Tíminn - 03.12.1927, Blaðsíða 3
TlMINN
199
ei nafn á heimsfrægri kaffibætistegund, sem framleidd hefir verið í 69 — seKtíu og níu — ár af þektustu kaffibætisverksmiðju Holl-
lands, en svo sem kunnugt er, standa Hollendingar öðrum þjóðum langt framar um tilbúning á þessari vörutegund.
Þessi kaffibætir hefir niu sinnum hlotið gull- og silfur-medaliur vegna framúrskarandi gæða sinna, enda er hann búinn til úr
allra bestu efnum, völdum og rannsökuðum af þaulvönum mönnum.
Þeir, sem reynt hafa, telja V l<: K 0 - kaffibætinn þann langbesta kaffibæti, sem fáanlegur er hár á landi.
Kaupmenn og kaupfélög! Spyrjist fyrir um verðið og látið reynsluna sannfæra ykkur um ágæti þessarar vöru.
Heildsölubirgðir (í Vi-kössum og 1/4-kössum) hjá H 1 1 d Ó T Í Xl ÍríkSSyil 1 Hafnarstræti 22, Reykjavík. Sími 175.
wiíwhpii wi
Fyrstu ferðír
PHILIPS sem forgöngufélag.
skipa H.f. Eimskipafélags Islands frá útlöndum til íslands áriö 1928 veröa þær, sem hér segir:
Skip Frá Kaupm.höfn Frá Hamborg Frá H u 1 1 Frá L e i t h Til
Lagarfoss .... 7. jan. 11. jan. 14. jan. Reykjavíkur, þaðan vestur og n. u. í
Goðafoss 7. — 11. jan. Norður- og Austurl. og Rvk.
Gullfoss 8. — 12. — Reykjavíkur
Brúarfoss 20. — 24. — Reykjavíkur
Gullfoss 3. febr. 7. febr. Reykjavíkur um Austfirði
Brúarfoss 14. — 18. — Reykjavíkur, þaðan vestur og n. u. í.
Goðafoss 15. febr. 18. febr. Reykjavíkur
Gullfoss 28. — 3. mars Reykjavíkur og' Breiðafjarðar
Selfoss < 2. mars 7. mars Reykjavíkur
Jónas Sveinsson læknir á Hvamms-
tanga var meðal farþega á Dr. Alex-
anderine frá útlöndum á þriðjudag-
inn. Hann fór utan, til þess að
kynna sér síðustu yngingartilraunir.
Hefir nýlega verið uppgötvað meðal
annars, að hægt er að auka stór-
kostlega ullarvöxt sauðfjár með þvi
að græða kirtla úr ungum dýrum í
eldri. Gera vísindamenn jafnvel ráð
fyrir að unt sé að koma til leiðar
varanlegum breytingum fjárins í
þessa átt. Mun Jónas læknir ætla að
gera þessháttar tilraunir hér á landi
og má búast við að þær verði, ef
takast kynnu, vinsælli en mælt var
að orðiö hefðu yngingartilraunir
hans á hreppsómögum.
Bruni. Bærinn Hlið á Álftanesi
brann til kaldra kola 30. f. m.
Slysfarir. það slys vildi til á Pat-
reksfirði 29. f. m., er togarinn Leikn-
ir var að leysa þar landfestar, að
jámbútur slóst í höfuð stýrimanni
skipsins, Ásgeiri Jóhannssyni og
beiö hann bana af.
„Glataði sonurinn", skáldsagan víð-
kunna eftir Hall Caine er nú komin
út 1 íslenskri þýðingu. Guðni Jóns-
son hefir þýtt söguna og er þýðing-
in að því er virðist vel af hendi
leyst. Eins og kunnugt er, gerist sag-
an að mestu hér á landi. Heldur
þykja náttúrulýsingar skáldsins o. fl.
skjóta skökku við það raunverulega.
— Hefir höfundurinn sjálfur látið
svo um mælt að hann hafi ekki
ætlast til að lýsingar sínar yrðu
raunverulegar, heldur hafi hann ætl-
að „að taka mannleg viðfangsefni
til meðferðar með ísland og íslensk
þjóðareinkenni sem fagurt og áhrifa-
mikið baksvið". „Glataði sonurinn“
er mikið ritverk í tveimur bindum,
vel frá gengið. Sagan er mjög átak-
anleg. Hún hefir verið þýdd á mörg
tungumál.
