Tíminn - 20.04.1929, Qupperneq 3
TÍMINN
91
I c ik e 1 i
dekk og slöngur, er mjög vel þekt liér á
landi fyrir gæði.
Hefi þessi ágætu dekk fyrirliggjandi í
öllum stærðum, með mjög góðu vmði. T. d.
kosta 30X5 Extra Heavy Duty að eins kr.
124.00, SQXS'U (eða 31X4) Extra Heavy Duty kr. 50.00. Slöngur 30X5
kr. lö.oO, 30X3'/2 kr. 9.00 og alt eftir þessu. —
— Sendi út um alt land gegn póskröfu —.
Egill Vilhjálmsson
B. S. R. Reykjavík
kr., til innfl. sauðnauta 20 þús. kr.
Mjólkurfél. „Mjöll“: fyrir 4000 kemur
6000 kr.
Af brtt. einstakra þingm., sem sain-
þyktar voru, má nefna þessar: Til
Öxnadalsvegar 10 þús. kr., til Vopna-
fjarðarvegar 10 þús. kr. Fjórir sjúkra-
styrkir: Til Ólafs Stefánss. ísafirði
3000 kr.,- Jóns Jónssonar klæðskera
i Vestm.eyjum 1000 kr., Unnar Vil-
hjálmsdóttur kenslukonu 1200 kf.,
þorgils þorgilssonar Í Vestm.eyjum
3500 kr., til Iðnaðarm.fél. á ísafirð'
1200 kr., til Gagnfræðaskóla Rvíkur
2000 kr,, til Páls ísólfssonar til kensli;
í orgelleik 2500 kr., til þorbergs þórð
arsonar 2400 kr. (i stað 1200 áður),
til Magnúsar Ásgeirssonar til ljóða-
þýðinga úr erl. málum 1500 kr., til
Samúels Eggertssonar til að gefa úi
hlutfallauppdrátt af sögu ísl. 2000 kr.,
til áveitu- og sandgræðslu í Meðal
landi 5000 kr., til sandgræðslugirðing-
ar um Helluvaðs- og Grafarsand A
Rangárvölium 12000 kr., til Magnúsar
Jónssonar Torfastöðum til eflingar sil
ungaklaki 1200 kr., til vamar spjöll
um af jökulánni Skálm í Álftaveri
GG00 kr., til minningarsjóðs frú Maríu
Össurardóttur Flateyri ti 1 berkla-
varnastarfsemi 2000 kr.
Róður
mentaskólanemenda
í ræðu, sem forseti Alþingis, M. T.,
iiélt í Mentaskólanum fyrir nokkru,
komst ræðumaður þannig að orði, að
lítil væri framförin í iþróttaiðkunum
í skólanum, því að ekki væru enn
nema 2 stundir á viku til leikfimi
eins og fyrir 40 árum. Eggjaði hann
stjórn skólans, að láta nú ske nokkra
umbót á því sviði. Stjórnin hefir nú i
samráði við rektor og leikfimiskenn-
ara skólans f.engið leigða tvo kapp-
róðrarbáta handa piltum, og æfa þeiv
sig nú, dagiega þegar veður leyfir á
höfninni. Um 150 piltar tóku þátt í
þessum æfingum með hinum mesta
óhuga. Má vænta þess að skólinn hafi
eignast sína eigin báta fyrir haustið,
og að róður verði brátt vinsæl íþrót:
í mörgum skólum á íslandi. Mjöa
ólilct var tekið í málið af hálfu íhalds-
meirilílutans i bæjarstjórn Reykja-
vikur, þvi að fyrir fáum dögum neit-
aði bæjarstjórnin að gefa skólanum
blett við Skerjafjörð undir skúr fyrir
báta Mentaskólans. A.
