Tíminn - 31.05.1930, Qupperneq 4

Tíminn - 31.05.1930, Qupperneq 4
182 TlMINN Hjartans þakklæti til allra sem auðsýndu hluttekningu og sam- úð við andlát og jarðarför Krist- jáns B. ólafssonar frá Hænuvík við Patreksfjörð. Sömuleiðis til allra þeirra er heimsóttu hann á banásænginni og vildu létta und- ir þá þungu birði er honum var lögð á herðar. Biðjum við góðan guð af alhug að blessa þá alla. Gróa Brandsdóttir. Ólafur Pétursson. Nýr KelTÍQ - Ricardo - Blindungur (carburator) Þeir útvegsbændur sem eiga Kel- vin-Ricardo motora, geta fengið nýjan blöndung (carburator) gegn kr. 48.00. Gamlir blöndungar eru engurgreiddir með kr. 24.00. Hinn nýi blöndungur hefir ýmsa stóra kosti fram yfir hinn gamla. Menn ættu að gera mér aðvart sem fyrst. Ólafur Einarsson vélfræðingur ZEISS IKON MYNDAVÉLAR. Sportvöruhús Reykjavikur. Hlliinisiílllii Á Kárastöðum (næsta bæ við Þingvelli) verða hestar teknir til geymslu í góðar girðingar. Má fá sérgirðingu fyrir 100—200 hesta. Pantanir þurfa að vera komnar fyrir 15. júní. Gjald: 1 króna fyrir hestinn yfir sólarhringinn. dvuntuspennur og svuntuhnappar Sent út um land gegn póstkrðfu. Jón Sigmundsson, gullsmiður Sími 383. — Laugaveg 8. Einar Halldorsson Kárastöðum (Landsímastöð) Undravélin Kelvin - Rieardo fer nú sigurför um allan heiminn. Hljóðfæri Ef leið yðar liggur um Reykjavík, þá kynnið yður af eigin reynslu bestu tegundir hljóðfæra. piano og flygel eru best. Brasted piano, góð, mjög ódýr, afar útbreidd, enda þægilegt að eignast þau. Níendorf piano eru ágæt. Lindholm orgelin sórstaklega falleg og vönduð, enda Lindholm verksmiðjan, af mörgum talin bezt í þeirri grein í Evrópu. His Masters Voice grammófónar og plötur ávalt fyrir- .liggjandi ásamt öðrum ódýrari teg undum, (sennilega mesta úrval af grammóf ónsplötum). Fiðlur, gitarar, flautur, munnhörp- ur, orgelstólar, nótnahyllur o. fl. o. fl. Nótur allskonar. Verzlunin hefir frá byrjun kappkostað að selja góðar vörur (hljóðfæri og annað) enda notið fyllsta trausts, Kynnið yður verzlunina. Biðjið um verðlista. Hagkvæmir greiðsluskilmálar á hljóðfærum. Vörur sendar um al t land. Bankastræti Sími 311. (Áður verslunin L. G. Lúðvígsson). Þér, sem heimsækið höfuðborgina um alþingishátíðina, munið eftir að beztu kaupin á öllum fatnaði gerið þér í Fatabúdinni. Ávalt fyrirliggjandi griðarstórf úrval af: Karlmannafötum, bláum og mislitum, unglingatötum, rykfrökkum fyrir konur og karla, sumarkápum, kjólum peysum allskonar, reiðjökkum, sportbuxum og sport- sokkum, stökum buxum, ljósum og dökkum, skyrtum og öllum nærtatnadi o. m. íl. Ennfremur: metravara ýmiskonar, smávara, fiður, og dúnn. Verzlið þar, sem þér táið mest og bezt tyrir minnsta peninga. Fatabúðin Hafnarstræti 16. Reykjavík Skólavörðustíg 21. lánveitingar til einyrkjabýla og smástílaðrar ræktunar muni svara kröfum framtíðai'innar um bú- skap á Islandi, — hvort fram- tíðarleiðin verður ekki einmitt sú, að veita fjármagninu til jarð- yrkju í stórum stíl, þ. e. a. s. til samyrkjabyggða, sem