Tíminn - 06.08.1927, Blaðsíða 2
182
TlMINN
Sjó- og bruna-
vátryggíngar.
Simar:
Sjótrygging .... 542
Brunatrygging . . 254
Framkvæmdarstjóri 309
Vátrygéið
hjá
íslensku
félagi.
Fréttlr.
Handdt Jóhanns Sigiujóns-
sonai-, óprentuð, er nú verið að
yfirfara og safna í heild, segir
frétt frá Iiöfn. Er í ráði að gefa
út í einu öil rit -hans. — Nýkom-
ið hefti af „Vöku“ byrjar á órím-
uðu kvæði eftir Jóhann, sem ekki
hefir verið birt fyr.
Dr. phjl. Jón Helgason, sem
kent hefir nú undanfarið við há-
skólann í Osló, er orðinn for-
stöðumaður við safn Áma Magn-
ússonar í Kaupmannahöfn.
Má með sanni segja, að þar sé
réttur maður á réttum stað.
Magnús Guðbjörnsson hlaupar-
inn mikli, hefir nýlega fengið
1000 kr. verðlaun úr hetjusjóðí
Carnegies fyrir að bjarga tveim-
ur piltum frá druknun.
Ásgeir Ásgeirsson alþm. hefir
verið skipaður fræðslumálastjóri.
Hraðferðir Sameinaða félagsins.
Tvo sólarhringa lá „Dronning
Alexandrine" á Siglufirði núna á
leiðinni að norðan. Stóð þó á á-
ætlun, að skipið skyldi aðeins
koma þangað til þess að taka
póst og farþega, en í stað þess
er það fermt þar af síld. Eins
og nærri má geta voru farþegar
gramir yfir þessai'i óþægilegu
töf.
Veðurblíða er nú mikil um alt
land, en í sumum sveitum sunn-
anlands hefir skort þurk. Annars
hefir heyskapur víðast gengið
ágætlega.
Síldveiði er enn mikil. ,
Áheit á Strandarkirkju. Á einni
viku hafa rúmar 300 kr. verið af-
hentar tveim dagblaðanna hér í
bænum til Strandarkirkju, og eru
það alt áheit. Er þetta að vísu
óvenjumikið á svo skömmum
tíma, en þó kemur varla sá dag-
ur, að „Vísi“ sé ekki afhent á-
heitafé til Strandarkirkju. Helgi
Strandarkirkju fer sífelt vax-
andi, og saga hennar er að verða
ærið merkileg. Kirkjan hefir um
ói-atíð þrumað ein og niðurnídd
á örfoka sandi frammi við sjó,
en stórbýli, sem þar var fyr meir,
Strönd í Selvogi, hefir blásið
upp gersamlega. En nú kvað
landið vera að gróa á ný, en
kirkjan auðgast ár frá ári.
„Með „Dronning Alexandrine"
höfum við fengið —“ o. s. frv.
auglýsa nokkrar danskar og hálf-
danskar verslanir hér í bæj ar
blöðunum. Þessi feitletraða fyrir-
sögn á að ganga í augun. Vam-
ingurinn eitthvað fínni, af því
að hann kemur með þessari veg-
legu fleytu. Þó mætti svo fara
um síðir, að það væri engin gyll-
ing á varningi í augum Islend-
inga, þó að hann sé hingað kom-
inn á þeim farkosti, sem sérstak-
lega er settur til höfuðs okkar
irrmi nnTTTTTrm nnmnmimiiiiiiiirmrm m mnnrmn mnnn
ÁSQABÐUB
Smjörlíkisgerö. — Reykjavík.
T r úlof unarhr ingar
vandaðir og fallegir
Hin frægu herra og dömu
Corteberts-úr
allar tegundir fyriiliggjandi.