—---O..—
virtist áhugi vera þar mikill fyrir
allskonar framförum 1 búskap og
jafnvel ekki síst hvað garðrækt
snertir. Eitt var sérkennilegt fyr-
ir námsskeiðið á Blönduósi og sem
eg hefi ekki vanist áður á bænda-
námsskeiðum. Þar voru haldin
þrjú erindi um trúmál — að til-
hlutun „Framfarafélags Austur-
Húnvetninga“. Séra Bjöm Stef-
ánsson á Auðkúlu flutti erindi um
kirkjumál, en séra Gunnar Áma-
son á Æsustöðum annað er hann
nefndi „Trú og vísindi“ og lét þau
faðmast. En. þriðja lesturinn hélt
Klemens Guðmundsson bóndi í
Bólstaðarhlíð, um trúarbrögð
kvekara. Mun Klemens vera fyrsti
og einasti kvekari á Islandi. Er-
indið var skipulega samið og flutl
af hógværð og stillingu. Nokkrar
umræður urðu út af erindum
klerkanna, en enginn andmælti
skoðunum þeirra, svo lítið fjör
varð á fundinum.
Ungt fólk á Blönduósi hafði æft
leiksýningu og var hin bráð-
skemtilega og víðkunna endileysa
„Föðursystir Charleys" sýnd tvö
kvöld í röð. Menn skemtu sér hið
besta við leikinn — enda allvel
leikið á pörtum. Bar þó nokkuð á
því að viðvaningum hættir oft við
að fara út í öfgar og er það síst
að furða, því æfðir leikarar
stranda við og við á því sama
skeri. Ekki kann eg að nefna
nöfn, enda þótt sumir leikendur
ættu það skilið, ekki síst ungu
stúlkurnar sem hörkuðu af sér
„flensuna" og fóru í leikinn með
talsverðum sótthita. En aðgöngu-
miðar allir að fyrstu leiksýning-
Svar til Ottós B.Arnar
O. B. A. ritar grein í Morgunblaðið
19. þ. m. um drátt ríkisstjórnarinnar
á byggingu hinnar fyrirhuguðu út-
varpsstöðvar og bendir þar meða!
annara á, að þingið ætti að kjósa
nefnd til að hrinda málinu í fram
kvæmd „og velja menn í hana eftir
hæfileikum en ekki kunningsskap
eða stjórnmálaskoðmium". í annan
stað bendir hann é, að það muni vera
skemtiferð fyrir G. Brlem að fara ti!
Prag, í þriðja lagi að hann (O. B. A.)
standi í sambandi við nefnd þá seni
íjalla á um bylgjulengdir í Evrópu,
og form. þeirrar nefndar hafi snúið
sér til sín út af drætti sttjórnarinnar
um svar við bréfi um þetta efni.
það sem O. B. A. segir um afskifti
stjórnarinnar í þessu máli, verður
skiljanlegt, þegar afstaða hans til
h.f. Útvarps er athuguð og ritgjörðir
úr sömu átt, þar sem heimtað var
að ríkisstjórnin tæki þegar að sér
sjúklinginn h.f. Útvarp, eftir að fé-
lagið varð að hætta sökum skipulags-
vanheilsu og skort á ráðunautum.
sem væru starfinu vaxnir. Um sam
band O. B. A. við nefnd þá, sem
hann segir að hafi með úthlutun
„bylgjulengda" að gera má sennilega
líta á þá staðhæfingu eins og aðrar
smáskrítlur, sem birst hafa eftir sama
höfund.
Eins og allir sjá, þarf mikinn tlma
til undirbúnings þessa máls og svo
er nú ekki nema ca. eitt ár síðan h.f.
Útvarp hætti að starfa. Annars mundi
fara best á því, að nefndur O. B. A.
kæmi sem minst við útvarpsmálið í
heild sinni, því bæði er það, að hann
er enginn sérfræðingur í þessum efn-
um og hitt, að hann er búinn að
slá svo mörg vindhögg, að það verð-
ur ekki tekið lengur mark á skrifum
hans um útvarpsmálið.
Út af ummælum hans um skemti
ferð Gunnl. Briems til Prag, er því
að svara, að nú er bylgjulengd feng-
in, eftir því sem eg veit best, sem er
einmitt mjög heppileg fyrir ísland.
Annars geri eg ráð fyrir, að ríkis-
stjómin muni vera einfær . um að
hrinda þessu máli i framkvæmd án
aðstoðar O. B. A. Ego.
