -----o—•— f. 2. ágúst 1851, d. 25. okt. 1925. 25. okt. síðastl. andaðist að Svertingsstöðum í Miðfirði húsfrú Ingunn Gunnlaugsdóttir. Hún var fædd 2. ágúst 1851 á þverá í Núpsdal, en ólst upp til 14 ára ald- urs á Efranúpi. þá fluttist hún með foreldrum sínum að Mýrum við Hrútafjörð. Eftir að hún varð fullorðin, var liún nokkur ár á Stóruborg og giftist þaðan Eiríki Jónssyni frá Stórugiljá. þau eign- uðust saman 10 börn. 8 þeirra náðu fullorðinsaldri og lifa enn: Margrét Helga, kennari á Miðnesi, Gunnlaugur, bóndi á Reynhólum, . Jón, bóndi á Svertiílgsstöðum, Ingunn Guðlaug,' Eggert ólafur, Elísabet Jónína, öll til heimilis á Akureyri, Ingibjörg Guðrún, kennari í Reykjavík, Björn, bóndi í Landeyjum. öll mönnuðust þau vel, og er sérstaklega tekið til þess, hvað dæturnar hafi náð góðri mentun, því jafnan er það erfiðara fyrir meyjar en sveina, þegar þau njóta lítils styrks, sem mun þar hafa átt sér stað, því þau hjón, Eiríkur og Ingunn, höfðu lengst af þröngan efnahag, sem vonlegt var, þar sem bömin voru mörg og þau bjuggu í þjóð- braut, en voru framúrskarandi gestrisin og hjálpsöm. Mann sinn misti Ingunn 1913. Eftir það var hún á Sveðjustöð- um, þar sem þau hjón höfðu lengst af búið, þangað til hún fór að Svertingsstöðum, til Jóns sonar síns, sem annaðist um hana með umhyggjusemi til dánardæg- urs. það varð hlutskifti Elísabet- ai', sem allar þær systur hefðu kosið sér, að hjúkra móður sinni í banalegunni. Ingunn sál. var gó® kona og greind og munu börn hennar hafa dregið drjúgar fræðsla hennar og fróðleikslöngun sú, er hún vakti hjá þeim, en talsverður fjárstyrk- ur. Hún var þeim og hin ástrík- asta móðir. — Margir eru þeir, nær og fjær, sem nutu góðs af gestrisni hennar og veglyndi, sem minnast hennar nú með hlýjum huga og þakklæti, en jafnframt gleðjumst við nú, vinir hennar, yfir að hún hefir fengið þá hvíld, er hún þarfnaðist og þráði, því kraftar hennar voru að síðustu að þrotum komnir, bæði andlegir og líkamlegir. Ingunn Jónsdóttú', Kornsá. ------------o---- Bréf til Magnúsar Guðmundssonar. þér hafið nú eins og stundum endranær vakið lítið ánægjulega athygli með opinberri framkomu. Vil eg nú gefa yður tækifæri til að skýra satt og rétt frá aðstöðu yðar til hneikslismáls þess er öll þjóðin talar nú um, og vikið var að í síðasta blaði, sendiförinni til Ameríku. Blöð yðar, Mbl. og sveitaútgáf- ur þess, hafa ekki séð nokkra leið til að verja aðgerðir yðar í ullar- tollsmálinu. þau standa steinþegj- andi og ráðalaus. það er harður áfellisdómur, en ekki harðari en þér gátuð búist við, eftir því aem þér hafið til stofnað. þjóðin á fulla heimtingu á að þér gerið ljósa grein fyrir því hversvegna þér hafið hafnað Birni pórðarsyni sem forstöðu- manni Brunabótafélagsins. Björn hefir verið sýslumaður, skrifstofu- stjóri í stjórnarráðinu og ritari hæstaréttar. þér vitið að hann hefir leyst öll þessi störf af hendi svo að ekki hefir orðið að fund- ið. I öðru lagi hefir húsbóndi yð- ar, J. M„ verið með við að fækka í hæstarétti um tvo dómara og ritarann. Björn þórðarson getur samt setið í því embætti alla sína daga, ef hann vill, þó að dómur- um fækki áður. Ef yður hefði verið ant um að spara heilt em- bætti við hæstarétt, og fá um leið hinn besta starfsmann til að stýra Brunabótafélaginu, þá hefð- uð þér veitt það Birni þórðar- syni. þér tókuð Árna í Múla fram yfir. En þjóðin sér ek-kert i þeirri ráðsmensku nema ranglæti og hlutdrægni. Nú gefst yður tæki- færi til að færa fram varnir, ef nokkrar eru. En ef þér getið það ekki, þá neyðast menn til að trúa því, að þér veitið vandasöm embætti pólitískum fylgifiskum, jafnvel mönnum, sem styðja yður nauðugir, aðeins til að þér og Jónarnir getið hangið árinu lengur. Svo kemur sendiförin til Ame- ríku. þér veljið Árna aftur. Jón þorláksson hælir yður fyrir valið í Borgarnesi. Förinni er heitið til Ameríku. Hún er gerð af brenn- andi áhuga fyrir bændum, til að bæta fyrir þeim markaðinn! Sendimaðurinn fer héðan í byrj- un okt. og þér um líkt leyti til Khafnar. þið komið báðir heim laust fyrir jól. Sendiherrann, sem þér hafið látið Hæni og J. þ. grobba af, að ætli að leysa vand- ræði bænda í Ameríku, er eins og’ þér í Khöfn allan þennan tíma, að frátaldri Svíþjóðarför hans með Ottesen. Milli ykkar í Khöfn var ekki nema steinsnar. þér við Ráðhússtorgið, hann við Nýja torg. Samt látið þér þau býsn gerast, sem öll þjóðin veit nú um. þér leggið í þessa Ameríkuferð fyrst 5000 kr. af landsfé, og svo 4000, sem kaupmenn 1 flokki yð- ar eru nú að tala um að borga. Samt er þetta ekki nóg. Enn koma kröfur á hendur yður.------- Hér vantar svar um -það hvers- vegna þér völduð þennan sendi- herra til að mæta hjá mestu bann- þjóð heimsins, hversvegna þér létuð hann hafa of fjár handa milli þennan tíma, hversvegna þér senduð hann ekki heim miklu fyr, og hversvegna þér senduð ekki Frh. á 4. tfðu

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.