Hátiðaljóð 1930. Undirbúningsnefnd
alþingishátíðar tilkynnir:
Einn þáttur hátíðahaldanna á ping-
völlum á að vera söngur og flutn-
ingur hátíðarljóða (kantötu), er ort
sé til minningar um 1000 ára afmæli
Alþingis. Nú er skorað á þau islensk
skáld, er freista vilja að yrkja slík
ljóð, að senda þau til hátíðanefndar-
innar fyrir 1. nóv. 1928. Svo er til
ætlast, að íslenskum tónskáldum verði
síðan boðið að semja lög við þann
ljóðaflokk, sem bestur verður dæmd-
ur, því verður m. a. lögð áhersla á,
að ljóðin séu sönghæf, auðvitað að
undanskildum framsagnarþætti (reci-
tativ). Að öðru leyti verður hver
höfundur að vera sjálfráður um
lengd og skipan ljóðanna. Kvæðin
skulu send vélrituð og nafnlaus, en
merkt einkunn. Nafn höfundar skal
fylgja í lokuðu umslagi, er merkt sé
sömu einkunn sem kvæðið. Fyrir
þann ljóðflokk, er kosinn verður til
söngs við aðalhátíðina, mun hátíða-
nefndin leggja til við næsta Alþingi,
að greidd verði 2000 króna verðlaun,
en 500 og 300 krónur fyrir tvo flokk-
ana, sem næst þykja komast, enda
ráði hátíðanefndin yfir öllum hinum
verðlaunuðu flokkum fram yfir há-
tiðina, til söngs, flutnings og prent-
unar, og er höfundunum sjálfum
ekki heimilt að birta þá fyr en hún
er um garð gengin. Utanáskrift
nefndarinnar er: Undirbúningsnelnd
alþingishétíðar 1930, skrifstofu Al-
þingis, Rvík.
Nýr viti er nú reistur á Flateyrar-
tanga í Önundarfirði. Logar hann
frá 1. ágúst til 15 maí.
PHILIPS re imag-nsglólampinn, sem alstaðar er þektur, og al-
staðar er notaður, hefir gert PHILIPS lampasmiðjumar í Eind-
hoven í Hollandi frægar um víða veröld.
Þegar á bemskuárum útvarpsins fóru PHILIPS að smíða
lampa fyrir útvarpstæki (radio-lampa). Var til þess stofnuð sér-
stök deild, er nefnist PHILIPS RADIO.
Það kom fljótlega í ljós, að PHILIPS ætluðu að verða for-
göngufélag á sviði radio-lampanna, eins og þeir höfðu verið á
sviði rafmagnsglólamprnna. óðfluga breiddust þeir út um allan
heim, og fer hróður þeirra dagvaxandi.
Þegar þessum áfæta árangri var náð, snéri PHILIPS RADIO
sér að því að smíðr ýms önnur tæki, er að útvarpsnotkun lúta.
Má þar til nefna, hi \ svonefndu B-spennutæki ( Anode Apparat
eða Höjspændings Apparat). Tæki þessi koma í stað B-rafvaka,
eða „háspennubatterianna" eins og þau stundum eru nefnd.
Þá smíða þeir einnig hleðslutæki, sem gera útvarpsnotend-
um auðvelt að hlaða sjálfir rafgeyma sína, í heimahúsum, án
þess að þurfa að flytja þá til hleðslustöðvanna. — Ennfremur
smíða þeir gella (hátalara).
Allar PHILIPS vörur eru orðnar víðkunnar fyrir gæði sín,
og eiga miklum vinsældum að fagna. Þegar menn tala um á-
gæti tækja af þessu tagi, eru PHILIPS að jafnaði fyrst til-
nefndar.
PHILIPS smiðjumar láta ekki staðar numið, þótt þessum á-
gæta árangri sé náð. Hjá þeim er stöðugt unnið að endurbótum.
og reynslan hefir sýnt að endurbætur og nýjungar koma venju-
lega fyr frá þeim en öðrum.
Á næsta ári mun koma frá þeim á markaðinn ný tegund af
útvarps viðtækjum. Tæki þessi verða alveg frábrugðin núþekt-
um tækjum, og er ekki að efa að hér er á ferðinni jafn fram-
úrskarandi vara og aðrar PHILIPS vörur.
Sem dæmi upp á vandvirkni þeirra má nefna það, að tæki
þessi eru fyrir æðilöngu fullgerð, en verða þó ekki látin fara á
markaðinn fyr en á næsta ári. Þeir vilja sjálfir ganga úr
skugga um þá galla, er fram kunna að koma við notkun, og
bæta úr þeim áður en tækin komast í hendur notenda.
