Tíminn - 26.11.1927, Qupperneq 3

Tíminn - 26.11.1927, Qupperneq 3
TlMINN 195 ei' nafn á heimsfrægri kaffibætistegund, sem framleidd hefir verið í 69 — sextíu og níu — ár af þektustu kaffibætisverksmiðju Holl- lands, en svo sem kunnugt er, standa Hollendingar öðrum þjóðum langt framar um tilbúning á þessari vörutegund. Þessi kaffibætir hefir níu sinnum hlotið gull- og silfur-medalíur vegna framúrskarandi gæða sinna, enda er hann búinn til úr allra bestu efnum, völdum og rannsökuðum af þaulvönum mönnum. Þeir, sem reynt hafa, telja V E R O - kaffibæfcinn þann langbesta kaffibæti, sem fáanlegur er hér á landi. Kaupmenn og kaupfélög! Spyrjist fyrir um verðið og látið reynsluna sannfæra ykkur um ágæti þessarar vöru. Heildsölubirgðir (í vi-kössumog 1/4-kössum)hjá Hsl 1XdóTi !Eínkssyui Hafnarstræti 22, Reykjavík. Sími 175. týrablær. Skýrir hún frá eyði- merkurlífi Bedúa, ástum og mann- göfgi, ágimd og hemaði, hjátrú og göldmm. Söguhetjan, Abdal- lah, er frábær að atgerfi, val- mensku og einlægu trúartrausti. Er hann ágæt fyrirmynd ungum mönnum. Og allir, sem lesa sög- una með athygli, hvort sem þeir em ungir eða gamlir, hljóta að skemta sér við lesturinn og sækja þangað uppörvun og nokkum stuðning sínum betri manni. Sagan er vel skrifuð og vitur- lega. Og íslenskan á henni gull- falleg, eins og á öðm því, sem Sigurður Kristófer lét frá sér fara. Þá em og allmargar penna- teikningai- í bókinni, eftir Bjöm listamann Bjömsson, og gera þær hana enn eigulegri. Það skiftir og ekki minstu máli, að allur ágóði, sem verður að útgáfu bólcarinnar, rennur í Stúdentagarðssjóðinn. Ætti það að vera góðum mönnum hvöt til þess að kaupa þessa bók heldur en aðrar lakari eða jafngóðar. Bókin kostar nú aðeins kr. 6.50, í vönduðu, gyltu bandi, og er ágætlega fallin til tækifærisgjafa. Jakob Kristinsson. ----o---- Fréttlr. Verðlann fyrir húsgagnasmlðl. Tím- inn vill vekja eftirtekt almennings á því, að verðlaunin fyrir best gerða uppdrætti að íslenskum húsgögnum, sem auglýst voru í blaðinu í vor, hafa verið hækkuð um 200 kr. — Samband norðlenskra kvenna lagði í fyrstu fram 200 kr. í þessu augna- miði, en nú hefir ársritið „Hlín“ bætt 100 kr. við og Heimilisiðnaðarfélag íslands öðrum 100 kr., svo verðlaun- in eru nú 400 kr. — þeir, sem keppa vilja um verðlaun þessi, þurfa að senda uppdrættina fyrir 1. jan. 1928 til formanns heimilisiðnaðarnefndar- innar, Halldóru Bjamadóttur, Há- teigi, Reykjavík. Álieit. Ónefnd kona í Breiðdal hef- ir sent Tímanum 5 kr. áheit til Strandarkirkju. Ónefndur maður á Langanesströndum 5 kr. Séra Magnús Helgason skólastjóri biður þess getið, að hann hafi ekki verið heill heilsu nú undanfarið. Hafi því dregist um of að viðurkenna og þakka þann sóma, er nemendur sínir eldri og yngri hafi til sín gert á sjötugsafmælinu. Biður hann Tímann að flytja þeim hugheilar þakkir og kveðjur. Vígðar kirkjuklnkkur. Eins og kunnugt er, láta kaþólskir menn reisa mikla kirkju í Landakoti. Verð- ur það veglegasta guðshús, sem