Tíminn - 20.07.1929, Síða 1

Tíminn - 20.07.1929, Síða 1
- <33jaíbfeti afgréi&sluma&ur Cimaits rr Hjannueig þorsteinefcóttir, Sambanösþústnu, Seyf)ia>if. j2^fgtdbðCa Ctmans er i Samban&sljúsinu. (Ðpin baglega 9—\2 f, 4. Stmi 99«. Xm. ár. Reykjavík, 20. júlí 1929. 47. blað. Ur utanför forsætisráðherra. Ódáinsæfi Lífdagur, hólmganga leikin við dauða, frá ljóssins boðun, varir til rökkva; er heimsnóttin leggur himnana auða og hvelfingar Alvalds á blysunum slökkva. En alstirni blátjalda á ekki hjarta. Örend skín sólin á hástólnum bjarta. — Jörðin vor heimur 0g himnaríki hringdansar geyminn, með ljósvaka örkum. Þar bírtist vor ásýnd í Alföður líki með eilífðar rétt, að veralda mörkum. En systurhvelin í Sunnuveldi signast af ljóma frá jarðnesku kveldi. Röðull er mældur. Vér þekkjum hans þunga og þræðum stjarnanna sporlausu brautir. Um jarðnesku undrin er orðlaus tunga. En eilífð oss fagnar við sigraðar þrautir. Almættis dáða er örskammt að bíða. Austbálin skína til norrænna lýða. Árnum oss fremda á táknanna tíma. * Turnar nú hrynja lögmáls og siðar. Þekking vors dags var sem dvínandi skíma gegn dýrð þessa ljóss er ei gengur til viðar. Sveiflurnar hamskipta afli og efni, Almætti hugarins raknar af svefni. — Einherjar þeysa til sólarsala og sökkvidjúpin friðbogum strengja. Þá kneifast, að háborðum vakinna vala, veigar sem andann og hjartað tengja. Þar er oss dauði lirakinn af höndum, Hirðsjótum Ása jafnir vér stöndum. Bannið er foreldri saka og syndar. Sálin í freistni er dygðanna móðir. Lífið frá dupti til drottins myndar dafnar í frelsi, við skaraðar glóðir. Jakobsþrep undir starandi stjörnum stigin skulu af Eddunnar börnum. Augnablikið og aldanna veldi að eilífu vitnar gegn tímans draumi. Hvar árdegi líður aldrei að kveldi er æfin hreifing með þrotlausum straumi. En sálin á líf, hún syrgir og kætist. Sanntrú á heilagan grun, sem rætist. Vor stjarna, eitt sandkorn í himnahafi, heimslíf oss kynnir um alla geyma. Sunna vor móðir og geislagjafi guðsríki lætur hjörtun dreyma. En öræfi hæðanna handan vors anda herjast af vopnum engils og fjanda. Andaðir vitrast, að æðri vilja, endurkvaddir af dánarreitum. Hvort skynjast nú ljóðbylgjur himinhylja; heyrum vér Mars, er hann þeytir skeytum? Ákalli hjartnanna framliðnir fylgja. Fjarlæg og djúp rís guðvakans bylgja. Vér skyggnumst í veraldir ósæis agna, sem alnándar kyngi reisir til valda. Þróun alls lífs er sinn mátt að magna; vor mið eru tindar og borgir skjalda. Þar sækir vort eðli að eigin kjarna sem æðanna blóðkorn, sem reikandi stjarna. — Kristni, þú afneitar meistarans mætti. Manst þú ei kraft sem björgunum lypti? Stórmerki smáðust að hópsins hætti; nú hefjist þau endur og fortjöldum svifti. Dýrð sé þeim konung, er kemur í skýjum. Vér knéföllum átrúnað máttkum og nýjum. — Aleyði veralda Útgarðar fagna. Óskapnaðs húm dvelur Loka í þeli. Hatur og einvistir myrkvann magna. Hann mundar sín vopn að ljóssins hveli. Uns geymurinn leiftrar og skín milli skauta í skelfingum hrapandi vetrarbrauta. Einar Benediktsson Tvent var það, af málefnum Is- lands, sem langoftast hneigðist tal að við útlenda menn. Hið fyrra hinar margháttuðu ráðstafanir sem nú eru fram- kvæmdar af Alþingi og stjómar- völdum til þess að endurreisa hinn íslenska landbúnað. Er því svo farið um flesta þá erlenda menn, sem ekki þekkja til fslands nema af afspum meira og minna, að um nútímans fs- land hafa þeir aðallega heyrt tal- að í sambandi við þorsk, síld og lýsi. Þorskurinn er enn merki ís- lands fram að þessu í hugmynd- um fjölmargra ytra. — Þeir fá nú fregnimar af því að ísland er ekki fiskiver eingöngu. Og þegar þeir nú heyra mest af því sagt af íslandi að verið sé að stofna sér- stakan banka fyrir landbúnaðinn, sérstaka vísindastofnun vegna bú- fjársjúkdómaima, jarðræktin margfaldist, innflutningur tilbúins áburðar ferfaldist á einu ári og af jarðyrtkjuvélum aukist inn- flutningurinn enn gífurlegar — þá er