Tíminn - 09.04.1927, Page 2

Tíminn - 09.04.1927, Page 2
58 TlMINN M íitlöndiini, Eitt ákvæðið í hinum grimmu friðarsamningum í Versölum var svohljóðandi: Stjórnir Banda- manna lýsa því yfir og Þýska- land viðurkennir, að Þýskaland og samherjai- þess bera ábyrgð- ina á því að hafa gefið tilefni til alls þess taps og tjóns sem stjórnir Bandamanna og borgar- ar hafa orðið fyrir vegna styrj- aldarinnar sem þeir voru neyddir til að taka þátt í vegna árásar Þýskalands og samherja þeirra. — Það var sem sje ekki nóg með það að Þjóðverjar urðu að ganga að öllum skilmálum um 1 anda- missi og skaðabætur, sem Banda- menn settu, heldur urðu þeir og að játa það sjálfir, með vörun- um a. m. k., að þeir bæru ábyrgð á styrjöldinni, af því að það væru þeir sem hefðu gert árásina. — Fáum árum eftir friðarsamning- ana, 1925, gerðust þau tíðindi að rúmlega hundrað menn franskir, þar á meðal sumir hinna nafn- toguðustu rithöfunda Frakklands, gáfu úr opinbert ávarp út af þessari grein friðarsamninganna. Þeir mótmæltu greininni einum rómi. Þeir bentu á að Þjóðverj- ar hefðu verið kúgaðir til að sam- þykkja greinina. Og um það hver ætti sökina sögðu þessir frönsku menn: Um það er nú ómögulegt að fella“ dóm. Nálega alt mannkynið er meir og minna riðið við þetta mikla mál. Engan óhlutdrægan dómstól er hægt að skipa nú til úrskurðar um þetta. Því eigum við að skjóta því til sagnfræðinga síðari tíma. — Vakti það að vonum hina mestu eftirtekt að svo margir merkir Frakkar tóku þannig beina af- stöðu gegn Versalafriðnum. — Nú hefir merkur sagnritari am- erískur ritað mikla bók um styrj- öldina miklu og tildrög hennar sjerstaklega. Kveður hann upp þann dóm að aðalsökina á því að heimsstyrjöld hófst út af við- burðunum í Serbíu eigi Rússland og Frakkland. Næst, en þó miklu minni sök, falli á Austurríki; en minsta sölc verði að leggja á bak Þýskalands og Englands. Hann kveður upp mjög þungan áfellis- dóm yfir þátttöku Bandaríkjanrxa í styrjöldinni og um ummæli Ver- salafriðarins um þetta atriði seg- ir hann að sá dómur sje upp kveðinn af dómurum sem sjálfir voru sakaraðilar og því með öllu óhæfir til að kveða upp dóminn. En um ákafa Bandamanna að halda því fram að Þjóðverjar eigi sök á styrjöldinni sé það að segja að lengi ætli að standa á því að heimurinn læri að lifa eftir hinu foma boðorði: Þú skalt ekki ljúgvitni bera gegn ná- unga þínum. — Nánari fregnir eru nú komnar af þeim tíðindum sem gerst hafa í Albaníu, og frá var skýrt í síðasta blaði. Undir stjórn Tyrkja voru óeirðir í Al- baníu daglegt brauð, svo að kalla. A. m. k. var það jafnan talið víst, að þegar fór að vora og vegir orðu færir, þá yrðu ein- hverjar meixi eða minni róstur í Albaníu. Eftir að Albanía varð sjálfstætt ríki hefir ekki dregið úr óeirðunum og hinir ýmsu flokkar sem borist hafa á bana- spjótum, hafa annað kastið flúið til nágrannalandanna og sótt þangað liðsstyrk eða peninga. Er því ekki að undra þó að ná- grannaþjóðimar einkum ítalía og Suður-Slafaland, hygðu fast á að ná áhrifum um landsstjórnina, enda er nú talið víst að Ítalía hafi náð því marki. Fyrir nokkru síðan fór biskup einn, Fau Noli, með völdin og var talið að hann væri mikill vin ítala. Ahmed Zogu hóf þá flokk á móti og var það opinbert leyndarmál að hann fékk bæði fjárstyrk og liðsstyrk frá Suður-Slöfum. Honum tókst að ná völdum, en jafnharðan hóf biskupinn aftur flokk á móti. Varð sú hríð allhörð