Tíminn - 17.11.1928, Qupperneq 1

Tíminn - 17.11.1928, Qupperneq 1
©Jaíbferi ©ð afgtci6sluma6ur <T i m a n s er Sannoeig þ o r s 1 e t n f. bó 11 i r, Sambanðsíjúsmu, XeyfjaDÍf. 2^fgtEi5s(a Címans er t Sambanösíjúsinu. ©pin Öaglega 9—f2 f. i). Stmi ^90. 1 xn. ir. Reykjavík, 17. nóvember 1928. 54. blað. Laugarvatnsskólinn. Frá því var skýrt í síðasta blaði, að Laugarvatnsskólinn var vígður og opnaður til starfs 1. nóv. síðastl. Jafnframt var skýrt lauslega frá því, sem fram fór við þá athöfn. Vegna illviðris átti blaðið eigi kost á, að senda þang- að tíðindamann. Fyrir því getur , eigi orðið rakið hér efnið úr ræð- um manna. En þær munu vænt- anlega birtast síðar og á öðrum stað. Laugarvatnsför kenslumála- ráðherrans og gesta hans, er far- in skyldi vígsludaginn, dróst til þess 6. þ. m. Var þá lagt af stað kl. 6 síðdegis. I förinni voru þess- ir menn: Jónas Jónsson ráðherra, Ásgeir Ásgeirsson fræðslum.stj., Guðm. Björnson landlæknir, Guðjón Samúelss. húsameistari, Vigfús Einarsson skrifst.stjóri, Ben. Sveinsson alþm., Berniiarð Steíansson alþm., liaildór Stefánsson alþm., Héðinn Valdemársson alþm., Jón Baidvinsson alþm., Guðm. Finnbogason landsbókav., Páll Lggert Ólason prófessor, Aðalst. Kristinsson framkv.stj., Guðbr. Magnússon forstjóri, Guðm. Einarsson listamaður, Magnús Kjaran framkv.stj., Ragnar Ásgeirsson ráðunautur, Þorst. Gíslason ritstjóri, Jónas Þorbergsson ritstjóri. Fleiri mönnum hafði verið boð- ið að taka þátt í förinni og þar á meðal Jóni Kjartanssyni ritstj. Mbl. En vegna ýmiskonar for- í'alla varð eigi af för þeirra. Gekk ferðin austur að óskum, en var nokkuð seinfarið. Eigi var sími íullgerður heim að Laugar- vatni. Kom því þessi hópur gesta þangað með mjög stuttum fyrir- vai-a og eigi fyrr en um hátta- tíma. Eigi að síður áttu gestirn- ir hiiium ágætustu viðtökum að fagna hjá húsráðendum skólans, séra Jakobi Lárussyni skólastjóra og ráðskonunni, ungfrú Aðal- björgu Haraldsdóttur. Var von bráðar matur á borð borinn og gengu menn að lokinni máltíð til náða, sumir í rekkjum en aðrir á flatsængum í skólastofunum. llverahitinn í skólanum er 1 besta iagi og áttu allir því góða nótt, enda þótt nokkuð brysti á sæng- urklæði. — Að bifreiðastjórum meðtöldum voru næturgestimir tuttugu og fjórir. Snemmendis næsta dag, eftir að gestirnir höfðu skoðað skól- ann og umhverfi hans, setti ráð- herrann samkomu í skólanum og kvaddi til að stjórna henni for- mann skólanefndarinnar, Böðvar Magnússon bónda á Laugarvatni. Var þá fyrst sungið kvæði það, er Þorst. Gíslason skáld og rit- stjóri hafði orkt og gefið skólan- um. Fer það hér á eftir: Hér skal boðað, æskan unga, ættjörð þinni frá: Lögð er skyldan þarfa, þunga þínar herðar á: Reisa býlin, rækta löndin, ryðja’ um urðir braut. Sértu viljug, svo mun höndin . igra hverja þraut. Vermd af nýrra vona ljósi . inn þú dýrust heit: Sárin græða, hefja’ í hrósi hérað þitt og sveit. Sá skal hæstur sómi vera. Sé því orði hlýtt, þá mun hjálpa guð, að gera gamla landið nýtt. Fagri dalur! Fræðaskólinn fæðir nýjan hug. Út um héraðs breiðir bólin bjartrar trúar dug. Þá í dáðum draumur lifir dísa arin-ranns, sem með blessun svífa yfir sveitir okkar lands. Eftir að þetta vígslukvæði hafði verið sungið, tók fyrstur til máls Jónas Jónsson ráðherra. Ilann