það víst, að hugmyndir margra á Norðurlöndum, um ís- land eru að breytast og þeir fá miklu réttari hugmynd um gæði og framtíðarmöguleika landsins sjálfs, sem þeir hafa hingað til bundið við sjóinn einan. Enginn vafi er á að af þessu vex hróður Islands út á við og af öllum greindum mönnum og Islandi velviljuðum, er svo á litið, að það sé hyggileg stjómmála- stefna að efla og styrkja land- búnaðinn í svo ríkum mæli, ekki síst er þeir sannfrétta að nýrækt- in á íslandi er framkvæmd á miklu frjósamari og auðunnara jarðvegi en Danir eiga við að fást í sinni nýrækt á Jótlandi og Norð- menn víðast hvar á Vesturströnd Noregs og þó telja margir í þess- um löndum, að þeim peningum þar í landi sé best varið sem ganga til styrktar nýrækt og fjölgun sjálfstæðra heimila út um bygðimar. — Hið síðamefnda af málefnum Islands sem nágrönnunum verður skrafdrjúgast um við Islending á ferðalagi, er það, að Islendingar ætli ekki að fara í slóð Dana og Norðmanna í gengismálinu held- ur ætli að verðfesta peningana í núverandi gildi þeirra. 0g undan- tekningalítið, eða undantekninga- laust er þeirri fregn vel fagnað landsins vegna. — Danir og Norð- menn hafa fengið hina beisku reynslu af gengishækkuninni. Ættu þeir nú að gjöra það kjör, sem þeir gjörðu fyrir nokkrum árum, mundu fjármálamenn þeirra vafalaust heimta verðfest- ing í stað hækkunar. 1 hundruð- um miljóna króna má reikna og benda á beina og óbeina tjónið af gengishækkuninni þar og glöggir menn telja að böl gengishækkun- arinnar í Danmörku og Noregi hafi beinlínis sett sitt svartsýni- mark á núverandi kynslóð. Og um langan aldur enn muni löndin búa að sjálfskaparvítum gengis- hælckunarinnar. Blindur má sá maður vera sem í ljósi reynslunn- ar frá Danmörku og Noregi hvet- ur til gengishækkunar á Islandi. 1 síðustu mannsaldrana hafa nágrannaþjóðir okkar glímt við þau vandamál, sem nú fyrst era alvarlega að koma upp í hend- urnar á okkur: um verkbönn, verkföll og tilraunir að koma á vinnufriði. Og þó að bestu menn þjóðanna þar hafi í mannsaldra leítað ráða við erfiðleikunum í þessu efni, þá dettur engum í hug þar í löndum, að halda því fram að ráðið sé fundið, og þó síst með harðsnúnum þvingunar- ráðstöfunum fyrir aiman aðila eða báða. Sá maður er ekki til á Norðurlöndum, sem heldur að þessi miklu vandamál verði leyst með þvingandi dómstóli. Norðmenn hafa einmitt nú full- reynt sig á tilraun í þessu efni. Þeir lögleiddu gerðardóm ákveðið árabil. Fresturinn var útrunninn nú. Tilraunin hafði mistekist svo átakanlega, að aðeins mjög lítill hluti stórþingsins gat hugsað til að framlengja gerðardómslögin. Og nú eru þau fallin úr gildi og koma fyrirsjáanlega ekki í gildi í tíð þeirrar kynslóðar sem man hvemig þau gáfust. Við eigum að læra af reynslu nágranna okkar, Islendingar. Við eigum að geta sparað okkur að hnjóta um þá þröskulda sem þeir hafa hnotið um og yfirgefið að fullu. Það sem við þörfnumst er að fá hlutlausa fræðslu um reynslu annara þjóða í þessum al- varlegu og þýðingarmiklu málum. Vanþekking manna hér á landi um þessi mál er ekki óeðlileg, en þjóðin getur búið lengi að skað- vænum afleiðingum, ef farið verður með fljótræði og vanþekk- ingu að stíga stór spor í þessu efni. Væri vel ef hlutlaus fræðsla um þessi mál fengist áður en næsta Alþingi fjallar um þau að nýju. Skamma vegalengd frá Björg- vin liggur einn af elstu búnaðar- skólum Norðmanna, búnaðarskól- inn á Stend. Gafst Tr. Þ. tími til að skreppa þangað um leið og farið var hjá — meðfram vegna þess að sá skóli kemur eigi lítið við búnaðarsögu Islands á sinni tíð. Fyrir 1880 sóttu íslenskir búfræðinemar þann skóla meira en nokkurn annan erlendan bún- aðarskóla. Árin 1874—76 eru t. d. sjö íslenskir námsmenn á Stend, og nálega 20 alls fram að 1880, en úr því strjálast. Urðu margir þeirra síðar kennarar og leiðtog- ar hér heima í búskap, t. d. Sveinn Sveinsson skólastjóri á Hvanneyri, Jónas Eiríksson og Guttormur Vigfússon