og var fyrst lokið stuttu fyrir áramótin með fullum sigri Ahmeds Zogus. En svo bar svo undarlega við að rétt eftir gerir hann svo hinn mjög umtalaða samning við ítalíu sem raunverulega gerir Albaníu að ítalskri nýlendu. Og sömuleiðis er það orðið uppvíst að Ahmed Zogu heíir þegið geysi- háar mútur frá Ítalíu. En bisk- upinn Fau Noli, sem fyr var rek- inn frá fyrir of mikla vináttu við ítali, gekk síðan á mála hjá Suður-Slöfum. Og bera þessi tíðindi öll hin ljótasta vott um spilling st j órnmálamannanna á hinu allra hæsta stigi og eins má af því ráða hitt, hver hætta smá- þjóðunum stendur af ásælni voldugri nágranna. )) KairHM I Omew C Ábnrðnr Eins og' undanfarin ár höfum við til sölu: Noregssaítpétur, Þýskan saitpétur, Kaií, Superfosfat Þessar áburðartegundir höfum við fyrirliggjandi á útbú- um okkar á Isafirði, Akureyri, Seyðisfirði, og hér í Reykjavík. Köfnunarefnisáburðurinn er að mun ódýrarí nú en undanfarin ár. Áburðurinn verður ódýrastur sé hann tekinn við skips- lilið. Munið því eftir að panta hann nógu snennna. GS-rasfræ, Sáðhafra, munum við hafa til sölu í Reykjavík. Veðrið. Austanátt ríkust. Krapahríðarél öðru hvei'ju eink- um á Norður- og Austuriandi. Annars má segja að tíðin sé al- staðar góð. Er það sumra manna mál, að meira sé en hálf öld síð- an jafn mikil veðurblíða hefir verið á góu hér syðra og nú í vetur. Ákveðið er að Jóhann Fr. Kristjánsson húsagerðarmaður fari í maí byrjun austur í Skafta- fellssýslu til þess að leiðbeina þar. Bændur þeir sem vilja hafa not af ferð hans, láti boð liggja fyrir á símastöðvunum: Holti og Garðsauka oig hjá sýslumannin- um í Vík í Mýrdal, sem gefur nánari upplýsingar. Var Jesús sonur Jóseps heitii' j ný-útkominn bæklingur eftir sr. Gunnar Benediktsson í Saurbæ í Eyjafirði. Eins og nafnið gefur til kynna er þar tekin til með- ferðar skoðunin um það, að Jesús hafi fæðst með yfirnáttúr- legurn hætti og eigi átt jarðnesk- an föður. Rekur sr. Gunnav ástæður þær er mæli móti því, að sé gamli skilningur sé réttur 'og reynir að sýna fram á hvert vei'ið hafi tilefni til þess, að skoðun kirkjunnar varð til og hvenær hún vaið til. Telur höf. eigi ástæðu til að efast um að Jósep hafi í raun og veru verið faðir Jesú. Gestir I bænum. Sr. Guðmund- ur Einarsson Þingvöllum, Böðvar Magnússon bóndi Laugavatni, Kolbeinn Guðmundsson bóndi Úlfljótsvatni, Stefán Diðriksson kaupfél.stjóri Minniborg og sr. Eiríkur Stefánsson Torfastöðum. Dánai'dægur. Nýlátinn er noi’ð- ur í Skagafii'ði Bjöm Bjama- son fyrrum bóndi í Brekku við Víðimýri. Dvaldi hann síðsutu árin hjá dóttur sinni Sigurlínu og manni hennar Jóni Jónssyni bónda á Hofi á Höfðaströnd. Björn sálugi bjó lengst æfi sinn- ar í Brekku. Hann var tvíkvænt- ur. Fyri'i kona hans, Margrét Andrésdóttir fi'á Stokkhólmi dó eftir skamma sambúð þeirra. Bjó hann svo lengi með ráðskonu, en giftist síðar Stefaníu Stefáns- dóttur, sem lifir mann sinn. Björn átti 9 böm. Eitt þeirra var Andrés í’ithöfundui’, sem lést fyr- ir nokkrum árum hér í bænum. Var hann þjóðkunnur gáfumaður og skáld, og hverjum manni vin- sælli. Sigurbjörg kona Jóns bónda í Deildartungu er eitt bama hans, tvær dætur hans eru -gift- ar hér í bænum, Margrét og Jór- unn. Eru öll böm Björns sál. prýðisvel gefin og nýtir menn. Björn í Brekku var ekki talinn stórbóndi eða efnamaður um dagana og lét ekki eftir sig' þunga féþyngju. En hann galt hvei’jum sitt og leitaði ekki á