Tíminn - 16.04.1927, Síða 3

Tíminn - 16.04.1927, Síða 3
TIMINH 60 Notad um allan heim. Áriö 1904 yar i fyrsta sinn þaklagt i Dan- mörku úr — Icopal. — Bosta og ódýrasta efni í þök. Tíu ára ábyrgð á þökunum. Þurfa ekkert viðhald þann tíma. Lótt -------- Þétt --------- Hlýtt Betra en bárujárn og málmar. Endist eins vel og skífuþök. Fœst alstadar á Islandi. Jens Villadsens Fabríker, Köbenhavn K. Biðjið um verðskrá vora og sýnishorn. T. W. Bucli (liitasmidja Buchs) Tietgensgade 64. Köbenhavn B. LITIR TIL HEIMALITUNAR: Demantssorti, hrafnssvart, kaatorsorti, Parísarsorti og allir lltir, fallegir og sterkir. TIL HEIMANOTKUNAR: Gerduft „Fermenta", eggjaduft, ávaxtadropar, soya, matarlitir, „Sun“-skósvertan, „ökonom“-skósvertan, sjáf- vinnandi þvottaefnið „Persil“, „Henko“-blœsódinn, „Dixin“-sápuduftið, „Ata“-akúriduftið, kryddvörur, blámi, ikilvinduolia o. fL Brúnspónn. LITAR V ÖRUR: Anilinlitir Catechu, blásteinn, brúnspónslitir. 6LJÁLAKK: „Unicum“ á gólf og húsgögn. þomar vel. Ágœt tegund. HOLLENSKT EXPORT KAFFI-SURROGAT: Besta tegund. hreint kaffibragð og ilmur. Fæst alstaðar á íslandi. kom út fyrir rúml. 3 árum. Síð- an hafa birst skáldsagan Gestir, Sögur úr sveitinni og nú síðast leikritið: Óskastundin. Rússneskur fiðluleikari, Mit- nizky að nafni er kominn hingað til bæjarins og hefur haldið hljómleika. Fjölgar mjög þeim er- lendu mönnum er gjörast til þess að sýna listir sínar hér á landi og þá einkum í Rvík, enda eru skemtanir þeirra venjulega vel sóttar. Vígsluneitun biskupsins. Fyrir- lestrar Lúðvígs Guðmundssonar stud. theol. um það efni, eru ný- komnir út. Svo sem mörgum mun kunnugt flutti Lúðvíg fyrirlestra þessa í tilefni af því að biskup neitaði að vígja ungan guðfræð- ing, Þorgeir Jónsson að nafni, sem ætlaði að gjörast prestur hjá ísl. söfnuði í Vesturheimi. Tvö meiðyrðamál hafa nýlega verið höfðuð fyrir norðan: Bæj- arfógetinn á Siglufirði hefir stefnt sr. Gunnari Benediktssyni 1 Saurbæ fyrir ummæli í skáld- sögunni „Við þjóðveginn", og telur hann þau meiðandi fyrir sig. — Margeir Jónsson á Ög- mundarstöðum hefir höfðað mál gegn Jónasi Þorbergssyni rib- stjóra Dags fyrir ummæli í dómi um Stuðlamál. Jónas Þorbergsson hefir gagnstefnt Margeiri. Reyn- ast þeir seinhepnir Skagfirðing- ar í svörum sínum til ritstjóra Dags. Búnaðarbálkur. Alifuglarækt við Reykjavík. 1 Danmörku hefir alifugla- ræktin komist á einna hæst stig. Ilefir eggjasala til Englands um alllangan aldur verið einhver drýgsta búbót danskra bænda. Þar hefir alt farið saman: vís- indaleg þekking og kynbætui* á bústofninum, ótrúlega mikil ná- kvæmni í meðferð alifuglanna frá hálfu bændanna, og fullkominn samvinnufélagsskapur, er náði yfir alt landið, sem trygði söluna. Hér er alifuglaræktin enn í bernsku, og víða lítill sómi sýnd- ur, ef frá eru taldar einstaka loflegar undantekningar. Lang- oftast leggja menn hér á landi litla rækt við alifuglaræktina, og fá líka Lítið í aðra hönd. AJlra- mest vantar þar á nákvæmni og umhyggju. MeðaJ hinna fáu en merJdlegu undantekninga, er alifuglabú Ó- lafs Jónssonar gjaldkera á Eiði á Seltj arnarnesi. Hann vinnur alla virka daga á skrifstofu inni í bænum, en kemst þó yfir að hirða að mestu sjálfur kvölds og morgna, eitt hið prýðilegasta ali- fuglabú, sem til er hér á Jandi. Ilann hefir ofurlítinn túnblett við