Tíminn - 30.12.1930, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.12.1930, Blaðsíða 3
TlMINN 265 Á víðavangi. Hvar eru railjónirnar? Morgunblaðinu þykir núver- andi stjóm hafa haldið ósparlega á tekjum góðærisins 1929. Þó að ritstjóramir séu ógreindir, ætti þeim þó að vera það ljóst, að ef eitthvað á að framkvæma í land- inu, þarf til þess peninga, og að sjálfsagt er að taka þá peninga á góðu árunum, þegar tekjuaf- gangur er í ríkissjóði, en kunna sér því betur hóf á vondu ár- unum. Ef Magnús Guðmundsson hefði borið skyn á slíka hluti um 1920, og haft sinnu á að draga úr gjöldum ríkissjóðs þegar kreppan dundi yíir, hefðu „fjár- aukalögin miklu“ aldrei orðið til. — Hér í blaðinu hefir áður verið gjörður samanburður á afleiðing- um góðæranna 1925 og 1929. Sá samanburður sýnir, að góðærið 1929 hefir verið notað til fram- kvæmda, en að góðæríð 1925 var aftur á móti notað til að koma fram fávíslegri og stórhættu- legri gengishækkun. Árapgurinn af glæsilegri afkomu þjóðarbús- ins árið 1929 er áð finna í brúm og vegum í sveitum landsins, stóraukinni ræktun landsins, bættu símasambandi og strand- ferðum, nýjum alþýðuskólum í sveitum og kauptúnum o. m. fl. Milj ónirnar, sem farið hafa til þessara framkvæmda, eru sýni- legar og munu bera ávöxt á ó- komnum tíma. En hvar eru mil- jónirnar, sem íslenzkir framleið- endur urðu að greiða í gengis- hækkunarskatt á stjórnarárum íhaldsins, til þess að fullnægja metnaði þess misvitra fjáimála- ráðherra, sem, hvað sem öðru leið, vildi vera „heih heilanna"? Snjóbílarnir og Mbl. Nú hafa komið til landsins þrír snjóbílar, í viðbót við þann sem áðui' var til. Mbl. segir svo frá þessum málum, að vegamála- stjóri G. T. Zoéga hafi pantað þessa bíla. Sama sagði blaðið í fyrra um bíi þann er þá kom til landsins. Það er móðgun við Zo- éga, að minna landslýð allan á vankunnáttu vegamálastjóra og íhaldsins í þessu máh. Á þingi 1926 flutti eirm Framsóknar- þingmaður tihögu um að stjórn- in keypti snjóbíl frá verksmiðju þeirri, er býr þá til í París. Þá reis M. G. og íhaldsmenn á þingi móti þessu og báru fyrir sig vegamálastjóra. Sannleikurinn rnun hafa verið sá, að hvorki J. Þ. eða G. Zoéga vissu neitt um bílinn og afrek þau, er hann hafði þá gjört á söndum Sahara og snjó í Svisslandi, en þótti skömm að láta leikmenn verða sér snjallari. Eyddu íhaldsmenn þessu máli, en í stað snjóbíls, sem flaut ofan á snjónum, keypti G. Zoéga ferlíkisbíl, sem átti að moka snjó af vegum. En það misheppnaðist algerlega. Var sá bíll með öUu ónýtur hér, og gjörði veginn ófæran fyrir aðra bíla. Varð tilraun verkfræðinga Mbl. að athlægi um land aUt. Eftir stjómarskiptin bauð S. 1. S. landsstjóminni kaup á snjó- bíl þessum, því að það hafði ver- ið umboðsmaður verksmiðjunnar. Tók forsætisráðherra þá málið í sínar hendur og lét panta hinn fyrsta bíl. Reyndist hann svo vel að þingmenn Framsóknar af Austur- og Norðurlandi beittu sér fyrir fjárveitingu á fjárlög- um 1931 til notkunar snjóbíls á Fagradal og Iioltavörðuheiði. Fól forsætisráðherra S. 1. S. að kaupa bíla þessa og eru þeir nú komnir. Framsókn. hefir því haft alla forgöngu í þessu máli, •en vegtcmálastjó.Yi alls enga, nema ef hann sér um smíði á skúrum þeirn, eftir skipun landsstjómarinnar, sem bílar þessir eru geymdir .