Tíminn - 04.12.1926, Qupperneq 1

Tíminn - 04.12.1926, Qupperneq 1
(ÖJaíbfeti af$rei6&Inví,a&ur 3,'imans « StgKrjetr SðftnlnmbsfiéMhm, Rerfj«»tt X. ár. ~Stf.'a»fari,5áyiiÆi,> ii'ini'iiMigGssMirti'w itnjfíiiririMEwrÉniaisMircga íltan nrheimi. Frá Svartliðum á Ítalíu. Kosningarnar og gengismálið í Danmörku. Nýlega hefir amerískur fræði- maður sem býr á efri árum í Ítalíu lýst ástandinu þar í bréfi til vinar síns. Hann segir að norrænir menn og Engilsaxar geti alls ekki skilið í því hversvegna íhaldsstjóm Mussolinis getur haldið völdum í landinu. I Ameríku eða Englandi myndu borgaramir ekki þola því- líka harðstjóm vikuna út. Nú er þingið ekki lengur til og eigin- lega ekkert ráðuneyti. Alt mál- og íitfrelsi sé upphafið. Ekkert blað fær að koma út nema það sé í öllu með stjórninni. Engum leyfist að finna opinberlega að neinu sem stjómin gerir. Hann gefur líka skýringuna á því hvers vegna þjóðin þolir þetta gerræði íhaldsmannanna ít- ölsku. Það er þroskaleysi þjóðar- innar. Helmingur fólksins kann hvorki að lesa eða skrifa, og í félagslegum efnum eru fullorðnir Italir eins og 12 ára börn í engil- saxnesku mlöndum. Annars vex grimdaræði Musso- lini svo að segja með degi hverj- um. Nú eru fjölmargir af bestu mönnum landsins reknir í útlegð eða drepnir, fyrir það eitt að vera mótfallnir kúgunarstefnu íhaldsmanna. Hins vegar er rétt að geta þess að mjög mikill hluti þjóð- arinnar unir stjóm þessari allvel. Það eru fyrst og fremst þeir, sem sitja sólarmegin í fjármála- efnum, því að svartliðar reka í öllu þeirra erindi. En í spor þeirra fylgir hinn gerómentaði og þroska lausi múgur, sem í öllum löndum myndar helminginn af kjörfylgi kyrstöðumanna. Því stærri er sá hópur sem mentun í landinu er lakari. Þegar þetta er athugað verður ljóst, að Spánverjar, Grikkir og *Pólverj ar geta líkt eftir stjómai-- fonni svartliða. En í betur mentu löndum álfunnar getur öfgastefna þessi ekki þrifist. íhaldið í hverju landi er því sterkara sem mentun og manndáð er á lægra stigi. — Ástæðurnar til þess að íhalds- flokkurinn í Danmörku er tiltölu- lega veikur em tvær: Fyrst ofsi og hófleysi flokksins á tímum Estrup, og í öðm lagi hin góða almenna mentun í landinu. Kosningaúrslitin í Danmörku urðu þau að verkamenn og frjáls- lyndir mistu 6 þingsæti til and- ófsflokkanna. Má telja víst að vinstrimenn eða bændaflokkurinn taki við völdum með stuðningi hægrimanna. Danska sjómin gat að réttu lagi setið hálft annað ár enn og beðið kosninga. En af flokksástæðum mun hún ekki hafa talið holt að sitja svo lengi, með hundrað þús. menn atvinnulausa í landinu. Verkamennimir höfðu eins og verkamenn og embættismenn á íslandi vonast eftir að græða á krónuhækkuninni. En í þess stað varð gengishækkunin að dráps- byrði fyrir iðnaðinn. Hvert fyrir- tækið eftir annað sagði upp fólki sínu af því ekki borgaði sig að framleiða með þeim kostnaði sem Reykjavík 4. desember 1926 leiddi af krónuhækkuninni*). At- vinnuleysið og vonbrigði danskra verkamanna og iðnaðarforkólfa stafa eingöngu af gengishækkun- inni. Annars hefði verið góðæri og almenn vellíðan þar í landi. J. J. ----o---- „Ekki skal gráta Björn bónda, heldur safna liði“. Landskj örsatkvæðin voru talin í fyrradag á lestrarsal Alþingis. Fóru leikar svo að: A-listi, Framsóknarflokksins fékk.............. 6940 atkv. B-listi, Ihaldsflokksins fékk..................8514 atkv. Auðir seðlar vora . . 147 • Ógildir seðlar voru . . 