----O-----
Áfelli hefir gert um land alt undan-
farna daga með allmiklu frosti, stór-
viðri og nokkurri fannkomu í norð-
urlandi. Hefir frostið þegar valdið
miklum skemdum á blómagróðri og
trjám í görðum og stendur voði fyrir
dyrum, um að gróður biði mikinn
hnekki, ef kuldar haldast. í dag er
aftur hlýrra.
unni voru uppseldir, svo ilt hefði
verið að fresta henni. — I miðri
vikuimi hélt Ungmennafél. Torfa-
lækjarhrepps skemtun og vorum
við félagar fengnir til að segja
frá og lesa upp. En síðan var
sungið og dansað og ekki stóðu
Húnvetningar Skagfirðingum að
baki í þeirri list.
Laugardaginn 2. mars kvöddum
við góðkunningja þá er við höfð-
um eignast á Blönduósi og héldum
á stað til Hvammstanga. En áðui
en farið var á stað skrapp eg yf-
ir á kvennaskólann að kveðja
stúlkurnar og las þá yfir þeim um
leið um blómarækt. Mér fanst eg
yfirleitt taka eftir þyí í ferðinni
að áhugi væri meiri og almennari
fyrir blómarækt norðanlands held-
ur en sunnan. Og að misráðið hafi
verið hjá mér að gera hana ekki
að umræðuefni á námsskeiðunum.
Við urðum síðbúnii' frá Blöndu-
ósi, en færð var ill. Við Sigurður
á Arnarvatni höfðum aldrei séð
Vatnsdal, en kunnum því illa að
fara framhjá honum án þess að
sjá hann. Varð því úr að við þáð-
um heimboð hjá Magnúsi bónda
• Stefánssyni á Flögu og gistum þai
um nóttina. Gott þótti okkur þar
að vera.
Dimt var er við ókum fram eft-
ir dalnum um kvöldið, en morg-
uninn eftir var bjart og hlýtt
sem á vori. Ljómaði Vatnsdalur
þá í dýrð sinni og ekki er ofsög-
um sagt frá honum. Enda segja
menn hann einna fríðastan dala á
Norðurlandi. Vatnsdalsfjall er
tignarlegt og hátt, sumstaðar gró-
ið grasi hátt uppeftir hlíðum, en
Fréttir.
Hvanneyrarskóli. Tímanum hefir
borist skýrsla skólans fyrir skólaárin
1926—1928. Kennir þar margra grasa
og er skýrslan mjög fróðleg.Auk nem-
endatals og frásagna um kenslu, nám-
skeið og skólalíf eru margvíslegar
yfirlitsskýrslur um störf skólans og
viðgang á liðnum árum. Er þar fyrst
að telja „Yfirlit um jarða- og húsa-
bœtur, er skólastjóri hefir framkvæmt
og kostað á árunum 1908—1928“. Eru
þar taldar margvíslegar sléttur, fram
ræsluskurðir, lokræsi, ílóðgarðar.
