Tíminn - 15.11.1930, Qupperneq 2

Tíminn - 15.11.1930, Qupperneq 2
TlMINN kosti eins hár og hjá íslenzka ríkinu. Samanburður vaxtakjar- anna raskast því ekki, þó að sölu- gengi lánanna sé borið saman eins og hér er gert, en ekki út- borgunargengi, þar sem engar skýrslur liggja fyrir um það, enda hefir Magnús Jónsson ekki gert slíkan samanburð um það í grein sinni. Þetta verður látið nægja að sinni. En síðar mun „enska lán- ið“ frá 1921 athugað til saman- burðar við þessa síðustu lántöku íslenzku stjórnarinnar. ----o--- Fréttlr Framsóknarfélag Reykjavíkur hélt íund i Samhandshúsinu í gœrkveldi. Einar Arnason fjármálaráðherra hóf umrœður. Talaði hann um lántókur ríkisins fyr og síðar og fjárhag þess yfirleitt. Dvaldi ráðherrann einkum við landbúnaðarlánið nýja og gaf fundinum nákvœma skýrslu um lánskjörin, sem hvarvetna i erlend- um blöðum eru talin mjög hagkvœm. Var ræðu ráðherrans tekið með mikl- um fögnuði. Á eftir ráðherranum tóku tíl máls bankaráðsmennirnir Jón Árnason og Svavar Guðmunds- son, ennfremur Halldór Stefánsson aiþm., Hannes Jónsson dýralæknir og Guðbrandur Magnússon forstjóri. Fundurinn var fjölmennur og vöktu umrœðurnar almenna ánægju. Félag ungra Framsóknarmanna í I-ieykjavik hélt fund í Sambands- iiúsinu siðastl. þriðjudagskvöld. Hófst fundurinn með kosningu nýrrar fé- lagsstjómar. Formaður var kosinn Tryggvi Guðmundsson, en meðstjórn- endur Eysteinn Jónsson, Helgi þór- arinsson, Sigurður Ólason og þór- hallur Björnsson. Að lokinni stjórn- arkosningu hófust umræður um „ald- urstakmark við þingkosningar". Sam- þykkti fundurinn áskorun til Alþing- is um að færa aldurstalanark við kjördæmakosningar og landskjör nið- ur í 21 ár. Mun það vera fyrsta á- skorun þessa efnis, sem borin er fram af pólitísku félagi. Fjölda nýrra félaga var veitt inntaka í fundar- byrjun. Hannes Jónsson dýralæknir er ný- kominn austan úr Rangárvallasýslu. 1 þeirri för bólusetti hann sauð- nautin í Gunnarsholti. í fyrra fór- ust sauðnautin úr bráðafári, eins og lcunnugt er. Runólíur Björnsson bóndi á Kornsá og sr. Jón Guðnason á Prestsbakka eru staddir hér i bænum, til þátt- töku í störfum kirkjumálanefndar. En i nefndinni eiga sæti, auk þeirra, Jónas þorbergsson útvarpsstjóri, sr. þorsteinn Briem á Akranesi og sr. Sveinbjörn Högnason skólastjóri i Flensborg. Sr. Einar Guðnason i Reykholti er nýkominn til bæjarins. Vigfús Guðmundsson bóndi og gest- gjafi í Borgarnesi er staddur hér í bænum. Lárus H. Bjarnason hæstaréttar- dómari hefir verið mikið veikur und- nnfarið en er nú á batavegi. Tvo fyrirlestra flutti frú Aðalbjörg Sigurðardóttir í Nýja Bíó á sunnudag og mánudag. Fyrri fyrirlesturinn fjallaði um „gamla og nýja tímann" en sá seinni um Krishnamurti. Voru báðir merkilegir og þó . einkum sá fyrri. Skýrði frúin frá ýmsum end- urminningum frá bernsku og æsku- árum sínum norður í Eyjafirði og bar þær saman við lífskjör og hugs- unarhátt uppvaxandi kynslóðar, i skauti „nýja tímans". Sagðist henni svo frá, að gleggsta endurminningin frá bemskuárunum væri kuldinn i sveitabæjunum. Vafalaust hefir margt sveitabámið svipaða sögu að segja. lrar fyrirlesturinn yfirleitt vel sam- inn með afbrigðum, og kenndi þar óvenju