Tíminn - 29.12.1928, Síða 2
280
TlMINN
Mjólkursamlag
Eyfirðinga
Tíminn hefir fengið eftirfar-
andi bréf frá Vilhjálmi Þóv
framkvæmdastjóra Kaupfélags
Eyf irðinga:
„Þér hafið hr. ritstjóri, æskt
nokkurra upplýsinga um Mjólkur-
samlag okkar og hafið beðið um
svai' við 7 spurningum yðar.
Spuniingar yðar voru þessar:
1. Hversu almenn er þátttaka?
2. Hve mikil mjólk berst bú-
inu?
8. Hvað er unnið úr mjólkinni?
4. Hvemig er húsnæðið?
5. Hve margt er starfsfólk
búsins?
6. Hvemig eru markaðshorf-
umar?
7. Hvaða þýðingu hefir stofn-
un mjólkurbúsins fyrir markað
mjólkur í bænum?
Það hefir dregist lengur en
góðu hófi gegnir að svara þess-
um spumingum yðar og biðjum
við afsökunar á því.*)
Spumingunum svörum vér í
sömu röð og spurt er:
1. Mjólkursamlagið byrjaði að
starfa þann 6. mars s. 1. Þá höfðu
skráð sig um 130 bændur sem
þátttakendur samlagsins. — Nú
eru samlagsmenn um 200 og eru
dreifðir yfir 6 hreppa, auk Ak-
ureyrarkaupstaðar, þar sem
nokkrir mjólkurframleiðendur eru
þátttakendur. Mjólkin er flutt á
mótorbát. Mesta vegalengd er 30
til 35 km. Þessar daglegu föstu
ferðir út um sveitir, sem mjólk-
urflutningarnir gera, stuðla að
viðskiftalegum og menningarleg-
um hag.
2. Það daglega mjólkurmagn,
sem samlaginu hefir borist, er að
meðaltali 3000 lítrar yfir vetrar-
mánuðina og ca. 2000 lítrar yfir
sumarmánuðina. Eftir ástæðum
má telja þessa mjólkurframleiðslu
allgóða, þegar þess er gætt að
þetta er fyrsta starfsár samlags-
ins, því hingað til hefir fjöldinn
af bændum eigi átt kost á mjólk-
ursölu, og af þeim ástæðum eigi
framleitt meira en sem svarar
neysluþörf heimilanna.
8. Nokkur hluti mjólkurinnar,
eða 6—700 lítrar daglega er
hreinsað, gerilsneytt, og sett á
flöskur og flutt heim til kaupenda
í bænum. öll mjólk, sem seld er
út úr samlaginu er hreinsuð og
gerilsneydd. Clr hinum hluta
mjólkurinnar er unnið smjör,
skyr og ostar. Af ostategundum
má nefna einkum mysuost
„Gauda“, „Edamer“ og „Stepper“
osta með 10, 20, 30 og 45% fitu-
magni.
4. Starfsfólk samlagsins er 2
stúlkur og 8 karlmenn auk for-
stöðumanns, tveir af þessum
mönnum eru ungir menn, sem eru
að læra. Auk þess er 1 karlmaður
og 3 drengir við flutning mjólk-
urinn heim til kaupendanna.
5. Eins og kunnugt er, var
gamalt sláturhús félagsins tekið
fyrir mjólkurvinsluna og á því
húsi gerðar nauðsynlegar breyt-
ingar. Með breytingunum varð þó
ekki unt að gera það svo hentugt
sem skyldi, þó eru horfur á að
þetta húsnæði muni nægja mjólk-
ursamlaginu fyrst um sinn.
6. Sala á afurðum samlagsins
hefir gengið vel. Sú tilraun, sem
gerð hefir verið með smjörsölu
á enskum og þýskum markaði,
lofar góðu um það að íslenskt
smjör geti orðið samkepnisfær
vara í framtíðinni. Hér innan-
lands er vaxandi eftirspum eftir
þessu smjöri.
Um útflutning á ostum hefir
ekki verið að ræða, hefir alt selst
hér innanlands.
Hér á Akureyri er talsverð
mjólkurframleiðsla eða um 150—
200 kýr. Sú mjólk, sem bærinn
*) Grein þessi heíir heðið alllengi
hirtingar vegna þrengsla. Ritstj.
þurfti umfram sína framleiðslu,
seldu bændur úr nágrenni kaup-
staðarins og var söluverð 35 aur-
ar pr. liter.