96 Voru því alls greidd 15697 atkv. eða réttum 1600 fleiri en í sumar. Jónas læknir Kristjánsson á Sauð- árkróki er réttilega kjörinn land- kjörinn þingmaður í stað Jóns heitins Magnússonar. Miklum sigri fagna Ihaldsmenn yfir þessum kosningaúrslitum, sem vonlegt er, og víst er um það, að víða um Reykjavíkurbæ vom miklar veislur haldnar í fyrrakvöld þess tilefnis að Jón bóndi á Ystafelli náði ekki kosn- ingu. Vitað var það þegar, þá er séð var hversu viðraði á kosninga- daginn, að þessi yrðu úrslitin. En ýmislegt hefir hjálpað til að gjöra muninn svo mikinn sem hann reyndist. I Þingeyjar- og Múlasýslum varð kosningaþátttakan stórkost- lega miklu minni en hún he'fði orðið ef færð og veður hefði ver- ið sæmilegt. Er ekki ofhátt áætl- að að þessa vegna hafi A-listinn mist á þeim slóðum 12—1500 atkvæði. Annarsstaðar á landinu hefir veðuráttan ekki haft eins stórkostleg áhrif. En yfirleitt hefir þó víðasthvar dregið nokk- uð úr sókn í sveitunum vegna veðurs og færðar, og mestu hefir A-listinn tapað á því. Annað atriði kemur og mjög til greina. Samfara landskjörinu fara fram kjördæmakosningar í Reykjavík og Rangárvallasýslu. En það eru hvort um sig sterk- ustu kjördæmi íhaldsflokksins, annað kaupstaðar hitt sveitar- kjördæmanna. I þessum tveim kjördæmum kusu nú töluvert á annað þúsund kjósendur fleiri en í sumar. Vitanlega hefir það styrkt aðstöðu íhaldsflokksins stórkostlega að fá svo mikla sókn, einmitt í þessum kjördæmum. Loks má vera að fullyrðingar Ihaldsblaðanna um óeðlilegt sam- band milli Framsóknarflokksins og verkamanna hafi fælt ein- hverja bændur frá að kjósa eða varpað þeim, í þetta sinn, í fang íhaldsflokksins. Og þó er næsta ósennilegt að svo hafi verið. ó- sannindin um skoðanaafslátt Framsóknarmanna voru opinber og blekkingamar um sameiningu *) Ilinn 14. okt. 1926 skrifar norskt heildsölufirma íslenskum viðskiftavin: Norska krónan hefir í gœr og dag hækkað um 10%. þetta hefir orsakað skelfingu í fjármálum landsins, en kemur þó mest við framleiðendur, er selja til útlanda. og samvinnu flokkanna voru svo hlægilega vitlausar, að fáir hafa látið af þeim taslast. Var og eftir- tektavert að sjá að fyrrihluta kosningahríðarinnar, meðan gert var ráð fyrir að íhaldsblöðin næðu alment út til bænda, var sí- felt á því alið hve svívirðilegt það væri fyrir bændur að þiggja atkvæði verkamannanna handa bónda. En síðustu dagana kvað við alt annan tón. Þá gengu íhaldsblöðin á biðilsbuxunum til verkamanna og reyndu að sýna þeim fram á að bændur væru miklu verri í þeirra garð en I- haldsmenn. Væri gengismáhð stærsta máhð nú á dagskrá þjóð- arinnar og í því máli ættu Ihalds- menn og verkamenn samleið. Hefir Tíminn enga aðstöðu til að vita hvem árangur sú bónorðs- för hefir borið. En einsdæmi mun það vera í stjórnmálabaráttu sem Ihalds- menn gerðu: annarsvegar að gei’a Framsóknarmenn tortryggil^ga fyrir að vilja taka á móti atkvæð- um verkamanna handa bónda, hinsvegar að sækjast sjálfir afar- fast eftir að fá þau atkvæði og bera fram þau rök, að málefn- anna vegna ættu verkamenn heldur að kjósa Ihaldsmann. — Svo má skýra úrslit lands- kjörsins, en undir engum kring- umstæðum má draga fjöður yfir það að þau eru mikill sigur fyrir Ihaldsflokkinn. Verða allir, frjáls- huga menn á Islandi að gera sér það ljóst að seigt mun íhaldið reynast, og að þess mun gerast þörf að taka á því sem til er til þess að ríða það niður. Munu Ihaldsmenn að sjálfsögðu leggja það svo út að þessi úr- slit þýði samþykki kjósenda á stefnumálum íhaldsflokksins: 1. Hækkun nefskatta, en íviln- un handa hinum tekjumestu. 