þjóðveginn. í kjallaranum er sérstakt herbergi, þar sem 3 út- ungunarvélar klekja út mörg hundruð, ef ekki þúsundum unga á hverju vori. Sérstakar vélar hjálpa til að fóstra ungana. Á túnblettinum við húsið er hús fyrir alifuglana, sérstök íbúð fyrir hænsni og önnur fyrir end- ur, og er hvor íbúðin fyrir sig haglega sniðin eftir séreðli hvorr- ar tegundar. Eru þessi híbýli í einu hæfilega stór, björt, hlý og loftgóð, heppilegar stíur fyrir matinn, hentugur brunnur að drekka úr og vel lagaðir kassar til að verpa í. Ólafur hefir feng- ið sér hin bestu hænsna- og andakyn frá útlöndum, og bera bæði alifuglar hans og egg þeirra af um stærð og útlit. Fá margir í Rvík og nágrenninu hjá honum kynbótaunga, og breiðist hið góða kyn þannig út. En það sem erfiðara er að fá heldur en kyn- góð egg, er sú mikla nákvæmni og umönnun, sem ólafur sýnir. Án slíkra eiginleika í fari þeirra sem'eiga alifuglana, verður þessi grein búskaparins aldrei tekju- grein fyrir Islendinga. ----o-— SamvinnumáL NI. ----- Bækistöð félagsins varð bráð- lega nokkurskonar sölutorg fé- lagsmanna. Þangað lágu allra götur. Þeim varð því fljótt ljós nauðsyn þess að sameina sölu og aðdrætti um einn stað. Hófst svo verslun þess fyrir félagsmenn, sem venjuleg kaupfélagsstarf- semi. Hefir hún farið sívaxandi og orðið allumsvifamikil síðari árin. Aðaláhersluna leggur félag- ið á kjamfóðurverslunina sem heita má ný grein hér á landi. Því að þótt lengi hafi tíðkast að gefa kúm fóðurbæti með heyi, þá hefir hin eiginlega mjólkur- fóðrun ekki þekst hér fyr en á síðustu árum. En hún byggist á mjög nákvæmri blöndun fóðurs- ins eftir þörfuni mjólkurkúnna. Viðfangsefnið hér verður þá að sjálfsögðu það að útbúa eingæfa fóðurblöndu, sem eigi við íslenska heyið, — bæti kúnum upp skort þess á ýmsum nauðsynlegum næringaref num. Mj ólkurf élagið hefir gjört fyrstu alvarlegu til- raunina í þá átt og tekist allvel þó að skamt sé komið enn, því að þarna er mikið viðfangsefni og flókið. Mun það halda áfram tilraunum sínum í þessu efni eft- ir föngum. Síðastliðið ár kom það sér upp kommillu allmikilli, sem út í skuld, nú verðum við að greiða skuldina. Við verðum að nýrækta fisk í þeim vötnum, þar sem hann er útdauður og auka hann í hinum uns lífsorka þeirra er fullnotuð, og gefa þeim síðan jafngildi þess er við tökum. Þá rænum við ekki vötnin en skiftum við þau. Þá leikum við ekki á náttúruna og það er æ hollast. — Bændur eyða árlega miklu fé til kaupa á sjófangi og flutn- ings á því, geymist það og illa á sumrum og er rýrara til fæðu, en silungur og lax, er því auðsær sá arður og hollusta sem bænd- um mætti verða að aukinni veiði í vötnum og ám. 1 vötnum vorum eigum við þannig mikla fjársjóði ónotaða. Þessa fjársjóði má gera arðbæra með litlum tilkostnaði ef rétt er farið að. VI. Hvemig má nú hagnýta lífs- orku vatnanna? Það má gera með því, að rækta í vötnunum veiði- fiska, þannig, að þeir fullnoti lífsorkuna, en ofbjóði henni ekki. Fiskinn rækta menn með klaki og skynsamlegum veiðiaðferðum. Lax og silungur hrygna hér á landi á haustin og snemma vetr- ar; klekjast hrognin út yfir vet- urinn, en er vorgróðinn vaknar í vötnum og ám verða seyðin sjálfbjarga. Fiskurinn hrygnir á grynning- um, oftast með löndum fram, og er því auðveiddur um hrygn- ingartímann, enda er það ekki sparað. Hitt