Tíminn - 08.03.1927, Qupperneq 2
88
TÍMINN
Frá útlöndum.
Nokki-a mynd af hinrnn stór-
felda atvinnurekstri Bandaríkj-
anna og Ameriku má fá af eftir-
farandi fróðlegu tölum: I Ame-
ríku búa 7 % ' af íbúum jarðar,
en hinsvegar framleiðii’ Anie-
ríka 22% af hveitiframleiðslu
heimsins, 43% af kolunum, 53%
af koparframleiðslunni, 58% af
baðmullarframleiðsiuxnii og 72%
af þeirri olíu og bensíni sem
framleitt er í heiminum. Engan
þarí því að undra þótt auðæíi
saínist í Ameríku. — Ford bíla-
kóngur, hefir 200000 þús. verka-
menn í sinni þjónustu. Lág-
markslaunin eru tæpar 30 kr. á
dag. Góður morgunverður í mat-
söluhúsi verksmiðjanna kostar
ekki nema rúma 60 aura. Svo
glæsilegm- er árangurinn af góðu
skipuiagi. — Með því að fækka
framleiðslutegundum hefir
Bandaríkjamönnum tekist aö
gjöra framleiðsluna mikiu ódýr-
ari. Áður vom búnar til 175 teg-
undir vagnhjóla handa járn-
brautunum, en nú aðéins fjórar;
landbúnaðarvéiar áður 1092, nú
37; pappírstegundir áður 377, nú
56 o. s. frv. Þessa vegna er það
fyrst og fremst að á mörgum
sviðum geta önnur iðnaðariönd
alls ekki kept við Bandaríkin.
— Út af aiisherj arverkfaili
sem hafið var í Shanghai hafa
hundrað af foringjum verkfalls-
manna verið hálshöggnir og voru
höfuð þeirra höfð til sýnis á
götum borgarinnar.
— Italskur maður, Pinedo,
flaug nýlega yfir Atlantshaf, frá
Kapverdeeyjum til Brasilíu.
— 1 Noregi var hafinn allmk-
ill andróður gegn því að gerður
yrði samningur við Dani um
um gjörðardóm í öllum deilu-
málum landanna í milli. Ástæð-
an var Grænlandsmáiið, deilan
um afhending norskra skjala og
muna o. fl. Þó urðu leikslok þau,
seint í fyrra mánuði, að Stór-
þingið í Osló samþykti samning-
inn.
— Talið er að Poincare for-
sætisráðherra Frakka ætli að
byrja á afborgunum stríðsskuld-
anna til Bandaríkjanna, þó að
okki hafi enn verið gerður samn-
ingur um þær.
— Mikil klögumál hafa gengið
undanfarið milli stjórnanna á
Rússlandi og Englandi. Enska
VL Nl.
Aðal verkiegar námsgreinar
þessara skóla yrðu að mestu
hinar sömu og tíðkast á sams-
konar skólum annarsstaðar á
Norðurlöndum, þ. e. a. s. mat-
reiðsla, mjólkuraðferð, garðrækt,
handavinna og heimilisiðnaður.
Aðeins yrði að haga kenslunni í
hverri þessari grein eftir ís-
lenskum staðháttum. Þannig yrði
t. d. mikill þáttur í matreiðslu-
kenslunni sláturstörf á haustin
og í mjólkurmeðferð, skyr- og
ostagerð.