glöggs skilnings á árekstrar- efnum tveggja kynslóða, sem hvor um sig er þess vanmegnug að brúa það regindjúp, sem milli þeirra or orðið, fyrir áhrif breyttra lífskjara. Vonandi birtir frú Aðalbjörg þetta stórmerka erindi á prenti innan skamms. En óneitanlega ber það sorglegan vott um menningu höfuð- staðarins, að ekki skuli vera meiri aðsókn að slíkum fyrirlestrum en barrnonikuskvaldri og flökkudönsur- um, sem hingað em fengnir, til að spilla smekk almennings, á opinber- um stöðum. Á kaffihúsi einu hér í bænum, þar sem á boðstólum er ýmsar annars- flokks daigrastyttingar, hefir nú und- anfarið tíðkast sá siður, að tilkynna á dönsku þegar skift er um atriði á skemmtiskránni. f sambandi við þetta er vert að minna á það, að hin svokallaða „íslandsmynd", sem liér var sýnd í Nýja Bió fyrir skemmstu, hófst með sýningum úr götulífi í Kaupmannahöfn! það þarf ekkert Dana-hatur, til þess að ís- lenzkir áhorfendur roðni af slíkum tiltektum. Óviðkunnanlegt er það i meira lagi, 2S4 lífsskilyrði þjóðarinnar voru lát- in óleyst. En af láni núverandi stjómar verður hverjum einasta eyri varið til þess að bæta landið ogr lífs- skilyrði þjóðarinnar. 1 höndum Framsóknarflokksins hefir ekki myndast neinn tekjuhalli, sem þarf að fylla með erlendu lánsfé. Allan- þann tíma, sem bænda- stjómin hefir setið við völd, hefir veiið tekjuafgangur í ríkissjóðn- um. Samkeppnisprófið og dómnefndin Eftirfai’andi kæru hefir Barði Guðmundsson settur prófessor sent háskólaráðinu og jafnframt beðið Tímann að birta. I því sam- bandi hefir hann tekið það fram í tilefni af fyrirspum frá rit- stjóra blaðsins, að þótt hann telji efnisval' dómnefndarinnar hlutdrægt, sé það enganveginn ætlun sín, að umrætt efni hafi verið valið með vitund eða vilja Þorkels Jóhannessonar mag. art. eða að hans tiihlutun á nokkum hátt. Svo sem hinu virðulega háskóla- ráði er kunnugt, varð prófessors- embættið í sagnfræði við Háskóla íslands laust um síðustu áramót við fráför dr. Páls E. Óiasonar. Eftir tillögu heimspekisdeildar há- skólans setti kennslumálaráðherr- ann mig undirritaðan til þess að gegna embætti þessu um óákveð- inn tíma og hefi ég gegnt því síðan. Hinn 7. marz s. 1. lagði heimspekisdeild til, að embættið yrði auglýst til umsóknar og var það gert með auglýsingu kennslu- málaráðherrans dags. 10. apríl s. 1. Umsóknarfrestur var ákveðinn til 25. júnímánaðar sama ár og eftir ósk heimspekisdeildar þess jafnframt getið, að umsækjendur mættu vera við því bunir, að samkeppnispróf yrði látið fara fram. Að liðnum umsóknarfresti Þessvegna er nú hægt að verja nýja láninu öllu og óskiptu til nýrra framkvæmda, til að byggja upp sveitabæina, til að stækka túnin, til að auka bústofn bænd- anna. Landbúnaðarláninu verður ekki varið til þess að borga skuldir vanskilamannanna. Því verður varið til þess að auka ai’ðinn af vinnu skilamannanna og skapa þeim viðimandi lífsskilyröi. ákvað svo heimspekisdeild, að samkeppnispróf skyldi fara fram milli þeirra, er sótt höfðu um em- bættið og skipaði nefnd til þess að velja viðfangsefni til sam- keppnisprófsins og dæma um úr- lausnir keppendanna. Fyrir valinu í þá nefnd urðu þeir prófessor juris Einar Amórsson, prófesssor