skólastjórar á Eiðum, Jósep Bjömsson skóla- stjóri á Hólum, Bjöm Bjarnarson bóndi í Grafarholti og Eggert Finnsson bóndi á Meðalfelli, — og löngu síðar fór Sigurður bún- aðaimálastjóri sömu leiðina. Lif- ir ekki annað en minningin ein um Islendingana á Stend og þó óljós. Skólinn er rekinn á líkan hátt og ömtin ráku búnaðarskólana hér fram yfir síðustu aldamót. Opinber búrekstur, skólastjórinn bústjórinn, nemendumir vinna alla vinnu sem til fellur á hinu stóra búi og við margvíslegar til- raunir, þá 18 mánuði samfleytt sem þeir eru nemendur 0g vinnu- menn skólans. Og þar er þáð orðin regla, nálega án undantekn- ingar, að piltarnir fara fyrst á lýðskólana til hins almenna náms, og síðan á búnaðarskólana til sérfræðinámsins, verklegs og munnlegs. Fjömtíu búnaðarskóla slíka eiga Norðmenn, áuk búnað- arháskólans í Ási og ýmissa fræðslustofnana vegna sérstakra búvísinda, styrktir af ríki og fylki, en reknir af fylkjunum. Níutíu þúsund krónu ársstyrk fær skólinn á Stend — lítið fleiri nemendur en bændaskólamir okk- ar geta tekið við —- auk teknanna af hinu stóra þrautræktaða landi, rétt við hliðina á markaðinum í Björgvin. Er það af öllu ljóst að fylkin og ríkið norska skerá ekki við nögl sér framlögin til þess að vandað sé til uppeldis bændaefn- anna. ----o----- Samkepni listamanna um minn- ispeninga alþingishátíðarinnar er nú lokið. Tíu krónu peningar verða gerðir eftir fyrirmjmd Einars Jónssonar frá Galtafelli, en fimm krónu peningar eftir fyrirmynd- um Guðmundar Einarssonar frá Miðdal og Baldvins Bjömsonar gullsmiðs í Vestm.eyjum. Tveggja krónu peningar verða gerðir eftir fyrirmyndum Tryggva Magnús- sonar málara og Baldvins gullsm. Utan úr heimi. Vígbúnaður Dana. Þess var getið í Tímanum í vor, að afstaðan til hermálanna hefði orðið dönsku Vinstrimannastjóm- inni að falli. Stjórninni hafði tek- ist að koma á nokkrum spamaði á útgjöldum til hersins og vildi halda honum áfram. Ihaldsmenn vildu meiri vígbúnað en áður. Jafnaðarmenn og Radikali flokk- urinn vilja hinsvegar helst leggja niður her og vopnaburð í landinu. Nú hafa Jafnaðarmenn völd. Fer fylgi þeirra vaxandi og er mjög mikið, einkum í bæjunum. I Khöfn hafa þeir meirahluta í bæjarstjórn. Vilji stjóm þeirra halda fast við það, sem þeir hafa látið í veðri vaka, verður hún nú að draga úr vígbúnaðinum til muna. Mun hún og hafa hug á einhverjum slíkum ráðstöfunum. Hernaðarstefnan virðist hafa mjög lítið fylgi í Danmörku. Danir eru góðlyndir og frábitnir blóðsúthellingum. Ibúamir í Khöfn kvarta um óþægindi af heræfing- um, sem fram fara í borginni. Úti á Amager er staður, þar sem fallbyssuliðið æfir sig í skotfimi. Þykir það valda hávaða og jafn- vel slysum. Nú er stjómin að kaupa heiðalönd vestur á Jót- landi og ætlar að láta stórskota- liðsæfingarnar fara þar fram eftirleiðis. Á svo að táka landið til ræktunar, þegar fallbyssumar verða lagðar niður, sem sennilega verður bráðlega, ef hinir óherskáu stjómmálamenn verða við völd eftirleiðis. Fyrir nokkru síðan var háð knattspyma milli nágrannaþjóð- anna þriggja, Dana, Svía og Norðmanna. Danir urðu undir i þeim viðskiftum. Létu þá sum íhaldsblöðin svo um mælt, að með hernaðarandanum væri öll hetju- dáð horfin úr þjóðinni. En ekki tóku blöð hinna flokkanna þau ummæli alvarlega. Danir hafa undanfarin ár varið um 40 miljónum króna til her- mála. Mun sú upphæð vera ná- lægt 8% af ríkisútgjöldunum. Al- menn vamarakylda er ennþá í landinu. Auk landhersins, heldur ríkið uppi nokkmm herskipum. Þegar Estrup fór með völd fyrir nokkrum áratugum, var unnið að því að víggirða Kaupmannahöfn. En lítil not eru nú þeirra víggirð- inga, og sjá víst flestir eftir því fé, sem til þeirra var varið. Það mun ekki ofmælt, að Danir standi mjög framarlega í menn- ingu meðal Norðurálfuþjóða. Land sitt yrkja þeir svo vel, að svo að segja hver blettur er gró- inn. Alþýðuskóla eiga þeir betri

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.