Eins og ástatt hefir verið um
sérmentun kvenna hér á landi til
skamms tíma, hefur engin ein
stofnun verið til, þar sem stúlk-
ur hafi getað fengið hagkvæma
tilsögn í öllum þessum greinum,
sem nú voru taldar. Kvennaskól-
amir hafa að vísu fullnægt þess-
ari þörf að einhverju leyti, en
bóklegt nám hefir verið aðal-
verk þeirra, og því hefir verk-
lega fræðslan að sjálfsögðu lot-
ið í lægra haldi. Afleiðingin hef-
ur orðið sú, að stúlkur hafa orð-
ið að afia sér verklegrar þekk-
ingar í ýmsum áttum, á sauma-
stofum, vefnaðamámsskeiðum,
matsöluhúsum eða hússtjómar-
deild kvennaskólans í Reykjavík
og víðar. Þetta nám verður
stjómin ber fram ásakanir um
undirróður Rússa í enskum
löndum og hótar hörðu á móti
og jafnvel friðslitum. Rússa-
stjóm svarar í móti og kvartar
undan ásökunum Breta og segir
ásakanimar ósannar. Kveðst ráð-
stjórnin óska eftir góðri sam-
búð milli Rússa og Breta og
segist ekki óttast hótanir Breta,
Ef um slit stjómmálasambands-
ins sé að ræða verði Bretar að
taka á sig afleiðingamar. Út af
þessu svari Rússastjómar hafa
ýmsir af hörðustu Ihaldsmönn-
unum í stjómarflokknum enska
viljað slíta stjómmálasamband-
inu við Rússa og borið kröfu
fram um það. Er þó talið ósenni-
legt að meirihluti stjómarinnar
fallist á það. Hefir Chamberlain,
utanríkisráðherra getið þess í
ræðu að stjómin ætli sér að láta
ósvarað orðsendingu Rússa.
— Éldgos mikil eru í Kákas-
uslöndunum. Hefir hraunstraum-
urinn lagt í eyði 80 hús og 30
menn hafa týnt lífi.
— Tvö stórslys urðu í enskum
kolanámum um mánaðamótin.
52 menn biðu bana af spreng-
ingu í kólanámu í Wales og 14
menn druknuðu í vatnsflóði í
námu annarsstaðar.
— —o----
Fréítir.
Veðrið. Austanátt. Snjókoma
nokkur á Norður- og Austurlandi
seinni hluta vikunnar. Krapahríð
á Austurlandi. Góðviðri um Suð-
urland.
Gestir í bænum. Halldór Ás-
grímsson kaupfélagsstjóri í
Borgarfirði, Brynjólfur Einars-
son bæjarfulltrúi á Seyðisfirði,
Ólafur Hermannsson kaupfélags-
stjóri á Eskifirði, Jónas Bene-
diktsson bóndi að Vattamesi og
Jón Ivarsson kaupfélagsstjóri í
Homafirði.
Togarinn Eiríkur raúði strand-
aði 2. þ. m. á söndunum austan
við Kúðafljót. Mannbjörg varð.
Togarinn var eign Geirs Thor-
steinsson & Co. Kom skipið frá
Englandi og var hlaðið kolum.
Nýlega hefir orðið vart við
sokkið skip innan við skergarð-
inn fyrir Mýrum vestra. Ætla
menn að þar sé norska skipið
„Balholm“, sem fórst í vetur.
Verður þetta athugað nánar.
Skipaf regnir. Gullf oss, Goða-
foss og Esja em í Reykjavík
(2/3). Lagarfoss fór frá Seyðis-
firði 1. þ. m., á norðurleið.
Brúarfoss, kæliskipið nýja, kem-
ur upp til Austfjarða snemma í
mánuðinum, fer norður um land
og kemur til Rvíkur 20. þ., m.
Áskorún hafa 216 Hnífsdæl-
ingar sent Alþingi um að herða
eftirlit með bannlögunum og
leggja niður vínsölustaði utan
Reykjavíkur.
Aðalfundur Dýravemdunarfé-
lag íslands var haldinn í Rvík
1. þ. m. 1 stjóm voru kosnir sr.
Ólafur ólafsson forseti, Leifur
Þorleifsson, gjaldkeri og Hjörtur
Hansson, ritari.
Kaupdeilunni á Norðfirði er
lokið. Kaupið er kr. 0,85 fyrir
dagvinnu og kr. 1,00 fyrir helgi-
dagavinnu.
Félag norrænna búvísinda-
manna var stofnað fyrir nokkr-
um árum síðan. í því era kenn-
arar og vísindamenn í þeim fræð-
um er að búnaði lúta, og miðar
félagsskapurinn að því að auka
samvinnu meðal þeirra. Félagið
hefir haft eina deild í hverju
landi, Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi en eigi á Is-
landi. En nú nýlega er stofnuð
félagsdeild hér heima. Stjóm
hennar skipa Halldór Vilhjálms-
son skólastj., Sig. Sigurðsson frv.
búnaðannálastj. og Pálmi Ein-
arsson ráðunautur.