annara náðir, þó efnin væru lítil. Það eru ekki endurminningar um vei’kleg afrek, eða aurasafn, sem heldur minningu Bjöms sáluga á lofti. En hann var di’engskapar- maður í besta lagi, gáfaðui* og fjölfróður, og sískemtinn í tali. Fyrir mannkosti og gáfur má óhætt skipa honum í röð fremstu manna, sem uppi voru honum samtímis í Skagafii’ði og þó víð- ar sé leitað. — Látinn er í Vest- mannaeyjum Ólafur Jónsson úr Grindavík sonur Jóns Helgason- Tvær raddir um tilraunastarfsemi. Það bar til um síðustu helgi, að blöðin Tíminn og Vörður fluttu sína i'öddina hvort við sama lagið, svo að samhljómur varð úr. Sigurður búnaðarmálastjói’i skrifar í Tímanum um jarðyrkju- tilraunir, Guðmundur Jónsson bú- fræðiskandidat frá Torfalæk skrifar um tilraunastarfsemi í Vörð. Efni beggja gi’einanna er að miklu leyti hið sama, og báð- ir leika mest á sama strenginn, þann, að nauðsynlegt sé að koma nú þegar á stofn tilraunabúi helst á ólafsvöllum á Skeiðum, enda sé sú tilrauna3tarfsemi, sem verið hefir hér á landi hingað til, mjög lítils virði. Guðmundur fræðir menn um það, að jarðyrkjan hafi hleypt úr hlaði fyrir 4—5000 áx-um með til- tölulega hörðum en stuttum hlað- spretti, en svo hafi hún lötrað seinaganginn, alt fram á 19. öld til þess er framfarimar komu eins og „þruma úr heiðskíru lofti“ eftir margra alda kyrstöðu. Sigurður heldur sér að mestu við „land vort“, bendir á bestu engjar landsins og setur mönn- um það markmið, að knýja fram þvílíkan gróðurþroska, sem þar er, á öllum móum, holtum, mýr- um, melum og söndum landsins. Meiri kröfur virðist honum ekki ástæða til að gera fyrst um sinn. Hraunin og jöklana eigum við ekkert að hugsa um að rækta „fyrst um sinn“, enda er „land vorf“ víðlendara en t. d. Dan- mörk, en „vér erum fáir og smá- ir“. í þessu sambandi bendir hann réttilega á það sláandi dæmi, sem verða mætti til alvarlegrar íhug- unar öllum þeim, sem vilja fram- farir landbúnaðarins hér á landi, að Færeýingar njóta nú árlega 50 þús. króna styrks úr ríkis- sjóði til tilraunastarfsemi hjá sér. Báðum kemur þeim saman um það að jarðræktartilraunir séu nauðsynlegar fyrir landbúnaðinn, en Guðmundur gengur það lengra, an hann sér enga leið landbúnað- inum til viðreisnar, aðra en jarð- ræktartilraunir. Styrkveitingar, lán og verðlaun megna ekkerf og ekki virðist ástæða til að minn- ast á bættar samgöngur, betri markaðsskilyrði, kynbætur bú- fjárins og- betri meðferð þess eða aðra þvílíka smámuni í sambandi við viðreisn landbúnaðarins. Og til þess að engum verði á að taka mark á þeim tilraunum, sem hingað til hafa verið gerðar hér á landi, síst þeim, sem gerðar hafa verið hin síðari árin, halda þeir báðir fram að þær séu lítils eða einkis virði, og þetta vildi Guðmundur sanna á Búnaðar- þingi í vetur með því, að þær væru allar gerðar vitlaust upp af því að ekki hefði verið lagður á þær meðalskekkjureikningur, og ranglega reiknaðar meðaltölur í yfirlitsskýrslum, sem aldrei hafa verið til! Þessum og öðrum firrum og fjarstæðum Guðmund- ar svaraði eg á Búnaðarþingi og Varðar-greinin gefur ekki bein- línis tilefni til að gera þær að umtalsefni hér. Guðm. segir að „enda þótt íslenska tilraunastarf- semin hafi nú starfað í fjórðung aldar“ þá sé þó árangurinn af þessari starfsemi ekki meira en „bendingar“, og að innlenda reynslu hafi hún myndað sára- litla, og geti ekki myndað fyr en tilraunirnar verði reknar sem sjálfstæð starfsemi, á