Tíminn - 30.11.1929, Blaðsíða 3
TlMINN
249
heldur aðeins sem skrumauglýs-
ingu í umræðum blaða sinna. —
Nafnfölsun flokksins mælist
hvarvetna mjög illa fyrir; þyk-
ir bera vott um eindæma vesal-
mensku og falshátt í íslenskri
stjórmnálasögu, eigi síst er bert
varð, að sjálfir foringjarnir
skammast sín og flýja frá
ákvörðun sinni, er þeir koma
fram fyrir dyr kjósenda. Er
það þegar augljóst, að þessi til-
raun að „breiða yfir nafn og
númer“, flýja frá fortíð sinni og
falsa með nafngyllingu innræti
sitt, nær aldrei viðurkenningu
manna, heldur verður forsprökk-
unum til háðungar. Allir heilvita
menn sjá, að „hold er mold,
hverju sem það klæðist" og að
nafnbreyting hið ytra getur engu
orkað um að bresyta innræti
þeirra manna, sem skammast sín
fyrir stefnu sína og stjórnmála-
heiti flokks síns.
Skinfaxi,
tímarit Ungmennafélags Is-
lands, hefir verið gefið út á ísa-
firði nú undanfarið. Hafa þeir
staðið fyrir útgáfunni, Bjöm
skólastjóri Guðmundsson á Núpi
og Guðmundur myndskeri Jóns-
son frá Mosdal. Nú er í ráði, að
ritið flytjist aftur til Reykjavík-
ur um næstu áramót, og mun
Aðalsteinn Sigmundsson, áður
skólastjóri á Eyrarbakka, taka
við ritstjórn, og jafnframt fleiri
störfum fyrir U. M. F. I. Aðal-
steinn hefir um mörg ár staðið
framarlega í flokki ungmennafé-
laga, í sambandsstörfum lands og
héraðs, og félag, er hann veitti
forstöðu á Eyrarbakka, er meðal
stærstu og athafnamestu ung-
mennafélaga landsins. Nú s. 1.
sumar var Aðalsteinn erlendis og
kynti sjer fyrirkomulag og starf-
semi æskulýðsfélaga í Englandi,
Svíþjóð og Danmörku, til undir-
búnings starfi sínu fyrir U. M.
F. I. Lætur hann vel af árangri
ferðarinnar. — Skinfaxi var eitt
sinn meðal bestu rita landsins, en
nú um nokkurt árabil hefir lítið
að honurn kveðið. Nýi ritstjórinn
mun hafa sterkan hug á að hefja
ritið aftur til íornrar virðingar.
Hefir hann von um aðstoð góðra
manna til þess. Mun frágangur
ritsins verða í ýmsu bættur, það
mun taka að flytja myndir og
efni þess haft sem fjölbreyttast
og aðgengilegast æskumönnum
til lestui’s. K.
íhaldsmenn og vextirnir.
Blöð íhaldsmanna eru við og
við að að deila á ríkisstjórnina
fyrir það, að hún hlutist ekki til
um lækkun vaxta í bönkunum og
telja að hún svíki þar með lof-
orð, gefin fyrir síðustu kosning-
ar. Eru þessar staðhæfingar bygð-
ar á því, að Tíminn hefir á undan-
förnum árum déilt skarplega á
fjársukkið í liði kaupmanna og
stóratvinnurekenda, sem hefir
komið hart niður á bönkunum og
orsakar það, að þeir þurfa að
vinna upp töp sín með sligandi
vöxtum um ófyrirséðan tíma. —
En hér fer sem oftar fyrir íhalds-
mönnum, er þeir taka að deila á
andstæðinga, að þeir slá sjálía
sig fyrst og fremst á munninn.
Eða eru það ekki liðsmenn. Mbl.
sem hafa legið eins og mara á
bönkunum, verið þar þrálát
sníkjudýr, brugðist orði sínu og
fengið upp gefnar yfir 20 mill-
jónir króna, sem hafa gengið til
þess að standast skakkaföll í við-
skiftum, f járaustur íhaldsmanna í
hlekkingai-málgögn þeirra um
alt land og margvíslega óhófs-
eyðslu og fjársukk. Vissulega
ættu menn, með slíkar sakir á
samviskunni, að kjósa þögn um
orsakir hárra vaxta. Eða halda
íhaldsmenn að fjártöp bankanna
vegna afglapa burgeisanna og
óhófs, hætti að verka, jafnskjótt
og þeim hefir verið velt úr völd-
um? Því miður munu slíkar verk-
anir verða langvinnar í almennu
viðskiftalífi þjóðarinnar og verð-
ur enn ekki með vissu sagt hverj-
ar afleiðingar þær kunna að hafa.