Deila er risin milli Guðmund-
ar Kambans rithöfundar og Leik-
félags Reykjavíkur. Er hún svo
til komin, að G. K. gjörði leik-
félaginu tilboð um að stjóma
leiksýningum þess seinni hluta
vetrar. Hefir hann mjög lagt
stund á leikstjóm og uxmið sér
álit í þeirri gerin að hermt er.
Ætlaðist hann til að sýnd yrðu
nokkur leikrit eftir sjálfan haxm.
Er tilboð þetta kom hafði leik-
félagið að sögn gjört áætlun um
starfsemi sína það sem eftir var
vetrar og m. a. ákveðið að sýna
hið nýja leikrit Davíðs Stefáns-
sonar, Munkana frá Möðruvöll-
um. Var og ráðinn sérstakur
maður til að hafa umsjón með
leiksýningum. Hafnaði formaður
félagsins tilboði Guðmundar.
Eigi að síður kom Guðm. til
Rvíkur í síðastl. mánuði. En leik-
félagið hefir samt eigi viljað
sinna tilboðum hans. Telja mai'g-
ir það misráðið og færa það
fram, að Guðm. sé afburðamað-
ur í sinni grein og mundi ísl.
leiklist mikill fengur í leiðsögn
hans. Og svo s_egir haxm sjálfur,
að áhugi einn fyi'ir framförum
landa sinna í þessum efnum hafi
knúð sig til fararinnar. — Hvass-
orðar gi-einar um þetta efni hafa
birst í Rvíkurblöðunum og sýn-
ist sitt hverjum. — Guðmundur
Kamban mun einkum kunnur hér
á landi fyrir leikritið Hadda
Padda. Annars hefir hann starf-
að í Danmörku og skrifað á
dönsku.
Jarðskjálfta hefir orðið vart
um Reykjanes.
Afli er ágætur bæði á stór
skip og báta.
Fiskverðið í Reykjavík er eitt
hið óskaplegasta, sem þekkist í
viðskiftum hér á landi. Nú um
tíma hefir verðið verið óvenju-
lega lágt. Þó er ýsa með haus
og innyflum seld fyrir 10—12
aura pundið. En undanfarið hefir
verðið oft verið helmingi hæxra.
- • •• —
stúlkum ekki aðeins dýrara, held-
m- kemur það þeim aldrei að eins
góðu haldi og ef það væri fengið
á einum stað, undir einni stjórn
og með eitt og sama mark fyrir
augum. Því það liggur í hlutar-
ins eðli, að hvorki saumastofur
©ða matsöluhús hugsa fyrst og
fremst um, hvað nemendum sé
fyrir bestu, því það era atvinnu-
fyrii'tæki en ekki skólar. Er þó
enn ótalið það, sem mestu máli
skiftir, þegar um mentun sveita-
stúlkna er að ræða, en það er,
að nær því alt þetta nám, verða
þær að sækja til kaupstaða og er
það því, sem eðlilegt er, sniðið
við þarfir kaupstaðabúa, en eins
og allir vita eru þarfir sveitanna
mjög aðrar.
Húsmæðraskólamir þurfa að
sameina alt þetta verklega nám.
Þeir þurfa að komast á fót helst
í hverjum landsfjórðungi.
Gott er að hugsa til þess, að
starf er þegar hafið í þessa átt.
Fyrsta tilraun þess, er breyting
sú á Blönduóssskólanum, er fyi’
var á minst. Enn ákveðnara spor
í áttina er væntanleg stofnun
húsmæðraskólans á Staðarfelli,
þvi sá skóli á að hafa jörð til
afnota. Er það bersýnilegt, að
mikið vantar á húsmæðrakenslu
fyrir sveitastúlkur, ef ekki er
hægt að kenna meðferð mjólkur
eða garðrækt, en til hvorttveggja
þess þarf jarðarafnot;
Takmark það, sem skólar þess-
ir þurfa að stefna að, er að verða
fyrirmyndarheimili. Þeir mega
því ekki vera mjög stórir, ann-
ars er hætt við, að þeir sprengi
af sér ramma heimilisins.
Á skólaheimilum þessum þurfa
stúlkumar að læra að vinna öll
venjuleg heimilisstörf fyrst og
fremst, og þær þurfa einmitt að
læra að vinna þau störf betur og
á hagkvæmari hátt, en nú á sér
alment stað.