bygt hefir verið- á íslandi og að likind- um fegursta hús landsins. Yfirsmið- ur kirkjunnar, Jens Eyjólfsson, hefir gefið kirkjunni þrjár klulckur. Kost- uðu þær 20 þús. kr. Vom klukk- urnar nýlega vígðar með mikilli við- höfn. Munu þær bera mjög langt af öllum kirkjuklukkum landsins. Uppskipun í Rvík. Vinnubrögðum við uppskipun í Reykjavík hefir alt að þessu verið stórlega áfátt. Hafa menn verið látnir stimpast fyrir litlum handkerrum. Nú hefir Eim- skipafélag íslands bætt úr þessu fyr- ir sitt leyti. Hefir félagið nýfengið dráttarvagna, er ganga fyrir vélafli, til uppskipunarvinnu. Efnagerð Reykjavíkur er nýbyrjuð að framleiða súkkulaði. Em það tvær tegundir, Fjallkonusúkkulaði og Lillu-súkkulaði. Er hið fyrnefnda ætlað til suðu aðeins en hið síðar- nefnda bæði til suðu og til neytslu án suðu. Hefir Efnagerðin fengið vél- ar af allra nýjustu gerð og þýskan kunnáttumann í þessari grein, sem hefir unnið lengi við stórar verk- smiðjur í þýskalandi. Skiftir miklu að i byrjun hverrar greinar iðnaðar hér á landi sé vandað af fylstu kost- gæfni til framleiðslunnar. Virðist Efnagerðin" hafa vel gætt þessa meginskilyrðis. Er og skemst af því að segja, að þessi vara hennar mun standa fyllilega á sporði bestu teg- undum samskonar vöru erlendrar. Ferðamannafélag. í ýmsum löndum tíðkast félög, sem hafa það verksvið að auka þekkingu manna á landi sínu og greiða götu erlendra ferða- manna, sem vilja kynnast landi og Fiano, Harmonium, Fiðlur, Cello, Guitarar, Mandolin, Munnhörpur, Harmonikur, Flaut- ur, Trommur, Grammofónar, Grammofónplötur í miklu úrvali, m. a. allar íslenskar plötur og nýjustu danslög. Nótur fyrir píanó, harmoníum, söng, fiðlu, cello, guitar. — Vörur sendar gegn eftirkröfu út um alt land. KATRÍN VIDAR Hljóðfæraverslun Lækjargötu 2. Sími 1815. þjóð. Nokkrir menn í Reykjavík liafa boðað til almenns fundar í Kaup- þingssalnum kl. 2 á morgun, til þess að ræða þar um stofnun sams- konar félags hér á landi. Ritsafn eftir Gest Pálsson er ný- komið út, stór og vönduð bók, 544 bls., með ritgerð um höf. eftir Einar H. Kvaran, kostar áskrifendur kr. 10.00, í bandi kr. 12,50. Áskriftalistar liggja hjá bóksölum. Merk bók. Hin fræga barnabók Selmu Lagerlöf: „Nils Holgerssons underbara resa gennom Sverige", er að koma út í íslenskri þýðingu. Að- alsteinn skólastjóri Sigmundsson hef- ir þýtt bókina með leyfi höfundar, og nefnist þýðingin: „Njáls saga þumal- ings á ferð um Svíþjóð". Kemur I. bindi bókarinnar nú fyrir jólin, og verður prýtt myndum eftir Tryggva Magnússon. — Útgefandi biður þá, er hafa undir höndum áslcriftalista að bók þessari, að senda þá sem fyrst, til hans, eða til prentsmiðj- unnar „Acta“ í Reykjavik. Flateyjarbók. Ritstjóri Tímans (sími 2219) tekur á móti áskriftum og gef- ur upplýsingar um útgáfuna. Verð bókarinnar mun verða alt að hálfu lægra en nú gerist verð á bókum. Áskriftarverð mun lægra en bók- hlöðuverð. Vigfús Guðmundsson gestgjafi i Borgarnesi er staddur hér í bænum. Halldór Júlíusson