talaði fyrst um f egurð Laugar- dals og þau sérstöku náttúrugæði, sem hefðu ráðið miklu um það, að skólinn var reistur að Laugar- vatni. Benti hann á, að er kristni var lögtekin árið 1000, voru márgir Sunnlendingar skírðir þar í volgu vatni, er þeir hurfu heim af þingi. Þannig hefði farið þar fram nokkuð af hinum formslega undirbúningi þeirrar stofnunar, sem hefði síðan orðið leiðarljós þjóðarinnar um margar aldir. Nú væri, með stofnun skólanna við hinar heitu lindir, þetta náttúru- afl tekið að nýju í varanlega þjónustu andlegrar menningar í landinu. Kvað hann og Laugar- dal vera einskonar andlegt at- hvarf listamannanna. Frumherji í nýrri, íslenskri málaralist, Þór- arinn Þorláksson, hefði bygt sér hús að Laugarvatni, lagt mikla ást við dalinn, málað þar mörg af sínum fegurstu listaverkum og loks dáið þar. Þannig hefði farið þar fram einskonar nýtt landnám í málaralist. Taldi og margt benda á, að skólinn myndi njóta fegurðar dalsins gegnum þau hollu ítök, sem hún ætti í hugum listamanna. Þannig væru nú fjór- ir af málurum landsins búnir að gefa skólanum málverk eftir sig. Hugur þeirra leitaði þangað og þeim væri ljúft að láta þessa stofnun, sem reist væri í hjarta sveitarinnar, hljóta til eignar og varðveislu eitthvað af því, sem eftir þá lægi á sviði listarinnar. Óskaði hann þess, að Laugar- vatnsskóli mætti í þessu og fleiri efnum verða einskonar Strandar- kirkja. f Flórenz á Ítalíu, sem er ein mesta listaborg í heimi, kvað hann vera merkilega deild í mál- verkasafni borgarinnar. Þar væru saman komnai' andlitsmyndir af öllum málurum 19. aldar, sem þeir hefðu sjálfir málað og gefið safninu. Kvað hann Laugarvatns- skóla nú þegar hafa sérstöðu meðal íslenksra skóla um það, að hann einn ætti sjálfur málverk. Aðrir skólar hefðu málverk til geymslu. En ef hér gerðist eitt- hvað svipað og í Flórenz og áframhald yrði á vænlegri byrj- un, mætti svo fara, að allir mál- arar landsins sendu skólanum listaverk eftir sig. Myndi óvíða fara jafnvel um málverk eins og í þessum björtu, samstæðu kenslu- sölum. Þá benti ráðhen-ann á, að húsa- meistari ríkisins, Guðjón Samúels- son, hefði gert og gefið skólanum teikninguna. Myndi hún vera ein- hver fullkomnasta tilraun, sem gerð hefði verið, til þess að skapa nýjan, íslenskan byggingastíl í samræmi við náttúru landsins. — /sshJI 1 1 |í| fínfl fffl ffl'Wi iWffl li ffil ^3 II 13 1II 19 11 h, m jpls\ I ffl ' m ea la Ji i El s œ Framhlið. Bakhlið. Fyrsta gólf. Þá hefði Þorsteinn Gíslason skáld orkt og gefið skólanum kvæði. Væri það stutt og látlaust, en þannig mótuð af hugsunum þeirra, sem fyrir hefðu beist við stofnun skólans og þeim vonum, sem við hann væru bundnar, að það yrði varanleg eign skólans og mundi verða sungið þar um lang- an aldur. Þá gaf ráðherrann yfirlit um sögu skólanna á Suðurlandi. Benti á þá miklu auðn, sem orðið hefði, er hinir fornu skólar í Haukadal, Odda og Skálholti lögðust niður. Síðan hefði vöntun skóla í þessum fjölbygðu sveitum löngum verið áhyggjuefni ýmsra manna og lengi verið uppi ráðagerðir um að fá úr því^bætt, þó af framkvæmd- um hefði ekki orðið fyrr en nú. Væri nú risin hér stofnun, er ætla mætti, að yrði til langrar fram- búðar, þegar litið væri á skilyrðin og verkefnið. Myndu væntanlega, með þróun tímanna, rísa upp fleiri samskonar stofnanir á Suðurlandi, er ísinn væri nú brotinn og svo mvndarlegt spor stigið í þessa átt. Ráðherrann kvað sigur í þessu máli mjög að þakka unga fólkinu og íbúum næstu sveita. Þar hefði fórnarviljinn orðið mestur, þegar á reyndi. Fólkið myndi sjálfsagt vera svipað hér og annarsstaðar um þessi bygðalög. En ætla mætti að skólastaðurinn hefði riðið' baggamuninn. Hann væri vei til þess fallinn að vekja hrifningu og hvetja til átaka. 