Tíminn - 21.01.1928, Side 3
TIMINN
11
hetta þingmannsefni. Verða sak-
lausir og- heiðarlegir kjósendur í
kjördæminu að gjalda að nokkru
Irinnar alvarlegu, siðferðislegu !
meinsemdar í fari þeirra, sem að !
kosningasvikunum hafa staðið.
Er einsætt að þinginu ber að
taka föstum tökum á þessháttar
málum til varnaðar þeim, er í ;
framtíðinni kynnu að vilja !
fremja glæpi gegn lýðræðisskip- j
un þjóðarinnar. — Þar við bæt- ;
ist að hlutaðeigandi þingmanns- j
efni hefir skipað sér í flokk
þeirra manna, sem hafa sýnt full-
trúa réttvísinnar í Hnífsdalsmál-
inu fullkomna ósvífni og virðist
svo, sem hann ætti fremur að :
sæta ábyrgð fyrir framkomu j
sína en að vera leiddur rakleitt í |
þingsæti. — Á réttarhaldi á ísa-
firði 11. nóv. síðastl., þar sem J.
A. J. mætti sem vitni, krafðist
hann og fékk bókuð í réttarbók-
ina eftirfarandi ummæli:
„Eg vil þegar taka það fram, að
það er til þess að hlýðnast fyrirmæl
um laganna að eg mæti fyrir þess '•
i;m*) rétti. Hinsvegar. dylst mér ekki, 1
að í rannsókn þessa máls eru farnar
jnjög óvenjulegar leiðir og svo virð-
ist sem rannsóknin beri fullkominn
blæ hinna pólitísku skoðana ráðu-
nauta rannsóknardómarans. Af þessu
leiðir að eg hefi styrkst í því áliti
mínu, að málið sé lmfið og því fram-
haldið til þess að reyna að fá ein
hverja átyllu til þess að kæra kpsn-
inguna í Norðui’-ísafjarðarsýslu ...“
Hér er því blátt áfram dróttað
að dómaranum, að hann sé verk-
færi í höndum annara manna
með ákveðinn pólitískan tilgang
framundan. Slík ósvífni gagnvart
fulltrúa réttvísinnar virðist fyili-
lega átöluverð.
„Jarðarför“.
Á fimtudaginn, er gengið var í
kirkju á undan þingsetningunni,
heyrði Mbl. á tal tveggja „dreng-
hnokka á Kirkjutorginu“, sem á-
litu að jarðarför væri að fara
fram. Birtir blaðið í gær viðtal
drengjanna, felst á skoðun þeirra
og fyllir dálka sína útfarardapur-
leik. En það vefst í missögnum
blaðsins, hvað grafið var á fimtu-
daginn. Þaim dag- fór fram út-
för íhaldsins íslenska og meiri-
hlutavalds þess á þingi þjóðar •
innar. Megi friður hvíla yfir
moldum þess látna!
*) Leturbreytingin blaðsins. .
Rltst j.
Valtýr móðursjúkur.
Ávalt síðan Jónas Jónsson tók
sæti í landsstjóminni hefir Val- ;
týr ritstjóri verið ákaflega órór
og kvíðandi um hvaðeina er hann
kynni að taka sér fyrir hendur.
Ef ráðherrann hefir brugðið' sér
bæjarleið hefir ritstjórn Mbl. haft
neíiö i hverri gátt, til þess aö
snuðra um, hverjir væru í fylgd
meö ráðherranum og hvei-t ferð- i
inni væri heitið. Þegai' ráðherr-
ann fór norður í land skýrði Mbl. 1
aagiega frá dvalarstað hans og
athöínuin. Hefir hann varla geng-
ið svo út og inn í hús, að ekki
komi um það skýrsla í Morg-
unblaðinu. Varla þarf að ætla aö
þetta sé gert af áhuga fyrir
störfum ráðherrans heldui' af
einskonar taugaóstyrk í ætt við
móðursýki. Blaðið Vísir gerði
fyrir nokkru gys að þessu upp-
námi ritstjóra Mbl. Skiljanlegur j
er kvíði og vanstilling Valtýs, því
lengur sem „morguntafiinar'
ganga fram á daginn. Þó blaða-
menska af þessu tæi sé vesæl-
mannlegri en dæmi eru til, vinn-
ur hún það óbeina gagn að halda
athygli lesenda Mbl. sívakandi um
athafnir og umbótastörf ráð-
herrans.
