Tíminn - 20.07.1929, Page 4

Tíminn - 20.07.1929, Page 4
164 TlMINN Ritfregnir Sigurjón Frlðjónsson: LJóð- mæli. Reykjavík. — Prent- smiðjan Gutenberg 1928. Oft er talað um kraft í kvæðum og dáðst að honum, þar sem menn þykj- ast finna hann. En menn villast oft í því efni og hyggja, að kraftur sé fólginn í stóryrðum, klúryrðum og ó- hemju orðahröngli. En slíkt ber að- eins á sér yfirskin kraítarins, en af- neitar hans eðli. — Kraftur ljóða er fólginn í því, að efnið sé gripið fasta- tökum næmrar sálar, — í því, að þróttur innileikans sé lagður í með- ferð efnisins, — er fólginn í einbeit- ingu hugans að settu marki, en ekki í neinum umsigslætti eða handa- pati til þess að benda á stóryrðin og glamuryrðin. Kraftur í kvæðum er, í stuttu máli sagt, alúð (í eiginlegri merkingu orðsins, al-hugur), inni- leiki, einbeiting. Sé þessi skilgreining mín rétt, er mikill kraftur í kvæðum Sigurjóns Friðjónssonar, þótt þau séu þýð og ómblíð, — kraftur, sem „ei vill ærsl- ast hátt“, en er taminn undir vald viljans. Innileikinn er eitt aðalein- kenni þeirra, ásamt falslausri ein- lægni tilfinninganna. Hvað er insta eðli ljóðaskáldskap- ar? það er auðveldara að spyrja, en að svara. En eg hygg, að sannur ljóð- rænn skáldskapur sé í innsta eðli sínu yfirskilvitlegur (transcendental), jafnvel þótt hann lýsi skynjanlegum eða skilvitlegum hlutum. Skáldin eru boðberar himneskrar dýrðar — eða himnesks harms; þau eru sjáendur, sem skygnast inn í heim, sem flest- um er dulinn nema á sjaldgæfum augnablikum, og þau reyna að bera boð um reynslu sína, — láta blæ til- finninganna leika um hrjósturlönd mannlífsins. í hljóðfalli og átakan- legum orðum túlka þau óma þá, sem tilveran leikur á strengi mannlegrar sálar. þann dularblæ skáldskaparins, sem hrífur hugann eins og annarlegur, en þó kunnuglegur söngur, eiga kvæði Sigu'rjóns í ríkulegum mæli. þau opna nýja heima, ný útsýni, þar sem andann grunar ennþá fleira og meira en augað sér eða orðin segja, því lengur sem maður horfir á fjalls- tinda kvæða hans, því meir dreymir mann um ónumin dýrðarlönd, er fel- ist bak við firrðar bláma fjallanna. Eg ætla að nefna nokkur kvæði, sem hafa á sér þenna yfirskilvitl.ega blæ, sem eg hefi minnst á: „Sól yfir landi ljómar“(bls. 18), „Úr rímu af Helga Hálfdánarsyni" bls. (75—81), „Ég heyrði frá Ódáinsakri" (bls. 251), „Síðkvöld" (bls. 93), „Skammdegis- stund“ (bls. 133) og fleiri sonnettur. En þetta yrði of langt upp að telja; rúmið leyfir það ekki. Titrandi óró er eitt aðaleinkenni á kvæðum Sigurjóns. Von og kvíði togast þar á, þrá og söknuður. Æska skáldsins er horfin og sést aðeins i hillingum, en óró æskunnar dvelur enn með skáldinu, og söknuðurinn er sár og sæll í einu. En hver veit, nema fram undan bíði önnur æska, hugsar skáldið, er hann segir: „Ljúfsárt tekur hið liðna, líður hitt fram með grun um óþektar úthafsstrendur og ókendra fossa dun“. Og að endingu fer svo, að „Kveðju ber geisli úr kvöldroðans purpuraskrúði og konunglegt bros niðr djúp minnar leitandi sálar“. þó að svo geti litið út, sem „aldrei fái endursvar ósk, er dýpst í hug þér var“. (Haustnótt). þá er hitt þó oftar, að „vonar fléttast elfarómar inn í nið frá tregans hafi“. — Yrkisefni Sigurjóns eru með ýmsu móti: Náttúran í ýmsum myndum