Fást aðeins hjá
Verð frá kr. 24,00
Jóní Sígmundssyni
gullsmið, Laugaveg 8
eigin skipum og þar með einum
helsta hymingarsteini alls okkar
sjálfstæðis. Er nú af sú tíð, er
Danir fluttu sjálfa okkur hér með
ströndum fram í vörubúlka, eins
og skepnur. Einar Benediktsson
hefir lýst því tímabili eftirminni-
lega í einu kvæða sinna. Nú
senda bræður vorir hvert skipið
öðru veglegra út hingað, eins og
þeir gætu aldrei gert nógu vel til
okkar í þessu. En dönsk blöð
segja, að „Dronning Alexandrine“
hafi verið „fagnað af hrifningu“
þegar skipið kom hér sína fyrstu
ferð. Þetta er rétt á sinn hátt,
því að mörgum íslendingi mun
þá hafa hitnað nokkuð innan
rifja. En hitt fer sem auðna ræð-
ur, hvort sú hrifning verður
Dönum að tekjulind. En þó er
það ætlun vor, að þeir menn
skilji ekki rétt skaplyndi Islend- ;
inga, sem halda það, að vara sín j
smakkist okkur betur, ef hún j
hefir flotið hingað á einhverjum ‘
fínni trjám en okkar eigin skip- I
um. — Annars er það nú opin- ;
berlega sagt, og er því ekki mót- i
mælt, að „bróðerni“ „Sameinaða“ i
við Eimskipafélagið gerist nú
heldur flátt, og er þar tvennu að
treysta af Dana hálfu, meiri fjár-
afla þeirra megin og svo voninni
um það> að ennþá sé hægt að fá
Islendinga til að gerast sínir eigin
böðlar.
Trúlofuð eru Pétur Hafstein
stud. juris., sonur Marinó Haf-
stein, og ungfrú Elinborg Paturs-
son, Jóannesdóttir kongsbónda í
Kirkjubæ í Færeyjum. Þetta er
önnur dóttir Jóannesar, sem Is-
lendingur fastnar sér. Bergþóra
dóttir hans er húsfreyja Þor-
steins Scheving Thorsteinsson lyf -
sala, sem kunnugt er. — Færey-
ingum ætlar að haldast illa á
dætrum síns göfgasta manns.
Jóh. Larsen. Hinn nafnfrægi
danski málari Jóhannes Larsen
dvelur hér á landi í sumar. Kom
hann hingað fyrir mánaðartíma
og hefir síðan ferðast víða um
austanfjalls, einkanlega um Rang-
árvallasýslu. Aðalerindi hans
hingað er að teikna bókmyndir af
sögustöðvum íslenskum, sem nota
á í hina miklu dönsku útgáfu af
íslendingasögunum, sem bóka-
verslun Gyldendals í Kaupmanna-
höfn gefur út.
Jóhannes Larsen er einn af
hinum þektari málurum á Norð-
urlöndum og hefir einkanlega
orðið víðfrægur fyrir málverk úr
fuglalífi Norðurlanda, enda er
Best. — Odýrast.
Iimlent.
SKILVINDAN er
smíðuð af stærstu
og elstu skilvindu-
verksmiðju í heimi
og befir náð fá-
dæma útbreiðslu. Eru yfir
3.500.000 Alfa-Laval skilvindur í
notkun víðsvegar um heim.
Látið ekki dragast að kaupa
ALFA-LAVAL skilvindu. Fást
hjá Sambandskaupfélögunum. I
heildsölu hjá
Sambandi ísl. Samvinnufélaga.
hann fuglafræðingur ágætur. —
Nú er hánn nýfarinn upp í
Borgarfjörð og dvelur þar um
tíma, en heldur síðan áfram
vestur og norður um land. Býst
hann við að koma til baka til
Pteykjavíkur síðast í september.
Hafnarfjarðarhlaup, milli Hafn-
arfjarðar og Reykjavíkur, var
háð hér fyrra sunnudag, 24. júlí,
vann Magnús Guðbjörnsson, á
48 mín. 151,4 sek. Keppendur
voru 7, og komu allir að marki.