heimavegir, votheys- og safngryfjur
samtals 7950 dagsverk. þar við bætast
siðan miklar bætur útihúsa. — Ríkis-
sjóður hefir á árunum 1910—1928 lát-
ið reisa: skólahús, leikfimishús, íbúð
arhús í stað þess, sem brann 1917,
rafstöð og fjós yfir 80 nautgripi. —
Tún og engjar á Hvanneyri eru nú,
sem hér segir: Heimatún, að mestu
vélfært 25,3 ha., Staðarhóll 2.3 ha,
áveituegni, um 2/3 vélfært 60,8 ha. og
flæðiengi, utan áveitu 11.6 ha., sam-
tals 100.0 ha. Hefir verið lögð mikil
áhersla á að þurka, slétta og bæta
' engjarnar, sem mjög var ábótavant
Er mjög látið af því, hversu vel hafi
gefist vetraráveitan og fylgir mynd,
sem sýnir mittisháa gulstör. — Næst
er ítarlega gert grein fyrir uppsker-
unni á árunum 1907 til 1928. Var hún
síðasta árið: 1000 liestar taða, 2600
útliey, 25 tunnur kartöflur og 309
rófur. þá er áhaldaskýrsla og eru
áhöld skólans margvísleg og fullkom-
in. Meðal þeirra er dráttarvélin. Hefir
Páll Stefánsson frá þverá sýnt þá
rausn að gefa skólastjóranum dráttar-
vél, enda vélin vel sett þar sem aug-
lýsing og tæki til kenslu í meðferð
þessarar stórþörfu vélar. Telur sltóla-
stjórinn að vélin hafi reynst sér
prýðilega, kveður hana að vísu hafa
mátt vera aflmeiri, en hún sé olíu-
spör. Mest hefir hún verið notuð til
herfingar. Halldór skólastjóri gerlr
ágiskun um hvað kosta muni að
vinna eina dagsláttu með Fordson og
nauðsynlegum áhöldum og er hún á
þessa leið, þó miðað við lágmarks-
kostnað, þegar alt gangi vel: Stofn-
kostnaður vélar og verkfæra um 6000
kr. Gert ráð fyrir 3000 kr. láni úr
Vélasjóði með 5% vöxtum verður kr.
150.00. Af afganginum reiknast 7—8%
uin kr. 250.00. Afföll og viðhald vélar
25%, um kr. 1600.00. Samtals kr.
2000.00. Nú gerir hann ráð fyrir, að
saman vinni 2 dugandi menn er geti
unnið 150 dagsl. frosta á milli, en
telur þó aðeins 100 dagsl. vinnu, þó
alt gangi slysalaust og verður þá
annarstaðar agalegar skriður. Og
allur er dalurinn ein óslitin gras-
breiða. Snjórinn sem lá eftir í
lautum og skorum teiknaði hið
yndislegasta línuskraut á fjallið
ofanvert. Álftir flugu í hópum út
eftir dalnum og söfnuðust saman
og sungu á flúðunum fyrir neðan
Hjallaland, sem er þriðji bær í
d.alnum utanverðum — yndislegt
býli — en af þeim eru mörg í
Vatnsdal. En skamt fyrir neðan
Hjallaland eru hinar einkennilegu
endurminningar ísaldarinnar, hin-
ir frægu og fjölmörgu Vatnsdals-
hólar; — eitt af því þrenna sem
sagt er að óteljandi sé á Islandi,
eins og vötn á Tvídægru og eyjai
á Breiðafirði.
Mánudaginn þann 4. mars byrj-
uðum við á fyrirlestrum á
Hvammstanga og voru þar um og
yfir hundrað manns á námsskeið-
inu, úr kaupstaðnum og nærhggj-
andi sveitum. Hvammstangi er
heldur óskipulega bygður, en bæj-
arstæðið er í sjálfu sér gott. Fá-
eina smáa blómgarða sá eg þar,
en aðeins einn lítinn kartöflugarð.
En eigandi hans sagði mér að
hann hefði fengið 5 tunnur af kar-
töflum upp úr honum í haust.
Sýnir það að kartöflur má rækta
þar ekki síður en annarsstaðar,
enda virðist lega landsins sérlega
góð. En mér var sagt að hæns
þeirra Tangabúa hefðu útrýmt
garðræktinni þar, en ekki veit eg
þó hvort það er satt. Hvamms-
tangi stendur ekki á eigin lóð,
heldur verða menn að leigja þær
og sennilega stendur það ræktun-
inni eitthvað fyrir þrifum og ger-
kostnaðurinn á dagsláttu hverja:
Stofnkostnaður, afföll og viðhald um
kr. 20.00. Oliukostnaður um kr. 12.00
Kaup og fæði 2 manna kr. 20.00. Sam-
tals um kr. 52.00. Margt fleira er
fróðlegt í skýrslu þessari, sem oflangt
yrði upp að telja. Fæðiskostnaður
nemenda varð veturinn 1927—28 alls
um 284 kr. eða kr. 1.40 á dag.