hennar er honum kær, og um hana yrkir hann mikið, en stundum hvess- ir hann sjón yfir mannlífið, og þó að lítið sé um ádeilur á aðra menn, er í þeim kvæðum margt spaklega sagt á yfirlætislausan hátt. En umfram alt kynnumst vér og sjáum öldurótið á sálarhafi skáldsins, — í sorg og gleði( i von og kvíða, óró og ör- yggi. Og það ber vott um göfuga, næma og viðkvæma sál. Sigurjón heyrir betur en hann sér, í skáldskap sínum. Kvæði hans eru fremur ómræn, en myndræm. Að því leyti líkist hann Stgr. Thorsteinsson og Guðm. Guðmundssyni. Honum er þetta og vel ljóst, sem sjá má á for- máianum í bókinni. — Eg vil ekki haida þvi fram, aö öii kvæói Sigurjóns séu jaíngóð, nó fuli- yrða, að ekki finnist tilkomulitii kvæöi innan um, en ljóðin eru samt íurðuiega jaínialieg yíirieitt. það er ekki aiisendis kostur, að raða kvæð- uuum eins, og höí. heíir gjört, eftir eini. Með þeim hætti þreytist iesand- inn á mörgum likum kvæöum og fær ekki þá hviid, sem breyting á eíni veitn. En það sýnir m. a. gæöi kvæó- anna, hvað v.ei þau þola það, að veru hrúgað svona saman. Ytri írágangur bókarinnar er góð- ur að öðru ieyti en því, að prófarka- iestri er aiimjög áíátt. Eru sumar prentviiiurnar meinlegar. Eg ætia hér að ieiðrétta þær heistu, sem eg heii rekist á: - Bls. 9: vanræningja í. von-; bls. 37: iö í'. iör; bls. öð: Roðaði himin i. iioðnaöi kiunin; bis. 79: endurskir i. endurskin; oitar i. aitui’; bls. 82: hjóði i. hijóði; bis. 83: ránariund í. ránar íund; bis. 93: iiver alda hans i. iiver aida harms; bis. 103—4 ein- inuua í. eimuna; bls. 114: það iiðna í. liið iiðna; bis. 128: kasti f. kosti; bls. 129: að vonum i. aí vonum; bls. J33: keik i'. kvik; bls. 136: keik f. kvik; bls. 145: sálartundur f. sólar-, irá hnjóði í'. i njóði (= veðurþytur, kuidi); bls. 148: móðumistri í. móðu rnistri; bls. 149: úr hafísnum í. úr haiisum; bls. 156: iijrrðir i. hjarðir; að sólarbrá f. aí s.: bls. 165: vinda i. rinda; bls. 167: hæru í. hvern; bls. 173: huldar i. huidu; ljómaskin í. ljóma skin; bls. 174: sem lýsi sól i'. sem rísi sói; bls. 186: draumvana f. draumvona; bls. 194: i einu f. í einn; bls. 199:^ sólarbuga f. sálarbuga; bls. 202 og 203: íeigðar hulda éli f. feigð- ar kulda éli; bls. 203: að degi dug f. að deigi dug; bls. 204: berujóður t. berurjóður; bls. 207: Ástrún f. Ásrún; bls. 226 finst mór þó f. finst mér þá, bls. 229: eg fann þig ekki þó f. og fann o. s. frv.; bls. 233: sólaryls f. sálaryls; bls. 236: hval f. hvol; bls. 242: Myrkrið f. Myrkvið; bls. 246: kærri f. hverri; bls. 257: á hjörtum f. á kjörum; bls. 259: Staðarbarnsins f. Storðarbarnsins; bls. 263: fer vonin víða f. fer vorið víða; bls. 265: hans alföður f. hana ali'öður; hvert ár f. hvert ar; bls. 266: er varar að nýju f. er vorar o. s. frv.; bls. 271: Eg heyrði söng þinn hljóma, heyrði’ hann hljóma i'. Eg heyrði söng þinn óma, heyrði’ hann óma; bls. 283: Líkt fuglinn þeim f. Líkt fuglum þeim. Jakob Jóh. Smári. Grásklnna. Annað hefti af Gráskinnu er nýlega komið út. Eru i því margar merki- legar og vel sagðar sögur og sumar magnaðar. Stendur þetta hefti ekki því fyrra að baki og er Gráskinna líkleg til að verða hið vinsælasta rit. Eiga skrásetjendur og útgefandi þakkir fyrir að forða slíkum sögum frá gleymsku. Aldrei verður