Tíminn - 31.07.1926, Blaðsíða 4

Tíminn - 31.07.1926, Blaðsíða 4
134 TIMINN Kjöttunnur, L. Jacobsen, Köbenhavn Símn.: Cooperage V alb y alt til beykisiðnar, smjörkvartel o. s. frv. frá stærstu beykissmiðjum í Danmörku. Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandains og margra kaupmanna. SMHRH SHÍBRLiKI IKa.Tj.pféla.gsstj órar I Munið eftir því að haldbest og smjöri líkast er „Smára“ - smjörlíkí Sendið því pantanir yðar til: H.f. Smjörlíkisgerðin, Reykjavík. Framh. af 1. síðu. ályktanir og það allra helst á þessum tímum. Hver eru stórfeldustu tíðindin sem gerst hafa um fjármál ein- staklinga og stétta innan þjóðfé- lagsins undanfarin ár? Það eru þau tíðindi að láns- stofnanir hafa tapað miljónum króna, sem þær sumpart hafa tai>- að í gj aldþrotum, sumpart talið réttara að gefa eftár. Hvað er þetta í rauninni annað en opinber fjárstyrkur? Því að vitanlega verður alþjóð að borga þetta aftur. Munurinn aðeins sá, að ekki liggur fyrir samþykki Al- þingis til að veita þessa miljóna- styrki. ónei, þeir eru veittir án þess. Eru það bændur landsins sem fengið hafa þessa miljónastyrki? Eru það bændur landsins sem láta bankana tapa hundruðum þús- unda og miljónum króna með gjaldþrotum? Eru það bændur landsins sem ár út og ár inn eru í samningum við peningastofnanirn- ar um að fá eftirgefin tugi og hundruð þúsunda króna, og fá svo ef til vill á eftir ný lán til þess að halda áfram sömu svika- myllunni ? Það munu finnast aðeins ein- staka dæmi þess að bændur hafa orðið gjaldþrota og hafa orðið að gera slíka samninga við bankana. En þau dæmi eru ekki annað en örfáar og örlitlar undantekn- ingar frá aðalreglunni. 0g þegar það hefir komið fyrir, þá mun það aðallega stafa af því að bændur hafa leiðst út á þá óheillabraut að fara að fást við eitthvað ann- að en búskapinn. Að nálega öllu leyti hefir þessi miljónastyrkur gengið til kaup- túnanna, til útgerðarmanna og kaupmanna einkum, einmitt ef til vill ekki síst tii þeirra manna, sem standa að útgáfu þeirra íhalds- blaða, sem ala á þessum öfug- mælum í garð bændastéttarinnar. Það er t. d. opinbert mál, að sumir af kunnustu útgefendum Morgunblaðsins hafa fengið eftir- gefnar skuldir sem nema hundr- uðum þúsunda króna. Sú aðstoð sem hið opinbera hefir veitt til viðreisnar landbún- aðinum árum saman, er, í krón- um reiknuð, ekki nema lítið brot að þeim mörgu miljónum, sem sokkið hafa í kauptúnum undan- farin ár, og sem þjóðfélagið í heild sinni á eftir að borga. Og hver er sá sem séð hefir fyrir endann á því sem þjóðfjelagið á eftir að borga af þessu tagi á næstu árum? Enn átakanlegra er að leggja dóm á þetta mál frá öðru sjónar- miði. Hvað hefir þjóðfélagið fengið í aðra hönd fyrir þá aðstoð, sem það hefir veitt bændunum: t. d. með jarðabótastyrknum, sam- kv. jarðræktarlögunum, styrkn- um til Búnaðarfélags Islands, og eilítið bættum lánskjörum til landbúnaðar? Það hefir fengið það í aðra hönd að landið hefir verið stór- lega bætt. Það hafa verið sköp- uð betri lífsskilyrði fyrir afkom- enduma. Það er verið að bæta bú- stofninn. Tún, engjar og haglendi hefir verið girt. Mýrum hefir ver- ið breytt í tún með framræslu. Ræktaða landið hefir verið stór- um