verði þá ýmist rekin á samvinnugrund- velli eða sem ríkisbú, en um -hitt verður ekki deilt, að viturlegasta ráðið til að innleiða hugmyndina um alyíirtækar endurbætur á bú- skap landsmanna eru þessi byrj- unarlög um Byggingar- og land- námssjóð, — og það engu síður fyrir því, þótt sumt í þeim lög- um komi mér persónulega all- rómantískt fyrir sjónir. Hinsveg- ar er frumvarpið um lánveiting- ar til fyrirmyndarbúa, er fram kom, en náði að vísu ekki fram að ganga á síðasta Alþingi, óræk- ur vottur um þann þroska, sem hugmyndirnar um endurbætur á búskap landsmanna taka ár frá ári í hugum löggjafa vorra. Því verður ekki neitað, að lög þessi um Byggingar- og landnámssjóð hafa óumræðilega mikla þýðingu í bili sem bráðabirgðalausn á vandamálum sveitanna. En full- komin endurreisn sveitanna hlýt- ur að haldast í hendur við stjórn- málaþroska og aukinn félagsleg- an skilning sveitamanna. Bygg- ingar- og landnámssjóðurinn hef- ir þannig gildi sem siðferðilegt tákn, uppörvun frá hendi hins opinbera, fullvissun þess, að bóndanum er nú óhræddum óhætt að hefjast handa með því ríkið sjálft stendur með honum og á bak við hann í viðleitni hans. — Það, blés ekki alténd byrlega fyrir þessu merkilega landbúnaðar- frumvarpi framan af fremur en sundhallannálinu. Einn reykvísk- ui- íhaldskaupmaður á Alþingi, Jón Þorláksson, barðist ósleitilega gegn því, og áleit að með slíkum stuðningi til handa búnaðinum væri verið að gera bændum að ölmusumönnum, — en eins og fyrri daginn rann upp ljósið fyrir íhaldinu um þetta mál sem önnur, þegar það sá sér til óvænna, og þorir nú enginn lengur á móti að mæla. Þetta tvent markar sem sagt aðallínurnar í stjórnmálaferli J. J.: í fyrsta lagi umhyggja hans fyrir menntun þjóðarinnar, sem varla hefir átt sinn líka hjá nein- um íslenzkum stjórnmálamanni fyr, og í öðru lagi umhyggjan fyrir ræktun landsins og viðgangi sveitanna. En maðurinn hefir framúrskarandi glöggt auga fyrir hinu hagnýta jafnt í smærri at- riðum sem stærri. Nægir t. d. að benda á hvernig hann snýr upp í iðjuhæli fyrir vandræðamenn hálfbygðum spítala, sem sett hafði fátækan hrepp skamt frá Reykjavík í bobba, og leysir þannig um leið með glæsilegum hætti úr vandanum um niðursetn- ingu afbrotamanna, sem jafnvel íhaldsmenn voru famir að koma á auga, þótt þeir kynnu þar engin úrræði, og gætu ekki framkvæmt refsingar á sakamönnum um sína stjómartíð, létu suma ganga lausa, en borguðu undir aðra á spítölum. Ennfremur má iðjuhæli það, sem J. J. lét gjöra á Eyrar- bakka, teljast athyglisverð ný- breytni í fyrirkomulagi refsivist- ar, svo að óvíða á byggðu bóli mun ríki geta fram vísað jafn mannúðarlegri meðferð á afbrota- mönnum. Ekki er heldur úr vegi að nefna snjóbílinn, sem J. J. lét kaupa, en íhaldið barðist mest á móti, þótt það vilji eigna sér heiðurinn af honum nú, eftir að útséð er, hve vel hann hefur heppnast. Strandferðaskip hefir verið gjört með kælirúmi fyrir tilstilli J. J., svo að afurðir kæm- ust nýjar á markað, Arnarhvoll hefir verið