Tíminn - 10.05.1930, Page 3

Tíminn - 10.05.1930, Page 3
TÍMINW 109 fyrir því, að klíkufundur þessi hafi átt sér stað, þó vera megi að eigi hafi verið með venjulegu fundarsniði, en það telur Tíminn vel farið og hr. Bjarna Snæ- björnssyni til sóma, ef þeir at- burðir hafa fram hjá honum farið. Til að forðast misskilning vill Tíminn í annað sinn taka það glöggt fram, að skráin um dauðsföllin á Nýja Kleppi, sem birtist í síðasta blaði, er tekin upp nákvæmlega eftir skýrslu Helga Tómassonar og bókun geð- veikrahælisins. ----o---- Fréttir Tíðin. Síðastliðna viku mátti heita öndvegistið um allt land, bæði stillt og milt. Áttin hefir verið nokkuð breytileg og þokusamt á Vestfjörðum og Norðurlandi. A þriðjudaginn hvessti snöggvast á NA-landi og gjörði kuldakast (hitinn um 0 st), en úrkoma varð mjög lítil. — Á S- og SV-landi flesta dagana verið 7—10 st. hiti og stundum 12 st. í Reykja- vík var lægsti næturhiti tæp 3 st. — Dánardægur. Nýlátnir eruþeirfeðg- arnir á Stóra-Núpi sr. Valdemar Briem vígslubiskup og sr. Ólafur sonur hans, og fór jarðarför þeirra beggja fram í fyrradag. Urðu aðeins 10 dag- ar á milli þeirra fegða. Sr. Ólafur var fæddur 1875, og var fyrst að- stoðarprestur föður síns á Stóra-Núpi og var síðan veitt prestakallið 1918, er sr. Valdemar Briem hætti prests- skap. — Sálmaskáldið Valdemar Briem þekkja allir. Hann var fædd- ur 1848 og var því 82 ára gamall, er hann andaðist. Var prestur að Hrepp- hólum og Stóra-Núpi. Vígslubiskup varð hann 1909 í hinu forna Skál- holtsstifti. Á 80. afmæli hans kjöri Háskóli íslands hann doktor í guð- fræði í heiðursskyni fyrir trúarljóð hans og andlegan kveðskap. Lögregluréttarrannsókn hefir dóms- málaráðuneytið fyrirskipað út af reikningsskilum borgarstjórans í Reykjavík. Látinn er í þessari viku sr. Jón þorsteinsson, fyrv. prestur á Möðru- völlum í Eyjafirði. Lárus Jónsson læknir í Hornafirði var meðal farþega á Esju hingað i fyrrakvöld og tekur nú við for- stöðu nýja spitalans á Kleppi. Kaupfélagið á Sveinseyri við Pat- reksfjörð hefir á aðalfundi sínum samþykkt að taka upp samábyrgð og æskja inntöku í Samband ísl sam- vinnufélaga. Guðni Jónsson hefir lokið meistara- prófi í íslenzkum fræðum. Sig. Nordal, prófessor, hefir verið kjörinn heiðursfélagi í fornfræða- og vísindadeild háskólans í Ósló — Det norske Videnskabs Akademi —. Nor- dal siglir innan skamms á rithöf- sem heilsuhælin jafnan eru sök- uð um. Þessi heimsfræga stofn- un er verk eins yfurburða manns, Dr. P. C. Varrier-Jones Þó fást sjúklingamir þar lítils- háttar við garðrækt. Kostnaður- inn er vitanlega orðinn mikill, svo aö stofnkostnaðurinn nemur nú allt í allt 50.000 pund sterling. Eg verð að játa, að ýmsir merlc- ir enskir læknar sögðu við mig, að England myndi aldrei eignast mörg berklaþorp á við Papworth Hall — þjóðin hefði ekki efni á því, sögðu þeir, og svo væri líka dr. Varrier-Jones einstakur mað- ur í sinni röð. Nú vil ég vekja athygli k því, að hér á landi er fyllsta ástæða til að reyna á einhvem hátt að girða fyrir það, að fjöldi af vinnufæru berklafólki lifi í iðju- leysi í sjúkrahúsum landsins á þjóðarkostnað. Verkefnið er afar vandasamt hér sem í öðrum