Tíminn - 03.07.1926, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.07.1926, Blaðsíða 2
118 TlMINN Konungsgarður. Síðan vér fengur fullveldi vort viðurkent, hefir það verið að flækjast í mínum hug, að þessu „kongsríki" væri það ekki skamm- lausit að eiga engan konungsbú- stað. Mér þykir því vænt um, að Tíminn hefir hreyft þessu máli og vildi nú leggja nokkur orð í belg. Það fer hér sem oftar, að vandi fylgir vegsemd hverri, og meðan vér heitum kongsríki, verð- um vér að sýna einhvern lit á því, að það sié meira en nafnið, þó alt verðum vér að sníða eftir efnum vorum og ástæiðum. Hvað sjálfan konunginn snertir virðist mér aðallega vera um þrent að gera: 1) að sjá konungi fyrir sæmilegum bústað í Rvík, 2) að sjá honum fyrir einföldum en sómasamlegum sumarbústað í sveit, þar sem hann gæti stund- að laxveiði o. fl. sjer til skemtun- ar og 3) að greiða honum „borð- fé“ af vorum hluta. Það mun vera einsdæmi í kongsríki, að enginn sé konungs- garður og að konungur þurfi að vera „á flækingi", eins og Tíminn kemst að orði. Bæði er þetta landinu til skammar og sennilega dýrara að öllu samtöldu en að byggja dálítinn konungsgarð. I hvert sinn 6em konungur heim- sækir oss verðum vér að rjúka upp til handa og fóta til þess að hola honum einhversstaðar niður á sómasamlegan hátt, og talsvert fé gengur í súginn til þessa. Eg hefi því lagt það til, að í skipulagi Reykjavíkur verði ákveðinn hæfilegur staður fyrir konungsbústað. Húsið þyrfti ekki að vera ýkja stórt og vel mæltti nota mikinn hluta þess í þarfir landsins og stjórnarinnar þegar konungur er fjarverandi, en auð- vitað til þess eins, sem þoka mætti burtu með stuttum fyrir- vara. Tíminn stingur upp á því, að einstakið menn leggi fram fé til þess að byggja húsið. Vel má vera að fé féngist til þess, ef vel áraði, en ekki kann jeg við þetta. Hér er ekki að tala um neinn persónulegan greiða við konung vorn, sem hann ætti að vísu skiíið fyrir framkomu sína í sjálfstæðismálinu, heldur al- menna ríkisnauðsyn, sem landinu ber að sjá fyrir engu síður en nauðsynlegum húsakynnum fyrir stjórnarráðið. Það má eins fara fram á, að konunghollir menn byggi sómasamlega stjómarráðs- byggingu, því gamla „stjórnar- ráðið“ er orðið allsendis ófull- nægjandi og nálega til skammar. Eg býst við, að konúngsgarð- ur verði nauðsynlegri með hverju árí sem líður og ekki ósennilegt, að konungur eða asittmenn hans komi hingað flest sumur þegar tímar líða. Minna má á það í þessu sam- bandi, að vér erum að þessu leyti ver settir en smáríkið San Marino, sem hefir liðug 10 þús. íbúa. San Mariningar hafa lengi átt snotra stjórnarhöll og hafa þar meðal annars ágæta sam- komusali. Þeir þóttust ekki geta án hennar verið. Sumarbústaðar konungs mætti vel vera yfirlætislaus og óbrot- inn en honum þyrfti að vera vel í sveit komið, þar sem laxveiði væri góð og fagurt um að litast. Má ganga að því vísu, að kon- ungi væri það kærkomið að geta lifað nokkra daga í ró og næði er hann kæmi hingað, og eflaust hefir hann allan vilja til þess að kynnast íslenskri alþýðu og hög- um hennar. Mætti alt þetta leiða til þessi, að konungar skoðuðu sig engu síður íslenska en danska, lærðu ílensku til fullnustu o. fl. þvíl. Borðfé konungs er nú líklegra öllu minna en vér yrðum að gjalda forseta lýðveldis, þegar öll kurl kæmu til grafar. Vér höfum borgað það skilvíslega svo sem til var skilið, en hálf óviðkunnanlegt