Pyrir eyrað: — PHILIPS radio-lampinn.
Fyrir augað: — PHILIPS gló-Iampinn.
Umboðsmenn fyrir PHILIPS RADIO A/S.
Snorri P. B. Arnar
Reykjavik.
Júlíus BjBrnsson
Raftækjaverslun. Rafvirkjun.
Simi 837.
peningum, ef sakamálshöfðun
hefði þar með átt niður að falla.
Aðstaðan var orðin jafnljós og
greinileg eins og ef sauðaþjófur,
sem fallinn er í hendur réttvís-
innar, býður að endurgreiða þýf-
ið. Réttvísin getur ekki þegið
slíkt boð. Hún hefir ekki vald til
að versla með hegningarlögin.
Eftir að dr. Bjöm Þórðarson
hafði hafið rannsókn málsins
samkvæmt beinni skipun núver-
andi stjómar, var þeim íhalds-
mönnum, er stóðu beint eða ó-
beint að sjóðþurðinni, ljóst, hve
mikinn ósigur þeir persónulega,
og íhaldsstefnan yfirleitt, höfðu
beðið.
Eins og allir vita hefir það
verið siður á blómaöld íhalds-
stefnunnar að hilma yfir hverja
sjóðþurð, oftast með því að
láta falskt verðmæti upp í hall-
ann, eins og í tíð Jóns Magnús-
sonar um Siglufjarðarhneykslið.
Þessari venju ætlaði íhaldið vit-
anlega að beita enn og það því
fremur sem margir íhaldsmenn
stóðu beint og óbeint að málinu.
Þess vegna lætur M. G. málið
aldrei koma til dómsmáladeildar
í alt sumar og enga rannsókn
um saknæmi málsins fara fram.
Lítill vafi er á að M. G. hefir
ætlað að vera klókur með því að
skilja við málið eins og hann
gerði. Ef nýja stjómin sendi
það undir eins til rannsóknar-
dómarans, þá hefðu íhaldsblöðin
fjölyrt um að kastað hefði verið
burtu 70 þús., sem auðveldlega
hefði mátt fá borgaðar. Glæp-
samlegt athæfi og eftirlitsleysi
undanfarandi ára hefði á þann
hátt verið skrifað á reikning
þeirra, sem skáru fyrir rætur
þessara fjársvika.
Ef á hinn bóginn að stjórnin
hefði tekið við skjaldaskriflum
og baugabrotum upp í sjóðþurð-
ina, þá hefði íhaldið látið eins og
rannsókn en ekki endurborgun
hefðu átt að koma til greina.
Samt er enn ótalinn þýðingar-
mesti þátturinn í þessu máli. 70
þús. varð ekki bjargað. Sú leið
var árangurslaust reynd. Þrír
íhaldsforstjórar og gjaldkeri
þeirra höfðu lokað þar öllum
leiðum.
En um leið og opinber rannsókn
var hafin í einu stóra fjársvika-
máli, þrátt fyrir fordæmi í-
haldsins, þrátt fyrir svefn M.
Guðm. í alt sumar, þrátt fyrir
þær þrálátu tilraunir sem íhaldið
gerði til hins síðasta til að
bjarga stefnu sinni, þá var haf-
in ný stefna, áður óþekt hér á
landi um mörg ár. Sú stefna er
í því fólgin að hegna fjársvik-
um eins og öðram þjófnaði, eft-
ir því sem til næst. Einn hinn
djúpvitrasti maður hér á landi
hefir sagt, að um langt skeið hafi
aldrei neinn maður, sem átti
hvítt um hálsinn, farið í hegn-
ingarhúsið. Umkomulausustu
mepnirnir hafa fengið að kenna
á strangleik laganna. Hinir, sem
áttu hvítt um hálsinn og kunn-
ingja með hvítt hálslín, hafa
farið í eldlegum vagni yfir tak-
mörk laganna, ekki inn í land ó-
dauðleikans heldur inn í samfé-
lag óhegndra afbrotamanna.