Litillæti.
Það má segja um hinn ný-
dubbaða ritstjóra Varðar, að
hann er hógvær og af hjarta lít-
illátur, er hann í ávarpi sínu
óskar sér ekki meiri fremdar í
blaðamenskunni en það að mega
líkjast Kristjáni Albertssyni!
Kristján þóttist í upphafi starfs
síns vera fær um að knésetja
aðra blaðamenn og vera þeim til
fyrirmyndar, einkum um varúð
og samvizkusemi í frásögnum og
meðferð heimilda. En hversu
tókst honum? Hann gerðist svo
latur og hirðulaus um sannleik-
aim, að hann tók upp í blað sitt
óbreyttar blekkingar og rakalaus
ósannindi Mbl. Neðar verður ekki
komist í blaðamensku. Auk þess
ritaði Kristján ruddalegasta og
fúkyrtasta ritmál,sem sést hefir í
íslenskum blöðum síðasta manns-
aldurinn. Þar á ofan var hann
hirðulaus og viljalaus um lands-
mál og gerði það eitt, sem hon-
um mun einkum hafa verið falið
að vinna: að svívirða og rægja
þann mann, sem ríkastur hefir
verið af hugsjónum og alhliða
umbótavilja allra þeirra manna,
sem fengist hafa við opinber mál
á síðustu árum. — Þetta er sann- '
leikurinn um blaðamensku Krist-
jáns Albertssonai’, sem hann
sjálfur treystist ekki til að mót- 1
mæla, er sakir þessar v'oru nýlega |
bornar á hann hér í blaðinu. — !
Má því segja, að nýi ritstjórinn i
hefði sem blaðamaður tæplega
getað óskað sér vesælla hlut-
skiftis.
.
Val starfsmanna.
Fyrsta árás hins nýja ritstjóra
Varðar á núverandi stjóm er
reist á þeirri aðdróttun, að hún
láti hlutdrægni ráða vali starfs- !
manna en ekki starfhæfni mann-
anna. Dylst Á. J. þess, eins og !
aðrir Ihaldsritstjórar, að báðurn
fyrv. ráðherrum og fleiri íhalds-
mönnum hafa verið fengin störf
að vinna. Að vísu hefir stjórnin
hlotið ámæli nokkurt fyrir að ;
láta að tilmælum J. Þorl. um að
fela honum rannsókn þjóðnýting- ■
ar síldarvinslu, en enginn hefir
af þeim sökum brugðið stjórninni
um pólitíska hlutdrægni fyr en 1
ritstj. Varðar gerir það nú í und- ;
antekningarlausi-i ádeilu. — Ekki
verður stjórnin með sanngirni ;
vítt fyrir þá sök, að hún felur !
sínum flokksmönnum, að öðru '
jöfnu, fremur störf heldur en !
andstæðingum og því síður, ef j
persónuleg kynni ráða valinu. Að !
öðru jöfnu eru samvinnumenn, :
vegna lífsskoðana, samkepnis-
mönnum hæfaii, til þess að inna I
af höndum störf í almennings- !
þarfir. Ýmislegt, sem komið hef- !
ir í ljós um opinbera starfrækslu i
í tíð fyrverandi stjómar og
starfsmannaval hennar bendir á, I
að betur mætti takast í því efni, i
en að feta í fótspor hennar. j
Sendimanni fyrverandi stjómar j
og forstjóra Brunabótafélags Is- '
lands eru slík mistök fyrverandi j
stjómar nærtæk, með því að vit-
anlegt er að ekkert annað en
pólitískar ástæður hafa ráðið, er
honum hafa verið falin störf að
vinna. Má minna á að Bjöm
Þórðarson hæstréttarritari sótti
móti honum um Brunabótafor-
stöðuna. Sjálfur hefir hann orðið
ber að vítaverðri vangeymslu
starfs síns og hefir það eitt ver-
ið íært til afsökunar honum, að
pólitísk aukastörf hafi hamlað
ihonum að sinna aðalstarfinu!
Mun það verða mælt, er gerr
verður kunnugt um opinbera
starfrækslu Ihaldsmanna, að þeir
ættu síst að telja sig fallna til
siðapredikana um þau efni og að
Árni Jónsson ætti fremur að
spreita sig á öðru en umræðum
um val starfsmanna..