2. Stofnun varalögreglu. 3. Áframhaldandi vöxtur kaup- túnanna en hnignun sveitanna. 4. Hækkun krónunnar upp í gullgildi. 5. Aukning kaupmannaverslun- ar og afnám samvinnulaganna. — svo að nefnd séu fáein at- riði. Skera kosningar úr því næsta haust, en varla koma Ihaldsmenn þessu í framkvæmd á næsta þingi. --- Heimilafjðlgunin. Það er undarlegt hvað lengi jafnvel hinar einföldustu og sjálf- sögðustu umbætur eru að ná þeirri viðurkenningu, sem þær ættu að geta hlotið þegar í stað. Eitt af þeim málum er fjölgun heimila í sambandi við ræktun landsins. Nauðsyn sú, sem eftir rekur, er mikil. Á hverju ári yfirgefa nokkur hundruð ungir menn og ungar stúlkur hér á landi æsku- heimilin og halda í einkonar út- legð. Foreldramir sitja eftir stundum býsna fámenn. Þau finna djúpt til yfir missinum. Þau vita að bömin koma ekki aft- ur heim nema til skammvinnra heimsókna. Oft vita foreldramir að börnin fara sámauðug. En þau hafa ekki getað myndað heimili í átthögunum. Þess vegna leita þau burtu og koma ekki aftur. Þetta kemur af því að hið ís- lenska þjóðfélag hefir vanrækt skyldu sína í þe’ssum efnum. Það hefir greitt götu Guðmundar sýslumanns í Borgamesi. Honum hefir landið lánað 60 þús. kr. til heimilismyndunar með vildar- kjörum. Það byggir yfir fjölda af starfsmönnum ríkisins. En hið íslenska þjóðfélag hefir alveg gleymt að það þarf líka að greiða götu annara bændabama til að mynda heimili, heldur en þeirra, sem eru hjá landinu og fá þaðan kaup sitt. I Danmörku hjálpar ríkið til að fjölga heimilum í sveitum 1600— 2000 árlega. I Noregi fjölgar um 1000 heimili að meðaltali. Þar með eru eingöngu talin þau býli þar sem fólkið lifir eingöngu af ræktun. En á íslandi hefir býlun- um fækkað síðan um 1700. Á hinni mestu hörmungaröld, sem yfir landið hefir dunið, voru fleiri heimili, þar sem fólkið hfði af ræktarlandi, heldur en þegar Is- land varð fullvalda „ríki“ 1918! Þó er sannað að heimilunum getur fjölgað hér eins og í ná- búalöndunum. Það þarf aðeins að hlynna að þessari umbót hér eins og þar. I Noregi hafa þeir sem bygðu og ræktuðu ný býli fengið með sérstaklega góðum kjörum frá einskonar „byggingar og land- námssjóði“ þar í landi 9000 kr. í það landnám sem að mati kost- aði 10,000. I Danmörku kosta hin nýju heimili, með þægilegum húsakynnum fyrir einyrkja oft um 20 þús. kr. Og þetta geta þeir menn bygt, sem sjálfir hafa 2—3 þús. kr. fram að leggja. En hvernig geta bændasynirnir á Islandi fetað’í fótspor einyrkj- anna í Noregi og Danmörku, sem á þennan hátt finna „Ameríku“ í sínu eigin landi? Þeir fara í Veð- deild. Hún getur ekki veitt þeim eina krónu. Þeir fara í Ræktunar- sjóðinn. Sama svarið. Hann er sniðinn eftir þörfum bænda sem eiga fasteignir. Svo mikil vand- kvæði eru í þessum efnum að ungur og duglegur maður á Austurlandi, sem hafði vilja og getu til að rækta land og koma sér upp býli í sveit, en fékk hvergi lán, af því hann átti að- eins vinnuafl sitt, skrifar í öng- um sínum útgerðarmanni* í Rvík, sem hafði ástæðu til að halda, að vildi leggja peninga í þvílíka ræktun og biður hann að lána sér 10 þús. kr. Af skiljanlegum, en leiðinleg- um ástæðum hafði útgerðarmað- urinn ekki svarað bréfinu, þegar síðast fréttist. — Og hann gerir það sennilega aldrei. Nei, hér er ekki nema ein leið