tilrauna stöð upp í sveit. Svipuð er niður- staða Sigurðar um gildi tilraun- anna, en hann finnur þá afsökurx að þær hafi verið gerðar í hjá- verkum, þar til nú síðustu árin, en einmitt þá þegar að hans dómi — sem reyndar er rangur — er hætt að hafa tilraunastarfið í hjáverkum, keyrir svo um þver- bak, að tilraunir þeirra ára eru allra auðvirðilegastar. Nú mætti þó ætlast til að árangurinn yrði meii'i ef óskift er unnið að ein- hverju starfi, en þegar það er haft í hjáverkum. En „veldur hver á heldur“, og er mönnum þá ætlandi að skilja, að hér muni það vera mannamunurinn, sem ræður, og leiti ekki dýpra að or- sökunum sem legið gætu að þessu dularfulla fyrirbrigði. — Á Búnaðarþinginu flutti Guð- mundur Jónsson fyrirlestur um jarðræktartilraunir víðsvegar um lönd og sýndi með tölum hversu vítæk sú starfsemi er og hversu : miklu fé er til hennar varið úr i ríkissjóði í nágrannalöndunum ; sumum. I framhaldi af þessu komst hann að þeirri niðurstððu, ; sem lýst er hér að framan um j okkar tilraunir, að þær væru | mjög lítils virði og að nauðsyn beri til að koma nú þegar upp einu tilraunabúi í sveit á Suður- í landi og stefna að því að koma þeim upp 4, — einu í hverjum landsfjórðungi. Eg er Guðmundi fyllilega sam- ; mála um það, að nauðsyn beri j til þess að koma upp tilrauna- búum í sveit, þar sem möguleikar séu til þess að reka tilrauna- j starfsemina undir sem náttúrleg- ; ustum skilyrðum, því í gróðrar- j stöðvunum er það ekki hægt j nema að litlu leyti, og síst í : gróðrarstöðinni hér, eins og land- inu og ræktunarástandinu þar ; er nú háttað. öðru máli var að í gegna þegar tilraunimar voru j hér í byrjun, og á Akureyri og á ; Eiðum er landrýmið meira en i hér. I þeim stöðvum er og enn : óræktað land þar sem gera má nýræktartilraunir og eg hygg, að j gróðrarstöðin á Eiðum hafi nú fengið land, sem framfærslutil- raunir má gera á. I öllum stöðv- i unum var byrjað með tilraunir á j óræktuðu landi og þær höfðu í þá, þótt í smáum stíl væri, vegna starfsfjárvöntunar, aðstöðu til ! nýræktartilrauna, og eg held því óhikað fram að árangurinn af þeirri og annari tilraunastarfsemi hér hafi orðið eftir öllum von- um og jafnvel framar en það. Eg get þess vegna alls ekki gengið inn á þá „taktik“, sem þeir hafa báðir í greinum sínum, G. J. og S. S., að reyna að láta menn- sjá í hyllingum gull og græna skóga, ef komið yrði upp tilraunabúi í sveit, en rífa jafn- framt niður þá tilraunastarfsemi, sem hér hefir verið rekin hingað til. Það er ekki nauðsynlegt að rífa niður hið gamla til þess að byggja upp nýtt — og betra, nema endilega þurfi að byggja á gamla grunninum, og það er þá gert af því að ekki er völ á öðr- um betri. Hér stendur að vísu svo á, að starfsemi tilraunabúanna, þegar þau koma, á að reisa á þeim gnindvelli, sem lagður er með tilraununum, sem þegar er búið ag gera, en þá sýnist mér hyggilegra, að sýnt sé fram á, að sá grundvöllur geti borið stærri byggingar — víðtækari tilrauna- starfsemi — en hingað til. Og þetta má vel gera. Það má telja æðimargt, sem tilraunirnar hafa gefið „bendingar" um, sem verða má j arðræktinni til framfara og þegar hefir markað ýms fram- faraspor í íslenskri jarðrækt, og Jxrátt fyrir allar átölur og kyr- stöðutón, verður þó ekki hjá því komist að viðurkenna, að íslensk jarðrækt hefir á þessari öld tek- ið meiri framförum en á nokkr-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.