aukið. Víða geta nú tvær fjöl- skyldur lifað góðu lífi og alið upp hraust og heiibrigð böm, þar sem áður var erfitt að lifa fyrir eina, Hvað mundi þjóðfélagið fá í aðra hönd ef haldið yrði lengra áfram á þeirri braut, ef það styddi landbúnaðinn með enn meiri forsjá og framlögum. Ef t. d. Búnaðarfélag Islands fengi meiri styrk til meira starfs? Ef t. d. gerðar yrðu ráðstafanir til að gera tilbúna áburðinn stórum ódýrari, hinu opinbera að mjög kostnaðarlitlu? Ef t. d. farið yrði að dæmum annara þjóða og orðið við réttlætiskröfunni að láta bændur eiga kost á lánsfé með kjörum sem eru í samræmi við hina litlu áhættu? Það fengi í aðra hönd stórfeld- ari alhliða framfarir landbúnað- arins. Bústofninn meir bættan, fullkomnari vinnubrögð, meiri og betri afuiðir, stórum aukna ræktun og stórum meiri þarfar framkvæmdir. Það fengi það í aðra hönd að landinu yrði skilað enn betra og byggilegra í hendur eftirkomendunum. — En hvað hefir þjóðfélagið feng- ið í aðra hönd fyrir hinar mörgu miljónir króna sem lánsstofnan- imar hafa tapað hjá kaupstaðar- búunum: útgerðarmönnum og kaupmönnum. Hvða verðmæti fyrir framtíð- ina liggja t. d. eftir kauptúnabú- ana á Austurlandi, sem útbúið á Eskifirði hefir tapað á meir en hálfri annari miljón króna? Hvaða verðmæti fyrir framtíð- ina liggja eftir kauptúnabúana á Vesiturlandi, sem annað útbúið á ísafirði er búið að tapa á meir en miljón króna — svo nefnd séu tvö einstök dæmi? Því skal vitanlega ekki neitað, að ýmislegt þarft og varanlegt hafi verið framkvæmt fyrir þetta óheyrilega mikla fé, sem hefir tapast. En hversu mikið verðmæti hef- ir orðið að engu, t. d. í þús. síld- artunna sem aldrei voru seldar, heldur voru látnar fúna niður og síðast varð að kosta til að aka þeim í sjóinn? Hversu mikið af þessu fé hefir farið til þess eins að kosta sukk og býlífi fólksáns í verstöðvunum og óhófslifnað Islendinga í út- löndum, sem þeir, því miður, eru orðnir altof þektir af. Því miður er það svo, að hlut- fallslega mikið af þessu inikla fé hefir gengið til þessi sem miklu betur hefði verið látið ógert. I mörgum tilfellum hefði fólkinu verið heilnæmara að svelta, blátt áfram, í nokkra daga, en að lifa því lífi, sem þetta fé hefir gert því mögulegt að lifa. Það sem þjóðfélagið hefir feng- ið í aðra hönd, í andlegum og fjármálalegum verðmætum fyrir þessar miljónir sem tapast hafa í kauptúnum og kaupstöðum und- anfarin ár, er því miður hlut- fallslega sorglega lítið. — Aldrei hafa verið sögð meiri öfugmæli á Islandi en þessi, sem íhaldsmenn í kauptúnum, og jafn- vel í sveitum líka, láta klingja: að landbúnaðurinn hafi verið hlut- fallslega ofmikið styrktur af hinu opinbera og að landbúnaðurinn sé hálfgerður ómagi á þjóðarbúinu. Sannleikurinn er alveg gagn- stæður þessu. Kauptúnabúamir hafa verið miklu, margfalt miklu meir styrktir af opinberu fé, og á mið- ur viðeigandi hátt. Á öllum sviðum hefir landbún- aðurinn verið olnbogabarnið. Og — sá hái miljónastyrkur, sem kauptúnin hafa fengið með lánaeftirgjöfum og töpum bank- anna, hefir að töluverðu leyti sokkið í sjóinn, engum til gagns, en oft jafnframt til andlegs og líkamslegs tjóns þeim, sem nutu beint og óbeint — hann hefir