lönd- um. Það myndi stórum bæta úr slcák ef alþýðutryggingar væru teknar í lög. En mér virðist líka, sem vert væri að reyna að koma upp berklaþorpi í smáum stíl, því að ríkið á jörð, sem ótvírætt er framúrskarandi hentug til þess undafund í Ósló og síðan mun hann v.erða á minningarhátíð Ólafs helga í Niðarósi. Jeppe Aakjær, danska skáldið og rithöfundurinn er nýlega látinn á búgarði sinum í Danmörku, 63 ára gamali. í bókum sínum hefir hann einkum lýst dönsku sveitalífi og er talinn standa mjög framarlega í flokki danskra rithöfunda. Síðustu æfiár sín vann Aakjær að endur- minningum sinum, sem af mörgum voru illa séðar vegna nokkuð nær- göngula lýsinga á ýmsum samtíðar- mömium skáldsins. Prentvilla. í grein Jóns Sigurðsson i Yztafelli, 19. f. m. 4 bls., 4. dálki, 27—28 linu að ofan: næstelzti fyrir næstyngsti. Hefir hr. yfirkennari Jón Ófeigsson bent blaðinu á þessa prent- villu, og kann blaðið honrnn þakkir fyrir. Landskjörið. Framboðsfrestur var útrunninn rnn miðjan siðastl. mánuð, og voru þá þrir listar fram komnir. Áður hefir verið skýrt frá fram- bjóðendum á iista Framsóknarflokks- ins (B-listanum), en hinir tveir eru svo skipaðir: A-listi (jalnaðarmenn): 1. Haraldur Guðmundsson Rvík. 2. Erlingur Friðjónsson, Akureyri. 3. Davíð Kristjánsson Hafnarfirði. 4. Elisabet Eiríksdóttir, Akureyri. 5. Gunnlaugur Jónasson, Seyðisfirði. 6. Finnur Jónsson, ísafirði. C-listi (íhaldsmenn): 1. Pétur Magnússon Rvík. 2. Guðrún Lárusdóttir Rvik. 3. Kári Sigurjónsson, Hallbjamar- stöðum. 4. Skúli Thorarensen Móeiðarhvoli. 5. Sigurður Kristjánsson ísafirði. 6. Magnús Gíslason Eskifirði. Hafa iistamir lítið breyzt frá því, sem um þá heyrðist í upphafi og frá hafði verið skýrt í blöðum. Norskur llugmaður, Tryggve Gran hefir í hyggju að fara á mótorhjóli til suðurheimskautsins. Hann ráðger- ir að flytja hjólið á flugvélum upp á heimskautshásléttuna og aka síðan eftir hásléttunni til heimskautsins. Enskt firma hefir boðist til að smíða mótorhjól handa flugmanninum i þessu skyni. Alþingishátíðin. Undirbúningsnefnd liátiðarinnar vill að gefnu tilefni taka fram: að aðgangseyrir að þing- völlum um hátiðina verður enginn, að fólk mun geta komizt til baka tiJ Reykjavikur alla hátíðisdagana, að börnum, á hvaða aldri sem er, er frjáls aðgangur að liátíðinni jafnt og fullorðnum og að mönnum er heimilt að nafa mat með sér og að Jiita sér kaffi i tjöldum sinum. Tjöld er ennþá hægt að panta á skrifstof- unni i Liverpool frá kl. 10—12 f. h. Fangelsisbruni. Nýlega kom upp eldur í rilcisfangelsinu í Ohio og brunnu tvær álmur fangelsisins. Fangarnir voru gripnir æði og leit- uðust við að flýja, en var haldiö í skefjum með hervaldi; margir urðu brjálaðir. 