sýslumaður hefir nú lokið rannsókn sinni í atkvæða- fölsunarmálinu í Hnífsdal. Hann kom að vestan með Óðni í gærkvöld. -----O----- Frá fltlðndm Þráðlaust talsamband hefir undanfarið tekið stórstígum fram- förum og er talið komið af til- raunaskeiði. Hefir nýlega verið meðal annars opnað slíkt talsam- band milli Berlínar og Buenos Ayres í Suður-Ameríku. Hefir það reynst vel og heyrist jafnskýrt eins og þegar talað er innanbæj- ar. Senditækið í Berlín hefir 20 kv. orku í loftnetið og öldulengd- irnar, sem sent er á 14.9 og 17.38 metrar. Loftnetinu er þannig fyrir komið að beina má skeyt- um í ákveðna átt. Hafa verið send myndskeyti þessa leið og tekist vel. — Lögreglan í Þýskalandi hefir tekið fasta nokkra Rússa og Þjóð- verja, sem hafa orðið uppvísir að því, að hafa falsað geisilegar upp- hæðir af rússneskum bankaseðl- um. Aðalmaður falsaranna er Gregoríumaður. Telur hann, að fölsunin hafi verið framin í þeim tilgangi, að hnekkja gjaldeyri Rússa og losa Gregoríu undan áhrifum þeirra. — Bretar hafa ákveðið að byggja aðeins eitt af þremur beitiskipum, sem smíða átti á þessu ári. Var þess vænst, að Bandríkjamenn myndu fylgja þessu fordæmi, en fregnir herma að þeir muni í engu draga úr herbúnaði fyrir þessar sakir. * ................... * B. P. KALMAN hæstaréttarmálaflutningsmaður. JÓN ÓLAFSSON cand. juris. Málflutningur, skuldainnheimta. Hafnarstræti 15. Rvík. »■- — Deilan milli forystumanna Rússa virðist stöðugt harðna og þykir ósýnt til hvers muni draga í þeim málum. Um 350 fylgis- menn Trotskys voru reknir úr Kommunistaflokknum. Mælt er að ráðstjómin óttist að fylgi Trot- skys muni reynast meira en hún myndi kjósa og að hann kunni jafnvel að fá herinn meira eða minna á sitt band. Bárust hing- að fregnir um að ráðstjómin hefði jafnvel óttast uppreist og haft flugvélar til taks, ef hún yrði neydd til að flýja skyndilega. .— Stjómarskifti hafa nýlega orðið 1 Belgíu. Heitir hinn nýi stjórnarforseti Jasper. Hefir hann myndað samsteypustjóm þar sem kaþólsku flokkamir og frjáls- lyndu flokkarnir hafa tekið hönd- um saman. — Mælt er að Rússar muni flytja róttækar tillögur á afvopn- unarfundi þjóðabandalagsins. — Sömuleiðis vinna þeir að endur- nýjun stjórnmálasambands við Breta. sjóður og sparisjóður Eyrar- bakka bera aðallega skaðann. Þeir menn, sem hrintu þessu fyr- irtæki af stað, gerðu það í al- gerðri ráðleysu og hafa með frumhlaupi sínu sannað áþreifan- lega hve ófærir þeir voru að hafa forgöngu í almennum málum. Um sama lejrti og íhaldsfor- kólfamir á Eyrarbakka reistu spítalann og settu sparisjóðinn í strand, efndu þeir til rafstöðvar á Eyrarbakka og létu mótor knýja vélarnar. Nú er rafveita þessi margfaldlega gjaldþrota, og skuldir, sem nema mörgum tug- um þúsunda, leggjast á bæjar- búa, sem ekki rísa undir gjöld- unum. Má búast við, að fólk leiti burtu úr bæjarfélagi, sem svo grálega hefir verið leikið á margan hátt.Hafa bæjarbúar,sem vonlegt er, leitað á náðir lands- ins og bankanna, en rekið sig á