juris Ólafur Lárusson, prófessor theol. Magnús Jónsson, prófessor dr. Sigurður Nordal og fyrverandi prófessor dr. Páll E. ólason. Þann 20. september tilkynnti dómnefndin umsækjendum að úr- lausnarefnið væri: Frjálst verka- fólk á Islandi til siðaskipta. Skyldu keppendur hafa skilað rit- gerðum sínum fyrir 1. desember 1930. Sökum megnrar óánægju sumra umsækjandanna, skoruðu fjórir þeirra bréflega á dóm- nefndina að veita lengri tíma til úrlausnarinnar og ákvað nefndin þá, að eigi þyrfti að skila ritgerð- unum fyr enn 1. jan. 1931. Aðalástæðan til þeirrar óánægju úmsækjendanna, sem fyr getur, var sú, að þeim þótti liggja í aug- um uppi, að með vali úrlausnar- efnisins væri einum umsækjend- anna, Þorkeli Jóhannessyni mag- ister, stóriega ívilnað. Álitu sumir þeirra á hinn bóginn, að nokkra bót mætti á því ráða með fram- lengingu tímans. Við nánari at- hugun hefir undirrituðum orðið það fyllilega ljóst, að smávægileg framlenging tímans er í þessu sambandi einskis virði, því sam- kvæmt gögnum, er mér hafa síð- ar borizt í hendur er það bersýni- legt, að dómnefndin hefir með vali viðfangsefnisins gert sig seka í hinni róttækustu hlutdrægni. Þá bætir guðfræðingurinn enn við: í fyrra tók danska stjómin lán, $ 55.000.000.00, vextir éV^%, útboðsgengi 95%. — Þetta er rangt hjá guðfræðingnum. Lán þetta er tekið 1928. Til samanburðar við lántöku íslenzka ríkisins tekur gi'einarhöf. aðeins lántökur Norðmanna í sumar og tvær danskar lántökur, annað ríkislán Dana frá 1928 og hitt innanríkislán, sem tekið var í fyrra. Dönsku lánin eru hagstæð- ari en það íslenzka, en norsku lánin svipuð. Nú mun það ekki orka tvímælis að danska og norska ríkið njóta meira trausts á peningamarkaði heimsins. En eins og sést á samanburðinum hér að framan, hefir íslenzku stjóminni tekizt að fá lán með svipuðum kjörum og Norðmenn, sem lán tóku um líkt leyti. Samanburður við Danmörku kemur síður til greina, þar sem dönsku lánin em ekki tekin á sama tíma. Nú skulu að lokum nefndar nokkrar lántökur frá þessu ári. Lánin era ölli tekin í London. Finnskt bankalán tekið í apríl. Fjárhæð £ 1.000.000. Vextir. 6%. Sölugengi 95%. Lánstími 25 ár. Raunverulegir vextir, miðað við sölugengi 6.65%. — íslenzka lán- ið eins reiknað 5.7%. Japanskt ríkislán tekið í maí. P'járhæð £ 12.500.000. Vextir 5%i/2. Sölugengi 90%. Lánstími 35 ár. Raunvemlegir vextir, mið- að við sölugengi 6.7%. — íslenzka lánið eins reiknað 5.7%. Þýzkt ríkislán tekið í júni. Fjárhæð £ 12.000.000. Vextir 5y%%. iSölugengi 90%. Lánstími 35 ár. Raunverulegir vextir, mið- að við sölugengi. 6.5%. — ís- lenzka lánið eins reiknað 5.7%. Austurrískt ríkislán tekið í júlí. Fjárhæð £ 3.000.000. Vextir 7%. Sölugengi 95%. Lánstími 27 ár. Raunverulegir vextir miðað við sölugengi 7.6%. íslenzka lánið eins reiknað 5.7%. Eins og áður er getið eru raun- verulegir vextir af íslenzka lán- inu, þegar tekið er tillit til lán- tökukostnaðar, 6.18%. — 1 skýrsl- um þeim, sem fyrir liggja um lántökur annara ríkja, er lántöku- kostnaðar hvergi getið, en það má fullyrða, að hann er að minnsta Mun ég nú með skírskotun og til- vísunum til órækra gagna finna þessum orðum mínum stað. 1. Sérgrein Þorkels Jóhannes- sonar við nám norrænna fræða við háskólann var: „Atvinnuhætt- ir á Islandi til siðaskipta“. Að vísu mun ekkert um þetta standa í bókum heimspekisdeildarinnar, en fyrverandi prófessor, dr. Páll E. Ólason viðurkennir að svo hafi verið. 