Tíminn - 05.06.1926, Side 4
104
TlMINN
ingsálitið, námamönnum í hag, og
þá einnig á þann hátt, að jafnvel
efnaðri stéttimar verði andvígar
námaeigendum, er hóta því í yfir-
lýsingum sínum, að barist skuli
uns annarhvor aðili lúti algerlega
í lægra haldi.
pessi fregn hefir vakið afar-
mikla eftirtekt eins og eðlilegt er.
það mundi hvergi í heiminum geta
skeð nema á Englandi að ríkiserf-
inginn blandaði sér í atvinnudeil-
ur, og sennilega hefir þetta ein-
hver áhrif í áttina til friðar.
Prinsinn er eftirlætisgoð ensku
þjóðarinnar og ólíklegt er, að
hann hefði skrifað þetta bréf án
þess að stjóminni væri kunnugt
um innihald þess.
Stjórnarbyltingin í Póllandi hef-
ir haft þær afleiðingar, að héraðið
Posen, sem flestir þjóðverjar búa
í, hefir heimtað sjálfstjóm og er
búist við að stjórnin í Varsjá
verði að fallast á það til þess að
komast hjá frekari innanlands-
ófriði. Foringi byltingarmanna,
Pilsudski marskálkur, var kosinn
forseti Póllands, en neitaði að
taka við embættinu. Miklar óeirð-
ir eru sífelt í landinu.
Marokkóstríðinu er nú lokið
með fullum sigri Frakka. Sagt er
að fundist hafi skjöl, sem sanni,
að ítalir hafi blásið að kolunum
og lofað uppreisnarmönnum styrk
til að halda áfram baráttunni
gegn Frökkum. Mikil æsing er á
Frakklandi út af þessu.
Látinn er Orlando, sem síðara
hluta heimsstyrjaldarinnar var
forsætisráðherra Itala. Hann var
einn af hinum „fjóru miklu“
(Big Four) sem mestu réðu á
friðarfundinum 1 París. Hann
þótti mikilhæfur maður og er
hann einkum frægur fyrir kænsku
í samningum við önnur ríki.
Símað er frá Varsjá, að Pil-
sudski verði hermálaráðherra.
Prófessor Moszicki var kosinn for-
seti samkvæmt tilmælum hans.
Símað er frá London, að sátta-
tilraunir hafi orðið árangurslaus-
ar. Frestur og stjórnartilboð um
framlenging ríkisstyrks til kola-
iðnaðarins er þar með út runninn.
Símað er frá París, að Briand
forsætisráðherra hafi haldið ræðu,
er hafi haft afarmikil áhrif á
allan þingheim og allan almenn-
ing. Kvaðst hann hafa lifað ógn-
um þrungnar stundir og hann
hafi aldrei verið eins áhyggju-
fullur um framtíð landsins og nú.
Samþykt var í þinginu að fresta
öllum fjárhagsumræðum um
óákveðinn tíma.
Símað er frá Lissabon, að rík-
isstjórinn hafi sagt af sér. Her-
foringjar hafa stofnað þriggja
manna stjórn. Landssamband
verkamann hefir lýst yfir alls-
herjarverkfalli til mótspymu
gegn hervaldsstjórninni.
Stjórnin í Svíþjóð er fallin vegna
þess að hún veitti styrk til at-
vinnulausra manna, sem höfðu
hafnað tilboði um vinnu í Stripa-
verksmiðjunum. þar hefir verið
verkfall í heilt ár og kommunistar
átt mestan hlut að. Ekman banka-
stjóri gerir tilraun til stjómar-
myndunar.
Enska þingið hefir samþykt að
framlengja ráðstafanir vegna
neyðarástandsins í landinu.
Símað er frá Washington, að
Senatið hafi samþykt fjárveitingu
til þess að bygðar verði 1800 flug-
vélar handa hernum á næstu 5
árum.
þýsk-danskur gerðardómssamn-
ingur hefir verið undirskrifaður.
Símað er frá London, að Al-
þjóðasamband námumanna íhugi
ráðstafanir til þess að hindra hina
sívaxandi kolaflutninga til Bret-
lands.
----o-----
Togammir eru nú sem óðast að
hæjtta veiðum og verður þeim lagt
upp um óákveðinn tíma. Útlitið
er slæmt fyrir togaraútgerðina.
Bæða
Magnúsar Torlasonar um málshöfð-
unarbeiðni fjmrh. J. p. í Nd.
Eg verð að segja að eg tel það ali-
hart, að þingdeildin þurfi að eiga í
þessu stappi út af sliku smámáli, sór-
staklega vegna þess, að háttv. þm.