þykir mér það, að konungur er víst eini starfsmaður ríkisins, sem ekki fékk neina dýrtíðaruppbót. Eg held við hefðum verið jafn- lifandi eða dauðir fyrir því, þó hann heði setið við sömu kjör og aðrir. Ef einhver kynni að svara því, að konungsstjórn standi á völtum fæti á þessum dögum og vand- sjeð hvort búa þurfi í haginn fyrir hana, þá er því að svara, að vér þurfum ætíð að sjá sóma- samlega fyrir stjórnanda landsins, hverju nafni sem nefnist. San Mariningar hafa engan konung, en nauðsynin var eigi að síður hin sama hjá þeim og oss. Að mínum dómi tekur alt þetta mái alls ekki til pólitisku flokka- deildanna. Kjami þess er sá, að íslenska ríkið komi sómasamlega fram í hvívetna eftir því sem efni og ástæður leyfa. Og það er ekki nema fjöður af fati voru að koma þessum málum í gott lag þegar um hægist og fjármálin komast í betra lag. Guðm. Hannesson. Smjörlíkisgerð. — Reykjavík 1111 m 11 m i m i n 1111 iT rrHiivriTiiTTTTiiiiozrn:iTxii!iiiniiiEniin:iij:i.riiJz HAVNEM0LLEN KAUPMANNAH0FN mælir með sínu alviðurkenda rúgmjöli og hveiti. Meiri vörugæði ófáanleg. S.X.S. slciftljr eizrxgröm-g-u. ^r±ð o^lc-Lir. Seljum og mörgum öðrum íslenskum verslunum. Kaupum ull hæsta verði. Eflið hag yðar og aukið notkun á íslenskum v ö r u m. FATADÚKAR frá „Álafossi" eru haldhestir og ódýrastir. Alkemba (lopun) á uil er ódýrast, best og fljótast unnin. "Verslið -við „Álafoss“ Sími 404. Hafnarstræti 17. VIÐBÆTIR. Mér þótti væmt um að fá grein Guðm. Hannessonar til stuðnings þeirri hugmynd er eg kastaði fram í Tímanum fyrir nokkru. Það er mín skoðun, að það sé ís- lenska ríkinu ósamboðið, að hafa ekki hús yfir sinn æðsta embætt- ismann og eins tel eg það því ósamboðið, að hafa ekki húsa- kynni, þar sem hægt sé að taka sómasamlega á móti útlendum og inniendum gestum, sem stjóm og þing þurfa að sýna sóma*). — Þessi bygging á auðvitað að vera eign ríkisins, en mjer þætti vel við eiga, að einstakir menn *) Hér má bæta við og Reykjavík- urbær, meðan sjálfur liöfuðstaðurinn á ekkert ráðhús. I kostuðu hana að einhverju leyti, eins og til dæmis Danir hafa gert með Ki’istjánsborgarhöll. Ríkið kostaði húsið sjálft, en ein- staklingar skutu saman miklu fé til þess að skreyta það innan. Er hér gott tækifæri fyrir listamenn vora að sýna snild sína, því auð- vitað ætti sem mest af skraut- inu að vera íslenskt. Svo ætti að selja timburhjall- inn við Tjarnargötu, sem einu- sinni var ráðherrabústaður, enda er sjálfsagt að ráðherrarnir sjái sér sjálfir fyrir íbúðum og engin meining í því, að láta einn af þremur hafa embættisbústað, en vönduð og vegleg húsakynni til risnu verður hið fullvalda ríki að hafa. H. H. Frá ársþingi Kennarasambandsins. Sjötta ársþing Sambands ís- lenskra barnákennara kom saman í Reykjavík sunnudag 20. júní s. ]., og stóð til 24. s. m. Sóttu það alls um 70 kennarar hvaðanæfa af landinu. Bjarni Bjarnason skólastjóri for- maður sambandsins setti fundinn með stuttri ræðu. Því næst var gengið til kirkju og hlýtt á messu hjá sr. Friðrik Hallgrímssyni. Á mánudag hófust aðalstörf þingsins. Formaður gerði þá grein fyrir störfum stjórnarinnar á liðnu ári, og var þetta hið helsta: 1. a. Kennaraþingið í Helsing- fors. Þar höfðu, að tilhlutun sam- bandsistjóraarinnar, mætt fyrir hönd ísl. kennara iþeir próf. Sig. Nordal og Ásgeir Ás'geirsson al- þingism. b. Skrifleg próf. Stjórn Sam- bandsins var á síðasta ársþingi falið að hlutast til um 'það,, að komið yrði á sameiginlegum, skriflegum prófum í öllum barna- skólum landsins. Leitaði hún fyrir sjer um framkvæmdir í því máli hjá kenslumálastjóm landsins, bæði bréflega og munnlega, en það bar engan árangur. c. Íslandskortið. Þar er komið, að kortið mun verða prentað í sumar, og verður til sölu í haust. d. Reikningar sambandsins voru þá lesnir upp og samþyktir. I sjóði voru nálega kr. 900,00. 