317 menn biðu bana í orun- anum, — fangar sem voru lokaðlr konar afnota. Ég á við Reyki í Ölfusi. Þar er landrými mikið, ótal hverir og laugar, næg vatna- orka, auðvelt að koma upp litlu raforkuveri. Það er og víst að gufan í sumum hverunum er radium-kend. Sumir ætla að hveragufa sé einkar holl fyrir brjóstveikt fólk. Það verð ég að telja órannsakað mál, en sannar- lega þess vert, að það sé rann- sakað. Það, sem ég hefi í huga, er þetta, að fá reistan á Reykjum skála fyrir svo sem 32 berkla- veika karlmenn. Húsið má vera af mjög einfaldri gerð í líkingu við þau hús fyrir einhleypt fólk, sem ég sá í Papworth Hall á Eng- landi í fyrra. Ég hugsa mér 16 tveggja manna herbergi, breiðan gang, eldhús, rúmgott búr, bað- herbergi, vatnssalemi. Ég hefi rætt þetta mál við húsameistara, og ætlar hann að reisa megi þess konar hús fyrir um 50,000 kr. Nú verður spurt: Hvaða vinnu getur berklaveikt fólk fengið á Reykjum, er sé við þess hæfi? Ég tel mjög góðar horfur á því. Jörðin er prýðilega vel fallin til alls konar garðyrkju, en það er sú útivinna, sem bezt er við hæfi berklafólks. Þar mætti og hafa inni í þeim hluta byggingarinnar sem brann og búizt er við að tnargir deyi af brunasárum. — Fangelsið var byggt fyrir 2200 fanga, en í því voru nú 4950. Yíirvöldin halda því fram, að fangamir hafi kveikt í fangelsinu og ætlað síðan að strjúka, þegar allt væri komið í uppnám. ----o----- „Qrjót“ þetta var líkt Kjarval varð mér að orði þegar ég sá „Grjótið" hans í glugganum í Bankastræti. Engum sem sér Kjarval eða gefur verkum hans gaum blandast hugur um það, að þar er enginn miðlungsmaður á ferð. þar er á ferðinni stórhuga og djarfur landnámsmaður, sem þorir að hugsa og ganga sínar eigin götur. þar bólar hvergi á miðlungsmannin- um með vasaljós í hendinni til að lýsa eftir hvar almannatroðningurinn er glöggvastur og hvar muni vera arðvænlegast og öruggast að stíga niður. Öll verk Kjarvals bera það með sér, að hann er skáld, en að hann væri rithöfundur haía sjálfsagt færri vitað, en nú eru tekin af öll tvímæli með það. það er ekki tilætlunin með þessum línum að fara að gefa yfirlit yfir bókina, enda er hún þess efnis að slíkt er ekki gjörlegt í stuttri grein. Nei, menn verða að kaupa bókina og lesa hana og líkast til oítar en einu sinni til þess að hafa liennar full not. það kennir þarna margra grasa. þarna eru gullfalleg æfintýri, þrung- in af hugsun og spakmælum, langur kafli um skipulag Austurvallar, sem einhverjir líta nú kannske á sem loftkastala, en sannleikurinn mun vera sá, að hverri þjóð, sem á svo skapandi og stórhuga son, sem lýsir sér i þeim kafla, sé ekki allur merg- ur úr beinum. Já, það er svo ótal margt, sem þarna ber á góma og ástin er þarna á ferðinni, sem allir vilja, hugsa, tala, ræða og rita um. Listamaðurinn er aldrei staðbundinn. Hann er hugmyndir úr ótal haus- um eins og höfundurinn kemst svo hnittilega og- spaklega að orði. Heiti bókarinnar er sjálfsagt ekki valið út í loftið. þeir, sem ganga fram fyrir skjöldu og ryðja nýjar brautir, þeir þekkja grjótið og vita hvers virði það er. það er því óhætt að treysta þvi, að höfundurinn er þama ekki að bjóða okkur steina fyrir brauð, held- ur „Grjót", sem við getum byggt á og úr. þvi hefir löngum verið haldið fram, að við íslendingar værum fá- tækir og um það náttúrlega deila, en hitt er satt, að við erum ekki svo ríkir, að við megum við þvi að þegja i hel þá, sem hæst vilja lyfta merk- inu til eflingar islenzkum anda. Halldór Pétunson. -----O----- stór vermihús, sem ættu að geta gefið mjög góðan arð. Þar mætti, hygg ég, einnig reka hænsnarækt í stórum stíl með góðum arði. Væri svo