Tíminn - 28.02.1931, Blaðsíða 4
46
TlMINN
t
Sisrfflir MmMv
Sigríður Guttormsdóttir var fœdd
að Svalbarði í J)istiifirði 17. maí
1887. Tveggja ára að aldri fluttist
hún ásamt foreldrum sínum, sr.
Guttormi Vigfússyni og frú Jiórhildi
Sigurðardóttur, að Stöð í Stöövar-
firði og ólst þar upp.
Vorið 1911 giftist hún Guttormi
Pálssyni skógarverði á Hallormsstað,
sem lifir nú konu sína ásamt fjór-
um bömum þeirra. Síðustu æfistund-
ir sínar þjáðist Sigríður af mein-
semd í höfði, sem að lokum leiddi
hana til dauða. Hún andaðist á
Landakotsspítala 29. okt. 1930.
Við fráfall Sigríðar er stórt skarð
höggvið í lið íslenzkra kvenna, skarð
sem ekki verður auðfyllt. Hún var
af guðs hendi gædd miklum og góð-
um hæfileikum og allir unnu henni
hugástum, sem þekktu hana.
En það sem gjörir minningu henn-
ar helgasta í hugum eftirlifandi vina,
er hin sanna og hreina lífsgleði, sem
var hennar tryggi fylginautur. Henni
var mjög annt um að hjálpa þeim,
sem bágt áttu og hugga þá, sem
hryggir voru. í nærveru hennar varð
allt bjartara og hlýrra.
Margar fagrar endurminningar
skildi hún eftir i hugum þeirra,
sem dvöldu með henni í bernsku
hennar og æsku. þær minningar hafa
vermt marga og veitt gleðibrosi um
brár.
Siðar gegndi hún húsmóðurstörfum
sínum með rausn og prýði. Gestrisni
og góðum viðtökum átti hver að
fagna, sem bar að hennar garði.
Enda voru þau hjón samhent um
þá hluti.
Ég hygg, að margur, sem leggur
leið sína um Fljótsdalshérað, sakni
vinar í stað, og minnist með hrifn-
ingu og þakklátu hjarta húsfreyj-
unnar á Hallormsstað.
Ég fæ vel skilið hve sárt slík kona,
sem Sigríður yar, er syrgð, sem eig-
inkona og móðir. Hversu heitt hafa
ekki þessir ástvinir óskað að njóta
hennar lengur. En allt vort líf er í
hendi guðs, og hann einn skilur
hvað bezt er.
Foreldrar hennar eru nú háaldrað-
ir, en hugga sig við fagrar endur-
minningar, unz fundum ber aftur
saman. Hennar kæri eiginmaður og
börn oma sér nú við þann eld, sem
hún kveikti í hjörtum þeirra.
þótt æfidagur Sigríðar yrði styttri
en margur hefði óskað, skilur hún
þó eftir mikið og vel unnið dags-
verk.
Allt til dauða geymdi hún sína
hreinu bamsgleði.
Með bros um brár er hún liðin inn
í eilífðina, yfir um hafið, þangað sem
ríkir eilífur, sólbjartur dagur.
þaðan sendir hún ljós inn í líf
vina sinna.
Hvíli hún í guðs friði.
Grúfir nú sorgin yfir breiðri byggð,
bjartur að kveldi er mnninn
æfidagur.
Ljósgeislar dvína, skyggir,
drýpur hryggð,
dagurinn liðni var svo hreinn
og fagur.
lingum sem gömlum öllum varstu
• kær,
alstaðar barstu með þér líf og gleði.
Veittir þú birtu og hlýju
hryggum nær,
huggaðir mædda, kveiktir ljós í gleði.
Söngstu oss tíðum fögur lífsins ljóð,
leystir þú marga hugi úr deyfðar-
böndum.
Vermdir þú geislum annara æfislóð,
unaðar kveiktir bál í hugans löndum.
Elskurík dóttir, tigin varstu og trú,
trygglynd sem móðir,
hjartnæm eiginkona.
Brœður og systur heitt þín sakna nú,
sólbjarmans gjafa þeirra dýpstu vona.
J>ú hefir unnið gott og göfugt verk,
guði vér þökkum liðna æfidaga.
Hugljúf og íögur geymist
minning merk,
margþættum geislum prýdd er
lífe þíns saga,
Frændur og vinir kært nú þakka þér,
þú hcfir vcitt svo margar gleðistundir.
Minning þín hryggum
huggun bezta lér,
hreinir og bjartir voru jarðlíísfundir.
HAVNEM8LIEN
Jörðin Brennistaðir
í Reykholtshreppi, Borgarfjarðarsýslu, fæst til kaups og á-
búðar í næstu fardögum. Til mála getur komið að jörðin
fáist leigð. Nánari upplýsingar gefur eigandi og ábúandi
jarðarinnar Arni Þorsteinsson, sími um Kleppjárnsreyki, og
Theodór Sigurgeirsson Nönnugötu 5, Reykjavík, sími 951
hefir hlotið einróma
lof allra neytenda
Fæst í öllum verzlun-
um og veitingahúsum.