„Háskólastúdent“
ritar langt mál í eitt af Ihalds-
blöðunum um stúdentafræðsluna.
Greinin er rituð af mikilli óvild
til Framsóknar og núverandi
kenslumálaráðherra. Höfundurinn
er mjög andvígur því, að troðn-
ingur manna inn í embættastétt-
ina verði hindraður á nokkurn j
hátt. Jafnframt er hann andvíg- !
ur því að sveitapiltar fái sæmi- j
lega aðstöðu til jafns við Reykja- j
víkurunglinga, til þess að stunda j
mentaskólanám. Hann er því j
andstæður prófrétti Akureyrai- !
skóla. Unglingurinn hefir auðsæi- j
lega hlotið of mikið af uppeldi j
sínu á götunni. Hefir hann og í
tileinkað sér þá þjóðfélagshugs- |
un broddborgara Rvíkur, að land- (
ið og þjóðin eigi að vera til fyrir
Reykjavík og Reykjavík fyrir þá. j
Frelsisskraf þessara manna er
dulbúin kúgunarhneigð, sem vill
skapa landfræðislega og fjárhags- j
lega einokun í mentaskólamálum, j
til handa unglingum Reykjavík I
ur, sem hafa fullan vilja á að
framlengja götulíf sitt á kostnað
landsins í opinberum stöðum.
GuUskúrir íhaldsins.
Um 20—30 miljónir af fé þjóð-
arinnar munu hafa horfið í með-
förum og atvinnustjórn Ihalds-
rnanna. Atvinnufyrirtækin eru
flest með annan fótinn í gröfinni
en blaðakostur íhaldsins hefir
blómgast að vöxtum til og aukið
íslenskum pósthestum erfiði fram
yfir það, sem þurft hefði að vera.
Vörður talar um „gróðrarskúrir
Tímans“ og að sveitirnar muni
blása upp andlega, ef Tíminn
hætti að koma til lesendanna.
Ratast blaðinu þar satt á munn.
En jafnframt gerir blaðið gys að
áminningu Tímans til kaupend-
enna um að standa í skilum við
blaðið. Blöðin, sem hafa döggvast
af gullskúrum íhaldsins undan-
farið, geta veitt sér það létt, að
gera gys að því þegar reynt er
að vinna á móti óskilseminni,
sem þau með lesendabetli sínu
hafa skapað í blaðaviðskiftum Is-
lendinga.
-----o----
Minnisstæðust verður þessi
mynd, sem skáldið bregður upp
í lok kvæðisins, þrungin samúð
og djúpri tilfinning:
. . . skaut úr haíi skýjaklökkum.
skarlatsrauðum á að líta,
suður yfir Bröttubrekku
bar þá sjúkan örpinn hvíta.
„Þér konur“ er óður til kvenna,
þrunginn hita og aðdáunar, en þó
ortur með rósemi og íhugun hins
þroskaða manns:
þér konur á eldblysum kveikið,
er kveldsól að viði hnígur
. . . svo reykelsisilmur og andakt
frá ölturum mannanna stigur,
— uns lyfta sér vængjaðar verur
í vorhvolfin töfrafríð.
Og þetta er sannorð saga
og söm frá ómunatíð.
Þá eru nokkur fleiri kvæði, sem
að vissu leyti eru efni þessarar !
nýjustu bókar, eða það nýja í i
henni, af því að þau heyra til .
nýju tímabili í ljóðagerð skálds-
ins; þau eru greinilega ort með
nýjum hætti. Það eru t. d.: !
„Bjartir morgnar“, „Það vorar“, |
„Fram til heiða“ og „Haustið •
nálgast". Það eru hrein og tær til- ;
finningaljóð, lýrisk kvæði, sem '
eru með rólegu yfirbragði, kveðin |
undir valdi hóflátrar athyggju, |
þar sem djúp tilfinning er eins !
og eldur falinn undir sterkum j
hjúpi vitsmunaþroska og valds |
yfir efni og formi, Fyrsta kvæði |
Stefáns af þessari gerð er „Bjart-
ar nætur“ í „óði einyrkjans",
eitt hans besta kvæði, einmitt
vegna róseminnar á yfirborðinu
og hitans undir niðri:
Eg gleðst sem bóndi yfir ull,
því ársæld höfg í bú mitt draup.