til vinnuskáli, þar sem stunduð yrði ýms innivinna, netar gerð, ýmsar smíðar o. s. frv., þá virðist augljóst, að nóg myndi verða um hentuga vinnu bæði vetur og sumar. Sjúklingarnir eiga að fá sann gjarnt kaup fyrir það, sem þeir vinna, og þeir eiga þá líka að borga með sér. En ég gjöri ráð fyrir að meðgjöfin þyrfti ekki að vera há. Reksturskostnaðurixm yrði miklu minni en í heilsuhæl- unum, vonandi ekki meiri en 2^ kr. á dag, kannske enn minni. Ég lít á þetta sem tilraun. Ég vil ekki neita því, að hún geti að einhverju leyti misheppnast. En eitthvað verðum við að reyna til að komast úr þeim kostnaðar- ógöngum, sem við nú erum í með berklafólkið. Reykjavík, 11 apríl 1930. Virðingarfyllst G. Björnson. Til Dómsmálaráðherra. -----Q.--- Samvinnnmál Hraðvaxandi viðskiptavelta. — 236 þús. kr. sjóðaaukning á árinu. — 11% aiður til félagsmanna. — Mjólkursamlagið. — Frystihúsið. — Smjörlíkisverksmiðjan. Aðalfundur félagsins var hald- ixm í Nýja Bíó á Akureyri dag- ana 14.—16. f. m. og stóð þann- ig yfir í 8 daga. Fundarstjóri var kosinn Davíð Jónsson hrepp- stjóri á Kroppi og varafundar- stjóri Þórhallur Ásgrímsson bóndi á Þrastarhóli. Skrifarar fundarins voru Ilalldór Guðlaugsson bóndi í Hvammi og Tryggvi Konráðs- son bóndi í Bragholti. Á fundin- um voru mættir 85 fulltrúar af 87, er kjörnir höfðu verið heima í deildunum. Auk þess voru mætt- ir 5 stjómarnefndarmenn, fram- kvæmdarstjóri félagsins og end- urskoðendur, og þar að auki sátu fundiim margir aðrir kaupfélags- meim. Framkvæmdarstjóri lagði fram endurskoðaða reikninga félegsins fyrir síðasta ár, skýrði þá og gerði glögga grein fyrir hag fé- lagsins og ástæðum við síðustu áramót. Innstæður í eftirtöldum sjóðum félagsins voru sem hér segir: maxma af ágóðaskyldri vöru- úttekt þeirra var 11%. Eftirstöðvar sláturhússreikn- ings nægðu til þess að kjötfram- leiðendum væri bætt upp kjöt sitt 1929 með 15 au. á kg. og gærur með 10 au. á kg. Var það sam- þykkt. Afgangurinn yfirfærist til næsta árs. Ennfremur var sam- þykkt að eftirstöðvum ullarreikn- ings yrði varið til uppbótar á ull með 20 au. á kg. Uppbætur af innlendum vörum og óúthlutaður arður af erlendum vörum var 66.500 kr. hærri en næsta ár á undan. Helstu nýjar framkvæmdir fé- lagsins á síðasta ári eru þessar: 1. Lokið byggingu Mjólkursam- lagsins og vélauppsetningu. 2. Endurbót gjörð á frystihúsi og bryggju á Oddeyrartanga. 3. Reist að nokkru nýtt verzlun- arhús á Torfunefi. 4. Gjörður fiskreitur og reist geymsluhús á Gleráreyrum. 5. Reist að nokkru smjörlíkis- í árslok 1928 I árslok 1929 Vöxtur á árinu Stofnsjóður 495 þús. kr. 597 þús. kr. 102 þÚS. kr. Innlánsdeild 402 — — 412 — — 10 — — Varasjóður 139 — — 181 — — 42 — — Try ggingars j óður 45 — — 48 — — 3 — — Fyrningars j óður 87 — — 101 — — 14 — — Byggingarsjóður 64 — — 111 — — 47 — — Sambandsstof ns j óður 85 — — 101 — — 16 — — Skuldatryggingarsj. 