Þegar mjólkursamlagið byrjaði
hættu flestir bændur að selja
mjólk sína í bæinn, en létu hana
óskifta í mjólkursamlagið. Nokkr-
ir bændur standa ennþá utan við
mjólkursamlagið og flytja mjólk
sína í bæinn og selja eins og áður,
en aðstaða þeirra hefir versnað að
mun.
Mjólkin sem við seljum í bæinn
líkar yfirleitt vel, og nær stöðugt
meiri vínsældum, þó skortir nokk-
uð á það ennþá, að bæjarbúar
geri sér ljósa þá þýðingu, sem
þetta fyrirtæki hefir fyrir bæinn,
í stöku tilfellum kemst þröng-
sýnin svo langt, að jafnvel þeir
menn, sem stöðu sinnar vegna
eiga að teljast verðir og málsvar-
ar menningarinnar, þeir kunna
ekki að meta þessar heilbrigðis-
legu og menningarlegu umbætur,
að neinu“.
—-o-----
Kartöflur
Þeir eru nú orðnir æði margir,
sem hafa fengið og ræktað Ey-
vindarkartöflur og reynt þær út
um land, og hefi eg frétt frá
mörgum þeirra bæði skriflega og
munnlega.
Flestum mun kunnugt um
skoðun mína á þessu kartöfluaf-
brigði, svo eg þarf ekki að orð-
lengja það á þessum stað í þetta
sinn, — en í fáum orðum get eg
þó skýrt frá því; að enda þótt
„Eyvindarkartaflan" hafi ekki alt-
af gefið mesta uppskeru af þeim
afbrigðum, sem reynd hafa verið,
þá álít eg að hún sameini best
þá ýmsu kosti, sem við verðum
að krefjast að kartöfluafbrigði,
sem hér á rækta, hafi. En það
eru fyrst og fremst hreysti og
bráðþroski. Og þetta hafa flestir
fallist á, sem hafa ræktað þetta
afbrigði.
Þó er skylt að geta eins við-
víkjandi Eyvindarkartöflum, sem
menn hafa ekki verið sammála
um. Er það bragð þeirra. Og þar
skiftir í tvö horn, sumum finst
það ágætt, en öðrum afleitt. En
um bragðið þýðir ekki að deila,
því að þar ræður vaninn mestu.
En einn hygginn bóndi, sem ekki
var alveg ánægður með bragðið,
sagði við mig: „En eg sé að
skynsamlegast er að venja sig á
að borða það kartöfluafbrigði,
sem best vex og er hraustast“.
En kynlegt þykir mér þó að
kartafla þyki slæm til matar hér
á íslandi, sem Englendingum þyk-
ir afbragðsgóð og sem hinir mat-
vöndu Danir eru ánægðir með. En
hvernig svo sem þessu víkur við,
þá er eitt víst; að eftir síðastliðið
sumar, ber svo miklu minna á
kvörtunum undan bragði þeirra
heldur en áður. Og meira að segja,
mörgum þeim, sem áður þótti
bragð þeirra slæmt, þykir það
nú gott. Engan dóm skal eg leggja
á þetta atriði — enda hefi eg
aldrei getað fundið „slæma“
bragðið, hefi líklega ekki eins
„fínan smekk“ og sumir aðrir. En
það er enganvegiim ósennilegt, að
bragð útlendra afbrigða breytist
við áframhaldandi ræktun í ís-
lenskri jörð. En mér þykir vænt
um að svo miklu minna ber á
kvörtunum- um þetta atriði nú en
áður. — — Að endingu tek eg
mér svo bessaleyfi og birti smá-
kafla úr bréfum, sem mér hafa
borist utan af landi, af svæðinu
vestan frá ísafjarðardjúpi og
austur að Hornafirði; frá mönn-
um sem ræktað hafa Eyvindar-
kartöflur.
Gunnar Gunnarsson á Lauga-
bóli skrifar: „Eyvindur í aiman
lið spratt ágætlega í sumar.
Þyngsta kartafla vóg 850 gr.,
ekkert smælki. Sérstaklega tel eg
það höfuðkostinn við Eyvind,
h\(feð þær kartöflur vaxa fljótt,
menn geta farið að borða þær
snemma í júlí, þær voru þá hjá
mér í sumar orðnai* 125 gr. En
mér þykir þær ekki eins bragð-
góðar og okkar gamla kartöflu-
afbrigði“.