að hrinda þessu máli í fram- kvæmd. Hún er sú að landið leggi til muna fé í þessa heimila- fjölgun eins og allar aðrar frænd- þjóðir okkar gera. Jón Þorláks- son segir að vísu, að bændumir eigi að hafa svo næma sómatil- finningu að þiggja engin slík vil- kjör frá landinu. Þá verði þeir sveitarómagar. En úr því að Jón hefir sjálfur stutt að því að gera sýslumanninn í Borgarnesi að þvílíkum skjólstæðingi ríkisins, og * Athugasemd við píslarsögu Ólafs Thórs um að útgerðarmenn hér greiði of háan tekjuskatt, kemur í næsta blaði. J. J. Cim*«s er i 3ambatt6síjáfiitui CDptn ðoglega 9—I* b- f- 5fmi 49®- 54. blað styður árlega marga aðra em- bættismenn landsins til með hlu^nindum af almannafé hlið- stæðum þeirra sem hér er talað um til heimila handa nýjum bændum, þá fer félagsskapurinn við hina nýju sveitarlimi ráðherr- ans að verða svo fínn, að varla getur óttinn við nafnið fælt menn frá að ganga hér sömu braut og nánustu frændþjóðir okkar hafa farið. Feður og mæður kveðja árlega mörg hundruð böm sín sem vildu vera kyr og gætu verið kyr í sveitinni. En þetta fólk hefir ekki enn lært að þekkja mátt sinn. Ef það hefði þann manndóm til að bera að það vildi knýja á dym- ar eins og sýslumaðurinn í Borg- arnesi eða presturinn á Mælifelli, þá yrði lokið upp fyrir þeim líka, alveg eins og gert hefir verið í nábúalöndunum. Hér er ekki um neinn galdur að ræða, ekkert ann- að en að sýna kjark og manndóm á réttum stað. J. J. -----o---- Stúdentablað gaf stúdentaráð háskólans út að vanda 1. des., sjerlega fjölbreytilegt að efni og skemtilegt. P. E. Ó. prófessor ritar stutta minningargrein um Eggert ólafsson á 200 ára af- mælinu, kjamyi’ta og prýðilega. Yngri stúdentarnir leggja til margbreytilegt efni, bæði 1 bundnu máli og óbundnu og einn þeirra, Þorvaldur Blöndal, sonur Jóns heitins læknis í Stafholtsey birtir karlakórslag við vísu eftir Þorstein Erhngsson, prýðilega gott. Þá em í blaðinu ágætar gamanmyndir eftir Tryggva Magnússon málara frá Hólmavík, hinn stórlega listfenga mann og er honum þó altaf að fara fram og eftir Eyþór Gunnarsson lækna- nema. Mun engan iðra sem eign- ast þetta blað. Eggertsminning. Út kom á 200 ára afmæli E. Ó. í fyrradag, mjög stórt og myndarlegt mixrn- ingarrit um hann eftir Villijálm Þ. Gíslason magister, á forlag Þorsteins Gíslasonar. Er allur frá gangur bókarinnar svo vandaður að af ber. Styrkur hefir verið veittur til bókarinnar bæði af E. ó. nefndinni og af landsstjóm- inni. Vínsmyglun. Um síðastliðna helgi var Þór, sem þá lá á Isa- firði, kallaður til Bolungarvíkur. Þar lágu þá margir togarar veg'na illveðurs og hafði hrepp- stjórinn á Bolungarvík komist að því að víni hafði verið smyglað í land. Skipstjórinn á Þór fór um borð í þýskan togara, sem hann grunaði sérstaklega, en skipstjóri neitaði harðlega að hafa fengist við smyglun. Togarinn var þó fluttur til Isafjai’ðar, þar eð út- búnaður veiðarfæra var ólöglegur og hefir hann nú verið dæmdur í 2000 gullkróna sekt. Maður sá er sagður var eiga vín það, sem flutt var í land er í gæsluvarðhaldi. Bátur ferst. Vélbáturinn Bald- ur úr Reykjavík fór út á veiðar á mánudagsmorgun og þareð ekki spurðist til hans á þriðjudag var „Suðurland“ fengið til að leita, komst það vestur fyrir Akra en varð einskis vart. Er nú talið von- laust um að báturinn komi fram. Skipverjar vom 4, var formaður- inn kvæntur og þriggja bama faðir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.