3 — — 5 — — 2 — — Samtals 1320 þús. kr. 1556 þús. kr. 286 þús. kr. Nemur þá vöxtur ofangreindra sjóða á síðasta ári hátt upp í f jórðung milj. kr. Allir sjóðirnir, að undanskild- um tveimui’ hinum fyrst töldu, eru óskiftilegir. Nam upphæð þeirra um síðustu áramót 547 þús. kr., eða nokkuð yfir helming miljónar. Skiftilegu sjóðimir, stofnsjóður og innlánsdeild, eru eign einstakra félagsmanna, og voru þeir samtals rúmlega ein miljón á sama tima. Innieignir félagsmanna í við- skiptareikningum við aðalverzlun- ina og útbúið á Dalvík voru við reikningslok 295 þús. kr. og er það 35 þús. kr. hærra en í fyrra. Á árinu hafa því innstæður fé- lagsmanna í stofnsjóði, innláns- deild og viðskiptareikningum auk- izt um 147 þús. kr. Við áramót voru peningar í sjóði 266 þús.; er það 47 þús. kr. hærra en í fyrra. Gömlu skuldirnar frá 1921, sem upphaflega voru um hálf miljón og á sínum tíma ollu nokkrum áhyggjum, ern nú komnar niður i 29 þús. kr., hafa lækkað um 11 þús. kr. á árinu. Eru þær nú eklu lengur áhyggjuefni, þar sem sjóður sá, er stofnaður var til þess að mæta skakkaföllum af völdum þeirra, er nú 19 þús. kr. hærri en skuldaupphæðin sjálf. Vörusala félagsins var á árinu sem hér segir: Alls hefir félagið selt vörur innanlands fyrir 3.147.000 kr.; en árið 1928 var samskonar sala 1.917.000 kr. Hefir því innan- landssala á vörum hækkað um 1.230.000 kr. I sölu þessari er ekki meðtalin innanlandssala sláturfjárafurða frá sláturhúsi félagsins, né sala frystisíldai’ frá frystihúsinu. Innlendar afurðir að frádregn- um vörum, sem kjötbúðin hefir keypt, hafa verið teknar til sölu- meðferðar fyrir alls 1.561.000 kr.; en árið 1928 fyrri 1.282.000 kr.; mismunur 279 þús. Vörubirgðir í árslok af frá- dregnum afföllum voru rúmlega 1 milj. kr. Úthlutaður arður til félags- verksmiðja í Grófargili. Samþykkt var að veita ung- mennafélögum í Öngulstaðahreppi 2000 kr. styrk til sundskálabygg- ingar í hreppnum. Samþykkt, að nýir félagsmenn leggi allan ágóða af vöruúttekt sinni í stofnsjóð, þangað til inn- stæða þeirra í sjóðnum er orðin 300 kr. Er þetta gjört til örugg- ari tryggingar viðskiptum þeirra við félagið. Þá lagði stjómin fyrir fundinn uppkast að reglugjörð um eftir- launa- eða lífeyrissjóð fastra starfsmanna félagsins. En þar sem deildum félagsins hafði ekki gefizt kostur á að hafa það mál til athugunar, samþykkti fundur- inn að fresta úrslitum þess til næsta aðalfundar. Á fundinum flutti ólafur Jóns- son framkvæmdarstjóri mjög fróðlegan fyrirlestur um ræktun lands. Var erindi því vel tekið af fundarmönnum og spunnust nokkrar umræður út af því. Eitt fundardagskvöldið var fundarmönnum sýnd kvikmynd af samvinnuhreyfingunni í Svíþjóð. Eins og kunnugt er, er samvinnu- þroskinn kominn á hátt stig þar í landi. Úr stjóminni gengu formaður félagsins Einar Árnason fjár- málaráðherra og varaformaður félagsins Ingimar Eydal, en voru báðir endurkosnir. Ennfremur var 1. endurskoð- andi, Stefán Stefánsson, endur- kosinn. Til þess að mæta sem fulltrúar félagsins á aðalfundi Sl 1. S. voru kosnir þessir aðalfulltrúar: Bene- dikt Guðjónsson á Moldhaugum, Þórarinn Eldjám á Tjöm; Vil- hjálmur Þór kaupfélagsstjóri og Júlíus ólafsson í Hólshúsum. Ennfremur voru kosnir tveir aukafulltrúar, þeir Stefán Stef- ánsson á Varðgjá og Valdemar Pálsson á Möðruvöllum. (Dagur). Ritstjóri: Gísli Guðmundsson. Hólatorgi 2. Sími 1245. Prentsmiðjan Acta.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.