Furðuleg málaferli. Eins og lesend-
ur minnast, höfðaði Einar Jónasson
fyrverandi sýslumaður mál gegn rík-
isstjórninni út af frávikningu sinni
Krafðist iiann þess, að ógiid yrði
dæmd frávikning sín, að hann yrði
að nýju settur inn í embættið og að
rikisstjórnin yrði dæmd til að greiða
sér 200 þús. kr. í skaðabætur fyrir
alitsspjöll. Var ríkisstjórnin sýknuð
af kærum og kröfum sækjandans i
undirrétti og staðfesti Hæstiréttur
nýlega þann dóm.
Dauði Natans Ketilssonar, leikritið,
eftir frú Eline Hoffmann, var sýnt
hér í fyrsta sinni á fimtudaginn við
gríðarlega aðsókn. Meginhlutverkin
leika: Tómas Hallgrímsson Natan,
frú Ingibjörg Steinsdóttir frá ísafirði
Agnesi og frú Svava Jónsdóttir frá
Akureyri Skáld-Rósu. Smærri hlut-
verk léku Haraldur Björnsson, Frið-
íinnur Guðjónsson og Gunnþórunn
Halldórsdóttir. Langmest mun hafa
þótt kveða að leik Ingibjargar Steins-
dóttur og er hún hér ný á leiksviði
Yfirleitt mun leikurinn hafa þótt ve!
sýndur. Að loknum leik voru leik
endur kallaðir fram og að síðustu
skáldkonan, höfundur leiksins, sem er
stödd hér i bænum, og öllum klapp-
að lof í lófa.
Magnús Olsen prófessor í norrænum
vísindum við Oslóar-háskóla, er um
þessar mundir gestur háskóla ís-
lands, samkvæmt boði háskólans
sjálfs og flytur hér erindi á vegum
háskólans um fræði sín. Veitti A1
þingi í fyrra dálitla fjárupphæð með
því augnamiði að háskólinn byði
hingað einum fræðimanni árlega, tii
þess að flytja vísindaleg erindi á
ir menn athafnaminni. En nú eiga
Tangamenn kost á að fá jörðina
kejipta og er líklegt að þeir láti
ekki það tækifæri úr greipum
ganga svo að hið marglofaða
framtak einstaklingsins fái að
njóta sín.
Á Hvammstanganámsskeiðið
kom einn Húnvetningurinn enn
með trúmálaerindi og flutti það
eitt kvöldið. Var hann þröngsýnni
en flestir aðrir sem eg hefi hlust-
að á. Enga viðurkendi fyrirlesar-
inn sem bræður sína eða systur,
nema þá sem trúa á meygetnað-
arkenninguna, og hverju orði bib-
líunnar bókstaflega. Svo vel var
hann lesinn í ritningunni, að hann
virtist kunna hana spjaldanna á
milli, en hinn þröngsýni skilning-
ur hans virtist gjörsamlega ósam-
boðinn þeirri þekkingu. Stakk
hann mjög í stúf við hina frjáls-
lyndu kennimenn austursýslunnar.
Frá Hvammstanga fórum við á
smábát til Borðeyrar og vorum í
5 kl.stundir á leiðinni. Hefi eg
aldrei fyr séð sjóinn jafn spegil-
sléttan. Æðarfuglinn synti í
stórhópum við Bjálkastaðanesið
og í kringum eyjarnar á Hrúta-
firði. Blikarnir og kollurnar hófu
sig þunglamalega til flugs þegar
báturinn nálgaðist, en gátu varla
lyft sér; stungu sér svo á bólandi
kaf er þeim fanst þeir vera komn-
ir nógu langt frá okkur.
Fagurt var að horfa til fpall-
anna á Ströndum.
Við stóðum við stundarkom á
bæ einum — Kollsá — á Strönd-
um og þáðum þar kaffi. Yfirleitt
voru sjaldan margir kilometrar
vegum skólans og er prófessor Olsen
fyrsti slíkur gestur. Hann varð, þrí
tugur að aldri, kennari í norrænum
fræðum við háskólann í Osló, eftir-
maður Soplius Bugge, er skörungur
var talinn í þeirri vísindagrein. þyk-
ir prófessor Olsen og mjög skara
fram úr og vera meðal fremstu for-
ustumanna í norrænum vísindum.