2. Samkvæmt Árbók háskólans 1926—1927, bls. 32, var efni í sexmánaða prófritgjörð Þorkels Jóhannessonar til meistaraprófs í norrænum fræðum: „Höfuðþætt- ir í búnaðarsögu og búskaparhátt- um Islendinga frá upphafi og fram um siðaskipti. í umsókn sinni um prófessorsembættið orð- ar Þorkell þetta svo: „Höfuðrit- gjörð mín til meistaraprófs fjall- aði um atvinnusögu Islendinga frá upphafi fram um miðja 16. öld“. 3. I erindi Þorkels Jóhannes- sonar til fjárveitingamefndar neðri deildar Alþingis 1928 (ódag- sett) segir m. a.: „Allmörg und- anfarin ár, hefi ég, sem þessar línur rita, fengist við það, að rannsaka sögu atvinnuvega vorra og þar með hagsögu þjóðarinnar frá upphafi. Er það ætlun mín, ef mér endist líf og heilsa, og aðrar ástæður leyfa, að halda þeim rannsóknum áfram og rita sam- fellda sögu atvinnuveganna með stoð þeirra heimilda, sem frekast er kostur á“. Með nefndu erindi fylgja meðmæli tveggja dóm- nefndarmanna, þeirra próf. Sig- urðar Nordals og próf. Ólafs Lár- ussonar. 4. 1 tilefni af greindu erindi til fjárveitinganefndar Alþingis seg- ir m. a. í Alþingistíðindum 1928 B. bls. 839—840: „Þá leggur nefndin til að veita 1200 kr. til Þorkels Jóhannessonar. Þorkell er að undirbúa rit mikið um atvinnu- sögu íslendinga. I hana vantar ennþá mikilsverðan kafla, en heimildum til hans hefir Þorkell hugsað sér að safna fyrir þetta fé. Þess skal getið að samkvæmt 16. lið 15. gr. fjárlaga fyrir 1929, 1930 og 1931 hefir Þorkeli Jó- hannessyni verið veittur 1200 kr. árlegur styrkur úr ríkissjóði til þess „að safna drögum að at- vinnusögu íslands, gegn 800 króna framlagi annarstaðar að“. Hefir það íramlag komið frá Sáttmála- sjóði háskólans. Á þeim tíma er Þorkell hefir verið þessa styrks aðnjótandi af háskólafé, hafa all- ir dómnefndarmennimir átt sæti í háskólaráðinu. Með framanrituðu er það sýnt og sannað að magister Þorkell Jó- hannesson hefir eigi aðeins valið sér, sem sérgrein á háskólanáms- árunum, atvinnusögu íslaids til siðaskipta, heldur hefir hann, frá því er hann lauk prófi og til þessa dags haldið áfram rannsóknum sínum í nefndri grein íslenzkrar sögu, með það markmið fyrir augum, „að rita samfellda sögu atvinnuveganna, og notið til þess að safna gögnum til þessa verks opinbers styirks, kr. 2000,00 ár- lega. Nú er það vitanlegt, að saga frjáls verkafólks á íslandi, er ekki aðeins einn af höfuðþáttum at- vinnusögunnar heldur og órúfan- lega samtengt öllum öðrum grein- um hennar. Saga verkafólksins verður eigi rituð, hagur þess, rétt- indi og önnur kjör eigi skýrð, nema með ítarlegum rannsóknum á atvinnugreinum þeim er það vinnur við. Þarf þetta eigi frek- ari skýringar. Þannig er það ómótmælanlegt, að úrlausnarefni það, er dóm- nefndin hefir valið til samkeppnis- jirófsins, er tekið úr sérgrein eins umsækjandans og fellur saman við sögurannsóknir hans á undan- förnum árum. Meira að segja hef- ir dómnefndin ekki kinokað sér við, að binda viðfangsefnið við sama