að „sérfræðingar" íhaldsins hafa skilið Eyrarbakka eftir í vanda, sem ekki verður leystur á svip- stundu. Nú víkur sögunni að Flóaáveit- unni og afleiðingum heimar. Hingað til hefir verkinu verið haldið uppi með lánsfé, úr ríkis- sjóði og frá bönkunum. I lengstu lög munu menn vona að gras- vöxturinn aukist til muna, en ef þungi áveitunnar á ekki að verða óbærilegur, þarf fólki og býlum að fjölga stórlega á áveitusvæð- inu, en ekkert hefir enn verið gert til að greiða þar fyrir heim- ilafjölgun. Með sama fólks- og býlafjölda og verið - hefir, mun niðurstaðan verða lík og á Skeið- unum, að margir bændur verða mun lakar settir en áður, og geta tæplega haldið jörðum sínum, er til afborgunar kemur af frum- láninu. Á hinn bóginn eru ráð- | gerðar miklar framkvæmdir í I Flóanum á næstu missirum, og verður fé til þeirra að koma úr ríkissjóði eða sama sem. Verði i stigin öfug spor í málinu kemur sá skaði vitanlega á bak allra landsmanna eins og endranær, þegar hinum „sérfróðu“ sést yfir „óbilgjörnu klappirnar“. Um nokkra stund hafa þessir menn starfað í nefnd til að und- 1 irbúa lausn vandamála í sam- I bandi við áveituna. I henni voru ! Magnús Þorláksson bóndi á Bhka- stöðum, Zoega vegamálastjóri og Valtýr Stefánsson ritstjóri. Nið- | urstaðan af rannsóknum í mál- inu er sú að byggja þurfi vegi ' um Flóann fyrir 200 þús. og mjólkurbú fyrir 150 þús. kr. Ætlast er til að landið láni þetta, enda mun lítt aðhafst í málinu án þess. Nefndin hefir valið hinu nýja mjólkurbúi stað í Flóanum, þar sem fram að þessu hefir einung- is verið um fremur lélegt brunn- vatn að ræða, og engin leið að ná í lindarvatn úr fjöllum nemar með afarmiklum kostnaði, langri leiðslu, þar á meðal yfir ölfusá, og mun ekki auðhlaupið að því, er einangra skyldi móti frostum. Auk vandkvæðanna við vatnið á þessum stað, þarf að flytja þang- að olíu og kol úr fjarlægum lönd- um til hitunar og hreyfiafls. En nokkra km. frá þessum stað er blómleg sveit, sem tæplega fær að vera með í þessari miklu landssjóðsútgerð. Þar er nógur hverahiti, hentugt vatnsafl til virkjunar, og gnægð af góðu lindarvatni. En „sérfræðin“ vilt- ist fram hjá ^essu af einhverri dularfullri þrá,<’ sem leiðbeinir í- haldsforkólfunum á „óbilgjömu klöppina“ í hverju máh. Lítill vafi er á að hér bætist við einn kafli í raunasögu bænda í Ámessýslu undir handleiðslu „sérfræðinnar“. Dýrt og mikið mjólkurbú verður bygt fyrir Fló- ann einan og nábúasveitir settar hjá. Brunnar verða grafnir eftir mýrarvatni. Kol og olía flutt úr fjarlægum löndum til starfræksl- unnar í búið. Eftir dálítinn tíma finna menn „óbilgjörnu klöpp- ina í smjörhúsmálinu. Landið er búið að leggja stórfé í fyrirtækið og til sameiginlegs skaða fyrir bændur í Flóanum og landssjóð, er svo leitað að nýjum bjarg- ráðum eins og í hinum dýra, áðurnefndu ósigrum íhaldsleið- sögunnar austanfjalls. Hver einasti ókunnugur maður sem fengi yfirlitsskýrslu um fjár- hag þeirra manna, sem lent hafa í efnalegri hættu við Skeiða- og