nógsamlega brýnt fyrir fólki, sem á slíkar gersimar í fórum sínum og sumar alþýðusagnir eru, að skrásetja þær og forða þeim frá gröf gleymskunnar. þjóðsögumar hafa svo margskonar menningargildi að þær mega hiklaust teljast tii hinna dýrmætustu minja þjóðarinnar og ættu sem flestir að hjálpa þeim þórbergi þórðarsyni og prófessor Nordal við að halda þeim til haga. Ekkert er vissara en að mörgu slíku er enn ósafnað á landi voru, hœði af gömlum og nýjum sögum sem fengur er í. Allur er frágangur á Gráskinnu hinn prýðilegasti og líklegt er að þjóðsagnasafn þettað verði vinsælt. Árbók hins íslenska Fomleifafélags er nýkomin út. Er Árbókin að vanda fróðleg og skemtileg aflestrar, þeim sem fornum fræðum unna. Ritið liefur m. a. inni að halda þrjár rit- gerðir eftir þá fróðu bræður Skúla á Keldum, Jón heitinn á Ægissíðu og Vigfús Guðm. fyrrum bónda í Haga Ritar Skúli um nokkur ömefni og staðhætti í Njálu, en Jón um Holts- vað, Holtavað m. m., en Vigfús um Landnám Flosa þorbjarnarsonar. Ei- ríkur Briem prófessor ritar um nokk ur örnefni i Víga-Glúmssögu, en þorst. þorsteinsson sýslum. um bæinn Hafratindar. En síðast koma tvær rit- gerðir um örnefni. Önnur um örnefm ■í Reykjahverfi eítir Skúla þorsteins- son, en hin eftir Guðm. Árnason í Múla á Landi um örnefni á Land- mannaafrjetti. Em báðar þessar greinar hinar fróðlegustu og er það vel þegar fróðir menn bjarga hin- um góðu og gömlu örnefnum írá gleymsku. Guðm. í Múla tekur og réttilega fram er hann segir frá: „Og þess fremur tel eg þess þörf, að á síðari árum hafa fjallaferðir kaup- staðarbúa og útiendinga farið í vöxt, en þeir oftast ókunnugir og freistart til að gefa ýmsum stöðum nöfn, sem geta valdið ruglingi síðar". Síðast í ritinu er skýrsla Fomleifafélagsins og félagatal, og er næsta furðulegt að fé- lag sem þetta skuli ekki hafa fleiri félaga en talan ber með sér. Nýjar kvöldvökur. þegar Nýjar Kvöldvökur voru stofn- aðar, árið 1907, varð séra Jónas Jón- asson skáld á Hrafnagili ritstjóri þeirra. Undir stjóm hans urðu þær hið vinsælasta tímarit, enda vóru þær alþýðlegar, fjölbreyttar og vand- aðar að efni. Hafa þær lengi síðan búið að þeim vinsældum og um skeið sennilega verið útbreiddasta tímarit landsins. En síðan séra Jónas sálugi lét af ritstjórn N. K., 1917, hefir verið hljóð- ara um þær, þar til þorst. M. Jóns- son bóksali á Akureyri keypti ritið, fyrir rúml. ári síðan. þ. M. J. hefir ráðið Friðrik Ás- mundsson Brekkan fyrir ritstjóra N.- K. og eru hefti þau sem gefin hafa verið út síðan hann tók við, fjöl- breytt að efni og hin læsilegustu. Virðist alt benda til að ritstjóra og útgefanda takist að afla N.-K. á ný þeirra vinsælda sem þær nutu áður. R. Á. ----o---- Frá Borgarnesgfundiniim. Fundurinn var haldinn 24. júní i slátrunarhúsi Sláturfél. Borgarfj. Á fundinum voru mættir 150—200 manns, þar af vorum við allmörg hingað og þangað að af landinu, sem biðum eftir fari á „Suðurlandinu“ til Rvíkur. Mjög fátt mun hafa verið af sveitamönnum úr héraðinu. Til máls tóku af hálfu íhaldsins: Sig. Eggerz, Kristján Jónasson kaupm., Pétur Ottesen, Stefán Bjömsson í Borgarnesi og Guðm. Jó- hannsson kaupm. úr Rvík, en af hálfu Framsóknar: Jónas þorbergs- son,. Hannes dýralæknir, Bjarni Ás- geirsson, Vigfús Guðmundsson og