'Benti hann á það sem dæmi, að neysluvatn skólans væri leitt að um 11/2 km. Hefði unga fólkið, bæði konur og kariar, grafið vatnsleiðsluskurðinn að mestu leyti með þegnskaparvinnu. — Þá ættu bóndinn og húsfreyj- an á Laugarvatni mei’kilegan þátt í undirbúningi málsins og afdrif- um þess. Ýmsir af fyrri skólum landsins væri til orðnir fyrir meiri og minni fórnfýsi einstakra manna. Sú saga væri að endur- takast á Laugarvatni. Ráðabreytni Laugarvatnsfólksins myndi ekki verða talin hyggileg að almennu mati, er það slepti þessari jöi’ð úr umráðum ættarinnar, til þess að í stað hennar gæti með nokkur- um hætti komið öll ætt landsins. Kvað ráðherrann, að á engum hefði þungi málsins og fram- kvæmdanna hvílt jafnmikið og á form. skólanefndarinnar, Böðvari bónda á Laugarvatni. Kvaðst hann, vegna stjórnmálastarfsemi sinnar hafa kynst mörgum mönn- um í félagslegu starfi, en engan revnt að meiri traustleik og fóm- fýsi en Böðvar Magnússon. Eftir að ráðherrann hafði þann- ig litið til baka um sögn skóla- málsins, veik hann stuttlega að vonum þeim og framtíðardraum- um, sem við hann væru bundnir. Kvað liann vonirnar einkum verða miðaðar við verkefnið, sem fyrir lægi og skilyrðin, sem skólanum væru búin. Kvaðst hann þá ætla að segja það hér, sem hann hefði ekki sagt fyrri, að Laugarvatn væri að sinni hyggju besti skóla- staður í allri Evrópu, þegar á alt væri litið. Tók hann til saman- burðar Sórey, fegursta skólastað Dana: Sórey stæði í miðju Jót- landi. Skólinn væri reistur skamt frá allstóru vatni. Miklir garðar og trjálundir umkringdu skólann. 1 vatninu væru tvær eyjar og hefði umhverfið að bjóða alla þá fegurð, sem Danmörku væri gefin. En í Sórey væri enginn silungur í vatninu, engir silfurtærir lækir, engin uppspretta með dýrlegu vatni, engin á, sem gæfi raforku, engar skíðabrekkur, engin heit laug, sem nota mætti til hitunar, suðu, þvotta, baða og sunds. — Sórey hefði verið arineldur í danskri menningu um 700 ár. Þegar litið væri á skilyrðamun væri örðugt að geta sér til um það, hvað unt mundi verða að framkvæma á Laugarvatni í upp- eldi æskulýðsins. En ætla kvaðst hann, að síðar mundi verða al- ment viðurkent að hér hefðu á skynsamlegan hátt verið notuð þau skilyrði, sem náttúran sjálf leggur best til í landi okkar til uppeldis unga fólkinu. — Hér mundu verða iðkaðar úti-íþróttir eins og skíðagöngur, skautahlaup, sund, kappróðrar og fleira. — Skóginn í hlíðunum kvað ráðherr- ann hafa staðist beit um 1000 ár og með friðun og ræktun mundi verða unt að græða hér þróttmik- inn skóg. Alt benti því til, að Laugarvatn yrði staður ekki ein- ungis mikilsverður fyrir skóla- nemendurna, heldur myndu Reyk- víkingar sækja þangað til íþrótta- iðkana námskeiða og hressingar- dvala. Loks kvað ráðhei'rann, að sá

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.