Str. (Tr. þ.) hefir þegar tvisvar lýst
þvi yfir, bæði hér i dag og áður,
að hann hafi ekki ætlað sér að
drótta neinu óheiðarlegu að hæstv.
fjmrh. (J. p.). Jeg hefi ávait skihð
það svo, að ef menn hafa mælt
eitthvað hvatskeytlega hver til ann-
ars, en þóst siðan oi' mæit haía, og
lýst þvi yfir, að þeir hafi ekki haft
neitt ólieiðarlegt í iiuga, þá hafi
verið látið þar við sitja. Ætti hæstv.
fjármálaih. að taka þetta til greina,
einkum þar sem hann sjálfur er
alis ekki orðvarari en aðrir. Hann
hefir fyrir skemstu borið fram í
þingræðu svo miklar sakir á utan-
þingsmann, að eg vil alls ekki endur-
taka það hér. En eí hann heldur
þessari málshöfðunarbeiðni sinni
íast fram, tel eg hann skyldan til að
endurtaka utan þings ummæli sin
um Arnór Sigurjónsson skólastj., svo
lionum gefist kostur á að hreinsa
sig af þeim.
það eru tvær ástæður, sem gera
það að verkum, að jeg get ekki
greitt atkvæði með slíkum tillögum,
sem hér hefir komið til orða, að upp
verði bornar. Sú fyrri er sú, að það
er alhægt að eyða og berja niður
allar aðfinslur á opinbera starfsmenn
með lögsóknum, ef menn vilja það
við hafa, eins og hegningarlögum
vorum nú er liáttað. það má hreint
og beint eyðileggja mann með lög-
sóknum, þótt hann aðeins hafi gert
það eitt, sem rétt var. Og eg get
þar úr flokki talað, þvi eg hefi ver-
ið ofsóttur með málshöfðunum, fyrir
verk, sem hæstiréttur dæmdi rétt, og
orðið útlægur um rúmar 1100 kr. fyr-
ir og mildi að ekki varð meira.
það er svo auðvelt að misbeita
málshöfðunarréttinum, ef menn hafa
aðeins nóg fje undir höndum.
Alberti íslandsráðherra drap niður
allar opinb. aðfinslur gegn sér með
málshöfðunum. Hann lét höfða mörg
liundruð slík mái um alla Danmörku,
og það gal hann veitt sér, því að
hann stal því fé, sem hann þurfti að
kosta til málssóknanna. Hann gjör-
eyðil. líf eins manns, sem hann of-
sótti þannig, svo að maðurinn varð að
flýja land og fór til Ameríku, og
það var fvrst eftir að Alberti komst
í steininn, 20 árum síðar, að maður-
inn fékk nokkra rétting sinna mála.
Af þessu má sjá, að það gæti orðið
varhugaverð braut að leggja út á,
ef þingið færi að ýta undir slíkar
málshöfðanir peningamanna.
Nú er eg með þessu alls ekki að
drótta neinu misjöfnu að hæstv.
fjármálarh. (J. þ.), þvi eg tel hann
heiðarlegan mann og eg veit einnig
að háttv. þm. Str. (Tr. þ.) metur
hann mikils og líklega mest allra
flokksbræðra hæstv. ráðherra hér í
deildinni.
þá kem eg að öðru atriði í þessu
máli, sem háttv. þm. N.-þing. (B. Sv.),
liæstv. forseti þessarar deildar, vék
að í ræðu sinni áðan, sem ærið
væri nóg til þess að samþykkja ekki
tillögu hæstv. fjármálarh.; því ef
hún verður samþykt, er hún einungis
yfirlýsing frá þingsins hálfu um það,
að handrit skrifaranna, séu rétt af-
rit af ræðum þingmanna. þetta vil
eg ekki krifa undir. Eg hefi sjálfur
orðið fyrir barðinu á þeim eg hefi
jafnvel verið látinn tala á móti
minni eigin skoðun í málinu. Svo
lítið er að marka það, sem skrifar-
arnir láta frá sér fara. Eg er ekki
að drótta þessu að neinum sérstök-
um skrifara; eg veit ekki hver það
var, sem skrifaði þetta.
Eg tel því ekki aðeins ósanngjamt,
heldur algjörlega ófært að leyfa
málsliöfðun bygða á handritum
skrifaranna, án þess að þau séu
leiðrétt af viðkomandi þingmönnum.
það mundi þá þýða það að 22. gr.