í. í>að er jafn aðdáanlegt, að ver kfræðingur í- haldsins skyldi ekl ;ert vita um afrek snjóbílsins, U926, eins og 9? Nýja Útvarpsstöðin er bráðlega fullreynd "8 Ekkert heimili ætti að fara á mis við það gagn og þá gleði, sem útvarpið heflr að bjóða. Hvar sem þér eruð stödd á landinu, færir út- varpstækið yður það, sem þér að öðrum kosti yrðuð að sækja til höfuðstaðarins. Ííi Simi 823. Víðtækjaverzlun ríkisins Eignist víðtæki svo að þér fáið allar þér fréttir, sem út- varpið færir, heyrið fræðandi fyrirlestra, söng og hljóðfæraslátt og verðið aðnjótaúdi kenslu í tungumálum o. fl. er hafið verður með útvarpinu. Lækjargötu iOB, Reykjavík. Símnefni: Viðtæki. sS að Mbl. skuli nú vilja eigna sín- um mönnum það, sem aðrir gjöra til gagns í þessu máli. Z. Öllu má ofbjóða. Nýlega hefir heyrst að stjóm læknafélagsins hafi hirt 2 með- limi stéttarinnar fyrir lítt sæmi- lega, opinbera framkomu. Hirt- ingin kom fram í bréflegri á- minningu og alvarlegri brýningu um að verða ekki stétt sinni aft- ur til almennrar vansæmdar. Þessir tveir píslarvottar afglapa- sinna kváðu vera þeir Kjartan Ólafsson og Páll Kolka, embætt- islaus læknir í Vestmannaeyjum. — Fyrir all-skömmu síðan reit Kjartan klausu í Mbl., sem hét: „Dómsmálaráðherrann og tungl- ið“. Hefir Tíminn birt hana, sem sýnishom af rithætti manns, er íhaldið vildi fela trúnaðarstarf. En þótt Guðm. Hannessyni, form. iæknafélagsins, sé þungt í skapi til dómsmálaráðherrans, eftir ó- ,sigra læknanna í öllum viðskipt- um við hann, hefir honum þótt þetta „innlegg“ starfsbróður síns svo gjörsneytt öllu viti og blæ siðaðra manna, að hann hefir rétt að honum hirtingarvöndinn. Aftur á móti hefir Páll Kolka nýlega skrífað svo strákslega og ógætilega um spítalamál þeiira Vestmannaeyinga og héraðslækn- inn þar, að læknastjórninni hefir eínnig ofboðið og sent honum umvöndun. Hefir Kolka þessi sýnt hinum vinsæla héraðslækni Eyjanna óvenjulega ágengni og lítilmennsku, — reynt með bein- um og óbeinum dylgjum að rýra læknisálit hans um leið og hann hefir raupað nær gegndarlaust um sitt ágæti og læknisdóma, auk sjálfhælni hans á öllum öðr- um sviðum. Hefir karlagrobb Kolku gengið svo úr hófi', að íhaldsmönnum þar hefir ofboðið,. og liggur Kolka undir hinni háðulegustu ádeilu Guimars Ól- afssonar kaupmanns, eftir því, sem sjá má á íhaldsblaði þeirra Eyjamanna. Hlýtur það að hafa verið þungt hlutskipti form. læknafél., að þurfa að aga þessa óvita, einkum þegar Klepps- hneykslið er haft í huga og all- ur sá hróður, sem Kolka vann sér og stétt sinni með ,„fyrir- lestri“ sínum og aurasöfnun s. 1. vor. Er naumast hægt að ætla, að nokkur læknisnefna á öllu Is- landi hefði lagst jafnlágt. Lítur nú út fyrir, að hann hafi fengið „skell fyrir skildinga". En ef til viU getur honum og þeiin kum- pánum verið það raunaléttir, að formaður þeirra „elskar þá sem hann agar“. Þórir þögli. ----o—i--- Frétttr Hinrik Erlendsson héraðslæknir í Hornafirði andaðist á Landakotsspít- ala 27. þ. m. Hann var maður vin- sæll og vel látinn i embætti. Síðast- liðið ár varð hann fyrir alvarlegu slysi, byltu af hestbaki, og beið þess aldrei bætur. GuSlaugur Nikulásson bóndi í Hall- geirsey lézt hinn 28. þ. m. í hárri elli eftir langa og þunga. sjúkdóms- legu. Var Guðlaugur nafnkunnur formaður á sinni tíð, gestrisinn, greiðvildnn og einn hinn bezti drongur. pórunn Sigurhjartardóttir, kona Péturs bónda