skapað þjóðfélaginu hlutfallslega lítið verðmæti. En stuðningur hins opinbera til landbúnaðarins hefir fyrst og fremst orðið til þess að gera land- ið betra og byggilegra, hann mun verða til farsældar og gagns fyrir alda og óboma. Það er sorglegt að þurfa að gera þannan samanburð og rekja þessa sögu. En þegar öfugmæli þau, sem lýst er hér að framan, eru jafn- vel farin að bergmála upp um sveitir landsins, og eru vakin á hinum hæstu stöðum, þá má ekki þegja við. ----o---- MannaLát. Á síðasta vetrardag andaðist að heimili sínu Syðra-Velli í Gaul- verjarbæjarhrepp Jón Árnason bóndi. Hann var fæddur 17. nóv. 1854 í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð. Hann ólst þar upp í stórum syst- kinahóp. Meðal systkina hans eru Guðjón bóndi í Vatnsdal, og Þór- unn ljósmóðir í Árkvöm, og Sig- ríður húsfreyja í Eyvindarmúla. Hann kvæntist árið 1881 Rann- veigu Sigurðardóttur frá Brúnum undir Eyjafjöllum. Var hún ein af hinum mörgu systkinum Guð- jóns sál. Sigurðssonar úrsmiðs í Reykjavík, sem mörgum er að góðu kunnur. Þau reistu bú í Háamúla í Fljótshlíð, en fluttust ári síðar til Stokkseyrar; en síðustu 25 árin hafa þau búið á Syðra-Velli, eignarjörð sinni. Þau Jón sál. og Rannveig kona hans eignuðust 11 böm; dóu 2 þeirra ung en 9 náðu fullorðins aldri. Árið 1912 urðu þau fyrir þeirri sorg að missa elsta son sinn Sig- urð, stakan efnismann og einn meðal fremstu sjómanna hér sunnan lands. Hann dmknaði af þilskipinu Langanes og var mik- ill harmur kveðinn að heimili þeirra við fráfall hans. Þrátt fyr- ir þetta mikla skarð, sem í hóp- inn varð, máttu þau kallast lán- söm með bömin, sem hafa verið foreldrum sínum stoð og styrkur hin síðari ár. Liggur mikið dags- verk eftir þann, sem kemur upp myndarlegum bamahóp, enda voru þau hjón mjög samhent og dugleg. Þau tóku jörðina í mikilli niður- níðslu og bættu hans og stækk- uðu. Gaf túnið af sér 30 hest- burði af töðu þegar þau tóku við jörðinni en nú hin eíðari ár gefur það af sér nokkuð á annað hundrað. Það er svo altítt nú á tímum að bömin þyrpast úr föðurgarði og leita gulls og grænna skóga og skilja eftir foreldrana þreytta og hruma, sem oft má líkja við fjaðrarúna fugla, ef bömin ekki skilja hlutverk sitt, og reynast síður en skyldi. Það virðist sem þau hjón Jón og Rannveig hafi upp skorið sem þau hafa sáð, því 6 af bömum þeirra sem ekki hafa reist eigið heimili, hafa dvalið hjá foreldr- um sínum, og stutt þau með ráð- um og( dáð. Jón sál. hafði verið heilsubiiað- ur síðari missirin, en rúmfastur lá hann ekki nema rúma 2 mán- uði, og oft allþungt haldinn. Hann legst þreyttur til hinstu hvíldar- innar — en gott er þeim að hvíl- ast, sem þreyttur er. A. ----o---- Til athugunar (fyrir umsækjendur Ljósmæðra- skólans í Reykjavík). Síðastliðin haust hafa stúlkur komið í skólann, í þeirri góðu trú, að þær væru þar algerlega kost- aðar af landinu, en svo er ekki. Þessu var breytt á Alþingi 1924 þannig, að styrkurinn er nú kr. 45,00 á mánuði, að viðbættri dýr- tíðaruppbót, sem verður alt sam- tals kr. 70,00 mánaðarlega. Full líkindi em til að dýrtíðaruppbót verði minni næsta ár. Þrátt fyrir þennan styrk, hafa þær sjálfar orðið að leggja fram til