Af söngvaefni er sál mín full,
við sjóðsins menn eg ætti ei kaup.
þá seður engin sólargnótt,
og saga af þeim mun blaöafá.
þeir síga og hverfa i svarta nótt,
og söngvar mínir lifa þá.
En í kvæðinu „Það vorar“ er
i undiraldan gleði, blandin trega,
i gleði yfir æskunni, sem fagnar
j vorinu, hiygð yfir hverfleika
| lífsins. En yfir öllu saman er
| tigin rósemi:
| Hve sælt reyndist forðum að vakna
og vaða,
er var eg svolítill drengur.
í túninu pollar og tjarnir standa,
slíkt tælir mig ekki lengur.
þvi nú er eg vaxinn að visku manna
og vordagar æfinnar famir.
En dætur mínar, þær Erla og Anna,
þæi' ösla nú polla og tjamir.
Á hlaðinu úti þær hlustandi bíða
og horfa inn í blárökkurveldin.
þær búast við svönum á flugi til
fjalla
og fást ekki í sæng á kveldin.
Sjá, blárökkurmóðan um fjallshliðar
færist,
— nú flýgur hugur minn víða.
. . . En mér þýðir lltiö að híma
út á hlaði,
eg hef ekki neins að biða.
„Haustið nálgast“:
Haustið nálgast, hríð og vetrarrosinn,
senn er ekki sólar von,
senn er áin frosin.
Ógnar myrkrið oss á norðurströndum,
innra grætur óðfús þrá
eítir suðurlöndum.
Himinn yfir! Huggast þú, sem grætur!
Stjörnur tindra, geislar guðs,
gegnum vetramætur.
Vetrarnóttin varla mun oss saka,
fyrst að ljósin ofan að
yfir mönnum vaka.
Manni kemur á óvart, að þetta
gamla rímnalag eigi í sér þvílík-
an yndisleik í hljóðfallinu, og
sýnir Stefán jafnan, hver brag-
snilling-ur hann er.
Þessi kvæðagerð Stefáns svar-
ar til fullorðinsáranna í aldri
hans, og þessi blær er auðsær á
mörgum hinna seinni kvæða
hans. Hann gefur ekki efninu
eins lausan taum og fyr. Hann
mótar og' vegur, og vitsmunirnir
stilla tilfinningunni hóf. Þetta er
framþróun og náttúrleg breyting,
en það er ekki framför í þeirri
merkingu, að hin seinni kvæði
séu betri hinum fyrri, því að
slíkt má varla verða. Stefán er
fyrst og fremst æskunnar skáld,
ástaskáldið, tilfinningaskáldið, er
trauðla á sinn líka. Eg hefi þann
skilning, að hversu vel sem hann
nú yrkir, þá sé hann í skáldskap
sínum staddur á einskonar
gelgjuskeiði. Hann hefir sagt skil-
ið við æskuna, og honum ferst í
því viturlega, að hann reynir ekki
að halda aftur af lífinu: hann
reynir ekki að yrkja æskukvæði
á fullorðinsaldri. Eg hefi þá trú,
að hann eigi enn fyrir sér nýjan
þroska, ef honum endist líf. Þeg-
ar kyrð kemst á hans innra líf,
eftir rót umskiftanna, þá koma
æskuárin og' æskudi*aumai*nir á
ný, í hreinleik minninganna, og
verða að nýjum kvæðum.
Líf Stefáns hefir blakt á skai’i
árum saman. En hvort sem hann
á enn fyrir sér langa æfi eður
ekki, þá gaf hann okkur þegar í
tveim sínum fyrstu bókum hin
dýrustu kvæði. Hann er einn af
þeim skáldum, sem með einhverju
því, sem ekki verður fyllilega
skýrt, tekur af öll tvímæli um
snildina í kvæðum sínum, ein-
hverju, sem grípur mann öðruvísi
en alt annað. Hann hefir tjáð
okkur mannlegar tilfinningar í
allri einfeldni og hispursleysi, en
með þeim hita og innileik, og
þeirri orðsnild, að hvorki auðmýkt
Hallgríms né lotning og tilbeiðsla
Matthíasar tekur mann fastari
tökum. Því að hin mesta snild er
sjálfri sér jöfn, á hverju sviði
sem er. Þar er ekki eitt öðru
meira.