þingskapanna væri alveg úr gildi feld;
en þar er þingmönnum heimiiað að
leiðrétta ræður sínar. Eg tel því ekki
Landabréf fyrip noppæna skóla — ný úfgáfa —
með rauðum landamerkjalínum, sýna landslag, ríkja og
þjóðaskipun. Norskur jarðfr., W. Werenskiold, annaðist útg.
Evrópa (128X160 cm.) kr. 25.00 N.-Amerika (105X130 cm) kr. 20.00
Asía (130X160 cm.)—22.50 S.-Ameríka (105X120 cm.)—20.00
Afríka (105X130 cm.)—20.00 Vestur hvel (100X130 cm.)—20.00
Astralia (105X130 cm.) — 20.00 Austur-hvel (100X130 cm.) — 20.00
Landabréfin eru límd á mjög sterkt lérept og fest á kefli.
— Séu þau öll keypt í einu lagi, kosta þau aðeins kr.
150.00, að við bætturn flutningskostnaði.
Bókavepzlun Guðm. Gamalíelssonap, Reykjavik.
Wm
/ TTl
H.f. Jón Sigmnndason & Ce.
Trúlofuuar-
hringarnir
þjóðkunnu, úrval af
steinhringum, skúf-
hólkum og
B—bbbbbb svuntuspennum,
margt fleira. Sent
með póstkröf u út um land,ef óskað er.
Jón Sigmundsson gnllsmiOur-
Sími 388. — Laugaveg 8.
Ultarverksmiðjan „Gefn“
Frakkastíg 8 Reykjavik
lækkar kembingu á ull frá 15. júní n. k., þrátt fyrir það,
pó vélarnar séu þær nýjustu og fuilkomnustu er til landsins hafa flust
— sérstaklega gerðar fyrir ísl. ull — knúðar með raforku.
Það er trygging fyrir góðri vinnu, að vinnunni stjórna þaulvanir
sérfróðir menn í þessari grein.
Þess er gætt, að hver maður fái sína eigin ull til baka, þar sem
hver sending, sem nær 3 kg. er kembd sérstaklega.
Ullin er kembd í fínan eða grófan lopa eftir óskum.
Fljót og góð afgreiðsla.
Bogi A. J. Fórðarson.
gcta komið til mála að samþykkja
tillöguna, því það væri beint brot á
þingsköpum. En annaðhvort verður
það að vera svo, að þingsköpin gilda
eins og áður, eða að handrit skrif-
aranna eiga að standa óhögguð, en
ieiðréttingar þm. gerðar þýðingar-
lausar, og hafa þá þingmenn ekkert
að segja í þeim efnum, en það held
eg að fáir geti fallist á.
---o---
Svafbarðí.
Eg skrifaði grein í Tímann 27.
júní síðastliðið ár til þess að
sanna, að samkvæmt Landnáma-
bók væri það alómögulegt, að
Spitsbergen væri það land, sem í
fornöld var kallað Svalbarði. Eg
komst að þeirri niðurstöðu, að
hinn forni Svalbarði væri austur-
oddi Grænlands, héraðið í kring-
um Scoresby Sund. Nú hefir fræg-
ur danskur vísindamaður, kom-
mandöi' Gustav Holm, í vor skrif-
að langa ritgerð um þetta mál í
Geografisk Tidskrift og hann
kemst að alveg sömu niðurstöðu
og eg og með samskonar rann-
sóknum. það er líka augljóst mál
ef menn athuga siglingaforsagnir
fornsagnanna, að Svalbarði hlýtur
að vera austan á Grænlandi en
Spitsbergen er svo fjarri lagi,
sem framast má verða. Ef vér
viljum þýða nafn þess lands á Is-
lensku, mætti kalla það Tind-
fjallaland eða Hvassafell. það er
rétt þýðing og góð íslenska, en
Svalbarði er fullkomið rangnefni
og íslendingum til skammar.
H. H.
----o----
Lýðháskólinn á Jaðri.
Hér í blaðinu er í dag auglýs-
ing frá lýðháskólanum á Jaðri í
Noregi. Viljum vér benda þeim,
konum og körlum, sem kynnu að
hafa í huga að fara utan til lýð-
háskólanáms, á auglýsingu þessa.