Jónssonar að Brúna- stöðum i Fljótum lézt hinn 17. des- ember s. 1. Var hún fædd 5. maí 1890. Reistu þau hjón bú að Eyhild, arholti í Skagafirði árið 1913, eign- uðust 10 börn, og eru 8 þeirra á lífi. Er þungur harmur kveðinn að heimili Péturs við fráfall þetta. Áætlun fvrir strandferðaskip ríkis- ins 1931 er nú tilbúin. Fer Esja 32 hringferðir á árinu og Súðin 12. Við- komustaðir eru 57 og viðkomur alls 1221. Árið 1929 voru viðkomurnar aðeins 676 og sézt af því, hve mjög strandferðirnar hafa batnað tvö síð- ustu árin. Næsta ár er fyrsta árið, sem tvö skip halda uppi stöðugum strandferðum allt árið. — í eftirfar- andi töflu eru taldar allar hafnir á landinu, sem strandferðaskipin koma við á næsta ár og jafnframt gjörður samanburður á viðkomufjölda við árið 1929, en það ár var strandferða- skipið aðeins eitt. Síðastliðið ár voru skipin eins og kunnugt er, tvö nokkurn hluta ársins. Samtals 1931 1929 Arnarstapi................ 9 6 Hjallasandur............... 25 13 Ólafsvík................... 20 13 Grafarnes (Grundarf.) .. 4 6 Stykkishólmur............. 31 16 Staðarfell................ 11 engin Búðardalur................ 16 9 Gilsfjörður .. .'........ 10 engin Flatey.................... 27 14 Patreksfjörður............ 32 10 Tálknafjörður.............. 14 13 Bíldudalur................. 23 15 þingeyri, Dýrafjörður ... 30 16 Flateyri, Önund.f.......... 31 14 Suðureyri, Súgandaf....... 18 li Bolungarvík................ 11 10 ísafjörðui'................ 32 16 Ingólfsfjörður................ 7 3 Norðurfjörður.............. 14 12 Gjögur, Reykjarf........... 12 ongin Kúvíkur, Reykjarf.............12 13 Aðalvík.................... 4 engin Kaldrananes................ 5 engin Hólmavík................... 32 16 Bitrufjörður............... 10 11 Borðeyri................... 29 14 Hvammstangi................ 31 15 Blönduós................... 30 16 Skagaströnd................ 29 14 Kálfshamarsvík............. 9 7 Sauðárkrókur............... 32 16 Kolkuós.................... 7 10 Hofsós ..'................. 16 13 Haganesvik................. 13 12 Siglufjörður...............32 16 Akureyri...................32 16 Grímsey.................... 4 4 F’latey á Skjálfanda .... 8 4 1-Iúsavík.................. 32 16 Kópaskeri.................. 31 16 Raufarhöfn................. 25 9 þórshöfn................... 30 16 Skálar..................... 14 7 Bakkafjörður............... 14 11 Vopnafjörður............... 32 16 Borgarfjörður.............. 25 16 Seyðisfjörður.............. 32 16 Mjóifjörður................ 18 16 Norðfjörður................ 31 16 Reyðarfjörður.............. 32 17 Fáskrúðsfjörður............32 17 Stöðvarfjörður............. 17 13 Breiðdalsvík............... 16 9 Djúpivogur................. 32 17 Hornafjörður............... 32 12 Vestmannaeyjar.............32 18 Reykjavík .. .............. 