2. Kiistindómsfræðsla. Sr. Frið- rik Hallgrímsson hóf umrælður. Taldi hann biblíuna ekki einhlíta sem hjálparrit við kristindóms fræðslu, og vildi hafa tvennskon- ar biblíusögur, aðrar við hæfi ungra barna, en hinar fyrir nokk- uð þroskuð börn. Kver taldi hann og þurfa, en mjög varúðarvert að nota lengi hið sama. Utanaðlær- dóm taldi hann og góðan ef skyn- samlega væri' með farið. Rætt var nokkuð um þetta, og voru menn yfirleitt ásáttir. Ásgeir Ásgeirsson taldi það eðli- legustu skiftingu hlutverka milli skóla og kirkju 'að skólinn ann- ist sögulega kristindómsfræðslu, en kirkjan hina trúfræðilegu. Taldi hann og grundvöll að þess- ari skiftingu lagðan í fræðslulög- unum nýju. 3. Söngkiensla í skólum. Máls- hefjandi var Aðalsteinn Eiríks- son, kennari. Vildi hann láta leggja miklu meiri rækt við söng- kenslu í barnaskólum en verið hefur, og Ifaldi einkum ástandið í barnaskóla Reykjavíkur óviðun- •0C--J Grænlandsmál. Grænlandsmálið er nú orðið dagskrármál. Einstakir áhuga- menn eru búnir að hreifa því í blöðum og tímaritum hér á landi, til þess að minna oss á, hvað forfeður vorir gátu og gerðu, þeir, er unnu oss for- réttindi á Grænlandi. Vér eigum þá líka að minnast þess, að rétt- indum fylgja skyldur. Nú eru stiórnir fjarlægra þjóða farnar að teygja hverja kló í átt- ina til Grænlands, en stjórn Is- lands hefir litið undan og lagst á eyrað. Nú eru útgerðarmenn í Noregi búnir að finna fiskimiðin við Grænland, teknir til að hirða mestu uppgripin og neyta allra bragði til þess, að fá þaðan sem mest Té og fljótlegast. — En landar vorir sitja rólegir, og halda að sér höndum. Nógu margir sjómenn fá að hvíla sig hér í sumar, og nóg væri eftir af skipum við garðinn, þó 2 eða 3 hefðu farið tilrauna- för í Grænlandshöfin, og fengið skaðatrygging í sektafénu fyrir landhelgisbrotin. En Alþingi hefir sýnt, að alt ofan frá 10.000.000 járnbraut, niður í 100 kr. betligjöf sé sjálf- sagðara umtalsefni og þjóðinni þarflegra, en afli til frambúðar af sjó, og atvinna þjóðarinnar. Þverrandi afli á fiskimiðum ís- lands, er alvarlegra málefni en svo, að athafnamennirnir megi láta það afskiftalaust. Þeir verða að bera ráð sín saman, og fram- kvæma það er farsælast sýnist. Ef Norðmenn græða á því, að fara frá sínum auðugu fiskimið- um — á vissum tímum — fram- hjá fiskimiðum Islands, og alla leið suðvestur fyrir Grænland. Er þá slíkt hið sama ókleift Is- lendingum, sem eiga að sækja svo miklu skemmri leið? Sumir virðast í þessu máli hræddir við Dani. Halda þeir Dani verri nú en fyrir tveimur öldum — eftir miðdik einokunar? Af því eg held að almenningur héí' á landj viti| ekki hvað Dan- ir vildu gera í Grænlandsmálum á þeim tímum, þá set eg hér sutt ágrip: Fyrst um það þegar Grænl. var týnt, og svo yar um það, er Danir vildu fá íslenska bændur til Grænlands. — Skoða eg það hjartastyrkjandi gegn Dana- hræðslu, en þægðarlyf fyrir þá. Meðan Grænland var týnt, Byrja eg þar, sem F. J. endar sögu Grænlands (Um