Hervald Bjömsson. Eggerz talaði um sjálfstæðið og var gamansamur, Kristján einnig, og líkti saman Jóni Sigurðssyni og Eggerz! Guðmundur mintist einhverra „sterta", „gróssera" og Ameríkana og hve illa Framsóknarstjórnin færi að ráði sínu, að vilja hegna glæpa- mönnum. Bar hann ótt á og sagði mörg orð á sínum ræðutíma, enda kvað hann vera ein helsta upprenn- andi stjaman hjá Ihaldsflokknum í Rvík. Stefán Björnsson mintist helst á lagabrot og hve óheiðarlega væri unnið frá Framsóknar hálfu í stjóm- málum og að Framsóknarmenn væru svo óvandir að meðulum! Ottesen hélt sig mest við bitlinga stjórnarinnar og að reyna að draga heiðurinn af því sem gert hefir verið í landbúnaðarmálum að undanfömu yfir á íhaldið. Bað hann bændur að taka vel eftir, að örlítið brot af verði allrar síldar væri eftir síldarlögunum nýju lagt i sjóð til að tryggja verka- fólkinu kaup sitt, sem að síldinni vinnur. það væri hin mesta óhæfa og sannaði bolsa-vináttu Framsóknar eins og að vilja draga úr braski með jarðir samkvæmt 9. gr. í lögum um Byggingar- og landnámssjóð. Ottesen var sniðugur að blekkja og hefir hæst og mestan kraft þegar hann er að sniðskera utan við sann- leikann. Bjarni Ásgeirsson talaði íyrstur af hálfu Framsóknar og hrakti margar staðhæfingar Eggerz og seinna Otte- seiis. Jónas þorbergsson mintist sjálf- stæðisbrölts Eggerz, sem endaði nú í því, að hann fengi í lið með sér öll óþjóðlegustu öflin í landinu: Útlend- ingana, leppana og hálfdanska Is- lendinga. Og þetta lið þættist svo sérstaklega ætla að standa á verði um sjálfstæði íslahds. Virtist mér Jónas vera skemtilegasti og rökfim- asti ræðumaðurinn, sem þarna lét til sín heyra. — Hannes sýndi fram á baráttu Framsóknar í landbúnaðar- málunum, þrjósku íhaldsins gegn Höfum til: Amerfsk garðyrkjuverkfæri af besfu gerð s. s., garðhrífur, handherfi og hðggkvíslar Samband isl. samvinuufél. Reykjavík Gagnfræðaskólinn í Flensborg, Hafnarfirði. Eldri nemendur og nýir, er hafa í hyggju að sækja um inn- töku í Flensborgarskólann næsta vetur, verða að hafa sent undir- rituðum umsóknir um það fyrir 1. september. Heimavistarmenn verða að leggja sér til rúmföt, svo og nóg fé, eða tryggingu fyrir heimavistarkostnaði, er svari til 60 kr. á mánuði í 7 mánuði. Skól- inn verður settur 1. október, og verða þeir, sem vilja setjast í 2. eða 3. beikk og hafa ekki tekið þessi bekkjarpróf, að ganga undir inntökupróf, sem verður haldið 2. og 3. október. Nýir nemendur, sem ganga inn í 1. bekk, verða einnig prófaðir sömu daga. Skilyrði fyrir iimtöku í skólann eru: a. að umsækjandi hafi óflekkað mannorð og engan næman sjúk- dóm, b. að hann hafi lært svo vel þær námsgreinir, sem heimtað er í fræðslulögunum að 14 ára nemendur hafi numið og kennarar skólans gera kröfu til. c. Að hann verði í skólanum allan skólatíminn. Heimavistarmenn verða að hafa fjárhaldsmann í Hafnarfirði eða Reykjavík, sem skólastjóri tekur gildan. Hafnarfirði, 15. júlí 1929. Ögmundur Sigurðsson Ziýðháskólinn i Voss Lýðhéskólinn í Voss byrjar 7. október næstkomandi og steadur ytir til páska. Undirritaður gefur skýringar um skólann og tekur é móti umaóknucn. Yfir 60 íslendingar hafa stundað nám í Lýðháskólanum 1 Voaa. Öystein Eskeland, Voaa, Noregi. hverskonar umbótum, en jafnframt