KAUPMANNAHOFN
mælir með sínu alviðurkennda RÚGMJÖLI og HVEITI.
Meiri vðrugæði ófáanleg
S.I.S. slciftii' ein.g'öiig'Li ’vi<3 olclkrixx
Seljum og mörgxim öðrum íslenzkum verzlunum.
P.W.Jacobsen&Sön
Timburverzlun.
Símnefni: Granfuru. Carl Lundsgade
Stofnað 1824. Köbenhavn.
Afgreiðum frá Kaupmaxmahöfn bæði stórar og litlar pantanir og
heila skipsfarma frá Svíþjóð. Sís og umboðesalar annast pantanir.
:: :: :: EIK OG EFNI í ÞILFAR TIL SKIPA. :: :: ::
Pramleiðum eftirfarandi tegundir:
Þors-Pusner,
Þórs-Bjór,
Þórs-Landsöl,
Þórs-Maltöl,
Þórs-Hvítöl,
Þórs-Skipsöl,
Þórs-Gosdrykkir
Þórs-Sódavatn.
Flestallar þessar tegundir
fást í hvaða verzlun eða veit-
ingahúsi sem er á landinu. —
Drekkið ávalt Þórs-drykki.
Þeir eru ljúffengir og hress-
andi.
H.F. ÖLGERÐIN ÞÓR
Símnefni Þór.
Reyhjayík Sími 249
Niðursuðuvörur vorar:
KJtit.......11 kg. og Vi kg. dósum
Kwfs .... -1 - - ‘/2 — -
Bayjarabjóg-n 1 - - lfl -
Finkabollur -1 - - */l —
.......- 1 - - 1/2 -
hljóta almenningralof
Ef þór hafið ekki reynt vörnr
þessar, þá gjöriö þaö nú. Notið
innlendar rörur fremuren erlendar,
með þvi stuðlið þér að þvi, að
ÍBlendingrar verði gjálfum sér nógir.
Pantanir afgreiddar fljótt og
vel hvert á land gem er.
Höfug fella syrgjendur sorgartár,
sárt er að kveðja látna vininn mæra.
Vonimar dánar — dýpstu lífsins þrár.
Drottinn hví tókstu burtu
vininn kæru.
Vinina hryggu vermdu drottinn minn,
vertu þeim trú og hjálp í sorg
• og þrautum.
Veittu þeim styrka vinararminn þinn,
vertu þeim Ijós á komandi’
æfihrautum.
Guð sem að lífi öllu anda gaf,
almáttkur faðir dásemda á jörðu.
Guð sem að geislum lykur lönd og hal'
léttir vort stríð og bllðkar élin hörðu.
S. G. p.
Sjálfs er hðndin
Hollust
Kaupið innlenda framleiðslu,
þegar hún er jafngóð «rlendri og
ekki dýrari.
framleiðir:
Kristalsápu, grænsápu, stanga-
sápu, handsápu, raksápu, þvotta-
efni (Hreins hvítt), kerti alls-
konar, skósvertu, skógulu, leður-
feiti, gólfáburð, vagnáburð, fægi-
lög og kreólínsbaðlyf.
KaupiS H R EIN S vBrur.
Þær eru löngu þjóðkunnar og fást
í flestum verzlunum landsins.
H. í. Hreinn
Skúlagötu. Reykjavík. Sími 1825.
T. W. Buch
(Iiitasmiðja Buchs)
Tietgensgade 64. Köbenhvan B.
IiITIR TIL HEIMALITUNAR:
Demantssorti, hrafnsvart, kastorsorti, Parisarsorti og
allir litir, fallegir og sterkir.
Mælum með Nuralin-lit, á ull og baðmull og ailki
TIL HEIMANOTKUNAR:
Gerduft „Fermenta“ og „Evolin“ eggjaduft, áfengis-
lausir ávaxtadropar, soya, matarlitir, „Sun“-skósvert-
an, „ökonom“-skósvertan, sjálfvinnandi þvottaefnið
„Persil“, „Henko“-blæsódinn, „Dixin“-sápuduftið,
„Ata“-skúriduftið, kryddvörur, blámi, skilvinduolía
o. fl.
LITAVÖRUR:
Brúnspóxm.
Anilinlitir Catechu, blásteinn, brúnspónslitir.
GLJÁLAKK:
„Unicum" á gólf og húsgögn. Þomar vel. Ágæt tegund.
HOLLENSKT EXPORT KAFFI-SURROGAT:
Bezta tegund, hreint kaffibragð og ilmur.
Fæst alstaðar á íslaudi.
BOXT TENGOR er besta,
ódýrasta og fegursta kassa-
myndavélin. Tvær fjarlægð-
ar linsur fylgja hverri vél.
Sjálfvirkur lokari.
6x9 stærð á kr. 20
Sportvöruhús Reykjavikur
Ferðamena,
sem koma til Reykjavíkur, geta
fengið ódýraata gistingu & Hverf-
isgötu 82.
Ritstjórí: Gíall Guðmundmon.
Ásvallagötu 27. Sími 1245.
Prentsmiðjan Acta.