Miklavatnsmýraráveiturnar, við hrun Ingólfs, Heklu og spari- sjóðs Eyrarbakka, eða í ónota- legu nábýli við lánin til spítal- ans, rafstöðvarinnar á Eyrar- bakka og hinar tilkomandi fram- kvæmdir síðustu íhaldsnefndar, myndi búast við því að fjármála- vandkvæðin í vissum bygðum eystra, stöfuðu af iðjuleysi bænd- anna þar. En því fer fjarri. Dóm- ur Sigurðar Sigurðssonar er í aðalatriðum réttur. Jafnt í þeim bygðum sunnanlands, sem versta skelli hafa fengið, og hinum, sem betur era settar, búa menn sem síst spara orku sína til erfiðis- vinnu bæði á sjó og landi. En hverju sætir þá að dugandi menn í góðum héraðum eiga svo í vök að verjast, að hvað eftir annað verður þjóðin öll að koma og rétta hjálparhönd? Raunasaga sú sem rakin er hér að framan, svarar spurningunni ótvírætt. Bændur austanfjalls hafa lagt út í umbótabaráttu og haft til trausts og halds „sér- fræðinga“ frá íhaldinu, ýmist af Eyrarbakka eða Reykjavík. Og sagan um „óbilgjörnu klöppina" hefir alt af endurtekið sig. Þegar •búið var að eyða því sem til náð- ist frá einstaklingunum, sem að framkvæmdunum stóðu, velta sér- fræðingamir brosandi leifunum af byrðinni yfir á bankana eða ríkissjóð. Sem betur fer hafa fáar bygð- ir landsins verið herjaðar jafn grimmilega eins og ýmsar sveit- ir Árnessýslu, enda munu þær gjalda nábýlis við höfuðstaðiim, þar sem leiðsaga í allskonar vandamálum verið næsta auð- fengin frá fylgiliði Morgunblaðs- ins. Um mörg undanfarin ár hafa íhaldsmenn reynt að telja lands- mönnum trú um að þeir hefða sérstaklega góða hæfileika til að hafa á hendi forustu um fram- kvæmdir og félagsmál.Utan kaup- túnanna hafa þeir fengið mest og best tækifæri til að sýna hæfi- leika sína í forstöðu áðurgreindra framfaramála í Árnessýslu. Dóm- ur reynslunnar virðist vera sá að fyrst eyðileggur umbótin eins og hún er gerð fjárhag einstakling- anna, sveitarfélagsins og kastar síðan á bak landsmanna allra því sem eftir er af þunga axar- skaftanna. Ámesingar virðast hafa lært af reynslunni. Engin sýsla á landinu hefir öllu ákveðnar neitað að þiggja póltíska íhaldsleiðsögn og munu flestir líta svo á að það vantraust sé bygt á ærið sterkum rökum. En raunasaga íhaldsforstöð- unnar nær til allra landsmanna. Hvenær sem félagsmálasaga Is- lands frá síðustu árum verður rituð, mun koma í ljós, að Ihald- ið hefir alstaðar skilið eftir rúst- ir. Báðir bankarnir eru orðnir varasjóðslausir og stórskuldugir við útlönd. Síldarútvegurinn, sem var sérstakt eftirlætisgoð íhalds- forkólfanna, er búinn að eyði- leggja fjárhag nálega allra sem hann stunda og að heita má ger- samlega kominn í hendur útlend- inga og nokkurra íslenskra leppa. I fisksölunni rífa íhaldssamherj- amir hver annan niður, í stað þess að vinna saman. Ihaldið virð- ist í hverjum einstökum þætti fé- lagsmálanna hafa hrasað um „ó- bilgjarna ldöpp“ af sömu ástæð- um og verkfræðingamir sem mældu fyrir áveituskurði Skeiða- manna. J. J. ----o-----

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.