32 18 Tilbúinn áburður. Tíminn vill vekja athygli á auglýsingu S. í. S. um pantanir á tilbúnum áburði, á öðr- um stað í blaðinu. Er áríðanda fyrir S. l. S., að fá ákveðnar áburðarpant- anir svo snemma vetrar, að hægt sé í tæka tíð, að fá fullt yfirlit yfir á- burðarþörfina á komanda vori. Á Spáni geysar uppreisn og borg- arastyi’jöld. Uppreisnarmenn heimta afnám konungsvaldsins og stofnun lýðveldis. Stjómin hefir lýst yfir hernaðarástandi um allt landið. . Næsta blað kemur út laugardaginn 10. jan. I. C. Christensen, hinn alkunni danski stjórnmálamaður, andaðist 19. þ. m., 74 ára gamali. Hann var einn af aðalforingjum Vinstrimanna og um eitt skeið ráðherra. Hann var einn nefndarmannanna, er um sam- handslögin fjölluðu, 1918. Hópur kommúnista gjörði í gær hark nokkurt úti fyrir stjórnarráðs- húsinu, á meðan fulltrúanefnd frá verkamönnum átti tal við atvinnu- málaráðherra. Höfðu kommúnistarnir talsverða háreysti í frammi og sungu m. a. niðvísur um Jónas Jónsson ráð- lierra, en ráðherrann hefir eins og kunnugt er, tekið talsvert ómjúkum höndum á æsingalýð þessum í skru- um sínum nú undanfanð. Engin spellvirki framdi þó hópur þessi, og hypjaði sig burt, eftir litla stund, enda skipti enginn sér af honum. Mbl. í dag virðist mjög ánægt yfir strákskap þeim, er þama var í frammi hafður, og er það að vonum. Leiðrétting. Jón Árnason frkvstj. biður þess getið, að það hafi verið frú Jóhanna Egilsdóttir, en ekki frú þuríður Friðriksdóttir, sem átti tal við hann um kauphækkun verka- kvennanna í garnahreinsunarstöð- inni, og hafi hann í grein sinni 14. þ. m. í ógáti blandað nöfnum. Skarlatssótt kom upp á Akureyri rétt fyrir hátíðamar og var öllum skólum þar lokað. í menntaskólan- iézt einn nemandi. Jólagleði Samvinnuskólans er i kvöld i K.-R.-húsinu. Stjóm síldareinkasölunnar hefir sagt Einari Olgeirssyni upp fram- kvæmdastjórastarfi hans við einka- söluna. Atvinnuleysi. Samkvæmt skýrslum, sem United Press hefir fengið frá þjóðabandalaginu og sent Frétta- stofunni, hefir tala atvinnulausra manna i heiminum siðastliðið haust verið sem hér segir (íbúatölu land- anna er jafnframt getið): Atvinnu- lausir íbúatala Austurríki .. .. 156.000 6.326.661 Belgia........ 64.000 7.923.077 C’.anada...... 20.000 9.896.800 Tékkóslóvakía .. 37.000 14.323.186 Danmörk....... 25.000 3.434.333 Danzig........ 15.000 386.000 Finnland.......... 4.000 3.582.406 Frakkland .. .. 1.000 40.745.674 Stóra Bretland .. 2.100.000 44.173.704 Ungverjaland . .. 2.000 8.368.373 Ílalía....... 400.000 40.796.000 Holland....... 25.000 7.625.938 Noregur....... 20.000 2.649.773 Pólland...... 340.000 30.212.902 Palestina......... 5.000 832.000 Rúmenía....... 23.000 17.393.149 Rússland.... 1.130.000 150.000.000 Saar.............. 7.000 770.000 Svíþjóð ............. 26.000 6.087.923 Bandaríkin .. .. 4.000.000 122.000.000 Jugoslavía .. .. 7.000 12.017.323 Kolanámueigendur í Rínarbyggð- um og Westpfalen hafa sagt upp launasamningum frá 1. jan. 1931 í þeim tilgangi að koma fram launa- lækkunarkröfu. Talið er, að hér sé á uppsiglingu ákaflega alvarleg kaup- deila. Kolanámumenn i Ruhrhérað- inu einu eru ca. þrjú hundruð þús- undir. Frá Finnlandi. Fyrstu úrslit bæjar- stjórnarkosninganna í Finnlandi benda til þess, að vinstri flokkurinn hafi mist fylgi. Næstum því þrjú hundruð kommúnistalistar voru úr- skurðaðir ógildir, samkvæmt hinum nýju lagaákvæðum um útilokun kommúnista. Rannsókn á því, hverjar orsakir lágu til þess, að flugskipið R—101 fórst 1 Frakklandi þann 4. okt, er lokið. Forseti rannsóknamefndarinn- ar, Sir John Simon, hefir tilkynnt, að hann geti eigi að svo stöddu sagt hvenær skýrslur nefndarinnar verði tilbúnar, en kvað nefndina sann- færða um, að yfirforingjar á R—101 ættu í engu sök á slysinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.