Mbl. hleður köst illyrða að
núverandi stjórn fyrir rannsókn
þá alla, er hún síðan í byrjun
september s. 1. hefir látið fram
fara á öllum hliðum þessa af-
brotamáls. Gremjuyrði blaðsins
sýna, að íhaldsmenn skilja hina
víðtæku þýðingu ósigurs þeirra í
þessu máli. Það er lítið og í
sjálfu sér ekki eftirsóknarvert
atriði að ógæfusamur drykkju-
maður verður dæmdur til ákveð-
innar hegningar. Hitt er miklu
meira atriði, að rannsókn dr.
Björns Þórðarsonar bregður
skörpu ljósi yfir gerspillingu þá,
sem átt hefir sér stað árum
saman, um stjórn Branabótafé-
félagsins. Þingið fær þar með
grundvöll til að byggja á gagn-
gerða og óhjákvæmilega skipu-
lagsbreytingu í félaginu. Fram-
vegis verður óhugsandi, að
Brunabótafélagið geti verið
drykkjumannahæli, mest á landi
hér. Enn síður griðastaður
fyrir atvinnulausa athafnaleys-
ingja.
En dýpst mun Mbl. finna þá
stefnubreytingu er lögin ganga
jafnt yfir alla. Undanfamar vik-
ur hefir það blað alið á upp-
reistarhug meðal samherja sinna.
Ef réttvísin á að ná til íhald*-
manna, þá er móðurfaðmur
stærsta íhaldsblaðsins jafnan op-
inn. Ef ofstopafullur smákaup-
maður í liði blaðsins efnir til of-
beldis móti rannsóknardómara í
fölsunarmáli, þá er talað um lög-
brjótinn eins og þjóðarhetju. Þeg-
ar íhaldssýslumaður, sem árum
saman hefir á áberandi hátt van-
rækt starf sitt, gerir sig sekan
um ofbeldi, birtir Mbl. játningu
hans um afbrotið á þann hátt,
að lögbrjótar hljóta að telja sam-
úðarmerki frá hálfu íhaldsflokks-
ins.
Sjóðþurðarmál Blandons er
landamerkjasteinninn milli hins
gamla og nýja. I stað þess við-
horfs, að lögin næðu aðeins til
hinna umkomulausu, hefir kom-
ið sú nýstárlega skoðun, að lög-
in nái jafnt til allra. Þetta
kemur í byrjun óþægilega við
þær stéttir, sem fram að þessu
virðast hafa álitið sig hafnar
yfir lögin. Blóðnætur eru bráð-
astar. En með tímanum ættu það
ekki að verða óbærileg tilhugsun
fyrir neinn íslending, þó að
þjófnaði og ofbeldi gegn ríkis-
valdinu verði hegnt, samkvæmt
þeim lögum, er á hverjum tíma
gilda í landinu, án tillits til þess
í hvaða pólitískum flokki vinir
og vandamenn hinna einstöku af-
brotamanna kunna að vera.
J. J.
-----o----
Thorkillisjóðurinn.
Kl. J., æðsti maður Oddfellow-
reglunnar hér á landi, birti í
síðasta blaði Tímans einskonar
vamargrein fyrir hneykslið með
Thorkillisjóðinn. Þetta var nú
raunar óþarfi, því ekki réðist eg
á Oddfellowregluna í grein minni,
en eftir þær upplýsingar, sem
Kl. J. gefur, má benda þeim
Oddfellowum á, að ef þeir vilja
gera góðverk, þá skuli þeir gera
það fyrir sína eigin peninga, en
ekki seilast eftir yfirráðum yfir
sjóðum, sem eru almenningseign.
En aðalatriðið í þessu máli er,
að það er ósæmilegt og ósamboð-
ið ríkinu, að stjórnin skuli af-
sala sér umráðum yfir stóram
opinberum sjóði í hendur prívat-
félagi, og næsta Alþingi verður
að taka í taumana ef með þarf,
og sjá um að Thorkillisjóðurinn
verði framvegis undir stjóm rík-
isstjórnarinnar, en ekki einstaks
félags. S.
-----o-----
„Selloss". Eimskipafélag íslands
hefir keypt Villemoes af landsstjóm-
inni fyrir 140 þús. kr. VerÖur honum
framvegis gefið nafnið „Selfoss".
Mun honum ætlað að verða næsta
ár i förum milli Hamborgar, Hull
og íslands og flytja vörur einkum á
smærri hafnir landsins til þess að
greiða fyrir hraðari ferðum Goða-
foss. — Skipið var bygt í Porsgrund
í Noregi óriö 1914, en landsstjóm
íslands keypti það 1917. það er 775
smálestir og hentugt til vöruflutninga.