Á ekkert þurfa húsmæðra-
skólamar að leggja jafnmikla
áherslu og að innræta stúlkun-
um virðingu fyrir vinnunni yfir-
leitt og einkum daglegu störfun-
um, því fátt skortir eins mikið
á í uppeldi kvenna nú á tímum.
Hússtjórnarkensla sú, er fengist
hefir hér að þessum tíma hefir
lagt langmesta áherslu á að
kenna tilbúning sjaldgæfra rétta.
Hafi stúlkumar ekki kunnað
mikið til daglegrar matreiðslu til
sveita áður en þær fóru, má
óhætt telja að þær komi jafnnær
um þá þekkingu, sem lífið heimt-
ar einkum af þeim. Afleiðingin
er sú, að ungar stúlkur reyna
að komast hjá að vinna algeng
störf og líta niður á þau.
Öruggasta ráðið til að lækna
þetta hættulega þjóðarmein, er
að bæta vinnuaðferðimarí gjöra
störfin léttari, vinna þau á hag-
! kvæmari hátt og láta leysa þau
vel af hendi. Það er alknnugt,
að mönnum þykir vænt um það,
sem þeir leggja rækt við, t. d.
stórf sem unnin eru af úlúð.
Sennilega liggur eitthvert lögmál
þar til grandvallar. Skólamir
þúrfa að leggja mikla áherslu á
þetta, að vinna hversdagsstörfin
af alúð. Laun þeirra manna, sem
geta tamið sér það verða ekki
tölum talin, því þau eru andlegs
eðlis, þau eru starfsgleði og full-
nægja, og þau bera hundraðfald-
an ávöxt fyrir þann, sem þau era
unnin fyrir. Hugsunarháttur sá,
er liggur að baki hverju vel unnu
verki, er sá, er hver þjóð má síst
án vera. Hann er kallaður trú-
menska og er ein af máttarstoð-
um hvers borgaralegs félags.
Ekki er minni þörf á að fá
breytt til batnaðar húsaskipun til
sveita en vinnubrögðum. Enda
leiðir það hvað af öðra. Góð
húsaskipun er aðalundirstaða
hagkvæmra heimilisstarfa. Hús-
mæðraskólamir ættu einnig að
ganga á undan á þessu sviði.
Bygging sveitabæja er eitt
vandamálið, sem þjóðin stendur
nú gagnvart og þarf að leiða til
lykta. Húsabyggingar síðustu
áratuga, era eins og megnið af
umbótastarfsemi hins nýja tíma,
óljóst fálm út í loftið. Er það
hverju orði sannara er oft sést
um kvartað af þeim, er ritað
hafa um þetta mál, að stílleysi
er komið í stað hins fagra og
þjóðlega stíls burstabygginga.
Hitt er þó engu síður óviturlegt,
að í flestum hinna hýju steinhús-
um sveitanna er úthýst mögu-
leikanum til heimilislífs, í þess
orðs bestu merkingu. Eg á við
baðstofuna íslensku. Get eg ekki
stilt mig um að minnast örlítið
á þetta, fyrst eg fór á annað
borð, að. tala um húsaskipun til
sveita.
Eg held það væri gott, að gera
sér ljóst, hvaða þýðingu baðstof-
an hefir haft fyrir íslenskt þjóð-
líf á hðnum öldum. Hún hefir
lagt skilyrði til þess andlega lífs,
sem þróast hefir með alþýðu
manna út um sveitir landsins.
Þar hefir fólkið safnast saman öld
eftir öld og notið saman andlegra
verðmæta, sem geymst hafa í
söngvum og sögu þessarar þjóð-
ar. Þar hefir verið haldinn eins-
konar alþýðuskóli Isl. Það gerði
ekkert til, þó stundum væri lágt
undir loft, því sjóndeildarhring-
ur fólksins víkkaði, tilfinninga-
lífið dýpkaði og næmleikurinn
fyrir fegurð forms og efnis
glæddist, og það var aðalatriðið.
En þama lifðu menn einnig og
störfuðu saman. Baðstofan lagði
skilyrði til samhygðar og sam-
starfs.
Nú er baðstofunni úthýst víð-
ast hvar, því þó nafninu sé hald-
ið sumstaðar, þá hefur það feng-