Helgi Hjörvar.
Jörð til sölu
Eitt af höfuðbólum landsins er
til sölu.
Hlunnindi til lands og sjávar.
Upplýsingar gefur
R. P. LEVÍ,
Reykjavík.
Sérverslun
Stórt sápu- og' ilmvatna-finna
sem hefir fulltrúa í Reykjavík,
óskar að komast í sambönd við
fólk út um landið, sem gæti sett
upp verslun fyrir eigin reikning
með sápur og „toilet“ og „hus-
holdnings“-vörur.
Æskilegt væri að viðkomandi
hefði 2500 kr. til að byrja með.
Tilboð merkt „Sápa“, leggist á
afgreiðslu þessa blaðs.
íhaldsmenn
gera sig ógurlega reiða yfir því
að meiri hluti þings taldi rjett
að láta athuga í nefnd hvemig
það ætti að afgreiða kosningu
Jóns Auðuns. Hin smæstu mál
sem t þingið hefir til meðferðai:
eru öll sett í nefnd, í báðum
deildum. En þegar glæpir hafa
verið framdir í sambandi við
kosning-u sem aldrei hefir borið
við fyr á íslandi svo að uppvíst
hafi orðið, þá mótmæla íhalds-
menn því og „attaníoss“ þeirra
Sigurður Eggerz, að þingið gæti
svo- sóma síns að finna með ró-
legri athugun í nefnd heppilegt
fordæmi fyrir afgreiðslu slíks
stórmáls. St.
---Q...
Fréttir.
Tíminn kemur næst út á undan á-
ætlun vegna þingfrétta.
Cfestir í bænum. Meðal gesta í bæn-
mn hefir Tíminn orðið var við þessa
auk alþingismanna: Sigurður Bjark-
lind kaupfélagsstjóri Húsavík, og dótt-
ir lians Sigríður, Hallgr. porbergsson
bóndi Halldórsstöðum í Laxárdal.
Björn Haraldsson Austurgarði, Itrist-
in systir lians, Indriði Hannesson
Kelduneskoti, Jón Guðmundsson
Keldunesi, ltafn Ingimundarson frá
Brekku. Siðast talin fimm öll úr
Noi'ður-þingeyjarsýslu. — Karl Finn-
bogason skólastjóri á Seyðisfirði,
Halldór Ásgrimsson kaupfélagsstj.
Borgarfirði, þorsteinn Jónsson kaup-
félagsstjói'i Reyðarfirði, Davíð Jó-
hannesson simastjóri Eskifirði.
Páll ísólfsson hélt konsert í Fri-
kirkjunni á fimtudagskvöldið. Að-
stoðannaður hans var að þessu sinni
W i 11 y H ö r t i n g. Hefir Páll aug-
lýst að hann ætli að halda konserta
þessa íimtudaga: 9. febr., 1. mai's,
22. mars og 12. apríi kl. 9 síðdegis
alla dagana. Ættu bæjarbúar að
votta góðan smekk sinn og auðga
sálu sína með því að njóta þeirrai'
göfugu listar sem Páll ísólfsson hefii'
að bjóða.
Sambandið. Stjórn Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga heldur fund
um þessar mundir.
Leiðréttlng. í grein Guðmundai'
Jónsson frá Torl'alæk í 4. tbl. Tím-
ans, sem kom út i dag, hafa fallið
úr 2 línur í miðjum fremsta dálki
14 síðu. þar stendur: „Áma er auð-
sjóanlega meinilla við alla landbún-
aðai'kandidata og á milli línanna o.
s. frv., e.n á að vera „— — land-
búnaðarkandidata. Hann segir ýmsar
tröliasögur af vankunnáttu þeirra í
búnaði og á milli línanna o. s. frv.“
Kocb ofursti, sem hér er kunnur
af Giænlandsferðum sínum, er ný-
dáinn. Helstu Grænlandsför sína fór
hann 1912—13, um þvera jökla, og
var með honum í þeirri ferð Vigfús
Sigurðsson, síðar vitavörður á
Reykjarnesi. Hafði hann með sér ísl.
hesta og hafði áður farið reynslu-
ferð um Vatnajökul. Hann varð síð-
an yfirforingi danska flughersins.
Hans póstur Hannesaon er nýlega
dóinn, af afleiðingum uppskurðar.
Hann var kominn á óttræðisaldur.