Læknaklíkan játar sekt sína.
Byltingarklíka lækna í Rvík
reynir að færa fram í Mbl. vöm
fyrir athæfi sitt. En ekki hefir
tekist betur til en svo, að alt sem
komið er af vörninni, er opinská
játning um sekt klíkunnar. Mbl.
játar, að ástæðan til uppreisnar-
innar sé sú, að núverandi stjórn
hefir veitt þrjú læknisembætti
eftir óskurn margfalds meirihluta
héraðsbúa, sem njóta áttu lækn-
isins. Þar með er játað af þeim
seku, að uppreisnin er ekki móti
landsstjórninni, heldur móti borg-
urum landsins, sem leyfa sér að
hafa sjálfstæða ósk um það, að
hafa heldur góðan lækni en lé-
legan. Sannast hér grunur Snæ-
fellinga. Þeir báðu stjórnina um
ungan, reglusaman lækni, sem
þeir þektu. Óskum þeirra var sint
og þeir una hið besta við. En þeir
vissu að læknaklíkan ætlaði að
senda þeim lélegan og lítilf j örleg-
an lækni, en gæðing klíkunnar.
Snæfellingar þektu áður um-
hyggju íhaldsklíkunnar fyrir heil-
brigðismálum þein-a, því að um
langt skeið hafði heilsa og líf
þeirra verið falið fjörgömlum,
heilsubiluðum lækni, sem veitti
úr sæti sínu aðallega eina tegund
af heilsustyrkjandi meðulum,
nefnilega vínanda, meira eða
minna blandaðan. Snæfellingum
og fleiri borgurum mun ekki koma
á óvart þessi óvirðulega sektar-
játning sem Mbl. birtir. X.
Framsóknarfélagið
og bæjannál Reykjavíkur.
I gærkvöldi var haldinn mjög
fjölmennur og fjörugur fundur í
Framsóknarfélagi Reykjavíkur.
Umræðuefnið voru bæjarstjórnar-
kosningar í Reykjavík nú í janú- |
ar. Þótti öllum ræðumönnum
sjálfsagt að efna til flokkslista
við kosningarnar, til að hefja í
bæjarmálum svipaða hreingern-
ingu og í landsmálunum. Hefir
nú slegið ugg miklum á bæjarbúa,
við hað að bæjarstjórnin gerir sig
líklega til að hækka útsvörin um
nálega miljón, án þess að sýnilegt
sé, að fénu eigi að verja til nokk-
urra nýrra stórframkvæmda. En
öll veruleg hækkun á niðurjöfnun
útsvara í kaupstöðum liggur undir
úrskurði atvinnumálaráðherra. Og
á fundinum lýsti hann því yfir,
að ef bæjarstjórnin ekki félli frá
þessari gegndarlausu og að því er
virtist lítið rökstuddu skatta-
hækkun, þá myndi hann ekki sjá
sér annað fært, en að grípa til
sinna ráða, og stöðva þessa ó-
venjulegu og óeðlilegu eyðslu.
Nefnd var kosin til að undirbúa
framboðslista. Mun bráðlega vikið
að því nánar hér í blaðinu;, hversu
málefni höfuðstaðarins þurfa þess
með, fyrst og fremst í fjármál-
um, eíns og forsætisráðheiTa
benti á, og síðan á fjölmörgum
öðrum sviðum, að nýjum straum-
um verði veitt inn í bæjarmálin.
Fundarmaður.
Læknaklíkan og Hæstiréttur.
Mbl. getur þess fyrir munn
læknaklíkunnar, að þeir muni
hefja málaferli við landsstjórn-
ina. Og er helst svo að sjá, sem
Hæstiréttur sé þar álitinn þrauta-
vígi uppreisnarlýðsins. Ósennileg-t
er að Hæstiréttur hafi gefið lög-
brjótum þeim, sem hnuplað hafa
mun þykja höf. harður í kröfun-
um, þegar hann áætlar fóður-
þörfina í meðalvetri þannig:
Fyrir kúna 1500 fóðureiningar
— kindina 75 ----
— hrossið 400 ----
en fóðureining er 2 kg af töðu
eða 2,5 kg. af meðalútheyi úr
stáli — og auk þess fóðurforða,
sem svarar til þessarar fóður-
þarfa vill hann að sett sé þannig
á, að fyrningar verði 20% af
haustíorðanum. Sé fóðrið talið í
rúmmáli, telur höf., að kýrfóðrið
sé 25 rúmmetra (= 4200 kg.
sumarfengin eða 3500 kg. úr
stáli), kindarfóðrið 1 rúmmeter
rösklega, hestfóðrið 6 númmetrar,
alt miðað við töðu.