náms- kostnaðar sex til sjö hundruð krónur í viðbót, sem ekki er svo undarlegt, þar sem kenslan varir fulla 9 mánuði, og þann tíma allan geta þær ekkert annað gert, en að stunda námið. Bækur Bókafélagsins: Hjá Ársæli Ámasyni og öUum bóksölum: Islandssaga H. Verð 3,50. Dýrafræði I. (Spendýrin). Verð 3,50. Hjá nálega öllum kaupfélögum og nokkrum bóksölum: Island^- saga I, Dýrafræði II (Fuglamir), Nýju skólaljóðin. Verð hverrar af þessum bókum 2,50. Ferðirnar borga þær algerlega úr eigin vasa, hjúkranarföt, svo sem hvítar svuntur, kjólar, skór og skjólgóðar utanyfirhafnarkáp- ur kostar alt mikið fé — en án þessara fata er þeim ómögulegt að vera. Bækur og annað því líkt, sem við kann að bætast, gerir og sitt strik í reikninginn. Ekki geta þær eða mega hafa heimili sitt hjá skyldfólki eða góð- kunningjum þó þær ættu þá hér í bænum, því þeim er gert að skyldu, að búa hjá þeim Ijósmæðr- um, sem era þeirra kennarar, og er það alveg nauðsynlegt að svo sé, því á öllum tímum sólarhrings- ins, getur ljósmóðirin þurft að ná í námsmey sína í skyndi, svo að hún geti sem best látið hana verða aðnjótandi hinnar verklegu kenslu. v Þetta sem hér hefir verið tekið fram er fullrar athugunar vert, þegar litið er til þess, hve erfitt muni fyrir stúlkumar að endur- greiða sinn mikla námskostnað, með litlu lélegu laununum sem nú- gildandi lög mæli fyrir. Engum er kunnugra um það en okkur ljós- mæðrum sem erum kennarar skólans, fyrir hve sárum von- brigðum stúlkumar verða, þegar þær fara af þekkingu að athuga málið. Þær sem hafa byrjað með glæstum vonum og einlægum áhuga fyrir starfinu, þeim liggur við að láta hugfallast með að halda áfram, þegar þær sjá hve mikið fé þær þurfa sjálfar fram að leggja — flestar verða að taka það til láns — og með hverju á að borga? — Einkum virtist mik- ið bera á þessari sáru óánægju síðastliðinn vetur, eftir að fullséð var hver afdrif launamálið fékk á Alþingi. Það era því vinsamleg tilmæli frá stjóm Ljósmæðrafél. Islands til allra, er kynnu að vita um einhvem tilvonandi nemanda, að benda honum á þessar upplýsing- ar, því þær eru með öllu hinar nauðsynlegustu. Stjómin. ----o---- Greinargerð um hið svonefnda áburðarmál og tildrög til frávikn- ingar Sigurðar Sigurðssonar bún- aðarmálastjóra mun stjóm Bún- aðarfélags íslands birta mjög bráðlega. Það hefir verið ákveðið af stjórn Búnaðarfélags Islands að veita ekki, fyr en á Búnaðarþingi, ráðunautsstöðuna sem losnaði við fráfall Sigurðar heitins Sigurðs- sonar ráðanauts. Ráðherrabústaðurinn. Það mun vera í ráði að gert verði við hús- ið í Tjarnargötu, og að forsætis- ráðherra flytji þangað. Hefir hús- ið verið með öllu viðhaldslaust undanfarin ár og staðið autt að nokkru. Horfir til stórvandræða vegna óþurkanna, um Suðurland alt a. m. k. Víðast eru nú liðnar fullar fjórar vikur síðan sláttur byrjaði og mega varla teljast nema tveir þurkdagar síðan. Allmiklar misfellur er sagt að orðið hafi sumstaðar við land- kjörið. Kosið var heima undir handarjaðri sýslumannsins í Borgamesi og sumstaðar hafði stimpill verið notaður við kosn- inguna. ----o---- Ritstjóri: Tryg’gvi Þórhallsson. Prentam. Acta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.