Gunnlaugur Þorsteinsson hér-
aðslæknir á Þingeyri skrifar:
„Kartöfluuppskera verður hér
nauðaléleg vegna þurkanna, eink-
um í sandgörðum. Eyvindur er
langbestur. Hjá mér hefir hann
sáralítið stækkað síðan í lok júlí-
mánaðar, en hefir þó góðan vöxt“.
Markús Torfason í Ólafsdal:
„Eyvindur“ vai' nú á nokkum
stöðum í sveitinni, og reyndist al-
staðar bétur en heimaaldar kar-
töflur. Þyngst var undan einu
grasi hjá mér 8500 gr. og þyngst-
ir einstaklingar 250 gr., sem telst
mjög góð stærð hér, þvl fremur
illa hagar til garðyrkju. Hjá Jóni
bónda Markússyni á Kveingrjóti
voru teknar 3 kartöflur 3 vikum
fyrir leitir, undan sama „Ey-
vindar“-grasi og voru þær til
samans 150 gr. Þessi bóndi er
mesti garðræktarmaður hér. Hæl-
ir hann Eyvindi á hvert reipi. öll-
um hér þykir „Eyvindur” mjög
bragðgóður og ágæt matarkar-
tafla. Munu þeir bændur sem nú
hafa hann ekki hugsa til að nota
útsæði af annari kartöflutegund
næsta vor. Alstaðar hefir hann
reynst betur en heimakartöfl-
umar“.
Stefán Egilsson í Flatey (faðir
Sigv. Kaldalóns læknis), sem nú
er á níræðisaldri, og hefur alla
tíð haft mikinn áhuga fyrir garð-
rækt, var einn af þeim fyrstu þar
vestra, sem fékk sér „Eyvindar“-
útsæði, skrifar: „Uppskera úr
görðum var ágæt hér í sumar. Eg
fékk alls 10 tunnur af kartöflum
og Eyvindartöflumar voru mjög
jafnstórar og lítið smátt. Eg lét
mann hér fá 20 pund af Eyvindar-
útsæði og sagðist hann aldrei
hafa fengið jafngóða uppskem,
sagðist hafa fengið um 8 tunnur,
en garðurinn var gamalræktaður.
Gulrófur fékk eg, sem vom 3 kg.
Bortfeldskar rðfur 3—4 kg. og
Blómkálshöfuð fékk eg mjög
góð“.
Helgi Haraldsson bóndi á
Hrafnkellsstöðum í Hrunamanna-
hreppi, skrifar: „Viðvíkjandi Ey-
vindarkartöflunum þori eg að full-
yrða það fyrir mig og marga
sveitunga mína; að það er síst of-
mælt að jafnstór blettur gefur nú
hálfu meiri uppskeru, síðan farið
var að nota þetta afbrigði".
Sveinbjörn Guðmundsson á
Hurðarbaki í Kjós segir svo frá
í bréfi til mín:
„Eyvindarkartöflur reyndust nú
miklu þéttari en í fyrra og vöxt-
urinn ágætur. Eg byrjaði að taka
upp 23. júlí. Þá eins og stórar út-
sáðskartöflur“.
Guðjón Jónsson í Lundi, í Vík
í Mýrdal, skrifar: „Eg sendi þér
hérmeð 8 Eyvindarkartöflur, eg
geri það rétt að gamni mínu til
þess að láta þig sjá hvemig upp-
skeran leit út. Það er obbinn af
þeim svona. Það var einhver fá-
dæma uppskera, mikið meira held-
ur en nokkumtíma hefir sést hér.
Sumstaðar voru milli 20—30 und-
ir sama grasi og alt stórt. Eg gat
naumast fengið niðursetu vöxt
sökum þess hvað þær vom stórar
og tók eg þær upp í miðjum
ágúst, þá svona stórar. Sumar
fékk eg sem vigtuðu 650 gr. og
fjölda um 500 gr. Eg reyndi okk-
ar gömlu kartöflur í sama garði
og „Eyvind“, en þær gáfu ekki
svipaða uppskeru".
Hákon Finnsson á Borgum í
Homafirði, segir í bréfi til mín:
„Eg hefi nú í 4 ár ræktað Ey-
vindkartöflur og rækta nú orðið
mest af þeim. Þær hafa reynst
mér eins og þú segir í hugvekj-
um þínum, en auk þess þykir okk-
ur að þær geymast mjög vel;
þannig að þær eins og festast og
batna á bragðið eftir því, sem
lengur líður“. R. Á.
heflr hlotífi «buóma
lof allra neytanda
Fæt í öilum verslun-
um o« vaitingahúsam
Verdlækkun.