er algengt, að sil- ungur er helst veiddur að haust- inu. Þessi haustveiði er mjög hættuleg fyrir fiskastofninn, einkum ef hrygningarsvæðin eru lítil, en svo er víða. I náttúrunni frjóvgast aðeins nokkur hluti hrognanna, þó að fiskurinn fái frið til að hrygna þeim. Á vetnrm og vorum eru hrogn og seyði í mikilli hættu fyrir vatnagangi, óvinum og ísa- brotum, ferst fjöldi þeirra af þessum ástæðum. Loks er hætt við, að þau deyi úr hungri, þegar seint vorar og vötn eru lengi á ís og gróðuríaus. Af þessu leiðir, að ársafkoma fiskastóðsins er næsta misjöfn, kemur það og skýrt fram í veiðinni, sem breytist mjög frá ári til árs. Þegar klakið er, frjóvgast alt að 100% af þeim hrognum, sem fengist hafa, ef annars er rétt farið að. Ennfremur eru hrogn og seyði varðveitt um þann tímá, sem þeim er hættulegastur. Hafa menn því mjög á valdi sínu árs- viðkomuna og þar með fiski- mergð vatnanna. Gagnsemi klaks- ins er einkum fólgin í því, að veiðin verður jafnari frá ári til árs, auk þess sem fjölga má fiskinum meðan lífsorka vatn- anna leyfir, og þannig auka veið- ina. 1 ýmsum vötnum á landi hér er allmikil lífsorka, en engin veiði. Stafar þetta sumstaðar af því, að fiskurinn hefir aldrei náð að „nema“ vatnið, en síðar mun fiskastofn vatnsins hafa drepist út, annaðhvort af óáran, sóttum og heimskulegri veiði, eða af eld- gosum. Því að silungsseyði og smáverur vatna drepast oft unn- vörpum fyrir öskufalli. Þar sem svo stendur á, má ný- rækta fisk í vötnunum. Árang- urinn fer eftir lífsorkunni, en hún verður ekki metin nema með rannsókn. Laxinn gengur sjaldan nema einu sinni til hrygningar, að henni lokinni fer hann aftur til sjávar og týnist þar. Af þessu leiðir, að skaðlaust er þó að veiddur sé allur sá lax, sem í árnar gengur, ef þess er gætt, að klekja svo miklu, sem lífsorka ánna megnar að framfleyta. Allmörg vötn eru þannig gerð, að erfitt er að veiða fiskinn nema á hrygningarsvæðunum, þessi veiði er varhugaverð, en ekki þarf hún að saka ef þess er gætt að klekja nógu í stað þess, sem veitt er. Yfirleitt má stunda veiði á fullorðnum fiski af kappi, ef séð er fyrir viðkomunni með klaki og ungviði ekki veitt. í útlöndum hafa menn klakið laxfiskum um langt skeið, og eru allir, sem vit hafa á, einhuga um það, að mildl nytsemi sé að klak- inu, þar sem það á við. Hér á landi hefir lítil eða eng- in reynsla fengist á klaki, nema við Mývatn, en þar hafa kostir þess komið skýrt í ljós; veiðin hefir aukist að miklum mun og orðið jafnari, en áður var. Hér vorar missnemma og ekki skort- ir vatnavexti né ísaruðninga, má því nærri geta, að mikið farist af hrognum og seyðum, og að líkindum oft og einatt allur þorri af ársviðkomunni. Alt bendir þetta á, að mikið gagn og veiðiauki megi verða af klaki víða hér. VII. Þó að klak, svo sem nú hefir verið sagt, geti orðið til veiði- bóta, má enginn ætla, að það sé töframeðal, sem geti leitt fisk í hvern poll og læk. Það er ekkert undraráð og á ekki alstaðar við. Sumir menn halda, að með klaki megi auka veiði takmarka- laust, en þetta er fásinna, því að átan afskamtar fiskimagnið, en svo nefni eg samanlagðan þunga þeirra fiska, sem í hverju vatni lifa; átuna afskamtar áftur lífs- orkan. Ef fiskastóði er fjölgað meira en lífsorkan leyfir, rýrnar fiskurinn að stærð og gæðum. í sumum vötnum er lífsorkan svo