tíma og þann er sémáms- rannsóknir umrædds manns náðu vfir við háskólann, svo ekki skeik- ar áratug. Er þetta því furðu- legra sem upplýsingar hér um voru gefnar í sjálfri umsókn Þor- kels Jóhannessonar um prófessor*- embættið. Vegna virðingar háskólans, sem verandi embættismaður við þá stofnun, og vegna þeirrar rétt- lætiskröfu um óhlutdræga dóm- nefnd, er ég sem umsækjandi um embættið á tilkall til, sé ég mér ekki annað fært að vel athuguðu máli en að kæra greinda dóm- nefnd fyrir hinu virðulega há- skólaráði, fyrir framanskráða óaf- sakanlegu hlutdrægni og krefjast þess, að háskólaráðið hlutist til um það, að nefndinni verði vikið frá þegar í stað og gerðir hennar í þessu efni ómerktar. Reykjavík, 10. nóvember 1930. Allravirðingarfyllst Barði Guðmundsson settur prófessor. Til háskólaráðs Islands, Reykjavík. Samanburður á lánskjörum Islands og annara rikja Svar til Magnúsar Jónssonar Um all-langt skeið hefir mönn- J um ekki orðið um annað tíðrædd- ara en lántöku stjómarinnar. „Sjálfstæðismennirnir" gerðu það lítið sem þeir gátu, til að spilla fyrir lántökunni, með rógburði j og upplognum frásögnum af fjár- ' hagsástandi íslenzka ríkisins. En | þegar lánið var tekið, lluku allir upp einum munni um það, að lánskjörin séu mjög góð. Hinir raunverulegu vextir eru um 6% (nánar tiltekið 6.18). Maður skyldi nú ætla, að í- haldsflokkurinn, sem á alla sök á því að ríkið þurfti yfir höfuð að taka lán í þetta sinn, mundi kunna sig avo, að blöð þess létu ríkisstjómina njóta sannmælis um lántökuna, eða þegðu að öðr- um kosti. Og svo leit út um tíma, sem blöðin ætluðu að sitja á strák sínum, en dýrðin sú stóð ekki lengi. I dag skrifar Magnús Jónsson guðfræðingur um lántök- una í Morgunblaðið og byrjar grein sina á því, að lánið sem stjómin tók nú, „sé lakasta lán, sem enn hefir verið tekið í Eng- landi“. Fer greinarhöf. hér með raka- laus ósannindi. Yfirleitt er grein M. J. 1 alla staði hin ómerkilegasta, og sýn- ir, að höf. veit í raun og vera hvorki upp sé niður í því, sem hann fer með um lántökur er- lendra ríkja. Jafnvel ártöl eru rangt tilfærð. 1 frásögninni um þær fáu lántökur, sem nefndar eru, vaða uppi blekkingar hver um aðra þvera. Skal nú stuttlega athugaður samanburður hans á lántöku ís- lenzka ríkisins nú, og þeim lán- um, sem hann tekur til saman- burðar, og til að raska ekki sam- ræmi í samanburðinum, verður útboðs- eða sölugengi lánanna lagt til gnmdvallar eins og hann gerir. Nýja lánið íslenzka er með 5/2% vöxtum, sölugengi 96V£, lánstími 40 ár. Raunverulegir vextir miðaðir við sölugengið 5.7%. „Nákvæmlega hliðstætt lán“, segir M. J., „sem bærinn Bergen tekur í Bandaríkjunum $ 2.680. 000, vextir 5%, útboðsgengi 96V2- Bergenslánið er * l 2 3 4/z % lægra. ... „Rétt á eftir tekur sami bær lán enn betra. Það er $ 1.600.000*), vextir og útboðsgengi 97“ (!!). Hér sleppir guðfræðingurinn sýni- lega með vilja, að geta þess, að lánið sem Bergen tekur er 20 ára lán og verða þá raunveru- legir vextir, miðað við útboðs- eða sölugengi, 5.5%, eða því nær sömu vextir og á íslenzka láninu. *) Lán þetta er $ 1.900.000.00, svo guðíræðingurinn fer hér rangt með.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.