Skóli þessi er sagður góður og
ódýr vistin (líkl. ekki meira en
60—70 kr. á mánuði). Einn kenn-
aranna er Adolf Försund, ungur
áhugasamur maður, sem fyrir
þrem árum kom hingað á vegum
stúdentaskiftanefndarinnar og
stundaði íslenskunám við háskól-
ann hér einn vetur. Talar hann
íslensku og hefir ritað margt um
Island og ísl. menningu í norsk
blöð, flutt marga fyrirlestra um
íslensk efni; (s. 1. tvo vetur hef-
ir hann t. d. á lýðháskólanum
flutt nál. 25 erindi um Island og
ísl. bókmentir). Auk þessa hefir
Försund þýtt nokkrar íslenskar
smásögur, sem komu í fyrra út í
bókarformi („Islandske smáso-
gor“), Höllu (enn óprentuð) nokk-
ur ísl. kvæði og nú síðast erindi
próf. S. Nordals, það, sem prent-
að er framan við Lestrarbókina.
-----o----
Sveinbjörn Sigurjónsson frá
Kanastöðum í Landeyjum lauk
magisterprófi í íslenskri tungu og
bókmentum við Háskólann 29. f.
mánaðar.
Undirbúningur kosninganna. —
Efstu menn landlistanna (nema
Jón Baldvinsson) halda stjóm-
málafundi þessa dagana á Norð-
urlandi. Ráðgert er að þeir haldi
sameiginlega fundi í Borgamesi
16. þ. m. Við ölfusá 19. þ. m. og
daginn eftir á Hvoli.
Konungshjónin eru væntanleg
til Reykjavíkur 12. þessa mánað-
ar. —
Hestamannafélagið „Fákur“
efnir til kappreiða á skeiðvellinum
við Elliðaár 4. júlí næstk. pær
verða með öðru sniði en áður hef-
ir verið eins og auglýsing í þessu
blaði sýnir.
Hraðferir Sameinaða gufu-
skipafél. í sumar byrja 8. júní
frá Khöfn, og fer Island fyrstu
ferðina. Síðan halda þær áfram
annanhvern þriðjudag frá Khöfn
og annanhvern miðvikudag frá
Reykjavík. Komið verður við í
þórshöfn og Vestmannáeyjum í
báðum leiðum. Bæði Botnia og
ísland verða höfð í þessum ferð-
um. Einnig fara þau til Norður-
landsins, og er fyrsta ferðin þang-
að s.s. ísland 15. júní og síðan
annanhvorn þriðjudag frá Rvík.
Snúið við á Akureyri aftur til
Rvíkur. — þá verða einnig beinar
ferðir frá Leith, með viðkomum
í þórshöfn og Vestmannaeyjum.
Fer s.s. Tjaldur þær ferðir. Fysta
ferðin frá Leith er 9. júní og síð-
an annanhvern miðvikudag. Frá
Reykjavík er fyrsta ferðin 16.
júní, og síðan annanhvern mið-
vikudag.
Konungskoman. Bæjarstjórn
Reykjavíkur samþykti nýlega að
halda konungi veislu og veitti fé
til móttökunnar. Um þetta urðu
alllangar umræður á bæjarstjórn-
arfundi og voru þær bæfnum lítt
til sóma. það er sjálfsagt mál,
að meðan Island er konungsríki,
og konungurinn æðsti embættis-
maður vor, skuldum vér honum
og oss sjálfum að sýna honum
fulla virðingu. I þessu sambandi
má geta þess, að það er þjóðinni
varla samboðið, að konungurinn
skuli vera húsnæðislaus, er hann
dvelur hér á landi. það er óvið-
kunnanlegt að hann skuli þurfa
að búa í skólahúsinu eða hjá
Sjó- og bruna-
vátryggíngar.
Símar:
Sjótrygging' .... 542
Brunatrygging . . . 254
Framkvæmdarstjóri . 309
Vátryggið
hjá
íslensku
félagi.
Reykið Waverley Mixture.
Tóbaksverslun Islands h.f.
[0Æm á jaðri
(Jærens folkehögskule)
Kleppe Noreg.
6 mánaða námskeið. —
Hefst 1. okt. Ungir Islend-
ingar, karlar og konur,
eru kærkomnir nemendur.
Einn kennaranna talar ís-
lensku. Skólaskýrsla send
ókeypis.
Karsten övretveit
■skólastjóri.
GERBERS-mjólkurmæilar, sýru-
amylalcohol og mjólkur pípettur.
Gummitappar.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
(Einar Bjömsson).
prívatmanni. Vilja ekki einhverir
konunghollir menn safna fé til að
reisa konungsgarð á Islandi?
Húsviltan konung er óviðkunnan-
legt að hafa.
27 stúdentar hafa tekið heim-
spekispróf við Háskólann í vor.
Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson.
Prentum. Acta.