græðgi þess að eigna sér þær þegar þær væru komnar fram. Hve það væri heimskulegt að ásaka stjórnina um, þótt hún borgaði einhverjar smærri upphæðir til einstakra manna eða nefnda, til undirbúnings eða rannsóknar á störfum, sem gæfu oft þó aftur margfaldar tekjur í ríkissjóð, stundum tífaldar og stund- um hundraðfaldar á við „bitlinginn", sem íhaldið væri að gera sér mat úr. Nefndi hann svo til þessa ýms dæmi, en Ottesen sæi þetta ekki, því liann endurskoðaði aldrei nema auradálkana og sæi í hæsta lagi „tíkallana“. Vigfús mintist á veiði Eggerz í „bláu vökinni". Nú héldi hann að hann hefði veitt allan íhaldsflokk- inn, en sannleikurinn væri sá, að druknandi úr þeirri „vök“ væri fhald- ið að draga hann up á land sitt og þar myndi hann bíða sínar pólitísku dauðastundir í faðmi broddborgara og dansklundaðasta hluta þjóðarinn- ar, sem tæki að sér að verja hvers- konar óþrifnaðarmál sem upp kæmu hjá „þessari þjóð“. — Hervald sýndi fiam á að svokallaðir „bitlingar” hefðu engu síður þekst hjá fyrver- andi stjórn. Munurinn væri sá, að nú sæti verulega starfsöm og dugleg stjórn að völdum, sem kostaði ýmsu til framkvæmda þjóðþrifamálum. Fundartíma var skift jafnt á milli flokkanna og sýndu forráðamenn í- haldsins ekkert ofbeldi yfirleitt á fundinum. En það var samt illver- andi þarna; fundarhúsið ekki gott, en út yfir tóku* skrílslæti allmikils- hiuta íhaldsliðsins. þegar ræðumenn Framsóknar byrjuðu ræður sínar gerði Ihaldsliðið svo mikinn hávaða með samtölum og gangi um gólf og stundum lófaklappi og fótastappi, að illmögulegt var að heyra til ræðu- manna. þótti mér einkennilegt að meðal þeirra sem skrílslegast létu og ekkert vildu heyra hjá artdstæð- ingunum, voru stúlkur innaru við tvítugsaldur með líkamann „sveip- aðan í silki og flos“. Var mér sagt að sumt af þeim hefðu verið nemend- ur undanfarna vetur hjá Ingibjörgu þingmanni í Kvennaskólanum. Ótrú- legt að þær læri þar slíka kvenlega Ný fegurð fyrir bros yðar. Náið burtu húðinni, sem gerir tennurnar dökkar. 'T'ANNHIRÐINGAR hafa teklð stórum framförum. Tannlæknavísindin rekja nú fjölda tann- kvilla til húðar (lags), sem myndast á lönnunum. Rennið tungunni yflr tenn- urnar; þá finnið þér sllmkent lag. Nú hafa vlsindin gert tannpastað Pep- sodent og þar með fundið ráð til að eyða að fullu þessari húð. Það Iosar húðina og nær henni af. Það inniheldur hvorki kísi! né vikur. Reynið Pepsodent. Sjáið, hvernig tenn- urnar hvítna jafnóðum og húðlagiö hverf- ur. Fárra daga notkun færir yður heim sanninn um mátt þess. Skriflð eftir ókeypis 10 daga sýnishorni til: A. H. Riise, Afd. 201*80 'Bredgade 25, EX, Kaupmannahöfn, K. EÁIÐ TÚPU I DAG! flBBHMBIflHBnB Skrásett m P^pMÍáM Vörumerkl BSiMS1, Afburða-tannpasta nútimans. Hefur nteðmæli hclztu tannlækna I öllum heimi. 28 háttprýði! Yfirleitt varð því fundur- inn íhaldinu til skammar. Suðurlandið blés til brottferðar. Bú- inn að vera á einum af þessum um- töluðu Borgarnessfundum. Óbeitin á íhaldinu óx. Skrílslæti og blekkingar fanst mér aðallega einkenna það á þessum furidi. Og a. m. k. ýmsir af málsvörum þess höfðu verið sam- boðnir málstaðnum. Ferðamaður. Rltstjóri: JÓD88 MwtgHMB. Ásvallagötu 11. Hfmi 2819. PrentamRJjan Acta.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.