lítil, að ekki borgar sig að nýta hana. í öðrum eru skilyrðin þannig, að haganlegast er að friða fiskinn á hrygningarstöðv unum, en klak borgar sig ekki. í enn öðrum eru náttúrleg skil- yrði, fyrir hrygningu og upp- vexti fiskjarins, svo góð, að við- malar allan rúg og maís sem fé- lagið verslar með. Auk kjamfóð- urs og annarar komvöru hefir félagið einkum lagt sig eftir á- burðarversluninni, enda nota meðlimir þess mikinn hluta af þeim áburði sem til landsins flyst. — En áburðarkaupin eiga hvað drýgstan þátt í því hve jarðyrkjunni hefir fleygt fram í nágrenni Reykjavíkur á síðustu árum. Félagið hefir stundum átt örð- uga daga. Það keypti mest af húsum sínum og vélum þegar að dýrtíðaraldan reis hæst. Hún hefir því fallið á það með öllum sínum þunga. En félagsmenn hafa lagt hart að sér. Á síðustu 5 árum hafa þeir borgað eignir sínar niður um rúmar hundrað þúsundir og á sama tíma safnað sér álíka upphæð í sjóðum. Það á marga áhugasama og ötuia fé- laga og nýtur ágætra starfs- krafta. Þegar að alt þetta er at- hugað, virðist mega vona að þau olnbogaskot sem félagið verður fyrir frá óviðkomandi mönnum, verði því jafn hættulaus, sem þau eru skiljanleg. ---o--- Kvedjuorö. Fáir minnast þess hverra gæða þeir hafi notið fyrri en þeir hafa mist þau, mælti Steingrímsfirð- ingur nokkur þegar Einar skip- stjóri Stefánsson stýrði Goða- fossi hér út frá Hólmavíkurhöfn 30. janúar síðastliðinn. En þá var það kunnugt, að hann átti að hætta siglingum hér um slóðir. Rétt er það nú athugað, að á öllum þeim árum, sem Einar skipstjóri hefir siglt hér um Húna- og Strandaflóa á Sterling og Goðafoss, hefði oft verið á- stæða til þess, að íbúar nærliggj- andi héraða mæltu ánægju og þakkarorð í tilefni af dugnaði, fyrirhyggju og sérstakri gæfu, sem ferðum skipstjórans hefir fylgt, hér um skerjóttar og hættulegar skipaleiðir. Það er sérstaklega eftirtektarvert, að öll þessi ár mun Einar skipstjóri aldrei hafa tafist um heilan dag hér á Strandaílóa, vegna þoku, storms eða hríðarbyls. Stundum hefir sýnst svo, að höfuðskepn- urnar hafi stilt sig á meðan Ein- koman hefir ofboðið lífsorkunni, er þá fiskimergðin mikil, en fisk- urinn smár og rýr. Þar sem svo hagar til er klak til skaða. Verð- ur þar að útrýma fiskinum og flytja siðan inn annan kynbetri stofn. Loks geta þeir annmark- ar verið á veiði stofnfiskjar eða klakvatni, að ekki sé hægt að koma klaki á, verður þá að vernda fiskistofninn með skyn- samlegri veiðiaðferð og öðrum ráðum. En þrátt fyrir alt þetta mun þó mega auka veiðina í öllum þorra veiðivatna, með klaki og skynsamlegri veiðiaðferð. Auk þess mun og víða mega rækta fisk í vötnum, sem veiðilaus eru og loks má bæta fiskakynið með því að klekja hrognum bráð- þroska fiska. En rannsóknir ein- ar geta leitt í ljós hvað best hentar á hverjum stað. VIII. Þegar reisa á ldakstöð ber fyrst að líta á veiði stofnfiskjar. Klakstöðin verður að vera þar sem á hverju hausti er völ á nógum stofnfiski og helst kyn- góðum (bráðþroska), því að veiði stofnfiskjar er miklu meiri ann- mörkum bundin en menn alment álíta. Þá er næst að finna góða klaklind, kaldavermsl með nógu, óþrotlegu, súrefnisríku, hreinu og köldu vatni. Þá er að byggja klakhúsið og gera það svo tryggi- lega, að klakvatnið tapist ekki,

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.