Sá síðasti var um 55 mín. Vega-
lengdin er um 12 km.
Dánardægur. Guðbjörn Guð-
brandsson bókbindari er nýlátinn
hér í bænum, og varð dauði hans
með fátíðum hætti. Hann fékk
aðsvif eða yfirlið í sæti sínu og
steyptist áfram, en við þessa
byltu, sem ekki var mikil, skadd-
aðist svo mænan í hálsliðnum, að
hann andaðist skömmu síðar. —
Kjöttunnur,
L. Jacobsen,
Köbenhavn Símn.: Cooperage V a 1 b y
alt til beykisiðnar, smjörkvartel o. s. frv. frá stærstu beykissmiðjum
í Danmörku. Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra
kaupmanna.
P.W.Jacobsen&Sön
Timburverslun.
Símnefni: Granfuru. Carl Lundsgade
Stofnað 1824. Köbenhavn
Afgreiðum frá Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar pantanir og
heila skipafarmu frá Svíþjóð. — Sís og umboðssalar annaBt pantanir.
Eik og efni i þilfar til skipa.
SnflRA
SniORLÍKÍ
ZECa.TJ.pfélagsst j ór ar I
Munið eftir því að haldbest og smjöri Hkast er
„Smára“ - smjörlíkí
Sendið því pantanir yðar til:
H.í. Smjörlíkisgerðin, Reykjavík.
AVNEM0LLEN
KAUPMANNAH0FN
inælir með sínu alviðurkenda rúgmj ö li og hveiti.
Meiri vörugæði ófáanleg.
S. X.S. sZkriftlA? ©ixAg-öxxg-ci -við olcláccur.
Seljum og rnörgum öðrum íslenskum veralunum.
. Buch
(IittasmiQja Buchs)
Tietgeaagade 64. Köbenhavn B.
LITIR TIL HEIMALITUNAR:
Demantssorti, hrafnssvart, kastorsorti, Parísarsorti og
allir litir, fallegir og sterkir.
TIL HEIMANOTKUNAR:
Gerduft „Fermenta“, eggjaduft, ávaxtadropar, soya,
matarlitir, „Sun“-skósvertan, „ökonom“-skósvertan,
sjálfvinnandi þvottaefnið „Persil“, „Henko“-blæsódinn,
„Dixin“-sápuduftið, „Ata“-skúriduftið, kryddvörur, blámi,
skilvinduolía o. fl.
Brúnspónn.
LITARVÖRUR:
Anilinlitir Catechu, blásteinn, brúnspónslitir.
GLJÁLAKK:
„Unicum“ á gólf og húsgögn. Þómar vel. Ágæt tegund.
HOLLENSKT EXPORT KAFFI-SURROGAT:
Besta tegund, hreint kaffibragð og ilmur.
Fœst alstadar á íslandi.
Guðbjöm vai’ úr Saurbæ í Dala-
sýslu, en fósturson Torfa í ólafs-
dal. Hann nam bókband þar
heima, en kom ungur hingað til
Reykjavíkur og gerðist verkstjóri
á bókbandsstofu Bjöms Jónsson-
ar. Bókbandsiðn hefir hann
stundað hér imeir en 30 ár, og
var hann frábær starfsmaður og
hverjum manni betur verki far-
inn í sinni iðn. Guðbjörn var
kvæntur Jensínu Jensdóttur frá
Hóli í Hvammssveit, systuv
Bjarna í Ásgarði og Friðjóns
læknis, og eiga þau hin mannvæn-
legustu börn. Þeirra son er Jens
bókbindari, umsjónarm. Iþrótta-
vallarins og einn af forgöngu-
mönnum glímufélagsins Ármanns
á seinni árum.
Áheit á Strandarkirkju afhent
Tímanum kr. 200.00 frá H. J.
Ritstjóri Tryggvi Þórhallsson.
Prentsmiðjan Acta