Grænland, Kmh. 1899, bls. 47) og segir grænlensku sögnina um bardaiga við Skrælingja og fall síðasta bóndans á Grænlandi. Það bafi hlotið að verða „um 1500 eða ekki alllöngu þar á eftir“. Ef treysta má frásögn Ann- ála (J. S. 8°, 88 — með saman- burði við Skarðsárnn., Seiluann. o. fl.) sýnist, þessi sorgaratburð- ur hafa orðið nær miðri 16. öld en byrjun hennar. Gæti og eins vel verið enn síðar. I Ann. segir frá því, að á árinu 1534 (réttara þó 1535, eða jafn- vel 1527) hafi ögmund biskup Pálsson hrakið undir Grænland, er hann var á heimleið frá Nor- egi. Þóttist hann þekkja Herjólfs- nes og sá þar fólk með lambfé við stekk. Efalaust á lýsing þessi við ættmenn íslendinga. Skrælingjar hefðu heldur elt ein- stakar kindur með örvum sínum, en að temja þær við stekk. Þá er þess getið í Annálum, að Danir hafi byrjað að leita Græn- lands árið 1579*). Skipherrann (Jakob Alldal) kom hér við land, að Kirkjuvogi — sennilegast til þess meðal annars, að leita upp- lýsinga um stefnuna og ferðalag1- *) Sama órið sendi Fr. kon. II., 6 byssur og 8 spjót, gefist í hverja sýslu hér ó landi „til varnar gegn útlendum illræðismönnum". ið. Þá hafði verið lengi áður svo ástatt, að enginn Norðurlandabúi kunni leið, eða hafði komið til Grænlands. Sýnist líklegast að landið hafi verið týnt alla 16. öldina — lík- lega nokkru fyr, og ekki fundist aftur frá Norðurlöndum eða sigl- ing komist þangað, svo víst sé, fyr em um miðja 17, öld. Samt getur verið, að skip ýmsra þjóða hafi hröklast þangað á þessum tíma. Og Þorv. Thor. getur þess (Lfr.s. I. 147), að enskur land- könnuður hafi komið hingað til lands frá Grænlandi 1586. Vitan- lega hafa Danir frétt um þá ferð, en orðið litlu nær að öðru leyti. Aftur gera Danir leitartilraun 1607, og fá þá með sér íslenskan háseta. 1613 voru spánskir hvalaskutl- arar á 18 skipum kringum Is- land. Einn þeirra hraktist 9 daga fyrir ís, og komst að Grænlandi. Sáu þeir í fyrstu ekki til manna á landi, en fengu brátt kveðju þeirra: beinörfaskot, er drápu 3 skipverja. Sáu svo heilan her manna, þá er þeir hurfu frá landi. Sé þessi saga sönn, er augljóst, að þá hefir gestrisnin íslenska verið flúin úr landi, eða jarðsett áður á þessum stað. Þessi hræjðsla skrælingja og herför móti skipsmön»um, gæti jafnvel bent á það, að ófriðurinn við gömlu íbúana og útrýming þeirra hafi þá verið nýlega um garð gengin, eða foringjum þeirra í fersku minni. Ekki er þess getið, að land- könnuðurinn enski yrði fyrir slíkri heimsókn, 27 árum fyr. Og 39 árum síðar, voru skrælingj- ar vingjarnlegir og meinlausir. Mun það og eðli þeirra, að vera illvígari og örari til hefnda fyrir mótgerðir, en til áreitni að fyrra bragði*). Hitt getur líka verið, að Spánverjar hafi byrjað á „glettingum" við Skrælimgja —- þó þess sé ekki getið. Slíkt gerðu þeir nokkrum sinnum hér á landi. Skömmu síðar, 1619, kemur hing- að konungsbréf: „Að menn færu af íslandi að ári að leita Græn- land“, á konungsskipi. Og skyldi þeim, er færu, séð fyrir lífsupp- eldi þaðan í frá. Ekki er kunnugt að þessar þrjár tilraunir Dana, sem þegar eru nefndar, hafi borið nokkurn árangur, og líða svo enn rúmir þrír tugir ára. Árið 1652 bjuggust Danir enn *•) hykir mér trúlegast, að það liafi orðið fyrsta deilu- og bardaga- ofni milli vestrænu og auslrænu íhúanna, að Skrælingjar hafi skotið búfé, eins og hver önnur villidýr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.