Ef gert er ráð fyrir að 1 ha.
í túni gefi af sér 3000 kg. sumar-
fengin eins og búnaðarskýrslur
sýna, þá þyrfti hvert meðal-
sveitaheimili að hafa 10 ha. tún,
eða nálega þrefalda þá túnstærð,
sem nú er talin á meðalbýli, en
væri túnræktin bætt, svo að 4500
kg. fengjust af ha. — og það
ætti í rauninni að vera hægðar-
leikur, ef tilbúinn áburður er
skynsamlega notaður og búfjár-
áburður vel hirtur — þá þyrfti
að tvöfalda túnstærðina rösklega,
til þess að fóðra mætti alt bú-
fé, sem nú er í landinu, á töðu
einni saman og væri þó sett svo
á, að búast mætti við 20% fyrn-
ingum eftir meðalvetur.
Höfundur sýnir fram á, að kýr
okkar þurfi um 1100 fóðureining-
ar (fe.) til viðhalds yfir árið og
ganga má út frá að 0,4 fe. þurfi
til þess að kýrin geti gefið 1 kg.
af mjólk, með 4% feiti. Ut frá
þessu má aftur reikna sér til
hversu mikið fóður kýrin þarf
alls yfir árið — þegar mjólkur-
magnið er þekt — og hversu
mikill hluti fóðursins fer til við-
halds og hversu mikill hluti til
afurða (mjólkur). Niðurstaða
þeirra útreíkninga verður þannig
(bls. 329):
Arsnyt kg. rneð Af heildarfóðrinu fer
til viðhalds til afurða
4 o/o feiti
2000
3000
4000
5000
6000
58
48
41
35
31
42
52
59
65
69
Þetta sýnir greinilega hversu
viðhaldskostnaðurinn lækkar stór-
kostlega með vaxandi nythæð, og
þar af má draga þá ályktun, að
svara muni kostnaði að nota
kjarnfóður, en vitanlega þó innan
vissra takmarka, og til þess að
finna þau, verður að gefa ná-
kvæmar gætur að hverjum ein-
stakling, því að það er mjög mis-
jafnt, hversu mikið fóður þeir
geta „umsett“ svo að hagnaði
verði.
Nánari skýringar á þessu og
ótal mörgu öðru sem fóðrun við-
kemur gefur bókin og mun bónd-
inn fljótt græða þær 12 krónur,
sem hún kostar, ef hann hag-
nýtir sér með skynsemi ráðlegg-
ingar hennar og leiðbeiningar.
Bókin fæst keypt hjá Búnaðar-
félagi Islands og send gegn eftir-
kröfu um alt land. Trúnaðarmenn
félagsins og foi’menn hreppabún-
aðarfélaga og búnaðarsambanda,
svo og kaupfélög geta fengið
hana og önnur búfræðirit Bún-
aðarfélagsins í umboðssölu. Af
þessum ritum er auk Fóðurfræð-
innar komin út kenslubók í efna-
fræði (160 bls., kostar 5 kr.) og
Líffræði búfjárins og helstu
störf þeirra (263 bls., kostai’ 10
kr.) báðar eftir Þóri Guðmunds-
son kennara á Hvanneyri. Allar
eru bækurnar í bandi og seljast
aðeins þannig.
Metúsalem Stefánsson.
-----o----
Samkomudagur Alþingis. Sam-
kvæmt konunglegri tilkynningu í
Lögbirtingi 28. þ. m., er Alþingi
stefnt til reglulegs fundar föstudag-
inn 17. jan. 1930. Er það nálega mán-
uði fyr en venjulega og mun flýtt
vegna þeirra atburða, er fyrir dyrurn
standa næsta sumar: landkjörs og
þúsund ára afmælis Alþingis.
Dánardægur. Nýiega andaðist í
Hafnarfjarðarspítala, eftir uppsk'urð,
Gísli Jónsson bóndi í Galtavílc í
; Skilamannahreppi í Borgarfirði, bróð-
ir Ölafs J. Hvanndal myndmótasmiðs
og þeirra systkina, drengskaparmað-
ur og sérlega vinsæll.