íslaudsmyndin. Loftur Guðmunds-
son kgl. liirðljósmyndari sýndi nýlega
íslandskvikmynd sína og bauð til
nokkrum gestum. Hefir myndin ver-
ið endurbætt og nokkuð aukin.
Bjarni Sæinundsson verður, samkv.
tilkynningu frá danska sendiherran-
um, gerður heiðursdoktor við Hafn-
arháskóla á 450 ára afmæli skólans,
sem fer í hönd.
Slysfarir. þann 4. apríl síðastl. varð
það hörmulega slvs í Skaftártungu að
tveir efnismenn druknuðu við veiði-
skap í Eldvatninu. Voru þeir: Sveinn
sonur hjónanna í Flögu, Vigfúsar
Gunnarssonar og Sigriðar Sveins-
dóttur og Páll Sigurðsson systursonur
húsfreyjunnar í Flögu. Eru slíkir at-
burðir stórum dapurlegir.
GvendarsjóSur. Norska skáldkonan
Sigrid Undset liefir nýlega stofnað
60 þús. kr. sjóð og á að verja vöxtum
lians til greiðslu skólagjalds fyrir fa-
tæk kaþólsk norsk börn. Vöxtunum á
að úthluta árlega á dánardegi Guð-
mundar góða Hólabiskups og hans
nafn ber sjóðurinn.
Tilbúinn áburSur. Norsk Hydro hef
ir undanfarið verið að stækka verk-
smiðjur sínar við Rjúkan, svo að
framleiðsla tilbúins úburðar eykst þar
mjög. Nú eru framleiddar þar 180
þúsund smálestir árlega, en eftir
stækkunina verður hægt að framleiða
þar 450 þús. smál. á sama tíma. Ný-
byggingar félagsins við Rjúkan hafa
kostað rúmlega 70 miljónir króna.
Ritstjóri: Jónas Þorbergsson,
Ásvallagötu 11. Sími 2219,
Prentsmiðjan Acta.
milli kaffibollanna á þessu ferða-
lagi okkar um Norðurland.
Skemtilegt var að sigla inn
Hrútafjörð í kvöldkyrðinni og tii
Borðeyrar komum við að kvöldi
þess 8. Þar stóð síðasta náms-
skeiðið yfir í 4 daga og var það
ágætlega sótt þrátt fyrir strjál-
bygð sveitanna þar. Gleðibragur
var yfir Strandamönnum — fáni
dreginn við hún á degi hverjum
og sungið mikið og vel. Kominn
var þar og hinn þjóðkunni kvæða-
maður Sigvaldi Indriðason úr Döl-
um og aldrei er. dapurt þar sem
hann er. Samankomnir voru
þarna Laxdælir, Hrútfirðingar,
Miðfirðingar og Strandamenn alla
leið utan úr Bitru.
Á Borðeyri búa milli 50—60
manns og er rúmlega helmingur-
inn börn. Þorpið er lítið en þrifa-
legt og ekki óskipulega bygt. Tíð-
in var hin besta þessa daga og
varð Strandamönnum tíðrætt um
hana. Enda hafa þeir oft átt við
annað að búa en blessað blíðviðr-
ið. Mannmargt var á Borðeyri
þessa dagana og glaumur og gleði
ríkjandi. Annan dag námsskeiðs-
ins, sem var sunnudagur, kom
þangað meygetnaðarpostulinn frá
Hvammstanga og lét ljós sitt
skína á milli kl. 12 og 1. En tala
„frelsaðra“ sálna eftir þann lestur
er mér ókumi. Enda leist mér svo
á Strandamenn, að þeir myndu
ekki þurfa slíkrar „frelsun •
ar“ við. — Miðvikudagsmorgun
kvöddum við Borðeyringa og
þökkuðum þeim ágætar viðtökur
og fórum suður að Hvanneyri um
kvöldið. Snjólaust var algjörlega