byggður svo að ríkið þyrfti ekki að sæta okurleigu fyr- ir opinberar skrifstofur hjá ein- stökum mönnum í bænum o. s. frv., o. s. frv. Þannig mætti lengi telja atriði, sem bera vott um hina ágætu ráðsmannshæfileika Jönasar Jónssonar síðan hann gjörðist einn af aðalframkvæmd- arstjórum þess efnilega miljóna- fyrirtækis, sem nefnt er íslenzka ríkið. Þeir, sem þekkja manninn per- sónulega undrast þetta ekki. Gáf- ur hans eru í senn skarpar og l'jölhæfar. Hann þekkir þjóð sína út og inn, hann er „dús“ við ann- anhvem mann á landinu, hann veit um málefni svo að segja hvers manns bæði opinber og per- sónuleg og menn af fjarlægum landshornum koma til hans til þess að leita ráða jafnvel í einka- málum. Um hann má segja, að hann komi öllum mönnum til nokkurs þroska. Hús hans stend- ur seint og snemma opið fyrir gestum og gangandi, — menn af öllum stéttum, öllum landshorn- um, allra hugsdnlegra erinda; hann lifir og hrærist í þjóðinni, þjóðin í honum. Hann er ráðholl- ur með afbrigðum, mannþekking lians ótæmandi, hvers manns hugljúfi, tryggð hans og vinfesta slík, að hún hefir ósjaldan verið lögð honum til lasts. í samtali verður vart hjá honum einkenni- legrar ofurgnóttar hugmynda, eitt málefnið rekur annað, — í orðasennu sýnast jafnan ciö sverð á lofti hjá honu'm. nm þótt hann virðist stundum hafa undra- margt á hraðbergi í senn, þá er fáum manni lagið að tæma um- ræðuefni gersamlega á jafn- skömmum tíma með þvá að kasta úr ýmsum áttum í senn ljósum á kjama málsins. I æsku hefir hann aflað ágætrar þekkingar og hefir ljósar og staðgóðar skoðan- ir á ýmsum greinum menningar, vel lesinn í bókmenntum og heim- speki, þaulkunnugur íslenzkum skáldskap, en af listum er hann sérstaklega elskur að málaralist og bygginga og hefir reynst mörgum listamanni haukur í horni. Tungumálamaður er hann góður, emkum orðlagður frönsku- maður. J. J. hefir haft ágæta rithöfundarhæfileika til að bera, það sýna ýmsar ritgerðir hans í Skinfaxa fi’á fyrri árum, Islands- saga hans og síðast en ekki síst margar hinar pólitísku ritgerðir, sem eftir haim liggja 1 Tímanum. Margai’ þessara ritgerða hafa ekki alllítið bókmenntalegt gildi, enda þótt engin eða jafnvel and- stæð afstaða sé tekin til þess, sem þær bera fram. Er skemst að minnast greinar hans „Stóra bomban“, sem hann skrifaði með sótthita á nokkrum klukkutímum, er kallast má með sanni eitt hið glæsilegasta skilríki úr sögu ís- lenzkrar blaðamennsku. Hin óbil- uga sannfæring hans um rétt- mæti málstaðar síns er einkenni, stm hann hefir umfram flesta pólitíska rithöfunda. Þegar ég segi, að Jónas Jónsson sjái lengi-a og hugsi hærra en sá flokkur, sem stendur að baki hans, þá þykist ég hvorugum gera lágt undir höfði. Kanski er himi póli- tíski þroski Framsóknarmannanna jafnvel meiri heldur en sann- gjarnt væri að búast við, þegar á allt er litið. Þeir hafa a. m. k. borið gæfu til að hlíta góðum foringja. Bergen, 6. maí 1930. Halldór Kiljan Laxness.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.