17 umsóknum um læknisembætti
frá hinni löglegu stjóm landsins,
nokkurt umboð upp á vasann.
Fyrr meir var Mbl. sjálft sífelt
að ógna Framsóknarmönnum með
Hæstarétti, en nú sýnist „um-
boðið“ vera að flytjast yfir á upp-
reisnarherinn sjálfan. C.
---o---
Kappreiðarnar
á Þingvöllum 1930.
Undirbúningsnefnd alþingishá-
tíðarinnar 1930 og Hestamanna-
félagið Fákur hafa þegar komið
sér saman um, að „Fákur“ gang-
ist fyrir kappreiðaliöldum á Þing-
völlum að vori komandi.
Eins og gefur að skilja, ríður
eigi alllítið á, að þessar kapp-
reiðar fari vel úr hendi, því það
á að vera metnaður Islendinga,
að alt það, sem þar verður þá j
sagt og sýnt, takist það vel, að
það megi skrifast ágóðamegin
hjá þjóðinni.
Til þess að þessar kappreiðar
geti farið sómasamlega fram, ber
að vanda til hestakosts og knapa.
Allir þeir, sem góðhesta eiga,
verða að koma með þá til kapp-
reiðanna, í góðu standi og vel
æfða, svo mistökin verði sem
minst, því eins og gefur að
skilja, verða þessar kappreiðar
sóttar af múg og margmenni,
útlendum sem innlendum, og að
sjálfsögðu verða þar margir við-
staddir, sem fult skyn bera á
kappreiðar, því verður vandinn
meiri fyrir þá, sem að þeim
standa.
Við þessar kappreiðar verður
þess vandlega gætt, að kapp-
reiðahestarnir séu vel til fai’a og
lýtalausir hvað byggingu snertir;
þá verður og þess einnig gætt,
að reiðveri og beislaumbúnaður
verði í sem bestu lagi. Ennfrem-
ur verður ekki gleymt, að hafa
eftirlit með að knapar séu snyrti-
lega til fara, og gert verður
knöpum að skyldu, að hegða sér
að öllu leyti eins og sæmir góðum
reiðmönnum. — Lemja ekki fóta-
stokkinn, eða baða út öllum
skönkum, eins og því miður hef-
ir oft brunnið við hjá sumum
knöpum við kappreiðar hér.
Við þessar kappreiðar verður
hlaupvöllurinn sem hér segir:
Illaup stökkhesta 400 metrar og
skeiðhesta 250 metr. Skeiðhest-
um verður gert að skyldu, að
fara 200 metra á hreinu skeiði,
en 50 metr. mega ’þeir fara á
hvaða gangi sem vera vill. Við
þessar kappreiðar verða verð-
launin óvanalega há. Verðlaunin
verða tíu, fimm fyrir hvort, skeið
og stökk, og skiftast þannig:
Fyrstu verðl. kr. 1000. 2. verðl.
400. 3. verðl. 200. 4. verðl. 150
og 5. verðl. 100. Þessi sömu verð-
laun verða fyrir skeið og stökk.
Þetta eru óvanalega há verð-
laun og því skyldi mega vænta,
að menn fjölmentu með góðhesta
sína á Þingvöllum að vori kom-
andi og reyndu hvort lukkuhjól-
ið snerist þeim í vil.
Dan. Daníelsson.
-----o----
Drukknanir. pað sorglega slys varð
;í Daðastöðum i Núpasveit í N.-þing-
eyjarsýslu að Stefán sonur bóndans
þar, þorsteins hreppstjóra þorsteins-
sonar, drukknaði, er hann freistaði
þess að bjarga bróður sínum, er fallið
liafði í uppistöðulón rafveitunnar á
bænum. Yngri bróðirinn komst af. —
Páll Runólfsson, vélamaður frá Ak-
ureyri féll út af bryggju á Siglufirði
28. þl m. og druknaði.
Nýja studentafélagið nefnist félag
frjálslyndra og framsækinna stud-
enta. Var stofnfundur félagsins síð-
astl. fimtudagskvöld. Um 90 manns
eru gengnir í félagið. Formaður var
kosinn Pálmi rektor Hannesson, vara-
formaður þorkell .Tóhannesson skóla-
stjóri, meðstjórnendur: I-Ielgi P.
Bi’iem, Einar Magnússon, Sigurðúr
Sk. Thoroddsen, Jóhann Skaftason og
' Sigurður Ólason.
IslHnder Schule
Regine Dinse
St. Peter Nordsee.