Tœkifærijad eignast^ódýrar bækur j _
I. SÖGUBÆKUR:
1. Á refil8tigum, eftir hinn heimsfræga rithöf. Upton Sinclair .. kr. 2,00
2. Bjamargreifarnir, eftir Nataly von Eschtruth, (6,00)..........— 3,00
3. Maöur fré Suður-Ameríku, eftir Viktor Bridges (9,00) — 3,00
4. Einþykka stúlkan, eftir Charles Garvice, (4,00)...............— 2,00
5. Rodny Stone, eftir Conan Doyle................................— 1,75
6. Hefnd jarlsfrúarinnar, eftir George Sheldon, (5,00)...........— 2,00
7. Ræningjaklær, eftir Övre Richter Frich, (3,00)................— 2,00
8. Sú þriðja, eftir Henrik Sienkiwecz,(2,10).....................— 1,00
9. Sögur Breiðablika (10 úrvals sögur), þýddar eftir sr. Fr. Bergm. — 3,00
10. þorgils, eftir Maurice Hewlett, (2,50)........................— 2,00
11. Helreiðin, eftir Selmu Lagerlöf, (3,75).......................— 3,00
12. Greifinginn og barnið (sönn saga).............................— 0,35
13. Blómsturkarían (barnasaga) i skrautbandi......................— 3,75
14. Sagnaþættir II. Brynj. Jónsson frá Minna-Núpi, (1,00).........— 0,50
15. Saga Eiríks Magnússonar (Merar-Eiríks) eftir Símon Dalaskáld — 0,50
16. Smælingjar. Sögur eftir Einar Hjörleifsson....................— 2,50
HEmSKRlNGLU OG LÖGBERGS-SÖGUR:
1. Freistingin...............kr. 1,00 6. Peg............
2. Hulda.......................— 1,75 7. Skuggar og skin
3. Jón og Lára.................— 3,50 8. Viltur vegar .. .
4. Nokkrar smásögur............— 3,00 9. Dolorss.........
5. Myrtfe ....................•— 4,00
1L ÝMSAR BÆKUR:
1. Andvökur, Stephan G. Stephansson, I.—III. ób.........
2. Alt i grænum sjó, (leikrit) (2,00)....................
3. Annie Besant, æíisaga (4,00)..........................
4. Gneistar, Sig. Kr. Pjetursson (2,00)..................
5. Handhók almennings (ísL ríkisborgari) (3,50) J. K.
0. Hlýir straumar, Olíert Richard, ób. (4,00)...........
7. Sama bók, innb. (7,00)................................
8. Sunnanfari (6 síðustu árin) 8.—13. ár, (15,00)........
9. Uppsprettulindir, Guðm. Friöjónsson (3,50)............
10. Um íiskaklak, G. D. (1,35)...........................
kr. 4,00
— 5,00
— 5,00
— 3,00
kr. 8,00
— 1,00
— 2,50
— 1,00
— 1,50
— 1,75
— 3,00
— 8,00
— 1,50
— 0,50
Bækur eru aðelns sendar með póstkröíu, eða fyrirframgreiðslu, og
burðargjaldsfrítt ef beðið er um fyrir minst kr. 10,00 1 einu.
Bókabúðin, Laugaveg 46. Reykjavík.
GERPÚLVER
m«ð þessu merki trygglr yður
fyrsta flokks vöru.
Kaupið aðeins það besta.
H.f. Efnagerð Reykjavíkur.
H.f. Jón Sigmnndsson & Ca
Trúlofunar-
hringamhr
þjóðktnmu, úrval
af steinliringum,
skúfhólkum og
svuntuspennnm,
margt fleira. Sent
með póstkröfu út um land, eí óak*
að er.
Jón Sigmundsson, gullsmlður
Sími 883 — Laugaveg 8.
I heildsölu hjá:
Tóbaksverslun íslands h. f.
FÁLKA-
KAFFffiÆTIRINN
hefir & rúmu árl éunnlð
sór svo almenna hylii, aö
salan á honum ot orðin l/*
hluti af allrl kaffibœtlssölu
þessa lands.
Kaupíélagsatjórar, eendttð
pantanir yðar gegnum Sam-
bandiöl
Ritstjóri: Jónas Þorbergsson.
Sími 2219. Laugaveg 44.
Prentsm. Acta,
e