Þýskalandi
Námsskeið hefst í skólanum
15. apríl næstkomandi. Þar verð-
ur kent: Þýska, garðrækt, nátt-
úrufræði, matarefnafræði, landa-
fræði og handavinna.
Mánaðargjald er 100 mörk.
Nemendum verður gefið kost-
ur á ódýrum ferðalögum um
Þýskaland.
Gerið svo vel að snúa yður til
Lúðvígs Guðmundssonar skóla-
stjóra á Hvítái’bakka, sem gefur
allar upplýsingar.
Regine Dinse
St. Peter Nordsee
Þingmálafundur
var haldinn í Borgarnesi 22. nóv.
af Bjarna Asgeirssyni alþingismanni.
Voru fleiri og færri mættir úr öllum
sveitum sýslunnar. Hafði íhaldið
haft talsverðan viðbúnað og smalað
á bílum allmiklu af sínu liði úr hér-
aðinu. Gekk sú saga, að lið þess
hafi þó orðið að kaupa sér bílsæti
heim aftur!
Aðalmálsvari íhaldsins var Stefán
Björnsson.
það markverðasta, sem þama kom
fram voru eftirfarandi tillögur, all-
ar fluttar af Vigfúsi Guðmundssyni:
1. „Fundurinn skorar á Alþingi, að
láta byggja, eða leigja þægilegt skip
til að annast ferðirnar á milli Borg-
arness og Reykjavikur. Telur hann
liæfilega stærð þess skips ca. 80—
100 tonns nettó og taki það 1—2 bif-
reiðar á þilfari. Fari skipið helst á
hverjum degi vor, sumar og haust
fram og til baka milli Reykjavíkur
og Borgarness, en tvisvar í viku á
vetrum". — Samþykt með 128 sam-
hljóða atkv.
2. „Fundurinn óskar að póstgöng-
um sé sem fyrst komið í það horf,
að póstar séu sendir í og um hverja
sveit ekki sjaldnar en einu sinni i
viku“. — Samþ. með 103 samhlj.
atkv.
3. „Fundurinn lýsir megnri óánægju
sinni yfir að fé bankanna hefir verið
mjög lánað einstökum „spekúlönt-
um“ tryggingarlítið svo að tapast
hefir og vaxtahækkun lilotist af. —
Skorar fundurinn á stjórn, Alþing
og aðra forráðamenn bankanna að
lána fé þeiira einkum til eflingar
framleiðslu er skapar sem flestum
einstaklingum sjálfstætt starf“. —
Samþ. með 82 : 47 atki.
4. „Fundurinn skorar á Alþingi að
breyta sjórnarskránni þannig: að
allir, konur og lcarlar, hafi kosn-
ingarétt, sem orðnir eru 21 árs að
aldri, liafa óflekkað mannorð og tald-
ir eru með fullu viti“. — Samþ.
með 81 : 8 atkv.
5. Dagskrá sem eyðilagði lniífla-
tillögu er komin var fram frá
íhaldinu: „í futlu trausti þess, að
landstjórn og Búnfél. ísl. styðji rækt-
un landsins framvegis eins og liing-
að til, tekur fundurinn fyrir næsta
mál á dagskrá". —- Samþ. með 77.23
atkv.
0. „Fundurinn lætur eindregið i
Ijósi ánægju sina yfir röggseini og
framtaki landstjómarinnai’ í fjól-
mörgum framfaramálum þjóðarinn-
ar. — Telur fundurinn að aldrei hafi
setið áður jafndugleg stjórn við völd
á Islandi, og slcorar hann því u Al-
þingi að styðja hana áfram ekki síð-
ur en hingað til“. — Samþ. með
72 :54 atkv.
Fundurinn var oft fjörugur og
skemtilegur og fór að mcstu leyti
ágætlega fram.
Fundarmaður.
----O-----
Nýtisku kenslubifrcið. Kristinn
llelgason, Laugaveg 50, hefir nýlega
eignast nýtisku kenslubifreið. Er hún
gerð með þeim hætti að stýrisumbún-
aður allur og hemlar er tvöfalt og
geta því tveir setið við stjórn í einu.
þannig gctur kennarinn gripið fram
í stjórn nemanda síns til þess að af-
stýra mistökum og er það mun ör-
uggara. — Bifreiðin er frá hinum víð-
frægu Citroén-verksmiðjum i Frakk-
landi. A öð'rum stað auglýsir Samb.
ísl. samvinnufélaga bifreiðar þessar.
Eni þær taldar meðal ailra - fullkomn-
ustu bifreiða sem til landsins flytj-
ast.